Schellenberg Drive Action - Porte de garage

Drive Action - Porte de garage Schellenberg - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis Drive Action Schellenberg á PDF sniði.

📄 212 síður Íslenska IS 💬 AI spurning
Notice Schellenberg Drive Action - page 180

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Porte de garage á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Drive Action - Schellenberg og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Drive Action vörumerkisins Schellenberg.

NOTENDAHANDBÓK Drive Action Schellenberg

Öryggi og ábendingar Almennar öryggisleiðbeiningar Fyrirhuguð notkun Hæfniskröfur til uppsetningaraðila Áður en uppsetning fer fram Öryggisleiðbeiningar varðandi uppsetningu Öryggisleiðbeiningar þegar búnaðurinn er tekinn í notkun Öryggisleiðbeiningar varðandi notkun Öryggisleiðbeiningar varðandi viðhald, viðgerðir og þrif Ábyrgðarskilmálar ESB-samræmisyrlýsing Skýringartexti fyrir innifalinn búnað Tæknilegar upplýsingar Nauðsynleg verkfæri Innifalið Uppsetning A1 Uppsetning á brautum A2 Uppsetning í lofti A3 Uppsetning á hurð Fjarstýring samstillt B1 Stjórnun bílskúrshurðarinnar B2 Sérstök ljósastýring Stilling fyrir endastöður C1 Hættustöðvun á meðan verið er að stilla endastöður Valfrjáls aukabúnaður D1 Tenging ljóshliðs D2 Tenging veggrofa / lykilrofa D3 Tenging viðbótarlýsingar í bílskúr D4 Tenging bílskúrshurðaopnara í snjallsíma D5 Tenging Tengiliður fyrir hurðarlúgu Fjarstýringu eytt úr minni

Ágæti viðskiptavinur. Lesa skal þessar leiðbeiningar vandlega áður en bílskúrshurðaopnarinn er settur upp og tekinn í notkun. Fagaðili með viðeigandi sérþekkingu skal annast uppsetninguna. Ef uppsetning fer ekki rétt fram eða ef notandi annast viðgerðir á eigin spýtur getur það leitt til meiðsla, banaslysa og tjóns við notkun. Fylgið öllum leiðbeiningum til að tryggja eigið öryggi og geymið uppsetningarleiðbeiningarnar til síðari nota. Upplýsa skal alla notendur um þær hættur sem geta stafað af notkun bílskúrshurðaopnarans. Þegar eigendaskipti verða skal láta nýja eigandann fá leiðbeiningarnar. Þessar leiðbeiningar eru þýðing notkunarleiðbeininga úr frummáli í skilningi EB-tilskipunar 2006/42/EB. Eftirfarandi skjöl skulu vera til staðar til að tryggja öryggi við notkun og viðhald á hurðaopnaranum: þessi leiðarvísir leiðarvísirinn fyrir bílskúrshurðina skoðunarbók

ALMENNAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR

Bílskúrshurðaopnarinn og umbúðir hans eru ekki leikföng. Geymið þar sem börn ná ekki til. Hætta er á slysum og köfnun Ekki má opna bílskúrshurðaopnarann eða breyta honum með neinum hætti. Bílskúrshurðaopnarinn er viðhaldsfrír og þarfnast ekki sérstakrar umhirðu. Áður en uppsetning fer fram skal athuga hvort bílskúrshurðaopnarinn er skemmdur og hvort allur fylgibúnaður er til staðar. Athugið reglulega hvort hurðaopnarinn gengur greiðlega fram og til baka og hvort ísing er til staðar að vetrarlagi. Vakni spurningar um tæknileg atriði varðandi bílskúrshurðaopnarann skal snúa sér til þjónustudeildar okkar. Börn eða fólk sem er með skerta andlega getu, skerta líkamsgetu eða skerta skyngetu og er ekki fært um að nota bílskúrshurðaopnarann á öruggan og varkáran hátt má ekki nota bílskúrshurðaopnarann eða setja hann upp. Börn mega ekki leika sér með bílskúrshurðaopnarann. Börn eldri en átta ára og einstaklingar með skerta líkamsgetu, skyngetu eða andlega getu og einstaklingar sem ekki hafa reynslu og þekkingu mega nota bílskúrshurðaopnarann, svo fremi sem þeir eru undir eftirliti aðila sem gætir öryggis þeirra eða að þeir ha fengið tilsögn hjá viðkomandi aðila um örugga notkun vörunnar og þeim ha verið gerð skýr grein fyrir hættunum. Börn mega ekki annast þrif eða notendaviðhald án eftirlits. FYRIRHUGUÐ NOTKUN Notið bílskúrshurðaopnarann eingöngu í þeim tilgangi sem hann er framleiddur og hannaður fyrir! Öll önnur notkun telst vera röng! Bílskúrshurðaopnarinn er eingöngu ætlaður fyrir handstýrða notkun felli- og ekahurða með gormum. Bílskúrshurðaopnarinn hentar eingöngu til notkunar á heimilum, ekki í atvinnuhúsnæði. Bílskúrshurðaopnarinn hentar eingöngu til notkunar í þurru rými. Hurðaopnarar sem eru aðeins með einum hlífðarbúnaði (t.d. útslætti) verða að vera í sjónmáli þegar þeir eru notaðir. Ekki má nota bílskúrshurðaopnarann með hurðum sem ekki eru með fallvarnarbúnaði. Bílskúrshurðaopnarinn má ekki vera í stöðugri notkun. Ábyrgðin tekur ekki til tjóns sem verður vegna þess að öryggisleiðbeiningunum er ekki fylgt. Við undanskiljum okkur allri ábyrgð á aeiddu tjóni!

HÆFNISKRÖFUR TIL UPPSETNINGARAÐILA

Aðili eða fyrirtæki með viðeigandi sérþekkingu skal sjá um að setja búnaðinn upp, taka hann í notkun sem og annast viðhald og viðgerðir samkvæmt því sem fram kemur í þessum leiðarvísi. Bílskúrshurðaopnarinn er hannaður og framleiddur samkvæmt gildandi reglum. Uppsetningaraðilinn verður að þekkja þær reglur sem gilda um uppsetningu bílskúrshurðaopnarans á hverjum stað. Starfsmenn sem uppfylla ekki hæfniskröfur eða aðilar sem þekkja ekki vinnuverndarreglur fyrir sjálfvirkar hurðir mega alls ekki setja bílskúrshurðaopnarann upp eða eiga við hann með neinum hætti. Þeir sem virða ekki gildandi öryggisreglur um uppsetningu og viðhald bera ábyrgð á tjóni, meiðslum, kostnaði, útgjöldum eða kröfum sem rekja má til þess að öryggisreglum var ekki fylgt.181

Bílskúrshurðaopnarinn er ekki ætlaður fyrir þungar og stífar hurðir. Gangið úr skugga um að hægt sé að opna og loka hurðinni greiðlega með handai. Próð hvort gormarnir eru rétt stilltir með því að lyfta hurðinni upp um u.þ.b. einn metra og sleppa henni síðan. Hurðin má hvorki færast niður né upp í þessari stöðu. Fagaðili verður að sjá um að stilla gorma bílskúrshurðarinnar. Loftið í bílskúrnum verður að henta fyrir uppsetningu bílskúrshurðaopnarans. Kannið hvort koma þur fyrir frekari festingum

ÖRYGGISLEIÐBEININGAR VARÐANDI UPPSETNINGU

Meðan á uppsetningu stendur verður að gæta þess að öllum gildandi reglum um vinnuöryggi sem og öllum gildandi reglum um notkun raftækja sé fylgt. Mikilvægt er að farið sé eftir gildandi reglum í hverju landi. Fylgið leiðbeiningunum og ábendingunum í þessum uppsetningarleiðbeiningum. Ef va leikur á um eitthvað við uppsetninguna skal hafa samband við notendaþjónustu okkar (sjá bakhlið). Með því að fylgja leiðarvísinum við uppsetningu má komast hjá mögulegri hættu í skilningi DIN EN 13241-1. Rafvirkjar skulu annast allar tengingar við rafmagn. Bílskúrshurðin á að vera jafnvægisstillt. Ef bílskúrshurðin er föst eða stíf verður að gera við hana. Ef jafnvægisstilling hefur ekki farið rétt fram er mjög mikil spenna á bílskúrshurðinni, gormum, vírum, skinnum, festingum og brautum, en það getur haft alvarleg slys í för með sér. Ekki reyna að losa um hurðina, færa hana til eða rétta hana af. Leitið til fagaðila á þessu sviði. Ef ekki er annar aðgangur að bílskúrnum verður neyðaropnun fyrir handfangið (vörunr.: 60553) eða neyðaropnunarlás (vörunr.: 60511/60513) að vera til staðar. Með þessum búnaði er komið í veg fyrir að ekki sé hægt að komast inn í bílskúrinn ef hurðaopnarinn bilar eða rafmagnið fer af. Áður en bílskúrshurðaopnarinn er settur upp skal fjarlægja læsingar og lása sem fyrir eru samkvæmt uppsetningarleiðbeiningum bílskúrshurðaopnarans þannig að þessi atriði standi ekki í vegi fyrir notkun bílskúrshurðaopnarans. Setja skal öll valfrjáls stjórntæki (t.d. lykilrofa (vörunr.: 25101/25103, 25102/25104) eða veggrofa (vörunr.: 60060/60061)) upp í að minnsta kosti 1,5 m hæð í sjónmáli frá bílskúrshurðinni, í öruggri fjarlægð frá hlutum sem hreyfast og þar sem börn ná ekki til. Koma skal viðvörunarmerkingum sem vara við hættu á að klemmast fyrir á áberandi stað eða nálægt rofanum. Festið límmiðann sem sýnir hvernig taka skal úr lás handvirkt nálægt bílskúrshurðaopnaranum. Áður en byrjað er að nota bílskúrshurðaopnarann skal ganga úr skugga um að engar hindranir séu í vegi fyrir hurðinni. Lesið leiðbeiningarnar vandlega. Gætið að lágmarksfjarlægð samkvæmt teikningum við uppsetningu. Svarf, óhreinindi eða sag má ekki berast inn í drif bílskúrshurðaopnarans eða inn í brautakerð. Hylja skal þessa hluta vandlega á meðan vinna við uppsetningu fer fram. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR ÞEGAR BÚNAÐURINN ER TEKINN Í NOTKUN Athugið rafmagnstenginguna. Gildin verða að vera þau sömu og koma fram í þessum leiðarvísi. Þessar upplýsingar koma fram á upplýsingaplötu bílskúrshurðaopnarans. Rafmagnstengingin í bílskúrnum verður að vera í samræmi við gildandi reglur. Próð öryggiseiginleika bílskúrshurðaopnarans með eftirfarandi hætti: Leggið u.þ.b. 50 mm háan hlut (t.d. trébút) undir aðallokunarbrún bílskúrshurðarinnar. Látið hurðina fara niður. Þegar hurðin lendir á hindruninni verður bílskúrshurðaopnarinn að fara í öfuga átt til að losa um hlutinn. Til að auka öryggi frekar skal nota ljóshlið (aukabúnaður með vörunr.: 60030/60031) og prófa sjálfvirku öryggisopnunina reglulega. Þegar stillingakeyrsla hefur farið fram verður að prófa öryggisbúnaðinn (greiningu hindrana með útslætti, ljóshlið). Alfred Schellenberg GmbH heimilar ekki að endanlega afurðin eða samsetta afurðin sé tekin í notkun þar til sýnt hefur verið fram á samræmi endanlegu afurðarinnar eða samsetningar bílskúrshurðaopnarans og bílskúrshurðarinnar á grundvelli gildandi staðla og reglna. Ef va leikur á um þetta atriði skal leita til fagaðila á sviði uppsetningar.182

ÖRYGGISLEIÐBEININGAR VARÐANDI NOTKUN

Ef öryggisopnunin virkar ekki rétt gefur það haft í för með sér tjón, alvarleg meiðsl eða jafnvel banaslys. Gætið þess að bílskúrshurðin sé alveg opin og í biðstöðu áður en farið er inn í bílskúrinn eða út úr honum. Gætið þess að bílskúrshurðin lokist alveg þegar farið er út úr bílskúrnum. Þegar neyðaropnun er notuð skal gæta þess að opin bílskúrshurðin getur fallið skyndilega niður vegna veikra eða brotinna gorma. Leyð börnum ekki að leika sér að bílskúrshurðaopnaranum, ekki heldur fjarstýringunum. Geymið fjarstýringar þar sem börn ná ekki til. Fylgist með hurðinni þegar hún er á hreyngu. Ekkert fólk má vera á hættusvæði hurðarinnar fyrr en hún hefur opnast eða lokast að fullu. Ef bílskúrshurðaopnarinn er aðeins með einum öryggisbúnaði verður hann að vera í sjónmáli þegar hann er notaður. Standið aldrei undir opinni bílskúrshurð. Farið aldrei með hendur inn í brautina á meðan hurðin er á hreyngu. Aldrei má hleypa veituspennu (230 V / 50 Hz) á tengiklemmur bílskúrshurðaopnarans. Ef fjarstýringin er geymd í buxnavasa eða handtösku er hætta á að ýtt sé á hana í ógáti og að bílskúrshurðin fari þá óvænt af stað. ÖRYGGISLEIÐBEININGAR VARÐANDI VIÐHALD, VIÐGERÐIR OG ÞRIF Á meðan þrif fara fram, viðhaldi er sinnt eða skipt er um hluti má bílskúrshurðaopnarinn ekki vera tengdur við rafmagn. Skoðið búnaðinn reglulega. Einkum skal athuga með merki um slit, skemmdir eða ójafnvægi á vírum, gormum og festingum. Ekki skal nota bílskúrshurðaopnarann þegar viðgerð þarf að fara fram eða breyta þarf stillingum. Börn mega ekki sjá um þrif eða viðhald á bílskúrshurðaopnaranum án eftirlits. Ef breyta þarf stillingum verður fagaðili að sjá um það. Athugið mánaðarlega hvort neyðaropnunin virkar rétt. Ef eitthvað er í ólagi skal tafarlaust fela aðila með sérþekkingu á búnaðinum að annast skoðun eða viðgerð á honum. Ef rafmagnssnúran er í ólagi verður að láta rafvirkja skipta um hana.

Við ábyrgjumst að vörur okkar eru lausar við efnis- og framleiðslugalla. Ekki er tekin ábyrgð á skemmdum sem verða vegna: eðlilegs slits sem verður við notkun rangrar uppsetningar, tengingar, notkunar eða meðferðar óviðráðanlegra atvika eða annarra ytri áhrifa rangs viðhalds og viðgerða af hendi þriðja aðila tæknilegra breytinga af hendi þriðja aðila Vegna ábyrgðar munum við velja hvort gert verði við vöruna eða henni skipt út fyrir samsvarandi vöru frá SCHELLENBERG. Ábyrgðartíminn lengist ekki við það að skipt sé um tæki eða gert við það! Ábyrgðin gildir aðeins ef lögð er fram sölukvittun. Þegar tæki eru send skal láta fylgja afrit af sölukvittun sem og lýsingu á gallanum sem um ræðir. Ábyrgðin á Schellenberg-vörunni gildir í tvö ár frá og með kaupdegi. Þessi framleiðendaábyrgð skerðir ekki þær lögbundnu ábyrgðarkröfur sem þú sem neytandi kannt að eiga rétt á að setja fram gegn söluaðila samkvæmt gildandi lögum, að meðtöldum sérstökum ákvæðum til verndar neytendum. Framleiðendaábyrgðin útilokar hvorki né takmarkar lögbundnu ábyrgðina.183

Bílskúrshurðaopnarinn ( 60920, 60926) uppfyllir gildandi kröfur evrópskra og innlendra tilskipana. Sýnt hefur verið fram á samræmi. Nálgast má texta ESB-samræmisyrlýsingarinnar í heild sinni á eftirfarandi vefslóð: http://www.schellenberg.de (undir valmyndaratriðinu „Service“ í Download-Center). Nýjasta útgáfa ESB-samræmisyrlýsingarinnar fylgir einnig með bílskúrshurðaopnaranum. Fleygið ekki með heimilissorpi! Bílskúrshurðaopnarinn er endurvinnanlegur og skila má honum til endurvinnslustöðva eða söfnunarstaða fyrir úr sér genginn rafbúnað. Vélatilskipun 2006/42/EB Tilskipun 2014/53/ESB um þráðlausan fjarskiptabúnað (RED) Tilskipun 2011/65/ESB um takmörkun á notkun tiltekinna hættulegra efna í raf- og rafeindatækjum Tilskipun 2014/30/ESB um rafsegulsviðssamhæ185184

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR

DRIVE Action Vörunr. 60920, 60926 Rekstrarspenna 220 V - 240 V AC 50/60 Hz Uppgeð a 200 W A í biðstöðu 5 W Hámarkskraftur 500 N Hraði 0,15 m/s Lýsing LED 12 V DC Lýsingartími 3 mín. Kóðun Rolling Code Tíðni 433,92 MHz Sendistyrkur Enginn raunverulegur útsendur sendistyrkur vegna einstefnufjarskipta Umhvershitastig -20 °C til +40 °C Hámarksstærð hurðar 9 m² Varnarokkur IP 20. Aðeins fyrir þurra staði innandyra. Hlífðarokkur Fjarstýring Vörunr. 60853 Gerð / tegund DRIVE-fjarstýring, 4 rása Tíðni 433,92 MHz Sendistyrkur hám. 10 dBm / 10 mW Spennugja 12 V DC Gerð rafhlöðu 23 A (alkaline-rafhlaða) Varnarokkur IP 20. Aðeins fyrir þurra staði. Umhvershitastig -10 °C til +55 °C

SKÝRINGARTEXTI FYRIR INNIFALINN BÚNAÐ

A Braut með keðju B Tengibrautir C Miðbrautir D Endabraut E Veggfesting F Bílskúrshurðaopnari G Millistykki fyrir drif H Armur I Sexkantró M6 J „Langur“ festibolti með splitti K Brautafesting L Festivinkill í loft M Sexkantskrúfa M6 N Festijárn fyrir hurð O Hurðararmur (tengistöng) P „Stuttur“ festibolti með splitti Q Vír til að taka hurð úr lás handvirkt R Efra endastopp (Limit Block) S Borskrúfur T Fjarstýring Festingar fyrir hurð og vegg fylgja ekki með.185184

Handbókaraðstoðarmaður
Knúið af ChatGPT
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Schellenberg

Líkan : Drive Action

Flokkur : Porte de garage