H-F 1000 - Palan Herkules - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis H-F 1000 Herkules á PDF sniði.
Spurningar notenda um H-F 1000 Herkules
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Palan á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína H-F 1000 - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. H-F 1000 vörumerkisins Herkules.
NOTENDAHANDBÓK H-F 1000 Herkules
Hætta! – lesið notandaleiðbeiningarnar til þess að takmarka hættu á slysum
Hætta!
Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða. Lesið því notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar vandlega. Geymið allar leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til þeirra ef þörf er á. Látið notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem ekki er nefnd í þessum notandaleiðbeiningum eða öryggisleiðbeiningum.
1. Öryggisleiðbeiningar
Hætta!
Lesið öryggisleiðbeiningar og aðrar leiðbeiningar sem fylgja þessu tæki. Ef ekki er farið eftir öryggisleiðbeiningunum og öðrum leiðbeiningum getur myndast hætta á raflosti, bruna og/eða alvarlegum slysum. Geymið öryggisleiðbeiningarnar og notandaleiðbeiningarnar vel til notkunar í framtíðinni.
- Ekki má leggja meira álag á tækið en leyfilegt er, þar sem of mikið álag getur leitt til þess að keðjutalían skemmist eða þoli minna álag í framtíðinni.
- Notið ekki rafknúin aukatæki til þess að knýja áfram keðjutalíuna. Þessi keðjutalía er eingöngu ætluð til þess að knýja með handafli.
- Reynið ekki að gera við burðarkeðjuna. Ef burðarkeðjan er skemmd, má einungis skipta um hana af fagmanni. Burðarkeðjan sem er endurnýjuð verður að vera samskonar og sú fyrri og úr sama efni.
- Smyrjið burðarkeðjuna fyrir notkun.
- Ekki má smyrja bremsuflötina. Bremsan verður að vera þurr.
- Gangið úr skugga um að burðarkeðjan sé ekki flækt og að hún sé hnútalaus. Séu hnútar á henni, verður að losa um þá fyrir notkun.
- Gangið úr skugga um að burðarkeðjan sé föst í burðarpinna fyrir hverja notkun.
- Standið í sömu stellingu og í sama snúningi og drifhjólið, þegar togað er í keðjuna. Dragið ekki í keðjuna til hliðar. Líkamsstaða verður að vera traust.
- Lyftið ekki hlassi yfir fólk. Leyfið ekki fólki að setja fætur undir hlass. Þegar hlassi er lyft verður að vara nærstadda áður.
- Lyftið ekki fólki með keðjutalíunni.
- Hluturinn sem lyft er verður að vera tryggilega
festur í króknum. Reynið ekki að lyfta hlutum með oddi króksins.
- Dragið jafnt í dráttarkeðjuna til að koma í veg fyrir að hluturinn sem lyft er kastist til eða hristist.
- Ef keðjan festist eða ef ekki er hægt að draga hana lengra, hættið þá að reyna að draga í hana. Athugið ástæðu vandamálsins og fjarlægið hana. Reynið ekki að nota keðjutalíuna með afli. Látið ekki hluti hanga í talíunni.
- Látið ekki hlass síga þannig að nýtanlegi hluti keðjunnar sé notaður. Ef togað er of harkalega í keðjuna á milli keðjuhjóls og burðarpinna, getur það leitt til skemmda.
- Látið hlassið ekki komast í snertingu við talíuna, annars getur hlassið ekki snúist frjálst, skaði valdist, keðjan getur brotnað eða hjólin geta fests.
- Yfirfarið tækið reglulega og hirðið vel um það. Láta verður fagaðila skipta um alla skemmda hluta þessa tækis.
- Fara verður vel yfir talíuna og virkni hennar áður en hún er notuð, hvort sem er "undir álagi" eða "án álags".
- Ganga verður úr skugga um að þyngd þess hlutar sem lyfta á sé minni en hámarksþyngd talíunnar. Ef notandi er ekki viss má ekki nota talíuna í það verk.
- Aldrei að leggja of mikið álag á talíuna.
- Farið yfir öryggisatriði, talíuna og smurningu fyrir vinnu og á meðan vinna er framkvæmd. Notið talíuna einungis ef hún er í fullkomnu ásigkomulagi.
- Gangið ávallt úr skugga um að keðjan sé lóðrétt og sé ekki flækt.
- Togið ekki skakkt í handkeðjuna né í burðarkeðjuna.
- Notið keðjutalíuna ekki ef umhverfið er eldfimt eða þar sem sprengihætta er til staðar.
- Yfirfarið burðarkeðjuna (1), handkeðjuna (2), festikrókinn (3), burðarkrókinn (4), burðarpinnann (5), drifhjólið (6) og króklæsinguna (7) reglulega vegna skemmda; sérstaklega ef talían hefur ekki verið notuð lengi.
- Stillið handkeðjuna (2) þannig að millibilið á milli handkeðju (2) og beygju hennar sé á milli 500-1000 mm yfir gólfinu.
- Fylgist vel með bilunum sem geta orðið á meðan tækið er notað. Ef bilun á sér stað verður að taka talíuna tafarlaust úr notkun.
- Hitastig notkunarstaðar verður að vera á milli -10°C og +50°C.
2.1 Tækislýsing (myndir 1/2)
- Burðarkeðja
- Handkeðja
- Festikrókur
- Burðarkrókur
- Burðarpinni
- Drifhjól
- Krókslæsing
2.2 Innihald
- Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr umbúðunum.
- Fjarlægið umbúðirnar og læsingar umbúða / tækis (ef slíkt er til staðar).
- Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu.
- Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort að flutningaskemmdir séu að finna. Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til að ábyrgðartímabil hefur runnið út.
Hætta!
Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur og smáhluti! Hætta er á að hlutir geti fests í hálsi og einnig hætta á köfnun!
• Notandaleiðbeiningar
3. Tilætluð notkun
Keðjutalían er tæki sem ætlað er til þess að hífa og slaka hlutum lóðrétt.
Þetta tæki má einungis nota í þau verk sem það er framleitt fyrir. Öll önnur notkun sem fer út fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins.
Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Við tökum enga ábyrgð á tækinu, sé það notað í iðnaði, í atvinnuskyni eða í tilgangi sem á einhvern hátt jafnast á við slíka notkun.
4. Tæknilegar upplýsingar
Hámarksþvermál Festikrókur: ...... 21 mm
Hámarksþvermál burðarkróks: 19 mm
Burðargeta: 1000 kg
Hámarks lyftihæð: 2,5 m
Stærð burðarkeðju (ISO 3077-T(8)): 6 x 18 mm
Þyngd: 8,9 kg
5. Fyrir notkun
- Kynnið ykkur notkun keðjutalíunnar og lærið að nota hana "án hlass" áður en hlassi er lyft með henni.
- Ganga verður úr skugga um að keðjutalían sé vel og örugglega fest. Verið sérstaklega gagnrýnin þegar festingarstaður talíunnar er valinn, þar sem halda verður tvöfaldri þyngd þess hlutar sem lyfta á. Ef þú ert ekki viss hvort festingarstaðurinn sé nægilega traustur er betra að velja annan stað.
- Festa verður keðjutalíuna þannig að hún geti ekki skipt um stöðu á meðan hún er í notkun.
- Króklæsingarnar á festikróknum og burðarkróknum verða að vera lokaðar á meðan tækið er notað.
6. Notkun
6.1 Hlassi lyft
Á fremri hluta keðjutalíunnar er að finna ör með merkingunni "UP", sem á að snúa uppávið. Togið frá þessari hlið í handkeðjuna (2) til þess að lyfta hlassi.
6.2 Hlass látið síga
Á fremri hluta keðjutalíunnar er að finna ör með merkingunni "DN", sem snýr niðurávið. Togið frá þessari hlið í handkeðjuna (2) til að láta hlass síga.
7. Hreinsun, umhirða og pöntun varahluta
7.1 Hreinsun og umhirða
- Til þess að tryggja sem lengstan líftíma og hámarks vinnuöryggi keðjutaliunnar, verður að fjarlægja óhreinindi af keðjutaliunni, smyrja hluta hennar eftir notkun og geyma talíuna á þurrum stað.
- Breytið ekki sjálf talíunni né framkvæmið viðgerðir á henni, viðgerðir verða að vera framkvæmdar af fagaðila.
- Athuga verður reglulega hvort að keðjutalían sé skemmd.
- Athuga verður reglulega hvort að keðjutalían virki rétt.
7.2 Pöntun varahluta:
Þegar að varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind;
Gerð tækis • Gerðarnúmer tækis • Númer tækis - Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á
Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-gmbh.info
Eftirprentun eða önnur fjölprentun fylgiskjala og leiðarvísa vörunnar, líka í úrdrætti, er ekki leyfileg nema skriflegt samþykki frá iSC GmbH komi til.
Það er áskilið að tæknilegar breytingar séu leyfilegar
Þetta tæki er afhent í umbúðum sem hlífa tækinu fyrir skemmdum við flutninga. Þessar pakkningar endurnýtanlegar eða hægt er að endurvinna þær. Þetta tæki og aukahlutir þess eru úr mismunandi efnum eins og til dæmis málmi og plastefnum.
Skemmd tæki eiga ekki heima í venjulegu heimilissorpi. Til þess að tryggja rétta förgun á þessu tæki ætti að skila því til þar til gerðra sorpmóttökustöðvar. Ef að þér er ekki kunnugt um þessháttar sorpmóttökustöðvar ættir þú að leita til bæjarskrifstofur varðandi upplýsingar.
9. Geymsla
Geymið tækið og aukahluti þess á dimmum, þurrum og frostlausum stað þar sem að börn ná ekki til. Kjörhitastig geymslu er á milli 5 og 30 °C. Geymið rafmagnsverkfæri í upprunalegum umbúðum.
IS
Ábyrgðarskírteini
Kæri viðskiptavinur,
Vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef að tækið virkar þrátt fyrir það ekki fullkomlega, þykir okkur það mjög leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilisfang er að finna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem að tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:
- Þetta ábyrgðarskírteini lýsir aukalegri ábyrgð sem að neðan nefndur framleiðandi ábyrgist viðskiptavinum sínum umfram þær ábyrgðir sem reglur og lög gefa kröfur um. Þín almenna lagalega ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgðaliði. Ábyrgðarþjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu.
- Ábyrgðin nær eingöngu yfir galla á nýju tæki sem þú hefur fest kaup á sem var framleitt af neðangreindum framleiðanda. Ábyrgðin nær einungis yfir galla sem eru vegna efnisgalla eða framleiðslugalla og takmarkast við okkar ákvörðun um að endurbæta gallann eða skipta út tækinu. Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef að tækið er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskyni eða annan slíkan sambærilegan hátt.
- Ábyrgð okkar gildir ekki yfir
- Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangrar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notandaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tækið hefur verið tengt við ranga rafspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækis varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tækið hefur verið notað undir óeðlilegum náttúruáhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu.
- Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir íhlutir eða aukahlutir), ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tækið (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, flutningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða utanaðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tækið fellur niður).
- Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra utanaðkomandi eðlilegra uppnotkunar.
- Ábyrgðartíminn er 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaups á tæki. Tilkynna verður um skemmdir eða galla á tæki áður en að ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemmdin er fundin. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi eftir að ábyrgðartímabilið er útrunnið. Ef að gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd til staðar.
- Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafið þá samband við: www.isc-gmbh.info. Ef skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess færð þú umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla.
Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notandaleiðbeiningunum.

IS Lýsir uppfyllingu EU-reglna og annarra staðla vöru.