TKS 2000 - Scie Herkules - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis TKS 2000 Herkules á PDF sniði.
Spurningar notenda um TKS 2000 Herkules
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Scie á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína TKS 2000 - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. TKS 2000 vörumerkisins Herkules.
NOTENDAHANDBÓK TKS 2000 Herkules
Útskýring af táknum á hljóðfæri
![]() | Aðvörun! Mögulegt fyrir vanefndir Danger til lífsins, hætta á meiðslum eða skemmdum á tól! |
![]() | Áður byrjun rekstrar- og öryggisleiðbeiningar lesa og fylgjast! |
![]() | Notið hlífðargleraugu! |
![]() | Notið heyrnarhlífar! |
![]() | Ef ryk mynda klæðast vernd öndunarfæra |
![]() | Notið hlífðarhanska! |
![]() | Attention! Áverkar! Ná ekki inn í gangi sá blað! |
![]() | Verndun bekknum II |
Efnisyfirlit: Blaðsíða:
- Inngangur 273
- Tækjalýsing (myndir 1 - 4) 273
- Taka upp 273
- Notkun samkvæmt leiðbeiningum....274
- Öryggisleiðbeiningar 274
- Tækniupplýsingar 279
- Fyrir framkvæmd 279
- Samsetning og notkun 280
- Verkfæri....281
- í gangi....281
- Flutningur 282
- Pjónusta 282
- Geymsla 283
- Rafmagnstenging 283
- Förgun og endurvinnsla 284
- Aðstoð vegna bilana....284
1. Inngangur
Framleiðandi:
Scheppach GmbH
Kæri viðskiptavinur,
Við óskum þér mikla gleði og velgengni í að vinna með nýja tækinu.
Vísbending:
Samkvæmt viðeigandi lögum um ábyrgð er framleiðandi þessarar hjólsagar ekki ábyrgur fyrir skemmdum sem upp koma eða vegna:
- rangrar meðferðar,
- þess að notkunarleiðbeiningum er ekki fylgt eftir,
- þess að viðgerð er framkvæmd af þriðja aðila og viðgerðarmaður hefur ekki tilskilin leyfi,
- þess að varahlutir sem ekki koma frá framleiðanda hefur verið komið fyrir,
- rangrar notkunar,
- Bilun í rafkerfinu því að rafmagnsupplýsingum hefur ekki verið fylgt né reglugerðum VDE 0100, DIN 57113 / VDE 0113.
Ráðleggingar:
Lestu allan texta notkunarleiðbeininganna áður en þú setur vélina saman og byrjar að nota búnaðinn.
Þessar notkunarleiðbeiningar eru ætlaðar til þess að gera það auðveldara fyrir þig að kynnast tækinu og nota það í þá vinnu sem það er hannað fyrir.
Notkunarleiðbeiningarnar innihalda mikilvægar upplýsingar um hvernig skal nota vélina fagmannlega og á öruggan og hagsýnan hátt, og hvernig þú getur forðast hættur, sparað viðgerðarkostnað, dregið úr niðritíma og aukið áreiðanleika og endingartíma vélarinnar.
Til viðbótar við öryggisreglurnar sem fylgja með, verður þú að fylgja viðeigandi reglum lands þíns er varðar notkun vélarinnar.
Settu notkunarleiðbeiningarnar í glæra plastmöppu til að verja þær fyrir óhreinindum og raka, og geymdu þær nálægt vélinni. Það verður að lesa leiðbeiningarnar og þær verður að skoða vel af hverjum stjórnanda áður en vinna hefst.
Aðeins þeir einstaklingar sem hlotið hafa þjálfun í notkun á vélinni og hafa verið upplýstir um þær margvíslegu hættur sem fylgja því að vinna við vélina, mega vinna við vélina. Það verður að fara eftir kröfum um lágmarksaldur.
Til viðbótar við öryggisupplýsingar sem fylgja notkunarleiðbeiningunum og sérstökum reglugerðum lands þíns, verður að skoða almennt viðurkenndar tæknireglur fyrir notkun á trésmíðavélum.
Engin ábyrgð er tekin á óhöppum eða meiðslum sem kunna að verða með því að hunsa þessar leiðbeiningar og öryggisráð.
2. Tækjalýsing (myndir 1 - 4)
- Sagarborð
- Sagarblaðsrauf
- Sagarblað
- Sagarblaðshlíf
- Sogslanga
- Kloffleygur
- Pverstýring
- Breikkun borðs
- Rennistokkur
- Undirgrindir
- Rafmagnsrofi (grænn hnappur „I“, rauður hnappur „O“) 11a. Yfirálagsrofi
- Handsveif
- Festihaldfang
- Rauf
- Langsum-stýrirenna
- Fætur 16a. Gúmmífætur 16b. Standarfesting
- Miðrim, lõng
- Miðrimar, stuttar
- Sexkantsskrúfa
- Sexkantsró 21a. Stuðningsstífa stutt 21b. Stuðningsstífa löng 21c. Þverstöngina 22a. Sagarblaðslykill 10/21 mm 22b. Sagarblaðslykill 10/13 mm
3. Taka upp
- Opnið pakkninguna og takið tækið varlega úr. Fjarlægið umbúðirnar og umbúðar- / og flutnings-öryggishluti (ef slíkt er að finna).
- Farið yfir hvort allir hlutar séu í pakkningunni.
- Grandskoðið hvort að á tækinu og fylgihlutum séu flutningsskemmdir.
- Geymið pakkninguna ef mögulegt er þar til ábyrgð rennur út.
VIÐVÖRUN
Tækið og pakkningin eru engin barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmu og smáhluti!
Geta valdið köfnun og öndunarörðugleikum!
- Fætur 4x (16) • Miðrim, löng 2x (17) • Miðrimar, stuttar 2x (18)
- Stuðningsstífa stutt 2x (21a)
- Stuðningsstífa löng 2x (21b) • Þverstöngina 4x (21c) • Standarfesting 2x (16b)
- Breikkun borðs 2x (8) • Gúmmífætur 4x (16a) • Langsum-stýrirenna (15)
- Sagarblaðshlíf (4) • Þverstýring (7)
- Sogslanga (5)
- Rennistokkur (9) • Sagarblaðslykill, 10/21 mm (22a) • Sagarblaðslykill, 10/13 mm (22b) • Sexkantsskrúfa 32x (19)
- Sexkantsró 24x (20)
- Kloffleygur (6)
4. Notkun samkvæmt leiðbeiningum
Hringsögina skal nota til langsum- og þversögunar (einungis með þverstýringu) fyrir allar viðartegundir sem henta vélarstærðinni.
Hvers kyns hringlaga timbur hentar ekki til sögunar.
Vélina má einungis nota í þeim tilgangi sem passar henni.
Notkun af hverju öðru tagi er óleyfileg. Notandinn en ekki framleiðandinn er ábyrgur fyrir hvaða skaða sem af slíkri notkun kann að hljótast.
Einungis má nota þau sagarblöð (HM- eða CV-sagarblöð) sem eru sérhönnuð fyrir vélina.
Notkun á hvers kyns HSS-sagarblöðum og skurðarhjólum er bönnuð. Samkvæmt leiðbeiningunum þarf einnig að taka tillit til öryggisábendinga sem og samsetningarleiðbeininga og notkunarleiðbeininga í notkunarhandbókinni.
Manneskjur sem nota vélina og stjórna, þurfa að kunna vel á hana og þekkja mögulegar hættur sem af henni geta stafað. Annars eru gildandi slysavarnir meðfylgjandi.
Að öðru leyti skal styðjast við aðrar almennar reglur í vinnulækningum og á öryggistæknilegum sviðum.
⚠ Athugið!
Við notkun tækja þarf að huga að nokkrum öryggisráðum til að koma í veg fyrir meiðsl og skaða.
Lesið þess vegna þessar leiðbeiningar / öryggisráð vandlega.
Geymið á góðum stað til að upplýsingarnar séu ávallt innan seilingar. Ef tækið fer í hendur annarar manneskju, vinsamlegast tryggið að leiðbeiningarnar / öryggisráðin séu meðfylgjandi.
Engin ábyrgð er tekin á óhöppum eða meiðslum sem kunna að verða með því að hunsa þessar leiðbeiningar og öryggisráð.
Ef vélinni er breytt ber framleiðandinn enga ábyrgð á þeim meiðslum sem kunna að hljótast sem út frá breytingunum.
Þrátt fyrir notkun samkvæmt leiðbeiningum er ekki hægt að koma í veg fyrir vissa eftirskilda áhættu. Eftirfarandi hætta getur stafað út frá samsetningu og uppsetningu vélarinnar:
- Snerting á sagarblaðinu á óvörðu sagarsvæðinu.
- Inngrip á sagarblaðið þegar það er í gangi (skurðar-meiðsl)
- Bakslag frá verkstykkjum eða verkstykkjahlutum.
- Sagarblaðsbrot.
- Rangt í settir stálhlutar sagarblaðsins skjótast út.
- Heyrnarskaði í kjölfar þess að nota ekki nauðsynlega heyrnarvörn.
- Heilsuskaðlegur útblástur viðarryks við notkun í lokuðu rými.
⚠ Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru reglum samkvæmt ekki tilgerð fyrir smáiðnað, til handverksiðnaðar eða almennra iðnaðarnota.
Við tökum enga ábyrgð ef tækið er notað í smáiðnaði, fyrir handverknað eða í almennum iðnaði og eins ef það er notað í svipuðum tilgangi.
Viðvörun! Þetta rafmagnsverkfæri gefur út frá sér rafsegulsvæði. Undir vissum kringumstæðum getur þetta svæði haft áhrif á virk eða óvirk ígrædd líffæri. Til að minnka áhættu á alvarlegum eða lífshættulegum meiðslum ráðleggjum við fólki með ígrædd líffæri að ráðfæra sig við sinn lækni og framleiðanda ígrædda líffærisins áður en hann notar rafmagnsverkfærið.
5. Öryggisleiðbeiningar
Almennar öryggisleiðbeiningar fyrir rafmagnsverkfæri
⚠ VIÐVÖRUN: Lesið allar öryggisleiðbeiningar, tæknilegar upplýsingar og skýringarmyndir sem fylgja með þessu rafmagnsverkfæri.
Ef ekki er farið eftir eftirfarandi leiðbeiningum getur slíkt andvaraleysi valdið raflosti, bruna og/eða alvarlegum meiðslum.
Geymið allar öryggisleiðbeiningar og fyrirmæli til upprifjunar síðar.
Hugtakið „rafmagnsverkfæri“ sem notað er í öryggisleiðbeiningunum vísar til rafveituknúinna rafmagnsverkfæra (með rafmagnssnúru) eða til rafhlöðuknúinna rafmagnsverkfæra (án rafmagnssnúru).
1) Vinnusvæðisöryggi
a) Haldið vinnusvæðinu hreinu og vel upplýstu. Óreiða á vinnusvæði eða óupplýst vinnusvæði getur valdið slysum.
b) Vinnið ekki með rafmagnsverkfæri á sprengihættusvæði þar sem eldfimir vökvar, gös eða ryk er að finna. Rafmagnsverkfæri framkalla neista sem geta kveikt í ryki eða gufu.
c) Haldið börnum og öðrum einstaklingum fjarri á meðan á notkun rafmagnsverkfærisins stendur. Truflun getur valdið því að notandinn missi stjórn á rafmagnsverkfærinu.
2) Rafmagnsöryggi
a) Rafmagnskló verkfærisins verður að passa í innstunguna. Ekki má breyta klónni á nokkurn hátt. Notið ekkert breytitengi með öryggisjarðtengdum rafmagnsverkfærum. Óbreyttar klær og innstungur sem passa saman draga úr hættu á raflosti.
b) Komið í veg fyrir líkamssnertingu við jarðtengd yfirborð eins og yfirborð röra, ofna, eldavéla og ísskápa. Aukin hætta er á raflosti þegar líkami notandans er jarðtengdur.
c) Haldið rafmagnsverkfærum fjarri rigningu eða bleytu. Hætta á raflosti eykst ef vatn kemst inn í rafmagnsverkfærið.
d) Notið rafmagnssnúruna ekki til að halda á rafmagnsverkfærinu, hengja það upp eða til að taka klóna úr sambandi. Haldið rafmagnssnúrunni fjarri hita, olíu, skörpum brúnum og hlutum á hreyfingu. Skaddaðar eða flæktar rafmagnssnúrur auka hættuna á raflosti.
e) Ef rafmagnsverkfæri er notað utandyra skal eingöngu notast við framlengingarsnúrur sem ætlaðar eru til notkunar utandyra. Notkun framlengingarsnúru sem ætluð er til notkunar utandyra dregur úr hættu á raflosti.
f) Ef ekki er hægt að komast hjá notkun rafmagnsverkfærisins í röku umhverfi skal notast við bilunarstraumsrofa. Notkun bilunarstraumsrofa dregur úr hættu á raflosti.
3) Öryggi einstaklinga
a) Sýnið aðgát, gefið gaum að því sem gert er og sýnið skynsemi við vinnu með rafmagnsverkfæri. Notandinn skal ekki nota rafmagnsverkfæri þegar hann er þreyttur eða undir áhrifum eiturlyfja, áfengis eða lyfja. Gáleysi eitt augnablik við notkun á rafmagnsverkfærinu getur leitt til alvarlegra meiðsla.
b) Klæðist hlífðarbúnaði og notið ávallt hlífðargleraugu. Notkun á hlífðarbúnaði, eins og rykgrímum, gripgóðum öryggisskóm, öryggishjálmum eða heyrnarhlífum, sem er viðeigandi fyrir gerð og notkun rafmagnsverkfærisins dregur úr hættu á meiðslum.
c) Forðist óviljandi gangsetningu. Gangið úr skugga um að slökkt sé á rafmagnsverkfærinu áður en það er tengt við rafveituna og/eða rafhlöðu, það er tekið upp eða haldið er á því. Ef fingur notandans er á rafmagnsrofanum þegar haldið er á því eða kveikt er á rafmagnsverkfærinu þegar það er tengt við rafveituna getur það valdið slysum.
d) Fjarlægið alla stillilykla eða skrúfjárn áður en kveikt er á rafmagnsverkfærinu. Verkfæri eða lykill sem er á hluta rafmagnsverkfærisins sem snýst getur valdið meiðslum.
e) Forðist óeðlilega líkamsbeitingu. Gætið þess að vera í öruggri stöðu og haldið líkamanum alltaf í jafnvægi. Þannig er hægt að hafa betri stjórn á rafmagnsverkfærinu í óvæntum aðstæðum.
f) Klæðist viðeigandi fatnaði. Klæðist ekki víðum fötum eða skartgripum. Haldið hári og fatnaði frá hlutum sem eru á hreyfingu. Við föt, skartgripir eða sítt hár geta festst í hlutum sem eru á hreyfingu.
g) Þegar mögulegt er að tengja ryksugu- og -safnarabúnað skal tengja hann og nota á réttan hátt. Notkun ryksugu getur dregið úr hættu af völdum ryks.
h) Notandinn skal ekki trúa því ranglega að hann sé öruggur og skal ekki virða öryggisleiðbeiningarnar fyrir rafmagnsverkfæri að vettugi jafnvel þó hann hafi notað rafmagnsverkfærið oft og þekkir vel til þess. Gálaus meðhöndlun getur leitt til alvarlegra meiðsla á nokkrum sekúndubrotum.
4) Notkun og meðhöndlun rafmagnsverkfærisins
a) Setjið ekki yfirálag á verkfærið. Notið viðeigandi verkfæri fyrir þá vinnu sem framkvæma þarf. Með verkfæri sem er viðeigandi er unnið á betri og öruggari hátt í tilgreindu aflsviði.
b) Notið ekki rafmagnsverkfæri sem hefur gallaðan rafmagnsrofa. Rafmagnsverkfæri sem ekki er lengur hægt að kveikja á eða slökkva á er hættulegt og gera verður við það.
c) Takið klóna úr innstungunni og/eða fjarlægið aftengjanlega rafhlöðu áður en verkfærið er stillt, skipt er um verkfæraíhluti eða gengið er frá rafmagnsverkfærinu. Þessar varúðarráðstafanir koma í veg fyrir óviljandi gangsetningu rafmagnsverkfærisins.
d) Geymið rafmagnsverkfæri sem ekki er verið að nota þar sem börn ná ekki til. Leyfið engum aðila að nota rafmagnsverkfærið sem ekki þekkir til þess eða hefur ekki lesið þessar leiðbeiningar. Rafmagnsverkfæri eru hættuleg þegar þau eru notuð af óreyndum einstaklingum. e) Hirðið um rafmagnsverkfæri og ísetningarverkfæri af kostgæfni. Athugið hvort íhlutir sem hreyfast starfi óhindrað og án þess að festast, hvort íhlutir séu brotnir eða skaddaðir á þann hátt að það hafi áhrif á virkni rafmagnsverkfærisins. Látið gera við skaddaða íhluti áður en rafmagnsverkfærið er notað. Mörg slys eiga rætur sínar að rekja til illa viðhaldinna rafmagnsverkfæra. f) Haldið skurðarverkfærum beittum og hreinum. Vel viðhaldin skurðarverkfæri með beittum skurðköntum festast síður og eru auðveldari í meðhöndlun. g) Notið rafmagnsverkfæri, fylgihluti, ísetningarverkfæri o.s.frv. samkvæmt þessum leiðbeiningum. Takið mið af vinnuaðstöðu og því verki sem framkvæma á. Notkun rafmagnsverkfæra til annarrar notkunar en tilætlaðrar getur skapað hættulegar aðstæður. h) Haldið handföngunum þurrum og hreinum og þrífið burt alla smurolíu og feiti.
Sleip handföng og handfangsfletir stuðla ekki að öruggri notkun og stjórn rafmagnsverkfærisins í ófyrirsjáanlegum aðstæðum.
5) Viðhald
a) Látið eingöngu hæft fagfólk gera við rafmagnsverkfærið og eingöngu með upprunalegum aukahlutum. Þannig er tryggt að öryggi rafmagnsverkfærisins viðhelst.
Öryggisleiðbeiningar fyrir borðsög
Öryggisleiðbeiningar í tengslum við öryggishlíf
a) Fjarlægið ekki öryggishlífarnar. Öryggishlífarnar verða að vera í starfhæfu ástandi og rétt uppsettar.
Gera verður við eða skipta verður um öryggishlífar sem eru lausar, skaddaðar eða virka ekki sem skyldi.
b) Notið ávallt sagarblaðsöryggishlífina og kleyfinn fyrir miðjuskurði.
Öryggishlífin og annar öryggisbúnaður draga úr hættu á meiðslum við miðjuskurði þar sem sagarblaðið fer algjörlega í gegnum þykkt vinnsluhlutarins.
c) Festið hlífðarbúnaðinn tafarlaust aftur á eftir allri vinnslu þar sem nauðsynlegt er að fjarlægja öryggishlífina og/eða kleyfinn (t.d. við grópun, þegar notað er saman og þegar skorið er hálft í hálft með umslagsaðferð) þar sem nauðsynlegt er að fjarlægja öryggishlífina og/eða kleyfinn.
Öryggishlífin og kleyfirinn draga úr hættu á meiðslum.
d) Gangið úr skugga um að sagarblaðið hreyfi ekki við öryggishlífinni, kleyfinum eða vinnsluhlutnum áður en kveikt er á rafmagnsverkfærinu.
Óviljandi snerting þessara hluta við sagarblaðið getur skapað hættulegar aðstæður.
e) Stillið kleyfinn samkvæmt lýsingunni í þessum notkunarleiðbeiningum.
Röng fjarlægð, staða og stilling geta stuðlað að því að kleyfirinn komi ekki í veg fyrir bakslag á skilvirkan hátt.
f) Til þess að kleyfirinn geti virkað verður hann að komast í snertingu við vinnsluhlutinn.
Kleyfirinn virkar ekki við skurði í vinnsluhluti sem eru of stuttir til þess að þeir geti komist í snertingu við kleyfinn. Við slíkar aðstæður getur kleyfirinn ekki komið í veg fyrir bakslag.
g) Notið sagarblað sem er viðeigandi fyrir kleyfinn. Til þess að kleyfirinn virki á réttan hátt verður sagarblaðsþvermálið að passa við samsvarandi kleyfi, stálblað sagarblaðsins að vera þynnra en kleyfurinn og tannbreiddin að vera breiðari en stálblaðsþykktin.
Öryggisleiðbeiningar fyrir sögunaraðferðir
a) △ HÆTTA: Setjið ekki fingur eða hendur nálægt sagarblaðinu eða sögunarsvæðinu.
Eitt andartak gáleysis eða ef notandanum skrikar fótur gæti það leitt til þess að hönd hans stýrist í átt að sagarblaðinu og leitt til alvarlegra meiðsla.
b) Færið vinnsluhlutinn eingöngu í andstæða átt við snúningsátt sagarblaðsins.
Færsla vinnsluhlutarins í sömu átt og snúningsátt sagarblaðsins ofan við borðið getur leitt til þess að vinnsluhluturinn og hönd notandans dragist að sagarblaðinu.
c) Við langskurð skal aldrei nota bútasleðann til að færa vinnsluhlutinn og við þverskurð með bútasleðanum skal aldrei nota landið á sama tíma til lengdarstillingar. Ef vinnsluhluturinn er færður samtímis með landinu og bútasleðanum aukast líkurnar á því að sagarblaðið festist og að bakslag eigi sér stað.
d) Við langskurði skal ávallt beita aðfærslukraftinum á svæðinu á milli landsins og sagarblaðsins. Notið eftirreku, þegar fjarlægðin á milli landsins og sagarblaðsins er styttri en 150 mm, og eftirrekublokk þegar fjarlægðin er styttri en 50 mm.
Slík hjálpartæki tryggja að hönd notandans haldist í öruggri fjarlægð frá sagarblaðinu.
e) Notið eingöngu eftirrekuna sem fylgir með frá framleiðanda eða eftirreku sem hefur verið framleidd í samræmi við það sem stendur í leiðbeiningunum.
Eftirrekan tryggir nægilega fjarlægð á milli handar og sagarblaðs.
f) Notið aldrei skaddaða eftirreku eða eftirreku sem sagað hefur verið í.
Sködduð eftirreka getur brotnað og leitt til þess að hönd notandans lendi í sagarblaðinu.
g) Vinnið ekki „fríhendis“. Notið ávallt landið eða bútasleðann til að halda við og færa vinnsluhlutinn. „Fríhendis“ þýðir að í stað þess að styðja við vinnsluhlutinn með landinu eða bútasleðanum er stutt við hann eða hann færður með höndunum.
h) Grípið aldrei um eða ofan við sagarblað sem er á hreyfingu.
Ef gripið er um vinnsluhlut getur það leitt til óviljandi snertingar við sagarblaðið sem snýst.
i) Styðjið við langa og/eða breiða vinnsluhluti fyrir aftan og/eða til hliðar við sagarborðið svo þeir haldist láréttir.
Langir og/eða breiðir vinnsluhlutir hafa auk þess tilhneigingu til að hallast yfir brún sagarborðsins; það leiðir til stjórnmissis, fasts sagarblaðs og bakslags.
j) Ytið vinnsluhlutnum áfram á jafnan hátt. Beygið hvorki né snúið upp á vinnsluhlutinn. Ef sagarblaðið festist skal samstundis slökkva á rafmagnsverkfærinu, taka rafmagnsklóna úr sambandi og lagfæra það sem orsakaði að sagarblaðið festist.
Ef sagarblaðið festist í vinnsluhlutnum getur það orsakað bakslag eða hindrað gang mótorsins.
k) Fjarlægið ekki afsagað efni á meðan sögin er í gangi. Afsagað efni getur festst á milli sagarblaðsins og landsins eða í öryggishlífinni og ef það er fjarlægt getur það leitt til þess að fingur notandans dragist að sagarblaðinu. Slökkvið á söginni og bíðið þar til sagarblaðið hefur algjörlega stöðvast áður en efnið er fjarlægt.
l) Við langskurði á vinnsluhlutum sem eru þynnri en 2 mm skal nota viðbótarland sem snertir yfirborð borðsins. Punnir vinnsluhlutir geta skorðast undir landinu og leitt til bakslags.
Bakslag er skyndilegt viðbragð vinnsluhlutarins vegna sagarblaðs sem hefur krækst eða festst eða sökum skakks skurðar sagarblaðsins í vinnsluhlutinn eða þegar einn partur vinnsluhlutarins festist á milli sagarblaðsins og landsins eða annars fasts hlutar. Í flestum tilfellum festist vinnsluhluturinn í aftari hluta sagarblaðsins, lyftist upp frá borðinu og þeytist í átt að notandanum. Bakslag er afleiðing rangrar eða slælegrar notkunar á borðsöginni. Hægt er að koma í veg fyrir það með viðeigandi varúðarráðstöfunum eins og þeim sem hér á eftir fylgja.
a) Standið aldrei í stöðu sem er í beinni línu við sagarblaðið. Standið ávallt í stöðu til hliðar við sagarblaðið, sömu megin og landið er að finna.
Við bakslag getur vinnsluhluturinn þeyst á miklum hraða í átt að einstaklingi sem stendur fyrir framan og í beinni línu við sagarblaðið.
b) Reynið aldrei að grípa í vinnsluhlutinn til að toga í eða styðja við hann fyrir ofan eða bakvið sagarblaðið.
Það getur leitt til óviljandi snertingar við sagarblaðið eða bakslags þannig að fingur notandans lendi í sagarblaðinu.
c) Haldið hvorki né ïtið vinnsluhlut, sem saga á af, upp á móti sagarblaði sem snýst.
Ef vinnsluhlutnum, sem saga á af, er ytt upp á móti sagarblaðinu leiðir það til þess að hann festist og til bakslags.
d) Stillið landinu upp samsíða sagarblaðinu.
Land sem ekki er stillt upp samsíða sagarblaðinu ytir vinnsluhlutnum í átt að sagarblaðinu og framkallar bakslag.
e) Notið þrýstikamb við dulda sögunarskurði (t.d. við grópun, þegar nótað er saman og þegar skorið er hálft í hálft með umslagsaðferð) til þess að leiða vinnsluhlutinn áfram þannig að hann haldist við borðið og upp við landið.
Með prýstikambi er hægt að hafa betri stjórn á vinnsluhlutnum pegar bakslag á sér stað.
f) Sýnið sérstaka aðgát við sögun á vinnsluhlutum sem eru samsettir par sem sumir hlutar pess eru ekki sjáanlegir.
Sagarblaðið, sem er inni í vinnsluhlutnum, getur sagað í hluti sem gætu orsakað bakslag.
g) Styōjiō við stórar plötur til að koma í veg fyrir bakslag af völdum fasts sagarblaðs.
Stórar plötur geta svignað undan eigin punga. Styðja verður við plötur alls staðar par sem pær skaga fram yfir yfirborðsflöt borðsins.
h) Sýnið sérstaka aðgát við sögun á vinnsluhlu-tum sem eru skakkir, hnýttir, skældir eða hafa ekki beinan kant par sem hægt er að stýra peim með bútasleða eða meðfram landi. Skældur, hnýttur, eða skakkur vinnsluhlutur er óstöðugur og leiðir til pess að sagarblaðið skekkir skurðarsárið eða festist og til bakslags. i) Sagið aldrei marga vinnsluhluti í einu sem eru ofan á hver öðrum eða á eftir hver öðrum. Sagarblaðið gæti gripið í einn eða fleiri hluti og orsakað bakslag. j) Ef aftur á að setja sög, þar sem sagarblaðið er fast í vinnsluhlut, í gang skal miðjustilla sagarblaðið í sögunarrifunni þannig að sagartennurnar séu ekki kræktar í vinnsluhlutnum. Ef sagarblaðið er fast getur vinnsluhluturinn lyfst upp og orsakað bakslag þegar sögin er sett aftur í gang. k) Haldið sagarblaðinu hreinu, beittu og nægilega skekktu. Notið aldrei skæld sagarblöð eða sagarblöð með hrufóttum eða brotnum tönnum. Ef sagarblöð eru beitt og rétt skekkt minnkar það líkurnar á að þau festist, hindri gang mótorsins og orsaki bakslag.
Öryggisleiðbeiningar fyrir notkun borðsaga
a) Slökkvið á borðsöginni og takið hana úr sambandi við rafmagn áður en borðinnsetningarstykkið er fjarlægt, skipt er um sagarblað, kleyfirinn eða sagarblaðshlífin eru stillt og þegar vélin er skilin eftir án eftirlits. Varúðarráðstafanir koma í veg fyrir slys. b) Skiljið borðsögina aldrei eftir í gangi án eftirlits. Slökkvið á rafmagnsverkfærinu og skiljið það ekki eftir fyrr en það hefur algjörlega stöðvast. Sög sem skilin er eftir án eftirlits skapar eftirlitslausa hættu. c) Stillið borðsöginni upp á stað með jöfnu undirlagi, sem er vel upplýstur og þar sem hægt er að standa með öruggt fóthald og halda jafnvægi. Uppsetningarstaðurinn verður að bjóða upp á nægilegt pláss til þess að hægt sé að meðhöndla stærð vinnsluhlutanna. Óreiða, ljóslast vinnuumhverfi og ójafnt og sleipt gólf geta leitt til slysa. d) Fjarlægið reglulega spón og sag undan borðinu og/eða úr ryksafnaranum. Samansafnað sag er eldfimt og getur kviknað í því af sjálfu sér. e) Skorðið borðsögina vel. Borðsög sem er ekki almennilega skorðuð getur hreyfst eða kippst til. f) Fjarlægið stillilykla, viðarafganga o.s.frv. af borðsöginni áður en hún er sett í gang. Stefnubreyting eða föst sög getur verið hættuleg.
g) Notið ávallt sagarblöð sem eru af réttri stærð og með staðsetningargöt sem passa (t.d. tígullaga eða hringlaga).
Sagarblöð sem ekki passa á uppsetningaríhlut sagarinnar, snúast ójafnt og leiða til stjórnmissis.
h) Notið aldrei sködduð eða röng sagarblaðsuppsetningarefni eins og t.d. flansa, skinnur, skrúfur eða rær.
Þetta sagarblaðsuppsetningarefni var sérstaklega framleitt fyrir þessa sög til að tryggja örugga notkun og sem besta frammistöðu.
i) Setjist aldrei á borðsögina og notið hana ekki sem lausatröppu.
Alvarleg meiðsl geta hlotist af því ef rafmagnsverkfærið kippist til eða ef óviljandi snerting við sagarblaðið á sér stað.
j) Gangið úr skugga um að sagarblaðið sé sett upp í réttri snúningsátt. Notið ekki slípiskífu eða vírbursta með borðsöginni.
Óviðeigandi uppsetning sagarblaðsins eða notkun á fylgihlutum sem ekki hefur verið mælt með að séu notaðir getur leitt til alvarlegra meiðsla.
Öryggisráðleggingar fyrir notkun sagarblaða
1 Setjið aðeins aukaverkfærin í ef þið kunnið að umgangast þau. 2 Takið eftir hámarkshraðanum. Ekki má fara yfir uppgefinn hámarkssnúningshraða verkfærisins. Haldið, ef uppgefið, snúningshraðanum. 3 Fylgist með mótors- sagarblaðs – snúningsáttinni. 4 Notið ekki aukaverkfæri með rákum. Takið rákuð aukaverkfæri út. 5 Yfirferð er ekki leyfileg. 6 Hreinsið óhreinindi, fitu, olíu og vatn af spennisvæðinu. 7 Notið ekki lausa skrúfhringi eða hólka til að minnka boranir á hjólsagarblöðum. 8 Athugið að fastir skrúfhólkar til að festa auka-verkfærið hafi sama þvermál og minnst 1/3 af þvermáli skurðarins. 9 Gangið úr skugga um að föstu skrúfhólkarnir séu hlið við hlið. Meðhöndlið aukaverkfærin af varúð. Geymið þau helst í upprunalegu pakkningunni eða í sérstöku áhaldi. 10 Verið í varnarhönskum til að auka gripöryggi og minnka slysahættu. 11 Áður en aukaverkfærin eru notuð, gangið úr skugga um að öll varnartæki séu fest reglum samkvæmt. 12 Áður en hafist er handa, gangið úr skugga um að aukaverkfærið sem þið notið sé samkvæmt tæknilegum kröfum þessa rafmagnsverkfæris og sé fest reglum samkvæmt. 13 Notið meðfylgjandi sagarblað aðeins fyrir sögunarvinnu í við, aldrei fyrir stál. Notið rétt sagarblað fyrir efnið sem vinna á með. 14 Notið eingöngu sagarblað með þvermál sem samsvarast upplýsingunum á söginni.
15 Notið eingöngu sagarblöð sem eru með jafnháan eða hærri snúningshraða en þann sem merktur er á rafmagnsverkfærinu. 16 Notið eingöngu sagarblöð sem framleiðandinn mælir með sem, ef þau eru ætluð til sögunar á viði eða svipuðu framleiðsluefni, samræmast EN 847-1. 17 Klæðist viðeigandi hlífðarbúnaði, eins og t.d.: – Heyrnarhlífum; - Hlífðarhönskum við meðhöndlun á sagarblöðum. 18. Notið eingöngu sagarblöð sem framleiðandinn mælir með sem samræmast EN 847-1. Viðvörun! Gangið úr skugga um, þegar skipt er um sagarblað, að skurðarbreiddin sé ekki minni og stálblaðsþykkt sagarblaðsins ekki stærri en þykkt kleyfisins! 19. Forðist yfirhitnun sagartannanna við sögun á viði og plasti. Dragið úr aðflutningshraðanum til að koma í veg fyrir að plastið bráðni.
Eftirskilin áhætta
Rafmagnsverkfærið er byggt eftir tæknistöðlum og viðurkenndum öryggistæknireglum. Þrátt fyrir það getur einstaka eftirskilin áhætta komið upp.
- Heilsu er stefnt í hættu vegna straums við notkun á óstöðluðum rafmagnssnúrum. Þrátt fyrir allar öryggisráðstafanir getur þar að auki óáberandi eftirskilin áhætta komið upp.
- Eftirskilda áhættu er hægt að minnka með því að „öryggisleiðbeiningarnar“ og „notkun reglum samkvæmt“ er framfylgt, svo og að notkunarhandbókinni í heild sé skoðuð.
- Ofnotið vélina ekki að óþörfu: ef sagað er af of miklum krafti skemmist sagarblaðið fljótt.
- Þetta getur leitt til þess að hún virkar ekki eins vel og unnið er á hana og skurðarnákvæmni minnkar.
- Forðist tilviljanakennda gangsetningu vélarinnar; þegar innstungunni er stungið inn má ekki kveikja á takkanum.
- Notið verkfærið sem ráðlagt er í handbókinni. Þannig nær sögin ykkar hámarksgetu.
- Haldið höndum fjarri vinnusvæðinu þegar vélin er í gangi.
Áður en þið stillið eða þjónustið, slökkvið á tækinu og takið úr sambandi.
6. Tækniupplýsingar
| Riðstraumsmótor 220-240 V~ 50Hz | |
| Geta S1 1800W | |
| Rekstrarflokkur S6 25% 2000W | |
| Hraði mótors 5000 min | -1 |
| Harðstálssagarblað ø 250 x ø 30 x 2,8 mm | |
| Fjöldi tanna 24 | |
| Pykkt kloffleygs 2 mm | |
| Borðarstærð 563 x 583 x 28 mm | |
| Skurðarhæð max. 90° 85 mm | |
| Skurðarhæð max. 45° 65 mm | |
| Hæðarstilling 0 - 85 mm | |
| Sagarblaðssnúningur | 0 - 45° |
| Sogtengi | ø 35 mm |
Þyngd ca. 19 kg
* Rekstrarflokkur S6 25%: Þrepskipti með rekstrarhætti (ending 10 mín). Til að mótorinn ofhitni ekki á hann að vera í gangi 25% af tímanum með uppgefnum hestöflum og þarf í kjölfarið að vera í gangi 75% af tímanum án þunga.
Hljóðupplýsingar
Hljóðupplýsingarnar eru samkvæmt EN 62841 staðli.
| Hljóðprýstingsgildi LpA | 94,0 dB(A) |
| Óvissa KpA | 3 dB |
| Hljóðprýstingsgildi LWA | 107,0 dB(A) |
| Óvissa KWA | 3 dB |
Berið heyrnartól
Hávaði getur haft heyrnarleysi í för með sér. Samanlögð titringsgildi (vektorsumma þriggja átta) sýnir það sem samsvarar EN 62841.
7. Fyrir framkvæmd
- Vélin þarf að standa á öruggum stað, það þýðir á vinnubekk og áfest við neðri hluta hans. Notið til þess götin sem eru á innanverðum stuðningsfótum.
- Áður en sett er í gang þurfa allar hlífar og öryggistæki að vera fjarlægð reglum samkvæmt.
- Sagarblaðið þarf að geta virkað án fyrirstöðu.
- Í tilfelli unnins viðar, takið eftir aukahlutum eins og t.d. nöglum eða skrúfum.
- Áður en þið virkið start takkann, gangið úr skugga um að sagarblaðið sé rétt sett í og að hreyfanlegu hlutar þess séu án fyrirstöðu.
- Sannreynið áður en vélin er sett í samband, að miðaupplýsingarnar passi við netupplýsingarnar.
- Setjið vélina bara í samband við reglum samkvæmt uppsetta briggja teina innstungu sem er með minnst 16A öryggi.
Athugið! Áður en hjólsögin er þjónustuð, henni breytt eða uppsett, takið klóna ávallt úr sambandi!
Setjið meðfylgjandi hluta á flatt yfirborð. Flokkið í jafna hluta.
Ráðlegging: Þegar samtengingarnar eru festar með skrúfu (hringlaga/eða sexkanti), sexkantróm og undirskífu, þarf að setja undirskífuna undir róna.
Setjið skrúfurnar, hverja um sig, utan frá inn, festið samtengingarnar með róm að innan.
Ráðlegging: Festið rærnar og skrúfurnar á meðan á samsetningunni stendur einungis þannig að þær detti ekki af.
Ef rærnar og skrúfurnar hafa verið kirfilega skrúfaðar saman áður en lokasamsetningin fer fram, er ekki hægt að framkvæma hana.
8.1 Uppsetning borðbreikkunar (mynd 5)
- Snúa söginni við og setja ásamt borðinu á gólfið.
- Setja borðbreikkunina (8) jafnt við sögunarborðið (1).
- Fyllið borðframlengingunni (8) á sagarborðið (1) með hjálp sexkantsboltanna (19) og þverstangarinnar (21c). Endurtakið ferlið hinum megin.
- Skrúfið stuðningsfæturna (21a, 21b) og þverstöngina (21c) við borðframlengingarnar (8) með sexkantsboltunum (19).
- Því næst skrúfið allar skrúfurnar fastar.
8.2 Uppsetningargrind (mynd 6 - 7.1)
- Skrúfið fjóra fæturna (16) við sögina (mynd 6) með stögunum (21a, 21b) og með sexkantsrónum (19). Notið til verksins meðfylgjandi sagarblaðslykil (21a). (mynd 6)
- Stingið gúmmístykkjunum (16a) á fæturnar (16) (mynd 6.1).
- Skrúfið nú löngu miðrimina (17) og stuttu miðrimina (18) með sexkantsskrúfunum (19) og sexkantsrónum (20) við fæturna (16). Athugið að rimarnar liggja hver um sig á móti hvor annarri. Löngu miðrimarnar (17 - merktar með „B“) þurfa að liggja samsíða notkunarhlið sagarinnar. (mynd 7)
- Festið statífið (16b) lauslega í holurnar í aftari fæturna með 2 sexkantsskrúfum hver (19) og sexkantsrónum (20). (mynd 7.1.) Athugið! Bæði statífin verður að festa við bakhlið vélarinnar!
- Skrúfið að lokum allar skrúfurnar og rær undirhlutans fastar.
8.3 Ísetning kloffleygsins / uppsetning (mynd 8-10)
⚠ Athugið! Taka klóna úr innstungunni! Ísetning kloffleygsins (6) þarf að yfirfara áður en sett er í gang.
- Sagarblað (3) stilla á mestu skurðardýpt, stilla á 0° og festa.
- Leysið skrúfur (23) í borðinnlegginu (2) með krossskrúfjárni og takið borðinnleggið (2) úr (mynd 8).
- Bilið milli sagarblaðsins (3) og kloffleygsins (6) á að vera mest 5 mm. (mynd 9)
- Losið festiskrúfuna (24) og færið kloffleyginn (6) til þar til réttri fjarlægð er náð. (mynd 10)
- Festa festingarskrúfuna (24) aftur á við borðinnleggið (2).
8.4 Setja upp sagarblaðsvörn / taka niður (mynd 11 - 12)
- Setjið sagarblaðsvörnina (4) ásamt skrúfu (25) uppi á kloffleyginn (6) þannig að skrúfan sé föst á langopi kloffleygsins.
- Festið skrúfu (25) ekki of fast; það verður hægt að hreyfa sagarblaðsvörnina (6).
- Setjið sogslöngu (5) á sogmillistykkið (26) og soghlíf sagarblaðsins (4). Festið viðeigandi spæni og slöngu við sogmillistykkið (26).
- Tekið í sundur á öfugan máta. Athugið! Áður en byrjað er að saga þarf að lækka sagarblaðshlífina (4) til samræmis við sögunarstykkið.
8.5 Skipta út borðinnleggi (mynd 8)
- Ef eyðileggst eða skemmist þarf að skipta út borðinnlegginu (2), annars eykst slysahætta.
- Fjarlægið skrúfu (23) með krossskrúfjárni.
- Takið eytt borðinnlegg (2) úr.
- Uppsetning nýs borðinnleggs fer fram í öfugri röð.
8.6 Uppsetning/Sagarblaðsskipti (mynd 13)
- Athugið! Takið klóna úr sambandi og berið varnarhanska.
- Taka af sagarblaðsvörnina (4) (sjá 8.4)
- Fjarlægja borðinnleggið (2) (sjá 8.5)
- Losa róna, með sagarblaðslykli (22a) og með öðrum sagarblaðslykli (22b) og heldur að vélarskaftinu (sjá mynd 22).
- Athugið! Snúið róni í sömu átt og sagarblaðið snýst.
- Takið ytri flansinn af og dragið gamla sagarblaðið úr innri flansinum.
- Hreinsið sagarblaðsflansinn vandlega með vírbursta áður en nýja sagarblaðið er sett í.
- Setjið nýja sagarblaðið í öfugri röð í og festið.
Athugið! Takið eftir snúningshraða, skurðarhalli tannanna þarf að vera í snúningsátt, það er, framví Sandi.
- Setjið borðinnlegg (2) sem og sagarblaðsvörn (4) aftur upp (sjá 8.4 og 8.5)
- Áður en þið byrjið að vinna aftur með sögina þarf að prófa hvort að varnarhlutarnir virki ekki örugglega.
- Athugið hvort sagarblaðshlífin (4) virki eins og skildi. Lyftið sagarblaðshlífinni og sleppið henni síðan. Sagarblaðshlífin ætti að færast af sjálfsdáðum í upphaflega stöðu.
9. Verkfæri
9.1 Kveikja, slökkva (mynd 14)
- Með því að ýta á græna takkann „l“ (11) kviknar á vélinni. Áður en þið byrjið að saga, bíðið þar til sagarblaðið nær hámarkshraða.
- Til að slökkva aftur á vélinni, þarf að ýta á rauða takkann „0“ (11).
9.2 Að stilla skurðdýpt (mynd. 14)
Með því að snúa handfanginu fyrir hæðarstillingu (12), er hægt að stilla sagarblaðið (3) í þá skurðardýpt sem óskað er eftir (án þrepa).
- minni skurðdýpt
- stærri skurðdýpt
Prófið stillinguna með prufuskurði.
9.3 Hornstilling (mynd.14)
Með borðsöginni má saga á ská til vinstri frá 0°-45° að stöðvunarteinunum.
⚠️ Prófið fyrir sérhvern skurð að árekstur geti ekki orðið milli stöðvunarteina (27), þversniðsgráðuboga (7) og sagarblaðsins (3).
- Taka í læsingarhandfang (13)
- Með því að ýta og snúa handfanginu (12) stillið þá stærð á kvarðann eftir óskum.
- Handsveif (13) fest í þá stöðu er óskað er eftir.
9.4 Vinna með langsum-stýrirennu
9.4.1 Festa hæðarstillingu (mynd 15 - 16)
- Rimastöðvun (27) langsum-stýrirennunnar (15) er með tvær mismunandi háa burðarfleti.
- Eftir þykkt þess efni sem unnið er með þarf hæðarstillingin (27) að vera eftir mynd 16, fyrir þykkt efni (yfir 25 mm vinnustykkisþykkt)
- og eftir mynd 15 fyrir þunnt efni (minna en 25 mm vinnustykkisþykkt).
9.4.2 Að snúa rimastöðvun (mynd 15 - 16)
- Losið stöðvunarteinana til að hægt sé að snúa þeim (27) fyrst vængjarónum (28).
- Nú er hægt að taka stöðvunarteinana (27) af raufinni (29) og setja viðeigandi stýringu á þá.
- Setjið vængjarærnar (28) aftur á.
- Stöðvunarteinana (27) má setja eftir þörfum vinstra eða hægra megin við raufina (29). Setjið hér einungis skrúfurnar hinum megin við raufina (29).
9.4.3 Að stilla skurðarbreidd (mynd 17)
- Þegar viðarhlutar eru sagaðir langsum skal nota langsum-stýrirennu (15).
- Setjið langsumsstýrið (15) við hægri hlið sagarblaðsins (3).
- Setjið langsumsstýrið (15) ofan frá í raufina fyrir langsumsstýrið (14).
- Á raufinni fyrir langsumsstýrið (14) eru tveir kvarðar sem sýna bilið milli langsumsstýrisins (15) og sagarblaðsins (3).
- Veljið viðeigandi kvarða, án tillits til þess hvort raufin (27) sé til að vinna þykkt eða þunnt efni. Há rauf (þykkt efni): Lág rauf (þunnt efni):
- Stillið langsumsstýrið (15) á þá tölu sem óskað er eftir á mælinum og lagið kambhjólið á langsumsstýrinu (30).
- Tryggið, við uppsetningu eða stillingu á stýrinu, að stýrið sé stillt samsíða sagarblaðinu.
9.5 Þverstýring (mynd 18)
- Ýtið þverstýringunni (7) í rauf (31a, 31b) sögunarborðsins.
- Losið rifluðu skrúfurnar (32).
- Snúið þverstýringunni (7), þar til stillt er á þá hornstærð sem óskað er eftir. Örin á langsumsstýrinu sýnir stærðina. (0°-60°)
- Festið aftur hnútóttu skrúfuna (32).
- Teinastöðvunina (34) má ýta að þverstýringunni (7). Til þess, leysið rærnar (33) og ýtið raufinni (34) í kjörna stöðu. Skrúfið rærnar (34) aftur á.
Athugið!
- Ýtið ekki raufinni (34) of langt að sagarblaðinu.
- Bilið milli raufarinnar (34) og sagarblaðsins (3) ætti að nema um 2 cm.
10. Í gangi
Vinnuráðleggingar
Eftir hverja endurstillingu mælum við með prufuskurði til að prófa þá stærð sem er stillt. Eftir að kveikt er á söginni bíðið þar til sagarblaðið hefur náð hámarks snúningshraða áður en sagað er.
Festið löng verkstykki til að verjast því að þau detti niður við lok sögunarinnar (t.d. með rúllustandi o.s.frv.). Varúð við að skera í.
Notið tækið bara með ryksugu. Farið yfir og hreinsið reglulega sogleiðslur.
Sagarblöðin taka:
- 24 tennur: mjúk efni, mikil spænispeytingur. Gróft sögunarverk.
- 48 tennur: hörð efni, lítill spænispeytingur. Fínt sögunarverk.
10.1 Að saga langsum (mynd 19)
Hér er vinnustykkið skorið langsum.
Verkstykkisins er þrýst að langsum-stýrirennunni (15), meðan flata hliðin liggur á sögunarborðinu (1).
(4) þarf alltaf að halla að verkstykkinu.
Vinnuáttin þegar sagað er langsum má aldrei vera samsíða skurðarferlinu.
- Langsum-stýrirenna (15) stillið verkstykkishæð í samræmi við þá breidd sem óskað er eftir. (sjá 9.4)
- Kveikið á söginni.
- Leggið hendurnar flatar með ekkert bil milli fingra á verkstykkið á langsum-stýrirennuna. (15) og ýtið meðfram sagarblaðinu (3)
- Ýtið við hliðina á með vinstri eða hægri höndinni (eftir stöðu langsum-stýrirennunnar) bara að fremri brún fremri kants sagarblaðsvarnarinnar (4).
- Ýtið verkstykkinu ávallt út að enda kloffleygsins.
- Skurðarafgangarnir eiga að vera á sögunarborðinu (1) þar til að sagarblaðið (3) stöðvast.
- Festið langt verkstykki til að það detti ekki við enda skurðarborðsins! (t.d. með rúllustandi osfr.)
10.1.1 Að saga minni verkstykki (mynd 20)
Langsögun verkstykkja sem eru undir 120 mm á breidd þarf nauðsynlega að nota rennistokk (9). Rennistokkur fylgir með í pakkanum. Skipta skal strax út ofnotuðum eða skemmdum rennistokki.
- Stillið langsum-stýrirennuna eftir breidd verkstykkisins. (sjá 9.4)
- Ýtið verkstykkinu með báðum höndum, á sagarblaðssvæðinu notið endilega rennistokk til að ýta. (9).
- Ýtið verkstykkinu ávallt að enda kloffleygsins.
⚠ Athugið! Þegar verkstykkin eru stutt notið ávallt rennistokkinn frá byrjun.
10.1.2 Að saga á ská (mynd 21)
Langsum-stýrirenna (15) er almennt notuð við skásögun
- Stillið sagarblaðið í þá hornastærð sem óskað er eftir. (sjá 9.3)
- Stillið langsum-stýrirennu (15) eftir hæð og breidd verkstykkisins. (sjá 9.4)
- Framkvæma sögunina eftir breidd verkstykkisins. (sjá 10.1)
10.2 Framkvæmd á þverskurðum (mynd 22)
- Ýtið þverstýringunni (7) að annarri hvorri skoru (31a/b) sagarborðsins og stillið að vild. (sjá 9.5). Ef sagarblaðið (3) stillist á ská, notið þá skoruna (31a), sem kemur í veg fyrir að höndin og þverstýringin snerti ekki sagarblaðsvörnina.
- Notið stöðvunarteinana.
- Ýtið verkstykkinu þétt að þverstýringunni (7).
- Kveikið á söginni.
- Ýtið þverstýringunni (7) og verkstykkinu í sagarblaðsáttina til að framkvæma sögunina.
Athugið:
Haldið verkstykkinu sem ýtt er föstu, aldrei lausa verkstykkið sem sagað er.
- Áfram skal snúa stöðvunarstoppinu (7) þar til vinnustykkið er alveg skorið í gegn.
- Slökktu á söginni aftur. Fjarlægja söguna aðeins þegar blaðið hefur stöðvast.
10.3 Skurður á spónaplötum
Til að koma í veg fyrir að skurðarkantarnir verði ójafnir þegar spónaplötur eru sagaðar, ætti sagarblaðið (3) ekki að vera hærra en 5 mm yfir verkstykkisþykkt. (sjá einnig punkt 9.2).
11. Flutningur
- Slökkvið á rafmagnsverkfærinu fyrir flutning af hvaða tegund sem er og takið úr sambandi.
- Minnst tveir skulu halda á rafmagnsverkfærinu, snertið ekki borðbreikkanarnar.
- Verjið rafmagnsverkfærið fyrir höggi, að hlaðið sé ofan á það og fyrir sterkum víbringi, t.d. flutning í bifreiðum.
- Tryggið að rafmagnsverkfærið detti ekki né renni.
- Notið varnartæki aldrei til að lyfta né undir flutning.
12. Þjónusta
⚠ Varúð! Fyrir allar stillingar, viðgerðir eða yfirferðir takið klónna ávallt úr sambandi!
12.1 Almennar þjónustuaðgerðir
- varnarhlutum, loftrimlum og mótorhúsi eins ryk og óhreinindalausu og mögulegt er.
- Þurrkið af tækinu með hreinum klúti blásið af því með vægum loftþrýstingi.
- Við mælum með að tækið sé hreinsað eftir hverja notkun.
- Hreinsið tækið reglulega með rökum klúti og ögn af mildri sápu.
- Notið ekki hreinsi eða leysiefni, þau gætu orsakað skemmdir á gerviefnahlutum tækisins.
- Passið upp á að vatn komist ekki inn í tækið.
- Til að tækið dugi lengur smyrjið það einu sinni í mánuði með olíu. Setjið ekki olíu á mótorinn.
- Hreinsið ryksafnarakerfið með því að blása innihaldi þess út með þrýstilofti.
12.2 Kolburstar
- Ef óeðlilega mikið kemur af blossum látið rafmagnsfagaðila fara yfir kolbustana. Athugið! Einungis rafmagnsfagaðili má skipta um kolbursta.
12.3 Yfirálagsrofi
Vél þessa tækis er búin yfirálagsrofa (11a) sem kemur í veg fyrir yfirálag.
Ef farið er yfir málspennu slekkur yfirálagsrofinn (11a) á tækinu.
Í því tilviki skal gera eftirfarandi:
- Látið tækið kólna í nokkrar mínútur.
- Prýstið á yfirálagsrofann (11a).
- Kveikið á tækinu með því að prýsta á grænan hnapp „l“.
Hafa skal í huga að í tækinu slitna eftirtaldar hlutir við notkun og með tímanum, eða þá að eftirtaldir hlutir teljast rekstrarvara.
Hlutir sem slitna*: Kolburstar, Innlegg í sagarborðið, Ýtiprik, sagarblaðið
* ekki endilega hluti af pöntuninni!
Fá má varahluti og fylgihluti hjá þjónustumiðstöð okkar. Skannið QR-kóðann á forsíðunni til þess.
13. Geymsla
Geymið tækið og fylgihluti þess á dimmum, þurrum og frostlausum stað sem einnig er utan seilingar barna. Ráðlagður geymsluhiti er milli 5 og 30°C.
Geymið rafmagnsverkfærið í upprunalegu umbúðunum.
Hyljið rafmagnsverkfærið til að verja það fyrir ryki eða raka.
Sagarblöð og lykla, sem ekki eru í notkun, má festa eins og sýnt er á mynd 23.
Geymið notkunarhandbókina hjá rafmagnsverkfærinu.
14. Rafmagnstenging
Rafmagnsmótorinn er fastur inn í tækinu og tilbúinn til notkunar. Sambandið er samkvæmt gildandi VDE- og DIN-öryggisreglum. Veitutíðnin, viðskiptarvinarins megin, svo og framlengarsnúran sem notuð er, þarf að vera samkvæmt þessum reglum.
- Varan uppfyllir kröfur EN 61000-3-11 og gilda sérstakar kröfur um tengingu hennar. Það þýðir að notkun á valfrjálsum tengistöðum er ekki heimiluð.
- Tækið getur leitt til tímabundinna spennusveiflna ef rafmagnstenging er óhagstæð.
- Varan er eingöngu ætluð til notkunar á tengistöðum sem
a) fara ekki yfir leyfilegt rafveituviðnám að hámarki „Z“ (Zhám. = 0,346 Ω), eða
b) hafa varanlegt straumálag rafveitunets að lágmarki 100 A fyrir hvern fasa.
- Þú, sem notandi, verður að tryggja í samráði við rafveitufyrirtæki þitt ef þörf krefur, að tengistaðurinn þar sem starfrækja á vöruna, uppfylli eitt eða bæði skilyrðin a) eða b).
Mikilvægar ráðleggingar
Ef mótorinn er ofkeyrður slekkur hann sjálfkrafa á sér. Eftir að hann hefur kólnað (mismunandi tími) kveikir hann aftur á mótorinum.
Á rafmagnstengjum verða oft einangrunarskemmdir.
Orsakir fyrir þessu geta verið:
- Þrýstisvæði, þegar rafmagnstengi eru leidd í gegnum glugga eða dyrastafi.
- Beyglaðir staðir vegna rangrar festingar eða legu snúrunnar.
- Skurðir á snúrinni vegna ágangs.
- Einangrunarskemmdir vegna þess að rifið hefur verið úr innstungunni.
- Rifur vegna þess að einangrunin er gömul.
Slíkar hættulegar rafmagnssnúrur má ekki nota vegna þess að einangrunarskemmdir eru lífshættulegar.
Látið yfirfara rafmagnssnúrur reglulega fyrir skemmdum. Hafið í huga að rafmagnssnúrur mega ekki vera tengdar straumneti.
Rafmagnssnúrur þurfa að uppfylla VDE- og DIN-öryggiskröfur. Notið einungis snúrur merktar H05V V-F.
Miði með tegundarlýsingu á rafmagnssnúrunni er samkvæmt reglum.
Tengigerð Y
Ef rafmagnssnúra tækisins skemmist verður framleiðandinn, viðgerðarþjónusta hans eða rafvirki með álíka hæfni að skipta um hana til að koma í veg fyrir hættur.
Riðstraumsmótor
- Netspennan þarf að þola 230 V~.
- Framlengingarsnúrur þurfa að sýna allt að 25 m lengd og þversnið þeirra þarf að vera 1,5 fermillimetri.
Aðeins rafmagnsfagaðili má gera við leiðslur og rafmagnsbúnað.
Ef þið hafið fyrirspurnir, vinsamlegast gefið upp eftirtalin atriði:
• Straumtegund mótorsins - Upplýsingar um tegund vélarinnar - Upplýsingar um tegund mótorsins
15. Förgun og endurvinnsla

Búnaðurinn kemur í pakkningu til þess að vernda hann í flutningum. Hráefnin í þessari pakkningu geta verið endurnotuð og endurunnin. Búnaðurinn og fylgihlutir hans eru búnir til úr mismunandi efnum, til dæmis málmi og plasti. Biluðum hlutum verður að farga sem sérstökum úrgangi. Spurðu söluaðila þinn eða bæjarstjórn þína.
Notuð tæki mega ekki fara í heimilissorp!

Þetta tákn merkir að samkvæmt tilskipun 2012/19/EU um notuð raf- og rafeindatæki og löggjöf aðildarlandanna má ekki farga þessari vöru í heimilissorp. Skila þarf þessari vöru á þar til ætlaðan söfnunarstað. Þetta getur t.d. átt sér stað við skil þegar keypt er sambærileg vara eða við afhendingu á viðurkenndan söfnunarstað til endurvinnslu á notuðum raf- og rafeindatækjum. Óviðeigandi meðhöndlun notaðra tækja getur, vegna mögulegra hættulegra efna sem oft er að finna í notuðum raf- og rafeindatækjum, haft neikvæð áhrif á umhverfið og heilsu manna. Með viðeigandi förgun þessarar vöru stuðlar þú enn fremur að skilvirkri nýtingu náttúrulegra auðlinda. Upplýsingar um söfnunarstaði fyrir notuð tæki finnur þú hjá borgaryfirvöldum, hjá opinberum úrgangsmeðhöndlunaraðila, á viðurkenndum stað til förgunar á raf- og rafeindatækjum eða hjá sorphirðuþjónustunni.
16. Aðstoð vegna bilana
| Bilun Möguleg orsök Ráð | ||
| Sagarblað losnar er slökkt er á mótomum | Róin er ekki nógu vel fest Festa róna í hægri átt | |
| Mótor fer ekki í gang | Veituöryggi slegið út | Athuga veituöryggi |
| Gölluð framlengingarsnúra | Skipta um framlengingarsnúru | |
| Tenging við mótor eða rofa virkar ekki | Láta rafmagnsfagaðila skoða | |
| Gallaður mótor eða kveikjari | Láta rafmagnsfagaðila skoða | |
| Mótor fer ekki í gang, öryggi fer í gang | Breiddin á framlengingarsnúrunni er ekki nægjanleg | Skoða rafmagnsinnstungu |
| Ofnotkun á brotnu sagarblaði | Skipta um sagarblað | |
| Brunasvæði á skurðarsvæðinu | Brotið sagarblað | Brýna sagarblað, skipta út |
| Rangt sagarblað | Skipta út sagarblaði | |
![]() | Upozorenje! Moguće za nepoštovanje Opasnost po život, rizik od povrede ili oštećenja alata! |
![]() | Prije početka poslovanja i sigurnosne upute pročitajte i pridržavajte! |
![]() | Nositi zaštitne naočale! |
![]() | Nosite zaštitu za sluh! |
![]() | Ako se stvara prašina nosite respiratornu zaštitu! |
![]() | Nosite zaštitne rukavice! |
![]() | Pažnja! Trajanje! Nemojte doći u pogonu list pile! |
![]() | klasa zaštite II |
- Tæknilegar upplýsingar 293
- Fyrir notkun 293
- Uppbygging og meðferð 294
- Meðferð....295
- Rekstur 296
- Flutningur 297
- Viðhald 297
- Geymsla 297
- Raftenging 297
- Förgun og endurvinnsla....298
- Aðstoð við bilanaleit 299
1. Inngangur
Framleiðandi:
Scheppach GmbH
Sýnilegar skemmdir verður að tilkynna innan 8 daga frá móttöku vörunnar. Annars er réttur kaupanda til bóta vegna slíkra skemmda ógildur. Við ábyrgjumst, við rétta meðhöndlun yfir lögbundið ábyrgðartímabil frá afhendingu, að við skiptum um hvern vélarhlut án kostnaðar sem ónothæfur er vegna gallaðs efnis eða skemmda í framleiðslu innan ákveðins tíma. Af því
er tekur til hluti sem ekki eru framleiddir af okkur, ábyrgjumst við af því leyti aðeins að við eigum rétt á ábyrgðarkröfum gagnvart birgðasölum. Kostnaður vegna uppsetningar á nýjum hlutum skal falla í skaut kaupanda. Ógilding sölu eða afsláttur á kaupverði sem og aðrar kröfur vegna skemmda eru undanskildar.








