FESTOOL FSK 670 - Accessoire pour outil électrique

FSK 670 - Accessoire pour outil électrique FESTOOL - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis FSK 670 FESTOOL á PDF sniði.

📄 96 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice FESTOOL FSK 670 - page 45
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um FSK 670 FESTOOL

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Tölvupósturinn er áfram einkamál: hann er aðeins notaður til að tilkynna þér ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Accessoire pour outil électrique á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína FSK 670 - FESTOOL og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. FSK 670 vörumerkisins FESTOOL.

NOTENDAHANDBÓK FSK 670 FESTOOL

1 Tákn 45
2 Öryggisleiðbeiningar....45
3 Fyrirhuguð notkun....46
4 Tæknilegar upplýsingar.... 46
5 Tækið sett í gang....46
6 Uppsetning.... 46
7 Unnið með rafmagnsverkfærið......46
8 Viðhald og umhirða.... 47

1 Tákn

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 1

Varúð, almenn hætta

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 2

Notendahandbók, lesið öryggisleið-beiningarnar!

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 3

Ábending, upplýsingar

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 4

Leiðbeiningar

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 5

Hætta er á að fingur og hendur klemmist á milli!

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 6

Hættusvæði! Haldið höndum fjarri!

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 7

Hætta er á að skera sig á óvörðu sagarblaði

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 8

Ekki má setja sög með óvörðu sagarblaði frá sér

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 9

Blaôhlífin opin

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 10

Blaôhlíf lokuð

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 11

Biòstaða

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 12

Ekki skal setja sögina frá sér nema að blaðhlífin sé lokuð

FESTOOL FSK 670 - Tákn - 13

Festið sleðalandið á vinnustykkið með meðfylgjandi skrúfpvingu.

2 Öryggisleiðbeiningar

2.1 Almennar öryggisleiðbeiningar

Viðvörun! Lesið allar öryggisleiðbeiningar og aðrar leiðbeiningar sem fylgja með festibúnaðinum eða handhjólsöginni. Ef ekki er farið að í samræmi við öryggisleiðbeiningar og fyrirmæli getur það haft í för með sér raflost, eldsvoða og/eða alvarlegt líkamstjón. Geymið allar öryggisleiðbeiningar og fyrirmæli til síðari nota.

Pegar talað er um rafmagnsverkfæri í öryggisleiðbeiningunum er bæði átt við rafmagnsverkfæri sem tengd eru við rafmagn (með rafmagnssnúru) og rafmagnsverkfæri sem ganga fyrir rafhlöðum (án rafmagnssnúru).

  • Taka skal klóna úr innstungunni og/eða taka rafhlöðuna úr áður en tækið er stillt eða skipt er um fylgibúnað. Slys hafa orðið pegar rafmagnsverkfæri fara óvænt í gang.
  • Festa skal rafmagnsverkfærið tryggilega í festibúnaðinum áður en það er notað. Ef rafmagnsverkfærið rennur til á festibúnaðinum getur notandinn misst stjórn á því.
  • Leggið festibúnaðinn á traustan, sléttan og láréttan flöt. Ef festibúnaðurinn getur runnið til eða er valtur er ekki hægt að stjórna rafmagnsverkfærinu með jöfnum og öruggum hætti.
  • Athugið blaðhlífina alltaf áður en rafmagnsverkfærið er notað. Ef hún er ekki í lagi má ekki nota rafmagnsverkfærið.
  • Haldið ávallt um rafmagnsverkfærið með báðum höndum á handföngunum. Það dregur úr slysahættu og er forsenda fyrir pví að hægt sé að vinna á nákvæman hátt.
  • Fyrir hverja notkun skal ganga úr skugga um að sleðalandið virki rétt og gæta þess að allar öryggisupplýsingar á sleðalandinu séu vel læsilegar, eins og þær voru við afhendingu. Ef öryggisupplýsingar vantar er aukin hætta á að þeim sé ekki fylgt og að slys eigi sér stað.

2.2 Viðvarandi hættur

Enda pótt farið sé eftir öllum gildandi reglum geta komið upp hættur við notkun vélarinnar, til dæmis:

- að komið sé við þann hluta sagarblaðsins sem stendur út undir sleðalandinu

  • pegar farið er að vinnustykkinu,
  • pegar verið er að saga,
  • pegar verið er að lyfta söginni áður en blaðhlífin hefur lokast.

Íslenska

  • að komið sé við hluti sem snúast frá hlið: sagarblað, festikraga, kragabolta,
  • bakslag vélarinnar pegar hún festist í vinnustykkinu,
  • að komið sé við spennuhafa hluti pegar vélarhúsið er opið og rafmagnssnúran hefur ekki verið tekin úr sambandi,
  • að hlutar vinnustykkis peytist frá,
  • að hlutar verkfæris peytist frá ef verkfærið er skemmt,
  • hávaði,
  • rykmengun.

3 Fyrirhuguð notkun

Sleðalandið er ætlað til að saga timbur og plötur.

Pað býður upp á nákvæma og hreinlega sögun og einkum er hægt að framkvæma vinkilskurð á einfaldan hátt sem hægt er að endurtaka nákvæmlega. Að sögun lokinni fer sögin sjálf-krafa aftur í upphafsstöðu sína.

Aðeins fagmenn eða þjálfaðir starfsmenn mega nota þetta rafmagnsverkfæri.

FESTOOL FSK 670 - Fyrirhuguð notkun - 1

Notandinn ber alla ábyrgð ef notkun er ekki með fyrirhuguðum hætti.

4 Tæknilegar upplýsingar

Sleðaland FSK 250 FSK 420 FSK 670
Skurðar-lengd (með 50 mm efnisþykkt)250 mm 420 mm 670 mm
Hornsk- urður-45° - +60°-60° - +60°-60° - +60°
Þyngd 0,97 kg 1,25 kg 1,64 kg

5 Tækið sett í gang

Saga skal flísavörnina [1-1] til fyrir fyrstu notkun:

  • Setjið sögina ásamt allri stýriplötunni á aftari enda sleðalandsins.
    ▶ Færið sögina í 0° stöðu og stillið á mestu skurðardýpt.
    ▶ Kveikið á söginni.
    ▶ Sagiò flísavörnina rólega eftir endilöngu án pess að stoppa.

Brún flísavarnarinnar passar pá nákvæmlega við skurðarbrúnina.

6 Uppsetning

6.1 Sögin tengd við sleðalandið

  • Ýtið söginni upp á sleðalandið í sögunarátt. Sögin grípur í rennistykkið [1-3].
    Hraðlæsingin [1-2] skorðast aftan við sagarborðið.
    Sögin hefur verið tengd og fest við sleðalandid.

6.2 Sögin losuð af sleðalandinu

▶ Ýtið söginni lítillega fram í sögunarátt.
▶ Snúið hraðlæsingunni [1-2] fram.
- Dragið sögina aftur í gagnstæða átt við sögunarátt.

7 Unnið með rafmagnsverkfærið

Fyrir hverja notkun skal athuga hvort bakfærsla sleðalandsins virkar rétt og

láta gera við hana ef pess parf. Ekki má nota vélina ef sjálfvirka bakfærslan virkar ekki.

7.1 Stillingar

▶ Losið um snúningshnúðinn á stillanlega endastoppinu [2-1].
▶ Stillið hornið á kvarðanum [2-3].
▶ Herðið snúningshnúðinn á stillanlega enda- stoppinu [2-1].
- Stillið skurðardýptina og skurðarhornið á söginni.
▶ Stillið hlaup sagarborðsins á sleðalandinu með báðum stillikjöftunum [2-2].
Sögin verður að hreyfast greiðlega á landinu.

7.2 Sagað

FESTOOL FSK 670 - Sagað - 1

FESTOOL FSK 670 - Sagað - 2

VIDVÖRUN

Slysahætta

Óvarið sagarblað sem snýst

Farið ekki með hendur inn á sögunar- svæðið og að sagarblaðinu.
▶ Farið ekki með hendur undir vinnustykkið.
▶ Haldið ekki á vinnustykkinu með höndunum eða yfir fótum.
- Àður en byrjað er að saga verður að festa sleðalandið á vinnustykkið með skrúfþv- ingu [3-1] eða álíka spennibúnaði. Pannig er komið í veg fyrir að söginni sé lyft frá vinnustykkinu í ógáti og sagarblaðið verði því óvarið.

Ef sögin eða blaðhlífin fer ekki aftur í upphafsstöðu (biðstöðu) skal hætta að saga, taka rafhlöðupakkann úr eða taka rafmagnssnúruna úr sambandi. Prófið hvort allt virkar

sem skyldi og fjarlægið klemmdar tréflísar ef pess parf.

Bið- og vinnslustaða sagarinnar á sleðalandinu eru auðkenndar með eftirfarandi hætti:

Biðstaða

Blaôhlíf lokuð

FESTOOL FSK 670 - Biðstaða - 1

  • Setjið stillanlega endastoppið [2-1] og fasta endastoppið upp að vinnustykkinu og setjið sleðalandið á.
    ▶ Festið sleðalandið á vinnustykkið með skrúfpvingu [3-1] eða álíka spennibúnaði.
    ▶ Kveikið á söginni.
    ▶ Ýtið söginni í sögunarátt.

Blaðhlífin opnast.

▶ Sagið hlutann.
▶ Slökkvið á söginni pegar búið er að saga.
► Dragið sögina aftur í biðstöðu.

Blaðhlífin lokast.

▶ Takið skrúfpvinguna af.
▶ Takið sleðalandið af vinnustykkinu.

Sögin lögð niður

FESTOOL FSK 670 - Sögin lögð niður - 1

VIDVÖRUN

Slysahætta pegar sögin er lögð niður með óvörðu sagarblaði

  • Aldrei má leggja sögina frá sér með óvöròu sagarblaði
    ▶ Færið sögina í biðstöðu áður en hún er lögð niður.

8 Viðhald og umhirða

FESTOOL FSK 670 - Viðhald og umhirða - 1

Notendapjónusta og viðgerðir aðeins hjá framleiðanda eða þjón- ustuverkstæðum. Finna má heimil- isfang nálægt á: www.festool.com/ service

FESTOOL FSK 670 - Viðhald og umhirða - 2

Notið aðeins upprunalega varahluti frá Festool! Finna má pöntunar-númer á: www.festool.com/service

Reglubundin prif á vélinni, einkum á still- ibúnaði og stýringum, eru mikilvægur öryggispáttur.

Gætið að eftirfarandi:

- Blaôhlífin á alltaf að geta hreyfst óhindrað og geta lokast sjálfkrafa. Haldið svæðinu umhverfis blaôhlífina ávallt hreinu. Blásið ryki og sagi burt með þrýstilofti eða hreinsið með pensli.

Sommario

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : FESTOOL

Líkan : FSK 670

Flokkur : Accessoire pour outil électrique