GRILLSKÄR - Barbecue IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis GRILLSKÄR IKEA á PDF sniði.

IKEA GRILLSKÄR - Grill
📄 112 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA GRILLSKÄR - page 19
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um GRILLSKÄR IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Barbecue á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína GRILLSKÄR - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. GRILLSKÄR vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK GRILLSKÄR IKEA

Ef þeim viðvörunum sem taldar eru upp hér í leiðbeiningunum er ekki fylgt eftir, getur það leitt til alvarlegra líkamsáverka eða banaslysa, eða valdið eignaspjöllum vegna elds eða sprengingar. Öryggistákn (↓) gefa til kynna mikilvægar öryggisupplýsingar.

⚠ Vöruna MÁ AÐEINS NOTA UTANDYRA. Notist ALDREI í lokuðu rými eins og bílskýli, bílskúr, lokuðum palli, garðskýli eða undir hvers konar yfirbyggingu.

Yfirfylltu grillið ekki af kolum og láttu kolin ekki snerta ytri skel grillsins.

IKEA GRILLSKÄR - 1

⚠️ Grillið ætti að vera sett saman á öruggan hátt fyrir notkun.

⚠️ Snertu aldrei heita hluta grillsins með berum höndum.

Ekki nota innandyra!

⚠️ Notkun innandyra getur orðið til þess að eitraðar lofttegundir safnist upp og valdi líkamstjóni eða jafnvel bana.

⚠️ Notaðu aðeins utandyra á vel loftræstu svæði. Ekki nota inni í bílskúrum, byggingum eða í öðru lokuðu rými.

ATHUGIÐ! Þetta grill má aldrei nota undir eldfimri yfirbyggingu.

⚠️ VARÚÐ! Grillið verður mjög heitt. Ekki færa það til meðan það er í notkun.

⚠️ VARÚÐ! Haltu börnum og gæludýrum í öruggri fjarlægð.

Hvers kyns breytingar á grillinu geta reynst hættulegar.

Aldrei skilja grillið eftir eftirlitslaust þegar það er í notkun.

⚠️ Fylgdu ávallt leiðbeiningum um þrif og umhirðu og sinntu viðhaldi reglulega.

⚠️ Þegar grillinu er komið fyrir þarf að gæta þess að það sé í að minnsta kosti eins metra fjarlægð frá eldfimum efnum eða byggingum.

⚠️ Ekki bæta grillvökva, eða kolum sem vætt hafa verið með grillvökva, á heit kol.

Fjarlægðu ekki ösku fyrr en öll kol hafa brunnið upp og grillið er orðið kalt.

Varastu að vera í fatnaði með löngum og víðum ermum þegar grillað er.

Ekki nota grillið í miklum vindi.

⚠️ Ekki snerta grillið til að athuga hvort það sé orðið heitt.

Ekki nota vatn til að slökkva loga eða kæla niður notuð kol.

Láttu kolin alltaf brenna upp eða slökkvið í glæðum að notkun lokinni.

⚠️ Notaðu alltaf grillhanska þegar kveikt er upp, grillað og loftræsting stillt.

⚠️ Notaðu viðeigandi grilláhöld við eldamennskuna.

Ekki má losa heit kol á stöðum þar sem þau geta skapað eldhættu.

⚠️ Settu grillið ekki í geymslu eða undir ábreiðu fyrr en slokknað hefur í kolunum og þau hafa verið fjarlægð og grillið er orðið kalt.

⚠️ Þetta grill hentar ekki til notkunar í ferðabílum eða á bátum.

Grillið ætti aldrei að nota sem hitara.

⚠️ VARÚÐ! Ekki nota bensín, spritt eða kveikjaravökva til að kveikja upp í grillinu eða glæða eldinn! Notaðu aðeins kveikjara sem uppfylla EN 1860-3 Evrópustaðalinn (innan Evrópu).

⚠️ VARÚÐ! Notaðu ekki bensín, spritt eða kveikjaravökva til að kveikja upp í grillinu eða glæða eldinn! Notaðu aðeins kveikjara sem uppfylla viðeigandi staðla í viðkomandi löndum (utan Evrópu).

Ekki láta feiti, fitu eða matarleifar safnast upp í eða á grillinu - ELDHÆTTA.

⚠️ Hengdu ekki hluti úr eldfimu efni á handfangið á grillinu.

⚠️ Skiptu alltaf um skemmda hluti - ekki nota ef skemmdir finnast.

⚠️ Gættu þess að ofhlaða ekki grillið með mat. Dreifið grillmeti jafnt á grillið.

⚠️ MIKILVÆGT! Tryggðu að grillið standi á sléttu yfirborði svo feiti/fita renni úr því.

Gakktu úr skugga um að grillið sé rétt sett saman samkvæmt leiðbeiningum.

Opnaðu lokið á meðan kveikt er upp í grillinu.

IKEA GRILLSKÄR - 2

Notaðu grillið aldrei á lokuðum eða þröngum svæðum eða á íbúðarhæfum svæðum eins og húsum, tjöldum, hjólhýsum, húsbílum, bátum. Hætta á kolsýringseitrun.

YFIRLIT

Tölurnar vísa til númeranna á teikningu af grillinu á myndasíðunni.

  1. Handfang
  2. Lok
  3. Grillgrind
  4. Bakki fyrir kol
  5. Bakki fyrir ösku

NOTENDALEIÐBEININGAR

Gætið þess að lesa og taka tillit til varúðarskilaboðanna í þessari handbók áður en lengra er haldið.

Notið aldrei hrjúf áhöld á grillgrindina (3) svo hún skemmist ekki.

Undirbúningur fyrir eldamennsku - Til að koma í veg fyrir að maturinn festist við grillið ætti alltaf að bera olíu á grindina með bursta eða pensli með löngu handfangi áður en grillað er.

Athugið: Þegar grillið er notað í fyrsta skipti má búast við því að málningin utan á grillinu breyti aðeins um lit vegna hitans. Það er eðlilegt og við því má búast.

Bættu varlega við kveikilegi eða kveikigeli.

Kveiktu upp í kolunum með löngum kveikjara eða langri eldspýtu.

Þegar logarnir deyja út ætti að gæta að því hvort glóð lifi örugglega í kolunum.

Mælt er með að láta kolin standa glóandi í 30-40 mínútur áður en grillað er.

Ekki byrja að grilla fyrr en kolin eru hulin grárri ösku.

Að notkun lokinni

Notið tusku, heitt vatn og uppþvottalög til að þrífa grillið. Notið ekki hrjúf hreinsiefni.

Það veldur skemmdum ef notuð eru hrjúf hreinsiefni eða beitt áhöld á grillið.

Mataröryggi

Vinsamlega lesið og fylgið eftirfarandi ráðum við eldamennsku á grillið ykkar:

• Þvoið alltaf hendur bæði fyrir og eftir meðhöndlun á hráu kjöti og eins áður en matast er.

- Haldið hráu kjöti alltaf aðskildu frá elduðu kjöti og öðrum mat.

• Gætið þess að grillið og áhöldin séu hrein áður en eldamennska er hafin.

- Notið ekki sömu áhöld fyrir hrá og elduð matvæli.

• Gætið þess að elda kjöt í gegn áður en það er borðað.

- Til að draga úr hættu á of lítið elduðu kjöti ætti að skera í það og athuga hvort það sé tilbúið.

- Mælt er með forhitun á stærri kjötstykkjum áður en þau eru sett á grillið.

- Eftir notkun á grillið ætti alltaf að þrífa bæði grillgrindina og áhöldin.

Umhirða, viðhald og geymsla

  • Þrífðu grillið reglulega milli þess sem það er notað og sérstaklega eftir að það hefur staðið óhreyft lengi. • Gættu þess að grillið og allir hlutar þess séu orðnir kaldir áður en grillið er þrifið.
  • Aldrei hella vatni yfir grillið á meðan það er enn heitt.
  • Snertu aldrei heitt grill með berum höndum.
  • Breiddu alltaf yfir grillið þegar það er ekki í notkun. Geymdu grillið í skýli eða skúr til að vernda það gegn veðrun.
  • Sólarljós, vatn og saltvatn getur allt valdið skemmdum á grillinu. (Í sumum tilfellum er yfirbreiðsla ekki nóg).
  • Til að lengja líftíma grillsins og halda því við, mælum við sterklega með að breitt sé yfir það ef það stendur úti í lengri tíma, sérstaklega yfir vetrartímann.
  • Áður en grillið er sett í geymslu til lengri tíma, skaltu ganga úr skugga um að aska og kol séu fjarlægð úr grillinu.

IKEA GRILLSKÄR - Umhirða, viðhald og geymsla - 1

Efnisyfirlit Smelltu á titil til að fá aðgang að honum
Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : GRILLSKÄR

Flokkur : Grill