IW 100 - Poste à souder Herkules - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis IW 100 Herkules á PDF sniði.

Herkules IW 100 - Suðuvél
📄 208 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Herkules IW 100 - page 158
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um IW 100 Herkules

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Poste à souder á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína IW 100 - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. IW 100 vörumerkisins Herkules.

NOTENDAHANDBÓK IW 100 Herkules

Hætta! – lesið notandaleiðbeiningarnar til þess að takmarka hættu á slysum

Hætta!

Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða. Lesið því notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar vandlega. Geymið allar leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til þeirra ef þörf er á. Látið notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem ekki er nefnd í þessum notandaleiðbeiningum eða öryggisleiðbeiningum.

1. Öryggisleiðbeiningar

Viðeigandi öryggisleiðbeiningar eru að finna í meðfylgjandi skjali!

Hætta!

Lesið öryggisleiðbeiningar og aðrar leiðbeiningar sem fylgja þessu tæki. Ef ekki er farið eftir öryggisleiðbeiningunum og öðrum leiðbeiningum getur myndast hætta á raflosti, bruna og/eða alvarlegum slysum. Geymið öryggisleiðbeiningarnar og notandaleiðbeiningarnar vel til notkunar í framtíðinni.

  1. Stillirofi til stillingar suðustraums/höfuðrofi
  2. Suðustraumskvarði
  3. Ástandsljós tækis
  4. Viðvörunarljós vegna ofhitunar
  5. Fljóttengi plús
  6. Fljóttengi mínus
  7. Rafmagnsleiðsla
  8. Rafmagnsleiðsla með suðuhaldfangi
  9. Rafmagnsleiðsla með jarðtengingu
  10. Burðarbeisli

2.2 Innihald

Vinsamlegast yfirfarið hlutinn og athugið hvort allir hlutir fylgi með sem taldir eru upp í notandaleiðbeiningunum. Ef að hluti vantar, hafið þá tafarlaust, eða innan 5 vinnudaga eftir kaup á tæki, samband við þjónustuborð okkar eða þá verslun sem tækið var keypt í og hafið með innkaupanótuna. Vinsamlegast athugið töflu aftast í leiðbeiningunum varðandi hluti sem eru ábyrgðir.

  • Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr umbúðunum. • Fjarlægið umbúðirnar og læsingar umbúða /
  • Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu. Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort að flutningsskemmdir séu að finna. Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til að ábyrgðartímabil hefur runnið út.

Hætta!

Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur og smáhluti! Hætta er á að hlutir geti fests í hálsi og einnig hætta á köfnun!

• Rafsuðutæki • Notandaleiðbeiningar • Öryggisleiðbeiningar

3. Tilætluð notkun

Þetta tæki má einungis nota í þau verk sem það er framleitt fyrir. Öll önnur notkun sem fer út fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins.

Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Við tökum enga ábyrgð á tækinu, sé það notað í iðnaði, í atvinnuskyni eða í tilgangi sem á einhvern hátt jafnast á við slíka notkun.

4. Merkingar og tæknilegar upplýsingar

EN 60974-1

Evrópskir staðlar fyrir suðutæki og ljósbogasuðu með takmarkaðan notkunartíma.

Herkules IW 100 - EN 60974-1 - 1

Einfasa staðlaður afriðill með þétti (breytir-jafnbreytir)

50 Hz

Kerfistíðni

U.

Málspenna

IS

U₂

Suðuspenna [V]

I₁ max

Málgildi hæsta straums rafrásar

I₁ eff

Virknigildi hæsta netstraums [A]

Herkules IW 100 - I₁ eff - 1

Öryggi með nafngildi í amperum í rafrásinni

U₀

Mál-tómgangsspenna

I2

Suðustraumur

∅ mm

Þvermál suðupinna

Herkules IW 100 - ∅ mm - 1

Tákn fyrir fallandi kennilínu

Herkules IW 100 - ∅ mm - 2

Tákn fyrir ljósboga-handsuðu með húðuðum suðupinnum

Herkules IW 100 - ∅ mm - 3

1 fasa - rafrásartenging

Herkules IW 100 - ∅ mm - 4

Geymið hvorki né notið tæki í röku eða blautu umhverfi og ekki heldur í rigningu

Herkules IW 100 - ∅ mm - 5

Lesið notendaleiðbeiningar suðutækisins vandlega áður en það er tekið til notkunar og farið eftir þeim

IP 21 S

Öryggisgerð

H

Einangrunarflokkur

X

Gangsetningartími

Rafmagnstenging 230/240 V ~ 50 Hz

Suðustraumur 10 – 80 A

Tími í gangi X

12% 80 A

60% 40 A

100% 35 A

Spenna án álags 85 V

Afl 2500 VA við 80 A

Öryggi (A) 16

Þyngd 5 kg

5. Burðarbeisli sett á tæki (myndir 3 / 4)

Setjið burðarbeislið (11) á tækið eins og sýnt er á myndunum (3-4).

6. Tæki tekið til notkunar

Yfirfarið rafrásartenginguna áður en að rafmagnsleiðslan (7) er tengd við rafrásina, hvort að upplýsingarnar á tækisskiltinu stemmi við þær sem rafrásin hefur.

Hætta! Einungis mega fagaðilar sjá um að skipta um rafmagnsleiðsluna í þessu tæki.

Suðuleiðsla tengd við tækið (mynd 5)

Hætta! Tengið suðuleiðsluna (8/9) eingöngu við tækið á meðan að tækið er ekki í sambandi við straum!

Tengið suðuleiðsluna við tækið eins og sýnt er á mynd 5. Tengið hér báðar innstungur (12) suðuleiðslunnar (8) og jarðtengingarinnar (9) með þar til gerðu fljóttengi (5/6) og læsið tengjunum (12) með því að snúa þeim réttsælis. Leiðslan með suðupinnahaldaranum (8) er venjulega tengd við plúspólinn (5), leiðslan með jarðtenginu (9) er venjulega tengd við mínuspólinn (6).

Höfuðrofi (mynd 2)

Gangsetjið tækið með því að snúa straumstillingarrofanum (1) réttsælis frá núllstillingu á suðustraumskvarðanum (2). Ástandsljós (3) byrjar að loga. Slökkvið á tækinu með því að snúa straumstillingarrofanum (1) rangsælis þar til að hann er í núllstillingu á suðustraumskvarðanum (2). Ástandsljósið (3) slokknar.

7. Undirbúningur fyrir suðuvinnu

Jarðtengingin (9) er tengd og fest beint við suðustykkið eða við undirlag þess sem suðustykkið liggur á.

Varúð, gangið úr skugga um að beint samband sé við suðustykkið. Forðist því lakkaða fleti og/eða einangrunarefni. Tengingin er útbúin sérstakri klemmu sem er til þess að festa suðupinnann í. Ávalt verður að nota suðuhjálm við suðuvinnu. Hann hlífir augunum fyrir ljósgeislanum sem suðulogin gefa frá sér en gerir notanda samt kleift að sjá suðupunktinn nákvæmlega.

8. Soðið

Tengið allar netspennutengingar og suðutengingar. Flestir rafsuðupinnar eru tengdir við plúspólinn. Til eru samt gerðir af suðupinnum sem tengja á við mínuspólinn. Farið eftir leiðbeiningum framleiðanda suðupinnanna varðandi rétta tengingu. Stillið suðuleiðsluna (8/9) eins og óskað er við fljóttengið (5/6).

Setjið nakta enda suðupinnans inn í klemmuna á suðuhaldaranum (8) og tengið jarðtenginguna (9) við suðustykkið. Athugið að tenging sé góð. Gangsetjið tækið og stillið inn réttan suðustraum með suðustraumsstillirofanum (1) sem passar við notkun suðupinnans. Haldið suðuhjálminum fyrir andlitinu og rennið enda suðupinnans á suðustykkinu þannig að hreyfingin verði eins og þegar að kveikt er á eldspýtu.

Þetta er besta leiðin til þess að mynda suðuloga. Æfið ykkur fyrst á æfingarstykki og gangið úr skugga um að réttur suðupinni og suðustraumur sé notaður.

Elektróða ∅ (mm) ...... Suðustraumur (A)

1,6....40-50 A

2 40-80A

2,5 60-110A

Varúð!

Sláið ekki verkstykkið með rafsuðupinnanum (elektróðunni), hann getur skemmst og erfiðað upphaf næstu suðu.

Strax og að suða hefur hafist, reynið þá að halda fjarlægð við verkstykkið sem er sú sama og þvermál elektróðunnar. Halda ætti þessu millibili til lengdar og ávallt á meðan að soðið er. Halli pinnans í vinnuátt ætti að vera á milli 20 og 30 gráður.

Notið ávallt töng til þess að fjarlægja notaðan rafsuðupinna eða til þess að færa til vinnustykki sem var verið að sjóða. Athugið vinsamlegast að pinnahaldarann (1) verður að leggja frá sér þannig að hann einangri. Berja ætti vinnustykkið fyrst eftir að það hefur náð að kólna vel. Ef að soðið er í beinu áframhaldi af annarri suðu verður að berja af enda eldri suðunnar áður en að byrjað er aftur að sjóða.

9. Ofhitunaröryggi

Rafsuðutækið er búið öryggi við ofhitun sem að hlífir tækinu ef að það hitnar of mikið. Ef að þetta öryggi virkist kviknar á aðvörunarljósi (4) á tækinu. Látið þá rafsuðutækið kólna í góða stund.

10. Skipt um rafmagnsleiðslu

Hætta!

Ef að rafmagnsleiðsla þessa tækis er skemmd, verður að láta framleiðanda, viðurkenndan þjónustuaðila eða annan fagaðila skipta um hana til þess að koma í veg fyrir tjón.

11. Hreinsun, umhirða og pöntun varahluta

Hætta!

Takið tækið úr sambandi við straum áður en að það er þrifið.

11.1 Hreinsun

  • Haldið hlífum, loftrifum og mótorhúsi tækisins eins lausu við ryk og óhreinindi og hægt er. Þurrkið af tækinu með hreinum klút eða blásið af því með háþrýstilofti.
  • Við mælum með því að tækið sé hreinsað eftir hverja notkun.
  • Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og örlitilli sápu. Notið ekki hreinsiefni eða ætandi efni; þessi efni geta skemmt plastefni tækisins. Gangið úr skugga um að það komist ekki vatn inn í tækið. Ef vatn kemst inn í rafmagnsverkfæri, eykst hætta á raflosti.

11.2 Umhirða

Inni í tækinu eru engir aðrir hlutir sem hirða þarf um.

11.3 Pöntun varahluta:

Þegar að varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind:

Gerð tækis • Gerðarnúmer tækis • Númer tækis • Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á

Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-gmbh.info

Þetta tæki er afhent í umbúðum sem hlífa tækinu fyrir skemmdum við flutninga. Þessar pakkningar eru endurnýtanlegar eða hægt er að endurvinna þær. Þetta tæki og aukahlutir þess eru úr mismunandi efnum eins og til dæmis málmi og plastefnum. Skemmd tæki eiga ekki heima í venjulegu heimilissorpi. Til þess að tryggja rétta förgun á þessu tæki ætti að skila því til þar til gerðra sorpmóttökustöðva. Ef að þér er ekki kunnugt um þessháttar sorpmóttökustöðvar ættir þú að leita til bæjarskrifstofu varðandi upplýsingar.

13. Geymsla

Geymið tækið og aukahluti þess á dimmum, þurrum og frostlausum stað þar sem að börn ná ekki til. Kjörhitastig geymslu er á milli 5 og 30 °C. Geymið rafmagnsverkfæri í upprunalegum umbúðum.

Herkules IW 100 - Geymsla - 1

Sérstök skilyrði fyrir lönd Evrópubandalagsins:

Kastið ekki notuðum rafmagnstækjum í venjulega ruslatunnu.

Samkvæmt reglugerð fyrir Evrópu 2012/19/EU um gömul rafmagnstæki og samkvæmt breytingum í lagasetningu hverrar þjóðar sambandsins verður að safna raftækjum aðskilið og koma þeim í sérstaka endurvinnslu í þágu umhverfisverndar.

Í staðinn fyrir að senda tækin til baka er eigandi þeirra hvattur til að vinna að því að rétt endurvinnsla eigi sér stað þegar hann afsalar sér tækinu sem eigandi. Það er mögulegt að afhenda tækið til sérstakrar söfnunarstofnunar, sem sér um endurvinnslu tækisins samkvæmt lögum hinna ýmsu þjóða um endurvinnslu og sorp. Þetta á þó ekki við um viðbótarhluti, sem innihalda ekki rafmagnshluta.

Eftirprentun eða önnur fjölprentun fylgiskjala og leiðarvísa vörunnar, líka í úrdrætti, er ekki leyfileg nema skriflegt samþykki frá iSC GmbH komi til.

Það er áskilið að tæknilegar breytingar séu leyfilegar.

Þjónustuupplýsingar

Við höfum faglega þjónustuaðila í öllum þeim löndum sem að ábyrgðarskírteini er gefið út á og er heimilisfang þeirra gefið upp í ábyrgðarskírteininu. Þessir þjónustuaðilar eru til staðar fyrir þig varðandi viðgerðir, pantanir varahluta og íhluta.

Athuga verður að sumir eftirtaldir hlutir tækisins eru hlutir sem notast upp við notkun eða á annan náttúrulegan hátt og/eða eftirfarandi hlutir eru nauðsynlegir vegna notkunar eða slits.

Grein Dæmi
Slithlutir* Suðuhaldfang Jarōklemma
Notkunarefni/hlutir sem notast upp*
Hlutir sem vantar

* verða ekki endilega að fylgja!

Vegna galla eða bilana biðjum við þig um að hafa samband við okkur og skrá það á netinu undir www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast athugið að lýsa biluninni nákvæmlega og svarið endilega eftirfarandi spurningum:

Virkaði tækið fyrst eða var það bilað strax frá upphafi? - Varð þér vart við eitthvað óvenjulegt áður en bilunin kom til (greining bilunar)? • Hvaða bilun lýsir sér í tækinu samkvæmt þinni skoðun (aðalbilun)? Lýsið biluninni.

Ábyrgðarskírteini

Kæri viðskiptavinur,

Vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef að tækið virkar þrátt fyrir það ekki fullkomlega, þykir okkur það mjög leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilisfang er að finna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem að tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:

  1. Þetta ábyrgðarskírteini lýsir aukalegri ábyrgð sem að neðan nefndur framleiðandi ábyrgist viðskiptavinum sínum umfram þær ábyrgðir sem reglur og lög gefa kröfur um. Þín almenna lagaleg ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgðaliði. Ábyrgðarþjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu.
  2. Ábyrgðin nær eingöngu yfir galla á nýju tæki sem þú hefur fest kaup á sem var framleitt af neðangreindum framleiðanda. Ábyrgðin nær einungis yfir galla sem eru vegna efnisgalla eða framleiðslugalla og takmarkast við okkar ákvörðun um að endurbæta gallann eða skipta út tækinu. Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef að tækið er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskyni eða annan slíkan sambærilegan hátt.
  3. Ábyrgð okkar gildir ekki yfir

- Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangrar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notendaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tækið hefur verið tengt við ranga rafspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækis varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tækið hefur verið notað undir óeðlilegum náttúruáhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu.

- Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir íhlutir eða aukahlutir), ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tækið (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, flutningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða utanaðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tækið fellur niður).

- Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra utanaðkomandi eðlilegra uppnotkunar.

  1. Ábyrgðartíminn er 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaups á tæki. Tilkynna verður um skemmdir eða galla á tæki áður en að ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemmdin er fundin. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi eftir að ábyrgðartímabilið er útrunnið. Ef að gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd til staðar.
  2. Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafið þá samband við: www.isc-gmbh.info. Ef að skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess færð þú umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla.

Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notandaleiðbeiningunum.

Herkules IW 100 - Ábyrgðarskírteini - 1

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Herkules

Líkan : IW 100

Flokkur : Suðuvél