MO20E1T4 - Four à micro-ondes GORENJE - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis MO20E1T4 GORENJE á PDF sniði.

GORENJE MO20E1T4 - örbylgjuofn
📄 242 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice GORENJE MO20E1T4 - page 89
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um MO20E1T4 GORENJE

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Four à micro-ondes á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína MO20E1T4 - GORENJE og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. MO20E1T4 vörumerkisins GORENJE.

NOTENDAHANDBÓK MO20E1T4 GORENJE

Við þökkum þér kærlega fyrir kaupin. Við trúum því að brátt komi í ljós að þú getir svo sannarlega reitt þig á vörurnar okkar. Til að auðvelda notkun þessa tækis létum við fylgja með þessar ítarlegu notendahandbók.

Leiðbeiningarnar ættu að hjálpa þér að læra á nýja tækið þitt. Vinsamlegast lestu þær vandlega áður en þú notar tækið í fyrsta sinn.

Best er að ganga alltaf úr skugga um að tækið hafi verið afhent óskemmt. Ef vart verður við skemmdir eftir flutninga skal hafa samband við sölufulltrúa eða vöruhúsið þaðan sem varan var send. Símanúmerið er að finna á kvittuninni eða afhendingarskýrslunni.

Við vonum að þú njótir nýja heimilistækisins.

GORENJE MO20E1T4 - 1

Tækið sem er ætlað til heimilisnota, til að hita mat og drykk með rafsegulorku og er aðeins ætlað til notkunar innanhúss.

LEIÐBEININGAR FYRIR NOTKUN

Þessar leiðbeiningar eru ætlaðar notandanum. Þær lýsa eldavélinni og hvernig á að nota hana. Þær eiga einnig við um mismunandi gerðir annarra tækja og því kann að vera að þar sé að finna einhverjar lýsingar á aðgerðunum sem eiga hugsanlega ekki við um tækið þitt.

VARÚÐARRÁÐSTAFANIR TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR HUGSANLEGA ÚTSETNINGU FYRIR ÓHÓFLEGU MAGNI AF ÖRBYLGJUM

  1. Ekki reyna að nota þennan örbylgjuofn með hurðina opna þar sem það getur leitt til skaðlegrar útsetningar fyrir örbylgjum. Mikilvægt er að rjúfa hvorki né eiga við öryggislæsingar hurðar.
  2. Ekki setja neitt á milli framhliðar ofnsins og hurðarinnar eða láta óhreinindi eða hreinsiefni safnast fyrir á yfirborði þéttinga.
  3. AÐVÖRUN: Ef hurðin eða hurðarpéttingarnar eru skemmdar má ekki nota ofninn fyrr en hæfur aðili hefur gert við hann.

VIÐBÓT

Ef viðhald á tækinu er ófullnægjandi gæti það skaðað yfirborð tækisins og haft áhrif á endingartíma tækisins og leitt til hættulegra aðstæðna.

Tæknilýsingar

Gerð....MO20E1T4 Málspenna 230V\~ 50Hz Málinngangsafl (örbylgjuofn).... 1050W Málútgangsafl (örbylgjuofn) 700 W Rúmtak ofns....20 L Þvermál snúningsdisks ...... ∅ 255 mm Ytra mál....439.5x340x258 mm Nettóþyngd U.þ.b. 10,3 kg

Vöruupplýsingar fyrir orkunotkun og hámarkstíma til að ná viðeigandi lágstyrksstillingu.

Slökkt stilling 0,3 W

AÐVÖRUN

Fylgdu eftirfarandi varúðarráðstöfunum til að draga úr eldhættu, raflosti, meiðslum á fólki eða óhóflegri örbylgjugeislun við notkun tækisins, þar með talið:

  • Lesið og fylgið sérstaklega: „VARÚÐARRÁÐSTAFANIR TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR HUGSANLEGA ÚTSETNINGU FYRIR ÓHÓFLEGA MIKLU MAGNI AF ÖRBYLGJUM“.

- Börn 8 ára og eldri og einstaklingar með skerta líkamlega, skynræna eða andlega getu eða skerta

reynslu og þekkingu á búnaði geta notað þetta tæki ef þau hafa fengið eftirlit eða leiðbeiningar um hvernig eigi að nota tækið á öruggan hátt og átta sig á hættunum sem fylgja notkun þess.

Börn ættu ekki að leika sér með tækið. Börn ættu ekki að framkvæma þrif og notendaviðhald nema þau séu eldri en 8 ára og undir eftirliti. Börnum yngri en 8 ára skal haldið frá nema undir stöðugu eftirliti.

- Geymið tækið og snúruna þar sem börn yngri en 8 ára ná ekki til.

- Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður endurnýjun hennar að vera í höndum framleiðanda, þjónustuaðila eða álíka fagaðila til að koma í veg fyrir hættu. Fyrir tæki með festingu af gerð Y)

- AÐVÖRUN: Gakktu úr skugga um að slökkt sé á tækinu áður en þú skiptir um ljós til að koma í veg fyrir möguleikann á raflosti.

  • AÐVÖRUN: Það er hættulegt fyrir aðra en hæfa aðila að framkvæma viðhald eða viðgerðir sem fela í sér að fjarlægja hlíf sem veitir vörn gegn örbylgjum;
  • AÐVÖRUN: Vökva og önnur matvæli má ekki hita í lokuðum ílátum þar sem hætta er á að þau springi.
  • Þegar matur er hitaður í plast- eða pappírsílátum skal hafa auga með ofninum vegna hættu á eldsvoða;
  • Notið aðeins áhöld sem má nota í örbylgjuofnum.
  • Ef reykur kemur frá tækinu, skaltu slökkva á eða taka það úr sambandi og halda hurðinni lokaðri til að kæfa allan eld.
  • Ef drykkir eru hitaðir í örbylgjuofni getur það valdið seinkaðri sprengisuðu, því verður að gæta varúðar við meðhöndlun ílátsins.
  • Æskilegt er að hræra eða hrista innihaldið í pelum og barnamatskrukkum og kanna hitastigið áður en þeirra er neytt til að valda ekki brunasárum.
  • Egg í skel og heil harðsoðin egg ætti ekki að hita í örbylgjuofnum þar sem þau geta sprungið, jafnvel eftir að örbylgjuhitun er lokið.
  • Ofninn ætti að hreinsa reglulega og fjarlægja allar matarleifar.
  • Ef ofninum er ekki haldið hreinum gæti það leitt til þess að yfirborðið versni sem gæti haft neikvæð áhrif á líftíma tækisins og hugsanlega leitt til þess að hættulegar aðstæður myndist.
  • Ekki má setja heimilistækið á bak við skrauthurð til að koma í veg fyrir ofhitnun tækisins. (Petta á ekki við um heimilistæki með skrauthurð).
  • Notaðu aðeins hitanemann sem mælt er með að notaður sé fyrir þennan ofn (fyrir ofna þar sem hægt er að nota hitaskynjunarnema).
  • Örbylgjuofninn má ekki setja í skáp nema hann hafi verið prófaður til notkunar í skáp.
  • Örbylgjuofninn verður að nota með skrauthurðina opna (fyrir örbylgjuofna með skrauthurð).
  • Þetta tæki er ætlað til notkunar á heimilum og í svipuðum aðstæðum, svo sem:
  • eldhúsaðstöðu starfsfólks í verslunum, skrifstofum og annars staðar vinnustöðum.
  • hjá gestum á hótelum, vegahótelum og öðrum tegundum gististaða;
  • bóndabæjum;
  • gistiheimilum.
  • Örbylgjuofninn er ætlaður til að hita mat og drykk. Sé hann notaður til að þurrka mat eða fatnað og við að hita hitapúða, inniskó, svampa, raka klúta eða álíka getur það valdið slysahættu, íkveikju eða eldhættu.
  • Ekki er heimilt að nota málmílát fyrir mat og drykk þegar verið er að hita mat í örbylgjuofni.
  • Ekki þrífa tækið með gufuhreinsi.
  • Tækið er ætlað til frístandandi notkunar.
  • Aftanverður flötur tækisins þarf að liggja við vegg.

LESTU VANDLEGA OG HAFÐU TIL HLIÐSJÓNAR Í FRAMTÍÐINNI

HÆTTA

Hætta á raflosti

Ákveðnir innri íhlutir geta valdið alvarlegu líkamstjóni eða dauða. Ekki taka þetta tæki í sundur.

AÐVÖRUN

Hætta á raflosti: ef jarðtenging er meðhöndluð á rangan hátt getur það valdið raflosti. Ekki stinga í samband við innstungu fyrr en heimilistækið hefur verið rétt uppsett og jarðtengt.

Þetta heimilistæki þarf að vera jarðtengt. Ef um skammhlaup er að ræða dregur jarðtenging úr hættunni

á raflosti með því að leiða rafstrauminn frá tækinu. Þetta tæki er útbúið snúru með jarðtengdum vír og jarðtengdri kló. Stinga þarf klónni í samband við innstungu sem er rétt uppsett og jarðtengd.

Ráðfærðu þig við löggildan rafvirkja eða þjónustuaðila ef þú skilur ekki leiðbeiningar um jarðtengingu til fulls eða ef vafi leikur á því hvort tækið sé rétt jarðtengt.

Ef það þarf á framlengingarsnúru að halda skal aðeins nota framlengingarsnúru með þrjá víra.

  1. Stutt rafmagnssnúra fylgir með til að draga úr hættu af því að flækjast í eða detta um lengri snúrur.
  2. Ef löng snúra eða framlengingarsnúra er notuð:

1). Málspenna snúrusettsins eða framlengingarsnúrunnar ætti að vera að minnsta kosti jafnt og málgildi tækisins.

2). Framlengingarsnúran verður að vera jarðtengd snúra með þrjá víra.

3). Leggðu snúrunni þannig að hún hangi ekki yfir borðplötuna eða innréttingunni þar sem börn gætu togað í hana eða hrasað um hana.

Taktu tækið úr sambandi við rafmagn.

  • Hreinsaðu ofnhólfið með rökum klút eftir notkun.
  • Þrífðu fylgihlutina eins og venjulega í sápuvatni.
  • Rammi og innsigli hurðarinnar og aðliggjandi hluta þarf að þrífa vandlega með rökum klút þegar þeir verða óhreinir.
  • Ekki nota hörð slípiefni eða beittar málmsköfur til að hreinsa glerið á ofnhurðinni þar sem það getur rispað yfirborðið og getur leitt til þess að glerið brotni.
  • Ábending fyrir hreinsun---Til að auðvelda hreinsun á innra byrði ofnhólfsins sem eldaður matur getur komist í snertingu við má láta safa úr hálfri sítrónu í skál, bæta 300ml (1/2 pint) af vatni við safann og hita við 100% örbylgjustyrk í 10 mínútur. Strjúktu af innan úr örbylgjuofninum með mjúkum, þurrum klút.

AÐVÖRUN

Hætta á líkamstjóni

Það er hættulegt fyrir aðra en hæfa aðila að framkvæma viðhald eða viðgerðir sem fela í sér að fjarlægja hlíf sem veitir vörn gegn örbylgjum. Sjá leiðbeiningar um „Efni sem þú getur notað í örbylgjuofni eða á að forðast að láta í örbylgjuofn.“ Þetta gæti átt við ákveðin áhöld sem ekki eru úr málmi sem ekki er öruggt að nota í örbylgjuofni. Ef þú ert í vafa getur þú prófað áhaldið sem um ræðir í kjölfar aðgerðarinnar hér að neðan.

Áhaldsprófun:

  • Fylltu ílát sem má fara í örbylgjuofn með einum bolla (250 ml) af köldu vatni ásamt áhaldinu sem um ræðir.
  • Eldaðu við hámarksstyrk í 1 mínútu.
  • Þreifaðu gætilega á áhaldinu. Ef tóma áhaldið er heitt skaltu ekki nota það til að elda í örbylgjuofni.
  • Ekki nota eldunartíma sem er lengri en 1 mínúta.
ÁhöldAthugasemdir
OfnpotturFylgdu leiðbeiningum framleiðandans. Neðsti hluti ofnpottsins verður að vera að minnsta kosti 5 mm (3/16 tommur) fyrir ofan snúningsplötuna. Röng notkun getur valdið því að snúningsplatan brotni.
BorðbúnaðurEingöngu sem má fara í örbylgjuofn. Fylgdu leiðbeiningum framleiðanda. Ekki nota diska með sprungum eða sem kvarnast hefur upp úr.
GlerkrukkurAlltaf taka lokið af. Má eingöngu nota til að hita mat þar til hann er orðinn volgur. Flestar glerkrukkur eru ekki hitaþolnar og geta brotnað.
GlervörurAðeins hitaþolnar glervörur sem mega fara í ofn. Gakktu úr skugga um að það séu engir málmkantar. Ekki nota diska með sprungum eða sem kvarnast hefur upp úr.
OfneldunarpokarFylgdu leiðbeiningum framleiðanda. Ekki loka með málmvír. Búðu til rifur svo að gufan sleppi út.
Pappadiskar og -glösNotist aðeins fyrir skammtímaeldun/-upphitun. Ekki skilja ofninn eftir eftirlitslausan við eldun.
EldhúspappírNotist til að hylja mat þegar verið er að hita hann upp og til að draga í sig fitu. Notist aðeins undir eftirliti við skammtímaeldun.
BökunarpappírNotist sem hlíf til að koma í veg fyrir að matur slettist eða sem lok fyrir gufueldun.
PlastEingöngu sem má fara í örbylgjuofn. Fylgdu leiðbeiningum framleiðanda. Ætti að vera merkt „Má fara í örbylgjuofn“. Sum plastílát mýkjast eftir því sem maturinn innan í ílátinu hitnar. það skal rífa , gata eða opna „suðupoka“ og aðra péttlokaða plastpoka samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
SellófanEingöngu sem má fara í örbylgjuofn. Notist til að hylja mat meðan á eldun stendur og halda inni raka. Ekki leyfa plastumbúðum að komast í snertingu við matvæli.
HitamælarAðeins sem mega fara í örbylgjuofna ( kjöt- og sælgætishitamælar).
VaxpappírNotað sem hlíf til að koma í veg fyrir að matur slettist og til að halda inni raka.
ÁlbakkiGetur valdið neistahlaupi. Færðu mat yfir á disk sem má fara í örbylgjuofn.
Matarkarton með málmhandfangiGetur valdið neistahlaupi. Færðu mat yfir á disk sem má fara í örbylgjuofn.
Málm áhöld eða áhöld með málmköntumMálmar varna því að örbylgjur nái að matnum. Málmkantar geta valdið neistahlaupi.
MálmvírarGetur valdið neistahlaupi og valdið því að eldur kviknað í ofninum.
PappírspokarGetur valdið því að eldur kvikni í ofninum.
FroðuplastFroðuplast getur bráðnað eða mengað vökvann sem það inniheldur þegar það verður fyrir miklum hita.
ViðurViður þornar þegar hann er notaður í örbylgjuofni og getur klofnað eða brotnað.

UPPSETNING Á OFNI

Taktu ofninn og allt sem honum tilheyrir úr kassanum og ofnhólfinu.

Ofninum þínum fylgja eftirfarandi fylgihlutir:

Glerbakki 1

Samstæða fyrir hring snúningsplötu

Notendahandbók

GORENJE MO20E1T4 - UPPSETNING Á OFNI - 1

Uppsetning snúningsplötu

Nöf (undirhlið) Glerbakki Snúningsplötuás Samstæða fyrir hring snúningsplötu

a. Aldrei hvolfa glerbakkanum. Aldrei skorða af glerbakkann.

b. Alltaf þarf að nota glerbakka og samstæðu fyrir hring snúningsplötu við eldun.

c. Alltaf skal láta matvæli og ílát með mat á glerbakkann fyrir eldun.

d. Ef glerbakki eða samstæða fyrir hring snúningsplötu brotnar eða springur skaltu hafa samband við næstu viðurkenndu þjónustumiðstöð.

Stjórnborð og stýringareiginleikar - leiðbeiningar

Afl Tímastillir

  1. Til að stilla eldunarstyrk með því að snúa aflhnappinum á það stig sem óskað er eftir.
  2. Til að stilla eldunartímann með því að snúa tímastillinum á þann tíma sem óskað er eftir í matarleiðbeiningunum þínum.
  3. Örbylgjuofninn mun sjálfkrafa byrja að elda eftir að búið er að stilla orkustig og tíma.
  4. Að eldunartíma loknum mun einingin gefa frá sér „Ding“ hljóð og stöðvast.
  5. Ef einingin er ekki í notkun skaltu alltaf stilla tímann á „0“.
Aðgerð/styrkurÚtaflNotkun
~17% örb.Mýkja ís
*≈33% örb.Súpa, kássa, mýkja smjör eða píða
55% örb.Kássa, fiskur
77% örb.Hrísgrjón, fiskur, kjúklingur, hakkað kjöt
100% örb.Upphitun, mjólk, hita vatn, grænmeti, drykkir

Athugaðu: Þegar þú tekur mat úr ofninum skaltu ganga úr skugga um að slökkt sé á ofninum með því að snúa tímastillirofanum á 0 (núll). Ef það er ekki gert og örbylgjuofninn er notaður án þess að matur sé í honum getur það valdið ofhitnun og skemmdum á magnetrónunni.

Fjarlægðu allar umbúðir og fylgihluti. Skoðaðu ofninn með tilliti til skemmda á borð við dældir eða brotna hurð. Ekki setja upp ef ofninn er skemmdur.

Skápur: Fjarlægðu allar hlífðarfilmur sem finnast á yfirborði skáps örbylgjuofnsins. Ekki fjarlægja ljósbrúnu gljásteinhlífina sem er fest við ofnhólfið til að verja magnetrónuna.

UPPSETNING

  1. Veldu sléttan flöt með nægilega miklu opnu rými fyrir inntaks- og/eða úttaksop.

0 cm 30 cm 20 cm 20 cm min 85 cm 20 cm

  • Lágmarkshæð uppsetningar er 85 cm.
  • Aftanverður flötur tækisins þarf að liggja upp að vegg. Skildu eftir að minnsta kosti 30 cm bil fyrir ofan ofninn, og lágmarksbil þarf að vera 20 cm á milli ofnsins og aðliggjandi veggja.
  • Ekki fjarlægja fæturna af botni ofnsins.
  • Ef lokað er fyrir inntaks- og/eða úttaksop getur það skemmt ofninn.
  • Hafðu ofninn eins langt frá útvarpi og sjónvarpi og hægt er. Notkun örbylgjuofns getur valdið truflunum á viðtökubúnaði fyrir útvarps- og sjónvarpsútsendingar.
  • Stingdu ofninum í samband við hefðbundna heimilisinnstungu. Gakktu úr skugga um að spenna og tíðni sé sú sama og spenna og tíðni á málgildismiðanum.

AÐVÖRUN: Ekki setja örbylgjuofn upp yfir eldavél eða öðrum heimilistækjum sem mynda hita. Ef örbylgjuofninn er settur upp nálægt eða yfir hitagjafa gæti hann skemmst og slíkt ógildir ábyrgðina.

Aðgengilegir yfirborðsfletir kunna að hitna meðan á notkun stendur.

GORENJE MO20E1T4 - UPPSETNING - 2

Venjuleg
Örbylgjuofn sem truflar móttöku á sjónvarpsútsendingumPegar verið er að nota örbylgjuofninn getur það valdið truflunum á sjónvarps- og útvarpsviðtökum. Það er svipað og truflanir lítilla rafmagnstækja, svo sem blandara, ryksuga og rafmagnsvifta. Petta er eðlilegt.
Dauf lýsing frá ofnljósiVið eldun við lágan styrk í örbylgjuofni getur ofnlýsing dofnað. Petta er eðlilegt.
Gufa safnast á hurð, heitt loft úr loftopumPegar verið er að elda getur verið að gufa komi frá matnum. Megnið af henni sleppur út um loftopin. En eitthvað kann að safnast fyrir á köldum svæðum eins og ofnhurðinni. Petta er eðlilegt.
Ofninn ræstist fyrir slysní án matar.Pað er bannað að keyra eininguna án pess að það sé matur í henni. Það er mjög hættulegt.
VandamálMöguleg orsökÚrræði
Ekki er hægt að ræsa ofn.(1) Rafmagnssnúran er ekki nægilega vel tengd.Taktu úr sambandi. Stingdu síðan aftur í samband eftir 10 sekúndur.
(2). Öryggi sló út eða var bræddi úr sér.Skiptu um var eða endurstillingarrá s öryggi (gert við af fagfólki á vegum fyrirtækisins)
(3). Vandamál með innstungu.Prófaðu innstungu með öðrum rafmagnstækjum.
Ofninn hitnar ekki.(4). Hurðin er ekki vel lokuð.Lokaðu hurðinni vandlega.

GORENJE MO20E1T4 - UPPSETNING - 3

Samkvæmt tilskipun um raf- og rafeindabúnaðarúrgang ætti að safna raf- og rafeindabúnaðarúrgangi sérstaklega og meðhöndla á viðeigandi hátt. Ef þú þarft að farga þessari vöru einhvern tíma í framtíðinni skaltu EKKI farga henni með heimilissorpi. Vinsamlegast farðu með vöruna á söfnunarstöð fyrir raf- og rafeindabúnaðarúrgang þar sem það er í boði.

ÁÐUR EN ÞÚ HRINGIR EFTIR ÞJÓNUSTU

  1. Ef ofninn virkar alls ekki, birtast upplýsingarnar ekki á skjánum eða skjámyndin hverfur:

a) Gakktu úr skugga um að ofninn sé vandlega tengdur við rafmagn. Ef hann er ekki það, taktu hann úr sambandi, bíddu í 10 sekúndur og stingdu honum aftur vandlega í samband. b) Athugaðu á staðnum hvort um sé að ræða brunnið öryggi eða hvort rofi hafi slegið út. Ef þetta virðist virka rétt, prófaðu innstunguna með öðru tæki.

Ef örbylgjustyrkur virkar ekki:

a) Athugaðu hvort tímastillirinn sé stilltur. b) Gakktu úr skugga um að dyrnar séu tryggilega lokaðar svo að öryggislæsingin tengist. Annars munu örbylgjur ekki ná að flæða inn í ofninn.

Ef ekkert af ofangreindu bætir ástandið, hafðu samband við næsta viðurkennda þjónustufulltrúa.

Tækið er ætlað til heimilisnota, til að hita mat og drykk með rafsegulorku og er aðeins ætlað til notkunar innanhúss.

ÁBYRGÐ OG ÞJÓNUSTA

Ef þú þarft frekari upplýsingar eða átt í vandræðum, hafðu samband við þjónustumiðstöð Gorenje í þínu landi (símanúmerið er að finna á fylgiseðlinum með ábyrgð um allan heim). Ef engin þjónustumiðstöð er í þínu landi, farðu til söluaðila Gorenje næst þér eða hafðu samband við þjónustudeild Gorenje heimilistækja.

Aðeins til persónulegra nota!

Frekari ráðleggingar um eldun í örbylgjuofni og gagnlegar ráðleggingar má finna á vefsíðunni:

http://www.gorenje.com

ÓSKAR ÞÉR ÓMÆLDRAR ÁNÆGJU VIÐ NOTKUN TÆKIS ÞÍNS

gorenje

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : GORENJE

Líkan : MO20E1T4

Flokkur : örbylgjuofn