Mirka 1230 L - Aspirateur de table

1230 L - Aspirateur de table Mirka - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis 1230 L Mirka á PDF sniði.

📄 306 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Mirka 1230 L - page 130
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um 1230 L Mirka

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Tölvupósturinn er áfram einkamál: hann er aðeins notaður til að tilkynna þér ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Aspirateur de table á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína 1230 L - Mirka og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. 1230 L vörumerkisins Mirka.

NOTENDAHANDBÓK 1230 L Mirka

lýsír því yfír á eigin ábyrgð að vörurnar Mirka" vörurnar (skráðar hér að neðan og sjá töflu um „Tæknilegar upplýsingar" fyrir hverja einstaka gerð), sem yfirlýsing þessi varðar, uppfylla kröfur þær sem gerðar eru í eftirfarandi stöölum eða öðrum stöðlunargögnum: EN 60335-1:2012 + A13:2017, EN 60335-2-69:2012, EN 55014-1:2017 + A11:2020, EN 55014-2:2015, EN 61000-3-2:2014, EN 61000-3-3:2013, EN IEC 63000:2018 í samræmi við reglugerðirnar 2006/42/EC, 2014/30/EU, 2011/65/EU + (ESB) 2015/863.

Vörur: Mirka* rykhreinsibúnaður 1230 L - PC & AFC

Jeppo 15.02.2023

Útgáfustaður og -dagsetning

Mirka 1230 L - 1

Mirka 1230 L - 2

Framleiðandi / Birgir

Mirka Ltd

66850 Jeppo, Finnlandi

Sími +358 20 760 2111

Fax +358 20 760 2290

www.mirka.comStefan Sjöberg, forstjóriFyrirtaeki

Mirka 1230 L - 3

Pýðing á upprunalegum leiðbeiningum. Við áskiljum okkur rétt til pess að gera breytingar á handbók pessari án tilkynningar fyrir fram.

Mikilvægt

Lestu pessar leiðbeiningar um öryggi og notkun vandlega áður en tækið er búið til notkunar, tekið í notkun eða við haldið. Geymdu pessar leiðbeiningar á öruggum stað með góðu aðgengi. Lestu pær og farðu eftir lögum og reglum í landi og héraði.

Persónuhlífar sem krafist er

Mirka 1230 L - Persónuhlífar sem krafist er - 1
öryggishanska

Mirka 1230 L - Persónuhlífar sem krafist er - 2
Notaðu augnhlífarNotaðu

Mirka 1230 L - Persónuhlífar sem krafist er - 3
Notaðu öryggisgleraugu

Mirka 1230 L - Persónuhlífar sem krafist er - 4
Notaðu grímu/ andlitshlíf

Tákn

Mirka 1230 L - Tákn - 1Uppfyllir kröfur í viðeigandi ESB-stöðlum
Mirka 1230 L - Tákn - 2Uppfyllir ástralska og nýsjá lenska RCM-samræmingarkröfu
Mirka 1230 L - Tákn - 3Uppfyllir Bretland samræmingarkröfur
Mirka 1230 L - Tákn - 4Uppfyllir úkraínskar samræmingarkröfur
Mirka 1230 L - Tákn - 5Lestu handbók notanda

Mirka 1230 L - Tákn - 6

Viðvörun: Mögulega hættulegar aðstæður sem orsakað gætu dauðsfall eða alvarleg meiðsli og/eða eignatjón. Aðgæsla: Mögulega hættulegar aðstæður sem orsakað gætu minniháttar eða meiðsli og/eða eignatjón í meðallagi.

Pættir notkunar

Meðferð1

Staða fylgihluta2

Geymisfesting3

Hjól4

Geymir5

Inntaksfestingar6

Rofi7

Hraðastýring8

Innstunga fyrir raftæki9

10 Síuhreinsihnappur (Push & Clean (ýta og hreinsa))

Slöngukrókur11

Skyndileiðarvísir með skýringarmyndum

Skyndileðarvísinum með skýringarmyndum er ætlað að nýtast við ræsingu tækisins, notkun pess og geymslu. Leiðarvísinum er skipt í fjóra kafla með ákveðnum myndtáknum:

Áður en hafist er handa

LESTU LEIDBEININGAR UM NOTKUN ÁDUR EN NOTKUN HEFST!

Stjórnun / Notkun

A PC – Push & Clean síuhreinsikerfi

AFC –Sjálfvirkt síuhreinsikerfiB

C Geymsla fyrir rafleiðslu og slöngu

D Festing fyrir hús

Tengingar rafmagnstækja

Millistykki rafverkfærisE

Viðhald

F Að skipta um síupoka

G Að skipta um síu

H Að hreinsa vélarkælissíu

I Að hreinsa pakkningu og flot

Almenn lýsing og ætluð notkun tækisins

Pessi færanlegi rykhreinsibúnaður er hannaður, próaður og vandlega prófaður með það fyrir augum að starfa á skilvirkan og öruggan hátt, sé honum rétt við haldið og hann notaður í samræmi við eftirfarandi leiðbeiningar.

Tækið hentar til notkunar í iðnaði, til dæmis í verksmiðjum, á byggingasvæðum og á verkstæðum. Peir einir geta komið í veg fyrir slys við notkun tækisins sem með það vinna.

LESTU ALLAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR OG FARĐU EFTIR PEIM

Litið er á alla aðra notkun tækisins sem ranga notkun. Framleiðandinn ber enga ábyrgð á neinu því tjóni sem leitt gæti af þannig notkun. Notandinn einn ber alla ábyrgð á þannig notkun. Með viðeigandi notkun er einnig átt við viðeigandi starfrækslu, þjónustu og viðgerðir eins og lýst er að framleiðanda.

Eftirfarandi gildir um tæki í Rykflokki L:

Tækið er ætlað til pess að soga upp óeldfimt Þurrt ryk og vökva, hættulegt ryk með OEL-gildi (viðmiðunarmörk fyrir áhrif í starfi) > 1 mg/m3.

Mirka 1230 L - Almenn lýsing og ætluð notkun tækisins - 1

text_image L L

Viðvörunarmiði fyrir tæki í Rykflokki L

Rykflokkur L (IEC 60335-2-69). Ryk í þessum flokki er með OEL-gildi > 1 mg/m3. Síuefnið hefur verið prófað fyrir vélar sem ætlaðar eru í Rykflokk L. Hámarks gegndræpi er 1% og ekki eru gerðar neinar sérstakar kröfur um förgun.

Sé útblásturslofti skilað inn í rýmið, gættu þess að rykhreinsibúnaðurinn hafi fullnægjandi loftskiptistig L. Kynntu þér reglugerðir í landi pínu fyrir notkun.

Tæknilýsing

Dust Extractor 1230 LPC/AFC - EUPC/AFC - UKAFC - CH/AU/NZPC - AU/NZ
Rafspenna220 –240 VAC220 –240 VAC220 –240 VAC220 –240 VAC
Orka1200 W1200 W1200 W1200 W
Samtals hámarks álag á innstungur raftækja2400 W1750 W1100 W1100 W
Heildarálag rafkerfis3600 W2950 W2300 W2300 W
Veitutíðni50–60Hz50–60Hz50–60Hz50–60Hz
10101316Öryggi
IPX4IPX4IPX4IPX4Varnarstig (raki, ryk)
Varnarflokkur (rafrænn)III
Hám. loftflæði (l/s)*75 l/s75 l/s75 l/s75 l/s
Hám. loftflæði (m3/klst.)*270 m3/h270 m3/h270 m3/h270 m3/h
Hám. loftflæði (CFM)*159 CFM159 CFM159 CFM159 CFM
Hám. lofttaemi (kPa)25 kPa25 kPa25 kPa25 kPa
Hám. lofttaemi (hPa)250 hPa250 hPa250 hPa250 hPa
Hám. lofttaemi (in _H_2O )100 in _H_2O 100 in _H_2O 100 in _H_2O 100 in _H_2O
Hljóðprýstingsstig LPA (IEC 60335-2-69)68 ±2 dB(A)68 ±2 dB(A)68 ±2 dB(A)68 ±2 dB(A)
Titringur ISO 5349 ah2,5 m/s22,5 m/s22,5 m/s22,5 m/s2
Pyngd14,5 kg14,5 kg14,5 kg14,5 kg
Yfirborðssvæði síu0,5 m20,5 m20,5 m20,5 m2
RykflokkurLLLL

* Mælt við geymi. Fara skal eftir gildandi reglum viðkomandi lands varðandi loftskiptahraða.

Mirka 1230 L - Almenn lýsing og ætluð notkun tækisins - 2

VIDVARANIR

  • Ekki nota tækið til að soga upp eldfima eða sprengifima vökva s.s. bensín, eða nota það þar sem þannig vökvar gætu verið.
  • Leiðbeina skal notendum á fullnægjandi hátt um notkun tækisins.
  • Aftengja skal tækið rafmagni með því að taka kló úr innstungu við þrif eða viðhaldsvinnu og þegar skipt er í íhluti eða verið að breyta tækinu til annars konar notkunar.
  • Notaðu bara aflúttakið á tækinu í tilgangi eins og lýst er í leiðbeiningunum.

  • Lestu vinsamlegast og farðu eftir öllum öryggisleiðbeiningum og aðgæslumerkingum fyrir notkun til þess að draga úr hættu á eldsvoða, rafhöggi eða meiðslum. Búnaðurinn er hannaður þannig að hann er öruggur, sé hann notaður til hreinsunar eins og til er ætlast. Verði einhverjar skemmdir á rafmagns- eða vélbúnaði, ber að láta gera við tækið og/eða fylgihlut þess á til þess bæru þjónustuverkstæði eða hjá framleiðanda fyrir notkun til þess að komast hjá frekari skemmdum á tækinu eða meiðslum notanda.

  • Ekki nota tækið með skemmdri leiðslu eða kló. Taktu í klóna, ekki leiðsluna, pegar tækið er tekið úr sambandi. Snertu hvorki kló né tæki með yotum höndum. Slökktu á öllum stiórnbúnaði áður en tækið er tekið úr sambandi.
  • Ekki toga í tækið eða bera það á rafmagnsleiðslunni, nota hana sem handfang, loka dyrum á hana eða láta hana liggja um skarpar brúnir eða horn. Ekki láta vélina fara yfir leiðsluna. Haltu leiðslunni frá heitu yfirborði.
  • Haltu hári, lausum fatnaði, fingrum og öllum líkamshlutum frá opum og hreyfanlegum hlutum. Ekki stinga neinu inn í opin eða nota tækið með tepptu opi. Gættu pess að hvorki ryk, ló, hár né annað sem dregið gæti úr loftflæði teppi op tækisins.
  • Farǒu sérlega varlega viǒ hreingerningar á stigum.
  • Vinni tækið ekki rétt eða ef pað hefur fallið niður, skemmst, verið skilið eftir utanhúss eða lent í vatni skal farið með pað á biónustumiðstöð eða til selianda.
  • Ekki má nota tækið sem vatnsdælu. Tækið er ætlað til bess að ryksuga blöndu lofts og vatns.
  • Settu tækið ísamband við rétt iarðtengda innstungu. Aflúttakið og framlengingarleiðsla verða að hafa virkan varnarleiðara
    • Tryggǒu góða loftræstingu á vinnustað.
  • Ekki nota tækið sem stiga eða tröppu. Tækið getur oltið og orðið fyrir tjóni.
  • Notkun tækisins utanhúss verður að vera takmörkuð og aðeins stöku sinnum.
  • Rafmagnsleiðslan á ekki komast í snertingu við burstana sem snúast.
  • Rafmagnsleiðslan má ekki komast í snertingu við hluta sem snúast
  • Ekki er ætlast til pess að fólk (börn par með talin) noti petta tæki, búi viðkomandi við skerta líkamlega, skyn-eða andlega getu eða skorti revnslu og bekkingu.
  • Börnum skal leiðbeint með að lejka sér ekki með tækið.
  • Tækið er ætlað til notkunar í atvinnuskyni, til dæmis á hôtelum, í skólum, sjúkrahúsum, verksmiðjum og verslunum, á skrifstofum og í útleigufvriirtækium.
  • Ekki yfirgefa tækið begar það er í sambandi við rafmagn. Taktu tækið úr sambandi við rafmagn utan notkunar og fyrir viðhaldsvinnu.
  • Ekki nota tækið við lágt hitastig utanhúss.
  • Ekki nota nema með síum ásettum.
  • Berist froða eða vökyi frá tækinu, skal slökkt á bví án tafar.

Hættulegt ryk

Pað getur leitt til alvarlegra og jafnvel lífshættulegra meiðsla að ryksuga hættuleg efni. Vélin má ekki soga upp eftirtalin efni:

  • Heit efni (brennandi sigarettur, heita ösku o.s.fry.)
  • Eldfim, sprengifim eða tærandi efni (t.d. bensín, levsiefni, sýrur, alkalíefni o.s.fry.)
    • Eldfimt, sprengifimt ryk (t.d. magnesíum- eða álryk o.s.fry.)

Rafraenir ihlutir

Mirka 1230 L - Rafraenir ihlutir - 1

Hætta: Í efri hluta tækisins er að finna íhluti með spennu. Séu íhlutir með spennu snertir, getur það leitt til alvarlegra og jafnvel lífshættulegra meiðsla. Aldrei má úða vatni á efri hluta tækisins.

Mirka 1230 L - Rafraenir ihlutir - 2

Hætta: Rafhögg vegna gallaðrar rafmagnsleiðslu. Pað getur leitt til alvarlegra og jafnvel lífshættulegra meiðsla að snerta gallaða rafmagnsleiðslu.

  • Ekki skaða rafmagnsleiðsluna (t.d. með bví að aka yfir hana, toga í eða merja).
  • Skoðaðu reglubundið hvort rafmagnsleiðslan sé skemmd eða beri ummerki um slit.
  • Sé rafmagnsleiðsla skemmd, verður dreifingaraðili með umboð frá Mirka eða annar jafn hæfur einstaklingur að skipta um hana til bess að forðast hættu.
  • Notandi ætti undir enqum kringumstæðum að vefia rafmagnsleiðslunni um fingur sína eða aðra líkamshluta.

Í sprengifimu eða eldfimu andrúmslofti

Mirka 1230 L - Í sprengifimu eða eldfimu andrúmslofti - 1

Aðgæsla: Tækið hentar ekki til notkunar í sprengifimu eða eldfimu andrúmslofti eða par sem pannig andrúmsloft getur myndast af rokgjörnum vökva eða eldfimu gasi eða gufu.

Viðbótarviðvaranir

Ryk sem myndast pegar pússað er, sagað, malað, borað eða við önnur byggingastörf unnin með vélum inniheldur stundum kemísk efni sem vitað er að geta valdið krabbameini, fæðingargöllum eða öðrum vanda við æxlun.

  • Blý úr málningu á blýgrunni.
  • Kísilkristalla úr múrsteinum, sementi og öðrum steinsmídavörum.
  • Arsenik og króm í timbri meðhöndluðu með kemískum efnum.

Hættan af váhrifum þessara efna er breytileg og ræðst af því hve oft þannig störf eru unnin. Best er að vinna á vel loftræstu svæði til að draga sem mest úr váhrifum þessara kemísku efna ásamt því að nota viðurkenndan öryggisbúnað, svo sem rykgrímur sem sérhannaðar eru til þess að sía frá smásæjar öreindir.

Rafmagn

Raftenging

  • Mælt er með því að tækið sé tengt við rafmagn um lekastraumsrofa / mismunastraumsrofa.
  • Skipuleggðu rafmagnstengingu (innstungur, klær og tengibúnað) og komdu framlengingarleiðslu pannig fyrir að verndarflokki sé við haldið.
  • Tengibúnaður og tengingar rafmagnsleiðslu og framlengingarleiðslu verða að vera vatnspéttar.

Framlengingarsnúra

  • Notaðu eingöngu framlengingarleiðslu sem er í samræmi við tæknilýsingar framleiðanda eða hágæðaleiðslur.
  • Ef pú notar framlengingarleiðslu, athugaðu lágmarks pvermál leiðslunnar:
Lengd rafmagnsleiðsluÞversnið < 16 AÞversnið < 25 A
≤ 20 m1,5 mm22,5 mm2
20–50 m2,5 mm24,0 mm2

Ábyrgð

Hvað ábyrgðina varðar gilda almennar viðskiptareglur okkar. Framleiðandinn er undanskilinn allri ábyrgð vegna tjóns sem rekja má til óheimilla breytinga á búnaðinum, notkunar á röngum burstum eða notkunar tækisins á neinn annan hátt en þann sem það er ætlað til.

Stjórnun / Notkun

Mirka 1230 L - Stjórnun / Notkun - 1

Aðgæsla: Skemmdir vegna óstöðugrar spennu Tækið getur orðið fyrir skemmdum af tengingu við rafkerfi með óstöðuga spennu.

- Gakktu úr skugga um að tilgreind spenna á merkiplötu sé í samræmi við spennu í rafkerfinu.

Að gangsetja og nota tækið

Kannaðu hvort slökkt sé á rafmagnsrofa (í stöðu 0). Kannaðu hvort réttar síur séu upp settar í tækinu. Tengdu svo sogslönguna við soginntakið á tækinu með því að þrýsta henni þétt inn í þar til hún situr föst í inntakinu. Sé tækið notað til rykhreinsunar með tæki sem framleiðir ryk, skal tengja það við enda sogslöngunnar með réttu millistykki. Stingdu klónni í samband við viðeigandi rafmagnsinnstungu. Stilltu rafmagnsrofann á stöðu l til þess að ræsa vélina.

Mirka 1230 L - Að gangsetja og nota tækið - 1

text_image 0 1

Stilltu á I: Að virkja rykhreinsibúnaðinn.

Snúðu réttsælis til að stjórna hraða.

Stilltu á 0: Rykhreinsibúnaðurinn stansar.

Stilla á slípivél: Virkjaðu sjálfvirka ræsingu (Auto-On/Off).

Notkun – snúðu rangsælis til pess að stjórna hraða.

Mirka 1230 L - Að gangsetja og nota tækið - 2

text_image Stilltu á I: Að virkja rykhreinsibúnaðinn. Stilltu á ♦/0: Rykhreinsibúnaðurinn stansar. Stöðug orka í innstungu. Stilltu á I: Virkjaðu Auto-On/Off virknina. Stilltu á I + AFC Off: Ræsa rykhreinsibúnaðinn með óvirkri sjálfvirkri síuhreinsun (AFC – Auto Filter Cleaning). Stilla á slípivél + Off: Ræsa Auto-On/Off með óvirkri sjálfvirkri síuhreinsun. Hraðastilling með sérstökum snúningstakka.

Sjálfvirkt On / Off (á/af) úttak fyrir rafmagnsverkfæri

Mirka 1230 L - Sjálfvirkt On / Off (á/af) úttak fyrir rafmagnsverkfæri - 1

Aðgæsla: Innstunga fyrir raftæki

Innstungan fyrir raftæki er hönnuð fyrir lausan rafmagnsbúnað, sjá tæknilegar upplýsingar.

  • Áður en annað tæki er sett í samband skaltu alltaf slökkva á bæði vélinni og tækinu sem tengja á.
  • Lestu leiðbeiningar um notkun tækisins sem tengja á og farðu eftir beim öryggisleiðbeiningum sem þar er að finna.

Tækið er búið jarðtengdri innstungu fyrir raftæki. Par má tengja við laust rafverkfæri. Rafmagn er sitengt í innstungunni

pegar rofinn er stilltur á stöðuna ♦/0, p.e. að hægt er að nota tækið sem framlengingarsnúru.

Ástralía: Innstungan er með 5 ampera hitavara til að vernda tækið gegn yfirálagi. Sé raforkunotkun tækisins of mikil, virkjast hitavarinn og lokar á rafmagnið í innstungunni. Hægt er að afvirkja hitavarann á ný með pví að þrýsta á hnappinn.

Í stöðunni er hægt að kveikja og slökkva á tækinu frá tengda rafverkfærinu. Tækið tekur óhreinindi umsvifalaust frá upptökum sínum. Framfylgja ætti reglum og tengja eingöngu við tækið rafverkfæri sem framleiða ryk. Hámarks orkunotkun tengds rafverkfæris er tilgreind í kaflanum um Tæknilýsingar.

Áður en rofinn er settur í stöðuna ber að tryggja að slökkt sé á verkfærinu sem tengt er við úttak tækisins.

Push & Clean

„PC“ tækið er búið hálfsjálfvirku Push & Clean síuhreinsikerfi. Setja parf síuhreinsikerfið í gang pegar draga tekur úr sogkrafti tækisins. Reglubundin notkun síuhreinsikerfisins viðheldur öflugum sogkrafti og lengir endingartíma síunnar. Nánari upplýsingar má finna í skyndileiðarvísinum.

AFC -Sjálfvirk síuhreinsun

„AFC“-tækið er búið sjálfvirkri Auto Filter Cleaning síuhreinsun. Sjálfvirkt hreinsiferli gengur oft og reglubundið við notkun til þess að tryggja að sogvirkni búnaðarins sé alltaf sem best.

Ef sogkraftur minnkar eða við notkun í mjög miklu ryki er mælt með handvirkri síuhreinsun:

  • Slökktu á tækinu.
  • Lokaðu fyrir túðurnar eða sogop með lófanum.
  • Stilltu rofann á „l“ og láttu tækið ganga á fullum hraða í um pað bil 10 sekúndur á meðan lokað er fyrir sogopið.

Sé sogkraftur enn of lítill, skaltu taka síuna úr og skrapa úr henni óhreinindin eða skipta um síu. Mælt er með því að slökkva á Auto Filter Cleaning síuhreinsuninni við ákveðnar notkunaraðstæður, t.d. við votsogun.

Andrafstöötenging

Mirka 1230 L - Andrafstöötenging - 1

Aðgæsla: Tækið er búið andrafstöðukerfi til þess að afhlaða allt stöðurafmagn sem gæti myndast við rykhreinsunina.

Andrafstöðukerfið er að finna framan á vélarhlífinni og það myndar jarðtengingu við inngangsbúnað geymsluhólfsins. Mælt er með því að nota rafleiðandi eða andrafstöðu sogslöngu til þess að kerfið virki rétt. Pegar valkvæðum einnota poka er komið fyrir skal þess gætt að rafandstöðutenging haldist.

Vélarkælisía

Tækið er búið vélarkælisíu til pess að vernda rafbúnað pess og vél. Hreinsaðu vélkælisíuna reglubundið.

Mælt er með því að búa tækið viðbótar PET vélkælisíu þar sem mjög mikil þéttni er af finu ryki í lofti til þess að koma í veg fyrir að ryk safnist upp í loftrásum og vél tækisins. Hafðu samband við umboðsmanninn á þínum stað.

Mirka 1230 L - Vélarkælisía - 1

Aðgæsla: Sé vélkælisían stífluð af ryki gæti yfirálagsvernd vélarinnar slökt á tækinu. Ef það gerist skaltu slökkva á tækinu, hreinsa vélkælisíuna og leyfa því að kólna í um það bil 5 mínútur.

Votsog

Mirka 1230 L - Votsog - 1

Aðgæsla: Tækið er búið vatnstakmörkunarkerfi sem slekkur á vélinni þegar hámarkinu er náð. Ef þetta gerist skaltu slökkva á tækinu. Taktu tækið úr sambandi við rafmagn og tæmdu geyminn. Notaðu tækið aldrei á vökva nema vatnstakmörkunarkerfið og sía séu á sínum stað.

Að sjúga upp vökva

  • Ekki sjúga upp eldfima vökva.
  • Ef froða myndast, skaltu hætta strax og tæma geyminn.
  • Hreinsaðu vatnstakmörkunarkerfið reglubundið og leitaðu að ummerkjum um skemmdir.
  • Purrkaðu röku síuna og innri hluta vökvageymisins fyrir geymslu.

- Fjarlægðu alltaf síupokann/einnota pokann og gakktu úr skugga um að vatnstakmörkunarkerfið vinni rétt áður en byrjað er að soga upp vökva.

Taktu vélina úr sambandi áður en þú tæmir geyminn. Taktu slönguna úr soginntakinu með því að kippa henni frá. Losaðu geymisklemmurnar með því að toga þær út þannig að vélarhlífin opnist. Lyftu vélarhlífinni af geyminum. Tæmdu alltaf geyminn og hreinsaðu bæði hann og vatnstakmörkunarkerfið eftir vökvasog.

Tæmdu geyminn með því að halla honum aftur á bak eða til hliðar og hella vökvanum ofan í niðurfall eða sambærilegt. Komdu vélarhlífinni fyrir ofan á geyminum. Festu vélarhlífina með geymisklemmunum. Skyndilegar hreyfingar geta ræst búnaðinn sem stýrir vatnstakmörkuninni. Ef það gerist, skaltu slökkva á tækinu og bíða í 3 sekúndur með að endurræsa stýribúnaðinn.

Haltu svo áfram að nota tækið.

Purrsog

Mirka 1230 L - Purrsog - 1

Aðgæsla: Að sjúga upp spilliefni hættuleg umhverfinu. Hægt er að sjúga upp spilliefni hættuleg umhverfinu. - Farga skal óhreinindunum í samræmi við lög og reglugerðir.

Taktu vélina úr sambandi áður en hún er tæmd eftir þurrt sog. Losaðu geymisklemmurnar með því að toga þær út þannig að vélarhlífin opnist. Lyftu vélarhlífinni af geyminum.

Sía: Athugaðu síurnar. Pú getur hrist síuna, burstað hana eða þvegið til þess að hreinsa hana. Bíddu þar til sían er þurr áður en þú hefst handa á ný með þurrt sog.

Rykpoki: Athugaðu pokann til þess að magnið í honum. Skiptu um rykpoka ef með þarf. Fjarlægðu notaða pokann. Nýja pokanum erkomíð fyrir með því að renna pappaspjaldinu með gúmmíhimnunni inn í ryksuguinntakinu. Gakktu úr skugga um að gúmmíhimnan fari fram hjá upplyfta hluta ryksuguinntaksins.

Eftir tæmingu: Lokaðu vélarhlífinni á geyminum og festu hana með geymisklemmunum. Sjúgðu aldrei upp þurrt efni nema hafa síu í tækinu. Sogvirkni tækisins er háð stærð og gæðum síu og rykpoka. Pess vegna þættir þú eingöngu að nota upprunalega síu og rykpoka.

Að aflokinni notkun tækisins

Taktu tækið úr sambandi við rafmagn pegar það er ekki í notkun. Gerðu upp rafmagnsleiðsluna út frá tækinu. Hægt er að vefja leiðslunni utan um vélarhlífina eða geyminn, hengja hana á meðfylgjandi krók eða festa hana á annan hátt.

Flutningur

  • Lokaðu öllum geymisfestingum áður en tækið er flutt.
  • Ekki má halla tækinu ef pað er vökvi í geyminum.
  • Ekki má nota kranakrók til pess að lyfta tækinu.
  • Ekki má lyfta tækinu á handfanginu.

Geymsla

Mirka 1230 L - Geymsla - 1

Aðgæsla: Geymdu tækið á Þurrum stað þar sem hvorki rignir né frýs. Aðeins má geyma tækið innanhúss.

Sambyggðar festingar er að finna á hliðum tækisins þar sem hægt er að festa fylgihluti eða verkfæri með ólum eða á annan hátt fyrir pægilegan flutning eða geymslu. Aftan á tækinu er að finna sveigjanlega ól og króka fyrir sogslöngun eða rafmagnsleiðslu. Nánari upplýsingar er að finna í skyndileiðarvísinum.

Hægt er að koma fyrir ofan á tækinu valkvæðum festibúnaði til pess að festa tveggja eða fjögurra punkta geymslukassa. Taktu tækið úr sambandi við rafmagn áður en festibúnaðinum er komið fyrir.

Mirka 1230 L - Geymsla - 2

Aðgæsla: Ekki lyfta tækinu eða festibúnaðinum nema ganga fyrst úr skugga um að geymslukassanum sé tryggilega fyrir komið. Athugaðu þyngd og jafnvægispunkt tækisins, sé það búið geymslukassa. Hámarkspyngd geymslukassa er 30 kg.

Viðhald

Reglubundin pjónusta og skoðun

Sérþjálfað fagfólk skal annast reglubundna þjónustu og skoðun rykhreinsibúnaðarins í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Einkum þarf reglubundið að framkvæma rafmagnsprófanir á jarðtengingu, einangrunarviðnámi og ástandi rafmagnsleiðslunnar.

Sé um einhverja galla að ræða, VERĐUR að hætta notkun rykhreinsibúnaðarins og láta viðurkenndan viðgerðarmann skoða hann vandlega og gera við. Að minnsta kosti einu sinni á ári skal tæknimaður eða sérþjálfaður starfsmaður Mirka framkvæma tækniskoðun, m.a. á síum, loftpéttni og stýribúnaði.

Viðhald

Taktu tækið úr sambandi við rafmagn áður en viðhaldsvinna hefst. Gættu pess að tilgreind tíðni og spenna á merkiplötu sé í samræmi við kerfisspennu áður en rykhreinsibúnaðurinn er tekinn í notkun.

Rykhreinsibúnaðurinn er hannaður fyrir mikið og samfellt vinnuálag. Endurnýja ætti ryksíu á grundvelli fjölda klukkustunda í notkun. Strjúktu óhreinindi af rykhreinsibúnaðinum með Þurrum klúti eða klúti rökum af vatni.

Farǒu pannig með rykhreinsibúnaðinn við allt viðhald og hreinsun að hvorki viðhaldsmönnum né öðru starfsliði sé stefnt í hættu. Á viðhaldssvæðinu:

  • Notaðu loftræstingu með skyldubundinni síun.
  • Notaðu persónuhlífar.
  • Hreinsaðu viðhaldssvæðið pannig að engin hættuleg efni geti komist í umhverfið.

Við viðhald og viðgerðir verður öllum menguðum ihlutum, sem ekki er hægt að hreinsa á fullnægjandi hátt, að vera:

  • pakkað inn í vel einangraða poka.
  • fargað í samræmi við gildandi reglugerðir um förgun þannig úrgangs.

Sé rafmagnsleiðslan skemmd, verður framleiðandinn, þjónustufulltrúi hans eða annar jafn hæfur einstaklingur að skipta um hana til þess að forðast hættu.

Hafǒu samband við umboðsmann eða þjónustufulltrúa Mirka í þínu landi til að afla upplýsinga um viðhaldspjónustu. Sjá bakhlið skjalsins.

Séu ekki notaðir upprunalegir vara- og fylgihlutir, getur pað dregið úr öryggi og/eða virkni rykhreinsibúnaðarins. Notaðu eingöngu upprunalega varahluti og fylgihluti frá Mirka. Hér að ofan neðan eru tilgreindir varahlutir sem haft geta áhrif á heilbrigði og öryggi notanda og/eða virkni rykhreinsibúnaðarins.

Mirka 1230 L - Viðhald - 1

Önnur bjónusta

Öll pjónusta við tækið skal vera i höndum til pess pjálfaðra starfsmanna. Öll pjónusta verður að vera framkvæmd á vottaðri pjónustumiðstöð Mirka til að halda tækinu í ábyrgð og tryggja hámarksöryggi pess og -virkni. Finna vottaða pjónustumiðstöð Mirka með pví að hafa samband við pjónustuver Mirka, Mirka-seljanda þinn eða fara á www.mirka.com

Gerðu úr sér gengin rafverkfæri ónothæf með pví að fjarlægja rafmagnsleiðsluna.

Farðu eftir gildandi reglum um förgun og endurnýtingu tækja sem lokið hafa hlutverki sínu, umbúða og fylgibúnaðar.

Gildir aðeins í ESB: Ekki farga raftækjabúnaði með almennu heimilissorpi. Samkvæmt evrópskum tilskipunum um raf- og rafeindabúnaðarúrgang og framkvæmd peirra landslögum samkvæmt, ber að safna sérstaklega saman rafmagnstækjum sem lokið hafa hlutverki sínu og flytja pau á umhverfislega fullnægjandi endurnýtingarstað.

Nánari upplýsingar um REACH, RoHS og félagslega ábyrgð okkar má finna á www.mirka.com

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Mirka

Líkan : 1230 L

Flokkur : Aspirateur de table