ResMed AirFit F30i - Appareil de ventilation respiratoire

AirFit F30i - Appareil de ventilation respiratoire ResMed - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis AirFit F30i ResMed á PDF sniði.

📄 287 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice ResMed AirFit F30i - page 193
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um AirFit F30i ResMed

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Tölvupósturinn er áfram einkamál: hann er aðeins notaður til að tilkynna þér ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Appareil de ventilation respiratoire á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína AirFit F30i - ResMed og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. AirFit F30i vörumerkisins ResMed.

NOTENDAHANDBÓK AirFit F30i ResMed

Takk fyrir að velja AirFit™ F30i Non Magnetic heilgrímu. Pessi gríma notar púða sem péttir undir nefinu og í kringum munninn, og umgjörð með slöngutengi yfir höfuðið. Fyrir öndun á fersku lofti er pessi gríma með loftop í púðanum og hnénu og ventla í umgjörðinni.

ResMed AirFit F30i - 1

text_image A 3 4 B 2 1 5 6 C 7 8 9 D

A Hné

B Umgjörð

C Púði

D Höfuðfestingar

1 Loftop (púði)

2 Loftop (hné)

3 Hnappur á hlið

4 Stúthringur

5 Köfnunarvarnarventill (að innan vinstra og hægra megin við tengi umgjarðarinnar)

6 Tengi umgjarðarinnar

7 Klemma grímunnar

8 Neðra höfuðband

9 Efra höfuðband

Fyrirhuguð notkun

AirFit F30i Non Magnetic gríman er ætluð til notkunar hjá sjúklingum sem eru þyngri en 30 kg og sem hefur verið ávísað meðferð með jákvæðum þrýstingi í öndunarvegi án inngrips (PAP), eins og stöðugum jákvæðum loftvegabrýstingi (CPAP) eða tveggja prepa meðferð. Gríman er ætluð til endurtekinnar notkunar fyrir einn sjúkling heima fyrir og til endurtekinnar notkunar fyrir fleiri en einn sjúkling innan heilbrigðisstofnunar eða á sjúkrahúsi.

Klínískur ávinningur

Klínískur ávinningur af loftgrímum er að veita sjúklingum árangursríka meðferð með meðferðartæki.

Fyrirhugaður sjúklingahópur/heilsufarsvandamál

Langvinnir teppusjúkdómar í lungum (t.d. langvinn lungnateppa), lungnaherpusjúkdómar (t.d. sjúkdómar í starfsvef lungna, sjúkdómar í brjóstvegg, tauga- og vöðvasjúkdómar), sjúkdómar/kvillar í öndunarstýringu, kæfisvefn og grunn öndun vegna offitu.

Áður en gríman er notuð

Fjarlægðu allar umbúðir og skoðaðu hvort allir íhlutir grímunnar séu heilir.

Stilla grímuna fyrir andlitið

ResMed AirFit F30i - Stilla grímuna fyrir andlitið - 1

text_image HomeLogo

ResMed AirFit F30i - Stilla grímuna fyrir andlitið - 2

  1. Tengdu barka tækisins við hnéd.
  2. Kreistu síðan hnappana á hliðum stútsins og togaðu hann af umgjörðinni. Settu hnéd og barkann til hliðar í bili.
  3. Lyftu og togaðu báðar klemmur frá tengjum umgjarðarinnar.
  4. Settu púðann undir nefið til að hann sitji örugglega þægilega að andlitinu. Láttu ResMed merkið á höfuðfestingunum snúa upp og togaðu höfuðfestingarnar og umgjörðina yfir höfuðið.
  5. Færðu neðri höfuðböndin undir eyrun og festu klemmurnar á tengi umgjarðarinnar.
  6. Losaðu festiflipana á efri höfuðböndunum og togaðu á jafnan hátt. Endurtaktu fyrir neðri höfuðböndin.
  7. Festu hnéd ofan á umgjörðina. Gríman á núna að vera staðsett eins og synt er.

Gríman stillt

  • Hafðu kveikt á tækinu með loftblæstri og stilltu stöðu púðans til að ná sem bægilegastri þéttingu undir nefinu. Gakktu úr skugga um að mjúki hlutinn krumpist ekki og að höfuðfestingin sé ekki snúin.
  • Stilltu efri og neðri höfuðbönd til að laga allan leka í grímunni. Stilltu bara einu sinni til að tryggja pægilega péttingu og ekki herða of fast.

Stærð grímunnar stillt

Læknir eða svefnmeðferðaraðili pinn getur aðstoðað við að velja rétta stærð púða.

Ef grímuumgjörðin rennur aftur fyrir höfuðið eða liggur of nálægt eyrunum skal velja minni umgjörð. Ef umgjörðin rennur fram fyrir höfuðið eða liggur of nálægt augunum skal velja stærri umgjörð.

ResMed AirFit F30i - Stærð grímunnar stillt - 1

text_image SIZE UP SIZE DOWN

Gríman tekin í sundur fyrir Þrif

Ef gríman er tengd við tæki skal aftengja barka tækisins frá stút grímunnar.

ResMed AirFit F30i - Gríman tekin í sundur fyrir Þrif - 1

  1. Losaðu um festiflipana á efri ólum höfuðfestinga og togaðu af umgjörðinni. Hafðu klemmurnar festar við neðri höfuðböndin.

  2. Kreistu síðan hnappana á hliðum stútsins og losaðu hann af umgjörðinni.

  3. Haltu í tengi umgjarðarinnar og lyftu til að losa klemmuna frá púðanum. Endurtaktu á hinni hliðinni.

Gríman hreinsuð

Ef það er eitthvað sýnilegt slit á íhlutum grímunnar (sprungur, rifur, rispur, o.s.frv.) skal viðkomandi einingu fargað og skipt út.

Daglega/eftir hverja notkun: Púði

Vikulega: Höfuðfestingar, umgjörð og hné

  1. Látu íhlutina liggja í bleyti í volgu vatni blönduðu með mildu hreinsiefni.
  2. Handpvoðu íhlutina með mjúkum bursta. Veittu sérstaka athygli loftopum á báðum púðum og hné.
  3. Skolaðu vandlega af íhlutunum undir rennandi vatni.
  4. Láttu íhlutina loftborna fjarri beinu sólarliósi.

Endurtakið pessi skref ef íhlutir grímunnar virðast ekki alveg hreinir. Gakktu úr skugga um að loftopin og köfnunarvarnarventlarnir séu hrein og án hindrana.

Gríman sett aftur saman

ResMed AirFit F30i - Gríman sett aftur saman - 1

text_image 1 b a d

ResMed AirFit F30i - Gríman sett aftur saman - 2

  1. Samstilltu og settu tengiflipa umgjarðar (a) inn í rauf púðans (b) og ýttu niður bar til hann smellur á sinn stað. Endurtaktu á hinni hliðinni.
  2. Festu hnéð við efri hluta umgjarðarinnar bar til bað smellur á sinn stað.
  3. Látu ResMed merkið snúa út á við og upp og settu efri höfuðböndin inn í umgjörðina innan frá og brjóttu festiflipana yfir til að festa.

Athugið: Ef stúturinn losnar skal koma honum aftur fyrir efst á umgjörðinni.

ResMed AirFit F30i - Gríman sett aftur saman - 3

VIDVÖRUN

  • Gríman inniheldur öryggiseiginleika, útblástursloftop og köfnunarvarnarventla, fyrir eðlilega öndun og útblástur útöndunar. Koma þarf í veg fyrir stíflun útblástursloftopsins eða köfnunarvarnarventlanna til að forðast óæskileg áhrif á öryggi og gæði meðferðarinnar. Skoðaðu loftopin og köfnunarvarnarventlana reglulega til að ganga úr skugga um að þau séu hrein, óstífluð og óskemmd.
  • Aðeins skal nota samhæf CPAP eða tveggja prepa meðferðartæki eða aukabúnað. Tækniforskrift grímunnar fæst hjá heilbrigðisstarfsfólki til að ákvarða samhæfð tæki. Sé gríman notuð með ósamhæfðum lækningataekjum getur það dregið úr öryggi eða breytt notagildi grímunnar.
  • Gríman hentar ekki sjúklingum sem eru í öndunarvélum eða ef það myndi valda þeim verulegri heilsuskerðingu eða dauða ef meðferð er hætt eða dregið úr henni.
  • Prífðu grímuna reglulega og alla íhluti hennar til að viðhalda gæðum grímunnar og fyrirbyggja uppsöfnun örvera sem geta haft neikvæð áhrif á heilsuna.
  • Sjúklingar sem eru ekki færir um að fjarlægja grímuna sjálfir skulu nota grímuna undir eftirliti hæfs aðila. Gríman hentar hugsanlega ekki fyrir einstaklinga sem hafa tilhneigingu til ásvelgingar.
  • Grímuna skal ekki nota nema kveikt sé á búnaðinum. Pegar grímunni hefur verið komið fyrir, skal gæta pess að tækið dæli lofti til að minni hætta sé á enduröndun á útöndunarlofti.
  • Hættu notkun grímunnar eða skiptu um grímu ef sjúklingur finnur fyrir EINHVERJUM aukaverkunum við notkun grímunnar. Hafðu samband við lækni eða svefnmeðferðaraðila.
  • Fylgdu öllum varúðarráðstöfunum pegar viðbótarsúrefni er notað.
  • Pað verður að slökkva á súrefnisflæðinu ßegar CPAP eða tvístiga svefnöndunartæki er ekki í notkun svo að ónotað súrefni safnist ekki fyrir innan í hólfinu í búnaði og valdi eldhættu.
  • Súrefni er eldnærandi. Súrefnið má ekki nota á meðan reykt er eða nærri opnum eldi. Aðeins skal nota súrefni í vel loftræstum herbergjum.
  • Við súrefnisgjöf á jöfnum hraða er styrkur súrefnis við innöndun breytilegur, háð stillingum á þrýstingi, öndunarmynstri sjúklingsins, grímu, notkunarstað og lekahraða. Pessi viðvörun á við flestar gerðir CPAP eða tvístiga svefnöndunartækja.

ResMed AirFit F30i - VIDVÖRUN - 1

VIDVÖRUN

  • Gríman er ekki ætluð til notkunar með úðalyfjum sem berast í loftveg grímunnar/slöngunnar.
  • Ef það er eitthvað sýnilegt slit á íhlutum grímunnar (sprungur, rifur, rispur, o.s.frv.) skal viðkomandi einingu fargað og skipt út.
  • Fylgið ávallt leiðbeiningum um Þrif og notið einungis mild fljótandi hreinsiefni. Tilteknar gerðir hreinsiefna geta skemmt grímuna, íhluti hennar og virkni Þeirra, eða skilið eftir sig skaðlegar gufuleifar. Prífðu grímuna ekki í upppvottavél eða þvottavél.

ResMed AirFit F30i - VIDVÖRUN - 1

VARÚĐ

  • Pegar grímunni er komið fyrir skal gæta pess að herða ekki höfuðfestinguna um of, par sem slíkt getur valdið roða eða sárum í kringum púða grímunnar.
  • Eins og á við um allar grímur getur smávægileg enduröndun átt sér stað við lágan þrýsting.
  • Notkun grímu getur valdið eymslum í tönnum, gómi eða kjálka eða aukið á tannvandamál sem eru til staðar. Leitið ráða hjá lækninum eða tannlækninum ef vart verður við slík einkenni.
  • Notið ekki straujárn á höfuðfestingu þar sem hún þolir ekki hita og mun því skemmast.

Athugið: Tilkynna skal öll alvarleg atvik sem upp koma í tengslum við notkun pessa tækis til ResMed og lögbærra yfirvalda í viðkomandi landi.

Tæknilýsing

Valkostir við grímustillingu: Fyrir AirSense, AirCurve eða S9: Veldu „Heilgríma“.

Samhæfð tæki: Fyrir ítarlegan lista yfir samhæfð tæki fyrir þessa grímu, sjá „Mask/Device Compatibility List“ á ResMed.com/downloads/masks. SmartStop gæti ekki virkað vel þegar þessi gríma er notuð með sumum CPAP eða tvístiga tækjum.

Flæðiprýstingskúrfa
ResMed AirFit F30i - Tæknilýsing - 1

line | Prýstingur í grímu (cm H₂O) | Rennslishraði um loftop (l/min) | | --------------------------- | ------------------------------ | | 4 | 20 | | 6 | 25 | | 8 | 30 | | 10 | 35 | | 12 | 40 | | 14 | 45 | | 16 | 50 | | 18 | 55 | | 20 | 60 | | 22 | 65 | | 24 | 70 | | 26 | 75 | | 28 | 80 | | 30 | 85 |

Meðferðarþrýstingur: 4 til 30 cm H₂O

Viðnám með köfnunarvarnarventil lokaðan fyrir andrúmslofti

Prýstingsfall mælt (nafngildi) við 50 l/mín: 0,2 cm H₂O

Prýstingsfall mælt (nafngildi) við 100 l/mín: 1,0 cm H₂O

Viðnám með köfnunarvarnarventil opinn fyrir andrúmslofti

Innöndun við 50 l/mín: 0,2 cm H₂O

Útöndun við 50 l/mín: 0,4 cm H₂O

Prýstingur með köfnunarvarnarventil opinn fyrir andrúmslofti: <4 cmH₂O

Prýstingur með köfnunarvarnarventil lokaðan fyrir andrúmslofti: <4 cmH₂O

Hljóð: Uppgefin tvítalna hljóðgildi í samræmi við ISO4871:1996 og ISO3744:2010. A-vegið hljóðaflsstig er 25 dBA, með mælióvissu 3 dBA. A-vegið hljóðprýstingsstig í 1 m fjarlægð er 18 dBA, með mælióvissu 3 dBA.

Umhverfisaðstæður

Notkunarhitastig: 5 °C til 40 °C

Notkunarrakastig: 15% til 95% án rakamyndunar

Hitastig við geymslu og flutninga: -20 °C til 60 °C

Rakastig við flutning og geymslu: allt að 95% RH án rakamyndunar

Endingartími: Endingartími grímukerfisins er háð því hversu mikið það er notað, viðhaldi þess og umhverfisaðstæðum þar sem gríman er notuð eða geymd. þar sem grímukerfið og íhlutir þess eru einingaskiptir er ráðlagt að notandinn haldi kerfinu við og skoði það reglulega og sjái um að skipta um grímukerfið eða íhluti þess ef þurfa þykir, eða samkvæmt leiðbeiningunum í hlutanum „Gríman þrifin heima fyrir" í þessari handbók.

Aukabúnaður: Mjúkar slífar eru fáanlegar sem aukabúnaður,

Geymsla

Tryggǒu að gríman sé fyllilega hrein og Þurr áður en hún er geymd í einhvern tíma. Geymdu grímuna á Þurrum stað og fjærri sólarljósi.

Förgun

Pessi vara og umbúðir hennar innihalda engin hættuleg efni og peim má farga með venjulegum heimilisúrgangi.

Endurvinnsla á grímu á milli sjúklinga

bú skalt endurvinna pessa gríma pegar hún er notuð á milli sjúklinga. Endurvinnsluleiðbeiningar er að finna á ResMed.com/downloads/masks.

Tákn

Eftirfarandi tákn er hugsanlega að finna á vörunni eða umbúðunum:

ResMed AirFit F30i - Tákn - 1

text_image Heilgríma Stilling búnaðar - heilgríma Lítil umgjörð Staðlað hólf Stór umgjörð Púðastærð - lítil púði Púðastærð - miðlungsstór púði Púðastærð - breiður púði Púðastærð - breiður púði Ekkí úr náttúrulegu gúmmílatexi

Sjá lista yfir tákn á ResMed.com/symbols.

Neytendaábyrgð

ResMed staðfestir öll réttindi neytenda samkvæmt Evróputilskipun 1999/44/EB og viðkomandi landslögum innan ESB fyrir vörur seldar innan Evrópusambandsins.

LATVISKI

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : ResMed

Líkan : AirFit F30i

Flokkur : Appareil de ventilation respiratoire