NV Elbow F20 - Accessoire médical ResMed - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis NV Elbow F20 ResMed á PDF sniði.
Spurningar notenda um NV Elbow F20 ResMed
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Accessoire médical á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína NV Elbow F20 - ResMed og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. NV Elbow F20 vörumerkisins ResMed.
NOTENDAHANDBÓK NV Elbow F20 ResMed
NV Elbow F20 (hné án loftunar) fylgibúnaðurinn kemur í stað núverandi hnés með loftun í AirFit™ F20 / AirTouch™ F20 grímunni og breytir henni í grímubúnað án loftunar.
Ætluð not
NV Elbow F20 hnéd án loftunar breytir AirFit F20 og AirTouch F20 grímunum með loftun í grímubúnað án loftunar í peim tilgangi að veita öndunaraðstoð með jákvæðan loftþrýsting án inngrips. Breytta grímubúnaðinn án loftunar skal nota með öndunarbúnaði með fullnægjandi viðvörunar- og öryggisbúnaði fyrir vandamál við öndunaraðstoð, til að veita samfellda eða slitrótta öndunaraðstoð.
NV Elbow F20 hnéd án loftunar (begar notað með breyttu AirFit F20 grímunni og AirTouch F20 grímunni án loftunar) er:
- fyrir sjúklinga sem eru yfir 30 kg
- ætluð til endurtekinnar notkunar fyrir einn sjúkling heima fyrir og/eða til endurtekinnar notkunar fyrir fleiri en einn sjúkling innan heilbrigðisstofnunar eða á sjúkrahúsi.
Klínískur ávinningur
Klínískur ávinningur af óloftuðum grímum er veiting skilvirkrar meðferðar frá tæki til sjúklings.
Ætlað fyrir sjúklingahóp/sjúkdómsástand
Teppulungnasjúkdómar (t.d. langvinnur teppulungnasjúkdómur), sjúkdómar með lungnabrengingum (t.d. sjúkdómar í starfsvef lungna, sjúkdómar í brjóstkassa, tauga- og vöðvasjúkdómar), sjúkdómar í sambandi við miðstýrða öndun og vanöndunarheilkenni vegna offitu (OHS).

ALMENNAR VIDVARANIR
Sjá fleiri almennar viðvaranir varðandi notkun grímunnar í notendahandbók AirFit F20 / AirTouch F20. Eftirfarandi viðvaranir til viðbótar tengjast notkun NV Elbow F20 hnés án loftunar.
- Grímu með hné án loftunar á skal nota fyrir sjúklinga sem Þurfa öndunaraðstoð án lífsbjargandi öndunarvélar.
- NV elbow F20 hné án loftunar skal einungis nota med ResMed AirFit F20 og AirTouch F20 grímubúnaði.
- Grímu með hné án loftunar verður að nota með ytri útöndunarbúnaði. Gríman verður að vera fest og viðhaldið við meðferð af þjálfuðu heilbrigðisstarfsfólki. Ef ekki er fylgst með sjúklingnum getur það leitt til missir meðferðar, alvarlegra meiðsla eða dauða.
- Notendur sem ekki geta fjarlægt grímuna sjálfir eða hætta er á að bregðist ekki við vandamáli verða að vera undir eftirliti hæfra aðila við notkun grímu með hné án loftunar. Pessi gríma hentar ekki fyrir einstaklinga sem hættir til að svelgjast á. Ef notkun er ekki undir eftirliti við pessar kringumstæður getur það leitt til alvarlegra meiðsla eða dauða.
- Gríman með hné án loftunar inniheldur ekki útöndunareiginleika eða köfnunarvarnarloka (AAV). Grímuna verður að nota með rás fyrir öndunaraðstoð án inngrips (NIV) með útblástursbúnaði eða öndunarbúnaði með jákvæðum þrýstingi með útblástursloka. Pegar öndunarbúnaðurinn virkar rétt gerir útblásturslokinn útandaða loftinu kleift að sleppa út í umhverfið. Pegar öndunarbúnaðurinn virkar ekki gæti útönduðu lofti verið andað aftur. Ef útönduðu lofti er andað aftur getur það í sumum kringumstæðum leitt til kæfingar og/eða meiðsla.
ALMENNAR VIDVARANIR
- Grímu með hné án loftunar skal ekki nota nema kveikt sé á tækinu.
- Fylgdu öllum varúðarráðstöfunum pegar viðbótarsúrefni er notað.
- Pað verður að slökkva á súrefnisflæðinu pegar loftræstitækið er ekki í gangi svo að ónotað súrefni safnist ekki fyrir innan í hólfinu í tækinu og valdi eldhættu.
- Súrefni er eldnærandi. Súrefnið má ekki nota á meðan reykt er eða nærri opnum eldi. Aðeins skal nota súrefni í vel loftræstum herbergjum.
- Við súrefnisgjöf á jöfnum hraða er styrkur súrefnis við innöndun breytilegur, háð stillingum á brýstingi, öndunarmynstri sjúklingsins, grímu, notkunarstað og lekastreymi.
- Ef það má greina sýnilegt slit á hné án loftunar (sprungur, rifur, rispur, o.s.frv.) skal viðkomandi íhlut fargað og skipt út fyrir nýjan.
- Tækniforskrift fylgir grímu með hné án loftunar svo athuga megi hvort gríman sé samhæf við öndunarbúnaðinn. Ef farið er út fyrir tækniforskriftina við notkun eða ef notuð með ósamhæfum búnaði gæti besta mögulega meðferð ekki náðst.
- Hættið að nota grímuna ef sjúklingurinn er með EINHVERJAR aukaverkanir vegna notkunar á grímu með hné án loftunar og leitið ráða hjá lækni.
- Eins og á við um allar grímur getur smávægileg enduröndun átt sér stað við lágan brýsting.
- Sjá viðeigandi handbók fyrir loftræstitæki varðandi nánari stillingar og notkunarupplýsingar.
- Ekki tengja sveigjanlegar vörur úr pólývínylklóríði (t.d. slöngur úr pólývínylklóríði) með beinum hætti við neinn hluta grímunnar. Sveigjanlegt pólývínylklóríð (PVC) inniheldur efni sem geta valdið skemmdum á efni grímunnar og valdið því að sprungur eða brot myndast á íhlutum.
- Fylgið alltaf leiðbeiningum um hreinsun. Tilteknar gerðir hreinsiefna geta skemmt grímuna, íhluti hennar og virkni þeirra, eða skilið eftir sig skaðlegar gufuleifar.
- Sem hluta af góðum hreinlætisvenjum skal alltaf fylgja leiðbeiningum um hreinsun til að hindra växt sýkla.
• Fjarlægið allar umbúðir fyrir notkun.
Athugið: Tilkynna skal öll alvarleg atvik sem upp koma í tengslum við notkun pessa tækis til ResMed og lögbærra yfirvalda í viðkomandi landi.
ResMed hefur litað NV Elbow F20 hné án loftunar blátt til að auðkenna það sem fylgibúnað án loftunar. Hnéð er með hefðbundið 22 mm frammjótt kventengi fyrir ytri tengingu við öndunaraðstoðina. Sjá tækniforskriftarhluta notendahandbókar varðandi upplýsingar um leka úr grímu (þrýstingur-flæði), dautt rými og viðnám.
Samsetning
- Ef hnéd með loftun er ennpá fest við grímuna skal klemma saman hliðarhnappana og toga hnéd út úr umgjörðinni.
- Festið NV Elbow F20 hnéd án loftunar við grímuna með því að ýta hnénu inn í umgjörðina og tryggið að það smellí í og hnéd sé vandlega fest.

Fjarlægið NV Elbow F20 hnéd án loftunar af grímunni með því að klemma saman hnappana á efri og neðri hliðunum og toga það út úr umgjörðinni.
Hreinsun
Daglega/eftir hverja notkun: Sjá notendahandbók AirFit F20 / AirTouch F20. Leiðbeiningar um hreinsun hnésins gilda um NV Elbow F20 hnéd án loftunar. Fleygið hnénu ef það er mjög óhreint.
Endurvinnsla á milli sjúklinga
Endurvinna skal pennan ihlut pegar hann er notaður á milli sjúklinga. Sjá leiðbeiningar um endurvinnslu fyrir AirFit F20 / AirTouch F20 sem fáanlegar eru á ResMed.com/downloads/masks.
Tækniforskrift
Eftirfarandi forskrift á við NV Elbow F20 hněð án loftunar með AirFit F20 / AirTouch F20 grímunni
| Samhæfð tæki | AstralTM |
| Dautt rými | Tæmdu grímuna við endann á hnénu. Dauða rými grímunnar er breytilegt eftir stærð mjúka hlutans.AirFit - Lítið: 206 ml, Miðlungs: 226 ml, Stórt: 247 mlAirTouch - Lítið: 227, ml Miðlungs: 251 ml, Stórt: 288 ml |
| Meðferðarþrýstingur | 3 til 40 cm H_2O |
| Prýstingur-flæði | 3 - 20 cm H_2O : < 3 l/mín20 - 40 cm H_2O : < 6 l/mín |
| Viðnám | Lækkun í mældum þrýstingi (nafngildi)við 50 l/mín: 0,2 cm H_2O við 100 l/mín: 0,6 cm H_2O |
| Efni | Pólýkarbónat |
| Umhverfisskilyrði, ytri mál grímu og endingartími: Sjá notendahandbók AirFit F20 / AirTouch F20. | |
Geymsla og förgun
Sjá notendahandbók AirFit F20 / AirTouch F20 varðandi geymslu og förgun.
Tákn
Eftirfarandi tákn er hugsanlega að finna á vörunni eða umbúðunum.
NV Gríma án loftops MD Lækningataeki. Innflutningsaðili. LATEX? Ekki úr náttúrulegu gúmmílatexi
Táknar viðvörun eða varúð til að vara við hugsanlegum meiðslum eða útskýrir sérstakar ráðstafanir fyrir örugga og skilvirka notkun tækisins.
Hægt er að nálgast lista yfir tákn á ResMed.com/symbols.
Ábyrgð
Sjá notendahandbók AirFit F20 / AirTouch F20 varðandi ábyrgðarupplýsingar.
Frekari upplýsingar
Nýjustu upplýsingar og leiðbeiningar á öðrum tungumálum má finna á ResMed.com/downloads/masks.