AHW 2500/1 - Transpalette Herkules - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis AHW 2500/1 Herkules á PDF sniði.
Spurningar notenda um AHW 2500/1 Herkules
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Transpalette á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína AHW 2500/1 - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. AHW 2500/1 vörumerkisins Herkules.
NOTENDAHANDBÓK AHW 2500/1 Herkules
Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða. Lesið því notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar vandlega. Geymið allar leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til þeirra ef þörf er á. Látið notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem ekki er nefnd í þessum notandaleiðbeiningum eða öryggisleiðbeiningum.
1. Öryggisleiðbeiningar
Hætta!
Lesið öryggisleiðbeiningar og aðrar leiðbeiningar sem fylgja þessu tæki. Ef ekki er farið eftir öryggisleiðbeiningunum og öðrum leiðbeiningum getur myndast hætta á raflosti, bruna og/eða alvarlegum slysum. Geymið öryggisleiðbeiningarnar og notandaleiðbeiningarnar vel til notkunar í framtíðinni.
- Farið eftir settum reglum og lögum varðandi slys.
- Lyftið ekki meiri þunga en tækið er gefið upp fyrir.
- Notið brettatjakkinn fyrst eftir að búið er að læra á hann og eftir að hafa fengið tilsögn í notkun hans.
- Yfirfarið tjakkinn fyrir hverja notkun og athugið hvort að hann sé skemmdur og hvort að hann virki rétt.
- Notið brettatjakkinn ekki á ósléttu gólfi eða þar sem að yfirborð gólfsins er laust.
- Brettatjakkurinn er ekki útbúinn með neinni bremsu. Það má ekki nota hann í halla eða í tröppum.
- Notið vinnuvettlinga og öryggisskó.
- Það er stranglega bannað að vera undir hlassi sem er lyft.
- Hlaða verður hlassinu þannig að þungi þess dreifist jafnt yfir flöt brettatjakksins. Flytjið aldrei laust áhlaðið eða óstöðugt hlass með þessu tæki.
- Brettatjakkinn má ekki hlaða á meðan að hann er í upptjakkaðri stöðu.
- Skiljið brettatjakkinn aldrei eftir án eftirlits með hlassi í upptjakkaðri stöðu. • Grípið aldrei í hreyfanlega hluti. • Bannað er að flytja fólk. • Haldið ávallt að minnsta kosti 60 cm öryggis-
fjarlægð frá hlassi og öðru fólki.
• Vinnusvæði verður að vera vel upplýst.
2.1 Tækislýsing (myndir 1)
1 Haldfang
2 Tjakkhaldfang 3 Tjakkbeisli 4 Vökvaeining 5 Stýrihjól 6 Lyftigafflar 7 Burðarhjól (tvöföld) 8 Fetill
2.2 Innihald
Vinsamlegast yfirfarið hlutinn og athugið hvort allir hlutir fylgi með sem taldir eru upp í notandaleiðbeiningunum. Ef að hluti vantar, hafið þá tafarlaust, eða innan 5 vinnudaga eftir kaup á tæki, samband við þjónustuborð okkar eða þá verslun sem tækið var keypt í og hafið með innkaupanótuna. Vinsamlegast athugið töflu aftast í leiðbeiningunum varðandi hluti sem eru ábyrgðir.
Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr umbúðunum. - Fjarlægið umbúðirnar og læsingar umbúða / tækis (ef slíkt er til staðar). - Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu. Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort að flutningaskemmdir séu að finna. Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til að ábyrgðartímabil hefur runnið út.
Hætta!
Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur og smáhluti! Hætta er á að hlutir geti fests í hálsi og einnig hætta á köfnun!
• Brettatjakkur • Tjakkbeisli • Spennihulsa (2x) • Málmpinni • Notandaleiðbeiningar
IS
3. Tilætluð notkun
Þetta tæki er til þess að flytja hluti á vörubrettum á opnum gólfum eða með þverbrettum sem ekki eru út yfir burðarhjólum á sléttu og hörðu gólfi. Það er bannað að flytja fólk með og einnig að lyfta því.
Þetta tæki má einungis nota í þau verk sem það er framleitt fyrir. Öll önnur notkun sem fer út fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins.
4. Tæknilegar upplýsingar
Hæð samtals: 1210 mm
Lengd samtals: 1500 mm
Gaffallengd: 1150 mm
Lágmarks gaffalhæð: 85 mm
Hámarks gaffalhæð: 195 mm
Breidd hvers gaffals: 156 mm
Breidd gaffla samtals: 550 mm
Hámarks lyftihæð: 110 mm
Burðargeta: 2500 kg
Þyngd (um það bil): 66 kg
Stýrihjól ∅: 180 mm
Burðarhjól ∅: 80 mm
5. Samsetning
Tilmæli: Tjakkeiningin er tryggð með málmpinna (M). Fjarlægið hann fyrst, þegar beðið er um það seinna í samsetningarleiðbeiningunum og geymið til seinni notkunar.
- (Mynd 1) ýtið rofanum (2) alveg niður í stillingarstöðu (sjá 6. Notkun).
- (Mynd 2) þræðið stjórnkeðjuna (F) út á við í gegnum opið á neðri hluta tjakksins.
- (Mynd 2) stingið málmpinnanum (B) í gegnum gatið á tjakköxlinum (C) og raufina í tjakknum. Gangið úr skugga um að spennistýringin (E) með spennuraufinni passi við málmpinnann (B).
- (Mynd 3) þræðið stýrikeðjuna (F) í gegnum gatið í málmboltanum (B) þannig að þrýstivökvaeiningin virki.
- (Mynd 3) ýtið á fetlinum (8) niður á við.
- (Mynd 4) krækið stilliskrúfunni (H) með áður áfestri ró (K) í þrýstivökvarofann (L). Skrúfið efri stilliróna (N) örlítið upp ef þörf er á til þess að auðvelda samsetninguna. Sleppið aftur fetlinum. Skrúfið efri stilliróna (N) á móti þrýstivökvarofanum (L).
- (Mynd 5) ýtið tjakkarminum (3) aðeins niður á við, þrýstivökvaöryggispinninn (M) losnar lítið eitt við það og hægt er að fjarlægja hann.
- (Myndir 6 og 7) gangið úr skugga um að spennistýring málmpinnans (B) með spennihulsustyringunni (E) passi við opið á tjakkarminum. Sláið með hamri og með hjálp þrýstivökvaöryggispinnans (M) spennihulsuna (A) inn í málmpinnann (B) hægra- og vinstramegin.
Tilmæli: Það er mögulegt að setja aukalega fótbremsu á þetta tæki. Ef þörf er á því, hafið þá samband við þjónustuaðila.
Virkni fótbremsunar:
Ýtið fótbremsunni alveg inn og til hægri – nú eru hjólin læst. Ýtið fótbremsunni til vinstri – nú eru hjólin aftur laus.
6. Notkun
Varúð! Vinsamlegast kynnið ykkur öryggisleiðbeiningarnar (Kafli 1) og mynd 9. Á tjakkbeislinu er að finna límmiða með lýsingum stöðu tjakkhaldfangisins (mynd 8).
1 = Slaka niður tjakki (slökunarstaða) 2 = Akstur (akstursstaða) 3 = Lyfta tjakki (lyftistaða)
Einungis má skilja brettatjakkinn eftir án eftirlits í niðurslakaðri stöðu. Eftirfarandi möguleikar eru til staðar og nú þegar stilltir af framleiðanda tækisins.
6.1 Hlassi lyft (mynd 1)
Prýstið tjakkhaldfanginu (2) niður (lyftistaða). Eftir það, hreyfið tjakkbeislið (3) nokkrum sinnum niður og upp til skiptis. Við það lyftist hlassið.
6.2 Hlass dregið (mynd 1)
Setjið tjakkhaldfangið (2) í miðstöðu (akstursstaða). Prýstivökvaeiningin er nú óvirk þannig að hlassinu er ekki hægt að lyfta né slaka því niður.
6.3 Hlassi slakað niður (mynd 1).
Hreyfið ekki brettatjakkinn og dragið upp tjakkhaldfangið (2) alla leið (slökunarstaða). Við það sígur hlassið niður. Eftir að búið er að sleppa tjakkhaldfanginu (2) hrekkur það sjálfkrafa aftur til baka niður í miðstöðuna (akstursstaða).
Hlassi er einungis hægt að síga með því að þrýsta á fetilinn (mynd 1 / staða 8).
Ef að vökvaeiningin virkar ekki eins og lýst er hér í kafla 6 að ofan verður að stilla hana upp á nýtt. Losa verður festiróna (mynd 4 / staða N) áður en að stillivinna er hafin og hún verður að vera hert aftur að stillingarvinnu lokinni.
7.1 Lyftigafflar lyftast í akstursstöðu
(Mynd 4) Snúið rónni (K) sem er uppá stillingar-boltanum (H) réttsælis þar til að gafflarnir hætta að tjakkast upp á meðan að tjakkhaldfangið er í akstursstöðunni og þangað til að brettatjakkurinn virkar rétt.
7.2 Gafflarnir síga þegar að brettatjakkurinn er í akstursstöðu
(Mynd 4) Snúið rónni (K) sem er uppá stillingar-boltanum (H) rangsælis þar til að gafflarnir hætta að síga niður á meðan að tjakkhaldfangið er í akstursstöðunni og þangað til að brettatjakkurinn virkar rétt.
7.3 Gafflarnir eru nú hættir að síga á meðan tjakkhaldfangið er í slökunarstöðu.
(Mynd 4) Snúðu rónni (K) sem er upp á stillingarboltanum (H) réttsælis þar til að gafflarnir síga þegar tjakkhaldfangið er dregið upp. Athugaðu að lokum hvort brettatjakkurinn virki rétt í akstursstöðunni til þess að ganga úr skugga um að róin sé á réttum stað á stilliboltanum.
7.4 Gafflarnir lyftast ekki þegar tjakkhaldfangið er í lyftistöðu.
(Mynd 4) Snúðu rónni (K) sem er upp á stillingarboltanum (H) rangsælis þar til að gafflarnir lyftast upp þegar tjakkhaldfangið er í lyftistöðu. Athugaðu að lokum hvort brettatjakkurinn virki rétt í akstursstöðunni til þess að ganga úr skugga um að róin sé á réttum stað á stilliboltanum.
8. Hreinsun, umhirða og pöntun varahluta
8.1 Hreinsun
Notið rakan klút til þess að hreinsa tækið að utanverðu.
8.2 Umhirða
Til þess að tryggja rétta virkni brettatjakksins er nauðsynlegt að yfirfara hann reglulega og hlúa að honum eða gera við hann ef þörf er á því. Öll sú aðhlynning og allar þær viðgerðir sem ekki eru taldar fram hér í þessum leiðbeiningum verður að fara fram hjá viðurkenndum fagaðila. Þetta á sérstaklega við þegar kemur að því að skipta um stýrihjól eða burðarhjól.
Þegar brettatjakkurinn bilar verður að taka hann umsvifalaust úr notkun og láta gera við hann af viðurkenndum fagaðila. Einungis má nota upprunalega varahluti í þetta tæki.
Fara verður yfir brettatjakkinn að minnsta kosti árlega af fagaðila, oftar en það ef þörf er á. Það er mælt með því að halda yfirhalningarbók um tækið.
Eftir viðgerðir á tæki eða umhirðu verður að ganga úr skugga um að allir öryggistengdir hlutir tækisins séu á sínum stað og að þeir virki rétt. Haldið hlutum sem valdið geta slysum á öðru fólki verður að geyma á lokuðum stað.
Varúð: Samkvæmt lögum sem varða ábyrgðir á hlutum er framleiðandi ekki ábyrgur fyrir skaða sem hlotist hefur vegna óleyfilegra viðgerða eða þegar notaðir hafa verið varahlutir sem ekki hafa verið samþykktir af framleiðanda. Auk þess er framleiðandi ekki ábyrgur fyrir skaða vegna óleyfilegra viðgerða. Látið þjónustuaðila eða viðurkenndan fagaðila gera við þetta tæki. Þetta á einnig við um aukahluti.
8.2.1 Fyllt á þrýstiolíu
Athugið áfyllingarástand olíunnar hálfsárslega. Til þess að fylla á olíu eða skipta um hana má einungis nota olíur með seigjuna HLP 46 (-20°C – +40°C). Áfyllingarmagnið á brettatjakkinn er um það bil 0,4 lítrar.
Varúð! Til þess að koma í veg fyrir umhverfisspjöllun vegna lekandi olíu við aðhlynningu á þessu tæki verður að þurrka upp strax alla þá olíu sem lekið hefur niður með viðeigandi efni (til dæmis viðarspónum, þurrum klút). Óhreint aðhlynningarefni og önnur efni sem notuð eru verður að farga á ábyrgan og réttan hátt.
- Látið gafflana síga alla leið niður
- Fjarlægið olíuáfyllingarskrúfuna og þéttinguna úr olíugeyminum.
- Fyllið á olíu þar til að yfirborð hennar hefur náð upp að skrúfganginum
- Setjið olíuáfyllingarskrúfuna og þéttinguna aftur í olíugeyminn.
- Fjarlægið loft af kerfinu með því að tjakka brettatjakkinn nokkrum sinnum upp
8.3 Loft tekið af vökvakerfinu
Ef að gafflarnir lyftast ekki verður að setja tjakkhaldarið í slökunarstöðuna og tjakka þannig tjakkbeislinu upp og niður nokkrum sinnum.
8.4 Hreyfanlegir hlutir smurðir
Smyrja verður hreyfanlega hluti brettatjakksins reglulega.
8.5 Pöntun varahluta:
Þegar að varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind;
- Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á. Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-gmbh.info
Þetta tæki er afhent í umbúðum sem hlífa tækinu fyrir skemmdum við flutninga. Þessar pakkningar eru endurnýtanlegar eða hægt er að endurvinna þær. Þetta tæki og aukahlutir þess eru úr mismunandi efnum eins og til dæmis málmi og plastefnum. Skemmd tæki eiga ekki heima í venjulegu heimilissorpi. Til þess að tryggja rétta förgun á þessu tæki ætti að skila því til þar til gerðra sorpmóttökustöðva. Ef að þér er ekki kunnugt um þessháttar sorpmóttökustöðvar ættir þú að leita til bæjarskrifstofu varðandi upplýsingar.
10. Geymsla
Geymið tækið og aukahluti þess á dimmum, þurrum og frostlausum stað þar sem börn ná ekki til. Kjörhitastig geymslu er á milli 5 og 30 °C. Geymið rafmagnsverkfæri í upprunalegum umbúðum.
11. Tilmæli varðandi vandamál
Ef rétt er farið með tækið og það notað rétt, ættu ekki að koma upp nein vandamál. Ef vandamál koma upp ætti að athuga eftirfarandi möguleika áður en leitað er til þjónustuaðila.
| Vandamál Mögulegar ástæður Lausn | ||
| Gafflarnir lyftast ekki alla leið upp í hæðstu stöðu | Of lítil olía Fyllið á olíu | |
| Gafflarnir lyftast ekki Engin olía er á tjakknumOlían er óhreinStillingarró (K) er of hertLoft er á olíueiningu | Fyllið á olíuSkiptið um olíuStillið stillingarróna (K) (sjá lið 7)Takið loft af olíueiningu (sjá lið 8) | |
| Gafflarnir síga ekki Tjakkstöng eða tjakkhús er skemmt vegna of pungs hlass eða ef að hlassi hefur verið dreift ójafnt yfir brettatjakkinnTjakkbeisli er fastStillingarróin (K) er rangt stillt | Skipta verðu um tjakkstöng eða tjakkhús*Skiptið tjakkstöng*Stillið stillingarróna (K) (sjá lið 7.) | |
| Ópéttir staðir Péttingar eru slitnar eða skemmdarPrýstieining er biluð | Skiptið um þéttingar*Skiptið um þrýstieiningu* | |
| Gafflarnir síga sjálfkrafa án pess að slökunarkrani sé virkur | Olian er óhreinPrýstieining er biluðLoft er á olíueininguPéttingar eru slitnar eða skemmdarStillingarróin (K) er rangt stillt | Skiptið um olíuSkiptið um þrýstieiningu*Takið loft af olíueiningu (sjá lið 8.)Skiptið um þéttingar*Stillið stillingarróna (K) (sjá lið 7.) |
Varúð!
* Þessi vinna verður að vera framkvæmd af viðurkenndum fagaðila.
Eftirprentun eða önnur fjölprentun fylgiskjala og leiðarvisa vörunnar, líka í úrdrætti, er ekki leyfileg nema skriflegt samþykki frá iSC GmbH komi til.
Það er áskilið að tæknilegar breytingar séu leyfðar
IS
Ábyrgðarskírteini
Kæri viðskiptavinur,
Vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef tækið virkar þrátt fyrir það ekki fullkomlega, þykir okkur það mjög leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilsfang er að finna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:
- Þetta ábyrgðarskírteini lýsir aukalegri ábyrgð sem neðan nefndur framleiðandi ábyrgist viðskiptavinum sínum umfram þær ábyrgðir sem reglur og lög gefa kröfur um. Þín almenna lagalega ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgðaliði. Ábyrgðarþjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu.
- Ábyrgðin nær eingöngu yfir galla á nýju tæki sem þú hefur fest kaup á sem var framleitt af neðangreindum framleiðanda. Ábyrgðin nær einungis yfir galla sem eru vegna efnisgalla eða framleiðslugalla og takmarkast við okkar ákvörðun um að endurbæta gallann eða skipta út tækinu. Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef tækið er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskyni eða annan slíkan sambærilegan hátt.
- Ábyrgð okkar gildir ekki yfir
- Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangrar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notandaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tækið hefur verið tengt við ranga rafspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækis varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tækið hefur verið notað undir óeðlilegum náttúruáhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu.
- Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir íhlutir eða aukahlutir), ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tækið (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, flutningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða utanaðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tækið fellur niður).
- Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra utanaðkomandi eðlilegra uppnotkunar.
- Ábyrgðartíminn er 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaups á tæki. Tilkynna verður um skemmdir eða galla á tæki áður en að ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemmdin er fundin. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi eftir að ábyrgðartímabilið er útrunnið. Ef að gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd til staðar.
- Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafið þá samband við: www.isc-gmbh.info. Ef að skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess færð þú umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla.
Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notandaleiðbeiningunum.