HES 105 OG - Poste à souder Herkules - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis HES 105 OG Herkules á PDF sniði.

Herkules HES 105 OG - Suðuvél
📄 256 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Herkules HES 105 OG - page 196
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um HES 105 OG Herkules

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Poste à souder á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína HES 105 OG - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. HES 105 OG vörumerkisins Herkules.

NOTENDAHANDBÓK HES 105 OG Herkules

IS Upprunalegar notandaleiðbeiningar Práðsuðutæki

Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða. Lesið því notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar vandlega. Geymið allar leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til þeirra ef þörf er á. Látið notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem ekki er nefnd í þessum notandaleiðbeiningum eða öryggisleiðbeiningum.

1. Öryggisleiðbeiningar

Viðeigandi öryggisleiðbeiningar eru að finna í meðfylgjandi skjali!

Hætta!

Lesið öryggisleiðbeiningar og aðrar leiðbeiningar sem fylgja þessu tæki. Ef ekki er farið eftir öryggisleiðbeiningunum og öðrum leiðbeiningum getur myndast hætta á raflosti, bruna og/eða alvarlegum slysum. Geymið öryggisleiðbeiningarnar og notandaleiðbeiningarnar vel til notkunar í framtíðinni.

2.1 Tækislýsing (myndir 1-8)

  1. Burðarbeisli
  2. Öryggisljós hitaskynjara
  3. Hlíf tækishúss
  4. Höfuðrofi
  5. Stilling suðuvírshraða
  6. Rofi fyrir stillingu suðustraums
  7. Rafmagnstenging
  8. Jarötenging
  9. Slöngueining
  10. Suðuhöfuð
  11. Brennari
  12. Festiskrúfa tækishúss
  13. Suðuhjálmur
  14. Brennararofi

k. 1 x rammi fyrir öryggisgler

I. 1 x suðugler m. 1 x glært öryggisgler n. 2 x festingar fyrir öryggisgler o. 3 x rær fyrir haldfang p. 3 x skrúfur fyrir haldfang q. 2 x haldpinni fyrir öryggisgler r. 1 x haldfang

Vinsamlegast yfirfarið hlutinn og athugið hvort allir hlutir fylgi með sem taldir eru upp í notandaleiðbeiningunum. Ef að hluti vantar, hafið þá tafarlaust, eða innan 5 vinnudaga eftir kaup á tæki, samband við þjónustuborð okkar eða þá verslun sem tækið var keypt í og hafið með innkaupanótuna. Vinsamlegast athugið töflu aftast í leiðbeiningunum varðandi hluti sem eru ábyrgðir.

  • Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr umbúðunum.
  • Fjarlægið umbúðirnar og læsingar umbúða / tækis (ef slíkt er til staðar).
  • Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu.
  • Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort að flutningaskemmdir séu að finna. Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til að ábyrgðartímabil hefur runnið út.

Hætta!

Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur og smáhluti! Hætta er á að hlutir geti fests í hálsi og einnig hætta á köfnun!

Rafsuðutæki • Notandaleiðbeiningar • Öryggisleiðbeiningar

3. Tilætluð notkun

Þetta hlífðargassuðutæki er eingöngu ætlað til þess að nota við suðu með MAG-(málm-virkt-gas)-aðferð með viðeigandi suðuþræði og gasi.

Þetta tæki má einungis nota í þau verk sem það er framleitt fyrir. Öll önnur notkun sem fer út fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins.

Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Við tökum enga ábyrgð á tækinu, sé það notað í iðnaði, í atvinnuskyni eða í tilgangi sem á einhvern hátt jafnast á við slíka notkun.

4. Merkingar og tæknilegar upplýsingar

EN 60974-1

Evrópustaðall varðandi rafsuðutæki og önnur raf-magnssuðutæki með takmörkuðum notkunartíma

U.

Stöðluð tækisspenna

U 0

Mál-tómgangsspenna

U 1

Málspenna

∅ mm

Pvermál suðupinna

I1\ eff

Virknigildi hæsta netstraums

I1\ max

Málgildi hæsta straums rafrásar

I2

Suðustraumur

\~ 50 Hz

Kerfi stíðni

IP 21 S

Öryggisgerð

X

Gangsetningartími

Herkules HES 105 OG - IP 21 S - 1

Herkules HES 105 OG - IP 21 S - 2

1 fasa - rafrásartenging

Herkules HES 105 OG - IP 21 S - 3

Hlífðargassuða

Herkules HES 105 OG - IP 21 S - 4

Tákn fyrir fallandi kennilínu

Herkules HES 105 OG - IP 21 S - 5

Eins fasa spennubreytir

Herkules HES 105 OG - IP 21 S - 6

Geymið hvorki né notið tæki í röku eða blautu umhverfi og ekki heldur í rigningu

Herkules HES 105 OG - IP 21 S - 7

Lesið notendaleiðbeiningar suðutækisins vandlega áður en það er tekið til notkunar og farið eftir þeim

Suðutímar gilda við 40°C umhverfishita.

5. Fyrir notkun

5.1 Samsetning (myndir 7-13)

5.1.1 Uppsetning burðarbeislis (1)

Þræðið burðarbeislið (1) í gegnum rifuna á aftari hlið tækisins yfir tækishúsið (3) og í gegnum rifuna á fremri hluta tækisins. Tengið enda beislisins eins og sýnt er á mynd 5 og stillið lengd þess eins og óskað er.

Samsetning suðuhjálms (13)

Leggið suðuglerið (l) og þar ofan á glæra öryggisglerið (m) í ramman fyrir suðugler (k) (mynd 7). - Þrýstið festipinnunum (q) að utanverðu í götin á ramma suðuhjálmsins (s) (mynd 8). Leggið ramma fyrir öryggisgler (k) með suðugleri (l) og glæra öryggisglerinu (m) að innanverðu í rennurnar á ramma suðuhjálmsins (s), þrýstið festingum fyrir öryggisgler (n) á festipinna öryggisglers (q), þar til að smellur, til þess að tryggja ramma öryggisglers (k). Glæra öryggisglerið (m) verður að liggja að utanverðu (mynd 9) - Beygið efri kannt suðuhjálmsramma (s) inn á við (mynd 10/1) og brjótið upp á kantana

inn á við (mynd 10/2). Nú er ytri hlið suðuhjálmsramma (l) beygð inn á við (mynd 10/3) og því næst tengd við ytri hornin með því að þrýsta þeim saman. Á hverri hlið verður að þrýsta saman pinnunum þannig að það smelli tvisvar (mynd 10/4)

  • Ef að bæði efri hornin á suðuhjálminum eru samsett eins og sjá má á mynd 11, verður að stinga skrúfunum fyrir haldfang (p) að utanverðu í gegnum götin 3 á suðuhjálminum. (mynd 12)
  • Snúið því næst suðuhjálminum við og þræðið haldfangið (r) yfir skrúfurnar 3 fyrir haldfang (p). Skrúfið nú haldfangið (r) fast við suðuhjálminn með skrúfunum þremur fyrir haldfang (o). (mynd 13)

5.2 Rafmagnstenging

Gangið úr skugga um að rafrásin sem notuð er passi við þær upplýsingar sem gefnar eru upp á upplýsingarskilti tækisins. - Þetta tæki má einungis nota með rétt jarðtengdri rafmagnstengingu og með viðeigandi öryggi.

5.3 Ásetning suðuvírskeflu (myndir 1, 2, 3, 14-22)

Suðuvírskeflan er ekki innifalin í kaupunum!

5.3.1 Suðuvírsgerðir

Eftir mismunandi notkun er hægt að nota mismunandi suðuvír. Suðutækið getur notað suðuvír með þvermálið 0,9 mm. Drifrúlla og stýrirör fylgja með tækinu. Drifrúlla, stýrirör og þvermál suðuvírs verður ávallt að passa.

5.3.2 Magn suðuvírs

Setja má suðuvírsrúllur að hámarki 0,4 kg í tækið.

5.3.3 Ísetning suðuvírs

  • Opnið tækishúsið (mynd 1/3) með því að snúa festiskrúfunni (mynd 6/12) um 90° og opna húsið. Gangið úr skugga um að vírinn sé rétt upprúllaður og ekki flæktur til þess að tryggja jafnan suðuvírshraða.

Lýsing suðuvírsdrifs (myndir 14-22)

A Suðuvír B Suðukeflishaldari C Stýrirör D Stilliskrúfa fyrir keflisbremsu E Skrúfur fyrir suðuvírsdrif F Suðuvírsdrif G Drifhjól H Suðubarkatenging

Suðuvírsrúlla ísett (myndir 14,15)

Leggið suðuvírsrúlluna (A) á suðukeflishaldarann (B). Athugið að endi suðuvírsins rúllist af keflinu á hlið suðuvírsstýringar, sjá ör.

Præðing suðuvírs og stilling suðuvírsdrifs (myndir 16-22)

Prýstið fjöður þrýstihjóls (K) upp og rennið henni frammávið (mynd 16). - Smellið þrýstihjólshaldara (J) með þrýstihjóli (I) og fjöður þrýstihjóls (K) niðurávið (mynd 17) - Losið skrúfur fyrir suðuvírsdrif (E) og takið út suðuvírsdrifið (F) að ofanverðu (mynd 18). Yfirfarið drifhjól (G). Á efri hlið drifhjóls (G) er merking sem gefur til kynna þvermál suðuvírs. Drifhjólið (G) er með 2 stýringum. Snúið drifhjólinu (G) við eða skiptið um það ef þörf er á. (mynd 19) - Setjið suðuvírsdrif (F) aftur á sinn stað og skrúfið það fast. - Fjarlægið gasstút (mynd 2/10) með því að snúa honum réttsælis við brennara (mynd 2/11), skrúfið af stýrirör (mynd 3/15) (mynd 2-3). Leggið barkaeiningu (mynd 1/9) eins beint og hægt er frá suðutæki á jörðina. - Fyrstu 10 cm af suðuvírnum eru klipptir af, þannig að skurðurinn sé beinn og ekki trosnaður, án horna eða óhreininda. Gerið enda suðuvírsins beinan. - Præðið suðuvírinn í gegnum stýrirörið (C), á milli þrýstingshjóls og drifhjóls (G/I) inn í suðubarkatenginguna (H). (mynd 20) Rennið suðuvír varlega með hendinni inn í suðubarkann þar til að endi hans standi um það bil 1 cm út úr brennaranum (mynd 2/11). - Losið stilliskrúfu mótþrýstings (L) um nokkra snúninga. (mynd 22) - Smellið þrýstihjólshaldara (J) með þrýstihjóli (I) og fjöður þrýstihjóls (K) aftur uppávið og hengið fjöður þrýstihjóls (K) aftur við stilliskrúfu mótþrýstings (L) (mynd 21) - Stillið nú stilliskrúfu gagnþrýstings (L) þannig að suðuvírinn sé fastur á milli þrýstihjóls (I) og drifhjóls (G) án þess að hann merjist. (mynd 22) - Stingið passandi stýrirör (mynd 3/15) fyrir nota þykkt suðuvírs á brennara (mynd 2/11) og skrúfið gasstút (mynd 2/10) réttsælis á hann.

- Stillið stilliskrúfu keflisbremsu (D) þannig að suðuvírinn sé hreyfanlegur en að rúllan stöðvist sjálfkrafa við bremsun.

6. Notkun

6.1 Stillingar

Þar sem að stilling suðutækisins er mjög mismunandi eftir mismunandi notkun, mælum við með því að prufa sig áfram með prufusuðu.

6.1.1 Suðustraumur stilltur

Suðustraum er hægt að stilla í 2 mismunandi þrepum með rofa fyrir suðustraum (mynd 1/6). Réttur suðustraumur er mismunandi eftir því hvað verkstykkið er þykkt, suðudýpt og þykkt suðuvírs.

6.1.2 Stilling hraða suðuvírs

Hraði suðuvírsdrifs stillist sjálfkrafa með mismunandi suðustraumsstillingu. Auk þess er hægt að finstilla suðuvírsdrifið á suðuvírsdrifstillingu (mynd 1/5). Mælt er með því að byrja með finstillinguna í miðstillingu og stilla svo útfrá því. Viðeigandi suðuvírmagn er háð efnisþykkt, suðudýpt, suðustraumi og millibili verkstykkja sem soðin eru saman.

6.2 Rafmagnstenging

Tengið jarðklemmu (8) tækisins eins nálægt suðustað og hægt er. Athugið að snertiflötirnir séu hreinir og leiði vel.

6.3 Soðið

Séu allar rafmagnstengingar klárar er hægt að hefja suðu þannig:

Verkstykkin sem sjóða á í verða að vera laus við málningu, málmhúðun, óhreinindum, ryði, fitu og raka á þeim stað sem sjóða á.

Stillið inn suðustraum og suðuvírshraða (sjá 6.1.1 – 6.1.2).

Haldið suðuhjálminum (mynd 4/13) fyrir andlitinu og setjið suðustútinn að suðustaðnum á verkstykkinu. Prýstið nú inn brennararofanum (mynd 2/14). Þegar ljósbogi kviknar, færir suðutækið bræðinginn með suðuvír. Ef suðulinsan er nægjanlega stór,

er suðustútnum rennt varlega eftir suðukantinum. Hreyfið stútinn til ef suðan á að verða breiðari.

Fullkomin stilling á suðustraumi og suðuvírshraða er einungis hægt að ná með því að framkvæma prufusuðu. Ef tækið er vel stillt heyrist jafnt suðuhljóð. Suðudýptin ætti að vera eins djúp og hægt er en suðubaðið ætti þó ekki að falla í gegnum verkstykkið.

6.4 Öryggisútbúnaður

6.4.1 Hitavaki

Þetta suðutæki er búið ofhitavörn sem hlífir suðutækisbreytinum fyrir of miklum hita. Ef hitavörnin virkjast logar viðvörunarljós (2) á tækinu. Látið suðutækið kólna í góða stund.

Ef rafmagnssnúra þessa tækis er skemmd, verður að láta framleiðanda, viðurkenndan þjónustuaðila eða annan fagaðila skipta um hana til að koma í veg fyrir tjón.

8. Hreinsun, umhirða og pöntun varahluta

Hætta!

Takið tækið úr sambandi við straum áður en það er þrifið.

8.1 Hreinsun

  • Haldið hlífum, loftrifum og mótorhúsi tækisins eins lausu við ryk og óhreinindi og hægt er. Þurrkið af tækinu með hreinum klút eða blásið af því með háþrýstilofti.
  • Við mælum með því að tækið sé hreinsað eftir hverja notkun. Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og örlitilli sápu. Notið ekki hreinsiefni eða ætandi efni; þessi efni geta skemmt plastefni tækisins. Gangið úr skugga um að það komist ekki vatn inn í tækið. Ef vatn kemst inn í rafmagnsverkfæri, eykst hætta á raflosti.

8.2 Umhirða

Inni í tækinu eru engir aðrir hlutir sem þarf að hirða um.

8.3 Pöntun varahluta:

Þegar varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind:

Gerð tækis

• Gerðarnúmer tækis

• Númer tækis

- Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á. Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-gmbh.info

Þetta tæki er afhent í umbúðum sem hlífa tækinu fyrir skemmdum við flutninga. Þessar pakkningar eru endurnýtanlegar eða hægt er að endurvinna þær. Þetta tæki og aukahlutir þess eru úr mismunandi efnum eins og til dæmis málmi og plastefnum. Skemmd tæki eiga ekki heima í venjulegu heimilissorpi. Til þess að tryggja rétta förgun á þessu tæki ætti að skila því til þar til gerðra sorpmóttökustöðva. Ef þér er ekki kunnugt um þessháttar sorpmóttökustöðvar ættir þú að leita til bæjarskrifstofu varðandi upplýsingar.

10. Geymsla

Geymið tækið og aukahluti þess á dimmum, þurrum og frostlausum stað þar sem börn ná ekki til. Kjörhitastig geymslu er á milli 5 og 30 °C. Geymið rafmagnsverkfæri í upprunalegum umbúðum.

11. Bilanaleit

Vandamál Möguleg ástæða Lausn
Vírhreyfi st ekki - Tæki ekki í sambandi við straum- Stilling vírshraða er á 0-Athugiðrafmagnstengingu- Stillið vírshraðann
Suðuvírsdrifrúlla hreyfi st en vírinn ekki- Of lár þrýstingur á vír (sjá 5.3.3)- Rúllubremsa of stíf stillt (sjá 5.3.3)- Óhrein / skemmd drifrúlla (sjá 5.3.3)- Skemmdur barki- Snertirör ekki af réttri stærð /óhreint / uppslitið (sjá 5.3.3)- Suðuvír soðinn fastur við suðustút / snertirör- Yfi rfarið stillingu- Yfi rfarið stillingu- Hreinsið eða skiptið um- Athugið barka og vírþræðingu- Hreinsið eða skiptið um- losið
Tækið virkar ekki eftir langa notkun, viðvörunarljós hitað- ryggis (3) logar- Tækið hefur slegið út vegna ofhitunar eða of lengi án pásu notað- Látið tækið kólna í að minnstakosti 20-30 mínútur
Mjög slæm suða - Rangur suðustraumur / suðuvírsh-raði (sjá 6.1.1/6.1.2)- Yfi rfarið stillingar

Herkules HES 105 OG - Bilanaleit - 1

Sérstök skilyrði fyrir lönd Evrópubandalagsins:

Kastið ekki notuðum rafmagnstækjum í venjulega ruslatunnu.

Samkvæmt reglugerð fyrir Evrópu 2012/19/EU um gömul rafmagnstæki og samkvæmt breytingum í lagasetningu hverrar þjóðar sambandsins verður að safna raftækjum aðskilið og koma þeim í sérstaka endurvinnslu í þágu umhverfisverndar.

Í staðinn fyrir að senda tækin til baka er eigandi þeirra hvattur til að vinna að því að rétt endurvinnsla eigi sér stað þegar hann afsalar sér tækinu sem eigandi. Það er mögulegt að afhenda tækið til sérstakrar söfnunarstofnunar, sem sér um endurvinnslu tækisins samkvæmt lögum hinna ýmsu þjóða um endurvinnslu og sorp. Þetta á samt ekki við um viðbótarhluti, sem innihalda ekki rafmagnshluta.

Eftirprentun eða önnur fjölprentun fylgiskjala og leiðarvísa vörunnar, líka í úrdrætti, er ekki leyfileg nema skriflegt samþykki frá iSC GmbH komi til.

Það er áskilið að tæknilegar breytingar séu leyfilegar

Þjónustuupplýsingar

Við höfum faglega þjónustuaðila í öllum þeim löndum sem að ábyrgðarskírteini er gefið út á og er heimilisfang þeirra gefið upp í ábyrgðarskírteininu. Þessir þjónustuaðilar eru til staðar fyrir þig varðandi viðgerðir, pantanir varahluta og íhluta.

Athuga verður að sumir eftirtaldir hlutir tækisins eru hlutir sem notast upp við notkun eða á annan náttúrulegan hátt og/eða eftirfarandi hlutir eru nauðsynlegir vegna notkunar eða slits.

Grein Dæmi
Slithlutir* Drifkefl i, Práðahönk, Jarðklemma
Notkunarefni/hlutir sem notast upp* Suðupráður, Stútur, Snertirör
Hlutir sem vantar

* verða ekki endilega að fylgja!

Vegna galla eða bilana biðjum við þig um að hafa samband við skrá það á netinu undir www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast athugið að lýsa biluninni nákvæmlega og svarið endilega eftirfarandi spurningum:

Virkaði tækið fyrst eða var það bilað strax frá upphafi? - Varð þér vart við eitthvað óvenjulegt áður en bilunin kom til (greining bilunar)? • Hvaða bilun lýsir sér í tækinu samkvæmt þinni skoðun (aðalbilun)? Lýsið biluninni.

Ábyrgðarskírteini

Kæri viðskiptavinur,

Vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef að tækið virkar þrátt fyrir það ekki fullkomlega, þykir okkur það mjög leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilisfang er að finna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem að tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:

  1. Þetta ábyrgðarskírteini lýsir aukalegri ábyrgð sem að neðan nefndur framleiðandi ábyrgist viðskiptavinum sínum umfram þær ábyrgðir sem reglur og lög gefa kröfur um. Þín almenna lagalega ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgðaliði. Ábyrgðarþjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu.
  2. Ábyrgðin nær eingöngu yfir galla á nýju tæki sem þú hefur fest kaup á sem var framleitt af neðangreindum framleiðanda. Ábyrgðin nær einungis yfir galla sem eru vegna efnisgalla eða framleiðslugalla og takmarkast við okkar ákvörðun um að endurbæta gallann eða skipta út tækinu. Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef að tækið er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskyni eða annan slíkan sambærilegan hátt.
  3. Ábyrgð okkar gildir ekki yfir

- Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangrar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notandaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tækið hefur verið tengt við ranga rafspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækisins varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tækið hefur verið notað undir óeðlilegum náttúruáhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu.

- Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir íhlutir eða aukahlutir), ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tækið (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, flutningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða utanaðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tækið fellur niður).

- Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra utanaðkomandi eðlilegra uppnotkunar.

  1. Ábyrgðartíminn er 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaups á tæki. Tilkynna verður um skemmdir eða galla á tæki áður en að ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemmdin er fundin. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi eftir að ábyrgðartímabilið er útrunnið. Ef að gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd til staðar.
  2. Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafið þá samband við: www.isc-gmbh.info. Ef að skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess færð þú umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla.

Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notandaleiðbeiningunum.

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Herkules

Líkan : HES 105 OG

Flokkur : Suðuvél