VARDAGEN 806.048.45 - Casserole IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis VARDAGEN 806.048.45 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um VARDAGEN 806.048.45 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Casserole á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína VARDAGEN 806.048.45 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. VARDAGEN 806.048.45 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK VARDAGEN 806.048.45 IKEA
- Fyrir fyrstu notkun gætu verið leifar af olíu á vörunni. Það er vegna þess að IKEA pönnur úr kolstáli hafa verið meðhöndlaðar með matarolíu til að koma í veg fyrir að þær skemmist í flutningum.
- Í sumum tilfellum gætu verið litlir ryðblettir á pönnunni. Það gæti gerst ef pannan hefur komist í snertingu við raka í flutningum og er eðlilegt fyrir nýja pönnu úr kolstáli.
- Sýnileg ummerki olíu eða ryðblettir eru skaðlaus og hafa ekki áhrif á notagildi pönnunnar. Þau hverfa eftir að búið er að steikja hana til, sem þarf að gera áður en þú notar vöruna í fyrsta sinn. Vinsamlega fylgdu leiðbeiningunum að neðan til að steikja til pönnuna.
Áður en varan er tekin í notkun
- Áður en þú notar vöruna þarf að þvo hana upp í höndunum og þurrka vel. Allar leifar af formeðhöndlaðri matarolíu hjálpa til við að steikja vöruna til.
- Til að koma í veg fyrir ryð og að maturinn festist á eldunarílátinu þarf að steikja það til. Með því að steikja það til fyllast glufur af olíu sem myndar varnarlag. Þú getur steikt pönnu úr kolstáli til á öllum gerðum helluborða. Fylgdu leiðbeiningunum að neðan eða horfðu á leiðbeiningamyndband á www.IKEA.com
Steikja til: Ráð og meðmæli.
- Notaðu jurtaolíu með hátt brennslumark og hlutlaust bragð, til að mynda vínberjafræolíu eða sólblómaolíu.
- Þegar þú steikir vöru til þarf að nudda olíu á það yfirborð sem kemst í snertingu við mat. Ytra byrði þarf aðeins þunnt lag af olíu af og til svo það sé varið fyrir ryði. Handfangið er lakkað og þarf því ekki olíu.
- Fyrir bestu útkomu þegar þú steikir pönnu til á helluborði er gott að stærðin á hellunni sé sú sama og stærðin á pönnunni. Það tryggir jafnan hita þegar þú notar hana og það festist síður matur á henni.
- Gættu þess að brenna ekki hendurnar þar sem pannan verður afar heit þegar hún er steikt til. Við mælum með að nota eldhústangir til að halda á eldhúspappírnum þegar þú nuddar olíu á heita pönnu.
- Þegar þú hefur farið eftir leiðbeiningunum getur þú bætt við örlítilli olíu til að færa pönnunni meiri glans. Nú getur þú notað hana til að elda mat. Viðloðunarfríir eiginleikar pönnunnar verða enn betri og pannan verður dekkri eftir notkun og að lokum svört. Athugaðu að það verður að nota fitu til að elda með pönnu úr kolstáli en þó mun minna en til dæmis á ryðfrírri stálpönnu.
Steikja til pönnu á helluborði
- Helltu góðu magni af jurtaolíu á pönnuna og nuddaðu henni í allt yfirborðið með eldhúspappír. Þegar búið er að nudda olíuna í pönnunna ætti eldhúspappír að geta dregið nóg af olíu í sig þannig að það drjúpi af honum. Geymdu pappírinn.
- Leggðu pönnuna á hellu sem er í sömu stærð og pannan. Stilltu á miðlungshita (6 af 10) og pannan hitnar rólega þar til það rýkur örlítið úr henni og hún verður dekkri, sem er eðlilegt og hluti af ferlinu.
- Haltu áfram að steikja pönnuna í u.þ.b. 10 mínútur. Til að tryggja að allt yfirborð pönnunnar sé olíuborið og til að tryggja jafnara lag þarf að nudda yfirborðið með olíu á tveggja mínútna fresti; notaðu töng til að nudda með eldhúspappír með olíunni til að koma í veg fyrir bruna. Prófaðu að snúa pönnunni af og til fyrir enn jafnari hita. Þú tekur eftir því að olían þykknar örlítið og pannan dregur hana í sig.
- Taktu pönnuna af hellunni, þurrkaðu afgangsolíu af með þurrum eldhúspappír og leyfðu henni að kólna niður í stofuhita.
- Endurtaktu ferlið í 10 mínútur til viðbótar en í þetta sinn með aðeins þunnu lagi af olíu með nýjum eldhúspappír. Pannan gæti orðið örlítið þurrari og pappírinn festist við; ef svo er þá getur þú bætt við smá olíu þannig að þú getur auðveldlega nuddað henni í pönnuna á 2 mínútna fresti.
- Taktu pönnuna af hellunni, þurrkaðu afgangsolíu af með þurrum eldhúspappír og leyfðu henni að kólna niður í stofuhita. Í þetta sinn reyndu að pússa pönnuna þar til yfirborðið virðist þurrt.
- Endurtaktu ferlið í síðasta sinn með aðeins þunnu lagi af olíu en aðeins í 6 mínútur.
- Taktu pönnuna af hellunni, þurrkaðu afgangsolíu af með þurrum eldhúspappír og leyfðu henni að kólna niður í stofuhita.
Umhirða og þrif
- Eftir notkun þarf að þvo pönnuna í höndunum með vatni og bursta. Það er auðveldara að þrífa hana þegar hún er enn heit. Ef þú vilt getur þú bætt við litlum dropa af
uppþvottalegi varlega. Ekki nota mikinn uppþvottalög þar sem hann gæti þurrkað upp efnið og fjarlægt lag af fitu sem er nauðsynleg fyrir yfirborð úr kolstáli.
- Hægt er að fjarlægja bletti sem myndast við matreiðslu með því að strá salti á pönnuna og þurrka það af. Saltið dregur í sig aukafitu en skilur eftir nógu mikla fitu til að koma í veg fyrir að pannan þorni.
- Ef það myndast ryðblettir eða matvæli brenna við og skilja eftir bletti er hægt að þvo pönnuna með stálull eða grófum svampi og steikja hana aftur til.
- Ómeðhöndlað kolstál getur tærst ef það er ekki meðhöndlað rétt. Það er mikilvægt að þurrka pönnuna strax eftir uppvask og bera olíu á stálið reglulega.
Umhirða viðarhluta
- Viðarhlutar eins og handföng eða höldur mega ekki liggja í vatni eða raka í lengri tíma. Það getur orðið til þess að viðurinn springi.
- Til að vernda við betur gegn fitu og óhreinindum og til að auka náttúrulegt rakapol hans ætti að bera á hann olíu sem má komast í snertingu við matvæli, eins og til dæmis jurtaolíu. Berðu einu sinni á viðinn, þurrkaðu alla umframolíu af og endurtaktu svo sólarhring síðar.
Notkun
- Eldunarílátið hentar til notkunar á öllum gerðum af helluborðum, þar með talið spanhelluborðum.
- Þegar matur er eldaður í kolstálpönnu safnast fitan fyrir í litlum ójöfnum í yfirborðinu. Það þýðir að maturinn sem á að steikja eða brúna kemst ekki í snertingu við kolstálið sjálft heldur við fituna sem gefur matnum fallega brúna áferð við eldun. Þetta kemur einnig í veg fyrir að maturinn brenni auðveldlega.
- Vinsamlega athugaðu að efnið í pönnum úr kolstáli er hvarfgjarnt og þolir ekki að vera í snertingu við mikla sýru (t.d. sítrónur og tómata) þar sem maturinn gæti upplitast eða fengið örlítið málmbragð. Pannan sjálf gæti einnig upplitast af salti og sýru í mat.
- Stál sem flagnar af pönnunni við eldamennsku er skaðlaust þar sem þetta er sama járn sem fyrirfinnst, og ætti að vera, í mannslíkamanum.
- Þú getur sparað orku með því að nota alltaf hellu sem er jafnstór eða minni en botn eldunarílátsins að þvermáli.
- Hafðu í huga að ílátið verður heitt við notkun. Notaðu alltaf pottaleppa.
- Lyftu pönnunni þegar þú færir hana til á keramikhelluborði til að yfirborðið rispist síður.
- Reyndu að forðast miklar og hraðar hitabreytingar, t.d. að skola heita pönnu með köldu vatni, þar sem botninn gæti skekkst.
- Ef þú lendir í vandræðum með vöruna, hafðu þá samband við næstu IKEA verslun/þjónustuver eða kíktu á IKEA.is.