Lugano 570 G - Barbecue Outdoorchef - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis Lugano 570 G Outdoorchef á PDF sniði.
Spurningar notenda um Lugano 570 G Outdoorchef
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Barbecue á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Lugano 570 G - Outdoorchef og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Lugano 570 G vörumerkisins Outdoorchef.
NOTENDAHANDBÓK Lugano 570 G Outdoorchef
Vorunúmer og heiti kulgasgrillsins eru á kortinu Welcome Card, sem fylgir skjalamöppunni.
Mikilvægt er að hafa raðnúmerið og vörunúmerið við höndina til að flýta fyrir yfirferðum, þegar varahlutir eru pantaðir og fyrir allar ábyrgðarkröfur. Geymið notkunarleiðbeiningarnar á vísum stað. Þær innihalda mikilvægar upplýsingar um öryggi, notkun og viðhald.
MIKILVÆG ÖRYGGISATRIÐI
Allir sem nota grillið verða að kynna sér nákvæmlega hvernig kveikt er upp í því farið eftir leiðbeiningunum. Börn mega ekki nota grillið.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningunum nákvæmlega. Röng uppsetning getur haft hættulegar afleiðingar.
Gætið þess að hafa enga eldfima vökva og efni eða varagaskúta nálægt grillinum. Aldrei má koma grillinum eða gaskútnum fyrir í lokuðu rými án loftfæstingar.
Lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en kulgasgrillið er tekið í notkun. Eingöngu má nota grillið utandyra og það verður að standa fjarri eldfimum efnum, minnst 1,5 m frá.
GASKÚTAR
Aðeins má setja gaskúta sem vega að hámarki 11 kg þegar þeir eru fullir á botnplötuna. Setjið kúlinn á viðeigandi stað (skýringarmynd 2A).

- Gætið þess að allar skrúfaðar tengingar séu þéttar.
- Framkvæmið LEKAPRÓFUN áður en grillið er tekið í notkun og í hvert sinn sem skipt er um gaskút. Gaskúturinn á ekki að standa í hitastigi yfir 50 °C og það má aldrei geyma hann í lokuðu rými, t.d. kjallara. Fylgið öryggisreglunum um gaskúta.
ATHUGIÐ: Gangið úr skugga um að þrýstijafnarinn og gashlýkið séu leyfð til notkunar í viðkomandi landi. Notið eingöngu gashlýki samkvæmt gildandi stöðlum í viðkomandi landi. Þar sem þéttbúnaður er mismunandi verður skrúfaða tengingin ekki nægilega þétt ef ekki er notuð rétt gerð af þrýstijafnara og gashlýki. Gas lekur þá út og getur kviknað því fyrirvaralaust vegna opins elds eða neista. Af öryggisástæðum sem og vegna ábyrgðarmála er mælt með því að gasgrill sem tekin eru til sölu séu fráliðin og að þrýstijafnari og gasslanga séu löguð að gildandi reglum viðkomandi lands ef þess þarf.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Geymið þessar notkunarleiðbeiningar svo hægt sé að grípa til þeirra hvenær sem þörf krefur.
Farið eftir leiðbeiningunum í kaflanum LEIÐBEININGAR UM HVERNIG KVEIKT ER UPP Í GRILLINU þegar það er tekið í notkun.
Eingöngu til nota utandyra. Lestu notkunarleiðbeiningarnar áður en grillið er tekið í notkun. VARÚÐ: Aðgengilegir hlutar geta verið mjög heitir. Haldið börnum fjarri. Grillið má ekki vera nálægt brennanlegum efnum þegar það er í notkun. Færið ekki grillið meðan á notkun stendur. Eftir notkun skal skrúfa fyrir gasið á gaskútnum. - Notið grillið aldrei undir þaksýningu. - Ýtið ekki grillum á hjólum yfir óslétt undirlag eða þrep. Notið hlífðarhanska þegar komið er við heita hluti. - Stillið gasstillihnappinn alltaf á 0 og skrúfið fyrir gaskútinn eftir notkun. Gætið þess að gasstillihnappurinn sé á 0 og skrúfað fyrir gaskútinn þegar skipt er um gaskút. MIKILVÆGT: Grillið má ekki vera nálægt neinum kveikjuvöldum. - Athugið alla tengihluti samkvæmt leiðbeiningum í LEKAPRÓFUN þegar búið er að tengja nýjan gaskút við. - Stillið gasstillihnappinn á 0 og skrúfið fyrir gaskútnum ef grunur er um leka vegna óþéttra hluta. Látið skoða hlutina sem leiða gasið hjá þjónustu með gasvörur. - Ef merki eru um skemmdir eða slit á gasslöngunni verður að skipta um hana strax. Slangan verður að vera laus við brot og sprungur. Ekki gleyma að slökkva með gasstillihnappinum og skrúfa fyrir gasið áður en slangan er fjarlægð. - Skipta skal um slönguna og gasþrýstijafnarann eftir 3 ára notkun frá kaupdegi. Gætið þess að gasþrýstijafnarinn og slangan samræmist viðeigandi EN-stöðlum. Ráðlögð lengd gasslöngunnar er 90 cm og má ekki fara yfir 150 cm. Gætið þess að loka aldrei fyrir stóra hringlaga loftopið á botni skálarinnar eða loftraufarnar á lokinu. Aldrei má loka fyrir eða hylja loftopin á geymslustað gaskútsins. "Ekki má breyta grillinu með neinum hætti". Leitið til fagaðila ef grunur leikur á bilun. Grillið fylgir gasslanga og gasþrýstijafnari. Mikilvægt er að halda gasslöngunni frá heitum ytri hlutum grillsins. Ekki má vera snúið upp á slönguna. Nauðsynlegt er að festa slönguna í þar til gerða festingu á grillum sem hafa slíka festingu. - Slangan og þrýstijafnarinn samræmast gildandi landslögum og EN-stöðlum. - Ef fullum afköstum er ekki náð og grunur er um stíflu í gasstreymi skal leita til þjónustu með gasvörur. - Notið grillið aðeins á traustu og öruggu undirlagi. Setjið grillið aldrei á viðargólf eða annað brennanlegt yfirborð meðan það er í notkun. Haldið grillinu frá brennanlegum efnum. - Ekki má geyma grillið nálægt mjög eldfimum vökvum eða efnum. - Ef grillið er geymt innandyra yfir veturinn verður að fjarlægja gaskútinn. Geyma skal kútinn á vel loftræstum stað utandyra, sem börn hafa ekki aðgang að. Komið grillinu fyrir skjóli fyrir vindi ef hægt er áður en það er notað. - Þegar grillið er ekki í notkun ætti að geyma það undir yfirbreiðslu eftir að það hefur kólnað til að vernda það fyrir umhverfisáhrifum. Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum. - Til að koma í veg fyrir raka skal fjarlægja yfirbreiðsluna eftir mikla rigningu. - Skiljið grillið aldrei eftir án eftirlits meðan á notkun stendur. Grillið heldur sig heitt lengi eftir að slökkt er á því. Gætið þess að brenna ykkur ekki og setja enga hluti á grillið, því það skapar eldhættu.
SÉRSTAKAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR FYRIR TÆKI SEM TENGD ERU VIÐ RAFMAGN
- Eingöngu má nota tækið ef rafmagnssnúran, innstungan og tækið eru óskemmd. Yfirfarið fyrir hverja notkun. Tengið tækið eingöngu við jarðtengda innstungu. Takið klóna úr sambandi eftir hverja notkun eða ef um bilun er að ræða. VARÚÐ: Togið í klóna en ekki snúruna. Haldið rafmagnssnúrunni frá heitum hlutum.
- Ekki snerta rafmagnsklóna með blautum höndum. Rafbúnaðurinn er úti og má því ekki nota hann í rigningu eða snjókomu.
- Ef þörf krefur skal aðeins nota jarðtengda framlengingarsnúru fyrir tækið. 10 A (230 V) straumstyrk (þvermál snúru að lágmarki 1,5 mm) og ganga úr skugga um að ekki sé hægt að hrasa um hana eða tækið.
- Notið eins stutta framlengingarsnúru og hægt er og tengið alls ekki tvær eða fleiri framlengingarsnúrur saman.
- Leggið rafmagnssnúruna ekki yfir gangvegi.
LEKAPRÓFUN
VIÐVÖRUN: Grillið má ekki vera nálægt neinum íkveikjuvöldum á meðan lekaprófun fer fram. Reykingar eru einnig bannaðar. Prófið aldrei þéttingar með logandi eldspýtu eða opnum eldi og prófunin skal alltaf fara fram utandyra.
- Gasstilli hnappurinn verður að vera á
- Skrúfið frá gasinu á kútnum og berið sápulausn úr 50% fljótandi sápu og 50% vatni á alla hlutana sem leiða gas (tengi á gaskútnum / gasprystijafnarann / gasslönguna / gasinntakið / tengið á ventlinum). Einnig er hægt að nota efni sem greinir leka. (sjá skýringarm. 2A og 2B)
- Ef blöðrur myndast í sápulausninni er um leka að ræða. MIKILVÆGT: Ekki má nota grillið fyrr en búið er að laga lekann. Skrúfið fyrir gasið á gaskútnum.
- Lagfærið lekann með því að herða tengingar, ef það er hægt, eða skiptið um hluti sem eru í lagi.
- Endurtakið 1. og 2. skref.
- Hafið samband við sérverslun með gasvörur ef ekki er hægt að laga lekann.
ATHUGIÐ: Framkvæmið LEKAPRÓFUN eftir hverja tengingu eða skipti á gaskútnum, sem og í upphafi grillsumarsins.
MYND AF LUGANO 570G

Skyringarm.2A Skyringarm.2B
SKÝRINGAR TÁKNA Á STJÓRNBORÐINU
- Ef ekki kviknar á gasinu innan þriggja sekúnda skal stilla gasstilli hnappinn á núll í tvær mínútur á meðan gasið sem tókst ekki að brenna gufar upp. Endurtakið svo skref 5.
- Ef ekki er hægt að kveikja á grillið eftir þrjár tilraunir skal athuga orsakir þess (eins og lýst er í kaflanum GERT VIÐ BILUN).
STEAKHOUSE BURNER
- Gangið úr skugga um að allar tengingar milli gasslöngunnar, gasþrýstijafnarans og gaskútsins séu tryggilega festar (fylgi leiðbeiningunum í kaflanum LEKAPRÓFUN)
- Kveikið á aðalofanum á rafmagnsboxinu (þegar kveikt hefur verið á honum logar rauða gaumljósið á aðalofanum).
- Fjarlægið plasthlífina af aukagrillfletinum, sem einnig er skurðbretti (hér eftir nefnt Lugano XXL-skurðbretti). VARÚÐ: Kveikið aldrei á grillið á meðan það er enn hulið með Lugano XXL-skurðbrettinu.
- Skrúfið frá gasinu á gaskútnum.
- Ýtið á gasstilli hnapp Steakhouse Burner og snúið honum rangsælis á stillinguna 3. Ýtið á kveikihnappinn og haldið honum inni þar til neisti kviknar og gasið logar.

- Ef ekki kviknar á gasinu innan þriggja sekúnda skal stilla gasstilli hnappinn á núll í tvær mínútur á meðan gasið sem tókst ekki að brenna gufar upp. Endurtakið svo skref 5.
- Ef ekki er hægt að kveikja á Steakhouse Burner eftir þrjár tilraunir skal athuga orsakir þess (eins og lýst er í kaflanum GERT VIÐ BILUN).
- Seljið ekki Lugano-XXL-skurðbrettið (hlíf) áður en aukagrillflöturinn hefur kólnað að fullu
HLIÐARHELLA
- Gangio úr skugga um að allar lengingar milli gasslöngunnar, gasprystijafnarans og gaskútsins séu tryggilega festar (fylgið leiðbeiningunum í kaflanum LEKAPRÓFUN).
- Kveikið á aðalrofanum á rafmagnsboxinu (þegar kveikt hefur verið á honum logar rauða gaumljósið í aðalrofanum).
- Fjarlægið plötu hlífina af aukagrindinni, sem einnig er skurðbretti (hér á eftir nefnt Lugano XXL-skurðbretti). VARÚÐ: Kveikið aldrei í grillið ef það er enn hulið Lugano XXL-skurðbrettinu.
- Skrúfið frá gasinu á gaskútnum.
- Ýtið á gasstillihnappinn hliðarhellunnar og snúið honum rangsælis á stillinguna 6. Ýtið á kveikihnappinn og haldið honum inni þar til neisti kviknar og gasið logar.

- Ef ekki kviknar á gasinu innan þriggja sekúndna skal stilla gasstillihnappinn á 0. Bíðið tvær mínútur á meðan gasið sem tókst ekki að brenna gufar upp. Endurtakið svo skref 5.
- Ef ekki er hægt að kveikja á brennara hliðarhellunnar eftir þrjár tilraunir skal athuga orsakir þess (eins og lýst er í kaflanum GERT VID BILUN).
- Setjið ekki Lugano-XXL-skurðbrettið (hlíf) á fyrr en aukagrindin hefur kólnað að fullu.
RAFMAGNSBOX OG RAFKVEIKIBOX



Eftirfarandi atriði eru í rafmagnsboxinu:
Fjórar NIMH-hleðslurafhlöður (gerð A, 1,2V/2400 mAh) fyrir Safety Light System (SLS) (1). Tvær rafhlöður (af gerðinni AAA, 1,5V) fyrir rafkveikingu (2). Einn aðalrofi til að rjúfa straum til íhluta og koma þannig í veg fyrir að hleðslurafhlöðurnar tæmist. Einn hleðslustöð fyrir hleðslurafhlöður (3): Hægt er að tengja hleðslustöðina fyrir hleðslurafhlöður við rafmagnsinnstungu með rafmagnssnúrunni sem fylgir með og stungið er í samband við tengilinn á bakhlíð grillsins. Þegar rafmagnssnúran sem fylgir með er tengd við grillið hlaðast hleðslurafhlöðurnar sjálfkrafa þegar kveikt er á aðalrofanum. Á meðan verið er að hlaða logar ljósdíóðan á hleðslustöðinni stöðugt í appelsínugulum lit (hleðslutíminn er allt að 12 klukkustundir).
VARÚÐ: Hægt er að hlaða hleðslurafhlöðurnar sem fylgja með LUGANO 570 G með innbyggðu hleðslustöðinni í rafmagnsboxinu. EKKI má skipta þeim út fyrir venjulegar rafhlöður sem ekki er hægt að hlaða. Ef venjulegar rafhlöður sem ekki er hægt að hlaða eru settar í grillið og rafmagnssnúran er sett í samband við innstungu reynir tækið að hlaða rafhlöðurnar. Þetta getur valdið alvarlegum skemmdum og eldsvoða!
SAFETY LIGHT SYSTEM (SLS)
SAFETY LIGHT SYSTEM (SLS) er öryggisbúnaður á LUGANO 570 G sem verður virkur þegar gasstillihnappinum er snúið úr stöðu rangsælis þar til - einnig opnað fyrir gasstreymi til DGSTM TWIN BURNER.
Ljóshringurinn utan um gasstillihnappinn og ljósdíóðan í miðjunni á honum gefa skýrt til kynna hvort skúfa hefur verið frá gasinu fyrir einn eða fleiri brennara, jafnvel þótt staðið sé í einhverri fjarlægð frá grillið.
SLS-kerfið fær straum úr hleðslurafhlöðunum fjórum sem fylgja með. Þegar hleðslan á rafhlöðunum er komin niður í u.þ.b. 20% byrjar SLS-kerfið að blikka og gefur þannig til kynna að bráðlega slokkni í ljósum SLS-kerfisins séu rafhlöðurnar ekki hlaðnar. Stilling á gasinu er eins og við tómar hleðslurafhlöður.
Við beina grillun og eldun er hitanum safnað saman og veitt upp á við og því hentar slíkt fullkomlega með OUTDOORCHEF fylgihlutum eins og t.d. Aroma pönnunni, Grill-WOK pönnunni eða grillplötunni - alls staðar þar sem þörf er á miklum hita að neðan.
Upplýsingar: Þar sem LUGANO 570 G með Steakhouse Burner er með aukagrillfleti, sem var sérstaklega hannaður til að grilla steikur - ráðleggjum við þér að nota trektina stöðunni, sem fjallað var um að ofan, aðallega með viðeigandi fylgihlutum. Við beina snöggsteikingu ráðleggjum við þér að nota Steakhouse Burner.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR KÚLUGASGRILL
- Færið EASY FLIP-trektina í þá stöðu sem óskað er.
VARÚÐ: Notið eingöngu hitaeinangraða hanska til að breyta stöðu trektarinnar meðan grill er í notkun.
ATHUGIÐ: Við beina grillun og matreiðslu á prepinu á skal hafa lokið opið. Aðeins á prepinu á sinnig hægt á hafa lokið á
við beina grillun.
- Veljið viðeigandi aukabúnað ef þörf krefur.
- Hafið grillið lokað og forhitið það í u.þ.b. 10-15 mínútur stillingu
- Setjið matinn á grillgrindina og stillið hitastigið eftir þörfum á bilinu
- Stillið gasstillið alltaf á 0 eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gáshana á gaskútnum. Skrúfa verður fyrir gaskútinn jafnvel þó hann sé tómur.
- VARÚÐ: Hætta er á að brenna sig á heitri feiti í feitibakkanum. Látið feitina kólna alveg áður en feitibakkinn er fjarlægður.
Nota verður meðfylgjandi handfang til að taka feitibakkann úr grillinu (sjá skýringarmynd 3)!
- Látið grillið kólna alveg áður en það er fært úr stað eða þrifið.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR STEAKHOUSE BURNER (AUKAGRILLFLOTUR)
- Það þarf að fjarlægja Lugano XXL-skúrabrettið, sem einnig er hlíf fyrir grillfótinn, áður en grillið er tekið í notkun. Það getur skemmst af völdum hitans.
- Setjið vír-/skvettuvörnina á grillfótinn. Hún tryggir að grillfóturinn taki ekki hita við endann og verndar grillið gegn feitisskvettum.

- Setjið matinn á grillgrindina og stillið hitastigið eftir þörfum.

- Stillið gasstillið alltaf á OFF eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gasið á gasflöskunni. Skrúfa verður fyrir gasflöskunni jafnvel þótt hún sé tóm.
- VARÚÐ: Hætta er á bruna af heitri feiti í feitibakkanum. Látið feitina kólna alveg áður en feitibakkinn er fjarlægður.
Notið verður meðfylgjandi handfang til að taka feitibakkann úr grillinu (sjá skýringarmynd 3)!
- Látið grillið kólna alveg áður en það er fært úr stað eða þrifið.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR HLIÐARHELLU
- Það verður að fjarlægja Lugano XXL-skúrabrettið, sem einnig er hlíf fyrir grillfótinn, áður en grillið er tekið í notkun. Það getur skemmst af völdum hitans.
- Áður en hliðarhellan er tekin í notkun skal setja matreiðslu-/pönnustykkið á.
- Veljið viðeigandi fylgihluti eða pönnu og setjið á matreiðslu-/pönnustykkið. Notið meðfylgjandi festingar ef nota á wokpönnu.
- Stillið hitastigið eigin óskum á bilið.
- Setjið matinn á eftir slétta upphitun á fylgihlutunum eða pönnunni og matreiðið.
- Stillið gasstillið alltaf á OFF eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gasið á gasflöskunni. Skrúfa verður fyrir gasflöskunni jafnvel þótt hún sé tóm.
- VARÚÐ: Hætta er á að brenna sig á heitri feiti í eftirbakkanum. Látið feitina kólna alveg áður en feitibakkinn er fjarlægður. Nota verður meðfylgjandi handfang til að taka feitibakkann úr grillinu (sjá skýringarmynd 3)!
- Látið grillið kólna alveg áður en það er fært úr stað eða þrifið.
Skyringarmynd 3
GRILLGRINDUR ÚR STEYPUJÁRNI
NOTKUN
Skola skal af grillgrindum úr steypujárni með volgu vatni fyrir fyrstu notkun. Ef koma þarf við grindurnar á meðan er að grilla verður að klæðast grillhönskum. Ekki má setja heitar steypujárnsgrindur á fleti sem eru eldfimir eða þola illa hita.
Notaðu Grid Lifter til að auðveldara sé að taka steypujárnsgrindurnar úr.
ÞRIF
Brennið óhreinindi af steypujárnsgrindunum með því að láta grillið ganga á fullum styrk í u.þ.b. 10 mínútur - Notið bursta með messingburstum (enga stálbursta). Látið grindina og gúmmíið standa og kólna alveg. Við erfið óhreinindi: Notið OUTDOOR CHEF BARBECUE CLEANER til að hreinsa vandlega af grindunum - Þegar búið er að þrífa grindina skal bera á hana dálítið af matarolíu.
MATREIÐSLU-/PONNUSTYKKI
NOTKUN
Ef koma þarf við matreiðslu-/ponnustykki meðan verið er að grilla verður að klæðast grillhönskum. Ekki má setja heitt matreiðslu-/ponnustykki á fleti sem eru eldfimir eða þola illa hita.
ÞRIF
Matreiðslu-/pönnustykki má þrífa í uppþvottavél. Við erfiðað óhreinindi er hægt að nota OUTDOORCHEF BARBECUE CLEANER.
ATHUGADU
Lugano XXL-skurðbrettið, sem einnig er hlif, má aldrei setja á heita grind (Steakhouse Burner) eða matreiðslu-/pönnustykki (hliðarhilla). Fyrst verður grillgrindin eða matreiðslu-/pönnustykki að kólna alveg.
LUGANO XXL-SKURÐBRETTI / HLÍF Á AUKAGRILLFLÖT
Lugano XXL-skurðbrettið, sem fylgir með, er auk þess að vera skurðbretti einnig hlif á Steakhouse Burner.
NOTKUN SEM SKURÐBRETTI

Eins og nafnið gefur til kynna er það fyrst og fremst stærðin sem vekur athygli hjá Lugano XXL-skurðbrettinu. Stærstu kjötstykki hafa nóg pláss á þessu vandaða plastskurðbretti. Stóra safarennan tryggir auk þess að kjötsafi safnist upp með hreinlegum hætti þegar grillmaturinn er skorinn og ekkert flæðir út af.
Upplýsingar: Lugano XXL-skurðbrettið má einnig fá með áskildum hetti sem fylgihlut.
NOTKUN SEM HLÍF


Lugano XXL-skurðbrettið er einnig þægileg hlif á Steakhouse Burner eftir notkun og verndar þannig grillflötinn gegn ryki og ytri áhrifum. Tjakkarnir á hlið skurðbrettisins eru til þess að halda brettinu á aukagrillflötinum. Til að svo verði skal setja brettið þannig á aukagrillflötinn að tjakkarnir fari í bilið á milli hlífðarplötunnar og grillsvæðisins.
VARÚÐ: Látið grillflötinn alltaf kólna alveg og fjarlægið undirhlífina, sem fylgir með, áður en hlífin er sett á Steakhouse Burner.
GEYMSLURÝMI LUGANO 570 G



LUGANO 570 G býr yfir miklu geymslurými með stopp-kerfi. Í stóru skúffunni til vinstri er auk þess að finna innbyggðan búnað, sem hægt er að taka út, þar sem geyma má auk grillgrindarinnar, sem fylgir með, aðra OUTDOORCHEF fylgihluti, eins og t.d. pizzasteininn með lóðréttum og fyrirferðarlitlum hætti.
Upplýsingar: Pizzasteininn fylgir ekki með og þarf að kaupa hann sérstaklega.
Frekari upplýsingar um fylgihluti okkar: WWW.OUTDOORCHEF.COM
ABENDINGAR
GRILLAD MED GASKULUNNI
Við óbeinan hita
Stærri kjötstykki (t.d. fillet, entrecôte, kotelettur í stykkjum eða heill kjúklingur): Með snjalla trektarkerfinu þarf ekki lengur að snúa stórum kjötbitum meðan grillað er. Hitinn í gasbrennaranum stígur upp með innri hlið grillkúlunnar og dreifist jafnt um hana. Setjið matinn á forhitaða grillgrindina og setjið lokið. Gætið þess að hafa alltaf nóg bil á milli kjötstykkja. Þegar grillað er með lokið á brunast maturinn jafnt á öllum hliðum og safinn helst í kjötinu.
Til að ekkert sé tilviljunum háð hjá stærri stykkjum ráðleggjum við það að nota hitamæla okkar, t.d. OUTDOORCHEF GOURMET CHECK DUAL BT - kjöthitamæli fyrir fullkominn árangur, sem stýra má í gegnum opinbera OUTDOORCHEF smáforritið.
Einnig er frábært að baka með óbeinum hita. Vekið hrifningu fjölskyldu og vina með t.d. heimagerðri pizzu af OUTDOORCHEF pizzasteininum sem passar með fullkomnum hætti kúluna. Hitið pizzasteininn fyrst 10 mínútur á hæstu stillingu áður en pizza er sett á - útkoman verður stökkbakaður pizzubotn alveg eins og hjá ítölum.
OUTDOORCHEF-grillinn verður betri með réttum aukabúnaði. Hvort sem ætlanir eru að grilla, elda eða baka: Fáið útrás fyrir tilraunastarfssemi og sköpunargáfu.
Frekari upplýsingar um margvíslega fylgihluti og smáforritið okkar má finna á: WWW.OUTDOORCHEF.COM
Við beinan hita
Hentar fullkomlega við notkun á OUTDOORCHEF fylgihlutum þar sem þörf er á miklum hita á matinn, til að mynda eins og ráðlagt er fyrir fylgihluti eins og OUTDOORCHEF potjárnplötuna eða OUTDOORCHEF Grill-Wok pönnuna.
Þar sem OUTDOORCHEF LUGANO 570 G býr yfir kraftmiklum aukagrillfeti (STEAKHOUSE BURNER) ráðleggjum við þér að nota gaskúluna við beina grillun aðeins fyrir fylgihlutina. STEAKHOUSE BURNER hentar fullkomlega fyrir snöggsteikingu eða pylsur - frekari upplýsingar má finna í næsta lið, Grillun á Steakhouse-Burner*.
GRILLUN Á STEAKHOUSE BURNER
OUTDOORCHEF LUGANO 570 G er með kraftmiklum aukagrillfeti með STEAKHOUSE BURNER. Kostir STEAKHOUSE BURNERS passa fullkomlega við kosti gaskúlunnar.
STEAKHOUSE BURNER var hannaður sérstaklega fyrir beina, hefðbundna grillun með hita að ofan og hentar því sérstaklega vel fyrir snöggsteikingu á steikum, til að grilla pylsur eða til að glóa grænmeti, t.d. papriku, kúrbít eða eggaldin (við matreiðslu antipasti).
Með háa hitastiginu, sem STEAKHOUSE BURNER býður upp á, getur þú hvenær sem er töfrafram guðdómlegt grillbragð og fullkomið grillmynstur á matinn.
RÁÐ TIL AÐ NJÓTA: LUGANO 570 G gefur þér kost á með blöndunni af STEAKHOUSE BURNERS og gaskúlunni að sameina kosti beinnar, hefðbundinnar grillunar og einstaka kosti óbeinnar grillunar í gaskúlunni.
Þannig getur þú gefið matnum, t.d. stórum og litlum kjötstykkjum, kraftmikið grillbragð og fallegt grillmynstur og svo lokið við eldamennskuna í kúlunni á lægri hita.
Þú getur líka snöggsteikt pylsur á háum hita og klárað þær síðan í kúlunni - til að árangurinn verði fullkominn.
ELDAÐ Á HLÍÐARHELLUNNI
Hliðarhellan á LUGANO 570 G eykur við möguleika gaskúlunnar (bein grillun) og STEAKHOUSE BURNER (bein grillun) með einni gerð eldunar til viðbótar (súsa). Möguleikunum eru því engin mörk sett, LUGANO 570 G kemur í stað fullbúins eldhúss.
Hliðarhellan er fullkomin til að elda fjölbreytta forrétti, t.d. hvíttlauksrækjur í ólífuolíu, til að elda fylgirétti, eins og grænmetisrétti eða búa til sósur á meðan grillað er. Við mælum með fylgihlutnum OUTDOORCHEF Aroma pönnunni, til að allir réttir heppnist fullkomlega.
Frekari upplýsingar um viðeigandi fylgihluti má finna á: WWW.OUTDOORCHEF.COM
ÞEGAR BÚIÐ ER AÐ GRILLA
- Stillið gasstilli hnappinn fyrir hvern brennara
- a) Skrúfið fyrir gasið á gaskútnum. b) Slökkið aðalrofanum á rafmagnsboxinu.
- Leyfið grillið að kólna alveg og þrifið það svo. Fjarlægið vindhlífina
- Fjarlægið pönnustykki
- Setjið yfirbreiðslu yfir grillið
ÞRIF
Aðeins þarf að hreinsa grillið lítillega eftir hverja notkun þar sem mesta fitan gufar upp eða endar í safnbakkanum. Ef grillið er mjög óhreint skal hita það í um 10 mínútur á fullum krafti. Notið grillbursta með messinghárunum til að hreinsa trektina og grillgrindina (ekki stálbursta).
Pegar prifa á betur skal nota BARBECUE CLEANER frá OUTDOORCHEF. Einnig er hægt að nota nælonsvamp og sápuvatn til að fjarlægja lausar málarleifar.
MIKILVÆGT: Eftir hverja vandega hreinsun skal láta grillið þorna (brenna) almennilega á stillingu
ÞRIF Á AUKAGRILLFLETI LUGANO 570 G
Aðeins þarf að hreinsa grillið lítillega eftir hverja notkun þar sem mesta fitan gufar upp eða endar í safnbakkanum. Notið grillbursta með messinghárum til að hreinsa grillgrindina og -plötuna (ekki stálbursta). Auk þess er hægt að taka safnbakkann út og hreinsa hann með BARBECUE-CLEANER frá OUTDOORCHEF.
MIKILVÆGT: Ef hreinsiefni eru notuð við þrifin verður að láta grillið þorna vel á eftir. Til að flýta fyrir þurrkun má kveikja á grillinu og láta það brenna nokkrar mínútur á hæstu stillingu.
NOTKUN OUTDOORCHEF BARBECUE CLEANER
MIKILVÆGT: Ekki má vera kveikt á grillinu meðan það er þrifið með BARBECUE CLEANER frá OUTDOORCHEF.
Notið hanska og hlífðargleraugu ef mögulegt er. Úðið vel á grillflötinn útkældan meðan hann er enn lítillega heitur og látið standa 15-30 mínútur. Úðið aftur á hreina fleti, skolið svo vandlega af með vatni og látið þorna.
ATHUGIÐ: Ekki má nota OUTDOORCHEF BARBECUE CLEANER á dufthúðaða fleti.
NOTKUN OUTDOORCHEF CHEF CLEANER
MIKILVÆGT: Ekki má vera kveikt á grillinum meðan það er þrifið með OUTDOORCHEF CHEF-CLEANER.
Klæðist hönskum og gleraugum sem hlífðarbúnaði. Úðið á grillið eða fylgihlutina á meðan þeir eru enn heitir og látið vinna 10 mínútur, þar til froðan er horfin.
Þrifið þvíst, eftir þörfum, með hentugum grillbursta eða nælonsvampi. Skolið síðan vandlega með vatni og þerrið.
ATHUGIÐ: Ekki má nota OUTDOORCHEF CHEF CLEANER á dufthúðaða fleti.
VIÐHALD Á LUGANO 570 G STEAKHOUSE BURNER
Skordýr geta stíflað rennara. Við það geta afköst grillsins minnkað auk þess sem hætta er á að eldur komist í gaslögnina. Skoda verður brennarana og hreinsa þá reglulega með eftirfarandi hætti:
- Takið fyrst steypujárnsgrillgrindurnar og neistapakið úr LUGANO 570 G.
- a) Fjarlægið síðan öryggispinnana úr brennarafestingunni.
b) Lyftið síðan brennarana upp af brennarahöfinu.
- Hreinsið brennarann með mjóum flöskubursta eða vír.
- Að þrifum loknum eru íhlutirnir settir aftur í gildi og teknir aftur í notkun samkvæmt leiðbeiningunum í "KVEIKT ADALBRENNURUM".
MIKILVÆGT: Ef hreinsiefni eru notuð við þrif verður að láta grillið þorna vel á eftir. Til að flýta fyrir þurrkun má kveikja á grillinu og láta það ganga í nokkrar mínútur með loki uppi á stillingunni
VIDHALD
Reglubundið viðhald grillsins tryggir rétta virkni.
- Athugið alla hluta sem leiða gas að minnsta kosti tvisvar á ári og í hvert sinn eftir langan tíma í geymslu. Kóngulær og önnur skordýr geta valdið stíflum sem verður að lagfæra fyrir notkun.
- Ef grillið er oft dregið yfir ójöfnur skal kanna af og til hvort allar skrúfur eru fastar.
- Ef grillið er ekki notað í lengri tíma skal framkvæma LEKAPRÓFUN áður en það er tekið í notkun á ný. Ef spurningar vakna skal snúa sér til umboðsaðila gassins eða söluaðila.
- Til að forðast skemmdir vegna tæringar skal smyrja alla málmhluta með olíu áður en grillið er sett í geymslu lengri tíma.
- Eftir langan geymslutíma og a.m.k. einu sinni á grilltímabilinu skal athuga gaslönguna með tilliti til sprungna, brota og annarra skemmda. Skiptið strax um skemmda gaslöngu eins og lýst er í kaflanum ÖRYGGISUPPLÝSINGAR.
- Berðið viðarolíu á alla viðarhluta einu sinni á ári - það vinnur gegn sprungumyndun. Að hlífa grillið fyrir umhverfisáhrifum meðhentugri yfirbreiðslu frá OUTDOORCHEF sem sett er á eftir að grillið hefur kólnar að fullu
- Til að koma í veg fyrir raka skal fjarlægja yfirbreiðsluna eftir rigningu. Yfirbreiðslur fást hjá sólumilum.
GERÐ VIÐ BILUN
Það kviknar ekki á brennaranum:
- Athugið hvort opið er fyrir gasstreymið á kútnum. Gangið úr skugga um að nóg gas sé á kútnum.
- Athugið hvort neistar frá rafskautinu hlaupa yfir í brennaran.
VARÚÐ: Þegar þetta er athugað verður að vera skrúfað fyrir gasið á kútnum!
Enginn neisti:
Gangið úr skugga um að rafhlaðan hafi verið sett rétt (á grilli með rafkveikingu). Fjarlægðin milli brennara og rafskauts má ekki vera meiri en 5-8 mm. - Athugið hvort snúrur rafkveikingu og rafskauti eru vel festar. - Setjið tvær nýjar rafhlöður (af gerðinni AAA, LR03, 1.5 Volt) í rafkveikjuna.
SAFETY LIGHT SYSTEM (SLS) virkar ekki:
- Athugið hvort skrúfan hefur verið færð frá gasstýringunni. (Með skrúfu fyrir ventilinn á gaskútnum). Gangið úr skugga um að hleðslurafhlöðurnar fyrir SLS-kerfið hafi verið settar rétt og séu hlaðnar.
- Ef hleðslurafhlöðurnar eru tómar getur þú stungið rafmagnssnúrunni, sem fylgir með, í samband til að hefja hleðsluna.
Ef ekki tekst að koma grillið í gang með þessum úrræðum skal hafa samband við sölustað.
NOTENDAÁBYRGD
1. Ábyrgð og tenging við önnur réttindi kaupanda
Með kaupum á þessari OUTDOORCHEF hjá viðurkenndum söluaðila færð þú sem kaupandi (notandi) hennar afhenta ábyrgð framleiðandans Outdoorchef AG (OC)
Ábyrgð framleiðanda gefur þér færi á að leggja fram kröfur á hendur ábyrgðaraðila í samræmi við ákvæði þessa samnings. Ábyrgðarkröfur gilda, auk annarra samningsbundinna eða lagalegra réttinda þinna. Þessi ábyrgð útilokar ekki eða takmarkar önnur réttindi. Þar af leiðandi getur þú einnig lagt fram aðrar samningsbundnar eða lagalegar kröfur á hendur viðkomandi ábyrgðaraðila hverju sinni. Þannig hefur þessi ábyrgð til dæmis ekki áhrif á kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt lögum um skásemisábyrgð.
Sem kaupandi hefur þú einnig sérstakan möguleika á að leggja fram samningsbundnar ábyrgðarkröfur gagnvart seljandanum. Þannig er til dæmis hægt að rifta kaupsamningnum aðeins gagnvart seljandanum en ekki gagnvart OC innan ramma þessarar ábyrgðar.
2. Samningsaðilar og ábyrgðarskilmálar
Ábyrgðaraðili er OC. Rétt á ábyrgð eiga allir kaupendur sem kaupa nýja vöru til einkanota í viðurkenndri verslun. Leggja skal fram sölukvittun til sönnunar á kaupum. Kaup til einkanota eru þegar varan er keypt af einstaklingi, yfirleitt í þeim tilgangi að nota hana án þess að það sé í atvinnuskyni eða í tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur.
Ef nýta á ábyrgðina verður að leggja fram ábyrgðarkröfuna fyrir ábyrgðaraðila innan tveggja mánaða frá því að galli kemur í ljós. Að öðrum kosti er ekki hægt að leggja fram ábyrgðarkröfur. Ef um augljósa galla er að ræða hefst fresturinn við móttöku vörunnar. Af þessum sökum mælir OC með því að skoða vöruna með tilliti til galla strax við móttöku.
3. Gildissvið
Ábyrgðin gildir frá kaupdegi og er veitt í eftirfarandi tilvikum, að því tilskildu að engin útilokun sé til staðar samkvæmt 4. tölulið 3. árs fyrir tegnumrya gljábræddu kúlunni (neðri hluti og lok). 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn að gljábræddu grillgrindinni. - 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn að öllum hlutum úr ryðfríu stáli. Galli í gljábræðingu fyrir fyrstu notkun, 2 ár fyrir alla aðra framleiðslu-/efnisgalla.
Til galla teljast ekki smávægilegar ójöfnur, litamismunur í gljábræðingu eða minniháttar útlitsgallar eins og á suðupunktum eða brún loksins eða festingum, sem hafa ekki áhrif á virkni vörunnar.
Ef um ábyrgðartilvik er að ræða mun OC annað hvort skipta um skemmda eða gallaða hluti eða skipta út vörunni í heild sinni, að eigin vali. Að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að vörunni verði skipt út fyrir sambærilega vöru af nýrri gerð, t.d. fyrir aðra tegund. Svo framarlega sem virkni vörunnar er ekki skert vegna gallans og að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að þér verði boðnar fullnægjandi fjárbætur í stað viðgerðar.
Á meðan unnið er úr ábyrgðarkröfu (skoðun og hugsanlega skipti á vöru) er ekki hægt að leggja fram kröfu gegn OC um nýja vöru eða frekari bætur. Úrbætur vegna galla lengja hvorki ábyrgðartímann né endurnýja hann. Hlutir sem skipt hefur verið út verða eign OC. Aðeins þegar skipt hefur verið um alla vöruna hefst ábyrgðartíminn að nýju.
Allar frekari kröfur á hendur ábyrgðaraðila falla ekki undir þessa ábyrgð. Kröfur af öðrum lagalegum ástæðum eru þó ekki útilokaðar eða takmarkaðar (sjá einnig hér að framan í kafla 1).
- Stútur á litlum brennara 0,55 mm/merking: BF
- Stútur á stórum brennara 1,47 mm/merking: BT
Stútar (50 mbar)
Stútur á litlum brennara 0,48 mm/merking: AF - stútur á stórum brennara 1,27 mm/merking: AT
STEAK HOUSE BURNER
CE 0063BT3928
Gas Propan/butan 30/31
Afl 5,60 kW
Gasnotkun 400 g/klst.
Stútur (28-30/37 mbar) 1,16 mm / merking: BP
Stútur (50 mbar) 1,02 mm / merking: BL