NOTENDAHANDBÓK LAGAN 306.273.64 IKEA
Þessar leiðbeiningar og heimilistækið sjálft veita mikilvægar öryggisviðvaranir, sem ævallt ber að virða. Framleiðandinn afsalar sér allri ábyrgð ef þessum öryggisleiðbeiningum er ekki fylgt, vegna óviðeigandi notkunar á tækinu eða rangrar stillingar stjórntækja.
Mjög ungum börnum (0-3 ára) ætti að halda frá tækinu. Halda skal ungum börnum (3-8 ára) fjarri tækinu nema þau séu undir stöðugu eftirliti. Börn frá 8 ára og eldri og einstaklingar með skerta líkamlega, skynræna eða andlega getu eða skort á reynslu og þekkingu mega aðeins nota þetta tæki ef þau eru undir eftirliti eða hafa fengið leiðbeiningar um örugga notkun og skilja hættuna sem því fylgir. Börn mega ekki leika sér með heimilistæki. Þrif og notendaviðhald má ekki fara fram af börnum án eftirlits.
LEYFILEG NOTKUN
VARÚÐ: tækinu er ekki ætlað að vera notað með aðstoð utanaðkomandi ræsingarbúnaðar, s.s. tímastillis eða aðgreinds fjarstýrðs stjórnkerfis. Þetta tæki er ætlað til notkunar heimilum og á álíka stöðum, s.s. starfsmannaeldhúsum í verslunum, skrifstofum og öðru vinnuumhverfi; bóndabæjum; af viðskiptavinum á hótelum, mótelum, gistiheimilum og öðru íbúðarumhverfi. Tæki er ekki til notkunar í atvinnuskyni. Ekki nota tækið utandyra. Hámarksfjöldi borðbúnaðar er sýndur á vörugagnablaðinu. Ekki ætti að skilja hurðina eftir opna - hætta á hrasun. Opin hurð tækisins getur aðeins borið þunga hlaðinnar grindar sem toguð hefur verið út. Setjið ekki hluti á hurðina, né sitjið eða standið á henni.
VIÐVÖRUN: Þvottaefni fyrir uppþvottavélar eru mjög alkalísk. Þau eru mjög hættuleg ef þau eru gleypt. Forðist snertingu við húð og augu og haldið börnum frá uppþvottavélinni þegar hurðin er opin. Athugið áholfið fyrir þvottaefnið sé tómt þegar þvottalotunni er lokið.
VIÐVÖRUN: Hnífar og önnur áhöld með beittum oddum skal hlaða í körfuna með oddinn niður eða setja í lárétta stöðu - hætta á að skerast.
Geymið sprengifim eða eldfim efni (t.d. eldsneyti eða úðabrúsa) inni í eða nærri tækinu vegna eldhættu.
Aðeins má nota tækið til að þvo leirtau heimilis í samræmi við leiðbeiningar þessarar handbókar. Vatnið í tækinu er ekki drykkjarhæft. Notið aðeins þvottaefni og blendiskolefni sem gerð eru fyrir sjálfvirkar uppþvottavélar. Þegar bætt er við salti til að mykja vatnið skal tafarlaust keyra eina lotu með vélina tóma til að forðast að innri hlutar verði fyrir tæringarskemmdum.
Geymið þvottaefnið, skolefnið og saltið þar sem börn ná ekki til. Slökkið á vatnsinntakinu og takið úr sambandi við rafmagn áður en þjónusta og viðhald fer fram.
Aftengið vatn og rafmagn ef einhver bilun verður.
UPPSETNING
Tækið verður að vera meðhöndlað og uppsett af tveim eða fleiri persónum - hætta á meiðslum. Notaðu hlífðarhanska til að taka upp og setja upp - hætta á skurði. Aðeins hæfur tækimaður má sjá um uppsetningu tækisins, þ.m.t. vatnsinntak (ef til staðar), raftengingar og viðgerðir. Gerið ekki við eða skiptið út neinum hluta tækisins nema það sé sérstaklega tekið fram í notendahandbókinni. Haldið börnum frá uppsetningarstaðnum. Þegar
Umbuðir hafa verið teknar utan af tækinu skal ganga úr skugga um að þær hafi ekki skemmst við flutningana.
Ef vandamál koma upp skal hafa samband við næsta þjónustuaðila.
Eftir uppsetningu skal geyma pökkunarúrgang (plast, froðuplast o.s.frv.) fjarri börnum - hætta á köfnun.
Nauðsynlegt er að aftengja tækið frá rafveitu áður en nokkrar uppsetningaraðgerðir eru framkvæmdar - hætta á raflosti. Við uppsetningu skal tryggja að tækið skemmi ekki rafmagnssnúrur - hætta á eldsvoða eða raflosti. Ekki gangsetja tækið fyrr en uppsetningu er lokið.
Notið aðeins ný sett af slöngum þegar uppþvottavélin er tengd við vatnsinntak. Ekki skal nota gömul slöngusett.
Allar slöngur verða að vera örugglega klemmdar svo að þær losni ekki við notkun.
Fara skal að öllum reglum viðkomandi vatnsyfirvalda.
Vatnsinntaksþrýstingur 0,05 - 1,0 MPa.
Hitastig inntaksvatnsins fer eftir gerð uppþvottavélarinnar. Ef uppsett inntaksslanga er merkt „25°C Max" er hámarksleyfilegt hitastig vatns 25°C. Fyrir allar aðrar gerðir er hámarksleyfilegt hitastig vatns 60°C. Skerið ekki slöngur og í tilfelli tækja sem eru búin lekavarnarkerfi má ekki dýfa plasthólknum sem er utan um inntaksslönguna í vatn. Ef slöngurnar eru ekki nógu langar skal hafa samband við seljanda. Verið viss um að inntaks- og frárennslisslöngurnar séu ekki beyglaðar né kramdar. Athugið hvort vatnsinntakið og frárennslisslöngur leki áður en tækið er notað í fyrsta sinn. Tryggið að fæturnir fjórir séu stöðugir og hvíli á gólfinu, stillið þá eftir þörfum, og athugið með hallamáli að uppþvottavélin sé fullkomlega lárétt.
Notið tækið aðeins þegar hlífarnar sem sýndar eru á skýringarmynd 19 í
samsetningarleiðbeiningunum hafa verið rétt settar saman - hætta á meiðslum.
VIÐVARANIR VEGNA RAFMAGNS
Merkispjaldi er á brún hliðar uppþvottavélarinnar (sést þegar hurðin er opin).
Nauðsynlegt er að hægt sé að aftengja tækið frá rafmagni með því að taka það úr sambandi ef innstungan er aðgengileg eða með fjölskautarofa sem settur er upp fyrir framan innstunguna í samræmi við tengingarreglur. Jarðtengja skal tækið í samræmi við landsbundna staðla um raföryggi.
Notið ekki framlengingartengi, fjöltengi eða millistykki. Eftir að tækið hefur verið sett upp á notandinn ekki að komast að rafrænum íhlutum tækisins. Ekki nota tækið þegar þú ert blautur eða berfættur. Notið ekki ofninn ef rafmagnssnúran eða innstungan er skemmd, ef hann starfar ekki rétt eða ef hann hefur skemmst eða dottið.
Ef rafmagnssnúran er skemmd verður að skipta henni út með eins rafmagnssnúru frá framleiðandanum, þjónustufulltrúa hans eða sambærilegum hæfum aðila - hætta á raflosti.
Ef afesta klóin passar ekki í innstunguna skal hafa samband við hæfan tækjamann. Togið ekki í rafmagnssnúruna. Ekki skal láta rafmagnssnúru eða rafmagnskló liggja í vatni.
Halda skal rafmagnssnúrunni frá heitu yfirborði.
HREINSUN OG VIÐHALD
VIÐVÖRUN: Tryggja að slökkt sé á tækinu og að það hafi verið tekið úr sambandi frá aflveitu áður en viðhald er framkvæmt. Til að forðast hættu á líkamstjóni skal nota hlífðarhanska (hætta á að skerast) og öryggisskó (hætta á að merjast); verið viss um að sé meðhöndlað af tveimur einstaklingum (minna álag); notið aldrei gufuhreinsibúnað (hætta á raflosti).
Viðgerðir ófaglærðra án heimildar framleiðanda geta leitt til áhættu fyrir heilsufar og öryggi, sem framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir. Allir gallar eða skemmdir af völdum viðgerða eða viðhalds sem er framkvæmt af ófaglærðum aðilum falla ekki undir ábyrgðina, en skilmálar hennar eru útlistaðir í skjalinu sem fylgdi einingunni.
Lýsing raftækisins

Sturtuóði 2 Efri grind 3 Fellispjöld 4 Hæðarstilling efri grindar 5 Efri úðunararmur 6 Neðri grind 7 Hnífaparakarfa 8 Neðri úðunararmur 9 Síusamstæða 10 Saltgeymir 11 Þvottaefnis- og skolunarefnisskammtarar 12 Stjórnborð
Stjórnborð

Kveikja-slökkva/endurræsa hnappur með gaumljósi 2 Valhnappur fyrir þvottakerfi 3 Gaumljós fyrir sátyfyllingu
4 Gaumljós fyrir skolunarefnisáfyllingu 5 Gaumljós fyrir þvottakerfi 6 RÉSA/Hé hnappur með gaumljósi
Fyrsta notkun
Ráð fyrir fyrstu notkun
Lesið vandlega "ÖRYGGISLEIÐBEININGAR" og
"UMSETNINGARLEIÐBEININGAR" sem finna má í pokanum með skjölum tækisins áður en uppsetning og notkun hefst. Mundið að fjarlægja allar flutningshlífar frá uppþvottavélinni.
Fylltu saltgeyminn
Notkun salts kemur í veg fyrir að kalkútfelling setjist á leirtauið og á virka hluta vélarinnar.
- Það er nauðsynlegt að saltgeymirinn sé aldrei tómur. Það er mikilvægt að stilla vatnshörkuna.
Saltgeymirinn er staðsettur í neðri hluta uppþvottavélarinnar (sjá VÖRULÝSINGU) og ætti að fylla á hann þegar gaumljósið fyrir SALTÁFÝLLINGU á stjórnborðinu lýsir.

- Fjarlægið neðri grindina og skrúfið lok geymisins af (rangsælis).
- Staðsetjið trektina (sjá mynd) og fyllið saltgeyminn alveg upp að brún hans (u.þ.b. 1 kg); þó er ekki óvenjulegt að svolítið vatn leki út.
- Aðeins í fyrsta skipti sem þetta er gert: Fyllið saltgeyminn með vatni.
- Fjarlægið trektina og þurrkið allar saltleifar frá opinu.
Verið viss um að lokið sé skrúfað þétt á þannig að ekkert þvottaefni komist í látið meðan þvottakerfi er í gangi (það gæti eyðilagt vatnsmýkirinn).
Þegar þessu ferli er lokið skal keyra þvottakerfi með vélina tóma. Þvottakerfi „Forþvottur" er EKKI nægilegt eitt og sér. Leifar af saltvatnslausn eða saltkornum geta leitt til tæringar og óafturkræfra skemmda á hlutum úr ryðfríu stáli. Ábyrgðin gildir ekki ef bilanir verða vegna slíkra kringumstæðna.
Notið aðeins salt sem er sérstaklega gert fyrir uppþvottavélar. Ef saltíláti er ekki fyllt gæti það skaðað vatnsmýkirinn og hitaristina vegna uppsöfnunar kalkútfellinga. Ráðlagt er að nota salt með öllum tegundum þvottaefnis fyrir uppþvottavélar.
Hvenær sem bæta þarf við salti þá er nauðsynlegt að ljúka þvotti áður en þvottalotan hefst til að koma í veg fyrir tæringu.
Stilling á vatnshörku
Til að vatnsmýkirinn geti virkað á fullkominn hátt þá er nauðsynlegt að vatnsharkan sé stillt samkvæmt raunverulegri vatnshörku í viðkomandi húsi. Þessar upplýsingar er hægt að fá hjá vatnsveitu staðarins. Verksmiðjan setur sjálfgefið gildi fyrir vatnshörku.
Kveikið á tækinu með því að ýta á hnappinn "Kveikt/slökkt". - Slökkvið á tækinu með því að ýta á hnappinn, Kveikt/slökkt. - Haldið hnappi [við] niðri í 15 sekúndur, þar til það heyrist píp. Kveikið á tækinu með því að ýta stutt á kveikja/slökkva hnappinn. Gaumljósið fyrir núverandi stillt stig blikkar. - Ýtið á hnapp til að velja óskað stig hörku (sjá TÖFLU YFIR VATNSHÖRKU). - Slökkvið á tækinu með því að ýta á hnappinn „Kveikt/slökkt". Stillingu er lokið!
| Tafla yfirvatnshörku |
| Stig | °dHpýskar graður | °fHfranskar graður | °Clark enskar graður |
| 1 Mjúkt 0 - 6 0 | - 10 0 - 7 | | |
| 2 Miðlungs 7 - | 1 11 - 20 8 - 14 | | |
| 3 Meðal 12 - 16 | 21 - 29 15 - 20 | | |
| 4 Hart 17 - 34 30 | - 60 21 - 42 | | |
| 5 Mjög hart 35 | - 50 61 - 90 | 43 - 62 | |
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 |
| ECO
50° | V40°
45° | 65° | 50° | 45° |
Vatnsmýkingarkerfi
Vatnsmýkir minnkar sjálfkrafa vatnshörkuna og kemur þannig í veg fyrir að útfellingar safnist upp á hitaranum, og stuðlar líka að því að þvotturinn verði skilvirkari. Þetta kerfi endurnýjar sig sjálft með salti og því þarf að fylla á saltílátið þegar það er tómt. Tíðni endurnýjana fer eftir stillingu fyrir vatnshörku - endurnýjun framkvæmd einu sinni á 6 þvotta lotum með vatnshörkustigi stillt á 3.
Endurnýunarferlið hefst með lokaskolun og lýkur með þurrkunarfasa, áður en lota endar.
- Ein endurnýjun notar: 3,5 l af vatni;
- tekur allt að 5 auka mínútur fyrir lotuna; Notar minna en 0,005 kWh af orku.
Fyllt á skolefnishólfið
Skolefni gerir þURRKUN leirtaus auðveldari. Fylla ætti á skolefisskammtarann A þegar gaumljós fyrir SKOLEFNISAFYLLINGU á stjórnborðinu lýsir.
B

- Opnið skammtarann B með því að ýta og toga upp flipann á lokinu.
- Setjið skolefnið varlega upp að hakinu fyrir hámarkið (110 ml) - forðist að hella út fyrir. Ef það gerist skal tafarlaust hreinsa það sem helltist niður með þurrum klút.
- Ýtið lokinu niður þar til það heyrist smellur til að loka því.
ALDREI skal hella skolefni beint inn í vélina.
Stilling skolefnisskammtsins
Ef þurrkunin skilar ekki fullnægjandi niðurstöðum þá getur þú stillt magn skolefnis sem notað er.
Kveikið á uppþvottavélinni með því að nota „Kveikt/slökkt" hnappinn. - Slökktu á henni með því að nota „Kveikt/slökkt" hnappinn. - Ýttu þrisvar sinnum á hnapp - þá heyrist píp. Kveikið á henni með því að nota „Kveikt/slökkt" hnappinn. Gaumljós fyrir núverandi stillt stig blikkar. - Ýttu á hnapp til að velja það magn skolefnis sem á að nota. - Slökktu á henni með því að nota „Kveikt/slökkt" hnappinn.
Stillingu er lokið!
Ef magn skoliefnis er stillt á 1 BCA verður ekkert skoliefni notað. Gaumljósið fyrir LÍTIÐ SKOLIEFNI mun ekki kvikna þótt skoliefnið klárist. Hægt er að stilla að hámarki 5 stig fyrir þessa gerð uppþvottavél. Verksmiðjustillingin er sérstök fyrir gerðina, vinsamlegast fylgdu leiðbeiningunum að ofan til að athuga þetta fyrir viðkomandi vél.
- Ef það sjást bláar rendur á leirtauinu skal stilla á lægra númer (2-3).
- Ef það eru vatnsdropar eða merki um kalkútfellingar á leirtauinu skal stilla á númerið miðjuna (3-4).
Fyllið þvottaefnisskammtarann
Notkun þvottaefnis sem ekki er gert fyrir uppþvottavélar getur valdið gangtruflunum í eða skemmdum á tækinu.
Fyrir bestan árangur við þvott og þurrkun er nauðsynlegt að nota til samans þvottaefni, skoliefni og hreinsa salt.
Við mælum með að nota þvottaefni sem inniheldur ekki fosföt eða klór, þar sem þessi efni eru skaðleg umhverfinu.
Góður árangur við þvott er einnig háður því að rétt magn þvottaefnis sé notað.
Það leiðir ekki til betri þvottar sé farið yfir uppgefið magn og það veldur meiri umhverfismengun.
Hægt er að stilla magnið eftir því hversu mikil óhreinindin eru. Í tilfelli venjulegra óhreininda skal nota u.þ.b. annað hvort 35g (þvottaefnisduft) eða 35ml (fljótandi þvottaefni) og auka teskeið af þvottaefni beint inn í vélina. Ef notaðar eru töflur þá dugar ein.
Ef leirtauið er aðeins smávegis óhreint eða hefur verið hreinsað með vatni áður en það var setti uppþvottavélina, þá skal minnka magn þvottaefnis sem notað er til samræmis (lágmark 25 g/ml), t.d. sleppa því að setja duft/gel inn í vélina.
Til að opna þvottaefnisskammtarann skal ýta á hnapp D. Setjið þvottaefnið aðeins í þurrskammtarann. Setjið magn þvottaefnis fyrir forþvott beint inn í vélina.

- Þegar þvottaefni er mælt skal sjá áður nefndar upplýsingar til að setja rétt magn. Innaní skammtaranum d eru vísbendingar sem hjálpa við skömmtun þvottaefnis.
- Fjarlægðu leifar af þvottaefni frá brúnum skammtarans og lokaðu lokinu þar til það smellur.
- Lokaðu lokinu á þvottaefnisskammtaranum með því að þrýsta því þar til lokunarbúnaðurinn festist.
Þvottaefnisskammtarinn opnast sjálfkrafa á réttum tíma samkvæmt þvottakerfinu.
Raðað í grindurnar
ABENDINGAR
Áður en sett er í grindurnar skal fjarlægja allar matarleifar af leirtauinu og tæma glösin. Þú þarft ekki að skola það undir rennandi vatni.
Raðið leirtauinu þannig að það haldist kyrrt og velti ekki um koll; og raðið ílátunum þannig að opin snúi niður á við og setjið íhvolfuðu/kúptu hlutana skáhalt þannig að vatnið nái til allra yfirborða og flæði óhindrað.
Viðvörun: Lok, handföng, bakkar og steikarpönnur hindri ekki snúning úðunararmanna.
Setjið alla litla hluti í hnífaparakörfuna. Mjög óhreint leirtau og pönnur skal setja í neðri grindina vegna þess að þar er styrkur vatnsúðans meiri og þvotturinn öflugri.
Þegar hlaðið hefur verið í tækið skal ganga úr skugga um að úðunararmarnir geti snúist hindrunarlaust.

Efri grind
Raðið fingurgóma og léttu leirtaui: Glösum, bollum, undirskálum, lágum salatskálum.
(Dæmi um hleðslu fyrir efri grind)
Hæð efri grindar stillt
Hægt er að stilla hæð efri grindar: Há staða til að setja fyrirferðarmikið leirtau í neðri grindina og til að forðast árekstur við hluti setta í neðri grind, og lág staða til að nýta sem best uppréttanlegu stöðurnar með því að skapa pláss fyrir ofan. Efri grindin er útbúin með hæðarstilli efri grindar (sjá mynd), lyftið henni einfaldlega upp með því að halda í hliðar grindarinnar, án þess að ýta á handföngin, þegar grindin er orðin stöðug þá er hún í efri stöðu sinni.
Til að fara til baka í neðri stöðu skal ýta á handföng á hliðum grindarinnar og færa körfuna niður.
Við mælum sterklega með því að hæð grindarinnar sé ekki stillt þegar hún er hlaðin.
ALDREI skal lyfta eða lækka körfuna einungis á annarri hliðinni.





Fellispjöld með stillanlegum staðsetningum
Fellispjöldin á hliðunum er hægt að fella niður eða setja upp til að ná sem bestri röðun fyrir leirtau í grindina.
Setja má vínglös á öruggan hátt í fellispjöldin með því að setja stilk hvers gláss í samsvarandi rauf.

Eftir gerðinni:
- Til að setja spjaldið upp þarf að renna því upp og snúa eða losa það úr smellunum og toga niður. Til að fella niður spjaldið þarf að snúa því, renna spjaldinu niður eða toga það upp og festa spjaldið við smellurnar.

Neðri grind
Fyrir potta, lok, diska, salatskálar, hnífapör o.s.frv. Stóra diska og lík er tilvalið að setja til hliðanna til að forðast að trufla úðunararminn.
Keyrið uppþvotakerfi með háu hitastigi a.m.k. einu sinni í mánuði til að forðast að komi vond lykt og botnfall sem getur safnast í uppþvottavélina. Notið teskeið af þvottaefni og keyrið kerfið með vélina tóma til að hreinsa hana.
RÁÐLEGGINGAR UM ORKUSPARNAÐ
- Þegar uppþvottavél heimilisins er notuð samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans þá eyðir það venjulega minni orku og vatni að þvo borðbúnaðinn í uppþvottavél en ef hann er handþveginn.
- Til að notkun uppþvottavélarinnar sé sem hagkvæmust er ráðlagt að hefja þvottalotuna þegar uppþvottavélin er fullhlaðin. Það stuðlar að orku- og vatnssparnaði á hlaði í uppþvottavél heimilisins á því marki sem framleiðandinn gefur upp. Upplýsingar um rétta hleðslu borðbúnaðar er hægt að finna í kaflanum um hleðslu. Ef sett er á rangan hátt í uppþvottavélina eða of mikið sett í hana getur það aukið orkunotkun (eins og vatns, orku og tíma, auk þess sem hávaðinn verður meiri) og árangur þvotts og þurrkunar verður minni.
- Handvirk forhreinsun borðbúnaðar leiðir til aukinnar vatns- og orkunotkunar og er ekki mælt með henni.
Dagleg notkun
1. VATNSTENGING ATHUGUD
Athugið að uppþvottavélin sé tengd við vatnsinntakið og að skrúfa sé frá krananum.
Bætt við auknu leirtaui
Án þess að slökkva á vélinni, opnið hurðina (LED-ljósið á RESA/Hleð byrjar að blikka) (sýnið aðgát vegna HEITRAR gufu!) og setjið leirtauið inn í uppþvottavélina. Ýtið á RESA/Hleð hnappinn og lokið hurðinni innan 4 sek., lotan mun halda áfram frá þeim punkti sem hún var trufluð.
Truflanir sem verða fyrir slysni
Ef hurðin er opnuð meðan þvottalota er í gangi, eða ef það verður rafmagnslaust, þá er gert hlé á þvottalotunni. Ýtið á RESA/Hleð hnappinn og lokið hurðinni innan 4 sek., lotan mun halda áfram frá þeim punkti sem hún var trufluð.
Tafla yfir þvottakerfi
| \(BVvottakerfi\) | \(BVurrkunar fasi\) | Natural Dry | Tímalengd\(BVvottakerfis\)(klst:mín)*) | Vatnsnotkun(lítrar/lotu) | Orkunotkun(kWh/lotu) |
| 1 Spar 50° 4:50 9,5 0,54 ECO | ✓ | ✓ | | | |
| 2 Hrað\(BVvottur 40' 45" -0.00000,70\) | | ✓ | | | |
| 3 Öflugur 65° 2:50 17,0 1,50 | ✓ | ✓ | | | |
| 4 Hrað\(BVvottur og -purrkun\)50° 1:25✓1,51,10 |
| 5 Gler45° 1:4012,0✓,20 | ✓ | | | | |
Gögn SPAR þvottakerfis eru mæld við aðstæður rannsóknarstofu samræmi við evrópskan staðal EN 60436:2020.
Athugasem fyrir prófunarrannsóknarstofur: Fyrir upplýsingar um samþættar EN prófunaraðstæður skal senda tölvupóst á eftirfarandi netfang: dw_test_support@europeanappliances.com
Formeðhöndlun leirtaus er ekki nauðsynleg fyrir nein af þvottakerfunum.
*) Uppgefin gildi fyrir þvottakerfi önnur en SPAR þvottakerfi eru aðeins til vísbendingar. Raunverulegur tími getur verið breytilegur eftir mörgum þáttum eins og hitastigi og þrýstingi vatnsins sem kemur inn, herbergishitastigi, magni þvottaefnis, magni og tegund hleðslu, jafnvægi hleðslunnar, hvort aðalegir valkostir eru valdir og kvörðun skynjara.
- SPAR - Spar þvottakerfið hentar til að hreinsa borðbúnað með venjulegum óhreinindum, og fyrir þá notkun er það skilvirkasta þvottakerfið hvað varðar orku- og vatnsnotkun, og það er notað til að meta samhæfi við ESB löggjöf um vistvæna hönnun.
- HRADPVOTTUR 40' - Pvottakerfi fyrir takmarkað magn af leirtaui með venjulegum óhreinindum. Tryggir hámarksárangur við hreinsun á styttri tíma.
- ÖFLUGUR - Pvottakerfi sem mælt er með fyrir mjög óhreint leirtau, hentar sérstaklega vel fyrir pönnur og potta (ekki fyrir viðkvæma hluti).
- HRADVOTUR OG -ÞURRKUN - Venjulega óhreint leirtau. Lota fyrir daglega notkun sem tryggir hámarksárangur við hreinsun og þurrkun á styttri tíma.
- GLER - Pvottakerfi fyrir viðkvæma hluti sem eru viðkvæmari fyrir háu hitastigi, til dæmis glös og dót.
NATURALDRY
Hurðaopnunarkerfi NaturalDry er blástursþurrkunarkerfi sem opnar hurðina sjálfkrafa í/eftir þurrkunarfasa til að tryggja framúrskarandi árangur við þurrkun á hverjum degi. Hurðin opnast við það hitastig sem er öruggt fyrir húsgögn eldhússins, því verður hurðin ekki opnuð þegar kveikt er á TURBO valkostinum. Sem viðbót við gufuvörn er sérhönnuð varnarfilma bætt við uppþvottavélina. Til að sjá hvernig á að setja varnarfilmuna á skal sjá (SAMSETNINGARLEIÐBEININGAR).
| HURDAROPUN |
| Spar 50° | 165 min. |
| Hraðþvottur 40' 45° | endir lotu |
| Öflugur 65° | 165 min. |
| Hraðþvottur og -purrkun 50° | 80 min. |
| Gler 45° | 95 min. |
Hreinsun og viðhald
ATHUGIÐ: Takið tækið alltaf úr sambandi þegar það er þrifið og þegar framkvæmd er viðhaldsvinna. Notið ekki eldfima vökva til að þrífa vélina.
Uppþvottavélin þrifin
Hægt er að fjarlægja alla bletti innan úr tækinu með þvottaklút sem hefur verið vættur með vatni og smávegis ediki.
Hægt er að þrífa ytra yfirborð vélarinnar og stjórnborð með því að nota mjúkan klút sem hefur verið vættur með vatni. Notið ekki ætandi eða slípandi hreinsiefni.

Komið í veg fyrir vonda lykt
Hafið hurð tækisins alltaf smávegis opna til að hindra að raki myndist og festist inni í vélinni. Hreinsið reglulega þéttingarnar kringum hurðina og þvottaefnisskammtarana með því að nota rök svamp. Þetta kemur í veg fyrir að matur sitji fastur í þéttingunum, sem er meginástæðan fyrir því að vond lykt myndast.
Vatnsinntaksslangan athuguð
Athugið reglulega hvort vart sé við brot eða sprungu á inntaksslöngunni. Ef hún er skemmd skal skipta henni út með nýrri slöngu sem fánleg er hjá viðhaldsþjónustu okkar eða sérhæfðum söluaðila.

Ef inntaksslangan er gerð úr gerviefni skal athuga reglulega hvort litur breytist og verði sterkari á ákveðnum stöðum. Ef svo er þá gæti slangan verið að fara að leka og ætti að skipta henni út.
Vatnsinntaksslangan hreinsuð
Ef vatnsslöngurnar eru nýjar eða hafa ekki verið notaðar lengri tíma skal láta vatn renna til að tryggja að þær séu hreinar og lausar við óhreinindi áður en nauðsynlegar tengingar eru framkvæmdar. Ef þessar varúðarráðstafanir eru ekki gerðar þá gæti vatnsinntak stíflast og skemmt uppþvottavélina.
Síusamstæðan hreinsuð
Hreinsið síusamstæðuna reglulega þannig að síurnar stíflist ekki og frárennslisvatn renni burt á réttan hátt.
Ef uppþvottavélin er notuð með stíflaðar síur eða aðskotahluti innan í sýnarkerfi eða úðunarörmum, þá getur það leitt til gangtruflana og verri árangurs, hættu við vinnslu eða meiri auðlindanotkunar.
Síusamstæðan samanstendur af þremur síum sem fjarlægja matarleifar úr þvottavatninu og endurnýta síðan vatnið.
Ekki má nota uppþvottavélina án síananna eða ef sían er laus.
A.m.k. einu sinni í mánuði eða eftir 30 lotur skal athuga síusamstæðuna og ef nauðsynlegt er þrífa hana vandlega undir rennandi vatni, með þvottabursta sem er ekki úr málmi og fylgja leiðbeiningunum að neðan:
- Snúið síuvalningnum A rangsælis og togið hann út (mynd 1).
- Fjarlægið skálsíuna B með því að beita smávegis þrýstingi á hliðarspeldin (mynd 2).
- Rennið út skífusíunni úr ryðfríu stáli C (mynd 3).
- Í þeim tilfellum sem vart er við aðskotahluti (eins og brotið gler, postulín, bein, ávaxtafræ o.s.frv.) skal fjarlægja þá varlega.
- Skoið gildruna og fjarlægið allar matarleifar. FJARLÆGIÐ ALDREI hlíf þvottadælunnar (svartur hlutur) (mynd 4).


Þegar sían hefur verið hreinsuð skal setja síusamstæðuna aftur í og festa hana í stað á réttan hátt; þetta er nauðsynlegt til að uppþvottavélin haldi áfram að virka á hagkvæman hátt.
Hreinsið úðunararmana
Stundum geta matarleifar myndað skorpu á úðunarörmunum og hindrað götin sem vatnið er leitt út um. Því er mælt með að armarnir séu athugaðir af og til og hreinsaðir með litlum bursta sem er ekki úr málmi.

Til að fjarlægja efri úðunararminn skal snúa læsihringnum úr plasti réttsælis. Efri úðunararmurinn á að vera settur þannig að hliðin sem hefur fleiri göt snúi upp á við.
Fjarlægja má neðri úðunararminn með því að toga hann upp á við og snúa rangsælis.

Hvað á að gera ef...
| Uppþvottávelin virkar ekki rétt, athugið hvort hægt sé að leysa vandamálið með bví að fara i gegnum eftirfarandi lista. Fyir aðr var villur éða vandamál skal hafa samband við viðurkennda viðhaldspjónustu, sem finna má smskiptaupplýsingar fyrir ábyrgöarbaeklingnum. Varahlutir verða fáanlegir i timabil sem nær annðhvort 7 eða 10 árum, samkvæmt tilteknum reglugerðarkröfum. Varahlutina má finna á: www.ikea.com |
| Vandamál... | Mögulegar ástæður... Lausnir... | |
| Kveikt er á gaumsljói salts | Saltgeymirinn er tómur. (Gaumlósið fyrir salt getur haldist kveikt i nokkrar pvottalotur eftir að fyllt hefur verið á pað). | Fyllö Ía geyminn með salti (fyrir frekari upplýsinjar - sjá siou 170). Stilla vatnshörku - sjá toflu, sioa 170. |
| Kveikt er á gaumlósi skolefnis | Skammtari skolefnis er tómur. (Gaumlósið fyrir skolefni getur haldist kveikt i nokkrar pvottalotur eftir að fyllt hefur verið á pað). | Fyllö Ía skammtarann með skolefni (fyrir frekari upplýsinjar - sjá siou 170). |
| Uppvottavélin fer ekki i gang eða bregst ekki við skipunum. | Tækinu hefur ekki verið rétt stungi ñi sam-band. | Setjið klónna i innstunguna. |
| Rafmagnsleysi. | Af òryggisástæðum endurræsist uppqvottavélin ekki själfkrafa begar rafmagn kemst aftur á. Opnið hurð uppqvottavelärinn, ytið á RÉSA/Hle hnappinn og lokið hurðinn innan 4 sekündna. |
| Hurð uppqvottavélarinnar er ekki lokuð. NATURALDRY pinninn er ekki yttur inn. | Ytið ákveði ëhøina par til „smellurinn" heyrist. |
| Lota er stöðvuð með pví að hurð er opnu ñi meira en 4 sekündur. | Ytið á RÉSA/Hle og lokið hurðinn innan 4 sekündna. |
| Hún bregst ekki við skipunum. | Slökkvi ëa tækinu með pví að yta á „Slokkva/kveikja" hnappinn, kveiki ëftr a pví eftir u.p.b.aina minútu og endurræsɪð pvottak-erfið. Ef vandamálið er viðvarandi skal tak taeki ñr sambandi i 1 minútu og setja pað svatr i samband. |
| Uppvottavélin tæmir sig ekki. | Pvottalotunni er ekki loki ñi enn. Bidið par til b vovtalotunni lykur. | |
| Frarennslisslangan er bogin. Athugið a frarennslisslangan sé ekki bogin (sjá UPPSETNING). | |
| Frarennslisrörið er stífla. Hreinsi frarennsl | sröirð. |
| Sian er stíflu ñi matarleifum. Hreinsi stífluna (sjá SÍUSAMSTÁEDAN HREINSUB). | |
| Uppvottavé-lin framkallar ohóflega mikinn hávada. | Diskarnir glamra hver utan i annan Staösetjö | leirtauö ë réttan hätt (sjá HLADID ë GRINDURNAR). |
| Óhóflega mikil froða hefur myndast. | Ekki hefur verið sett rétt magn af pvottaefni eða pað er ekki gert fyrir uppqvottavélar (sjá Fyllt Å PVOTTAENISSKAMMTARANN). Endurræsɪð nuverandi lotu með pví að slokkva a uppqvottavelinni, kveiki sioan aftur á henni, veljið nytt pvottakerfi, ytið á RÉSA/Hle og lokið hurðinn innan 4 sekündna. Vinsamlegast bætið ekki við neinu pvottefni. |
| Leirtauö er ekki hreint. | Leirtauinu var ekki ràða ë réttan hätt. Raðö | leirtauinu ë réttan hätt (sjá HLADID ë GRINDURNAR). |
| Üäunarmarnir snúst ekki Óhindra ë hel-dur rekast i leirtauö. | Raðö leirtauinu ë réttan hätt (sjá HLADID ë GRINDURNAR). |
| pvotturinn er of ægur og/eða virkni pvottaefnisins er litil. | Veljið viöeigandi pvottakerfi (sjá TAFLA YFIR PVOTTAKERFI). |
| Óhóflega mikil froða hefur myndast. | Ekki hefur verið sett rétt magn af pvottaefni eða pað er ekki gert fyrir uppqvottavélar (sjá Fyllt Å PVOTTAENISSKAMMTARANN). |
| Lokið á skolefinu hefur ekki verið sett nógu vel á. | Verið viss um að lokið á skolefnisskammtaranum sé lokað. |
| Sian er ohrein eða stíflüð. Hreinsi síusamstæðouna (sjá HREINSUN OG VIDHALD). | |
| pað er ekkert salt. Fyllö ë saltgeyminn (sjá FyllT Á SALTGEYMNN). | |
| Uppvottavélin lýkur bvottalotunni of smema. | Frarennslisslangan er of lágt staösett eða sagast inn i fráveitukeri fi himilisins. | Athugið hvort endi frarennslisslängunnar sé settur i rétta hæð (sjá UPPSETNING). Athugið með sog inn i fráveitukeri fi himilisins, setjiðupp loftþrystiloka ef pað er nauösynegt. |
| Loft i vatsinntaki. | Athugið með leka i vatsinntakinu eða annö sem getur hleypt loftiinn. |
| Uppþvottavélin fyllir ekki meðvatninu.Öll LED-ljósblikka hratt | Ekkertvatn er ivatnsinntakinu eða lokað erfyrir kranann. | Gangið ÚR skugga um aðvatn sé ivatnsinntakinu eða skrúfað sé frá krananum. |
| Inntaksslangan er bogin. | Gangið ÚR skugga um að inntaksslangan sé ekki boginn (sjá UPPSETNING), stillð upþvottavélina aftur og endurræsið. |
| Sigtð ivatnsinntakssløngunni er stíflåð;bað er nauðsynlegt að hreinsa bað | Pegar βetta hefur verið sannreynt og hreinsa, slókkvið og kveikið á upþvottavélinn og endurræsð nýtt pvottakerfi. |
| Leirtauð hefur ekki veri ß bur-kað. | Valð pvottakerfi hefur engan ßurrkunar-fasa. | Sannreynið i toflunni yfir pvottakerfi hvort valido pvottakerfi hafi burrkunarfasa. |
| Skolefni hefur klárast eða skammturinn er ekki naegur. | Bætið við skolefni eða stillið á meiri skammtastaerð (sjá FYLLT Á SKOLEFNISSKAMMTARANN). |
| Leirtauð er gert uR viðloðunarfrú efni eða plastl. | Pað er eðilegt aðvatnsdropar séu til staðar (sjá RÁDLEGGINAR). |
| Vart er við kalkútfellingareða hvīta filmu á diskum og glösum. | Magn salts er of lǐtið. Fyllð á saltgeyminn (sjá FYLLT Á SALTGEYMINN). |
| Stillingvatnshörku er ekki naegileg. Aukið gildin (sjá TAFLA YFIR VATNSHÖRKU). |
| Lok saltgeymisins er ekki naegilega vel lokað. | Athugið lokið á saltgeyminum. |
| Skolefni hefur klárast eða skammturinn dugar ekki. | Bætið við skolefni eða stillið á meiri skammtastærð. |
| Diskar og glös eru með bläa slikju eða bláar rákir. | Sett hefur verið Óhóflega af skolefni. Stillið skömmturhràann til að minna gildin. |
Þjónusta og viðhald
Ef bilunin er viðvarandi eftir að ofangreindar athuganir hafa verið gerðar, þá skal aftengja frá rafmagni og skrúfa fyrir vatnskranann. Hafðu samband við viðhaldsþjónustu (sjá ábyrgðarskírteini).
Áður en haft er samband við viðhaldsþjónustu okkar skal punkta eftirfarandi niður:
- lýsingu á biluninni,
- tegund og gerð tækisins,
- þjónustukóðann (númerið sem kemur fram á límdu merkiplötu) innan á hurðinni hægra megin:
ÞJÓNUSTA
0000 000 0000

Tæknilegar upplýsingar
| Mæliivíddir vörun-
nar (mm) | Hæð mm 820 | | |
| Breidd mm 598 | | |
| Dýpt mm 555 | | |
| Afkost | Rafspenna V 220/240 | | |
| Tíðni Hz 50 | | |
| Orkunyttingarflokkur A | | |
| Stuðull fyrir frammistöðu við hreinsun 1,121 | | |
| Stuðull fyrir frammistöðu við purrkun 1,061 | | |
| Vatnsinntaksprýstingur, hám. | Bör | 10 |
| Vatnsinntaksprýstingur, lágm. | Bör | 0,5 |
| Orkunotkun | kWh/100 lotur | 54 |
| Vatnsinntak, hám. hitastig vatns | °C | 60 |
| Fjöldi borðbúnāða | | 14 |
| Orkunotkun i seinkaðri ræsingu | W | 4 |
| Orkunotkun i reliðuham | W | 0,5 |
| Vatnsnotkun | I/lotu | 9,5 |
| Hávaðastig | dB(A) re 1 pW | 42 |
| Hávaðaflokkur | | B |
Umhverfismál
Förgun umbúðaefnis
Umbúðaefni er 100% endurvinnanlegt og er merkt með endurvinnslutákninu. Mismunandi hlutum umbúðanna skal farga á ábyrgan hátt og í samræmi við staðbundnar reglugerðir sem eiga við um förgun úrgangs.
Förgun notaðra heimilistækja
Þetta raftæki er framleitt úr endurvinnanlegum og endurnýtanlegum efnum. Fargaðu því í samræmi við gildandi reglugerðir um förgun úrgangs. Nánari upplýsingar um meðferð, endurnýjun og endurvinnslu heimilistækja skal fá hjá staðbundnum yfirvöldum, sorphirðustöð eða versluninni sem tækið var keypt hjá. Þetta tæki er merkt í samræmi við evrópska tilskipun 2012/19/ESB um raf- og rafeindatækjaúrgang (WEEE) og reglugerð um raf- og rafeindatækjaúrgang frá 2013 (með áorðnum breytingum). Með því að tryggja rétta förgun tækisins kemur þú í veg fyrir neikvæð áhrif þess á umhverfið og heilsu almennings.
Táknið á vörunni eða meðfylgjandi gögnum gefur til kynna að það skuli ekki meðhöndla sem heimilisúrgang heldur að fara þurfi með það á viðeigandi sorphirðustöð til endurvinnslu á raftækjum og rafeindabúnaði.
Leiðbeiningar um orkusparnað
SPAR þvottakerfið hentar til að hreinsa borðbúnað með venjulegum óhreinindum, og fyrir þá notkun er það skilvirkasta þvottakerfið hvað varðar orku- og vatnsnotkun, og það er notað til að meta samhæfi við ESB löggjöf um vistvæna hönnun. Það stuðlar að orku- og vatssparnaði í hlaði uppþvottavél heimilisins á því marki sem framleiðandinn gefur upp. Handvirk forhreinsun borðbúnaðar leiðir til aukinnar vatns- og orkunotkunar og er ekki mælt með henni. Þvottur á borðbúnaði í uppþvottavél heimilisins eyðir venjulega minni orku og vatni í notkunarfasanum en handuppþvottur ef vélin er notuð samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans.
Uppsetning
ATHUGIÐ: Ef einhvern tíma þarf að flytja tækið skal hafa það í uppréttri stöðu; ef það er algjörlega nauðsynlegt má halla henni á bakið.
Vatnsinntak tengt
Tenging vatnsinntaksins fyrir uppsetningu ætti aðeins að vera framkvæmd af hæfum tæknimanni.
Slöngur vatnsinntaks og -úttaks gætu verið staðsettar til hægri eða vinstri til að ná sem bestri uppsetningu.
Verið varkár um að uppþvottavélin beygi hvorki né kremji slöngurnar.
Tenging vatnsinntaksslöngunnar
Látið vatnið renna þar til það er alveg hreint. Skrúfið inntaksslönguna þétt á staðinn og kveikið á krananum. Ef inntaksslangan er ekki nógu löng skal hafa samband við sérhæfða verslun eða viðurkenndan tæknimann.
Vatnsþrýstingurinn verður að vera innan gildanna sem gefin eru til kynna í töflunni yfir tæknileg gögn - annars gæti uppþvottavélin ekki virkað rétt.
Upplýsingar fyrir tengingu vatnsinntaksslöngu:
| Vatnsinntak kalt eöa heitt (häm. 60°C) |
| Vatnsinntak 3/4" | |
| Aflvatnsprystings | 0,05 ÷ 1 MPa (0,5 ÷ 10 bör)
7,25 - 145 psi |
Tenging úttaksslöngunnar
Tengið úttaksslönguna við frárennslisrör eða á þvermál að lágmarki 2 cm A.


Tenging úttaksslöngu verður að vera í hæð sem er á bilinu frá 40 til 80 cm frá gólfinu eða yfirborðinu sem uppþvottavélin hvílir á. Áður en vatnsúttaksslangan er tengd við frárennslisrör vaskins skal fjarlægja plasttappann B.
Raftengingar
VIÐVÖRUN: Undir engum kringumstæðum ætti að skera vatnsinntaksslönguna því hún inniheldur spennuhafa rafhluta.
Áður en klóin er sett í rafmagnsinnstunguna skal ganga úr skugga um að:
- Innstungan sé jarðtengd og í samræmi við gildandi reglur;
- Innstungan geti þolað hámarksálag tækisins eins og sýnt er á merkiplötunni innan á hurðina (sjá VÖRULÝSINGU).
- Rafveituspennan falli innan þeirra marka sem gefin eru til kynna á merkiplötunni innan í hurðinni.
- Innstungan sé samhæfð við kló tækisins.
Ef þetta er ekki tilfelli skal einungis viðurkenndur þjónustuaðili skipta um vottaða rafmagnssnúruna með réttri kló sem á við þetta tæki (sjá ÞJÓNUSTA OG VIÐHALD). Ekki nota framlengingarsnúrur eða fjöltengi eða óvottaðar rafmagnssnúrur með tenglum. Rafmagnssnúran og rafmagnsinnstungan ættu að vera auðveldlega aðgengilegar eftir að tæki hefur verið sett upp.
Snúran á ekki að vera beygð eða undir þrýstingi.
Ef rafmagnssnúran er skemmd skal láta skipta henni út hjá framleiðandanum eða viðurkenndri þjónustu hans til að forðast alla hættu.
Fyrirtæki er ekki ábyrgt fyrir neinum atvikum sem verða, ef þessum reglum hefur ekki verið fylgt.
| Breidd 598 mm | |
| Hæð 820 mm | |
| Dýpt 555 mm | |
| Rúmtak 14 hefðbundnir borðbúnaðir |
IKEA ÁBYRGD
Þjónustuaðili sem tilgreindur er af IKEA mun skoða vöruna og ákveða, að eigin undirlagi, hvort hún falli undir þessa ábyrgð. Ef hún fellur undir ábyrgð þá mun þjónustuaðili IKEA eða viðurkenndur samstarfsaðili, í gegnum eigin þjónustustarfsemi, að eigin undirlagi, annað hvort gera við hina gölluðu vöru eða skipta henni út með eins eða sambærilegri vöru.
Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?
- Eðlilegt slit.
- Skemmdir vegna vísvitandi vanrækslu, skemmdir sem verða vegna þess að ekki er farið eftir notkunarleiðbeiningum, rangrar uppsetningar eða tengingar við rafspennu, skemmdir vegna efna- og rafefnahvarfa, ryðs, tæringar eða vatnstjóns að meðtöldu, en ekki takmarkað við, skemmdir vegna óhóflegs magns kalkútfellinga í vatnsinntakinu, skemmdir vegna afbrigðilegra umhverfisskilyrða.
- Rekstrarvörur þ.m.t. rafhöfuð og perur.
- Óvirkir og útlitslegir hlutir sem hafa ekki áhrif á venjulega notkun tækisins, þ.m.t. allar rispur og hugsanlegur litamunur. Slysaskemmdir af völdum utanaðkomandi hluta eða efna og hreinsunar eða losunar stíflu síu, frárennslisbúnaðar eða sápuskúfa.
- Skemmdir á eftirfarandi hlutum: Keramikgleri, aukabúnaði, körfum fyrir leirtau og hnífapör, fæðis- og frárennslisrörum, þéttingum, perum og peruhlífum, síum, hnöppum, hylkjum og hluta af hylkjum. Nema sannað hafi verið að slíkar skemmdir séu af völdum framleiðslugalla.
- Tilfelli þar sem enginn galli fannst við heimsókn tæknimanns. Viðgerðir sem ekki eru framkvæmdar af þeim þjónustuaðilum sem við tilgreinum og/eða viðurkenndum samstarfsaðilum með þjónustusamningi eða þegar notaðir eru varahlutir sem eru ekki af upprunalegri gerð. Viðgerðir vegna uppsetningar sem er gölluð eða ekki samkvæmt lýsingu.
- Notkun tækisins í óheimilislegu umhverfi eins og notkun í atvinnuskyni.
- Flutningsskemmdir. Ef viðskiptavinur flytur vöruna heim til sín eða annars heimilisfangs þá er IKEA ekki ábyrgt fyrir neinum skemmdum sem gætu orðið við flutning. Hins vegar ef IKEA afhendir vöruna til heimilisfangs viðskiptavinarins þá verða skemmdir sem verða við þann flutning bættar af IKEA. Kostnaður við að framkvæma upphaflega uppsetningu IKEA tækisins. Hins vegar ef þjónustuaðili tilgreindur af IKEA eða viðurkenndur samstarfsaðili hans gerir við eða skiptir út tæki samkvæmt þessari ábyrgð, þá skal hinn tilgreindi þjónustuaðili eða viðurkenndur samstarfsaðili hans
enduruppsetja viðgert tæki eða setja upp annað í staðinn ef þarf.
- Þetta gildir ekki á landsvísu, viðskiptavinir skulu hafa samband við tilgreinda IKEA viðhaldsþjónustu á staðnum eða tilgreindan þjónustuaðila varðandi frekari upplýsingar.
(aðeins fyrir Bretland)
Þessar takmarkanir gilda ekki um gallalausa vinnu sem framkvæmd er af hæfum sérfræðingi með upprunalegum varahlutum okkar í þeim tilgangi að aðlaga tæki að tæknilegum öryggiskröfum annars ESB lands.
Hvernig landslög gilda
IKEA ábyrgðin veitir sérstök lagagæði sem ná yfir eða eru víðtækari en allar staðbundnar kröfur laga. Þessi skilyrði takmarka hins vegar ekki á neinn hátt réttindi neytandans sem lýst er í staðbundinni löggjöf.
Gildissvæði
Fyrir tæki sem eru keypt í ESB landi og flutt til annars ESB lands þá verður þjónustan veitt innan ramma ábyrgðarskilyrðanna sem eiga við í nýja landinu.
Skylda til að framkvæma þjónustu innan ramma ábyrgðarinnar er aðeins til staðar ef tækið er í samræmi við og uppsett samkvæmt:
- tækniforskrift sem gildir í landinu þar sem ábyrgðarkrafan er gerð;
- samsetningarleiðbeiningum og öryggisupplýsingum notendahandbókar.
Tilgreind VIÐHALDSÞJÓNUSTA fyrir IKEA tæki
Vinsamlegast hiki ekki við að hafa samband við viðurkennda þjónustumiðstöð sem IKEA tilgreinir til að:
- gera þjónustubeiðni samkvæmt þessari ábyrgð;
- biða um skýringar vegna uppsetningar IKEA tækisins í þar til gerða IKEA eldhúsinnréttingu;
- biða um skýringar á virkni IKEA tækja.
Vinsamlegast lesið vandlega leiðbeiningar um samsetningu og/eða notendahandbók áður en haft er samband við okkur svo tryggt sé að við veitum bestu þjónustu.
Hvernig ná skal fram þjónustu

Heildarlista yfir tilkvadda viðhaldsþjónustuaðila IKEA má finna á síðustu síðu handbókarinnar ásamt viðeigandi símanúmerum.
Til að geta veitt fljótari þjónustu mælum við með notkun sérstaks símanúmers sem skráð er á þessa handbók. Notið alltaf númerin sem skráð eru í bæklingi viðkomandi tækis sem aðstoðar er þörf vegna. Vinsamlegast vísið alltaf til IKEA vörunúmersins (8 tölustafa kóði) og 12 tölustafa þjónustunúmersins sem eru til staðar á merkimiða tækisins.
GEYMIÐ ÞESSA SÖLUNOTU!
Hún er sönnunin fyrir kaupunum og er nauðsynleg til þess að ábyrgðin gildi. Á sölunótunni kemur einnig fram IKEA nafn og vörunúmer (8 tölustafa kóði) fyrir hvert tæki sem þú hefur keypt.