CHELSEA 480 C - Barbecue Outdoorchef - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis CHELSEA 480 C Outdoorchef á PDF sniði.

Outdoorchef CHELSEA 480 C - Grill
📄 144 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Outdoorchef CHELSEA 480 C - page 58
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um CHELSEA 480 C Outdoorchef

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Barbecue á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CHELSEA 480 C - Outdoorchef og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CHELSEA 480 C vörumerkisins Outdoorchef.

NOTENDAHANDBÓK CHELSEA 480 C Outdoorchef

Lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en OUTDOORCHEF kúlugrillið fyrir viðarkol er tekið í notkun.

Lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en OUTDOORCHEF kúlugrillið fyrir viðarkol er tekið í notkun.

MIKILVÆGT:

Skráið hjá ykkur raðnúmer viðarkolagrillsins á bakhlið þessara notkunarleiðbeininga. Númerið stendur á fótastelli grillsins og umbúðunum. Mikilvægt er að hafa raðnúmerið við hendina til að flýta fyrir fyrirspurnum, þegar varahlutir eru pantaðir og fyrir allar ábyrgðarkröfur.

LOGIN CARDOutdoorchef CHELSEA 480 C - MIKILVÆGT: - 1

Vörunúmer og heiti viðarkolagrillsins eru á kortinu Welcome Card, sem fylgir skjalamöppunni.

Mikilvægt er að hafa raðnúmerið og vörunúmerið við hendina til að flýta fyrir fyrirspurnum, þegar varahlutir eru pantaðir og fyrir allar ábyrgðarkröfur. Geymið notkunarleiðbeiningarnar á öruggum stað. Þær innihalda mikilvægar upplýsingar um öryggi, notkun og viðhald.

Geymið notkunarleiðbeiningarnar á öruggum stað. Þær innihalda mikilvægar upplýsingar um öryggi, notkun og viðhald.

VARÚÐ: Viðarkolagrillið frá OUTDOORCHEF má ekki nota sem eldstæði.

ÖRYGGISLEIÐBEININGAR

Ef ekki er farið eftir þessum öryggisleiðbeiningum og varúðarráðstöfunum getur það leitt til alvarlegra slysa. Lesið því þessar leiðbeiningar vandlega áður en grillið er tekið í notkun.

  • Notið ekki grillið í lokuðu rými!
  • VARÚÐ! Haldið börnum og gæludýrum fjarri
  • VARÚÐ! Þetta grill verður mjög heitt og því má ekki færa það til meðan það er í notkun
  • Skiljið grillið aldrei eftir án eftirlits meðan á notkun stendur.
  • Komið grillinu fyrir í skjóli fyrir vindi ef hægt er áður en það er notað.
  • Notið eingöngu venjuleg kveikiefni og farið eftir ábendingunum á umbúðum vörunnar.
  • Setjið aldrei kveikilög eða kol sem hafa verið dreypt með slíkum vökva ofan á heit eða volg kol.
  • Hafið grillið í öruggri fjarlægð, 1,5 m frá brennanlegum efnum.
  • Ýtið ekki grillum á hjólum yfir óslétt undirlag eða prep!
  • Ekki fjarlægja öskuna fyrr en hún er orðin alveg köld.
  • Notið alltaf grillhanska við notkun og þegar loftgötin eru stillt.
  • Klæðist viðeigandi fatnaði. Logar geta auðveldlega læst sig í langar og víðar ermar.
  • OUTDOORCHEF mælir með því að hita upp grillið fyrir fyrstu notkun og láta brenniviðinn glóa í a.m.k. 30 mínútur.

- VARÚÐ! Notið hvorki spritt né bensín til að kveikja upp í grillinu eða kveikja aftur í því! Notið aðeins kveikiefni sem samræmast staðlinum EN 1860-3!

RÁÐSTAFANIR FYRIR HITUN

Outdoorchef CHELSEA 480 C - RÁÐSTAFANIR FYRIR HITUN - 1

  • Komið OUTDOORCHEF kúlugrillinu fyrir viðarkol fyrir á sléttu og traustu undirlagi.
  • Áður en kveikt er upp í kolunum skal ganga úr skugga um að öskuskálin sitji rétt og að öll loftgöt séu opin. Auðvelt er að athuga stöðu loftgatanna að neðan með því að skoða vísinn á öskuskálinni.
  • Hægt er að stilla hitann á einfaldan hátt með því að opna og loka loftgötunum: Með því að opna hækkar hitinn og með því að loka lækkar hann.
  • OUTDOORCHEF mælir með: Notið venjulega kveikikubba og pappír til að kveikja upp í grillinu en ekki kveikilög.
  • Til að ná upp miklum og stöðugum hita mælum við með notkun hágæða viðarkola eða viðarkubba frá OUTDOORCHEF. Geymið þá á þurrum stað.
  • Til að byrja með skal nota eftirfarandi magn fyrir OUTDOORCHEF kúlugrill fyrir viðarkol:

480 1000 grömm 570 1500 grömm

Hentug viðarkol og -kubbar fást hjá söluaðilum OUTDOORCHEF.

HITUN Á VIDARKOLAGRILLI MED KVEIKIGRIND

Outdoorchef CHELSEA 480 C - HITUN Á VIDARKOLAGRILLI MED KVEIKIGRIND - 1

  1. Fjarlægið alla innri hluta grillsins (grillgrind, trekt, safaskál, kolaskál) áður en kveikt er upp í grillinu svo nægilegt loft sé til staðar og sem bestur árangur náist við brunann.
  2. Setjið litlu kveikigrindina í, setjið venjulega kveikikubba í hana og kveikið í þeim. Ekki nota neina vökva á borð við bensín, spritt eða svipaðan kveikilög. Setjið aldrei kveikilög eða kol sem hafa verið dreypt með slíkum vökva ofan á heit eða volg kol.

Outdoorchef CHELSEA 480 C - HITUN Á VIDARKOLAGRILLI MED KVEIKIGRIND - 2

  1. Leggið kolaskálina í og fyllið hana með viðarkolum / kubbum (sjá upphafsmagn í kaflanum RÁÐSTAFANIR FYRIR HITUN). Gætið þess að engir kubbar liggi upp við kúluna.
  2. Látið kolin brenna í u.þ.b. 30–45 mínútur með lokið opið þar til þau glóa jafnt og hvítt lag hefur sest á þau. Þá fyrst má byrja að grilla.
  3. Setjið ekki grillmatinn á fyrr en öskulag sést á kolunum.

TVÖ GRILL Í EINU: MED EINSTAKA EASY SLIDE-TREKTARKERFINU

Outdoorchef CHELSEA 480 C - TVÖ GRILL Í EINU: MED EINSTAKA EASY SLIDE-TREKTARKERFINU - 1

Ábending fyrir kolin: Þau eru aðeins sett í öðrum megin. Þannig er hægt að vinna með mismunandi hitasvæði á sama grillinu. EASY SLIDE-trektarkerfið gerir kleift að færa grillmatinn af beinum hita á óbeinan með einu handtaki. Hægt er að stjórna hitastiginu með ventilopi í lokinu og á neðri hluta kúlunnar.

Hægt er að opna grillgrindina sem gerir kleift að bæta kolum á grillið með þægilegum hætti á meðan það er í notkun.

Fyrir beina grillun og matreiðslu. Við óbeina grillun, matreiðslu og bakstur.

Outdoorchef CHELSEA 480 C - TVÖ GRILL Í EINU: MED EINSTAKA EASY SLIDE-TREKTARKERFINU - 2

Komið EASY SLIDE-trektinni fyrir þannig að opið liggi yfir kolunum.

Dreifið matnum beint fyrir ofan opið.

Outdoorchef CHELSEA 480 C - TVÖ GRILL Í EINU: MED EINSTAKA EASY SLIDE-TREKTARKERFINU - 3

Snúið opinu á EASY SLIDE-trektinni frá kolunum og setjið lokið á.

Þá er hægt að nota allan grillflötinn fyrir óbeina grillun.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR VIÐARKOLAGRILL

Outdoorchef CHELSEA 480 C - NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR VIÐARKOLAGRILL - 1

  1. Dreifið kolunum þannig að aðeins helmingur kolaskálarinnar sé þakinn og hægt sé að setja safaskálina í miðjuna. Hinn helmingur skálarinnar á að vera laus við kol til að hægt sé að tryggja eftirfarandi meðan grillað er: a. Ákjósanlegt loftstreymi og þar með hámarkshitamyndun og b. að hægt sé að skipta fljótt á milli beins og óbeins hita með því einfaldlega að snúa grindinni (sjá TVÖ GRILL Í EINU: MED EINSTAKA EASY SLIDE-TREKTARKERFINU)
  2. Þá er safaskálin sett í miðju kolagrindarinnar og hún fyllt með vökva að eigin vali.
  3. Leggið svo trektina og grillgrindina í. Gætið þess að láta opnanlega hluta grindarinnar sitja yfir opi trektarinnar til að hægt sé að koma báðum kömbunum undir grillgrindinni inn í viðkomandi göt á trektinni.
  4. Snúið opi trektarinnar þannig að það sé fyrir ofan brennandi kolin. Þannig næst hámarksnýting loftstreymis. Þá fyrst má byrja að grilla.
  5. Ávallt skal fylgjast með hitamynduninni í grillinu áður en fleiri kolum er bætt við. Skammta verður kolum í hófi þannig að hægt sé að stjórna hitanum og koma í veg fyrir að hann hækki um of. Hitastigið ætti ekki að fara yfir 300 °C til að hindra að grillmaturinn eða grillið skemmist. Of hátt hitastig getur aflagað hluta grillsins.
  6. Hægt er að opna grillgrindina og er því auðvelt að bæta viðarkolum á grillið meðan það er í notkun. Snúið grillgrindinni þannig að opni hlutinn sé yfir opi trektarinnar. Fyllið á kubbana og bíðið í um það bil 5–10 mínútur með lokið opið þar til þeir glóa í gegn.

ÁBENDINGAR

Við óbeinan hita

  • Stærri kjötstykki eða heilir kjúklingar: Með EASY SLIDE-trektinni þarf ekki lengur að snúa stórum kjötbitum meðan grillað er. Hitinn frá glóandi kolunum stígur upp með innri hliðum grillkúlunnar og dreifist jafnt um hana.
  • Setjið matinn á forhituðu grillgrindina yfir lokaða hluta EASY SLIDE-trektarinnar og setjið lokið á. Gætið þess að hafa alltaf dálítið bil á milli kjötstykkja.
  • Þegar grillað er með lokið á brúnast maturinn jafnt á öllum hliðum og safinn helst í honum.
  • Við mælum með OUTDOORCHEF GOURMET CHECK-kjarnhitamælinum til að ná sem bestum árangri þegar grilla á stærri kjötstykki.

Við beinan hita

  • Minni kjötstykki svo sem steikur, kötelettur og pylsur: Maturinn er settur á forhitaða grillgrindina yfir opnu EASY SLIDE-trektinni og steiktur í stuttan tíma með opið lok. Snúið EASY SLIDE þannig að grillmaturinn sé ekki lengur yfir glóandi kolunum og ljúkið við að grilla hann með lokið á.
  • Við mælum með TVÍSKIPTU STEYPUJÁRNSGRINDINNI frá OUTDOORCHEF til að ná sem bestum árangri þegar grillað er á stuttum tíma.
  • Leggið ekki heitt grilllokið á grasflötina. Notið krókinn sem er innan í lokinu til að hengja það á brúnina á neðri hluta grillkúlunnar á gerðum sem eru ekki með lok á hjörum eða sér festingu fyrir lok.
  • Gætið þess að vökvi sé alltaf til staðar í fitubakkanum.
  • ATHUGID: Til að koma í veg fyrir að kjötið verði þurrt má bæta vatni við í safaskálina sem gufar upp meðan grillað er. Í stað vatns er einnig hægt að nota ávaxtasafa og viðarspæni á borð við vínvið eða eplatré sem framkalla ljúffengt bragð.
  • Auðvelt er að athuga stöðu loftgatanna að neðan með því að skoða vísinn á öskuskálinni. VARÚD: Loftgatið á lokinu verður alltaf að vera opið meðan grillað er (sjá einnig NOTKUNARLEIDBEININGAR FYRIR VIDARKOLAGRILL)
  • OUTDOORCHEF mælir með því að hafa lokið á meðan grillað er. Hægt er að stytta grilltímann um allt að þriðjung með því að nýta lofthringrásina inni í grillinu.
  • Notið alltaf grillhanska við notkun og þegar loftgötin eru stillt. Notið gjarnan góða og nógu langa grilltöng til að snúa grillmatnum í stað gaffals svo kjötið haldi safa sínum og hann leki ekki út þegar stungið er í það.
  • OUTDOORCHEF-grillið er enn betra með réttum aukabúnaði. Hvort sem ætlunin er að grilla, elda eða baka: Fáið útrás fyrir tilraunastarfsemi og sköpunargleði.
  • Finna má alla fylgihluti fyrir grillið á OUTDOORCHEF.COM

ÞRIF OG VIÐHALD

  • Setjið lokið á grillið og lokið öllum loftgötum á grillinu ef kæfa á kolin eftir notkun. Ekki nota vatn.
  • Fjarlægið allar öskuleifar fyrir næstu notkun.
  • Hreinsið grindurnar með grillbursta með messinghárum (ekki stálbursta). Ekki má nota neina hvassa hluti eða sterk hreinsiefni. Prífið fitubakkann með sápuvatni eða hreinsið hann með BARBECUE-CLEANER frá OUTDOORCHEF.
  • Til að lengja líftíma grillsins eins og hægt er mælum við með: Að hlífa grillinu fyrir umhverfisáhrifum með hentugri yfirbreiðslu frá OUTDOORCHEF sem sett er á eftir að grillið hefur kólnað að fullu. Til að koma í veg fyrir raka skal fjarlægja yfirbreiðsluna eftir rigningu. Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum.

NOTKUN BARBECUE-CLEANER FRÁ OUTDOORCHEF

MIKILVÆGT: Ekki má vera kveikt á grillinu meðan það er þrifið með BARBECUE-CLEANER frá OUTDOORCHEF. Notið helst hanska og hlífðargleraugu ef mögulegt er. Úðið vel á grillið eða aukabúnaðinn meðan það er enn lítillega heitt og látið standa í 15–30 minútur. Úðið aftur á óhreina fleti, skolið svo vandlega af með vatni og látið þorna.

ATHUGID: Ekki má nota Barbecue-Cleaner frá OUTDOORCHEF á pólýhúðaða fleti.

NOTENDAÁBYRGĐ

1. Ábyrgð og tenging við önnur réttindi kaupanda

Með kaupum á þessari OUTDOORCHEF vöru hjá viðurkenndum söluaðila færð þú sem kaupandi (notandi) hennar afhenta ábyrgð framleiðandans DKB Household Switzerland AG („DKB“).

Ábyrgð framleiðanda gefur þér færi á að leggja fram kröfur á hendur ábyrgðarveitanda í samræmi við ákvæði þessa samnings. Ábyrgðarkröfur gilda, auk annarra samningsbundinna eða lagalegra réttinda þinna. Þessi ábyrgð útilokar ekki eða takmarkar önnur réttindi. Þar af leiðandi getur þú einnig lagt fram aðrar samningsbundnar eða lagalegar kröfur á hendur viðkomandi ábyrgðaraðilum hverju sinni. Þannig hefur þessi ábyrgð til dæmis ekki áhrif á kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð.

Sem kaupandi hefurðu einnig sérstakan möguleika á að leggja fram samningsbundnar ábyrgðarkröfur gagnvart seljandanum. Þá er til dæmis hægt að rifta kaupsamningnum aðeins gagnvart seljandanum en ekki gagnvart DKB innan ramma þessarar ábyrgðar.

2. Samningsaðilar og ábyrgðarskilmálar

Ábyrgðarveitandi er DKB. Rétt á ábyrgð eiga allir kaupendur sem kaupa nýja vöru til einkanota í viðurkenndri verslun. Leggja skal fram sölukvittun til sönnunar á kaupum. Kaup til einkanota eru þegar varan er keypt af einstaklingi yfirleitt í þeim tilgangi að nota hana án þess að það sé í atvinnuskyni eða í tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur.

Ef nýta á ábyrgðina verður að leggja fram ábyrgðarkröfuna fyrir ábyrgðarveitanda innan tveggja mánaða frá því ágalli kemur í ljós. Að öðrum kosti er ekki hægt að leggja fram ábyrgðarkröfur. Ef um augljósa galla er að ræða hefst fresturinn við móttöku vörunnar. DKB mælir með því að skoða vöruna vegna galla strax við móttöku.

3. Gildissvið

Ábyrgðin gildir frá kaupdegi og er veitt í eftirfarandi tilvikum, að því tilskildu að engin útilokun sé til staðar samkvæmt 4. tölulið:

  • 3 ár fyrir gegnumryð á gljábrenndu kúlunni (neðri hluti og lok).
  • 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á gljábrenndu grillgrindinni.
  • 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á öllum hlutum úr ryðfríu stáli.
  • Galli í emaleringu fyrir fyrstu notkun.
  • 2 ár fyrir alla aðra framleiðslu-/efnisgalla.

Til galla teljast ekki smávægilegar ójöfnur, litamismunur á emaleringu eða minniháttar útlitsgallar eins og á stoðpunktum á neðri brún loksins eða festingum, sem hafa ekki áhrif á virkni vörunnar.

Ef um ábyrgðartilvik er að ræða mun DKB annaðhvort skipta um skemmda eða gallaða hluti eða skipta út vörunni í heild sinni, að eigin vali. Að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að vörunni verði skipt út fyrir sambærilega vöru af nýrri gerð, t.d. fyrir aðra legund. Svo framarlega sem virkni vörunnar er ekki skert vegna gallans og að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að þér verði boðnar fullnægjandi fébætur í stað viðgerðar.

Á meðan úrvinnsla ábyrgðarinnar fer fram (skoðun og hugsanlega skipti á vöru) er ekki hægt að leggja fram kröfu gegn DKB um nýja vöru eða frekari bætur. Úrbætur vegna galla lengja hvorki ábyrgðartímann né endurnýja hann. Hlutir sem skipt hefur verið út verða eign DKB. Aðeins þegar skipt hefur verið um alla vöruna hefst ábyrgðartíminn að nýju.

Allar frekari kröfur á hendur ábyrgðarveitanda falla ekki undir þessa ábyrgð. Kröfur af öðrum lagalegum ástæðum eru þó ekki útilokaðar eða takmarkaðar (sjá einnig hér að framan í kafla 1).

4. Undanskilið ábyrgð

Ábyrgðin gildir ekki í eftirfarandi tilvikum:

  • Eðlilegt slit við fyrirhugaða notkun, einkum á almennum slithlutum eins og trekt, neistapökum, brennara, hitamæli, kveikingu og rafhlöðu, rafskauti, kveikitaug, gasslöngu, gasprýstijafnara, hitaelementi, endurkastara, hlífðarfilmu úr áli, grill- eða kolagrind og kolaskál, kveikigrind og kola-/fitusafnbakka.
  • Skemmdir í emaleringu á notuðum vörum ef ekki er hægt að sanna að skemmdin var til staðar fyrir fyrstu notkun.
  • Bilun og/eða skemmdir vegna óviðeigandi eða rangrar notkunar, einkum vegna þess að ekki var farið eftir notkunar- og öryggisleiðbeiningum eða viðhaldsleiðbeiningum (t.d. notkun á útigrillum innandyra, skemmdir vegna rangrar samsetningar, rangra þrifa á gljábrenndum yfirborðsfleti trektarinnar eða grillgrindinni, vegna þess að þéttiprófun var ekki framkvæmd eins og ráðlagt er í notkunarleiðbeiningunum, vegna notkunar á skaðlegum íðefnum, vegna annarrar notkunar en fyrirhugaðrar o.s.frv.).

- Bilun og/eða skemmdir sem stafa af inngripi eða viðgerðum framkvæmdum af aðilum sem DKB hefur ekki viðurkennt.

- Bilun og/eða skemmdir vegna veðurs (t.d. haglél eða eldingar).

- Bilun og/eða skemmdir sem valdið er af ásetningi eða gáleysi, svo framarlega sem DKB beri ekki ábyrgð á peim.

- Bilun og/eða skemmdir sem verða við flutning til kaupandans, svo framarlega sem ábyrgðarveitandinn beri ekki ábyrgð á peim.

- Bilun og/eða skemmdir af völdum óviðráðanlegra orsaka.

- Bilun og/eða slitskemmdir vegna notkunar í atvinnuskyni (t.d. í hôtel- eða veitingarekstri).

5. Úrvinnsla ábyrgðar

Ef um ábyrgðartilvik er að ræða skallu hafa samband eins fljótt og auðið er við okkur eða viðurkenndan söluaðila (lista yfir söluaðila er að finna á www.outdoorchef.com) og tilgreina eftir því sem hægt er vöruna/hluta vörunnar, sölukvittun, raðnúmer og vörunúmer (koma bæði fram á upplýsingalímmiða á grillinu; sjá fyrsta kaflann í notkunarleiðbeiningunum), ásamt heimilisfangi þínu. Pú mátt gjarnan láta mynd fylgja með lýsingunni á gallanum. Skilaðu vörunni til söluaðilans eða okkar svo við getum prófað vöruna og kannað hvort ábyrgðin gildi. Í réttmætum ábyrgðartilvikum munum við endurgreiða nauðsynlegan flutnings- og sendingarkostnað, annars munum við senda vöruna til baka á þinn kostnað.

Eftirfarandi fyrirtæki er fulltrúi fyrir skráða vörumerkið OUTDOORCHEF

DKB Household Switzerland AG | Eggbühlstraße 28 | Postfach | 8052 Zürich-Schweiz | www.dkbrands.com

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Outdoorchef

Líkan : CHELSEA 480 C

Flokkur : Grill