AirFit P10 - Appareil médical respiratoire ResMed - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis AirFit P10 ResMed á PDF sniði.
Spurningar notenda um AirFit P10 ResMed
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Appareil médical respiratoire á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína AirFit P10 - ResMed og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. AirFit P10 vörumerkisins ResMed.
NOTENDAHANDBÓK AirFit P10 ResMed
Takk fyrir að velja AirFit P10 fyrir AirMini.
Hvernig nota á pessa handbók
Handbókina skal lesa í heild sinni áður en búnaðurinn er notaður. Þegar verið er að fylgja leiðbeiningunum er hægt að hafa myndirnar fremst og aftast í handbókinni til hliðsjónar.
Ætluð not
AirFit P10 fyrir AirMini grímukerfið er aukabúnaður sem er notaður til að stýra loftflæði til sjúklings án inngrips. Það er með sérsniðin tengi til að tryggja að aðeins sé hægt að tengja Það við samhæf ResMed svefnöndunartæki.
AirFit P10 fyrir AirMini er:
- ætlað til notkunar hjá sjúklingum >30 kg sem ávísað hefur verið tæki með jákvæðum loftbrýstinqi
- ætlað til endurtekinnar notkunar fyrir einn sjúkling heima fyrir og til endurtekinnar notkunar fyrir fleiri en einn sjúkling innan heilbrigðisstofnunar eða á sjúkrahúsi.
Klínískur ávinningur
Klínískur ávinningur af loftgrímum er að veita sjúklingum árangursríka meðferð með meðferðartæki.
Ætlað fyrir sjúklingahóp/sjúkdóm
Hindrandi kæfisvefn (OSA).

ALMENNAR VIDVARANIR
- Notendur sem eru ekki færir um að fjarlægja grímuna án aðstoðar skulu nota grímuna undir eftirliti hæfs aðila. Pað má vera að gríman henti ekki einstaklingum sem hættir til að svelgjast á.
- Aðeins má nota þessa grímu með upptöldum meðferðartækjum og aðeins samkvæmt ráðleggingum læknis eða öndunarmeðferðaraðila. AirFit P10 fyrir AirMini krefst tengingar við upptalinn samhæfan búnað til að hægt sé að veita meðferð.
- AirMini kerfið kemur með loftunarbúnaði til að hindra uppsöfnun koltvísýrings í grímunni. Halda verður loftunarbúnaðinum hreinum og lausum við mengun til að hann virki rétt. Stíflun eða breyting á loftunarbúnaðinum getur leitt til óhóflegrar enduröndunar á koltvísýringi.
- Pessi gríma er ekki til notkunar hjá sjúklingum með skert barkakýlisviðbrögð eða annað ástand sem er móttækilegt fyrir ásvelgingu í tilfelli bakflæðis eða uppkasta.
- Pessi gríma er ekki samhæf við viðbótarsúrefni.
- Hættið notkun á grímunni ef vart verður við EINHVERJAR aukaverkanir vegna notkunar hennar og leitið ráða hjá lækninum eða svefnráðgjafanum.
- Notkun á grímunni getur valdið eymslum í tönnum, gómi eða kjálka eða aukið á tannvandamál sem eru til staðar. Leitið ráða hjá lækninum eða tannlækninum ef einkennin koma í ljós.
- Eins og með allar grímur getur enduröndun átt sér stað.
- Sjá leiðarvísi fyrir meðferðartækið fyrir nánari upplýsingar um stillingar og notkun.
- Gríman er ekki ætluð til notkunar með úðalyfjum sem berast í loftveg grímunnar/slöngunnar.
- Fjarlægið allar umbúðir áður en gríman er notuð.
- Ekki tengja sveigjanlegar vörur úr pólývínylklóríði (t.d. slöngur úr pólývínylklóríði) með beinum hætti við neinn hluta grímunnar. Sveigjanlegt pólývínylklóríð (PVC) inniheldur efni sem geta valdið skemmdum á efni grímunnar og valdið því að sprungur eða brot myndast á íhlutum.
- Grímuna skal ekki nota nema kveikt sé á búnaðinum. Pegar búið er að koma grímunni fyrir skal ganga úr skugga um að tækið blási lofti. Skýring: Ætlast er til þess að svefnöndunartæki séu notuð með sérstökum grímum (eða tengjum) sem eru með loftop svo loft geti streymt samfellt út úr grímunni. Pegar kveikt er á tækinu
og það virkar rétt, þá ýtir nýtt loft úr tækinu út lofti sem er andað frá sér út um loftop grímunnar. Pegar tækið er hins vegar ekki í gangi, kemur ekki nægt ferskt loft í gegnum grímuna og hægt er að anda aftur að sér lofti sem andað var frá sér. Enduröndun á lofti sem andað var frá sér getur leitt til köfnunar ef hún varir lengur en nokkrar mínútur. Pessi viðvörun á við flestar gerðir af svefnöndunartækjum.
Athugið: Tilkynna skal öll alvarleg atvik sem upp koma í tengslum við notkun pessa tækis til ResMed og lögbærra yfirvalda í viðkomandi landi.
Hvernig nota á grímuna
Fyrir ítarlegan lista yfir samhæfð tæki fyrir þessa grímu, sjá „Mask/Device Compatibility List“ á ResMed.com/downloads/masks. Ef þú hefur ekki aðgang að netsambandi, skaltu hafa samband við fulltrúa ResMed.
Rakagjöf
HumidX og HumidX Plus eru vatnslaus rakataeki. Pau eru hönnuð til að veita meiri pægindi með pví að bæta rakastigið í loftinu sem pú andar og draga úr hugsanlegum purrki.
HumidX er góður upphafspunktur til að finna rétta rakastigið. HumidX Plus mun bæta rakastigið enn frekar og er gagnlegt begar rakastig umhverfisins er mjög lágt (t.d. í mikilli hæð, í flugvél).
Skipta parf um HumidX og HumidX Plus innan 30 daga frá pví að umbúðir HumidX/HumidX Plus eru opnaðar.
Mátun
Sjá notendahandbók AirMini varðandi uppsetningu AirMini vélarinnar. Pegar pú hefur sett AirMini upp skaltu fylgja pessum prepum við að setja upp grímuna.
-
Aðlagaðu vinstri (L) og hægri (R) púðana að vinstri og hægri nasavængjum. Togaðu höfuðfestingarólarnar yfir höfuðið. Neðri höfuðfestingarólin ætti að sitja Þægilega aftan á höfðinu. Efri ólin ætti að sitja Þægilega á hvirflinum.
-
Til að tryggja að gríman passi pægilega skaltu toga grímuna frá nefinu og setja púðana aftur í stað. Gakktu úr skugga um að
neföndunarpúðarnir passi vel inn í nasirnar og að báðir púðarnir séu uppréttir.
- Nú er búið að setja upp grímuna og hún tilbúin til notkunar. Pegar búnaðurinn er í gangi gæti verið að þú finnir fyrir léttum loftstraumi nærri loftopinu í kringum slöngutengið. Til að kanna loftopið, leggðu fingur að tengisvæðinu og sjáðu hvort þú finnur fyrir loftflæði. Gættu pess að loftopssvæðið stíflist ekki.
Stilling
Til að passi Þægilega skaltu stilla efri og neðri höfuðfestingarólar - draga ólarnar í sundur til að losa eða draga saman til að herða.
Ef höfuðfestingarnar koma með AirFit P10 höfuðfestingarklemmum getur bú notað þær til að stilla enn frekar. Sjáðu leiðbeiningablaðið fyrir höfuðklemmurnar fyrir aðstoð.
Ath.: Það kann að vera að höfuðfestingarnar með AirFit P10 höfuðfestingarklemmunum séu ekki fáanlegar á öllum svæðum.
Ef höfuðfestingarnar koma með sylgju, skaltu stilla höfuðfestingarnar með því að toga höfuðfestingarólina í gegnum sylgjuna til að laga grímuleka. Stilltu bara einu sinni til að tryggja þægilega þéttingu og ekki herða of fast. Pú gætir þurft að stilla höfuðfestingarnar þar sem það tognar á þeim með tímanum.

VIDVÖRUN
Ekki herða höfuðfestingarólarnar of mikið.
Fjarlægja
Til að fjarlægja grímukerfið, togaðu grímuna og höfuðfestingarnar med tvískiptu ólinni upp og yfir höfuðið.
Sundurtekning
- Aftengdu grímuslönguna frá loftopseiningunni með því að snúa varlega upp á hana og toga í sundur. Ef þú ert að nota HumidX eða HumidX Plus skaltu fjarlægja það frá loftopseiningunni.
- Aftengdu loftopseininguna frá AirMini slöngunni með því að snúa varlega upp á hana og toga í sundur.
-
Haltu efst á grímuslöngunni, kreistu og togaðu púðana í áttina frá grímuumgjörðinni.
-
Afkræktu höfuðfestingarnar úr jafnvægisstillinum með því að toga í endahlífina sem sýnir hnappagatið.
- Renndu höfuðfestingunum af enda jafnvægisstillisins.
Að setja aftur saman
- Með gráu hlið höfuðfestingarinnar út á við, præddu arma umgjarðar grímunnar í hnappagöt höfuðfestingarinnar. Festu höfuðfestingarnar með því að toga þær yfir brún umgjarðarinnar næst nasapúðunum. Með því að halda utan um umgjörð grímunnar, togaðu laust í höfuðfestingarnar til að tryggja að þær séu vel festar.
- Festu púðana við umgjörð grímunnar með því að setja efri og neðri klemmurnar í réttar raufar.
- Gakktu úr skugga um að innri veggir nefpúðanna séu ekki þjappaðir eða fallnir saman. Ef með þarf þá er hægt að kreista laust til að koma nefpúðunum í rétta lögun.
- Tengdu AirMini slönguna við loftopseininguna með því að ýta endunum saman og snúa upp á þá þar til þeir læsast í stað.
- Til að bæta við aukalegri rakagjöf skaltu setja HumidX/HumidX Plus inn í loftopseininguna. Tengdu grímuslönguna við loftopseininguna með því að ýta endunum saman og snúa upp á þar til þeir læsast í stað.
Prif á grímunni
Fylgdu Þrifaleiðbeiningunum í þessum leiðarvísi til að viðhalda afköstum og öryggi grímunnar.

VIDVÖRUN
- Prífið grímuna og íhluti hennar reglulega til að tryggja hámarksgæði meðferðar og koma í veg fyrir växt örvera sem geta valdið heilsutjóni.
- Notið ekki straujárn á höfuðfestingu þar sem hún þolir ekki hita og mun því skemmast.
- Skoðið HumidX/HumidX Plus reglulega og fylgið leiðbeiningum um Þrif og viðhald til að koma í veg fyrir växt örvera sem geta valdið heilsutjóni.
- Fylgdu alltaf leiðbeiningum um hreinsun og notaðu milt, fljótandi hreinsiefni fyrir íhluti grímunnar og milda sápu fyrir höfuðfestingarnar. Tilteknar gerðir hreinsiefna geta skemmt grímuna, íhluti hennar og virkni þeirra eða skilið eftir sig
gufuleifar sem gætu reynst skaðlegar við innöndun ef efnin eru ekki skoluð vandlega í burtu.
Skođađu HumidX/HumidX Plus
- Athugaðu daglega með öll merki um skemmdir eða stíflur vegna óhreininda eða ryks.
Athugasemdir:
- Ekki má pvo HumidX/HumidX Plus.
- Pegar HumidX/HumidX Plus er ekki í notkun, skaltu geyma það á hreinum og þurrum stað.
- Skipta parf um HumidX/HumidX Plus 30 dögum eftir að pað er tekið úr umbúðum.
Hreinsun AirMini slöngunnar
Sjáðu notendahandbók AirMini varðandi leiðbeiningar um hreinsun
Hreinsun loftopseiningar
- Hreinsaðu og athugaðu loftopseininguna daglega.
- Pvoðu í volgu vatni með mildu fljótandi hreinsiefni.
- Hreinsaðu með bursta með mjúkum hárum og gættu sérstaklega að loftopunum
- Skolaðu vandlega undir rennandi vatni. Hristu til að fjarlægja umframvatn og leyfðu búnaði að loftporna en ekki í beinu sólarljósi.
- Gættu pess að pað séu engin óhreinindi í loftopunum.
Athugaðu: Má ekki þvo í uppbvottavél eða þvottavél.

Hreinsun grímupúða, umgjarðar og grímuslöngu
Daglega:
- Hreinsaðu grímupúða, umgjörð og grímuslöngu daglega. Nuddaðu varlega í volgu (um það bil 30 °C heitu) vatni með mildu hreinsiefni þar til engin óhreinindi sjást.
- Skolaðu vel undir rennandi vatni og leyfðu búnaði að loftporna en ekki í beinu sólarljósi.
Auk daglegrar hreinsunar skaltu í hverri viku:
-
Hreinsa umgjörð grímunnar og enda grímuslöngunnar með mildu fljótandi hreinsiefni með bursta með mjúkum hárum. Gættu sérstaklega að rifum og holum.
-
Skolaðu vel undir rennandi vatni og leyfðu búnaði að loftporna en ekki í beinu sólarljósi.
Hreinsun höfuðfestinga
Vikulega:
- Látu höfuðfestingarnar liggja í bleyti í volgu vatni blönduðu við milt hreinsiefni.
- Handbovoðu höfuðfestingarnar með mjúkum bursta.
- Skolaðu vandlega af höfuðfestingunum undir rennandi vatni.
- Látu höfuðfestingarnar loftborna en ekki í beinu sólarljósi.
Endurvinnsla á grímunni pegar margir sjúklingar nota grímuna
AirMini-slöngu, lofteiningu og HumidX/HumidX Plus skal farga og skipta út fyrir nýja hluti þar sem ekki er hægt að sótthreinsa þá og ættu þeir ekki að notast af fleiri en einum sjúklingi.
Pú skalt endurvinna pessa gríma pegar hún er notuð á milli sjúklinga. Endurvinnsluleiðbeiningar er að finna á ResMed.com/downloads/masks
⚠️ VARÚD
Sjónræn skoðun á búnaðinum: Pegar augljósar skemmdir eru á einhverjum íhlut kerfisins (sprungur, upplitun, rifur o.s.frv.) skal farga og skipta um íhlutinn sem um ræðir.
Bilanagreining
Varðandi vandamál við bilanagreiningu HumidX/HumidX Plus, sjá notendahandbók AirMini.
| Vandamál/möguleg ástæða | Lausn |
| Púðar innsigla ekki almennilega, gríma er ópægileg eða skilur eftir sig rauð för | |
| Púðar eða höfuðfestingar gætu hafa verið mátuð með röngum hætti eða stillt ranglega. | Athugaðu að nefpúðarnir með merkjunum fyrir vinstri (L) og hægri (R) séu rétt settir í. Settu grímuna aftur á samkvæmt leiðbeiningunum fyrir stillingu. Stilltu höfuðfestingarnar aftur til að tryggja að þær passi á þægilegan máta. |
| Annar/báðir púðar eru kramdir eða aflagaðir eða innri veggur annars eða beggja er rangur. | Kreistu hliðar hvors púða til að koma þeim aftur í upphaflegt form. |
| Röng stærð af púðum. | Ræddu við lækninn þinn. |
| Pað getur verið að púðarnir séu óhreinir. | Hreinsaðu púðana samkvæmt leiðbeiningunum. |
| Höfuðfestingar eru of lausar. | Stilltu höfuðfestingarólamar eða notaðu AirFit P10 höfuðfestingarklemmurnar fyrir frekari stillingu. |
| Ef höfuðfestingarnar koma með sylgju skaltu toga höfuðfestingarnar í gegnum sylgjuna. | |
| Íhlutur virðist skemmdur eða slitinn | Skiptu um hlutinn. Hafðu samband við söluaðila ResMed á staðnum. |
| Gríma of hávær | |
| Loft lekur úr kerfinu. | Settu grímuna aftur á eða stilltu hana af. Stilltu höfuðfestingarnar. Gakktu úr skugga um að gríman þín sé rétt samsett. |
Tæknilýsing
Athugasemdir:
- AirFit P10 fyrir AirMini, pegar bað er tengt við AirMini kerfið, inniheldur loftunabúnað til að hindra uppsöfnun CO₂ í grímunni.
- Varðandi tæknilýsingar í tengslum við loftun, sjá notendahandbók AirMini
| Upplýsingar um loftskiptaleysisrými | Efnislegt loftskiptaleysisrými er tóma rými grímunnar upp að samhæfa slöngutenginu. Þegar stóru púðarnir eru notaðir þá er það 40 ml. |
| Meðferðarþrýstingur | 4 til 20 cm H_2O |
| Umhverfisaðstæður | Notkunarhitastig: +5 °C til +40 °CNotkunarrakastig: 10% til 95% án rakamyndunar Hitastig við geymslu og flutning: -25 °C til +70 °CRakastig við geymslu og flutning: 5-95% loftrakastig án rakapéttingar |
| Hljóð | TVÍSKIPT VIÐMIDUNARGILDI HÁVAÐAMENGUNAR í samræmi við ISO 4871. A-veginn hljóðstyrkur grímunnar er 22 dBA, með 3 dBA vikmörkum. A-veginn hljóðstyrkur grímunnar við 1 m fjarlægð er 15 dBA, með 3dBA vikmörkum. |
| Ytra mál | Stórt:175 mm (H) x 149 mm (B) x 37 mm (D)Grímukerfi með umgjörð (engar höfuðfestingar) |
| Endingartími | Endingartími AirFit P10 fyrir AirMini grímu er háð því hversu mikið hún er notuð, viðhaldi hennar og umhverfisaðstæðum þar sem gríman er notuð eða geymd. þar sem grímukerfið og íhlutir þess eru einingaskiptir er ráðlagt að notandi haldi kerfinu við og skoði það reglulega og sjái um að skipta um grímukerfið eða íhluti þess ef þurfa þykir, eða samkvæmt hlutanum „Sjónræn skoðun á búnaðinum“ í hlutanum „Hreinsun grímunnar heima við“ í þessari handbók. Sjáðu hlutann „Íhlutir grímu“ í þessari handbók fyrir upplýsingar um hvernig á að panta varahluti.Sjáðu notendahandbók AirMini tækisins varðandi endingartíma AirMini slöngunnar, loftopseiningar og HumidX/HumidX Plus. |
Ath.: Framleiðandi áskilur sér réttinn til að breyta pessari forskrift fyrirvaralaust.
Geymsla
Gætið pess að gríman sé hrein og Þurr áður en hún er sett í geymslu í lengri tíma. Geymið grímuna á Þurrum stað fjarri beinu sólarljósi.
Förgun
Pessi gríma og umbúðir hennar innihalda engin hættuleg efni og peim má farga með venjulegum heimilisúrgangi.
Tákn
Eftirfarandi tákn er hugsanlega að finna á vörunni eða umbúðunum.
![]() | Svefnöndunargríma um nef | ![]() | Pólýprópýlen endurvinnanlegt |
![]() | Stærð - Undirstærð (XS) | ![]() | Stærð - Lítil (S) |
![]() | Stærð - Miðlungs (M) | ![]() | Stærð - Stór (L) |
![]() | Ekki gert úr náttúrulegu gúmmílatexi | ![]() | parf að endurnýja 30 dögum eftir að vara er tekin úr umbúðum |
![]() | Innflytjandi | ![]() | Lækningataeki |
Hægt er að nálgast lista yfir tákn á ResMed.com/symbols.
Neytendaábyrgð
ResMed staðfestir öll réttindi neytenda samkvæmt Evróputilskipun 1999/44/EB og viðkomandi landslögum innan ESB fyrir vörur seldar innan Evrópusambandsins.
for AirMini
Deguna maska ar spilventiniem









