CHAR-BROIL Patio Bistro 180B - Barbecue

Patio Bistro 180B - Barbecue CHAR-BROIL - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis Patio Bistro 180B CHAR-BROIL á PDF sniði.

📄 69 síður Íslenska IS 💬 AI spurning
Notice CHAR-BROIL Patio Bistro 180B - page 51
Handbókaraðstoðarmaður
Knúið af ChatGPT
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : CHAR-BROIL

Líkan : Patio Bistro 180B

Flokkur : Barbecue

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Barbecue á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Patio Bistro 180B - CHAR-BROIL og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Patio Bistro 180B vörumerkisins CHAR-BROIL.

NOTENDAHANDBÓK Patio Bistro 180B CHAR-BROIL

HÆTTA Ef þú finnur lykt af gasi:1. Stöðvaðu rennsli gass til tækisins.2. Slökktu á opnum eld.3. Opnaðu lok.4. Ef að lyktin hverfur ekki skaltu halda þig fjarri tækinu og hringja samstundis íTÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR HÆTTA Ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt getur það leitt til elds, sprengingar eða hættu á bruna sem gæti valdið eignatjóni, líkamstjóni eða dauða. Gasnotkun: 2,6 kW (189 g/h)Dælustærð: 0,83 mmGastegund: blanda af bútani og própaniTENGING GASHYLKJA ÁRÍÐANDI: Lestu þessar notkunarleiðbeiningar vandlega og kynntu þér þær áður en það er tengt gashylkinu. Geymdu þessar leiðbeiningar til uppsláttar. Aðeins til notkunar utandyra. Tækjaflokkur: gufuþrýstingsblanda af bútani og própani. SÁ SEM ANNAST UPPSETNINGU/SAMSETNINGU: Hafðu þessa handbók hjá neytanda. NEYTANDI: Geymdu þessa handbók til uppsláttar. Spurningar: Hafðu samband við söluaðila á staðnum ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi samsetningu eða notkun þessa tækis.

Til öruggrar notkunar á tæki þínu og forðast alvarlegt líkamstjón:

Ÿ NOTAÐU EINUNGIS UTANDYRA. NOTAÐU

ALDREI INNANDYRA. Ÿ Lestu leiðbeiningarnar áður en tækið er notað. Ætíð skal fylgja leiðbeiningunum. Ÿ Ekki hreyfa tækið þegar það er í notkun.Ÿ Aðgengilegir hlutar geta orðið mjög heitir. Geymdu þar sem börn ná ekki til. Ekki leyfa börnum að nota eða leika sér nærri tækinu. Ÿ Notið aðeins á traustum láréttum fleti.Ÿ Þetta tæki verður að geyma fjarri eldfimum efnum við notkun. Ÿ Ekki stífla holur á hliðum eða aftan á tækinu.Ÿ Skoðaðu reglulega loga brennara.Ÿ Ekki stífla þrengslaop á brennara.Ÿ ALDREI skal nota tækið í lokuðu rými á borð við bílskýli, bílskúr, dyrapalli, yfirbyggðri verönd eða undir yfirbyggingu af nokkurri tegund. Ÿ Ekki nota kol eða keramiksmola í gastæki. Ÿ EKKI hylja rist með álpappír eða öðru efni. Slíkt hindrar loftræstingu brennara og skapar hugsanlega hættulegar aðstæður sem stuðla að eignatjóni og/eða líkamstjóni. Ÿ Notaðu tækið í minnsta kosti eins metra fjarlægð frá vegg eða yfirborði. Viðhalda skal þriggja metra fjarlægð frá hlutu sem kviknað getur í eða kveikjugjöfum á borð við gaumljósum á vatnshiturum, raftæki sem eru í gangi, o.s.frv. Ÿ ALDREI skal reyna að kveikja á brennara með lokið á. Uppbygging gass inni í lokuðu tæki er hættuleg. Ÿ Aldrei nota tækið þegar gashylkið er ekki í réttri tilgreindri stöðu. Ÿ Ekki breyta tækinu. Allar breytingar eru stranglega bannaðar. Notandinn skal ekki handleika þéttlokaða hluta. Ekki taka innsprautunarloka með dælu í sundur. 1 m

1. Aldrei nota tækið eftirlitslaust.

2. Aldrei nota tækið innan 3 m frá byggingu,

eldfimum efnum eða öðrum gashylkjum.

3. Aldrei nota tækið innan 7,5 m frá eldfimum

4. Ef að eldur kemur upp skal halda sér fjarri

tækinu og hringja samstundis á slökkviliðið. Ekki reyna að slökkva á olíu- eða fitueldi með vatni52

VARÚÐ Ÿ Lestu og fylgdu öllum öryggisyfirlýsingum, samsetningarleiðbeiningum og notkunar- og viðhaldsleiðbeiningum áður en tækið er sett saman og eldað er á því.Ÿ Sumir hlutir geta verið oddhvassir. Ráðlagt er að gengið sé með hlífðarhanska. Eldur vegna fitu Ÿ Ekki er hægt að slökkva í eldi vegna fitu með því að loka lokinu. Grill eru vel loftræst sökum öryggisástæðna.Ÿ Ekki nota vatn á eld vegna fitu, slíkt getur leitt til líkamstjóns. Ef að viðvarandi eldur vegna fitu myndast skal snúa hnöppum og slökkva.Ÿ Ef tækið hefur ekki reglulega verið þrifið getur eldur vegna fitu átt sér stað sem getur skemmt vöruna. Hafðu varan á við forhitun eða þegar matarleifar eru brenndar upp til að tryggja að eldur vegna fitu myndist ekki. Fylgdu leiðbeiningum er varða almenn þrif á tækinu og þrif á brennara til að koma í veg fyrir eld vegna fitu. Öryggisábendingar Ÿ Þegar tækið er ekki í notkun skal slökkva á öllum hnöppum og gasi.Ÿ Notaðu grilláhöld með löngum handföngum og ofnhanska til að forðast bruna og skvettur. Notaðu hlífðarhanska þegar heitir íhlutir eru meðhöndlaðir.Ÿ Fitubakkann verður að vera settur inn í tækið og tæmdur eftir hverja notkun. Ekki fjarlægja fitubakkann þar til tækið hefur að fullu kólnað.Ÿ Farðu varlega þegar þú opnar lokið þar sem heit gufa getur komið út.Ÿ Farðu varlega þegar börn, aldraðir einstaklingar eru gæludýr eru nærri.Ÿ Ef þú tekur eftir að fita eða annað heitt efni lekur úr tækinu á lokann, slönguna eða loftstútinn skall slökkva samstundis á gasinu. Ákvarðaðu orsökin, leiðréttu það, þrífðu síðan og skoðaðu lokann, slönguna og loftstútinn áður en lengra er haldið. Framkvæmdu lekaprófun.Ÿ Besta leiðin til að hindra eld vegna fitu er að þrífa tækið reglulega. Ÿ Þetta tæki skal aðeins nota með PRIMUS Powergas model 2202 (450 g) hylki með blöndu af bútani og própani. Þetta tæki er aðeins til notkunar með EN 417 hylki með blöndu af bútani og própani.Ÿ Það gæti reynst hættulegt að reyna að nota aðrar tegundir gashylkja.Ÿ Skiptu um gashylki utandyra og fjarri fólki. EKKI aftengja eða skipta um gasílát innan þriggja metra frá opnum eldi eða öðrum kveikjugjafa eða öðru fólki.Ÿ Tryggið að gashylkið sé tómt áður en skipt er um það (hristið það til að heyra hljóðið sem vökvinn gefur frá sér).Ÿ Tryggið að slökkt sé á brennurum áður en gashylkið er aftengt. GASHYLKI

KRÖFUR ÞRÝSTIJAFNARA

Snúðu hlíf fyrir gat fyrir eldspýtuSéð aftan á grillinu Gat fyrir eldspýtuKveikibúnaðurLESIÐ LEIÐBEININGARNAR ÁÐUR EN KVEIKT ER UPP Í GRILLINU.EKKI halla ykkur yfir tækið þegar kveikt er á því.1. Snúðu stjórnloka gasbrennara á OFF .2. Tengdu LP gashylki.3. Opnaðu lok grillsins.4. Þrýstu og snúðu stjórnhnappinum á stöðu.5. Þrýstu og haltu hnappnum RAFEINDASTÝRÐ KVEIKJA inni þar til kviknar á brennara.6. Þegar kviknað hefur á skal snúa stjórnhnappinum á þá stillingu sem kosin er.7. Ef EKKI kviknar á grillinu innan 5 sekúnda skal snúa brennarahnappi á OFF , b’ða ’ 5 m’nśtur og endurtaka kveikiferlið.Ef ekki kviknar á grillinu skal fylgja leiðbeiningum hvernig kveikt er með eldspýtum.Kveikt með eldspýtumEKKI halla ykkur yfir tækið þegar kveikt er á því.1. Snúðu stjórnloka gasbrennara á OFF .2. Opnaðu lok grillsins.3. Tengdu LP gashylki4. Settu eldspýtu í eldspýtuhaldarann. Kveiktu á eldspýtu. Settu eldspýtu í eldspýtugatið aftast á botni grillsins, mynd „A“. Tryggðu að eldspýtan sé sett í gegnum gatið og nærri brennara.5. Þrýstu inn og snúðu stjórnhnappi í stöðu . Vertu viss um að kvikni á brennara og eldur sé viðvarandi.6. Ef EKKI kviknar á grillinu innan 5 sekúnda skal snúa brennarahnappi á OFF , bíða í 5 mínútur og endurtaka kveikiferlið.Ÿ Tryggið að þéttlokaðir hlutir séu á sínum stað og í góðu lagi áður en gasílátið er tengt. Kannaðu þéttingar áður en nýtt gashylki er tengt tækinu.Ÿ Ekki nota tækið ef það hefur skemmda eða slitna þéttlokaða hluti. Ekki reyna að gera við þéttlokaða hluti. Sækið nýja íhluti frá framleiðandanum.Ÿ Ekki nota tæki sem lekur, er skemmt eða virkar ekki sem skildi.Ÿ Ef leki á sér stað (gaslykt finnst) skal fara með það samstundis út á vel loftræst og eldlausan stað þar sem bera má kennsl á lekann og stöðva hann. Ef kanna á leka í tæki skal gera slíkt utandyra. Reynið ekki að finna leka með því að nota loga, notaðu sápuvatn.Ÿ Notið aðeins þrýstijafnara sem fylgir þessara vöru eða íhlut til endurnýjunar sem framleiðandinn veitir.53

Ef erfitt er orðið að kveikja á tækinu þínu eða loginn er lítill skaltu skoða og hreinsa þrengslin og brennarana. Það er þekkt vandamál að köngulær eða lítil skordýr búa til hreiður og verpa eggjum í þrengslum tækisins eða brennara og hindra því gasflæðið. Kviknað getur í hinu uppsafnaða gas fyrir aftan stjórnborðið. Slíkt getur skemmt tæki þitt og valdið tjóni. Til að hamla að þetta gerist og tryggja góð afköst ætti að fjarlægja og hreinsa brennarann og þrengslisrörið þegar tækið hefur ekki verið notað í ákveðinn tíma. Þrif á brennaranum Fylgdu þessum leiðbeiningum til að þrífa og/eða endurnýja íhluti í brennaranum eða ef þú átt erfitt með að kveikja upp í grillinu.1. Snúðu stjórnhnappi á og fjarlægðu hylki.2. Opnaðu lok, fjarlægðu eldunargrind og hitunargrind, mynd A. Slíkt mun afhjúpa brennarann að innan, mynd B.3. Fjarlægðu þrjár skrúfur sem festa brennara, mynd C4. Taktu brennarann varlega úr grillinu, mynd D.5. Hreinsaðu öll stífluð op með stífum vír á borð við bréfaklemmu.6. Hreinsið brennarann eins og ráðlagt er að neðan, mynd E. Við mælum með þremur leiðum til að hreinsa brennararörið. Notaðu þá sem er auðveldust fyrir þig.(A) Beygðu endann á stífum vír (létt herðatré virkar vel) í lítinn krók. Farðu með krókinn nokkrum sinnum í gegnum brennararör.(B) Notaðu mjóan pelabursta með sveigjanlegu handfangi (ekki nota látúnsvírbursta), farðu með burstann nokkrum sinnum í gegnum brennara.(C) Notaðu augnhlífar: Notaðu loftslöngu til að troða lofti inn í brennararörið og út um brennaraopin.Skoðaðu hvert op til að tryggja að loft komist út um hvert þeirra.7. Kannaðu hvort skemmdir séu á brennara, sumar holur geta stækkað sökum eðlilegs slits og tæringar. Ef stórar sprungur eða holur finnast skal endurnýja brennara.8. Settu brennara inn í eldhólf.MJÖG MIKILVÆGT: Brennararör verður að endurtengja yfir lokaopi. Sjá mynd F.9. Festu brennara að nýju með skrúfunum sem fjarlægðar voru í þrepi 3.10. Settu hitatjaldið aftur í, eldunargrindur og hitunargrind. Lekaprófun loka, rör og þrýstijafnara 1. Tryggðu að þú snúir stjórnloka á OFF . 2. Burstaðu sápulausn á tengi á milli gashylkis og þrýstijafnara á (A). Ef vaxandi loftbólur myndast er leki. Hertu hylki að nýju og notaðu sápulausn aftur.3. Ef þú getur ekki stöðvað lekann skaltu fjarlægja gashylkið frá þrýstijafnaranum og kanna hvort finna megi skemmda þræði, óhreinindi og leifar á þrýstijafnara og gashylki. Kannaðu einnig hvort nokkuð hindri gasflæði við þrýstijafnara og op gashylkis. Fjarlægðu alla fyrirstöðu sem kann að finnast og endurtaktu lekaprófun. EF þræðir eru skemmdir á annað hvort þrýstijafnara eða gashylki skal endurnýja slíkt. Burstaðu sápulausn á tengi á milli þrýstijafnara og loka (B). Ef að leki uppgötvast skal fjarlægja hylki. Ekki nota grill með leka og ekki gera tilraun til að laga slíkt. Tryggðu að brúnir eldunargrindar snúi rétt (mynd A)

Brennari (afhjúpaður)Warming Rack

BrennaraskrúfurFærið brennara aftast og uppRörahreinsari (sjá ráðleggingar að ofanBrennari (fjarlægður)Op inni í röraenda brennara virkjað á réttan máta Burner Tube Orifice Hitunargrind Warming Rack

Geymsla á tæki þínu Ÿ Þrífðu eldunargrindur.Ÿ Geymdu á þurrum stað.Ÿ Þegar gashylki er tengt grillinu skal geyma það utandyra á vel loftræstum stað og þar sem börn ná ekki til. Ÿ Breiddu yfir grillið ef það er geymt utandyra.Ÿ AÐEINS skal geyma grillið innandyra ef gashylkið er aftengt, fjarlægt frá grillinu og geymt utandyra. Ÿ Þegar grillið er tekið úr geymslu skal kanna hvort einhverjar stíflur séu í brennara. Almenn þrif á grilli Ÿ Þrífðu grillið oft, helst eftir hverja máltíð. Ef að bursti er notaður til að þrífa einhverja af eldunarflötum grillsins skal tryggja að ekkert úr burstanum verðir eftir á yfirborðinu áður en grillað er að nýju. Ekki er mælt með að grillið sé þrifið á meðan það er enn heitt. Ÿ Tæki ætti að þrífa að minnsta kosti einu sinni á ári.Ÿ Ekki ruglast brúnni og eða svartri samansöfnun á fitu og reyk og halda að hún sé málning. Innri byrði gasgrilla er ekki málað í verksmiðjunni (slíkt ætti aldrei að gera). Notaðu sterka blöndu af hreinsiefni og vatni eða tiltekið hreinsiefni með bursta á innra byrði loksins og undir. Burstaðu og láttu þorna að fullu. Ekki nota ætiefni/ofnhreinsi á málaða fleti. Ÿ Plasthlutar: Þvoðu með volgu sápuvatni og þurrkaðu.Ÿ Ekki nota citrisol, fægilög, fituleysi eða óblönduð hreinsiefni á plasthluta. Ÿ Slíkt getur leitt til tjóns og bilun á hlutum.Ÿ Postulínsfletir: Sökum svipaðrar samsetningar og glers má þurrka flestar leifar burt með blöndu og matarsóda og vatni eða sérstökum hreinsiefnum. Notaðu ræstiduft sem er ekki svarfandi á erfiða bletti Ÿ Málaðir fletir: Þvoðu með mildu hreinsiefni eða efni sem er ekki svarfandi og volgu sápuvatni. Þurrkaðu með mjúkum klút. Ÿ Fletir úr ryðfríu stáli: Til að viðhalda hágæða útliti tækis þíns skaltu þvo það með mildu hreinsiefni og volgu sápuvatni og þurrka með mjúkum klút eftir hverja notkun. Fastir fitublettir gætu krafist notkunar svarfandi hreinsipúða út plasti. Þvoðu einungis í þátt átt sem áferðin liggur til að forðast skemmdir. Ekki nota svarfandi púða á svæði með myndum eða letri. Ÿ Eldunarfletir: Ef að bursti er notaður til að þrífa einhverja af eldunarflötum grillsins skal tryggja að ekkert úr burstanum verðir eftir á yfirborðinu áður en grillað er að nýju. Ekki er mælt með að eldunarfletir séu þrifnir á meðan grillið er enn heitt.

EF EKKI KVIKNAR Á GRILLINU

Tryggið að kveikt sé á gasinu á hylkinu. Tryggið að það sé gas í hylkinu. Kemur neistahljóð frá kveikinum? Ef svo er skaltu kanna hvort neisti myndist við brennara. Ef svo er ekki skaltu kanna hvort skemmdir séu eða lausir vírar. Ef vírar eru í lagi skaltu kanna hvort rafskaut sé brotið eða bilað, endurnýjaðu ef með þarf. Ef vírar eru rafskaut eru útötuð í eldunarleifum skal þrífa rafskautsendann með þurrku með vínanda ef nauðsynlegt er. Ef nauðsynlegt er skal skipta um víra. Ef ekkert hljóð er skal kanna rafhlöður. Tryggðu að rafhlaða sé rétt komið fyrir. Kannaðu hvort laus víratengi séu á einingu eða rofa. Ef kveikir heldur áfram að virka ekki skaltu nota eldspýtu. Ef gera þarf við tækið skal hafa samband við birgja þinn eða Kriswell A/S. Vinsamlegast sjá samskiptaupplýsingar Kriswell A/S á baksíðu. B55