Chelsea 480 G LH - Barbecue Outdoorchef - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis Chelsea 480 G LH Outdoorchef á PDF sniði.
Spurningar notenda um Chelsea 480 G LH Outdoorchef
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Barbecue á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Chelsea 480 G LH - Outdoorchef og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Chelsea 480 G LH vörumerkisins Outdoorchef.
NOTENDAHANDBÓK Chelsea 480 G LH Outdoorchef
Skráðu hjá þér raðnúmer kúlugasgrillsins á bakhlið þessara notkunarleiðbeininga. Staðsetning númerisins fer eftir gerð grillsins og er að finna á upplýsingalímimiðanum, sem er annaðhvort á fótstalli grillsins eða botnplötu þess.

Vörunúmer og heiti kúlugasgrillsins eru á kortinu Welcome Card, sem fylgir skjalamöppunni.
Mikilvægt er að hafa raðnúmerið og vörunúmerið við hendina til að flýta fyrir fyrirspurnum, þegar varahlutir eru pantaðir og fyrir allar ábyrgðarkröfur. Geymið notkunarleiðbeiningarnar á öruggum stað. Þær innihalda mikilvægar upplýsingar um öryggi, notkun og viðhald.
MIKILVÆG ÖRYGGISATRIÐI
Allir sem nota grillið verða að kynna sér nákvæmlega hvernig kveikt er upp í því og fara eftir leiðbeiningunum. Börn mega ekki nota grillið.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningunum nákvæmlega. Röng uppsetning getur haft hættulegar afleiðingar.
Gætið þess að hafa eldfima vökva og efni eða varagaskúta nálægt grilli. Aldrei má koma grilli og gaskútnum fyrir í lokuðu rými án loftræstingar. Lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en kúlugasgrillið er tekið í notkun. Eingöngu má nota það utandyra og það verður að standa í öruggri fjarlægð frá brennanlegum efnum, minnst 1,5 m.
GASKÚTAR
Aðeins má setja gaskúta sem vega að hámarki 7,5 kg þegar þeir eru fullir á botnplötuna. Seljið kútinn á viðeigandi stað, sjá UPPSETNINGARLEIÐBEININGAR. (Á gerðinni Kensington 480 G má ekki setja gaskút á botnplötuna, jafnvel þótt hann sé til staðar.) Notið meðfylgjandi öryggisfestingu til að festa gaskútinn. Gætið þess að allar skrúfutengingar séu þéttar. (Mynd 2A) - Framkvæmið LEKAPRÓFUN áður en grillið er tekið í notkun og í hvert sinn sem skipt er um gaskút. Gaskútar mega ekki standa í hitastigi yfir 50°C og þá má aldrei geyma í lokuðu rými eða kjallara. Fylgið öryggisreglunum sem merktar eru á gaskútana. ATHUGIÐ: Gangið úr skugga um að þrýstijafnarinn og gashylkið séu leyfð til notkunar í viðkomandi landi. Notið eingöngu gashylki samkvæmt gildandi staðli fyrir viðkomandi land. Þar sem þéttbúnaður er mismunandi verður skrúfutengingin ekki nægilega þétt ef ekki er notuð rétt gerð af þrýstijafnara og gashylki. Gas lekur þá út og kviknað getur því yfirvaralaust vegna opins elds eða neista. Af öryggisástæðum sem og vegna ábyrgðarmála framleiðanda með því að gasgrill sem tekin eru í sölu séu yfirfarin og að þrýstistillir og gasslanga séu löguð að gildandi reglum viðkomandi lands ef þess þarf.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Geymið þessar notkunarleiðbeiningar svo hægt sé að grípa til þeirra hvenær sem þörf krefur.
Farið eftir leiðbeiningum kaflans LEIÐBEININGAR VIÐ ÍKVEIKJU þegar grillið er tekið í notkun.
Eingöngu til nota utandyra. "Lesið notkunarleiðbeiningarnar áður en grillið er tekið í notkun" VARÚÐ: Aðgengilegir hlutir geta verið mjög heitir. Haldið börnum fjær. "Grillið má ekki vera nálægt brennanlegum efnum þegar það er í notkun" Færið ekki grillið meðan notkun stendur. Eftir notkun skal skrúfa fyrir gasið á gaskútnum.
- Notið grillið aldrei undir þakskyggni.
- Ekki nota grill á hjólum yfir óslétt golf eða palla. Notið hlífðarhanska þegar komið er við heita hluti.
- Stillið gasstillihnappinn alltaf á 0 og skrúfið fyrir gasstreymið á kútnum eftir notkun.
- Gætið þess að gasstillihnappurinn sé á 0 og lokað fyrir gasstreymi á kútnum þegar skipt er um gaskút. MIKILVÆGT: Grillið má ekki vera nálægt neinum íkveikjuvöldum.
- Athugið alla tengihluti samkvæmt leiðbeiningum í LEKAPRÓFUN þegar búið er að tengja nýjan gaskút við.
- Stillið gasstillihnappinn á 0 og skrúfið fyrir gasstreymi á kútnum ef grunur leikur á leka vegna opnari hluta. Látið skoða hluti sem leiða gas í sérstaka þjónustu með gasvörur.
- Ef merki eru um skemmdir á gasslöngunni eða slit verður að skipta um hana strax. Slangan verður að vera laus við bráð og sprungur. Ekki gleyma að slökkva með gasstillihnappinum og skrúfa fyrir gasið áður en slangan er fjarlægð.
- Skiptið um slöngu og gasþrýstijafnarann eftir 3 ára notkun frá kaupdegi. Gætið þess að gasþrýstijafnarinn og slangan samræmist viðeigandi EN-stöðlum. Ráðlögð lengd gasslöngunnar er 90 cm og má ekki fara yfir 150 cm. Gætið þess að loka aldrei fyrir stóra hringlaga loftopið á botni skálarinnar eða loftræstarnar á lokinu. Aldrei má loka fyrir eða hylja loftopin á geymslustað gaskútsins.
- Ekki má breyta grillið með neinum hætti. Grillið fylgir gasslanga og gasþrýstijafnari. Mikilvægt er að halda gasslöngunni frá heitum ytri hlutum grillsins. Ekki má vera snúið upp á slönguna. Nauðsynlegt er að festa slönguna í þar til gerða festingu á grillum sem hafa slíka festingu.
- Slangan og þrýstijafnarinn samræmast gildandi landslögum og EN-stöðlum.
- Ef fullum afköstum er ekki náð og grunur leikur á stíflu gasstreymis skal leita til þjónustu með gasvörur.
- Notið grillið aðeins á traustu og öruggu undirlagi. Setjið grillið aldrei á viðargólf eða annað brennanlegt yfirborð meðan það er í notkun. Haldið grillið frá brennanlegum efnum.
- Komið í veg fyrir mikla hitabreytingu plötunnar á grillum með granítplötur.
- Ekki má geyma grillið nálægt mjög eldfimum vökvum eða efnum.
- Ef grillið er geymt innandyra yfir vetur verður að fjarlægja gaskútinn. Grillið ætti að geyma á vel loftræstum stað utandyra, sem börn hafa ekki aðgang að.
- Komið grillið fyrir skjóli fyrir vindi ef hægt er áður en það er notað.
- Pegar grillið er ekki í notkun ætti að geyma það undir yfirbreiðslu eftir að það hefur kólnað til að vernda það fyrir umhverfisáhrifum.
Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum.
- Til að koma í veg fyrir aka skaltu fjarlægja yfirbreiðsluna eftir mikla rigningu.
LEKAPRÓFUN
VIÐVÖRUN: Grillið má ekki vera nálægt neinum íkveikjuvöldum meðan lekaprófun fer fram. Reykingar eru einnig bannaðar. Prófaðu aldrei þéttingar með logandi eldspýtu eða opnum eldi og prófunin skal alltaf fara fram utandyra.
- Gasstillihnappurinn verður að vera á 0
- Skrúfaðu frá gasinu á kútnum og berið sápulausn úr 50% fljótandi sápu og 50% vatni á alla hlutana sem leiða gas (tengi á gaskútnum / gasprystijafnarann / gasslönguna / gasinntakið / tengið á ventlinum). Einnig er hægt að nota sápulausn sem greinir leka. (Mynd 2B)
- Ef blöðrur myndast í sápulausninni er um leka að ræða. MIKILVÆGT: Ekki nota grillið fyrr en búið er að lagfæra lekann. Skrúfaðu fyrir gasið á gaskútnum.
- Lagfærðu lekann með því að herða tengingar, ef unnt er, eða skiptið um gallaða hluti.
- Endurtakið 1. og 2. skref.
- Hafið samband við sérverslun með gasvörur ef ekki er hægt að laga lekann.
ATHUGIÐ: Framkvæmið LEKAPRÓFUN eftir hverja tengingu eða skipti á gaskútnum, sem og upphafi grillímabilsins.
SKÝRINGARTÁKN Á STJÓRNBORÐINU
Við beina grillun og matreiðslu Við óbeina grillun, matreiðslu og bakstur

Vinnó á háum hita sem miðast við grillgrindina. Til dæmis til að fá fram fallegt grillmynstur á steikina.

Dreifist hitinn jafnt um lokaða grillkúluna. Hentar til dæmis til að gufusjóða grænmeti eða gægelda steik.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR KÚLUGASGRILL
Leikur einn á grillið:
- Færið EASY FLIP-trektina í þá stöðu sem óskað er. VARÚÐ: Notið eingöngu hitapolna hanska til að breyta stöðu trektarinnar meðan grillið er í notkun. ATHUGIÐ: Við beina grillun og matreiðslu á prepinu skal hafa lokið opið. Aðeins á prepinu er hægt að hafa loki á við beina grillun.
- Veljið viðeigandi aukabúnað ef þörf krefur.
- Hafið grillið lokað og forhitið það í u.þ.b. 10-15 mínútur á stillingu
- Stillið gasstillihnappinn alltaf í eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gaskútnum. Skrúfa verður fyrir gaskútinn jafnvel þótt hann sé tómur.
ABENDINGAR
Við óbeinan hita

Stærri kjötstykki eða hænur eða kjúklingar: Ekki er lengur þörf á að snúa stórum kjötbitum meðan grillað er með EASY FLIP-trektinni. Hitinn á gasbrennaranum stígur upp með innri hliðum grillkúlunnar og dreifist jafnt um hana. Setjið matinn á forhituðu grillgrindina og setjið lokið á. Gætið þess að hafa alltaf smá bil á milli kjötstykkja. Þegar grillað er með loki á brunast maturinn jafnt á öllum hliðum og safinn helst honum.
Við mælum með OUTDOORCHEF GOURMET CHECK- kjarnhitamælinum til að ná sem bestum árangri þegar grilla á stærri kjötstykki.
Við beinan hita

Minni kjötstykki svo sem steikur, kotelettur og pylsur: Maturinn er settur á miðja forhitaða grillgrindina og steiktur í stuttan tíma með opið lok. Færið svo matinn útarr, minnkið hitann og grillið hann með loki þar til hann er tilbúinn.
Við mælum með steypujárnsplötunni frá OUTDOORCHEF til að ná sem bestum árangri þegar grillað er á stuttum tíma.
OUTDOORCHEF-grillið er enn betra með réttum aukabúnaði. Hvort sem ætlunin er að grilla, elda eða baka: Fáðu útrás fyrir tilraunastarf sem og sköpunargáfu.
Finna má alla fylgihluti fyrir grillið á OUTDOORCHEF.COM
OUTDOORCHEF-grilltímaflan fyrir mismunandi grillmat er á OUTDOORCHEF.COM
GRILLAÐ Á AUKAFLETI
Forhitið grillið á fullum hita í 10 mínútur. Setjið matinn á grillgrindina og stillið hitann að eigin ósk.
ÞEGAR BÚIÐ ER AÐ GRILLA
- Stillið gasstilli hnappinn fyrir hvern brennara á.
- Skrúfið fyrir gasið á gaskútnum.
- Leyfið grillið að kólna alveg og þrifið það svo. 4. Hyljið grillið með yfirbreiðslu.
ÞRIF
Aðeins þarf að hreinsa grillið lítillega eftir hverja notkun þar sem mesta fitan gufar upp eða endar í safnbakkanum.
Ef grillið er mjög óhreint skal hita það í um 10 mínútur á fullum krafti. Notið grillbursta með messinghárum til að hreinsa trektina og grillgrindina (ekki stálbursta).
1. Ábyrgð og tenging við önnur réttindi kaupanda
Með kaupum á þessari OUTDOORCHEF vöru hjá viðurkenndum söluaðila færð þú sem kaupandi (notandi) hennar afhenta ábyrgð framleiðandans DKB Household Switzerland AG (DKB).
Ábyrgð framleiðanda gefur þér færi á að leggja fram kröfur á hendur ábyrgðarveitanda í samræmi við ákvæði þessa samnings. Ábyrgðarkröfur gilda, auk annarra samningsbundinna eða lagalegra réttinda þinna. Þessi ábyrgð útilokar ekki eða takmarkar önnur réttindi. Þar af leiðandi getur þú einnig lagt fram aðrar samningsbundnar eða lagalegar kröfur á hendur viðkomandi ábyrgðaraðilum hverju sinni. Þannig hefur þessi ábyrgð til dæmis ekki áhrif á kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt lögum um skásemisábyrgð.
Sem kaupandi hefur þú einnig sérstakan möguleika á að leggja fram samningsbundnar ábyrgðarkröfur gagnvart seljandanum. Það er til dæmis hægt að rifta kaupsamningnum aðeins gagnvart seljandanum en ekki gagnvart DKB innan ramma þessarar ábyrgðar.
2. Samningssilar og ábyrgðarskilmálar
Ábyrgðaraðili er DKB. Rétt til ábyrgðar eiga allir kaupendur sem kaupa nýja vöru til einkanota í viðurkenndri verslun. Leggja skal fram sölukvittun til sönnunar á kaupum. Kaup til einkanota eru þegar varan er keypt af einstaklingi, yfirleitt í þeim tilgangi að nota hana án þess að það sé í atvinnuskyni eða tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur.
Ef nýta á ábyrgðina verður að leggja fram ábyrgðarkröfuna fyrir ábyrgðaraðila innan tveggja mánaða frá því að galli kemur í ljós. Að öðrum kosti
er ekki hægt að leggja fram ábyrgðarkröfu. Ef um augljósa galla er að ræða hefst fresturinn við móttöku vörunnar. DKB mælir með því að skoða vöruna vegna galla strax við móttöku.
3. Gildissvið
Ábyrgðin gildir frá kaupdegi og er veitt í eftirfarandi tilvikum, að því tilskildu að engin útilokun sé til staðar samkvæmt 4. tölulið:
3 ár fyrir gegnryð á gljárennu yfirborðinu (neðri hluti og lok). 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á gljábrenndri grillgrindinni. 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á öllum hlutum úr nýfríu stáli. Galli í málningu fyrir fyrstu notkun. 2 ár fyrir alla aðra framleiðslu-/efnisgalla.
Til galla teljast ekki smávægilegar ójöfnur, litamunur á málningu eða minniháttar útlitsgallar eins og á stoppunktum á neðri brún loksins eða festingum, sem hafa ekki áhrif á virkni vörunnar.
Ef um ábyrgðartilvik er að ræða mun DKB annað hvort skipta um skemmda eða gallaða hluti eða skipta út vörunni í heild sinni, að eigin vali. Að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að vörunni verði skipt út fyrir sambærilega vöru af nýrri gerð, t.d. fyrir aðra tegund. Svo framarlega sem virkni vörunnar er ekki skert vegna gallans og að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að þér verði boðnar fullnægjandi fjárbætur í stað vörunnar.
Á meðan unnvinnsla ábyrgðarinnar fer fram (skoðun og hugsanlega skipti á vöru) er ekki hægt að leggja fram kröfu gegn DKB um nýja vöru eða frekari bætur. Úrbætur vegna galla lengja hvorki ábyrgðartímann né endurnýja hann. Hlutir sem skipt hefur verið út verða eign DKB. Aðeins þegar skipt hefur verið um alla vöruna hefst ábyrgðartíminn að nýju.
Allar frekari kröfur hendur ábyrgðaraðila falla ekki undir þessa ábyrgð. Kröfur af öðrum lagalegum ástæðum eru þó ekki útilokaðar eða takmarkaðar (sjá einnig hér að framan kafla 1).
Ábyrgðin gildir ekki í eftirfarandi tilvikum:
Eðlilegt slit við yfirhugsaða notkun, einkum almenn slitþol ums trekt, neistapokum, brennara, hitamæli, kveikingu og rafhlöðu, rafskauti, kveikitaug, gasslöngu, gasprystijafnara, hitaelementi, endurkastara, hlífðarfilmu úr áli, grill- eða kolagrind og kolaskál, kveikigrind og kola-/fitusafnbakka. - Skemmdir á málningu á notuðum vörum ef ekki er hægt að sanna að skemmdin var til staðar fyrir fyrstu notkun. - Bilun og/eða skemmdir vegna óviðeigandi eða rangrar notkunar, einkum vegna þess að ekki var farið eftir notkunar- og öryggisleiðbeiningum eða viðhaldsleiðbeiningum (t.d. notkun á útigrillum innandyra, skemmdir vegna rangrar samsetningar, rangra þrifa á gljábræddum yfirborðsfleti trektarinnar eða grillgrindinni, vegna þess að lekaprófun var ekki framkvæmd eins og lagt er í notkunarleiðbeiningunum, vegna notkunar á skaðlegum efnum, vegna annarrar notkunar en fyrirhugaðrar o.s.frv.). - Bilun og/eða skemmdir sem stafa af inngripi í viðgerðir framkvæmdar af aðilum sem DKB hefur ekki viðurkennt. - Bilun og/eða skemmdir vegna veðurs (t.d. hagl eða eldingar). Bilun og/eða skemmdir sem valdið er af ásetningi eða gáleysi, svo framarlega sem DKB ber ekki ábyrgð á þeim. Bilun og/eða skemmdir sem verða við flutning til kaupandans, svo framarlega sem ábyrgðarveitandinn ber ekki ábyrgð á þeim. Bilun og/eða skemmdir af völdum óviðráðanlegra orsaka. - Bilun og/eða slitskemmdir vegna notkunar í atvinnuskyni (t.d. hótel- eða veitingarekstri).