VARDAGEN 805.813.30 - Casserole IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis VARDAGEN 805.813.30 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um VARDAGEN 805.813.30 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Casserole á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína VARDAGEN 805.813.30 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. VARDAGEN 805.813.30 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK VARDAGEN 805.813.30 IKEA
- Fyrir fyrstu notkun gætu verið leifar af olíu á vörunni. Það er vegna þess að IKEA pönnur úr kolstáli hafa verið meðhöndlaðar með matarolíu til að koma í veg fyrir að þær skemmist í flutningum.
- Í sumum tilfellum gætu verið litlir ryðblettir á pönnunni. Það gæti gerst ef pannan hefur komist í snertingu við raka í flutningum og er eðlilegt fyrir nýja pönnu úr kolstáli.
- Sýnileg ummerki olíu eða ryðblettir eru skaðlaus og hafa ekki áhrif á notagildi pönnunnar. Þau hverfa eftir að búið er að steikja hana til, sem þarf að gera áður en þú notar vöruna í fyrsta sinn. Vinsamlega fylgdu leiðbeiningunum að neðan til að steikja til pönnuna.
Áður en varan er tekin í notkun
- Fyrir fyrstu notkun þarf að þvo pönnuna í höndunum og þurrka vel. Leifar af meðhöndlun með matarolíu hjálpa til við að steikja pönnuna til.
- Til að koma í veg fyrir að pannan tærist og matur festist þarf að steikja hana til. Með því að steikja hana til fyllast glufur af olíu sem mynda varnarlag. Þú getur notað alls kyns helluborð eða ofn til að steikja pönnuna til, eins og hentar. Fylgdu leiðbeiningunum að neðan eða horfðu á leiðbeiningamyndband á www.IKEA.com
Steikja til: Ráð og meðmæli.
- Notaðu jurtaolíu með hátt brennslumark og hlutlaust bragð, til að mynda vínberjafræolíu eða sólblómaolíu.
- Þegar þú steikir hana til þarf aðeins að nudda olíu á yfirborðið sem kemst í snertingu við mat. Ytra byrði þarf aðeins þunnt lag af olíu af og til, svo það sé varið fyrir ryði. Haldan er lökkuð og þarf því ekki olíu.
- Fyrir bestu útkomu þegar þú steikir til pönnu á helluborði er gott að stærðin á hellunni sé sú sama og stærðin á pönnunni. Það tryggir jafnan hita þegar þú notar hana til að steikja og það festist síður matur á henni.
- Gættu þess að brenna ekki hendurnar þar sem pannan verður afar heit þegar hún er steikt til. Við mælum með að nota eldhústangir til að halda á eldhúspappírnum þegar þú nuddar olíu á heita pönnu. Þegar þú steikir pönnu til í ofni, láttu hana kólna alveg áður en þú tekur hana út.
- Þegar þú hefur farið eftir leiðbeiningunum getur þú bætt við örlítilli olíu til að færa pönnunni meiri glans. Nú getur þú notað hana til að elda mat. Viðloðunarfríir eiginleikar
pönnunnar verða enn betri og pannan verður dekkri eftir notkun og að lokum svört. Athugaðu að það verður að nota fitu til að elda með pönnu úr kolstáli en þó mun minna en til dæmis á ryðfrírri stálpönnu.
Steikja til pönnu á helluborði
- Helltu góðu magni af jurtaolíu á pönnuna og nuddaðu henni í allt yfirborðið með eldhúspappír. Þegar búið er að nudda olíuna í pönnuna ætti eldhúspappír að geta dregið nóg af olíu í sig þannig að það drjúpi af honum. Geymdu pappírinn.
- Leggðu pönnuna á hellu sem er í sömu stærð og pannan. Stilltu á miðlungshita (6 af 10) og pannan hitnar rólega þar til það rýkur örlítið úr henni og hún verður dekkri, sem er eðlilegt og hluti af ferlinu.
- Haltu áfram að steikja pönnuna í u.þ.b. 10 mínútur. Til að tryggja að allt yfirborð pönnunnar sé olíuborið og til að tryggja jafnara lag þarf að nudda yfirborðið með olíu á tveggja mínútna fresti; notaðu töng til að nudda með eldhúspappír með olíunni til að koma í veg fyrir bruna. Prófaðu að snúa pönnunni af og til fyrir enn jafnari hita. Þú tekur eftir því að olían þykknar örlítið og pannan dregur hana í sig.
- Taktu pönnuna af hellunni, þurrkaðu afgangsolíu af með þurrum eldhúspappír og leyfðu henni að kólna niður í stofuhita.
- Endurtaktu ferlið í 10 mínútur til viðbótar en í þetta sinn með aðeins þunnu lagi af olíu með nýjum eldhúspappír. Pannan gæti orðið örlítið þurrari og pappírinn festist við; ef svo er þá getur þú bætt við smá olíu þannig að þú getur auðveldlega nuddað henni í pönnuna á 2 mínútna fresti.
- Taktu pönnuna af hellunni, þurrkaðu afgangsolíu af með þurrum eldhúspappír og leyfðu henni að kólna niður í stofuhita. Í þetta sinn reyndu að pússa pönnuna þar til yfirborðið virðist þurrt.
- Endurtaktu ferlið í síðasta sinn með aðeins þunnu lagi af olíu en aðeins í 6 mínútur.
- Taktu pönnuna af hellunni, þurrkaðu afgangsolíu af með þurrum eldhúspappír og leyfðu henni að kólna niður í stofuhita.
Steikja til í ofni
- Forhitaðu ofninn við 200 C° (392 °F).
- Helltu hæfilega miklu magni af jurtaolíu á pönnuna og nuddaðu henni í allt yfirborðið með eldhúspappír.
- Settu pönnuna í ofninn í um 30-40 mínútur.
- Leyfðu pönnunni að kólna niður í stofuhita og þurrkaðu afgangsolíu af.
- Endurtaktu og stektu pönnuna einu sinni enn.
- Leyfðu pönnunni að kólna niður í stofuhita og þurrkaðu afgangsolíu af.
Umhirða og þrif
- Eftir notkun þarf að þvo pönnuna í höndunum með vatni og bursta. Það er auðveldara að þrífa hana þegar hún er enn heit. Ef þú vilt þá getur þú bætt við litlum dropa af uppþvottalegi varlega. Ekki nota mikinn uppþvottalögur þar sem hann gæti þurrkað upp efnið og fjarlægt lag af fitu sem er nauðsynleg fyrir yfirborð úr kolstáli.
- Hægt er að fjarlægja bletti sem myndast við matreiðslu með því að strá salti á pönnuna og þurrka það af. Saltið dregur í sig aukafitu en skilur eftir nógu mikla fitu til að koma í veg fyrir að pannan þorni.
- Ef það myndast ryðblettir eða matvæli brenna við og skilja eftir bletti er hægt að þvo pönnuna með stálull eða grófum svampi og steikja hana aftur til.
- Ómeðhöndlað kolstál getur tærst ef það er ekki meðhöndlað rétt. Það er mikilvægt að þurrka pönnuna strax eftir uppvask og bera olíu á stálið reglulega.
Notkun
- Pannan hentar öllum gerðum helluborða og má fara í ofn.
- Þegar matur er eldaður í kolstálpönnu safnast fitan fyrir í litlum ójöfnum í yfirborðinu. Það þýðir að maturinn sem á að steikja eða brúna kemst ekki í snertingu við kolstálið sjálft heldur við fituna sem gefur matnum fallega brúna áferð við eldun. Þetta kemur einnig í veg fyrir að maturinn brenni auðveldlega.
- Athugaðu að efnið í kolstáli er hvarfgjarnt og þolir ekki að vera í snertingu við hráefni sem innihalda mikla sýru (t.d. sítrónur og tómata) þar sem maturinn getur tapað lit eða dregið í sig örlítið málmbragð. Pannan sjálf getur einnig upplitast af salti og sýru.
- Stál sem flagnar af pönnunni við eldamennsku er skaðlaust þar sem þetta er sama járn sem fyrirfinnst, og ætti að vera, í mannslíkamanum.
- Þú getur sparað orku með því að nota alltaf hellu sem er jafnstór eða minni en botn pönnunnar að þvermáli.
- Athugaðu að handföngin verða heit þegar pannan er notuð á helluborði eða í ofni. Notaðu alltaf pottaleppa við að færa pönnu úr stað.
- Lyftu alltaf pönnunni ef þú þarft að færa hana til á gleri eða keramikhelluborði. Ekki draga pönnuna yfir helluborðið ef þú vilt koma í veg fyrir rispur.
- Haltu pönnunni frá miklum og snöggum hitabreytingum, t.d. með því að láta kalt vatn renna á heita pönnu. Botninn gæti skekkst.
- Ef þú lendir í vandræðum með vöruna, hafðu þá samband við næstu IKEA verslun/þjónustuver eða kíktu á IKEA.is.