TILLREDA 705.931.21 - Cuisinière IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis TILLREDA 705.931.21 IKEA á PDF sniði.

IKEA TILLREDA 705.931.21 - Eldavél
📄 392 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA TILLREDA 705.931.21 - page 78
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um TILLREDA 705.931.21 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Cuisinière á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína TILLREDA 705.931.21 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. TILLREDA 705.931.21 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK TILLREDA 705.931.21 IKEA

Leiðbeiningar um potta og pönnur....85

Umhirða og þrif....86

Bilanaleit 87

Tæknileg gögn....88

Orkunýtni....88

Umhverfismálefni 89

IKEA-ábyrgð 89

Öryggisupplýsingar

① Til að tryggja öryggi og rétta notkun tækisins, lesið vandlega þessa handbók fyrir uppsetningu og notkun. Haldið alltaf þessum leiðbeiningum með tækinu, jafnvel ef þú flytur það eða selur. Notendur verða að vita alveg starfrækslu og öryggisatriði tækisins.

Rétt notkun

  • Ekki láta tækið eftirlitslaust þegar það er í notkun.
  • Þetta tæki er eingöngu hannað til heimilisnota.
  • Þetta tæki er eingöngu hannað til notkunar innanhúss.
  • Ekki má nota tækið sem vinnusvæði eða sem geymsluflöt.
  • Ekki setja eða geyma eldfima vökva, mjög eldfim efni eða sambræðanlega hluti (t.d. plastfilmu, plast, ál) í eða nálægt tækinu.
  • Gætið þess að þegar rafmagnstækið er stungið í innstungu sé það rétt gert. Ekki leyfa snúrunni að komast í tæri við eða festast undir tækinu eða heitum pottum.
  • Ekki gera við tækið sjálf(ur) til að koma í veg fyrir meiðsli og skemmdir. Hafðu ávallt samband við næstu IKEA-verslun.
  • Börn 8 ára og eldri og fólk með skerta líkamlega, skynjunar- eða andlega getu, eða skort á reynslu og þekkingu, mega nota ísskápinn ef þau hafa fengið leiðsögn eða leiðbeiningar um örugga notkun og skilja hætturnar sem fylgja.
  • Haldið öllum umbúðum frá börnum. Hætta á köfnun.
  • Haldið börnum frá tækinu meðan það er í gangi og einnig þegar það er ekki í notkun.
  • Börnum undir 8 ára aldri skal haldið frá nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
  • Börn mega ekki leika sér að helluborðinu. Hreinsun og viðhald notanda skulu ekki framkvæmd af börnum án tilsjónar.

⚠ VIÐVÖRUN! Setjið barnalæsingu á til að hindra að ung börn og gæludýr kveiki óvart á helluborðinu.

Almennt öryggi

  • Ekki setja neitt fyrir loftræstinguna á grind tækisins eða innbyggðu gerðinni.
  • Ekki snerta flötinn þegar hitavísirinn sýnir leifar af hita til að koma í veg fyrir meiðsli.
  • Ekki setja neina hluti í spanhelluborðið meðan á aðgerð stendur til að koma í veg fyrir raflost.
  • Ekki vefja snúrunni um hálsinn til að koma í veg fyrir kyrkingarhættu.
  • Ekki má nota gufuhreinsi til að hreinsa helluborðið.
  • Ekki skal láta málmhluti svo sem hnífa, gaffla, skeiðar eða lok ofan á helluborðið, því að þeir geta orðið heitir.
  • Eftir notkun skal slökkva á helluborðinu og ekki treysta á pottaskynjarann.
  • Ekki er ætlast til að helluborðið sé notað með aukatímastilli eða sérstakri fjarstýringu.
  • Forðast skal að snerta hitafleti.
  • Ef rafsnúran er skemmd þarf framleiðandi, viðurkennt þjónustuverkstæði eða einhverjir með hliðstæða löggildingu að skipta um hana til að forðast hættu. Vinsamlegast hafið samband við verslun IKEA.

⚠ VIÐVÖRUN! Ef sprungur eru í yfirborðinu, skal slökkva á helluborðinu til að komast hjá hugsanlegu raflosti. Vinsamlegast hafið samband við verslun IKEA. ⚠ VIÐVÖRUN! Helluborðið og fletir þess verða heit við notkun. ⚠ VIÐVÖRUN! Hættulegt getur verið að elda á helluborðinu með feiti eða olíu og getur valdið eldsvoða. ALDREI skal reyna að slökkva slíkan eld með vatni, heldur slökkva á helluborðinu og kæfa logann, t.d. með loki eða eldvarnarteppi.

Öryggisleiðbeiningar

Uppsetning

  • Framleiðandi ber ekki ábyrgð á meiðslum á fólki, gæludýrum eða skemmdum á eignum vegna þess að ekki var farið eftir eftirfarandi kröfum. ⚠️ VARÚÐ! Til að halda áfram með uppsetningu er vísað til öryggisupplýsinganna. ⚠ VIÐVÖRUN! Uppsetningin verður að fylgja lögum, reglugerðum, tilskipunum og stöðlum (rafmagnsöryggisreglum og reglugerðum, réttri endurvinnslu í samræmi við reglur, o.s.frv.) sem eru í gildi í viðkomandi landi!
  • Forðist að setja tækið upp við hliðina á hurðum eða undir gluggum þar sem heitur pottur getur fallið af helluborðinu þegar hurðirnar og gluggarnir eru opnaðir.
  • Tryggið að tækið sé ekki skemmt vegna flutninga. Ekki tengja skemmt tæki.
  • Ekki setja tækið upp ef það hefur skemmst við flutninginn.

△ VARÚÐ: heitt yfirborð. Yfirborðið getur orðið heitt við notkun. ⚠️ VARÚÐ: Fylgjast verður með eldun. Skammtímaeldun þarf að vakta stöðugt. ⚠️ VIÐVÖRUN! Nota skal eingöngu til þess gerðar hlífar frá framleiðanda helluborðsins eða hlífar sem framleiðandi hefur gefið til kynna í leiðbeiningum að henti sem helluborðshlífar og eru hluti af helluborðinu. Hlífar sem ekki eiga við geta valdið slysum.

  • Ekki tengja helluborðið með framlengingarsnúru og ekki leggja helluborðið með snúrunni yfir vinnusvæðin.
  • Ekki breyta tæknistaðlinum eða breyta þessari vöru. Hætta á meiðslum og skemmdum á tækinu.

⚠ VIÐVÖRUN! Farið vandlega eftir leiðbeiningum um rafmagnstengingar.

Raftenging

  • Áður en tengt er skal athuga hvort nafnspenna tækisins sem tilgreind er á kennispjaldinu samsvari fyrirliggjandi fæðispennu. Kannið einnig afköst helluborðsins og tryggið að rafkerfi heimilisins sé nægilega öflugt til að knýja helluborðið (sjá kafla um Tæknileg gögn).
  • Matsplatan er staðsett á neðri hlíf helluborðsins.

⚠ VIÐVÖRUN! Hætta á meiðslum frá rafstraumi.

- Skautin geta ofhitnað vegna lausra eða óviðeigandi kló og innstungu.

Fyrir notkun:

Vinsamlegast gefið gaum að eftirfarandi leiðbeiningum fyrir notkun.

  • Vinsamlegast notið staðlaðar innstungur fyrir aðal aflgjafann og athugið þær reglulega til að koma í veg fyrir skemmdir.
  • Ekki opna helluborðið sjálf eða nokkur annar án tilskilinna réttinda. Einungis þjónustufulltrúi eða viðurkenndur tæknimaður hefur leyfi til að framkvæma viðgerðir á helluborðinu.
  • Vinsamlegast athugið rafmagnsleiðsluna og klónna.

Ekki nota helluborðið ef rafsnúran eða klóin eru skemmd. Ekki draga klónna út með blautum höndum.

  • Ekki nota framlengingarsnúruna og notið aðeins innstungu fyrir aðal aflgjafann.
  • Ef helluborðið hefur ekki verið í notkun lengi skal byrja á að kveikja á því í 10 mínútur til að gera rafeindaíhlutinn stöðugan. Síðan er hægt að fara að nota helluborðið.
  • Ekki nota helluborðið nærri vatni, eldi eða á röku svæði. Helluborðið er EINGÖNGU ætlað til notkunar innanhúss.
  • Fjarlægja skal allar umbúðir, límmiða og plastfilmu utan af helluborði fyrir notkun.
  • Slökkvið á plötunni eftir hverja notkun og ekki treysta á pönnunemanum.
  • Hætta á bruna! Ekki má setja hluti úr málmi, eins og hnífa, gaffla, skeiðar eða pottlok á eldunaryfirborðið, þar sem þeir geta orðið heitir.

⚠ VIDVÖRUN! Eldhætta! Kviknað getur fljótt í ofhitaðri fitu eða olíu. ⚠ VIDVÖRUN! Notendur með ígræddan gangráð ættu að halda efri hluta líkamans minnst 30 cm fyrir ofan plötuna sem kveikt er á. ⚠ VIDVÖRUN! Ekki nota tækið þegar hendurnar eru blautar og hafið yfirborð stjórnborðsins þurrt. Ef of mikið vatn er á stjórnborðstökkunum þá er ekki lengur hægt að nota það.

⚠ VIDVÖRUN! Ef yfirborðið er sprungið á að slökkva á tækinu til að koma í veg fyrir möguleika á raflosti.

Við og eftir notkun:

Vinsamlegast gefið gaum að eftirfarandi leiðbeiningum til að koma í veg fyrir íkveikju og slys.

  • Látið helluborðið ÁVALLT sitja á sléttu og traustu yfirborði.
  • Eftirlit á að vera með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með tækið.
  • Ekki láta eftirfarandi hluti á helluborðið þegar það er í gangi.
  • Ekki færa eða hreyfa helluborðið úr stað með pottum eða pönnum ofan á því á meðan hitun á sér stað.
  • Vinsamlegast hafið góða loftræstingu þegar verið er að elda.
  • Ekki stinga neinum vírum eða málmhlutum í loftinntak eða loftúttak tækisins.
  • Umhirða plötunnar

a) Ekki láta þunga hluti falla á plötuna. b) Ekki hella vatni, sýru eða vökva á plötuna. c) Ekki kveikja eld á plötunni. d) Ekki láta neina potta eða pönnur á helluborðið þegar ekki er verið að nota það. e) Ef yfirborðið (helluborðið) er sprungið skal slökkva strax á helluborðinu til að forðast raflost og skila því í næstu IKEA-verslun. f) Sumir pottar hafa hátt þegar þeir eru notaðir. Færið pottana aðeins og hljóðið hverfur eða minnkar. Ef ekki, skiptið þá um potta.

  • Ekki láta helluborðið á teppi, dúk eða pappír þegar það er í gangi.
  • Ekki snerta plötuna á meðan hún er heit. Platan er enn heit þar til hitavísirinn hverfur, jafnvel þegar búið er að slökkva á henni.
  • Ekki taka helluborðið úr sambandi með því að toga í rafsnúruna.
  • Slökkva skal á helluborðinu og láta kólna áður en tekið er úr sambandi. Vinsamlegast takið rafsnúruna úr sambandi ef helluborðið verður ekki í notkun í lengri tíma.
  • Haldið pottum og pönnum frá helluborði eftir notkun.

Hvernig á að forðast skemmdir á tækinu

  • Keramikið getur skemmst ef hlutir detta á það eða pottarnir rekast í það.
  • Pottar úr steypujárni, steypuáli eða með skemmdan botn geta rispað keramikið ef þeim er rennt yfir yfirborðið.
  • Keramikið getur skemmst ef það dettur á gólfið.
  • Ekki láta potta eða steikarpönnur sjóða þurrar til að koma í veg fyrir skemmdir á pottum og keramik.
  • Ekki setja tóma potta á plötuna eða hafa hana án potta.
  • Setjið aldrei álpappír á hluti á tækið. Setjið aldrei plast eða önnur efni sem geta bráðnað í eða á tækið.

⚠ VIÐVÖRUN! Hafið tækið í sambandi þar til slokknar á viftunni og hitavísinum.

Upplýsingar um akrýlamíð

Mikilvægt! Samkvæmt nýjustu vísindalegri þekkingu, að steikja matinn mikið, sérstaklega mat sem inniheldur mikla sterkju, getur talist hættulegt heilsunni vegna akrýlamíðs. Þess vegna mælum við með að elda á lægsta mögulega hitanum og ekki steikja matinn of mikið.

Vörulýsing

IKEA TILLREDA 705.931.21 - Vörulýsing - 1

Eldavélinni er stýrt með því að snerta næmisvæðin. Skjár og hljóðmerki (stutt píp) staðfestir val á aðgerð.

Þegar kaupin eru gerð er hámarksstilling á helluborði 2200 W, en ef þú ert viss um að raflagnir beri meiri afköst er hægt að auka stillinguna í 3500 W á eftirfarandi hátt:

a. Gættu þess að slökkt sé á spanhelluborðinu. b. Fjarlægðu alla potta af helluborðinu. c. Snúðu spanhelluborðinu á hvolf og stilltu vélræna rofann á 3500 W afköst með verkfæri (t.d. skrúfjárni).

3500W 2200W ? → 3500W 2200W

⚠ VIÐVÖRUN! Ef valin eru röng afköst getur það valdið yfirálagi á raflagnir heimilisins og öryggið slegið út (ef um er að ræða nýjar lagnir) eða bræðivar farið (ef lagnir eru gamlar). Fáðu staðfestingu hjá viðurkenndum rafvirkja um afköst raflagna á heimilinu.

IKEA TILLREDA 705.931.21 - Vörulýsing - 3

Þegar 3500 W stilling er notuð

Raflagnakerfið hjá þér verður að vera a.m.k. 15 A. Færðu vélræna rofann á 3500 W afköst.

Pegar 2200 W stilling er notuð

Raflagnakerfið hjá þér verður að vera a.m.k. 10 A. Færðu vélræna rofann á 2200 W afköst.

Rafstýring

Þetta heimilistæki er búið rafeindastýringu.

Í 3500 W stillingu er hægt að nota full afköst á báðum svæðum samtímis.

Í 2200 W stillingu stýrir þessi aðgerð rafmagnsálagi og takmarkar hámarksafköst á svæðunum, sem kemur í veg fyrir yfirálag á rafkerfið.

Aðgerðin skiptir afköstunum á milli eldunarsvæða og minnkar sjálfkrafa afköst á hinu eldunarsvæðinu eftir þörfum (síðasta skipun hefur forgang).

Sjá nánar í töflunum hér að neðan.

3500 W stilling

Afköst svæðanna má sjá í töflunni hér að neðan:

Orkustig 1 23 4 5 6 7 8 9
Fremra svæði200 W 300W 600 W900 W 1100 W 1300W 1500W 1800 W2000 W
Aftara svæði100 W 200W 500 W600 W 700 W 900 W1100 W1300 W 1500 W

2200 W stilling

Afköst svæðanna þegar aðeins annað svæðið er virkt í einu:

Orkustig 1 23 4 5 6 7 8 9
Fremra svæði200 W 300W 600 W900 W 1100 W 1300W 1500W 1800 W2000 W
Aftara svæði100 W 200W 500 W600 W 700 W 900 W1100 W1300 W 1500 W

Afköst svæðanna þegar bæði svæðin eru virk í einu:

Orkustig 1 23 4 5 6 7 8 9
Fremra svæði200 W 300W 600 W900 W 10000 W 1100W 1200W 1300 W1500 W
Aftara svæði100 W 200W 500 W600 W 700W 800 W900 W 10000 W 1200 W

Velja má afköstin að vild, en heildarafköst verða hámark 2200 W. (t.d.: stilling 9 + stilling 5 eða stilling 5 + stilling 9).

Áfram er afkastaaðferðin samkvæmt síðasta forgangi. Þ.e.a.s. ef aftara svæðið er stillt á stillingu 6 (800 W), er hægt að stilla fremra svæðið á stillingu 8 (1300 W). Ef stilling fremra svæðis er breytt í stillingu 9 (1500 W) lækkar aftara svæðið sjálfkrafa í stillingu 5 (700 W).

Gaumljós

Pott vantar eða hann á röngum stað

Táknið birtist ef potturinn hentar ekki til spaneldunar, er rangt staðsettur eða ekki af réttri stærð á viðkomandi eldunarsvæði. Ef enginn pottur er skynjaður innan 30 sekúndna, eftir að valið hefur verið, slokknar á eldunarsvæðinu.

H Leifar af hita

Ef skjárinn sýnir „H“ er eldunarsvæðið enn heitt. Þegar eldunarsvæðið kólnar, slokknar á skjánum.

⚠ VIÐVÖRUN! Hætta á bruna vegna afgangshita!

Eftir að slökkt er á tækinu þarf eldunarsvæðið tíma til að kólna. Horfið á afgangshitavísinn H

Notið afgangshitann til að bræða mat eða halda honum heitum.

Ekki taka tækið úr sambandi án þess að bíða eftir að hætti af skjánum.

Dagleg notkun

IKEA TILLREDA 705.931.21 - Dagleg notkun - 1

Tengja við innstunguna

  1. Eftir að klónni er stungið í samband verður barnalæsingin virk. Ýtið á og haldið barnalæsingartakkanum inni í 3 sekúndur til að slökkva.

Kveikja/Slökkva

  1. Ýtið á Kveikja/Slökkva takkann. Skjárinn sýnir „0“ eins og í biðstöðu og það kviknar á gaumljósinu. Ef ekki er valin hitastilling innan 30 sekúndna, slokknar sjálfkrafa á helluborðinu án þess að ýtt sé á Slökkva/Kveikja-hnappinn.
  2. Ýtið á takkann Kveikja/Slökkva meðan eldað er og helluborðið slekkur á sér.

Hitastilling

  1. Ýtið á — eða + til að stjórna hitanum við eldamennskuna.
  2. Ef ytt er á — fer hitastillingin beint í „9“. Ytið á — til að laekka stillinguna úr „9“ í „1“.
  3. Ef ytt er á + hækkar hitastillingin úr „1“. Ytið á + til að hækka hitastillinguna úr „1“ í „9“.

IKEA TILLREDA 705.931.21 - Hitastilling - 1

Biðstaða

  • Hægt er að setja hitun á bið í stað pess að slökkva á helluborðinu.
  • Pegar farið er í biðstöðu afvirkjast allar stýringar nema Slökkva/Kveikja.

Pegar farið er í biðstöðu

Snert við biðstýringu.

Öll gaumljós sýna „| |".

Pegar farið er úr biðstöðu

Snertið aftur biðstýringuna.

IKEA TILLREDA 705.931.21 - Pegar farið er úr biðstöðu - 1

Þegar helluborðið er í biðstöðu afvirkjast allar stýringar nema Slökkva/Kveikja ①. Það er alltaf hægt að slökkva á spanhelluborðinu með stýringunni Slökkva/Kveikja ①. Helluborðið slekkur á sér eftir 10 mín ef ekki er farið úr biðstillingu.

IKEA TILLREDA 705.931.21 - Pegar farið er úr biðstöðu - 2

Læsing/barnalæsing

Þegar eldunaraðstaðan er notuð geturðu læst stjórnborðið, til dæmis til að hreinsa helluborðið. Það kemur í veg fyrir að hitastillingin breytist óvart. Hægt er að slökkva á helluborðinu með Kveikja/Slökkva takkanum.

Virkja læsingu

  1. Stillið á æskilegan hita.
  2. Ýtið á í 3 sekúndur. Aðgerðin er virk þegar gaumljósið logar og hljóðmerki heyrist.

Leiðbeiningar um potta og pönnur

Hvaða potta skal nota

Eingöngu skal nota potta og pönnur gerðar úr járnsegulefni sem hentar til eldunar á spanhellum:

  • Steypujárn • Glerungshúðað stál
  • Kolstál • Ryðfrítt stál (þó ekki allar gerðir)
  • Ál með járnsegulhúð eða járnsegulþynnu

Leitið að tákninu (venjulega stimplað á botninn) til að ákvarða hvort pannan hentar. Einnig má bera segul að botninum.

Ef hann tollir við botninn virkar potturinn eða pannan á spanhellum.

Notið ávallt potta og pönnur með sléttum botni, sem dreifir hitanum jafnt, til að tryggja hámarksafköst.

Ef botninn er ósléttur hefur það áhrif á hita- og varmaleiðni.

Afvirkja læsingu

  1. Ýtið á í 5 sekúndur. Aðgerðin er óvirk þegar gaumljósið slokknar og hljóðmerki heyrist.
  2. Hitastillingin fer á fyrri stillingu.

Barnalæsing

Einnig er hægt að læsa stjórnborðinu þegar það er ekki í notkun. Þessi aðgerð kemur í veg fyrir að kveikt sé á tækinu af slysni.

Virkja barnalæsingu

  1. Kveikið á tækinu með Kveikja/Slökkva takkanum. Ekki stilla á neinn hita.
  2. Ýtið á 3 sekúndur. Aðgerðin er virk þegar gaumljósið logar og hljóðmerki heyrist.
  3. Slökkva á tæki með takkanum Kveikja/Slökkva.

Ýtið á 3 sekúndur. Aðgerðin er óvirk þegar gaumljósið slokknar og hljóðmerki heyrist.

Sjálfvirkt straumrof

Aðgerðin slekkur sjálfkrafa á hellunni ef:

  • slökkt er á öllum plötum.
  • EKKI er stillt á hita innan 30 sekúndna eftir að kveikt er á hellunni.
  • EKKI var slökkt á eldunarsvæði eða ekki var breytt stillingu eftir 2 klst. eða ef yfirhitun verður (t.d. þegar allt sýður upp úr pönnu).

Notkunarleiðbeiningar

Lágmarksþvermál pott-/pönnubotns fyrir mismunandi eldunarsvæði

Potturinn verður að þekja einn eða fleiri af viðmiðunarpunktunum sem sýndir eru á helluyfirborðinu og verður að ná lágmarksþvermáli til að tryggja að hellan starfi rétt.

Ávallt skal nota eldunarsvæði sem best passar við þvermál pönnubotnsins.

EldunarsvæðiRáðlagt þvermál potta- eða pönnubotns [mm]
Fremra eldunarsvæði 120-200
Aftara eldunarsvæði 120-180

Tómir eða þunnbotna pottar/pönnur

Ekki nota tóma eða þunnbotna potta/pönnur á helluborðið. Ella getur hitastigið orðið svo hátt að pannan eða helluborðið skemmist og ekki er hægt að fylgjast með hitastiginu eða slökkva sjálfkrafa á. Ef þetta gerist má ekki snerta neitt en bíða skal og láta alla íhluti kólna.

Ef villuskilaboð birtast skal leita undir „Bilanaleit”.

Tillögur/ráð

Hávaði á meðan eldað er

Þegar eldunarsvæðið er í gangi getur verið að það suði smástund. Þetta einkennir öll eldunarsvæði úr gler-keramiki og skerðir ekki virkni eða líftíma helluborðsins. Hávaðinn fer eftir pottasetti sem notað er. Ef það skapar truflun getur hjálpað að skipta um pottasett.

Eðlileg hljóð úr spanhelluborðinu

Spaneldun byggist á að búa til rafsegulsvið sem skapar hita beint í botni potta eða panna. Pottar og pönnur geta valdið alls kyns hávaða eða titringi eftir því hvernig þau eru framleidd. Hávaðinn getur verið sem hér segir:

Lágt suð (svipað og í straumbreyti)

Svona hljóð skapast þegar eldað er við mikinn hita. Það stafar af orkumagni sem flyst frá eldunarhellu í pottinn eða pönnuna.

Hávaðinn minnkar eða hverfur þegar hitastilling er lækkuð.

Lágvær hvinur

Þetta hljóð skapast þegar ílátið er tómt.

Það hverfur þegar vatn eða matvæli eru látin í ílátið.

Snark

Þetta hljóð skapast ef pottar eða pönnur eru gerð úr mismunandi lagskiptu efni.

Það verður vegna titrings á flötum þar sem mismunandi efni mætast.

Hljóðið verður til í eldunarílátunum og breytist eftir magni matvæla og vökva og eldunaraðferð (t.d. sjóða, malla, steikja).

Hávær hvinur

Svona hávaði skapast þegar eldunarílát eru gerð úr mismunandi lagskiptu efni og þegar auk þess er notuð hámarksstilling og líka á tveimur eldunarsvæðum. Hávaðinn minnkar eða hverfur þegar hitastilling er lækkuð.

Þessi hljóð eru eðlileg viftuhljóð

Nauðsynlegt er að stýra hitastigi á eldunarsvæði til að rafeindastýringin virki rétt. Þess vegna er eldunarsvæðið búið kæliviftu sem fer í gang til að minnka og stýra hitastigi rafeindakerfisins. Hugsanlegt er að viftan sé í gangi eftir að slökkt er á heimilistækinu ef hitastigið, sem greinist yfir eldunarsvæðinu, er enn of hátt eftir að slökkt hefur verið.

Taktfast hljóð svipað og tif í klukku

Hljóðið kemur einungis þegar a.m.k. þrjú eldunarsvæði eru í gangi og hverfur eða lækkar þegar slökkt er á einhverju þeirra.

Hljóðin sem lýst hefur verið eru eðlilegur hluti af spantækninni og ber ekki að líta á sem galla.

Umhirða og þrif

⚠ VIÐVÖRUN! Slökkvið á tækinu og látið það kólna áður en það er tekið úr sambandi. ⚠ VIÐVÖRUN! Slökkvið á tækinu og látið það kólna áður en það er þrifið. ⚠ VIÐVÖRUN! Af öryggisástæðum er mælst til að tækið sé ekki hreinsað með gufuþrýstibúnaði eða háþrýstihreinsiefnum. ⚠ VIÐVÖRUN! Oddhvassir hlutir og fægilögur munu skemma tækið. Hreinsið tækið og fjarlægið leifar með vatni og uppþvottaefni eftir hverja notkun. Fjarlægið einnig leifar af hreinsiefnum! Rispur eða dökkir blettir á keramikinu sem ekki er hægt að fjarlægja hafa ekki áhrif á starfsemi tækisins.

Blettir og erfiðir blettir fjarlægðir:

  • Fjarlægja ætti strax matvæli sem innihalda sykur, plast, leifar af álpappír, besta tækið til að hreinsa gleryfirborð er skafa (fylgir ekki tækinu). Setjið sköfuna á yfirborð keramiksins í halla og fjarlægið leifar með því að renna blaðinu yfir yfirborðið. Þurrkið tækið með rökum klút með smá uppþvottalegi. Nuddið tækið með hreinum þurrum klút í lokin.
  • Fjarlægja ætti kalk-, vatns-, fitubletti, glansandi málmupplitun eftir að tækið hefur kólnað niður með hreinsiefni fyrir keramik eða ryðfríu stáli.

Bilanaleit

Vandamál Möguleg orsök Lausn
Heimilistækið virkar ekki.Pað vantar orku eða skammhlaup á heimilinu pínu.
Innstungan er ekki rétt tengd.Athugið hvort aflgjafi er rétt tengdur við eldavélina.
Meira en 10 sekúndur eru liðnar frá pví að kveikt var á tækinu.Kveikið aftur á tækinu.
Barnalæsing er á.Afvirkja barnalæsingu. (Sjá kaflann um „Barnalæsingu”)
Nokkrir skynjarar voru snertir á sama tíma.Prífið allt á stjórnborðinu. Tryggja skal pegar stýringin er stillt að ekkert snerti aðra stýringu.
Helluborðið starfar ekki. Villuboð: ☑ → ☑Pottur eða panna henta ekki á spanhellur.Skiptið yfir í potta fyrir spanhellur.
Enginn pottur eða panna á eldunarsvæði eða botnpvermál undir 120 mm.Setjið potta á eldunarsvæðið.
Helluborðið starfar ekki. Villuboð: ☑ → ☑Potturinn er tómur (þurrsuða) eða eldunarhitinn er of hár.Slökkvið á helluborðinu og endurræsið eftir 5 mínútur. Ef E2 er viðvarandi skal hafa samband við næstu IKEA-verslun.
Loftinntak og úttak er lokað.
Lofthiti er of hár.
Helluborðið starfar ekki. Villuboð: ☑ → ☑Rafveitan er yfir AC 275 V.Skiptið yfir í tæki sem passar við viðeigandi aflgjafa.
Helluborðið starfar ekki. Villuboð: ☑ → ☑Helsti aflgjafinn er undir AC 100V.Skiptið yfir í tæki sem passar við viðeigandi aflgjafa.
Helluborðið starfar ekki. Villuboð: ☑ → ☑Hitaskynjari helluborðsins virkar ekki.Vinsamlegast hafið samband við verslun IKEA.
Helluborðið starfar ekki. Villuboð: ☑ → ☑Potturinn er tómur (þurrsuða) eða eldunarhitinn er of hár.Slökkva skal á heimilistækinu og láta pað kólna og hindra þurr-suðu.
Helluborðið starfar ekki. Villuboð: ☑ → ☑Samskiptavilla er á milli skjás PCBA og drifs PCBA.Slökkvið á helluborðinu og endurræsið eftir 5 mínútur. Ef E0 er viðvarandi skal hafa samband við næstu IKEA-verslun.

Villukóði birtist þegar kveikt er á hellu og villa er skynjuð. E og tölur birtast með vissu millibili (1 sekúnda) endurtekið.

Ef bilun verður skal reyna að laga hana með því að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum. Ef ekki er hægt að laga bilunina skal hafa samband við næstu IKEA-

verslun.

Ef þú notar tækið rangt getur söluaðili ekki tekið það án endurgjalds, jafnvel á ábyrgðartímanum.

Tæknileg gögn

Gerð 14FP22401
Gerð helluborðs Frístandandi spanhelluborð
Fjöldi eldunarsvæða og/eða svæða 2
Orkuhlutfall 3500 W
Spennuhlutfall 220 - 240 V~
Tíðnihlutfall 50/60 Hz
Dýpt 520 mm
Breidd 280 mm
Hæð 62 mm
Nettó þyngd 4,2 kg

i Hlutanúmerið og raðnúmerið eru staðsett á merkiplötu á botnplötu vélar.

Raðnúmer (byrjar á SN, 22-talna kóði)

Vörunúmer (8-talna kóði)

Raðnúmer: xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx 705.931.21 IKEA

Mynd aðeins til viðmiðunar

Orkunýtni

Vöruupplýsingasíða samkvæmt reglugerð um visthönnun

Gerðarauðkenni 14FP22401
Gerð helluborðs Frísstandandi
Fjöldi eldunarsvæða 2
HitunartækniSpanstraumur
Þvermál hringlaga eldunarsvæða (∅)FremraAftara180 mm158 mm
Orkunotkun á eldunarsvæði (EC rafmagnseldun)FremraAftara187 Wh/kg186 Wh/kg
Orkunotkun helluborðs (EC rafmagnshelluborð)186,5 Wh/kg
Skrá viðkomandi staðal hér: Tilskipun 2009/125/EC, REGLUGERĐ EVRÓPUPINGSINS OG RÁĐSINS (ESB)Nr 66/2014, EN 60350-2: 2018+A1:2021.

Umhverfismálefni

Förgun heimilistækja

Táknið á vörunni eða umbúðum hennar gefur til kynna að það megi ekki meðhöndla sem hana sem heimilissorp. Pess í stað ætti að fara með vöruna á réttan afhendingarstað til endurvinnslu fyrir rafmagns- og rafeindabúnað. Með því að tryggja að þessi vara sé rétt fargað ertu að koma í veg fyrir hugsanlegar neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfi og heilsu manna, sem annars gæti hlotist við ranga förgun vörunnar. Vinsamlegast hafðu samband við bæjarstjórn, endurvinnslustöð eða verslunina þar sem þú keyptir vöruna til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu á þessari vöru.

⚠ VIDVÖRUN! Fylgdu þessum skrefum til að farga tækinu:

  • Dragið klóna úr innstungunni.
  • Skerið rafmagnssnúruna í burtu og fleygið henni.

Förgun umbúða

Efni með tákninu eru endurvinnanleg.

Fargið umbúðum á viðeigandi söfnunarstað til að endurvinna þær.

Orkusparnaður

Hægt er að spara orku við daglega eldamennsku ef farið er að eftirfarandi ráðum.

  • Setjið lokið á pottinn ef það er hægt.
  • Setjið pottinn á eldunarsvæðið áður en kveikt er á plötunni.
  • Botn pottsins ætti að vera eins þykkur og flatur og mögulegt er.
  • Þegar verið er að hita vatn skal nota það vatnsmagn sem þarf hverju sinni.
  • Notið lok á eldunaráhöld þegar hægt er. • Látið eldunaráhöld beint á miðju eldunarsvæðis.
  • Notið afgangshita til að halda matnum heitum eða til að bræða hann.
  • Setjið lokið á pottinn ef það er hægt.
  • Setjið pottinn á eldunarsvæðið áður en kveikt er á plötunni.
  • Áður en kveikt er á eldunarsvæði skal láta eldunaráhöld á það. • Látið lítil eldunaráhöld á lítil eldunarsvæði.

IKEA-ábyrgð

Hve lengi gildir IKEA-ábyrgðin?

Þessi ábyrgð gildir í 2 ár frá deginum sem þú keyptir upprunalega heimilistækið hjá IKEA, nema annað sé tekið fram í landslögum. Farðu endilega á IKEA.com til að sjá hvað á við um þitt land. Framvísa þarf upprunalegu sölukvittuninni til sönnunar á kaupunum. Ef tækið er þjónustað á ábyrgðartímanum lengir það ekki ábyrgðartímann fyrir tækið.

Hafið samband við verslun IKEA.

Hvað nær ábyrgðin yfir?

Ábyrgðin nær yfir bilanir á heimilistækinu, sem geta hafa orðið vegna smíðagalla eða efnisgalla frá því að það var keypt af IKEA.

Þessi ábyrgð nær aðeins yfir heimilisnotkun. Undanþágur eru tilgreindar undir fyrirsögninni „Hvað nær þessi ábyrgð ekki yfir?” Kostnaður við að bæta úr galla, t.d. viðgerðir, varahlutir, vinna og ferðir verður bættur að því tilskildu að heimilistækið sé aðgengilegt til viðgerða án sérstakra útgjalda á ábyrgðartímanum. Varahlutirnir sem skipt er um verða eign IKEA.

Hvað gerir IKEA til að leysa vandamálið?

IKEA kannar vöruna og ákveður að eigin vild hvort hún fellur undir þessa ábyrgð. Ef það er talið falla undir þá mun IKEA, að eigin vild, annaðhvort gera við gallaða vöru eða skipta um hana með sömu eða sambærilegri vöru.

Hvað nær þessi ábyrgð ekki yfir?

• Eðlilegt slit. - Vísvitandi eða vanrækslutjón, tjón af völdum þess að notkunarleiðbeiningum var ekki fylgt, röng uppsetning eða tenging við ranga spennu, tjón af völdum efna eða rafefnafræðilegra viðbragða, ryð, tæring eða vatnsskemmdir meðal en ekki takmarkað við tjón af völdum óhóflegs kalks í vatnsveitu, tjón af völdum óeðlilegra umhverfisaðstæðna. - Einnota vörur eins og rafhlöður og perur. - Óhagnýtir og skrauthlutir sem hafa ekki áhrif á eðlilega notkun á tækinu, þar á meðal alls konar rispur og mögulegur litamunur. - Tilfallandi tjón af völdum aðskotahluta eða efna og þrifa eða hreinsun á síum, fráveitum eða sápuskúffum.

  • Skemmdir á eftirfarandi hlutum: keramikgleri, fylgihlutir, leirtaus- og hnífaparakörfum, aðrennslis- og frárennslisrörum, þéttum, perum og peruhlífum, skjáum, hnöppum, hlífum og hluti af hlífum. Nema hægt sé að sanna að slíkt tjón sé tilkomið vegna framleiðslugalla.
  • Viðgerðir sem ekki eru framkvæmdar af skipuðum þjónustuaðila okkar og/eða viðurkenndum þjónustuaðila sem er samningsbundinn samstarfsaðili eða upprunalegir varahlutir hafa ekki verið notaðir.
  • Viðgerðir af völdum gallaðrar uppsetningar eða sem er ekki í samræmi við tæknilýsingu.
  • Notkun tækisins í umhverfi sem er ekki heimili, þ.e. nota í atvinnuskyni.
  • Skemmdir vegna flutninga. Ef viðskiptavinur flytur vöruna heim til sín eða á annað heimilisfang, ber IKEA ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða í flutningum.

Hins vegar, ef IKEA afhendir vöruna á heimilisfang viðskiptavinarins, þær skemmdir á vörunni sem á sér stað við þessa afhendingu fellur undir ábyrgðina.

- Kostnaður við að setja upp IKEA heimilistækið í fyrsta sinn. Ef þjónustuaðili skipaður af IKEA eða viðurkenndur samstarfsaðili hans gerir við eða skiptir um heimilistækið samkvæmt ákvæðum þessarar ábyrgðar mun skipaður þjónustuaðili eða viðurkenndur samstarfsaðili hans setja aftur upp viðgerða heimilistækið eða endurnýjaða tækið, ef þörf krefur.

Hvernig lög landsins gilda

IKEA-ábyrgðin veitir þér tiltekin lagaleg réttindi sem ná yfir eða fara fram úr laglegum kröfum á staðnum. En þessir skilmálar takmarka á engan hátt réttindi neytandans sem lýst er í staðbundinni löggjöf.

Gildissvæði

Varðandi heimilistæki sem keypt eru í einu ESB-landi og farið með þau í annað ESB-land verður sama þjónusta veitt innan ramma ábyrgðarskilmála sem gilda í nýja landinu. Skylda til að framkvæma þjónustu innan ramma ábyrgðarinnar er eingöngu til staðar ef heimilistækið uppfyllir og er uppsett í samræmi við:

  • tæknilýsingu þess lands sem ábyrgðarkrafan er sett fram í;
  • samsetningarleiðbeiningar og öryggisupplýsingar í notendahandbókinni.

ÞJÓNUSTA EFTIR SÖLU Á IKEA-TÆKJUM

Hikið ekki við að hafa samband við IKEA á:

  • fara fram á þjónustu sem fellur undir þessa ábyrgð;
  • biðja um skýringar á virkni IKEA tækisins.

Vinsamlegast lestu vandlega leiðbeiningarnar um samsetningu og/eða notendahandbókina áður en haft er samband við okkur til að tryggja að við bjóðum þér bestu aðstoð.

Hvernig á að ná í okkur ef þú þarft á þjónustu okkar að halda

IKEA TILLREDA 705.931.21 - Hvernig á að ná í okkur ef þú þarft á þjónustu okkar að halda - 1

Þjónustuborð IKEA mun aðstoða þig í síma með grunnbilanaleit á tækinu þínu þegar hringt er með fyrirspurn. Skoðið bækling IKEA eða farið á www.ikea.com til að finna símanúmer á versluninni nálægt þér og opnunartíma.

Vinsamlegast hafið einnig ávallt vörunúmer IKEA (8 stafa númer) sem er staðsett á matsplötunni á tækinu í því skyni að veita þér fljótari þjónustu.

GEYMIÐ SÖLUKVITTUNINA!

Hún sannar að kaupin hafi átt sér stað og er nauðsynleg til að ábyrgðin gildi. Sölukvittunin sýnir einnig IKEA nafnið og númer hlutarins (8 stafa númer) fyrir hvert tæki sem þú hefur keypt.

Þarft þú meiri hjálp?

Vinsamlegast hafðu samband við þjónustuborð IKEA til að fá svör við spurningum sem tengjast ekki eftirsölu á tækinu þínu. Við mælum með að lesa bæklingana sem fylgja heimilistækinu áður en haft er samband við okkur.

Innihald

Efnisyfirlit Smelltu á titil til að fá aðgang að honum
Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : TILLREDA 705.931.21

Flokkur : Eldavél