DEOS 383CV - Broyeur Mirka - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis DEOS 383CV Mirka á PDF sniði.
Spurningar notenda um DEOS 383CV Mirka
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Broyeur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína DEOS 383CV - Mirka og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. DEOS 383CV vörumerkisins Mirka.
NOTENDAHANDBÓK DEOS 383CV Mirka
| Mirka Ltd, 66850 Jeppo, FinnlandiIýsir því yfir á eigin ábyrgð að vörurnar Mirka® DEOS 353, 383 & Delta 663 10.000 s.á.m. Electrical Orbital Sander (sjá töflu um „Tæknilegar upplýsingar“ fyrir hverja einstaka gerð), sem yfirlýsing þessi varðar, uppfylla kröfur þær sem gerðar eru í eftirfarandi stöðlum eða öðrum stöðlunargögnum: EN 62841-1:2015, 62841-2-4:2014, EN 55014-2:2015, EN 61000-3-2:2014, EN 61000-3-3:2013, EN 300 328 V2.1.1, EN 301 489-1 V2.1.1, EN 301 489-17 V3.1.1 í samræmi við reglugerðir 2006/42/EC, 2011/65/EU og 2014/53/EU. | ||
| Jeppo, 13.08.2020Útgáfustaður og -dagsetning | Fyrirtæki Stefan Sjöberg, forstjóri | ![]() |
| Leiðbeiningar um notkun eru meðal annars:Sundurgreind teikning, Listi yfir íhluti,Samræmisyfirlýsing, Mikilvægt, Viðvörun,Aðgæsla, Viðbótaröryggisviðvaranir, Taflameð tækniupplýsingum, Upplýsingar umhljóðstyrk og titring, Rétt notkun verkfærisins,Vinnustöðvar, Hvernig á að hefjast handa,Leiðbeiningar um notkun, Bluetooth,Viðhald, Að skipta um bakpúða, Púðahlíf,Önnur þjónusta, Leiðbeiningar um bilanaleit,Upplýsingar um förgun. | Framleiðandi / BirgirMirka Ltd66850 Jeppo, FinnlandiSími +358 20 760 2111Fax +358 20 760 2290www.mirka.com | ![]() |
Pýðing á upprunalegum leiðbeiningum. Við áskiljum okkur rétt til pess að gera breytingar á handbók pessari án tilkynningar fyrir fram.
Mikilvægt
Lestu pessar leiðbeiningar um öryggi og notkun vandlega áður en tækið er búið til notkunar, tekið í notkun eða við haldið. Geymdu leiðbeiningarnar á öruggum stað með góðu aðgengi.
Persónuhlífar sem krafist er

Lestu handbók
notanda

Notaðu
öryggisgleraugu

Notaðu augnhlífar Notaðu

öryggishanska

Notaðu grímu/ andlitshlíf

Viðvörun: Mögulega hættulegar aðstæður sem orsakað gætu dauðsfall eða alvarleg meiðsli og/eða eignatjón.
Aðgæsla: Mögulega hættulegar aðstæður sem orsakað gætu minniháttar eða meiðsli og/eða eignatjón í meðallagi.
Lestu vinsamlegast og farðu eftir
- General Industry Safety & Health Regulations, part 1910, OSHA 2206 (almennum reglugerðum um öryggi & heilbrigði í iðnaði, kafla 1910), sem hægt er að nálgast hjá:
Superintendent of Documents; Government Printing Office; Washington DC 20402
• Lögum og reglum í landi og héraði

VIDVÖRUN
- Notaðu ávallt pær persónuhlífar sem krafist er í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda og lands- og héraðsstaðla pegar verkfæri petta er í notkun.
- Rafmagnsöryggi verkfærisins er best tryggt með því að nota eingöngu upprunalega Mirka bakpúða.
- Ekki nota rafverkfæri pegar pú ert preytt/ur eða undir áhrifum vímuefna, áfengis eða lyfja.
- Kynntu pér öryggisgagnablað efniviðar (MSDS) um yfirborð vinnusvæðis.
- Notaðu verkfærið með ryksugu. Ryksuga við hæfi dregur úr magni hættulegs ryks.
- Teygǒu ßig ekki of langt. Notandinn verður alltaf að standa í öruggri stöðu öruggum fótum á föstu gólfí og hafa gott tak á verkfærinu.
- Ekki ganga með fráflakandi/losaraleg föt eða skartgripi. Haltu hári, fatnaði og hönskum í góðri fjarlægð frá hlutum á hreyfingu. Fráflakandi fatnaður, skartgripir eða sítt hár getur flækst í hlutum á hreyfingu.
- Finni notandi til einhverra ópæginda í hönd/úlnlið, ber að hætta vinnslu og leita til læknis. Einhæf vinna, endurteknar hreyfingar og váhrif titrings geta orsakað meiðsl á hendi, úlnlið eða handlegg.
- Ekki nota rafverkfæri par sem sprengjuhætta er, svo sem nálægt eldfimum vökvum, gasi eða ryki. Rafverkfæri gefa frá sér neista sem kveikt geta í ryki eða gufum.

ADGÆSLA
- Haltu vinnusvæðinu hreinu og vel upp lýstu.
• Gættu pess ætíð að viðfangsefnið sem á að pússa sé vandlega fest. - Taktu rafverkfærið ávallt úr sambandi áður en skipt er um svarfskífu. Gættu pess að svarfskífan sé vandlega miðjusett og örugglega fest við bakpúðann.
- Haltu börnum og áhorfendum frá á meðan rafverkfæri er í notkun. Ef eitthvað truflar einbeitinguna, gætir þú misst stjórn á verkfærinu.
- Vertu ætið vakandi fyrir öryggi á vinnustað. Aldrei má bera verkfærið, geyma það eða hafa það eftirlitslaust á meðan það er tengt við rafmagn.
- Komdu ekki nálægt púðanum með höndum við notkun.

Viðbótaröryggisviðvaranir
- Lestu allar leiðbeiningar áður en verkfærið er tekið í notkun. Allir notendur verða að hafa hlotið ýtarlega þjálfun í réttri og öruggri notkun verkfærisins.
- Allt viðhald skal vera í höndum sérþjálfaðs starfsfólks. Láttu viðurkennda þjónustumiðstöð Mirka annast alla viðhaldspjónustu.
- Notaðu tækið alltaf með mismuna-lekastraumsrofa (RCD) með að hámarki 30 mA mállekastraumi.
- Rafmagnsinnstungan og tengið eru ekki IEC-samhæfð tengi. Notaðu eingöngu upprunalega Mirka rafmagnsleiðslu. Pú færð Mirka rafmagnsleiðslu keypta hjá umboðsmanni Mirka.
- Kannaðu verkfærið, bakpúðann, rafleiðsluna og alla fylgihluti vandlega og reglubundið í leit að sliti.
- Hreinsaðu eða skiptu daglega um poka á ryksugunni. Ryk getur verið afar eldfimt. Pað tryggir einnig bestu mögulegu afköst að hreinsa pokann eða skipta um hann.
- Gakktu ávallt úr skugga um að tæknilýsing rafverkfæris standist á við aflúttakið (V, Hz).
- Ef svo virðist sem bilun verði í tækinu, hættu þá notkun þess umsvifalaust og skilaðu því í þjónustu og viðgerð.
Tæknilýsing
Mirka® DEOS 353CV 383CV Delta 663CV
| Orka 250 W 250 W 250 W | |||
| Spenna 220–240 VAC 220–240 VAC 220–240 VAC | |||
| Hraði 5.000–10.000 s.á.m. 5.000–10.000 s.á.m. 5.000–10.000 s.á.m. | |||
| Ferill 3,0 mm (1/8") 3,0 mm (1/8") 3,0 mm (1/8") | |||
| Stæð bakpúða | 81 × 133 mm (3 × 5") | 70 × 198 mm (3 × 8") | 100 × 152 × 152 mm (4 × 6 × 6") |
| Þyngd | 0,97 kg (2,1 pund) | 1,0 kg (2,2 pund) | 0,97 kg (2,1 pund) |
| Verndarstig | I | I | I |
Upplýsingar um hljóðstyrk og titring
Mæld gildi eru skilgreind í samræmi við EN 62841.
| Mirka® DEOS | 353CV | 383CV | Delta 663CV |
| Hljóðprýstingsstig (L _pA ) | 69 dB(A) | 71 dB(A) | 68 dB(A) |
| Hljóðstyrksstig (L _WR ) | 80 dB(A) | 82 dB(A) | 79 dB(A) |
| Óvissupáttur hljóðmælinga K | 3,0 dB | 3,0 dB | 3,0 dB |
| Útgeislunargildi titrings a _h * | 2,6 m/s ^2 | 2,6 m/s ^2 | 2,6 m/s ^2 |
| Óvissupáttur útgeislunargildis titrings K* | 1,5 m/s ^2 | 1,5 m/s ^2 | 1,5 m/s ^2 |
Tæknilýsingar geta breyst án fyrirvara. Gerðin getur verið breytileg eftir markaðssvæðum.
* Gildi tilgreind í töflunni eru fengin úr tilraunum á tilraunastofu í samræmi við upplýsta kóða og staðla og eru ekki fullnægjandi við mat á áhættu. Gildi mæld á ákveðnum vinnustað geta reynst hærri en tilgreind gildi. Raungildi váhrifa og það umfang hættu eða tjóns sem einstaklingurinn getur orðið fyrir er bundið við hverjar aðstæður fyrir sig og háð nánasta umhverfi, starfsfyrirkomulagi einstaklingsins, því efni sem unnið er með, skipulagi vinnustöðvar og líkamlegu ásigkomulagi notandans og váhrifatíma. Mirka Ltd ber enga ábyrgð á afleiðingum þess að notfæra sér tilgreind gildi í stað raungilda váhrifa við hvaða einstaklingsbundið áhættumat sem er.
Hægt er að afla frekari vinnuvistfræðilegra og öryggisupplýsinga á eftirfarandi vefsetrum: https://osha.europa.eu/en (Evrópa) eða http://www.osha.gov (Bandaríkin)
Rétt notkun verkfærisins
Slípivélin er ætluð til pess að pússa allar tegundir efniviðar, s.s. málma, við, stein, plastefni o.s.frv. með svarfefnum sem ætluð eru til peirrar notkunar. Notaðu ekki slípivélina í öðrum tilgangi en hér er lýst án pess að leita ráða hjá framleiðanda eða viðurkenndum birgi framleiðanda. Notaðu eingöngu Mirka-bakpúða sem hannaðir eru fyrir hámarksafköst. Aðrar gerðir bakpúða gætu komið niður á afköstum og auka titring. Halda verður loftkælitúðunum á vélarhúsinu hreinum og óstífluðum til pess að tryggja loftræstingu. Einungis viðurkennt þjónustuver má annast viðgerðarverkefni.
Vinnustöðvar
Ætlast er til þess að verkfærið sé notað sem handverkfæri. Alltaf er mælt með því að nota verkfærið á meðan staðið er á föstu undirlagi. Pað má nota verkfærið í hvaða stöðu sem er en áður en vinnsla hefst verður notandinn að standa öruggum fótum, hafa gott tak á verkfærinu og gera sér grein fyrir því að slípivélin getur tekið kipp vegna snúnings vélarinnar. Sjá kaflann „Leiðbeiningar um notkun“.
Hvernig á að hefjast handa
Pegar verkfærið er tekið úr umbúðum sínum skal þess gætt að það sé óskemmt, fullbúið og hafi ekki skemmst í flutningum. Notaðu aldrei skaddað verkfæri.
Kannaðu fyrir notkun hvort bakpúðinn sé rétt settur á og fast hertur. Tengdu rafmagnsleiðsluna við slípivélina. Settu rafmagnsleiðsluna í samband við jarðtengda rafmagnsinnstungu (220–240 VAC, 50/60 Hz).
Mælt er með því að nota verkfærið með Mirka-ryksugu og Mirka netslípivörum til þess að nýta sem best afl tækisins. Grundvöllur Mirka slípilausna án ryks er sá að nota bæði Mirka-slípivélar, netslípilausnir og Mirka-ryksugu.
Rafmagnsleiðslan úr slípivélinni er tengd við raftengið framan á ryksugunni. Sé rafmagnsleiðsla slípivélarinnar tengd við raftengið á ryksugunni er hægt að nýta sér sjálfvirka ræsingu hennar.
- Ætlast er til pess að verkfærið sé notað sem handverkfæri. Hægt er að nota verkfærið í hvaða stöðu sem er. Athugasemd! Slípivélin getur myndað snúningsátak pegar hún er sett í gang.
- Gættu pess að slökkt sé á slípivélinni. Veldu viðeigandi svarfskífu og festu hana tryggilega við bakpúðann. Gakktu úr skugga um að svarfskífan sé miðjustillt á bakpúðanum. Við mælum með því að verkfærið sé notað með öðrum vörum og fylgihlutum frá Mirka til að ná sem bestum árangri.
- Kveiktu á slípivélinni með því að þrýsta á Á/Af hnappinn, sjá Mynd 1. Ljóstvistur (LED) slípivélarinnar (hægri) lýsir nú grænu ljósi.
- Nú er hægt að setja slípivélina í gang með pví að prýsta á handfangið.
- Hægt er að stilla hraðann á bilinu 5.000 og hámarks s.á.m. með pví að breyta stöðu handfangsins.
- Hægt er að stilla hámarks s.á.m. með því að þrýsta á rpm+ eða rpm–, Mynd 1. Hægt er að stilla snúningshraðann í prepum, 5.000, 6.000, 7.000, 7.500, 8.000, 9.000 og 10.000 s.á.m.
- Verkfærið er búið tveimur leiðum til hraðastillingar. Í sjálfgildisstillingu er hægt að stilla hraðan línulega með því að færa handfangið fram og aftur. Í hinni stillingunni er fastur snúningshraði samkvæmt stillingu á s.á.m. þegar verkfærið gengur. Pegar þrýst er samtímis á rpm+ og rpm– hnappana, skiptir verkfærið á milli snúningshraðastillinganna tveggja.
- Leggðu slípivélina ávallt á vinnuflötinn sem á að pússa áður en þú setur hana í gang. Fjarlægðu verkfærið ávallt af vinnufletinum áður en slökkt er á því.
- Pegar slípivinnu er lokið, er slökkt á slípivélinni með því að þrýsta á Á/Af hnappinn. Við það slokknar á ljóstvisti (hægri) slípivélarinnar.
Bluetooth
Rafverkfæri petta er búið lágorku Bluetooth® tækni og hægt er að tengja það við app sem gefur kost á fleiri aðgerðum og meiri virkni. Hægt er að afla sér frekari upplýsinga um virkni appsins og hvort það sé fáanlegt í heimalandi þínu með því að fara á www.mirka.com.
Pú virkjar Bluetooth á Mirka® DEOS-verkfærinu pínu sem hér segir:
- Stingdu rafmagnsleiðslunni í samband við rafmagn.
- Prýstu á rpm+ hnappinn og haltu honum niðri á meðan pú kveikir á verkfærinu með On/Off hnappinum.
- Grænt ljós kviknar á vinstri ljóstvistum (LED) til pess að sýna að Bluetooth sé virkt.
- Bluetooth-tengingin rofnar pegar tækið er tekið úr sambandi við rafmagn á ný.
ATHUGASEMD! Sé appið ekki sett upp eða ekki í boði í heimalandi pínu, ætti ekki að virkja Bluetooth.
Heitið Bluetooth® og lógó eru skráð vörumerki í eigu Bluetooth SIG, Inc. og öll notkun Mirka Ltd á peim er háð leyfi. Önnur vörumerki og vöruheiti er í eigu viðkomandi eigenda.
Viðhald

Taktu tækið ávallt úr sambandi við rafmagn áður en viðhaldsvinna hefst! Notaðu eingöngu upprunalega Mirka-varahluti!
Að skipta um bakpúða
Bakpúðinn er festur með 8 skrúfum.
A = 8 mm (bara á 70 × 198 mm)
B = 16 mm
Fjarlægja
- Snúðu verkfærinu á hvolf.
- Fjarlægðu skrúfurnar 4 (A).
- Fjarlægðu skrúfurnar 4 (B).
- Fjarlægðu bakpúðann.
Setja saman
- Komdu nýja bakpúðanum fyrir.
- Festu skrúfurnar 4 (B).
- Festu skrúfurnar 4 (A).
- Hertu að lokum allar 8 skrúfurnar.

Púðahlífarnar frá Mirka eru hannaðar með það fyrir augum að hlífa bakpúðanum við sliti við notkun þegar slípað er af krafti og sleitulaust með netvörum. Púðahlífarnar eru á hagstæðu verði en þær eru hafðar á milli bakpúðans og slípiskífunnar og skipta ætti reglulega um hlífar. Púðahlífarnar lengja notkunartíma hvers bakpúða.



Til pess pjálfað starfsfólk skal annast alla pjónustu verkfærisins. Viðurkennd pjónustumiðstöð Mirka verður að annast alla pjónustu svo ábyrgðin sé í gildi og verkfærið virki eins vel og örugglega og mögulegt er. Hafðu samband við pjónustufulltrúa eða umboðsmann Mirka til að fá upplýsingar um næstu viðurkenndu pjónustumiðstöð Mirka.
Leiðbeiningar um bilanaleit
| Einkenni Möguleg ástæða Lausn | ||
| Ljóstvistur (LED) slípivélarinnar (hægri) lýsir til skiptis rauðu og grænu. | Verkfærið er tengt við rafmagnsinnstungu með rangri spennu. | Tengdu slípivélina við rafmagnsinnstungu í samræmi við nafnspennu verkfærisins. |
| Ekkert ljós kviknar á ljóstvistinum (hægri) þótt kveikt hafi verið á tækinu. | Rafmagnsleiðslan er ekki nógu vel tengd við slípivélina eða rafmagnsinnstunguna. | Tengdu verkfærið vel. |
| Ljóstvistur slípivélarinnar (hægri) sýnir rautt og snúningshraðinn fer niður í 5.000 s.á.m. þegar slípað er. | Slípivélin er orðin of heit. Of mikið langtímaálag. | Dragðu tímabundið úr álaginu á slípivélina, þá eykur hún hraðann á ný. |
| Ljóstvistur slípivélarinnar (hægri) lýsir rautt og snúningshraðinn hefur minnkað nokkuð. | Of mikið skammtímaálag. Hafðu álagið minna og ljóstvisturinn (hægri) lýsir sjálfkrafa grænt á ný. | |
| Slípivélin hefur slökkt á sér og ljóstvistur (hægri) sýnir rautt ljós. | Verkfærið er í öryggisham vegna þess hve mikið það hefur hitnað. | Bíddu þar til verkfærið hefur kólnað. |
Leiðbeiningar um förgun gamalla verkfæra. Gerðu úr sér gengin rafverkfæri ónothæf með því að fjarlægja rafmagnsleiðsluna. Gildir aðeins í ríkjum ESB. Ekki farga rafverkfærum með almennu heimilissorpi. Samkvæmt evrópskum tilskipunum 2011/65/EU, 2015/863/EU og 2012/19/EU um raf- og rafeindabúnaðarúrgang og framfylgd þeirra landslögum samkvæmt, ber að safna sérstaklega saman rafmagnsverkfærum sem lokið hafa hlutverki sínu og flytja þau á umhverfislega fullnægjandi endurnýtingarstað.
Fyrirtæki Stefan Sjöberg, forstjóri
