H-FS 900 - Scie Herkules - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis H-FS 900 Herkules á PDF sniði.

Herkules H-FS 900 - Saga
📄 233 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Herkules H-FS 900 - page 178
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um H-FS 900 Herkules

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Scie á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína H-FS 900 - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. H-FS 900 vörumerkisins Herkules.

NOTENDAHANDBÓK H-FS 900 Herkules

Hætta! – lesið notandaleiðbeiningarnar til þess að takmarka hættu á slysum

Herkules H-FS 900 - 1

Varúð! Notið heyrnahlífar. Virkni hávaða getur valdið heyrnaleysi.

Herkules H-FS 900 - 2

Varúð! Notið rykhlíf. Við vinnu með við og önnur efni getur myndast heilsuskaðlegt ryk. Það er bannað að vinna með efni sem innihalda asbest með þessu tæki!

Herkules H-FS 900 - 3

Varúð! Notið hlífðargleraugu. Við vinnu með þessu tæki myndast neistar, spænir og ryk sem kastast frá tækinu og geta valdið sjónleysi.

Herkules H-FS 900 - 4

Hætta! Skurðarhætta

Herkules H-FS 900 - 5

Varúð! Það má ekki nota rifl aða demants skurðarskífu

Hætta!

Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða. Lesið því notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar vandlega. Geymið allar leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til þeirra ef þörf er á. Látið notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem ekki er nefnd í þessum notandaleiðbeiningum eða öryggisleiðbeiningum.

1. Öryggisleiðbeiningar

Viðeigandi öryggisleiðbeiningar eru að finna í meðfylgjandi skjali!

Viðvörun!

Lesið allar öryggisleiðbeiningar, leiðbeiningar, skýringarmyndir og tæknilegar upplýsingar sem fylgja með þessu rafmagnsverkfæri. Vanhirsla um að fara eftir eftirfarandi leiðbeiningum getur leitt til raflosts, bruna og/eða alvarlegra meiðsla.

Geymið öryggisleiðbeiningarnar og notandaleiðbeiningarnar vel til notkunar í framtíðinni.

  1. Geirskurðarstýring
  2. Langsum stýring
  3. Skurðarskífuhlíf
  4. Skurðarborð
  5. Vatnsílát
  6. Hús
  7. Læsiskrúfa fyrir hallastillingu
  8. Kvarði fyrir geirskurð
  9. Læsiskrúfa fyrir skurðarskífuhlíf
  10. Læsiskrúfa fyrir langstýringu
  11. Haldari fyrir skurðarfl eyg
  12. Höfuðrofi
  13. Hýs rafmagnseiningar
  14. Festiskrúfur fl eyghaldara
  15. Demant-skurðarskifa
  16. Ytri fl ans
  17. Hliðarhlíf
  18. Ró fyrir skurðarskífuhlíf
  19. Kloffl eygur
  20. Mótlykill
  21. Fastur lykill

2.2 Innihald

Vinsamlegast yfirfarið hlutinn og athugið hvort allir hlutir fylgi með sem taldir eru upp í notandaleiðbeiningunum. Ef að hluti vantar, hafið þá tafarlaust, eða innan 5 vinnudaga eftir kaup á tæki, samband við þjónustuboð okkar eða þá verslun sem tækið var keypt í og hafið með innkaupanótuna. Vinsamlegast athugið töflu aftast í leiðbeiningunum varðandi hluti sem eru ábyrgðir.

  • Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr umbúðunum.
  • Fjarlægið umbúðirnar og læsingar umbúða / tækis (ef slíkt er til staðar).
  • Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu. Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort að flutningaskemmdir séu að finna. Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til að ábyrgðartímabil hefur runnið út.

Hætta!

Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur og smáhluti! Hætta er á að hlutir geti fests í hálsi og einnig hætta á köfnun!

• Notandaleiðbeiningar - Öryggisleiðbeiningar

3. Tæknilegar upplýsingar

Afl mótors: 900 W S2 10 min

Snúningshraði mótors: 2950 min⁻¹

Riðstraumsmótor ..... 230 V~ 50 Hz

Einangrunarefni ...... klassi B

Öryggisgerð IPX4

Öryggisstaðall...... I

Lengd skurðar: ...... ótakmarkað

Lengd Jolly: ...... ótakmarkað

Skurðarhæð 90°: 39 mm

Skurðarhæð 45°: 19 mm

Flatarmál skurðarborðs ..... 500 mm x 400 mm

Demant-skurðarskifa ...... ∅ 200 x ∅ 25,4 mm

Þyngd .... um það bil 11,9 kg

Gangsetningartíminn S2 10 mínútur (til stuttrar notkunar) segir til um að mótorinn (900W) megi aðeins vera notaður undir álagi samfleytt í þann tíma sem er gefinn er upp á mótornum (10 mín). Annars myndi mótorinn ofhitna. Meðan að mótorinn er ekki undir álagi kælir hann sig niður í rétt hitastig.

Hætta!

Hávaði og titringur

Hávaðagildi og titringsgildi voru mæld eftir staðlinum EN 62841.

Hámarks hljóðþrýstingur L pA ......92dB(A)

Óvissa K....3dB

Hámarks hávaði L WA ....105 dB(A)

Óvissa K WA ....3 dB

Notið heyrnahlífar.

Virkni hávaða getur valdið heyrnaleysi.

Uppgefin titringsgildi og uppgefin gildi varðandi hávaðamyndun voru mæld eftir stöðluðum prufunaraðferðum og gera fólki kleift að bera eitt rafmagnsverkfæri saman við önnur rafmagnsverkfæri.

Uppgefin titringsgildi og uppgefin hávaðagildi eru einnig hægt að nota til að áætla vinnuálag gróflega.

Viðvörun:

Titrings- og hávaðagildin geta verið önnur en uppgefin gildi við vinnu. Það fer eftir vinnu og vinnulagi sem tækið er notað í. Sérstaklega fer það eftir því efni sem tækið er notað í.

Takmarkið hávaðamyndun og titring eins og hægt er!

  • Notið einungis tæki sem eru í fullkomnu ásigkomulagi.
  • Hirðið um tækið og hreinsið það reglulega. • Lagið vinnu að tækinu. • Ofgerið ekki tækinu. • Látið yfirfara tækið ef þörf er á.
  • Slökkvið á tækinu á meðan það er ekki í notkun.
  • Notið hlífðarvettlinga.

Varúð!

Aðrar áhættur

Þó svo að rafmagnsverkfærið sé notað fullkomlega eftir notendaleiðbeiningum framleiðanda þess, eru enn áhættuatriði til staðar. Eftirtaldar hættur geta myndast vegna uppbyggingu tækisins og notkunar þess:

  1. Lungnaskaði, ef ekki er notast við viðeigandi rykhlífar.
  2. Heyrnarskaði ef ekki eru notaðar viðeigandi heyrnahlífar.
  3. Heilsuskaðar, sem myndast geta vegna titrings á höndum og handleggjum, ef að tækið er notað samfleytt til langs tíma eða ef að tækið er ekki notað samkvæmt leiðbeiningum þess eða ef ekki er rétt hirt um það.

Heilsuskaðar, sem myndast geta vegna titrings á höndum og handleggjum, ef að tækið er notað samfleytt til langs tíma eða ef að tækið er ekki notað samkvæmt leiðbeiningum þess eða ef ekki er rétt hirt um það.

4. Mikilvæg tilmæli

Lesið vinsamlegast notendaleiðbeiningarnar vel og farið eftir þeim leiðbeiningum og tilmælum sem þar eru nefnd. Lærið þannig að umgangast tækið vel, rétt og örugglega og farið eftir þeim öryggisleiðbeiningum sem fylgja með tækinu.

Hætta!

Af öryggisástæðum mega börn og unglingar yngri en 16 ára ekki nota þetta tæki, ekki heldur fólk sem ekki hefur kynnt sér notendaleiðbeiningar flísaskerans.

  • Beranlegur flísaskeri fyrir miðlungs flísar. • Skorið með demantsskurðarskífu.
  • Jollyskurður með hallanlegum skurði upp að 45°. • Vatnskæling fyrir skurðarskífu. • Stýrilisti og vinkilstýring.
  • Kælivatnspanna sem hægt er að fjarlægja. (Til þess að fjarlægja hana verður að lyfta tækinu örlítið.)
  • Ef skurðarskífan festist, slökktu þá á tækinu og taktu það úr sambandi við rafmagn. Fyrst eftir það má fjarlægja verkstykkið.

5. Tilætluð notkun

Flísaskurðarvélina má nota fyrir venjulega vinnu við að skera litlar og meðalstórar flísar (flísar, keramik eða svipuð efni) og það fer eftir stærð vélarinnar. Hún er sérstaklega ætluð fyrir heimavinnu og fyrir handverksmenn. Það er ekki leyfilegt að skera tré og málma með vélinni. Vélina má eingöngu nota til þess sem hún er ætluð fyrir. Öll önnur notkun er ekki í samræmi við fyrirhugaða notkun. Fyrir slíka notkun er notandinn ábyrgur, en ekki framleiðandinn. Það er einungis leyfilegt að nota skurðarskífur sem eru viðeigandi fyrir vélina. Það er bannað að nota sagarblöð. Fyrirhuguð notkun segir líka að öryggisleiðbeiningar, leiðarvísar fyrir samsetningu og vinnu með vélinni samkvæmt notkunarleiðbeiningum eru hluti af þessu og verður að taka tillit til þeirra. Fólk sem vinnur með vélinni og sér um hana verður að þekkja vélina og hafa fengið kennslu í mögulegum hættum. Auk þess á að taka tillit til gildandi öryggisreglna. Öðrum almennum reglum um heilbrigðislegar

starfsreglur og varðandi öryggi á að fara eftir. Breytingar á vélinni útiloka alveg ábyrgð framleiðanda og ef skaðar verða vegna þess. Þrátt fyrir að tækið sé notað með tilliti til "fyrirhugaðrar notkunar" er ekki allgjörlega hægt að útiloka sum áhættuatriði. Í sambandi við gerð og uppbyggingu vélarinnar geta eftirfarandi atriði komið fyrir:

  • Snerting demantaskifunnar á svæði sem er ekki hulið með hlífum. • Grip í demantskífu sem er á hreyfingu.
  • Stykki úr skemmdri demantaskífu sögunarvélarinnar geta slöngvast út eða líka hlutar af efninu sem verið er að saga eða efnið allt.
  • Heyrnarskaðar ef ekki eru notaðar eyrnahlífar.

Athugið að verkfæri okkar eru ekki til þess ætluð að nota þau á verkstæðum í iðnaði, á verkstæðum handverks og þau eru ekki byggð fyrir slíka notkun. Við tökum enga ábyrgð ef verkfærið er notað á verkstæðum og í iðnaði eða svipuðum fyrirtækjum.

6. Fyrir notkun

  • Stilla verður upp tækið þannig að það sé mjög stöðugt. Það er að segja á vinnuborði eða skrúfað fast á borð eða á undirgrind.
  • Festa verður allar hlífar og öryggisbúnað á tækið áður en það er notað í fyrsta skipti.
  • Demantskurðarskífan verður að geta snúist frjálst.
  • Áður en höfuðrofinn er gerður virkur verður að ganga úr skugga um að skurðarskífan sé vel fest og að allir hreyfanlegir hlutar tækisins geti hreyfst óhindrað. Gangið úr skugga um að spenna rafrásarinnar sem nota á sé sú sama og gefin er upp í upplýsingarskilti tækisins.
  • Áður en tækið er notað verður að ganga úr skugga um að allir hlutar tækisins séu óskemmdir; ef svo er ekki verður að skipta út þeim hlutum. Ef skipt er um hluti á tækinu verður að fara eftir leiðbeiningunum í notendahandbókinni.
  • Haldið tækinu ávallt hreinu til þess að tryggja hámarks afkastagetu og til að auka öryggi við vinnu. Yfirfarið rafmagnsleiðslu tækisins reglulega. Gangið úr skugga um að allir hlutar tækisins séu rétt samansettir, yfirfarið hluti sem eyðast upp og festið þá hluti sem hafa losnað.
  • Ábending! Flísaskerinn er ætlaður til notkunar með vatni. Athugið fyrir hvern

skurð að vatnsyfirborðið hylji demantalag skurðarskífunnar. Fyllið kælivatn beint í pönnuna.

6.1 Samansetning

Setjið tækið saman eins og lýst er á myndum 2-12.

6.1.1 Demantaskurðarskífa ásett (myndir 4,5)

Til að setja skurðarskífuna í tækið á að fara að eins og hér lýst:

• Fjarlægið hliðarhlífina (17) - Skrúfið róna (d) af mótoröxlinum og fjarlægið ytri skífuna (16). - Setjið skurðarskífu (15) á öxulinn, stingið ytri skífunni (16) aftur uppá og skrúfið róna (d) með hendinni á skrúfganginn. - Setjið fasta lykilinn (21) á róna (d) og haldið mótoröxlinum föstum á móti með mótyklinum (20) og herðið róna með lyklinum (21). • Hliðarhlífin aftur ásett.

Ábending! Athugið að snúningsátt skurðarskífunnar sé rétt!

6.1.2 Kloffleygur settur í tækið (myndir 6,7)

  • Skrúfið skrúfurnar (14) upp úr tækisborðinu til að losa festingu kloffleygsins (11).
  • Setjið kloffleyginn (19) að ofanverðu í gegnum tækisborðið.
  • Festið festingu kloffleygsins (11) með skrúfunum (14) við kloffleyginn.
  • Kloffleygurinn verður að vera staddur á miðju ímyndaðri línu sem liggur aftur frá skurðaskífunni (15) þannig að efni sem skorið er geti ekki fests í tækinu.

6.1.3 Skurðarskífuhlíf ísett (myndir 8, 9)

  • Setjið nú skurðarskífuhlífina (3) á kloffleyginn (19).
  • Snúið læsiskrúfunni (9) í sjálfherðandi róna (18), þar til enn er rétt hægt að hreyfa skurðarskífuhlífina.
  • Stillið skurðarskífuhlífina þannig að hún sé um það bil 5 mm fyrir ofan flísina sem skera á og læsið henni með læsiskrúfunni (9).

6.2 Skipt um demant-skurðarskífu (mynd 4, 5)

Ef skipta þarf um uppnotaða skurðarskífu, farið þá eftir þessum leiðbeiningum:

Takið tækið úr sambandi við straum.

• Fjarlægið kælivatnspönnuna (5). • Fjarlægið hliðarhlífina (17). • Læsið mótoröxlinum með mótyklinum (20). - Skrúfið læsiróna (d) ytri flans (16) af með fas-

ta lyklinum (21).

  • Prífið öxulinn og festinguna vel eftir að búið er að fjarlægja skurðarskífuna.
  • Fjarlægið uppslitna demant-skurðarskífuna (15) og stingið nýrri upp á festinguna (16), herðið svo með festiróinni (d). • Festið hliðarfestinguna (17) aftur á tækið.
  • Varúð! Athugið að demant-skurðarskífan snúi rétt!

7. Notkun

7.1 Lóðréttur skurður (mynd 13)

  • Skurðarbreidd er stillt með langstýringunni (2) og henni er læst með læsiskrúfunni (10). Breidd efnisstykkisins er hægt að lesa af kvarðanum. Mynd 13 sýnir rétta stellingu handa á meðan að skorið er lóðréttan skurð. Hraði verkstykkis takmarkast af getu skurðarskífunnar. Pannig er gengið úr skugga um að efni flosni ekki í sundur og afgangar verði til sem gætu einnig orsakað slys.

Varúð! Athugið vatnsyfirborðið reglulega.

7.2 45°-Geirskurður (Jolly) (mynd 14)

  • Stillið borðið samkvæmt mynd 14 og læsið með læsiskrúfu (7). Leggið flísina með glanshliðina að skurðarborðinu og tryggið að skurðarskífan snerti ekki glanshlið flisarinnar. Finstillið ef þörf er á. Mynd 14 sýnir rétta stellingu handa á meðan að skorinn er geirskurður um 45°. Hægri hönd heldur verkstykkinu upp að skurðarskifunni á meðan að vinstri höndin ýtir verkstykkinu frammávið. Hraði verkstykkis takmarkast af getu skurðarskífunnar. Pannig er gengið úr skugga um að efni flosni ekki í sundur og afgangar verði til sem gætu einnig orsakað slys.

7.3 Höfuðrofi (mynd 1)

  • Til þess að ræsa tækið er þrýst á „l“ á höfuðrofanum (12).
  • Til þess að slökkva á tækinu er þrýst á „0“ á höfuðrofanum (12).

8. Skipt um rafmagnsleiðslu

Hætta!

Ef að rafmagnsleiðsla þessa tækis er skemmd, verður að láta framleiðanda, viðurkenndan þjónustuaðila eða annan fagaðila skipta um hana til þess að koma í veg fyrir tjón.

9. Hreinsun, umhirða og pöntun varahluta

Hætta!

Takið tækið úr sambandi við straum áður en að það er þrifið.

9.1 Hreinsun

  • Haldið hlífum, loftrifum og mótorhúsi tækisins eins lausu við ryk og óhreinindi og hægt er. Þurrkið af tækinu með hreinum klút eða blásið af því með háþrýstilofti.
  • Við mælum með því að tækið sé hreinsað eftir hverja notkun.
  • Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og örlitilli sápu. Notið ekki hreinsiefni eða ætandi efni; þessi efni geta skemmt plastefni tækisins. Gangið úr skugga um að það komist ekki vatn inn í tækið. Ef vatn kemst inn í rafmagnsverkfæri, eykst hætta á raflosti.

9.2 Umhirða

Inni í tækinu eru engir aðrir hlutir sem þarfnast umhirðu.

9.3 Pöntun varahluta:

Þegar varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind:

Gerð tækis • Gerðarnúmer tækis • Númer tækis - Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á. Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-gmbh.info

Þetta tæki er afhent í umbúðum sem hlífa tækinu fyrir skemmdum við flutninga. Þessar pakkningar eru endurnýtanlegar eða hægt er að endurvinna þær. Þetta tæki og aukahlutir þess eru úr mismunandi efnum eins og til dæmis málmi og plastefnum. Skemmd tæki eiga ekki heima í venjulegu heimilissorpi. Til þess að tryggja rétta förgun á þessu tæki ætti að skila því til þar til gerðra sorpmóttökustöðva. Ef þér er ekki kunnugt um þessháttar sorpmóttökustöðvar ættir þú að leita til bæjarskrifstofu varðandi upplýsingar.

11. Geymsla

Geymið tækið og aukahluti þess á dimmum, þurrum og frostlausum stað þar sem börn ná ekki til. Kjörhitastig geymslu er á milli 5 og 30 °C. Geymið rafmagnsverkfæri í upprunalegum umbúðum.

12. Flutningur

Ef flytja á tækið á annan stað, takið þá tækið úr sambandi við straum og setjið það á annan stað sem til þess er fallinn.

Herkules H-FS 900 - Flutningur - 1

Sérstök skilyrði fyrir lönd Evrópubandalagsins:

Kastið ekki notuðum rafmagnstækjum í venjulega ruslatunnu.

Samkvæmt reglugerð Evrópu 2012/19/EU um gömul rafmagnstæki og samkvæmt breytingum í lagasetningu hverrar þjóðar sambandsins verður að safna raftækjum aðskilið og koma þeim í sérstaka endurvinnslu í þágu umhverfisverndar.

Í staðinn fyrir að senda tækin til baka er eigandi þeirra hvattur til að vinna að því að rétt endurvinnsla eigi sér stað þegar hann afsalar sér tækinu sem eigandi. Það er mögulegt að afhenda tækið til sérstakrar söfnunarstofnunar, sem sér um endurvinnslu tækisins samkvæmt lögum hinna ýmsu þjóða um endurvinnslu og sorp. Þetta á samt ekki við um viðbótarhluti, sem innihalda ekki rafmagnshluta.

Eftirprentun eða önnur fjölprentun fylgiskjala og leiðarvísa vörunnar, líka í úrdrætti, er ekki leyfileg nema skriflegt samþykki frá iSC GmbH komi til.

Það er áskilið að tæknilegar breytingar séu leyfilegar.

Stærri leiðbeiningar og upplýsingar varðandi varahluti eru að finna undir: http://help.isc-gmbh.info

Þjónustuupplýsingar

Við höfum faglega þjónustuaðila í öllum þeim löndum sem ábyrgðarskírteini er gefið út í og er heimilisfang þeirra gefið upp í ábyrgðarskírteininu. Þessir þjónustuaðilar eru til staðar fyrir þig varðandi viðgerðir, pantanir varahluta og íhluta.

Athuga verður að sumir eftirtaldir hlutir tækisins eru hlutir sem notast upp við notkun eða á annan náttúrulegan hátt og/eða eftirfarandi hlutir eru nauðsynlegir vegna notkunar eða slits.

Grein Dæmi
Slithlutir*
Notkunarefni/hlutir sem notast upp* Skurðarskifa
Hlutir sem vantar

* verða ekki endilega að fylgja!

Vegna galla eða bilana biðjum við þig um að hafa samband við okkur og skrá það á netinu undir www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast athugið að lýsa biluninni nákvæmlega og svarið endilega eftirfarandi spurningum:

Virkaði tækið fyrst eða var það bilað strax frá upphafi? - Varð þér vart við eitthvað óvenjulegt áður en bilunin kom til (greining bilunar)? • Hvaða bilun lýsir sér í tækinu samkvæmt þinni skoðun (aðalbilun)? Lýsið biluninni.

Ábyrgðarskírteini

Kæri viðskiptavinur,

Vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef að tækið virkar þrátt fyrir það ekki fullkomlega, þykir okkur það mjög leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilisfang er að finna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:

  1. Ábyrgðarskírteini þessa tækis gildir eingöngu fyrir einkanotendur, þ.e.a.s. persónur sem nota þetta tæki ekki til atvinnunota né í annarri sjálfstæðri vinnu. Þetta ábyrgðarskírteini lýsir aukalegri ábyrgð sem neðan nefndur framleiðandi ábyrgist viðskiptavinum sínum umfram þær ábyrgðir sem reglur og lög gefa kröfur um. Þín almenna lagalega ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgðaliði. Ábyrgðarþjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu.
  2. Ábyrgðin nær eingöngu yfir galla á nýju tæki sem þú hefur fest kaup á sem var framleitt af neðangreindum framleiðanda. Ábyrgðin nær einungis yfir galla sem eru vegna efnisgalla eða framleiðslugalla og takmarkast við okkar ákvörðun um að endurbæta gallann eða skipta út tækinu. Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef að tækið er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskyni eða annan sambærilegan hátt.
  3. Ábyrgð okkar gildir ekki yfir:
  4. Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangrar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notandaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tækið hefur verið tengt við ranga rafspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækisins varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tækið hefur verið notað undir óeðlilegum náttúruáhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu.
  5. Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir íhlutir eða aukahlutir), ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tækið (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, flutningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða utanaðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tækið fellur niður).
  6. Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra utanaðkomandi eðlilegra uppnotkunar.
  7. Ábyrgðartíminn er 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaups á tæki. Tilkynna verður um skemmdir eða galla á tæki áður en ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemmdin er fundin. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi eftir að ábyrgðartímabilið er útrunnið. Ef gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd til staðar.
  8. Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafið þá samband við: www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast geymið kaupkvittanir og önnur skjöl sem staðfesta kaupin á nýju tæki. Tæki sem send eru til viðgerðar sem ekki hafa tilskildar kvittanir eða tæki án tækismerkingar missa alla ábyrgð þar sem ekki er hægt að tilgreina þau tæki. Ef skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess færðu umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla.

Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notandaleiðbeiningunum.

Herkules H-FS 900 - Ábyrgðarskírteini - 1

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Herkules

Líkan : H-FS 900

Flokkur : Saga