H-BW 700/1 - Scie Herkules - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis H-BW 700/1 Herkules á PDF sniði.

Herkules H-BW 700/1 - Saga
📄 172 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Herkules H-BW 700/1 - page 121
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um H-BW 700/1 Herkules

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Scie á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína H-BW 700/1 - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. H-BW 700/1 vörumerkisins Herkules.

NOTENDAHANDBÓK H-BW 700/1 Herkules

Gripó ekki í sagarblað sem snýst.

Herkules H-BW 700/1 - 1

Athugaðu rétta snúningsátt mótors!

Breyttu snúningsátt mótors með því að fasaskipta í rafmagnsklónni ef snúningsáttin er röng.

Hættulegt!

Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða. Lestu því þessar notendaleiðbeiningar / öryggisleiðbeiningar vandlega. Geymið allar leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til þeirra ef þörf er á. Látið notendaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem ekki er nefnd í þessum notendaleiðbeiningum eða öryggisleiðbeiningum.

Öll önnur notkun sem fer út fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins. Eingöngu má

nota leyfileg sagarblöð í þetta tæki (HM- eða CV-sagarblöð). Notkun á HSS-sagarblöðum og skurðarskífum er stranglega bönnuð. Hluti af réttri notkun þessa tækis er einnig að fara eftir öryggisleiðbeiningunum,

samsetningarleiðbeiningunum og tilmælum í notendaleiðbeiningunum.

Persónur sem nota þetta tæki og hirða um það verða að hafa að sér þessar upplýsingar og mögulegar hættur. Auk þess verður einnig að fara eftir gildandi reglum og lögum sem varða slysahættu. Fara verður eftir gildandi reglum og lögum sem varða vinnuöryggi og vinnuheilsu.

Ef framkvæmdar eru breytingar á þessu tæki fellur öll ábyrgð framleiðanda úr gildi, þar á meðal ábyrgð varðandi slys eða skaða.

Þrátt fyrir rétta notkun er ekki hægt að útiloka fullkomlega allar hættur. Vegna uppbyggingar þessa tækis getur ávallt verið hætta á eftirfarandi atriðum:

Snerting við sagarblað á því svæði sem sagarblaðinu er ekki hlíft. Að grípa sé sagarblaðið (hætta skurðarmeiddum) Bakslag verkstykki og hlutum verkstykkis. Brot á sagarblaði. - Hlutar af gölluðu eða skemmtu sagarblaði geti kastast frá tækinu. Heyrnarskaði ef heyrnarhlífar eru ekki notaðar.

Þetta tæki má einungis nota í þau verk sem það er framleitt fyrir. Öll önnur notkun sem fer út yfir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins.

Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru ekki framleidd til atvinnu né iðnaðarnota. Við tökum enga ábyrgð á tækinu, sé það notað í öðru, í atvinnuskyni eða í tilgangi sem á einhvern hátt jafnast við slíka notkun.

IS

4. Mikilvæg tilmæli

Hætta!

Lestu vinsamlegast allar notendaleiðbeiningarnar vandlega og farðu eftir þeim tilmælum sem þar eru skráð. Lærðu að nota tækið örugglega með notendaleiðbeiningunum og öryggisleiðbeiningunum.

Öryggisleiðbeiningar

Varúð: Ef rafmagnsverkfæri eru tekin til notkunar, verður að fara eftir grundvallarreglum varðandi slysavarnir til þess að takmarka hættu á eldi, raflosti og meiðslum á fólki. Farðu eftir þessum leiðbeiningum áður en saga er tekin til notkunar og einnig á meðan hún er í notkun. Geymdu þessar öryggisleiðbeiningar vel. Hlífðu rafmagnsverkfærin við höggum! Forðastu að snerta jarðtengda hluti. Geymdu ónotuð tæki á þurrum, læstum stað þar sem börn ná ekki til. Haltu verkfærum beittum og hreinum til að tryggja betri og öruggari vinnu. Yfirfarðu reglulega rafmagnsleiðslu tækisins og láttu viðurkenndan fagaðila skipta um hana ef hún hefur orðið fyrir skemmdum. Yfirfarðu reglulega framlengingarleiðslu og skiptu um þær ef þær hafa orðið fyrir skemmdum. Notaðu einungis framlengingarleiðslur utandyra sem ætlaðar eru til þess og ef þær bera stimpil sem gefur það til kynna. Hafðu hugann við það sem þú ert að gera. Vinnðu vinnuna skipulega. Notaðu ekki verkfæri ef notandi á erfitt með einbeitingu. Notaðu ekki verkfæri sem ekki er hægt að gangsetja eða slökkva með rofa þess. Varúð! Notkun á utanaðkomandi hlutum og aukahlutum getur þýtt slysahættu fyrir notanda. Taktu tækið alltaf úr sambandi við straum áður en það er stillt eða hirt er um það. Láttu alla sem vinna með þessu tæki fá öryggisleiðbeiningarnar. Varúð! Á meðan sagarblaðið snýst er slysahætta á höndum og fingrum. Þetta tæki er búið öryggi sem kemur í veg fyrir að tækið hreyfist sjálfkrafa eftir spennufall. Gakktu úr skugga um að spenna rafrásarinnar sem tækið er tengt við sé sú sama og sú sem gefin er upp á tækisskiltinu. Ef nauðsynlegt er að nota framlengingarleiðslu verður að ganga úr skugga um að þvermál hennar sé nægjanlega stórt fyrir straumnotkun sagarinnar. Lágmarks þvermál er 1,5 mm², ef leiðslan er 20 m eða lengri er það 2,5 mm².

Notið framlengingarleiðslur einungis í útblásturslausu ástandi. Yfirfarið rafmagnsleiðsluna. Notið ekki skemmdar eða bilaðar rafmagnsleiðslur. Notið ekki rafmagnsleiðslu tækisins til þess að toga tækið úr sambandi við straum. Hlífið rafmagnsleiðslunni við hita, olíu og hvössum brúnum. Setjið sogið ekki út á meðan rignir og notið tækið ekki í röku eða blautu umhverfi. Gangið úr skugga um að lýsing vinnusvæðisins sé nægilega góð. Notið ekki rafmagnsverkfæri nærri eldfimum vökva eða gasi. Notið réttan vinnuklæðnað! Viður klæðnaður og skartgripir geta festst í sagarblaði sem snýst. Notið gripandi skóbúnað við vinnu utandyra. Notið hárnet ef notandi er með sítt hár. Forðist óeðlilega líkamsstöðu við vinnu. Notandi þessa tækis verður að vera að minnsta kosti 16 ára gamall. Gangið úr skugga um að börn séu ekki nærri verkfæri sem tengt er við straum. Haldið vinnusvæðinu lausu við viðarbúta og aðra umlyggjandi hluti. Óhreint vinnusvæði getur orsakað slys. Látið ókomið fólk, sérstaklega börn, ekki snerta verkfæri né rafmagnsleiðslu þess. Haldið þeim fjarri vinnusvæðinu. Ekki má trufla notanda tækisins við vinnu. Athugið snúningsátt motors og sagarblaðsins. Notið einungis sagarblöð þar sem að leyfilegur hámarks snúningshraði þess er ekki lægri en hámarks snúningshraði brenniviðarsagarinnar og þess efnis sem notað er. Stranglega bannað er að stöðva sagarblaðið (4) eftir að slökkt hefur verið á tækinu með því að þrýsta á það frá hliðinni. Setjið einungis beitt, sprungulaus og bein sagarblöð (4) í tækið. Notið ekki hjólsagarblöð (4) úr hraðstáli (HSS-stáli). Notið einungis sagarblöð sem framleiðandi tækisins mælir með sem uppfylla skilyrði staðalsins EN 847-1. - Skipta verður tafarlaust um skemmd sagarblöð (4). Notið ekki sagarblöð sem uppfylla ekki þau skilyrði sem gefin eru upp í notendaleiðbeiningunum. Bannað er að fjarlægja hlífar og öryggisbúnað af tækinu og að gera þennan búnað óvirkan. Skiptið út uppnotuðum borðeingum. Haldið líkamsstöðu ávallt hliðar við sagarblaðið. Leggið ekki það mikið álag á tækið að það nái að stöðvast.

IS

Gangið úr skugga um að viðarstykkið komist ekki í snertingu við sagarblaðið þar sem það getur kastast frá sögunni. Fjarlægið aldrei lausar flísar, spæni eða klemmda viðarbúta á meðan sagarblaðið er á snúningi. Til að laga bilanir eða fjarlægja klemmda viðarbúta verður að slökkva á tækinu. - Takið tækið úr sambandi við straum - Skiptið einungis um sagarblaðsstykki á meðan slökkt er á sögunni. - Takið tækið úr sambandi við straum - Einungis má breyta uppstillingu tækisins, stilla það, mæla eða hreinsa af tækinu á meðan slökkt er á mótor tækisins. - Takið tækið úr sambandi við straum. Athugið hvort að lykillinn standi á tækinu áður en það er tekið til notkunar. Slökkið á mótor tækisins og takið það úr sambandi við straum áður en vinnusvæðið er yfirgefið. Allur öryggisbúnaður og hlífar verður að setja tafarlaust aftur á tækið eftir viðgerðir eða umhirðu á tækinu. Fara verður eftir reglum framleiðanda tækisins varðandi öryggi, vinnu og umhirðu og uppgefnum gildum í tæknilegum upplýsingum. Fara verður eftir reglum og lögum sem varða slysavarnir og almennt öryggi. Brennivíðarsögina verður að tengja við 400 V innstungu með 16 A útblástursöryggi. Notið ekki rafmagnsleiðsluna í verk sem hún er ekki ætluð! Athugið að líkamsstaða sé traust og haldið ávallt jafnvægi. Yfirfarið tækið og gangið úr skugga um að það sé ekki skemmt! Fyrir notkun á tækinu verður að yfirfara það og ganga úr skugga um að öryggishlutir þess eða hlutir þess sem skemmast auðveldlega séu í fullkomnu ásigkomulagi og að þeir virki rétt. Gangið úr skugga um að hreyfanlegir hlutir tækisins virki rétt, að þeir festist ekki og að engir hlutir séu skemmdir. Allir hlutir tækisins verða að vera rétt ásettir og uppfyllt öll skilyrði til þess að geta tryggt sem öruggasta vinnu með því. Skipta verður um skemmda eða gallaða öryggishluti á réttan hátt af viðurkenndu þjónustuverkstæði, svo lengi sem ekki sé annað tekið fram í notendaleiðbeiningunum. Látið einungis viðurkenndan þjónustuaðila skipta um bilaða rofa. Þetta rafmagnsverkfæri stenst allar öryggiskröfur sem taka þarf tillit til. Viðgerðir mega einungis vera framkvæmdar af viðurkenndum fagaðila sem einungis notar upprunalega varahluti. Annars

getur myndast hætta á slysum fyrir notandann.

- Notið persónuhlífar ef þörf er á. Þær gætu verið: - Heyrnahlífar til þess að forðast heyrnarskaða; - Rykhlífar til þess að koma í veg fyrir innöndun hættulegs ryks. - Notið vinnuvettlinga við handfjötlun sagarblaða og beittra brúna. Sagarblöð verða ávallt að vera í umbúðunum. Notandi þessa tækis verður að vera upplýstur um atriði sem hafa áhrif á hávaðamyndun þessa tækis (til dæmis sagarblöð, sem hönnuð eru til að minnka hávaða, umhirðu sagarblaða). Notandi tækisins verður ávallt að tilkynna bilanir á tæki eða öryggisbúnaði þess til þess aðila sem ábyrgur er fyrir því. Flytjið tækið aðeins ef flutningsöryggi er tryggt og notið alls ekki öryggishluti tækisins eða hlífar þess til þess að flytja það. Þjálfa verður allar persónur sem nota þetta tæki í að nota það og stilla. Sagið ekki efni sem inniheldur aðskotahluti eins og til dæmis víra, þræði, leiðslur eða þess háttar. Notið einungis beitt sagarblöð. Notið tækið einungis í vel loftræstum rýmum. Rykmyndun þessa tækis er háð því hvaða efni unnið er með. Gangsetjið ryksuguðbúnað áður en að vinna með tækinu er hafin ef að slíkt er til staðar. Gangið úr skugga um að þau öryggissplitti sagarblaðsskífur sem notuð eru séu skráð til þessarar notkunar af framleiðanda. Stafið efninu sem unnið er að efninu sem búið er að vinna í nánd við venjulegt vinnusvæði notanda tækisins. Temjið ykkur öruggan vinnumáta við hreinsun, umhirðu og hreinsi reglulega spæni og ryk af tækinu til þess að forðast óþarfa eldhættu. Farið eftir notendaleiðbeiningum framleiðanda tækisins varðandi notkun, stillingar og viðgerðir á sagarblöðum. Vinsamlegast athugið hámarks uppgefinn snúningshraða sagarblaðsins. Forðist alfarið að reyna að fjarlægja efnishluta eða aðra hluti á skurðarsvæði tækisins á meðan að tækið er í gangi nema að notaður sé rennistokkur. Gangið úr skugga um að allir hlutir sem nauðsynlegir eru til öruggrar notkunar tækisins og aðrir öryggishlutir séu á tækinu, að þeir séu í góðu ásigkomulagi og að búið sé að yfirfara þá á réttan hátt. Tryggið með flutningsbúnaði og móti að stilla tækinu upp á sléttum fleti að tæki geti ekki hreyfst óstjórnað eða dottið á meðan að tæki er flutt, hirt er um það eða á meðan að því er fargað.

Hætta! Hávaði

Hávaðagildi voru mæld eftir staðlinum EN 1870-6.

Notkun
Hämarks hljóðprýstingur LpA100 dB(A)
Övissa KpA4 dB
Hämarks háfaöi LwA115 dB (A)
Övissa KwA4 dB

Notið heyrnahlífar.

Virkni hávaða getur valdið heyrnaleysi.

Takmarkið hávaðamyndun og titring eins og hægt er!

Notið einungis tæki sem eru í fullkomnu ásigkomulagi. Hirtu um tækið og hreinsaðu það reglulega. Lagaðu vinnu að tækinu. - Ofgerðu ekki tækinu. Láttu yfirfara tækið ef þörf er á. Slökktu á tækinu á meðan að það er ekki í notkun.

Uppgefin áhrifagildi eru einungis viðmiðunargildi og þýða ekki ávallt hættulaus gildi á vinnustað. Þó svo að fylgni áhrifagilda og hættugilda sé til staðar má ekki taka þessi gildi sem öruggar vinnustærðir og segja þau ekki til um það hvort að aukalegur hífingarbúnaður sé nauðsynlegur eða ekki. Aðstæður hvers og eins vinnusvæðis geta haft áhrif á þessi áhrifagildi eins og til dæmis lengd notkunar, mismunandi aðstæður á vinnusvæði og hávaði frá öðrum hlutum eins og til dæmis tækjum og þessháttar. Hættugildi á vinnusvæði geta einnig verið mismunandi eftir löndum. Þessar upplýsingar ættu þó að aðstoða notanda tækisins við að meta áhættu og öryggi við vinnu.

5. Tæknilegar upplýsingar

Rafstraumsmótor: 400V 3~ 50Hz

Afl P: 4500 W S6 20%

Öryggisgerð: IP

Snúningshraði ekki undir álagi n: 1440

Sagarblað: 0 700 x 30 mm

Fjöldi sagartanna: 64

Hámarks skurðgata (beinn skurður): 270 mm

Lágmarks skurðargeta: 25 mm

Hámarks skurðarlengd: 1000 mm

Skurðarlengd á mínútu: 300 mm

Þyngd: 83 kg

Notkunarstaðallinn S6 20% lýsir ataksprófíl sem tekur til greina 10 mínútna ataksvinnu. Til að mótorinn hitni ekki of mikið er hann notaður í 20% af tímanum á tilteknum krafti og verður svo að ganga ekki undir álagi 80% af tímanum.

6. Fyrir notkun (mynd 1-6)

Bannað er að nota þetta tæki án þess að notandi hafi kynnt sér þessar notendaleiðbeiningar og öryggisleiðbeiningar! Ef að notandi hefur enga reynslu með þesskonar tæki ætti að leita fyrst aðstoðar fagmanns. Takið sogina úr umbúðunum og athugið hvort hún hafi skemmst í flutningunum. Einungis má nota þetta tæki utandyra. Tækið verður að standa á sléttum og láréttum fleti og vera fest við jörðina með festigötunum (13). Jörðin umhverfis tækið verður að vera snyrtileg og laus við rusl, steina, hála fleti eða þessháttar sem skapað getur hættu á að notandi detti. Allur öryggisbúnaður tækisins, hlífar og þessháttar verður að setja á tækið áður en að það er notað og sagarblað verður að geta snúist óhindrað. - Skoðið alla vélina og rafmagnsleiðslur hennar vegna flutningsskemmda. - Athugið hvort að sagarblaðið sé fast, sitji vel, sé hreint, sprungið, aflagað og beitt. Slípið bitlaus sagarblöð eða skiptið um þau. - Athugið hvort allir skrúfur séu vel hertar. - Athugið hvort að rifur (18) séu uppnótaðar og skiptið um þær ef þörf er á. Bakki (6) verður að geta rennst sjálfkrafa til baka með gorminum (10). - Athugið hvort að aðskotahlutir séu í tækinu sem

kastast gætu úr því. Rafrásin verður að hafa lekaliða með 30mA öryggi. Athugið hvort að rafrásin sé sú sama og gefin er upp á tækjaskiltinu. Mikilvægt: Gæta verður að snúningsátt mótorins (1). Til þess verður að gangsetja sogina örstutt. Ef horft er á sagarblaðið frá vinstri hlið að þá á það að snúast réttsælis. (Sjá merki um snúningsátt á sagarblaðinu) Ef að hún er ekki rétt verður að víxla fösunum í innstungunni. Það er gert með því að snúa fasabreytinum (15) um 180° með skrúfjárni. Athugið (sjá mynd 4) Varað: Halda verður öðru fólki í öruggri fjarlægð á meðan að unnið er með söginni! Það er ekki leyfilegt að saga fleiri en eitt viðarstykki samtímis - slysahetta! Leggið boginn við þannig í bakkann þannig að útbogna hlið viðarins snúi að sagarblaðinu. Bakkinn (6) er búinn möstum (19) sem kemur í veg fyrir að viðurinn sem saga á snúist. Athugið hvort að sagarblaðið (4) snúi rétt og allir hreyfanlegir hlutir sagarinnar séu frjálsir áður en að kveikt er á soginni með höfuðrofanum (7). Áður en að sogin er tekin til notkunar verður að setja flutningsfestinguna í rétta stöðu. Til þess verður að sveigja flutningsfestingu (11) í áttina að ytri hlið sagarinnar þar til að gatið standi yfir gengjum. Festið flutningsfestinguna svo með boltanum (14). Flutningsfestingin með sófæti (11) kemur nú í veg fyrir að skuffan (6) sveiflist í burtu með efni að utan.

7. Notkun

7.1 Saga (mynd 5,7)

Leggðu viðinn sem á að saga á bakkann. Sögin er gangsett með græna rofanum (16). Bíddu þar til að sögin hefur náð fullum snúningshraða. Haltu bakkanum með báðum höndum á haldfanginu (8) og þrýstu honum á sagarblaðið (4). Með því að þrýsta bakkann opnast sagarblaðshlífin (3) og gerir sagarblaðið frjálst. Þrýstu bakkanum einungis svo fast að snúningshraði sagarinnar minnki ekki. Að lokum er bakkinn látinn renna varlega til baka alla leiðina á upphaflegu stöðuna. Fjarlægðu viðarbút. Þrýsta verður á rauða rofann "0" (17) til að slökkva á söginni. Varúð: Ekki má setja sögina aftur í gang á meðan að hún er að staðnæmast! Tilmæli: Ef ekki er hægt að saga viðinn í sundur í einu verður að snúa honum við og saga hann frá

hinni hliðinni (mótskurður). Settu þá bakkann í upprunalegu stöðuna, snúðu viðnum við og sagaðu því næst aftur.

Mikilvægt: Ef að sagarblaðið (4) stöðvast ekki eftir 10 sekúndna bið verður að láta yfirfara höfuðrofa af viðurkenndum rafvirkja eða láta skipta um hann.

Taktu tækið úr sambandi við straum eftir að vinnu er lokið! Yfirgefðu tækið aldrei án þess að taka það úr sambandi við straum og setja það þannig að utanaðkomandi aðilar komist ekki í það!

7.2. Skipt um sagarblað (mynd 8-14)

Varúð: Taktu rafmagnsleiðsluna úr sambandi! Láttu sagarblaðið kólna áður en skipt er um það! Notaðu ekki eldfiman vökva til að þrífa sagarblaðið. Notaðu vinnuvettlinga á meðan sagarblaðið er handfjatlað. Slysahætta!

Fjarlægðu skrúfuna (20) við stýriraufina (21) og renndu raufinni niður við. Losið boltann (A) sem er í stýrirörinu (12) og gorminn (10) sjá mynd 9. Fjarlægðu því næst skífuna (23). Sveigðu nú allri skuffeiningunni (6) niður og leggðu hana niður á jörðina. Stingdu festibolitanum (24) við öxulinn (25) í gatið (34) á hlífinni (2) og athugaðu hvort sagarblaðið (4) sé læst. Festiboltinn (24) verður að vera stunginn alveg inn í gegnum sagarblaðshlífina (2) og vera sýnilegur frá hinni hliðinni. Losið blaðskrúfuna (26) rangsælis. Takið blaðskrúfuna (26) og festiskífuna (25) af öxlinum (27). Nú er hægt að taka sagarblaðið (4) í burtu af öxlinum (27). Athugaðu að splittið (28) týnist ekki. Þrífðu sagarblaðið (4), sagarblaðshjólið (29), öxulskífuna (25) og blaðskrúfuna (26) áður en að nýja sagarblaðið er sett í. Settu nýja sagarblaðið í sögina í sömu röð við endurtekningu og festu blaðskrúfuna (26) vel. Mikilvægt: Þvingaðu ekki blaðskrúfuna í gatið og notaðu ekki framlengingu á hersluskaft eða á það verkfæri (33) sem notað er! Athugaðu að splittið (28) og sagarblaðið (4) snúi rétt! Varúð: Fjarlægðu festiboltann (24) úr gatinu (34) í sagarblaðshlífinni (2) og settu boltann í þar til gert gat (31) á grindinni (mynd 14) áður en að sögin er aftur tekin til notkunar. Sveigðu skuffeiningunni (6) aftur upp á við og settu stýrirör gormsins (10) aftur í gegnum gatið (30). Settu að lokum skífuna (23) upp á stýrirörið og tryggðu hana með boltanum (A). Varúð: Verkfærið (33) verður að fjarlægja af blaðskrúfunni! Geymdu verkfærin (33) vel á sínum

stað (32).

7.3. Flutningur (mynd 2, 3, 15)

Hægt er að flytja sogið til af einni persónu vegna hjóleiningarinnar (9). Setja verður upp flutningslæsinguna (11) á. Til þess þarf að fjarlægja skrúfuna (14), renna flutningslæsingunni (11) inn á við og festa skrúfuna aftur. (mynd 2)

Hætta! Takið tækið úr sambandi við straum.

Þrífa ætti óhreinindi af tækinu reglulega. Notið handklút eða klút. Athugið reglulega hvort að sagarblaðið sé uppþvegið. Ef að sogið á að standa lengi er gott að smyrja gorminn (6), sagarblaðið og bakkalegu (34).

Slípa verður bitlaus sagarblöð. Þvoið skitug sagarblöð! Athugið reglulega hvort að allar skrúfur séu hertar. Haldið handföngum hreinum og lausum við trjákvoðu, olíu og fitu. Notið ekki ætandi hreinsiefni til að hreinsa tækið.

Sogið verður að hylja fyrir veðri og vindum ef að það er í óskyldu rými eða utandyra. Hlifið sérstaklega mótor og rofum fyrir raka og vatni.

Athugið fyrir hverja notkun hvort að efnisskúffan færist sjálfkrafa í upphaflega stöðu. Athugið fyrir hverja notkun hvort að sagarblaðið nái að stöðvast fullkomlega á innan við 10 sekúndum.

Athugið: Viðgerðir á rafmagnsverkfærum mega eingöngu vera framkvæmdar af fagfólki með tilheyrandi réttindi!

9. Pöntun varahluta

Þegar að varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind:

Gerð tækis, gerðarnúmer tækis, númer tækis, varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á. Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-gmbh.info

Sisukord:

Kastið ekki notuðum rafmagnstækjum í venjulega ruslatunnu.

Samkvæmt reglugerð frá Evrópu 2012/19 um gömul rafmagnstæki og samkvæmt breytingum í lagasetningu hverrar þjóðar sambandsins verður að safna raftækjum áskilið og koma þeim í sérstaka endurvinnslu í þágu umhverfisverndar.

Í staðinn fyrir að senda tækin til baka er eigandi þeirra hvattur til að vinna að því að rétt endurvinnsla eigi sér stað þegar hann afhendir sér tækið sem eigandi. Það er mögulegt að afhenda tækið til sérstakrar söfnunarstofnunar, sem sér um endurvinnslu tækisins samkvæmt lögum hinna ýmsu þjóða um endurvinnslu og sorp. Þetta á samt ekki við um viðbótarhluti, sem innihalda ekki rafmagnsluta.

Kæri viðskiptavinur,

Vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef að tæki virkar brátt fyrir það fullkomlega, þykir okkur það leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilisfang er að finna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem að tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:

  1. Þessar ábyrgðaryfirlýsingar fjalla um aukalega ábyrgð. Þín almenna lagalega ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgð. Ábyrgðarþjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu.
  2. Ábyrgð framleiðanda nær eingöngu yfir galla á tæki, sem hægt er að sýna fram á að orsakast hafa vegna galla í efnum eða framleiðslu og er bundin þeirri leið sem við mælum með varðandi viðgerðir eða endurnýjun.

Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í ónæði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef að tæki er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskyni eða annan slíkan sambærilegan hátt.

3. Ábyrgð okkar gildir ekki yfir:

  • Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notendaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tæki hefur verið tengt við ranga rafspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækis varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tæki hefur verið notað við óeðlilegum náttúruhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu.
  • Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir íhlutir eða aukahlutir), ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tæki (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, flutningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða utanaðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tækið fellur niður).
  • Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra utanaðkomandi eðlilegra uppnotkunar.
  • Ábyrgðartíminn er 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaupa á tæki. Tilkynna verður um skemmdir eða galla á tæki áður en ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemmdir eru fundnar. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi eftir að ábyrgðartímabilið er útrunnið. Ef gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd á staðnum.
  • Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafið þá samband við: www.isc-gmbh.info. Ef að skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess fær þú umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla.

Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notendaleiðbeiningunum.

GARANTIITUNNISTUS

Lugupeetud klient,

Meie tooted labivad range kvaliteedikontroll. Kui seade ei peaks siiski korralikult tootama, on meil siirt alt kahu ja me palume Teil poorduda meie klienditeenindusse selle garantiitunnistuse lopus toodud aadressil voi kauplusesse, kust Te seadme ostsite. Garantiinouete esitamisel kehtib jargnev:

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Herkules

Líkan : H-BW 700/1

Flokkur : Saga