HES 200 - Poste à souder Herkules - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis HES 200 Herkules á PDF sniði.
Spurningar notenda um HES 200 Herkules
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Poste à souder á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína HES 200 - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. HES 200 vörumerkisins Herkules.
NOTENDAHANDBÓK HES 200 Herkules
a) Hætta vegna raflosts: Raflost frá suðupinnanum getur verið lífshættulegt. Sjóðið ekki í snjó eða rigningu. Notið þurra einangrandi vinnuvettlinga. Snertið ekki suðupinnann með berum höndum. Notið ekki blauta eða skemmda vinnuvettlinga. Hlifið ykkur sjálfum frá raflosti með því að einangra ykkur frá jörðu og hlífðarhlutum tækisins. b) Hætta vegna suðureyks: Innöndun á suðureyk getur verið heilsuskaðleg. Haldið höfðinu ekki í reykinum. Notið tækið á opnum svæðum. Notið loftræstingu til þess að fjarlægja reykinn. c) Hættur vegna suðuneista: Suðuneistar geta valdið sprengingum og geta valdið bruna. Haldið eldfimum efnum fjarri því svæði sem soðið er á. Sjóðið ekki nærri eldfimum efnum. Suðuneistar geta valdið bruna. Hafið slökkvitæki tilbúið og einhvern sem fylgist með og getur strax notað slökkvitæki. Sjóðið ekki í tunnur eða einhvers konar lokuð ílát eða þess háttar. d) Hættur vegna suðuloga: Suðulogi getur verið skaðlegur augum og höfði. Notið húfu og öryggisgleraugu. Notið heyrnahlífar og klæðnað með háum kraga. Notið suðuhjálm
og viðeigandi gler sem eru í góðu ásigkomulagi. Notið fullan líkamshlífðarbúnað.
e) Hættur vegna rafsegulsviða: Suðustraumur myndar rafsegulsvið. Notið ekki saman með ígræddum lækningatækjum. Setjið suðuleiðslur aldrei utan um líkamann. Leggið suðuleiðslur þannig að þær liggi saman.
Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr umbúðunum. Fjarlægið umbúðirnar og læsingar umbúða / tækis (ef slíkt er til staðar). - Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu. Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort að flutningsskemmdir séu að finna. Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til ábyrgðartímabil hefur runnið út.
Hættulegt!
Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur og smáhluti! Hætta er á að hlutir geti festst í hálsi og einnig hætta á köfnun!
Rafsuðutæki Burðarhálfangi(8) Hjól(9)
IS
Standfótur(11) Millistykki(12) Samsetningarhlutir(a-s) Notendaleiðbeiningar Öryggisleiðbeiningar
3. Tilætluð notkun
Með rafsuðutækinu er hægt að sjóða mismunandi gerðir málma með því að nota mismunandi þar til gerða rafsuðupinna.
Þetta tæki má einungis nota í þau verk sem það er framleitt fyrir. Öll önnur notkun sem fer út fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins.
Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Við tökum enga ábyrgð á tækinu, sé það notað í iðnaði, í atvinnuskyni eða tilgangi sem á einhvern hátt jafnast á við slíka notkun.
4. Merkingar og tæknilegar upplýsingar
EN 60974-1
Evrópustaðall varandi rafsuðu og aðrar suður með takmörkuðum notkunartíma (liður 6).

Merki fyrir rafsuðutæki sem eru ætluð til þess að nota við suðu í ýmsum þar sem ríkir aukin rafmagnshætta.
~50 Hz
Hámarks suðustraumur og viðeigandi stuðlar ónuspenna [A/V]
0
Þvermál elektróðu [mm]
U
Suðuspenna [V]
1
Suðustraumur [A]

≡ = 3~50 Hz
Rafmagnsinntak; Fjöldi fasa og riðstraummerki og mæligildi tíðni
U
Spenna [V]
Imax
Hæsta mæligildi netstraums [A]
1eff
Virknigildi hæsta netstraums [A]
IP 21S
Örnygisgerð
H
Einangrunarflokkur
X
Notkunartími
Tæki er neistahelt aftir staðlinum EG 2004/108/EG
Spennutenging: 230 V/400 ~ 50 Hz
Suðstraumur (A) 60-200
Notkunartíminn X
5% 200A(400V)
7% 160A(400V/230V)
15% 115A (400V/230V)
30% .80A(400V/230V)
60% 60A(230V)
Spenna í óvirku ástandi (V): 48
Geta: 8,8 kVA við 200 A
Öryggi (A): 16
Suðutímar gilda við 40°C umhverfishita.
IS
5. Samsetningarleiðbeiningar
Sjá myndir 2, 10-20.
5.1 Samsetning suðuhjálms (13)
Leggðu suðugleraugun (I) með glæru glerinu (m) í rammann (k) (mynd 3). - Ýttu pinnunum (q) að utanverðu í götin á rammanum (s) (mynd 4). Leggðu ramma hlífðarglers (k) með glerinu (l) og glæru glerinu hlífðarglerinu (m) að innanverðu á sinn stað í suðuhjálminum (s). Ýttu klemmunum (n) á pinnana (q) þar til að smellur í þeim þannig að rammi hlífðarglersins (k) sé tryggður. Glæra öryggisglerið (m) verður að liggja að utanverðu (mynd 5). Beygðu efri kanti suðuhjálmsins (s) inn að við (mynd 6/1) og brjóttu horn efri kants (mynd 6/2). Nú verður að beygja ytri hluta suðuhjálmsins (s) inn að við (mynd 6/3) og festa saman með því að ýta þeim saman við tvær hliðar. Á hvora hlið verður að smella 2 sinnum (mynd 6/4) - Ef að bæði efri hornin eru eins og sýnt er á mynd 7 er hægt að stinga inn skrúfum fyrir haldfang (p) að utanverðu í gegnum götin þrjú (mynd 8). Snúðu suðuhjálminum við og smeygðu haldfanginu (r) yfir skrúfurnar þrjár (p). Hérðu haldfangið (r) fast með rófunum fyrir haldfang (o) við hjálminn (mynd 9)
6. Rafmagnstenging
Þetta suðutæki er hægt að nota við 230 V og 400 V spennu. Hægt er að skipta á milli spennustillingar með þar til gerðum rofa (4). Vinsamlegast farið eftir eftirfarandi fyrirmælum:

Vinsamlegast athugið eftirfarandi til þess að minnka hættuna á eldi, raflosti eða meiðslum af fólki:
Ekki takið tækið í 400 V spennu ef að
spennustillingin er stillt á 230 V. Varúð: Eldhætta!
Takið tækið úr sambandi við straum áður en að spennustillingu er breytt. - Það er stranglega bannað að breyta spennustillingu á meðan að tækið er í notkun. - Fyrir notkun verður notandi að ganga úr skugga um að spennustillingin sé í samræmi við þá spennu sem tengd er við tækið.
Athugasemd:
Þetta suðutæki er búið 400V 16 A-CEE-on-tengi. Ef nota á tæki með 230V spennu verður að nota millistykki Nr. 12.
7. Suða undirbúin
Jarðtenging (-) (2) á að vera tengd beint við verkstykkið eða við það undirlag sem að verkstykkið stendur á.
Athugið, gangið úr skugga um að beint og gott samband sé við verkstykki. Forðist því lakkaða flöt og/eða einangraða. Elektrodahaldarinn er búinn sérstakri klemmu sem er gerð til þess að halda elektrodunni (pinnanum).
Nota ætti rafsuðuhjálm á meðan að soðið er. Hann hlífir augum fyrir ljósi og geislum og gerir það kleift að horfa í geisann til þess að geta soðið vel.
8. Suða
Eftir að gengið hefur verið úr skugga um að allar tengingar séu réttar og agilega gerdar getur suða hafist: setjið óhulda hluta rafsuðupinnans í klemmuna (1) og tengið jarðtenginguna (-) (2) við verkstykkið.
Gangið úr skugga um að góð tenging sé frá jarðtengingu í verkstykki. Kveikið á tækinu með höfuðrofanum (4) og verið viss um að suðustraumurinn sé rétt stilltur eða stillið hann með stillihjólinu (3). Straumurinn fer eftir suðupinna sem notaður er.
Haldið suðuhjálminum fyrir andlitinu og nuddið rafsuðupinnanum við verkstykkið eins og kveikt sé á eldspýtu. Þetta er besta leiðin til þess að byrja suðu. Prófið fyrst að sjóða í prufustykki og sjá hvort að rafsuðupinninn sé sá rétti og að straumurinn sé rétt stilltur.
| Elektróda Ø (mm) | Suðustraumur (A) |
| 2. | 40-80 A |
| 2,5 | 60 - 110 A |
| 3,2 | 80 - 160 A |
| 4 | 120 - 200 A |
Varúð!
Sláðu ekki verkstykkið með rafsuðupinnanum (elektróðunni), hann getur skemmst og erfitt er að hefja næstu suðu.
Strax og suða hefur hafist, reyndu að halda fjarlægð við verkstykki sem er sú sama og þvermál elektróðunnar. Halda ætti þessu millibili til lengdar og ávallt meðan soðið er. Halli pinnans í vinnuátt ætti að vera á milli 20 og 30 gráður.
Notið ávallt töng til þess að fjarlægja notaðan rafsuðupinna eða til þess að færa til vinnustykki sem var verið að sjóða. Athugið vinsamlegast að pinnahaldarann (1) verður að leggja frá sér þannig að hann einangri. Berja ætti vinnustykki yfir eftir að það hefur náð að kólna vel. Ef soðið er í beinu framhaldi af annarri suðu verður að berja af enda eldri suðunnar áður en byrjað er aftur að sjóða.
9. Ofhitunaröryggi
Rafsuðutæki er búið öryggi við ofhitun sem slítur tækið ef það hitnar of mikið. Ef þetta öryggi virkist kviknar aðvörunarljós (5) á tækinu. Látið þá rafsuðutækið kólna í góða stund.
11. Hreinsun, umhirða og pöntun varahluta
Hætta!
Takið tækið úr sambandi við straum áður en það er þrifið.
11.1 Hreinsun
Haldið hlífum, loftrifum og mótorhúsi tækisins eins lausu við ryk og óhreinindi og hægt er. Þurrkið af tækinu með hreinum klút eða blásið af því með þrýstilofti. Við mælum með því að tækið sé hreinsað eftir hverja notkun. Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og örfilalappu. Notið ekki hreinsiefni eða ætandi efni; þessi efni geta skemmt plastefni tækisins. Gangið úr skugga um að það komist ekki vatn inn í tækið. Ef vatn kemst inn í rafmagnsverkfæri, eykst hætta á raflosti.
11.2 Umhirða
Inni í tækinu eru engir aðrir hlutir sem hirða þarf um.
11.3 Pöntun varahluta:
Þegar að varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind;
Gerð tækis, gerðarnúmer tækis, númer tækis
- Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á. Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-gmbh.info
Samkvæmt reglugerð fyrir Evrópu 2012/19/EU um gömul rafmagnstæki og samkvæmt breytingum í lagasetningu hverrar þjóðar sambandsins verður að safna raftækjum áskilið og koma þeim í sérstaka endurvinnslu í þágu umhverfisverndar.
Í staðinn fyrir að senda tækin til baka er eigandi þeirra hvattur til að vinna að því að rétt endurvinnsla eigi sér stað þegar hann afsalar sér tækinu sem eigandi. Það er mögulegt að afhenda tækið til sérstakrar söfnunarstofnunar, sem sér um endurvinnslu tækisins samkvæmt lögum hinna ýmsu þjóða um endurvinnslu og sorp. Þetta á samt ekki við um viðbótarhluti, sem innihalda ekki rafmagnshluta.
Eftirprentun eða önnur fjölprentun fylgiskjala og leiðarvísa vörunnar, líka í útdrætti, er ekki leyfileg nema greinilegt samþykki frá iSC GmbH komi til.
Það er áskilið að tæknilegar breytingar séu leyfilegar
Þjónustuupplýsingar
Við höfum faglega þjónustuaðila í öllum þeim löndum sem að ábyrgðarskírteini er gefið út á og er heimilisfang þeirra gefið upp í ábyrgðarskírteininu. Þessir þjónustuaðilar eru til staðar fyrir þig varðandi viðgerðir, pantanir varahluta og íhluta.
Athuga verður að sumir eftirtaldir hlutir tækisins eru hlutir sem notast upp við notkun eða annan náttúrulegan hátt og/eða eftirfarandi hlutir eru nauðsynlegir vegna notkunar eða slits.
| Grein Dæmi | |
| Slithlutir* Suðuhaldfang Jarokklemma | |
| Notkunarefni/hlutir sem notast upp* | |
| Hlutir semvantar |
- verða ekki endilega að fylgja
Vegna galla eða bilana biðjum við þig að hafa samband við skrá það á netinu undir www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast athugið að lýsa biluninni nákvæmlega og svarið endilega eftirfarandi spurningum:
Virkaði tækið fyrst eða var það bilað strax frá upphafi? Varð þér við eitthvað óvenjulegt áður en bilunin kom til (greining bilunar)? Hvaða bilun lýsir sér í tækinu samkvæmt þinni skoðun (aðalbilun)? Lýsið biluninni.
Ábyrgðarskírteini
Kæri viðskiptavinur,
Vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef að tækið virkar þrátt fyrir það ekki fullkomlega, þykir okkur það mjög leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilisfang er að finna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem að tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:
- Þetta ábyrgðarskírteini lýsir aukalegri ábyrgð sem áður nefndur framleiðandi ábyrgist viðskiptavinum sínum umfram þær ábyrgðir sem reglur og lög gefa kröfur um. Þín almenna lagalega ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgðarliði. Ábyrgðarþjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu.
- Ábyrgðin nær eingöngu yfir galla á nýju tæki sem þú hefur fest kaup á sem var framleitt af áðurnefndum framleiðanda. Ábyrgðin nær einungis yfir galla sem eru vegna efnisgalla eða framleiðslugalla og takmarkast við okkar ákvörðun um að endurbæta gallann eða skipta út tækinu. Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef að tækið er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskyni eða annan slíkan sambærilegan hátt.
- Ábyrgð okkar gildir ekki yfir
- Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangrar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notendaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tækið hefur verið tengt við rarfspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækis varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tækið hefur verið notað undir óeðlilegum náttúruáhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu.
- Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir hlutir eða aukahlutir, ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tæki (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, flutningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða utanaðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tæki fellur niður).
- Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra utanaðkomandi eðlilegra uppnotkunar.
- Ábyrgðartíminn er 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaupa á tæki. Tilkynna verður um skemmdir eða galla á tæki áður en ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemmd er fundin. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi ef fyrstur á ábyrgðartímabilinu er útrunninn. Ef að gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd til staðar.
- Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafið þá samband við: www.isc-gmbh.info. Ef að skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess færðu umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla.
Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notandaleiðbeiningunum.
