NOTENDAHANDBÓK WorkTunes Pro 3M
Til hamingju og takk fyrir að velja 3M™ PELTOR™-samskiptalausnir! Við kynnum nýja kynslóð samskiptalausna með hlífðarbúnaði.
Öryggisupplýsingar
Lesið öryggisupplýsingarnar í þessum leiðbeiningum vandlega og fylgið þeim við notkun á búnaðinum. Geymið þessar leiðbeiningar til síðari nota.
Fyrirhuguð notkun
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnarhlífum er ætlað að veita vörn gegn hættulegum hávaðastigum og háværum hljóðum, en gera notandanum kleift að hlusta á umhverfið með umhverfishljóðnemunum. Ætlast er til þess að allir notendur lesi meðfylgjandi notendaleiðbeiningar vandlega og kunni að nota búnaðinn.
Útskýringar á afleiðingum viðvörunarorða

VIÐVÖRUN:
Gefur til kynna hættulegar aðstæður sem gætu leitt til alvarlegra meiðsla eða dauða, ef ekki er gefinn gaumur að þeim.

VARÚÐ:
Gefur til kynna hættulegar aðstæður sem gætu leitt til minni háttar eða alvarlegri meiðsla, og/eða eignatjóns, ef ekki er gefinn gaumur að þeim.
ATHUGIÐ:
Gefur til kynna aðstæður sem gætu leitt til eignatjóns, ef ekki er gefinn gaumur að þeim.
⚠️ VIÐVÖRUN
- Sé upplýsingunum og ráðleggingunum sem hér er að finna ekki fylgt skerðist vörn heyrnarhlífanna talsvert.
- Þessar heyrnarhlífar hjálpa til við að draga úr váhrifum vegna hættulegs hávaða og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar ekki notaðar eða notaðar á rangan hátt í hættulegum hávaða getur það valdið heyrnartapi eða áverkum. Lesið notendaleiðbeiningarnar eða hafið samband við verkstjóra eða tækniþjónustuver 3M til að fá upplýsingar um rétta notkun.
- Heyrnarhlífar, þá sérstaklega púðar, geta eyðst við notkun og athuga ætti til dæmis reglulega hvort á þeim séu sprungur eða þeir leki.
Við reglulega notkun mælir 3M með að skipt sé um svampklæðningu og púða a.m.k. tvisvar á ári til að viðhalda stoðugri hljóðdeyfingu, hreinlæti og þægindum. Skipta skal um púðana ef þeir skemmast. Púðarnir og svampklæðningin geta eyðst við notkun og athuga ætti reglulega hvort á þeim séu sprungur eða aðrar skemmdir.
- Tryggið að heyrnarhlífarnar passi, séu rétt stilltar, nothæfi þeirra sé athugað reglulega og þeim viðhaldið í samræmi við notendaleiðbeiningarnar. Sé búnaðurinn ekki rétt stilltur dregur það úr skilvirkni hljóðdeyfingarinnar. Upplýsingar um réttar stillingar má finna í meðfylgjandi leiðbeiningum.
- Nota skal heyrnarhlífar öllum stundum í háværu umhverfi til að fá viðeigandi vernd.
- Sé afþreyingarefni notað við vinnu kunna viðmiðunarmerki á tilteknum vinnustöðum að skerðast.
- Séu hreinlætishlífar settar á púðana getur það haft áhrif á hljóðeinangrun heyrnarhlífanna.
- Komi öryggis- eða hlífðargleraugu eða ólar á öndunarhlífum á milli þéttiyfirborðsins á heyrnarhlífunum og höfuðs notandans verður hljóðdeyfingin hugsanlega minni. Veljið öryggis- eða hlífðargleraugu með flötum, mjóum örmum eða ólum sem hafa lítil áhrif á þéttingu heyrnarhlífanna til að hljóðdeyfingin verði sem best. Takið sitt hár aftur og fjarlægið aðra hluti sem geta dregið úr þéttingu heyrnarhlífanna, eins og blýanta, hatta, skartgripi eða heyrnartól. Beygið ekki höfuðbandið því þá verður það laust og hljóðeinangrun tapast.
- Heyrnarhlífar sem festar eru á hjálma eru í stórum stærðum. Heyrnarhlífar sem fylgja staðlinum EN 352-3 eru af öllum stærðum. Miðlungsstórar heyrnarhlífar passa á flesta notendur. Litlar eða stórar heyrnarhlífar eru hannaðar fyrir þá sem geta ekki notað miðlungsstórar heyrnarhlífar.
- Séu heyrnarhlífarnar notaðar samkvæmt notendaleiðbeiningunum draga þær úr váhrifum vegna stöðugs hávaða, eins og iðnaðarhljóða og hljóða frá ökutækjum og flugvélum, auk háværra, hvellra hljóða eins og byssuskota. Erfitt er að segja til um nauðsynlega og/eða raunverulega vernd sem fengin er við váhrif frá hvellum hljóðum. Fyrir byssuskot hafa gerð vopnsins, fjöldi skota, rétt val, stillingar og notkun heyrnarhlífanna, rétt umhirða þeirra og aðrir hlutir áhrif á afköst heyrnarhlífanna. Ef heyrn þín minnkar eða þú heyrir ískur eða suð í eyrunum þegar eða eftir að þú hefur verið í hávaða (þ.m.t. byssuskot), eða þig grunar af einhverri annarri ástæðu að þú gætir átt í vandræðum með heyrnina gæti heyrn þín verið í hættu. Frekari upplýsingar um heyrnarhlífar fyrir hvell hljóð má finna á www.3M.com/hearing.
- Takmörkun á ílagsmerkinu er aðeins haldið fyrir hljóðstig sem fer ekki yfir 250 mV RMS. • Höfuðbandið og höfuðbúnaðurinn fást í stærðunum S, M og L og festingarnar á hjálmana eru í stærð L. VARÚD
SPRENGIHÆTTA EF RAFHLÖÐUNNI ER SKIPT ÚT FYRIR AÐRA AF RANGRI GERÐ. FARGIÐ NOTUÐUM RAFHLÖÐUM Í SAMRÆMI VIÐ LEIÐBEININGAR
ATHUGIÐ
- Þó að mælt sé með því að fólk noti heyrnarhlífar til að verjast skaðlegum áhrifum af högghljóðum, er hljóðdeyfingarflokkunin (NRR) byggð á deyfingu á samfelldum hávaða og gefur því ekki nákvæmar upplýsingar um vernd gegn högghljóðum eins og byssuskotum.
- Sé hljóðdeyfingarflokkunin notuð til að meta vernd á hefðbundnum vinnustað, mælir 3M með því að hún sé lækkuð um 50%, eða í samræmi við viðeigandi reglugerðir.
- Tiltekin efni kunna að hafa truflandi áhrif á þessa vöru. Frekari upplýsingar skal fá hjá framleiðanda.
- Í Kanada þurfa notendur öryggishjálma fyrir vinnustaði með heyrnarhlífum að fylgja CSA-staðli Z94.1 um öryggishöfuðbúnað fyrir iðnað.
- Hitasvið við notkun: -20 °C (-4 °F) til 55 °C (131 °F)
- Hitasvið við geymslu: -20 °C (-4 °F) til 55 °C (131 °F)
- Þyngd heyrnarhlífa: HRXS220A = 351 g, HRXS220P3E = 369 g, HRXS221A = 353 g, HRSX221P3E = 371 g. 3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að þessar 3M™ PELTOR™-heyrnarhlífar eru í samræmi við grunnkröfur og önnur ákvæði sem sett eru fram í viðeigandi tilskipunum. Með því uppfylla þær kröfur til CE-merkingar.
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að gerð útvarpsbúnaðarins [útvarpsmóttakari] sé í samræmi við tilskipun 2014/53/ESB. Finna má ESB-samræmisyfirlýsinguna í heild sinni á eftirfarandi vefsvæði: http://www.3M.com/peltor/doc
Varan var prófuð og samþykkt í samræmi við [EN 352-1:2002 / EN 352-3:2002, EN352-4:2001/A1:2005, EN352-6:2002, EN352-8:2008].

Viðbótarupplýsingar má nálgast hjá 3M í innkaupslandi eða hjá 3M Svenska AB Värnamo. Samskiptaupplýsingar má finna á síðustu síðum notendaleiðbeininganna.
Þessi vara inniheldur rafmagns- og rafeindahluti og henni má ekki farga með almennu sorpi. Ráðfærið ykkur við staðbundnar tilskipanir fyrir förgun á rafmagns- og rafeindabúnaði.
Gerðarprófunarvottorð tilkynnts aðila samkvæmt tilskipun 89/686/EBE:
PZT GmbH, An der Junkerei 48 F, D-26389 Wilhelmshaven, Germany. Tilkynntur aðili #1974

Blandið ekki gömlum og nýjum rafhlöðum saman. Blandið ekki alkaline-rafhlöðum, hefðbundnum eða endurhlaðanlegum rafhlöðum saman. Fylgið staðbundnum reglugerðum um förgun fasts úrgangs til að farga rafhlöðum á réttan hátt.
SAMRÆMI VID EMC
Þetta tæki samræmist 15. hluta reglna FCC. Notkun er háð eftirtöldum tveimur skilyrðum: (1) Þessi búnaður má ekki valda skaðlegum truflunum og (2) Þessi búnaður verður að taka á móti öllum truflunum, þ.m.t. truflunum sem gætu valdið óæskilegri virkni.
Athugið: Þessi búnaður hefur verið prófaður og telst fara að takmörkunum fyrir stafrænt tæki í B-flokki, samkvæmt 15. hluta reglna FCC. Þessum takmörkunum er ætlað að veita hæfilega vernd gegn skaðlegri truflun í íbúðarbyggð. Þessi búnaður myndar, notar og getur gefið frá sér útvarpstíðniorku og ef hann er ekki settur upp og notaður í samræmi við leiðbeiningarnar getur það valdið skaðlegum truflunum á þráðlausum fjarskiptum. Hins vegar er engin trygging fyrir því að truflanir eigi sér ekki stað á tilteknu svæði. Valdi þessi búnaður skaðlegum truflunum, sem hægt er að komast að raun um með því að slökkva og kveikja á tækinu, er notandinn hvattur til að reyna að draga úr trufluninni með einni eða fleiri af eftirfarandi ráðstöfunum:
- Snúa móttökuloftnetinu eða færa það.
· Auka fjarlægðina á milli tækjanna tveggja.
· Hafa samráð við tækniþjónustu 3M.
ENGAR BREYTINGAR: Ekki skal gera breytingar á búnaðinum án skriflegs samþykkis frá 3M. Óheimilar breytingar geta ógilt ábyrgðina og heimild notandans til að nota búnaðinn.
ÁBYRGÐ OG TAKMÖRKUN BÓTAÁBYRGÐAR
Athugið: Eftirfarandi fullyrðingar eiga ekki við í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Neytendur skulu reiða sig á lögboðin réttindi sín.
ÁBYRGÐ: Ef efnisgalli eða galli finnst í framleiðslu á einhverjum persónuhlífum frá 3M, eða þær uppfylla ekki neina ábyrgð í ákveðnum tilgangi, er 3M aðeins skuldbundið til að gera við, skipta út eða endurgreiða kaupverð þeirra hluta eða vara ef tímanleg tilkynning um vandamálið berst frá þér og staðfesting á að varan hafi verið geymd, henni viðhaldið og hún notuð í samræmi við skriflegar leiðbeiningar frá 3M. ÞESSI ÁBYRGÐ, NEMA LÖG BANNI, GILDIR EINGÖNGU OG KEMUR Í STAD ALLRAR BEINNAR EÐA ÓBEINNAR ÁBYRGÐAR Á SÖLUHÆFI, NOTHÆFI EÐA ANNARRAR GÆÐAÁBYRGÐAR, EÐA ÁBYRGÐAR SEM KEMUR TIL VEGNA VIÐSKIPTA, VENJA EÐA VIÐSKIPTAVENJA, NEMA VEGNA TITILS EÐA GEGN BROTI Á EINKALEYFI. 3M ber enga ábyrgð samkvæmt skilmálum ábyrgðarinnar gagnvart vörum sem bila vegna ófullnægjandi eða rangrar geymslu, meðhöndlunar eða viðhalds, ef vöruleiðbeiningum er ekki fylgt, eða vegna breytinga eða skemmda á vörunni vegna slyss, vanrækslu eða misnotkunar.
TAKMÖRKUN Á BÓTAÁBYRGÐ: 3M SKAL UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM VERA ÁBYRGT FYRIR, NEMA LÖG BANNI, BEINU, ÓBEINU, SÉRSTÖKU, TILFALLANDI EÐA AFLEIDDU TJÓN EÐA SKAÐA (Þ.M.T. HAGNAÐARTAPI) SEM ORSAKAST AF ÞESSARI VÖRU, ÓHÁÐ ÞEIM LAGAKENNINGUM SEM HALDIÐ ER FRAM. ÚRRÆÐIN SEM HÉR KOMA FRAM ERU SÉRSTÖK ÚRRÆÐI.
ENGAR BREYTINGAR: Ekki skal gera breytingar á þessum búnaði án skriflegs samþykkis frá 3M. Óheimilar breytingar geta ógilt ábyrgðina og heimild samkvæmt reglum eftirlitsnefndar alríkisfjarskipta í Bandaríkjunum (FCC) um notkun þessa búnaðar.
RANNSÓKNIR Á HLJÓÐDEYFINGU
Útskýring á töflum yfir hljóðdeyfingu:
Evrópustaðall EN 352
A:1 Tíðni (Hz)
A:2 Meðaldeyfing (dB)
A:3 Staðalfrávik (dB)
A:4 Áætlað varmargildi, APV (dB)
A:5
H = Áætluð heyrnarvernd fyrir hátíðnihljóð (f ≥ 2000 Hz).
M = Áætluð heyrnarvernd fyrir millitíðnihljóð (500 Hz < f < 2000 Hz).
L = Áætluð heyrnarvernd fyrir lágtíðnihljóð (f ≤ 500 Hz).
Bandarískur staðall ANSI S3.19-1974
B:1 Tíðni (Hz) B:2 Meðaldeyfing (dB) B:3 Staðalfrávik (dB)
Styrkur hávaða á eyra þegar heyrnarhlífar eru notaðar samkvæmt leiðbeiningum, er áætlaður með mismuninum á A-vegnu hávaðastigi umhverfisins og hljóðdeyfingarflokkuninni (NRR).
Dæmi
- Hávaðastig umhverfisins mælt við eyra er 92 dBA.
- Hljóðdeyfingarflokkunin (NRR) er 19 desíbel (dB).
- Styrkur hávaðans á eyrað er u.b.b. 79 dB(A).
VARÚÐ: Fyrir hávaðasvæði þar sem tíðnin er undir 500 Hz ætti að nota C-vegið hávaðastig umhverfis.
Ástralskur/nýsjálenskur staðall AS/NZS 1270:2002
C:1 Prófunartíðni C:2 Meðaldeyfing C:3 Staðalfrávik C:4 Meðalgildi að frádregnu staðalfráviki
Samhæfir öryggishjálmar fyrir vinnustaði
EN352-3:2003: Þessar heyrnarhlífar ætti aðeins að nota með öryggishjálmum fyrir vinnustaði sem taldir eru upp í töflu D. AS/NZS 1270:2002: Þessar heyrnarhlífar voru prófaðar með eftirfarandi öryggishjálmum fyrir vinnustaði og gætu veitt annað verndarstig séu þær notaðar með öðrum hjálmum.
Útskýring á töflunni fyrir festingar á öryggishjálma fyrir vinnustaði:
D:1 Framleiðandi hjálmsins D:2 Gerð hjálmsins D:3 Festing á hjálm D:4 Höfuðstærð: S = lítið, M = miðlungs, L = stórt
ÍHLUTIR
F:1 Rennið skálunum út og hallið efri hluta þeirra út, snúran verður að vera utan á höfuðbandinu. F:2 Stillið hæð skálanna með því að færa þær upp eða niður meðan haldið er í höfuðbandið. F:3 Höfuðbandið á að hvíla ofan á höfðinu.
Festing á hjálm
F:7 Setjið festinguna í raufina á hjálminum og smellið henni í (F:8). F:9 Vinnustilling. Til að skipta úr loftræstistillingu í vinnustillingu skal ýta spönginni inn þar til smellur heyrist á hvorri hlið. Gangið úr skugga um að skálarnar og spöngin ýti ekki á brún hjálmsins í vinnustillingu því það getur valdið hljóðleka. F:10 Loftræstistilling. Forðist að setja skálarnar á hjálminn (F:11) því það kemur í veg fyrir loftræstingu.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Kveikt og slökkt á heyrnarhlífunum
Haldið niðri hnappnum til að kveikja/slökkva (E:9). Aðgerðin verður staðfest með raddskilaboðum.
Hljóðstyrkur útvarpsins stilltur
Ýtið á hnappinn + eða - til að stilla hljóðstyrk útvarpsins. Tækið er með átta hljóðstillingar; lægsta stillingin slekkur á útvarpinu til að hægt sé að hlusta á ytra inntak.
Leitað að rásum
Ýtið á hnappinn til að kveikja/slökkva til að leita að útvarpsrásum. Aðgerðin verður staðfest með raddskilaboðunum „Search station“ (leita að rás). Ýtið á + eða - hnappinn til að skipta um rás. Raddskilaboð láta þig vita á hvaða tíðni þú ert og stutt hljóð lætur þig vita þegar þú hættir að leita að nýrri rás.
Rás vistuð
Haldið niðri hnappnum til að kveikja/slökkva til að vista rás þegar leitað er að útvarpsrásum. Til að hlusta á vistaðar útvarpsrásir skal ýta á hnappinn til að kveikja/slökkva þar til raddskilaboðin „Stored station“ (vistuð rás) heyrast. Ýtið á + eða - til að fara í gegnum vistaðar rásir.
Skipt um AM/FM-tíðnisvið (aðeins fyrir tilteknar gerðir)
Ýtið á hnappinn til að kveikja/slökkva til að skipta um tíðnisvið. Aðgerðin verður staðfest með raddskilaboðunum „Radio band“ (tíðnisvið). Ýtið á + eða - hnappinn til að skipta um tíðnisvið.
Hlustað í gegnum 3,5 mm ytra tengið
Tengið ytra tæki við 3,5 mm tengið með 3,5 mm snúru (seld sér). Ýtið á hnappinn - til að stilla hljóðstyrk útvarpsins á lægstu stillingu svo að hægt sé að hlusta á ytra tækið. Stillið hljóðstyrkinn á ytra tækinu.
Sjálfvirk stöðvun
Búnaðurinn slekkur sjálfkrafa á sér ef hann er ekki notaður í fjórar klukkustundir. Þetta er gefið til kynna með raddskilaboðunum „automatic power off“ (sjálfvirk stöðvun) ásamt röð stuttra hljóða áður en slokknar á búnaðinum. Ýtið á einhvern hnapp til að koma í veg fyrir sjálfvirka stöðvun.
ÞRIF OG VIÐHALD
Notið sápu og volgt vatn til að hreinsa skálarnar, höfuðbandið og púðana að utan.
ATHUGIÐ: EKKI setja heyrnarhlífarnar í vatn.
Ef heyrnarhlífarnar blotna vegna rigningar eða svita skal snúa skálunum við, fjarlægja púðana og svampklæðninguna og leyfa því að þorna áður en þetta er sett aftur saman. Púðarnir og svampklæðningin geta eyðst við notkun og athuga ætti með reglulegu millibili hvort á þeim séu sprungur eða þau leki. Við reglulega notkun mælir 3M með að skipt sé um svampklæðningu og púða a.m.k. tvisvar á ári til að viðhalda stöðugri hljóðdeyfingu, hreinlæti og þægindum. Skipta skal um púðana ef þeir skemmast. Sjá hlutann „Varahlutir“ hér á eftir.
PÚÐAR FJARLÆGDIR OG SKIPT UM ÞÁ
G:1 Til að fjarlægja púðann skal renna fingri undir brúnina og toga ákveðið beint út.
G:2 Til að skipta um púðann skal setja svampklæðninguna í. Passið að velja rétta þykkt á svampklæðningunni. Þykkt nýju svampklæðningarinnar ætti að vera sú sama og á þeirri sem skipt er um.
G:3 Setjið aðra hlið púðans í dældina á skálinni og ýtið á hina hliðina þar til púðinn smellur í.
SKIPT UM RAFHLÖÐUR
Opnið krækju H:1 með fingrunum.
H:2 Opnið skálina.
H:3 Setjið rafhlöðurnar í eða skiptið um þær. Gangið úr skugga um að skautunin passi við merkingarnar.
H:4 Lokið skálinni og læsið krækjunni.
VARAHLUTIR OG AUKAHLUTIR
3M™ PELTOR™ HY220 hreinsisett
Hreinsisett sem samanstendur af tveimur (DK034) þunnum svampklæðningum, tveimur (DK042) þykkum svampklæðningum og tveimur púðum sem smellt er í.
3M™ PELTOR™ FL6CE 3,5 mm snúra
3,5 mm snúra til að tengja ytra tæki
3M™ PELTOR™ HY100A Clean – Einnota hlífar
Einnota hlífar fyrir púðana. Pakki með hundrað pörum.
3M PELTOR™ WorkTunes™ Pro-Rádio FM Microfone 3M™ HRXS220A, HRX220P3E
3M PELTOR™ WorkTunes™ Pro-Rádio AM/FM Microfone 3M™ HRXS221A-NA, HRX221P3E-NA, HRX221A, HRXS221P3E
Inngangur