NOTENDAHANDBÓK HSE 5500/E5 Herkules
Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða. Lesið því notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar vandlega. Geymið allar leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til þeirra ef þörf er á. Látið notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem ekki er nefnd í þessum notandaleiðbeiningum eða öryggisleiðbeiningum.
Lýsingar leiðbeiningarskiltanna á tækinu (mynd 17)
- Hætta! Lesið notandaleiðbeiningar.
- Viðvörun! Heitir hlutir. Haldið fjarlægð.
- Hætta! Slökkvið á mótor tækis á meðan að fyllt er á eldsneyti.
- Hætta! Útblástur rafstöðvarinnar er með eiturgufum. Köfnunarhætta.
- Hætta! Notið tækið ekki í óumloftuðu rými.
- Varúð varðandi eldhættuleg efni.
- Varúð vegna rafspennu.
1. Öryggisleiðbeiningar
Viðvörun!
Lesið allar öryggisleiðbeiningar, leiðbeiningar, skýringarmyndir og tæknilegar upplýsingar sem fylgja með þessu rafmagnsverkfæri. Vanhirsla um að fara eftir eftirfarandi leiðbeiningum getur leitt til raflosts, bruna og/eða alvarlegra meiðsla.
Geymið öryggisleiðbeiningarnar og notandaleiðbeiningarnar vel til notkunar í framtíðinni.
- Það er bannað að framkvæma breytingar á rafstöðinni.
- Einungis má nota upprunalega varahluti og aukahluti á þetta tæki.
- Varúð: Eiturhætta. Útblástursgas, eldsneyti og smurefni eru heilsuskaðleg. Ekki má anda að sér útblástursgasi. Haldið börnum fjarri rafstöðinni.
- Varúð: Brunahætta. Snertið alls ekki útblásturseiningu og drifeiningu tækisins.
- Notið viðeigandi heyrnahlífar á meðan verið er í nánd við tækið.
- Varúð: Bensín og bensíngufur eru mjög eldfim efni og geta einnig valdið sprengingum.
- Notið rafstöðina ekki í lokuðum, illa loftuðum rýmum né í eldfimu umhverfi.
Þegar nota á rafstöðina í vel loftuðum rýmum verður að leiða útblástur tækisins með þar til gerðum útblástursbarka beint út í ferskt loft. Varúð: Einnig þegar rafstöðin er notuð með útblástursbarka er samt hætta á að eitruð gös komist í öndunarloftið. Vegna eldhættu má aldrei beina útblástursbarkanum að eldfimum efnum.
- Sprengihætta: Notið rafstöðina aldrei í rýmum þar sem eldhætta er til staðar.
- Það er bannað að breyta snúningshraða sem innstilltur var upprunalega af framleiðanda. Rafstöð eða tæki sem tengd eru við hana geta orðið fyrir skemmdum.
- Á meðan rafstöðin er flutt verður að ganga úr skugga um að hún geti ekki runnið til eða oltið.
- Haldið rafstöðinni í að minnsta kosti 1 m fjarlægð frá veggjum og viðtengdum tækjum.
- Setjið rafstöðina upp á sléttan og harðan flöt. Það er bannað að snúa, halla eða flytja tækið til á meðan það er í notkun.
- Slökkvið ávallt á mótor tækisins áður en fyllt er á eldsneyti og á meðan það er flutt til.
- Gangið úr skugga um að eldsneyti sullist ekki niður á mótor tækisins eða útblásturseiningu þess þegar fyllt er á eldsneyti.
- Setjið rafstöðina aldrei út í rigningu eða snjókomu.
- Snertið aldrei rafstöðina með rökum eða blautum höndum. Hlífið ykkur fyrir hættu vegna rafmagns.
- Notið einungis framlengingarleiðslur utandyra sem ætlaðar eru til þess og ef að þær bera stimpil sem gefur það til kynna (H07RN..).
- Þegar framlengingarleiðslur eða færanleg millistykki eru notuð, má viðnám ekki vera meira en 1,5 Ω. Reglan segir að samanlögð lengd leiðslanna fyrir þverflatarmálið 1,5 mm² megi leiðslan ekki vera lengri en 60 m, þegar þverflatarmálið er 2,5 mm² ætti leiðslan ekki að vera lengri en 100 m.
- Bannað er að breyta stillingum mótors og rafstöðvarinnar á einhvern hátt.
- Viðgerðir og stillingar á tæki mega einungis vera framkvæmdar af viðurkenndum fagfólki.
- Fyllið ekki á eldsneyti eða tæmið eldsneytisgeyminn á stað þar sem að opinn eldur er til staðar eða þar sem neistamyndun á sér stað. Reykið ekki!
- Snertið ekki hreyfanlega hluti tækisins né hluti sem eru heitir. Fjarlægið engar öryggiseinningar af tækinu.
- Tækið má ekki vera í miklu ryki né í raka. Leyfilegur umhverfishiti til notkunar þessa tækis er frá -10 til +40°, hæð: 1000 m yfir sjávarmáli. Loftraki: 90 % (ekki þéttun)
- Rafstöðin er knúin af brennslumótor sem myndar mikinn hita í kringum útblásturseininguna (á gagnstæðri hlið við innstunguna) og útblásturinn sjálfan. Forðist að snerta þessi svæði vegna hættu á húðbruna.
- Eldsneyti er eldfimt og auðvelt að kveikja í. Fyllið ekki á meðan að notkun stendur.
- Margir hlutar brennslumótorsins eru heitir og geta orsakað bruna. Fara verður eftir viðvörunum á rafstöðinni.
- Ef henni er stillt upp innandyra verður að gera sérstakar ráðstafanir varðandi öryggi gagnvart eldi og sprengingum.
- Fyrir notkun ætti að yfirfara rafstöðina og rafmagnshluta hennar (þar með töldum rafmagnsleiðslum og tengingum) og ganga úr skugga um að engin bilun sé til staðar.
- Rafstöðina má ekki tengja við aðra straumrás eins og til dæmis straumrásir rafmagnsveitunnar. Í sérstökum tilvikum þegar að tækið er ætlað sem útsláttartenging við rafrás sem vanalega notuð er, verður sú tenging að vera framkvæmd af viðurkenndum rafvirkja sem þekkir mismuninn og tekur til greina mismuninn á tækjunum sem nota opinbera rafrás og rafrás rafstöðvarinnar. Eftir þessum hluta ISO 8528 verður mismunurinn að vera sýndur í notandaleiðbeiningunum.
- Vegna hás vélræns álags ætti einungis að nota sterkar gúmmíleiðslur (eftir IEC 60245-4) eða samsvarandi.
- Viðvörun! Haldið ykkur við reglugerðir varðandi öryggi rafmagns sem gilda á þeim stað þar sem rafstöðin verður notuð.
- Viðvörun! Farið eftir takmörkum og öryggisráðstöfunum ef rafstöðin er notuð til þess að tryggja spennu sem er háð annarri rafrás og farið eftir reglugerðum og gerið öryggisráðstafanir varðandi notkun þessa.
- Rafstöðin ætti einungis að nota upp að og undir uppgefinni hámarksspennu. Ef notkun rafstöðvarinnar er undir þeim aðstæðum sem ekki uppfylla skilyrði ISO 8528-8 og þegar kæling mótorsins er ekki nægileg, eins og til dæmis sem orsök þess að tækið er ekki notað við eðlilegar aðstæður, verður að minnka álag á tækið. Leggja ætti fram upplýsingar sem upplýsa notanda um viðkomandi minnkun getu tækis vegna breytinga hækkandi hita, notkunarhæðar og loftraka frá staðalaðstæðum.
- Í liðnum um tæknilegar upplýsingar undir hámarkshávaða (LWA) og hljóðþrýsting (LWM) eru gefin upp viðmiðunargildi sem gefa ekki endilega til kynna gildi innan sérstakra hættumarka. Þar sem samhengi á milli losunar- og mengunargilda er til staðar, er ekki hægt að nota þau gildi á ábyrgan hátt til að ákvarða hvort aukalegar varúðarráðstafanir séu hugsanlega nauðsynlegar. Þau gildi sem myndast í raun eru summa af mörgum liðum sem einnig hafa áhrif á hávaðamyndun tækisins eins og til dæmis gerð rýmis og stærð, hávaði frá öðrum hlutum eins og til dæmis af öðrum tækjum, fjölda þeirra, fjarlægð þeirra og sá tími sem notandi er opinberaður fyrir hávaðanum. Auk þess geta hættumörk verið skráð mismunandi eftir löndum. Þrátt fyrir þessar upplýsingar ættu uppgefin gildi að aðstoða notanda tækisins við það að meta hættu sem staðar getur af tækinu.
- Notið aldrei rafmagnsaukahluti (þar með talið framlengingarleiðslur og tengi), sem eru skemmdir.
- Rafmagnsleiðslur og tæki sem tengd eru við þetta tæki verða að vera í fullkomnu ásigkomulagi.
- Einungis má tengja tæki við þetta tæki sem nota sömu spennu og úttaksspenna rafstöðvarinnar.
- Tengið rafstöðina aldrei við aðra rafrás (innstungu).
- Halda verður rafmagnsleiðslum til tengdra tækja eins stuttum og hægt er.
- Skilið óhreinu viðhaldsefni og öðrum efnum sem notuð eru á tækið til endurnotkunar til þar til gerðar sorpmóttökustöðvar.
- Skilið einnig umbúðum, málmi og gerviefnum til endurnotkunarstöðvar.
Öryggisreglur varðandi rafgeyma
- Athugið ávallt að pólun rafgeymis (+ og -) sé rétt eins og gefið er upp á rafgeyminum.
- Skammtengið ekki rafgeyminn.
- Hlaðið ekki óendurhlaðanlega rafgeyma.
- Tæmið rafgeymi ekki of mikið!
- Hitið ekki rafgeymi!
- Sjóðið ekki né lóðið í eða á rafgeyminn!
- Takið rafgeymi ekki í sundur!
- Aflagið ekki rafgeyminn!
- Hendið rafgeymum ekki á eld!
- Haldið rafgeymum þar sem börn ná ekki til.
- Leyfið börnum ekki að vera nálægt án eftirlits þegar rafgeymar eru hlaðnir!
- Geymið rafgeyma ekki í nánd við eld, eldavélar eða aðra hitandi hluti. Leggið rafgeymi ekki
í beint sólarljós. Geymið ekki rafgeymi í bíl þegar heitt er.
- Haldið ónotuðum rafgeymum fjarri málmhlutum. Það getur leitt til skammteningar og þar með leitt til skemmda, bruna eða jafnvel eldhættu.
- Takið rafgeymi úr tækinu ef það verður ekki notað til lengri tíma!
- Ef sýra hefur lekið út úr rafgeymi má ALDREI snerta hann án viðeigandi hlífa. Ef vökvi sem lekur úr rafgeymi kemst í snertingu við húð verður að skola hana tafarlaust með rennandi vatni. Varist sérstaklega að vökvinn komist ekki í snertingu við augu og munn. Ef svo skyldi verða, leitið þá tafarlaust til læknis.
- Hreinsið tengifleti á rafgeymi og einnig á tæki áður en hún er ísett.
Förgun
Rafgeymar: Fargið einungis í gegnum bifreiðaverkstæði, sérstakan móttökustað eða sorpmóttöku. Leitið upplýsingar hjá bæjarskrifstofu.
2.1 Tækislýsing (myndir 1-5)
- Eldsneytismælir
- Eldsneytislok
- 2 x 230 V~ Innstunga
- Jarötenging
- Útsláttaröryggi 230 V
- Útsláttaröryggi 400 V
- Olíuáfyllingarlok
- Olíuaftöppunarskrúfa
- Olíuöryggi
- Lykill
- Innsog
- Gangsetningarpráður
- Eldsneytiskrani
- Tækishjól
- Hjólaöxull
- Standfótur
- Festing tækisbeislis
- Tækisbeisli
19a. Skrúfur M8x40
19b. Skrúfur M8x25
- Skrúfur M8x16
- Undirskífur fyrir hjól
- Öryggissplitti fyrir hjól
- Rær M8
- Rafgeymir 12 V
- Kertalykill
- Olíuáfyllingartrekt.
- Stilling á milli 230 V~/400 3~
- Stöðuljós 230 V
- Stöðuljós 400 V
- 400V 3~ innstunga
2.2 Innihald
Vinsamlegast yfirfarið hlutinn og athugið hvort allir hlutir fylgi með sem taldir eru upp í notandaleiðbeiningunum. Ef að hluti vantar, hafið þá tafarlaust, eða innan 5 vinnudaga eftir kaup á tæki, samband við þjónustuborð okkar eða þá verslun sem tækið var keypt í og hafið með innkaupanótuna. Vinsamlegast athugið töflu aftast í leiðbeiningunum varðandi hluti sem eru ábyrgðir.
- Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr umbúðunum.
- Fjarlægið umbúðirnar og læsingar umbúða / tækis (ef slíkt er til staðar).
- Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu. Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort að flutningaskemmdir séu að finna. Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til að ábyrgðartímabil hefur runnið út.
Hætta!
Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur og smáhluti! Hætta er á að hlutir geti fests í hálsi og einnig hætta á köfnun!
• Notendaleiðbeiningar
3. Tilætluð notkun
Þetta tæki er ætlað til þess að knýja tæki sem gerð eru fyrir notkun við 230 V / 400 V 3~ riðstraum. Vinsamlegast athugið allar þær takmarkanir sem finna má í öryggisleiðbeiningunum. Hlutverk þessarar rafstöðvar er að knýja rafmagnsverkfæri og lýsingu. Varðandi notkun með heimilistæki verður að kynna sér upplýsingar framleiðanda varðandi það hvort hún sé leyfileg. Ef vafi er á, leitið þá aðstoðar hjá viðurkenndum fagaðila viðeigandi tækis.
Þetta tæki má einungis nota í þau verk sem það er framleitt fyrir. Öll önnur notkun sem fer út fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins.
Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Við tökum enga ábyrgð á tækinu, sé það notað í iðnaði, í atvinnuskyni eða í tilgangi sem á einhvern hátt jafnast á við slíka notkun.
4. Tæknilegar upplýsingar
Rafall: ...... Samstilltur
Öryggisgerð: IP23 M
Samflétt notkun P mæld (S1):
3600 W/400 V 3~; 3000 W/230 V~
Hámarks afl P hámark (S2 5 min):
4800 W/400 V 3~;3300 W/230 V~
Málspenna U mál : ...... 2 x 230 V~ / 1 x 400 V 3~
Málstraumur I mál : ..13 A (230V~) / 5,2 A (400V 3~)
Tíðni F mæli : 50 Hz
Gerð mótors: ....Loftkældur fjórgengismótor
Slagrými: 389 cm³
Hámark afl: 7,5 kW / 10 PS
Eldsneyti: ......Bensín (E10)
Rými eldsneytistanks: 25 l
Mótorolía: .... um það bil 1,1 l
Eldsneytisnotkun við 2/3 álag:
um það bil 2,13 l/klst
Þyngd: 82 kg
Hljóðþrýstingsstig L pA : 74,5 dB(A)
Hávaðastig L WA Óvissa K ....96 dB (A)/1,89 dB(A)
Aflstuðull cos φ: 1
Virkniflokkur: G1
Hámarkshiti: 40°C
Hámarks vinnuhæð (yfir sjávarmáli): 1000 m
Kerti: LGF7RTC
Notkun S1 (standslaus notkun)
Nota má þetta tæki undir samfelldu álagi með uppgefnu afli.
Notkun S2 (notkun í styttri tíma)
Nota má þetta tæki í stuttan tíma með uppgefnu afli (5 mínútur). Eftir það verður að leyfa tækinu að standa kyrrstæðu til þess að það ofhitni ekki (5 mínútur).
5. Fyrir notkun
5.1 Samsetning
- Setjið standfót, hjól og haldfang á tækið eins og lýst er á myndum 6-9.
- Setjið tækið saman að fullu áður en eldsneyti og olía er fyllt á það til þess að koma í veg fyrir að þessi efni sullist niður.
- Til að setja hjólin á tækið verður að renna hjólaöxlinum í gegnum festingarnar á neðri hlið rafstöðvarinnar og festið þvínæst hjólin á öxulinn eins og lýst er á mynd 7.
- Til að setja hjólin á tækið verður að renna hjólaöxlinum í gegnum festingarnar á neðri hlið rafstöðvarinnar og festið þvínæst hjólin á öxulinn eins og lýst er á mynd 7. Athugið við samsetningu hjólanna að sú hlið hjólanna með meira útstandandi öxulgat snúi að tækinu því annars snerta hjólin tækisgrindina.
- Rafmagnsleiðslur og tæki sem tengd eru við þetta tæki verða að vera í fullkomnu ásigkomulagi.
- Einungis má tengja tæki við þetta tæki sem nota sömu spennu og úttaksspenna rafstöðvarinnar.
- Tengið aldrei rafstöðina við aðra rafrás (innstungu).
- Halda verður rafmagnsleiðslum til tengdra tækja eins stuttum og hægt er.
5.3 Umhverfisvernd
- Skilið óhreinu viðhaldsefni og öðrum efnum sem notuð eru á tækið til endurnotkunar til þar til gerðar sorpmóttökustöðvar.
- Skilið einnig umbúðum, málmi og gerviefnum til endurnotkunarstöðvar.
5.4 Jarðtenging
Til þess að leiða burtu stöðuspennu er nauðsynlegt að jarðtengja tækishúsið. Til þess verður að tengja einn enda rafmagnsleiðslu á hlið rafalsins (mynd 3 / staða 4) og hinn endann við utanaðkomandi jörð (eins og til dæmis jarðtengingarstöng).
5.5 Rafgeymir
Varúð! Þegar að rafgeymirinn er handfjatlaður eða honum fargað verður að fara eftir öryggisleiðbeiningum framleiðanda hans.
Viðvörun! Áður en að rafgeymirinn er ísettur ætti sú persóna að taka af sér hringi, armbönd, armbandsúr og þessháttar og leggja það til hliðar.
Þegar að þessir hlutir komast í snertingu við póla rafgeymis eða straumleiðandi leiðslum getur það leitt til líkamsbruna.
Viðvörun! Yfirfarið einangrun rafmagnsleiðsla og tenginga áður en að tækið er tekið til notkunar. Ef að einangrun er ekki í lagi má ekki taka tækið til notkunar.
Viðvörun! Látið einungis viðurkennt fagverkstæði eða framleiðanda sjá um viðgerðir.
Rafgeymir ísettur og tekinn úr tæki (myndir 15a/15b)
Varúð! Notið rafstöðina einungis með umhirðufrjálsum 12V rafgeymi.
Opnið rafgeymishlífina (mynd 15a / staða A). Setjið rafgeyminn (staða 24) á jörðina. Tengið fyrst rauðu leiðsluna við + og síðan svörtu rafmagnsleiðsluna við – (mynd 15b). Sundurtekningin fer fram eins og samsetningin í öfugri röð.
Varúð! Aftengið rafgeyminn ekki á meðan tækistengið er tengt, það getur leitt til skemmda á hleðslueiningu.
Rafgeymir hlaðinn yfir tækistengi
Rafgeymir er hlaðinn af rafli yfir tækistengi á meðan tækið er í notkun.
Þjónusta og umhirða rafgeymis
- Athugið að rafgeymirinn sé ávallt vel festur við tækið. Góð tenging frá rafgeymi að tæki verður að vera tryggð. • Haldið rafgeymi hreinum og þurrum.
6. Notkun
Varúð! Fylla verður á olíu og eldsneyti áður en tækið er tekið til notkunar.
- Yfirfarið stöðu eldsneytis og fyllið á ef þörf er á. Gangið úr skugga um að það sé nægilega vel loftað um tækið. Gangið úr skugga um að kertapráðurinn sé tengdur við kertið. • Yfirfarið svæðið í kringum rafstöðina.
- Aftengið tæki sem tengd eru við rafstöðina.
6.1 Mótor gangsettur
6.1.1 Gangsetning með rafstarti
- Opnið eldsneytiskrana (13); snúið honum niður til að opna hann
- Setjið höfuðrofann (10) í stellinguna „ON“ • Setjið innsogið (11) í stellinguna I ∅ I
- Ræsið mótorinn með því að snúa lyklinum í rofanum (mynd 1 / staða 10). Þegar mótorinn er kominn í gang, snúið þá lyklinum strax aftur í upphaflega stöðu. Ef lyklinum er snúið aftur á meðan mótor tækisins er í gangi, leiðir það til skemmda á startbúnaði tækisins.
- Setjið innsogið (11) aftur til baka eftir að mótorinn er kominn í gang.
6.1.2 Gangsetning með gangsetningarþræði
• Opnið eldsneytiskrana (13); snúið honum niður til að opna hann - Setjið höfuðrofann (10) í stellinguna „ON“ • Setjið innsogið (11) í stellinguna I ∅ I - Ræsið mótor með gangsetningarþræðinum (12); togið kröftuglega í þráðinn. Ef mótorinn fer ekki í gang, ætti að toga aftur í gangsetningarþráðinn - Setjið innsogið (11) aftur til baka eftir að mótorinn er kominn í gang.
Varúð!
Við gangsetningu mótors með gangsetningarþræði getur myndast bakslag vegna mótors sem hrekkur í gang, þetta getur orsakað meiðsl á höndum. Notið hlífðarvettlinga við gangsetningu mótors.
6.2 Rafstöðin notuð
- Þegar rofinn (mynd 3 / staða 27) er settur til vinstri er hægt að nota 230V\~ innstungurnar. Varúð: Þó svo að í þessari stillingu sé 3000 W samfelld notkun (S1) deilt niður á 2 innstungur, er einungis hægt að nota eina með 3000 W álagi. Samtals álag beggja innstungnanna má að hámarki vera 3300 W í stutta stund (S2) í 5 mínútur.
- Ef rofinn (mynd 3 / staða 27) er settur til hægri er 400V 3\~ innstungan virk. Varúð: Þessa innstungu má nota samfellt (S1) með 3600W og í stutta stund eða hámark 2 mínútur með 5500 W (frá kyrrstöðu með köldu tæki) eða að hámarki í 5 mínútur með 4800W (þegar tæki er þegar heitt).
- Rafstöðin er gerð fyrir 230 V\~ og 400 V 3\~ riðspennu.
- Tengið rafstöðina ekki við heimilisrafrás, við það getur rafstöðin skemmst og einnig heimi-
listæki sem tengd eru við rafrásina.
Tilmæli: Sum rafmagnstæki (mótorsagir, borvélar og þessháttar) geta haft hærri straumþörf á meðan unnið er undir miklu álagi. Sum raftæki (til dæmis sjónvörp, tölvur,...) mega ekki vera tengd við rafstöðvar.
Ef vafi er á, leitið þá til framleiðanda tilkomu tækis.
6.3 Áreynsluöryggi
Rafstöðin er útbúin álagsöryggi. Það rýfur sambandið við viðeigandi innstungu ef álag er of mikið.
Varúð! Ef svo er verður að minnka rafnotkunina sem rafstöðin þarf að skapa eða fjarlægja skemmd tæki sem tengd eru við rafstöðina.
Varúð! Ef ofálagsrofi skemmist, má einungis setja annan nákvæmlega samskonar rofa í hans stað. Ef svo er, hafið þá samband við þjónustuaðila.
230V\~ innstungur:
Við of mikið álag er straumurinn að 230V\~ innstungunum (mynd 3 / staða 3) rofinn. Með því að slá inn aftur útsláttarörygginu (mynd 3 / staða 5) er hægt að taka 230V\~ innstunguna aftur til notkunar.
400V 3\~ innstunga:
Við of mikið álag er straumurinn að 400V 3\~ innstungunni (mynd 3 / staða 30) rofinn. Með því að slá aftur inn álagsörygginu (mynd 3 / staða 6) aftur er hægt að taka 400V 3\~ innstunguna aftur til notkunar.
6.4 Slökkt á mótor
- Látið rafstöðina ganga í smá stund án álags áður en að slökkt er á henni þannig að rafallinn nái að kólna niður.
- Setjið höfuðrofann (mynd 1 / staða 10) í stöðuna „OFF“ • Lokið eldsneytiskrananum.
7. Hreinsun, umhirða og pöntun varahluta
Slökkvið á mótor tækis og takið kertahettuna af kertinu áður en að hreinsun eða umhirða á tæki er hafin.
Ábending! Slökkvið tafarlaust á tækinu og leitið til þjónustuaðila:
- Ef tækið byrjar að titra eða ef óeðlilegt hljóð kemur frá því
- Ef mótorinn virðist vera ofgert og ef erfitt er að gangsetja hann
7.1 Hreinsun
- Haldið hlífum, loftrifum og mótorhúsi tækisins eins lausu við ryk og óhreinindi og hægt er. Þurrkið af tækinu með hreinum klút eða blásið af því með háþrýstilofti.
- Við mælum með því að tækið sé hreinsað strax eftir hverja notkun. Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og örlítilli sápu. Notið ekki hreinsiefni eða ætandi efni; þessi efni geta skemmt plastefni tækisins. Gangið úr skugga um að það komist ekki vatn inn í tækið.
7.2 Loftsía
Farið eftir leiðbeiningum varðandi umhirðu og þjónustu.
- Hreinsið loftsíu reglulega og skiptið um hana ef þörf er á því
- Opnið báðar klemmurnar (mynd 11/A) og fjarlægið loftsíulokið (mynd 11/B) • Fjarlægið síueininguna (mynd 12/C)
- Til að hreinsa loftsíueininguna má ekki nota sterka hreinsivökva né bensín.
- Hreinsið loftsíueininguna með því að slá henni við sléttan flöt. Ef loftsían er mjög óhrein er hægt að hreinsa hana með sápuvatni og skola hana síðan með fersku vatni áður en hún er lögð til þurrkunar í fersku lofti.
- Samsetning fer fram eins og sundurtekningin í öfugri röð.
7.3 Kerti (mynd 13-14)
Yfirfarið kertið í fyrsta skiptið eftir um það bil 10 vinnustundir og athugið hvort það sé orðið óhreint og hreinsið það ef þörf er á með koparbursta. Eftir það ætti að yfirfara kertið á 50 vinnustunda millibili.
• Opnið hlífina (mynd 13 / staða E) Fjarlægið kertahettuna með því að toga í hana og snúa henni aðeins á meðan. - Fjarlægið kertið (mynd 13 / D) með meðfylgjandi kertalykli - Samsetning fer fram eins og sundurtekningin í öfugri röð
7.4 Skipt um olíu, olíustand yfirfarið (fyrir hverja notkun)
Mótor tækis ætti að vera heitur þegar að skipt er um olíu á honum.
- Setjið rafstöðina niður á góðan flöt og hallið
IS
henni örlítið á móti olíuaftöppunarskrúfunni.
• Opnið olíuáfyllingarlokið. Opnið olíuaftöppunarlokið og látið heita olíu leka niður í viðeigandi ílát. - Lokið olíuaftöppunarlokinu og réttið rafstöðina af. - Fyllið olíu á mótorinn upp að efri merkingu á olíukvarðans. - Varúð: Skrúfið olíukvarðann ekki inn til þess að athuga áfyllingarástand olíunnar heldur stingið honum einungis inn í gatið. • Farga verður gamalli olíu á réttan hátt.
7.5 Olíuöryggi
Olíuöryggið verður gert virkt sjálfkrafa ef að of lítil olía er á mótor tækisins. Ef svo er, er ekki hægt að gangsetja mótorinn eða hann slekkur á sér sjálfkrafa eftir stutta stund. Einungis er hægt að gangsetja mótor á ný eftir að búið er að fylla á mótorolíu (sjá lið 7.4).
Opnið öryggjatengið (mynd 16a/ staða A) og skiptið út ónýta örygginu (mynd 16b) með nýju öryggi.
Varúð! Notið einungis öryggi af sömu gerð og þau sem voru í öryggjatenginu.
Athugið sérstaklega að hámarksstraumur sé réttur (grafið í öryggið).
Ef þörf er á, leitið þá aðstoðar hjá þjónustuaðila eða rafmagnsverkstæði.
7.7 Umhirða
- Inni í tækinu eru engir aðrir hlutir sem hirða þarf um.
7.8 Geymsla
• Látið tækið kólna. (í um það bil 5 mínútur) • Hreinsið ytra hús tækisins. - Geymið tækið á köldum og þurrum stað fjarri eldi, neista og eldfimra efna.
7.9 Pöntun varahluta:
Þegar að varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind;
Gerð tækis • Gerðarnúmer tækis • Númer tækis - Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á
Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-gmbh.info
Þetta tæki er afhent í umbúðum sem hlífa tækinu fyrir skemmdum við flutninga. Þessar pakkningar endurnýtanlegar eða hægt er að endurvinna þær. Þetta tæki og aukahlutir þess eru úr mismunandi efnum eins og til dæmis málmi og plastefnum. Skemmd tæki eiga ekki heima í venjulegu heimilissorpi. Til þess að tryggja rétta förgun á þessu tæki ætti að skila því til þar til gerðra sorpmóttökustöðvar. Ef að þér er ekki kunnugt um þessháttar sorpmóttökustöðvar ættir þú að leita til bæjarskrifstofur varðandi upplýsingar.
9. Flutningur
- Notið ávalt haldfangið til þess að flytja rafstöðina og keyra hana. Færið tækið einungis með flutningahaldfanginu.
- Hlífið tækinu við utanaðkomandi höggum og titringi.
10. Bilanaleit
| Bilun Mögulegar ástæður Lausn | |
| Ekki er hægt að gangsetja mótor | Olíuöryggi er virktKertið er ryðgað eða tærtEldsneytisgeymir er tómur | Yfi rfarið ástand olíu, fyllið á mótorolíu.Hreinsið kerti eða skiptið um það. Ker-tamillibil er 0,6 mmFyllið á eldsneyti / látið yfi rfara elds- neytiskrana |
| Rafall hefur enga eða of lága spennu | Stýring eða þéttir er bilaðurÚtsláttaröryggi hefur slegið útLoftsía er óhrein | Hafi ð samband við þjónustuaðilaSetjið öryggið inn aftur og minnkið álag á tækiðHreinsið síuna eða skiptið um hana |
| Rafgeymir hleðst ekki | Tenging á milli rafgeymis og tækis er ekki góðRafgeymirinn er skemmdurÖryggi (mynd 16a / 16b) skemmt | Hreinsið tengifl etiLátið fagaðila yfi rfara rafgeyminn og skiptið um hann ef þörf er áPrufi ð að nota annan rafgeymi, skiptið um öryggi |
| Startari snýst ekki Rafgeymir er tómurRafgeymirinn er ekki tengdur | Hlaðið rafgeyminnTengið rafgeyminn |
IS

Sérstök skilyrði fyrir lönd Evrópubandalagsins:
Kastið ekki notuðum rafmagnstækjum í venjulega ruslatunnu.
Samkvæmt reglugerð fyrir Evrópu 2012/19/EU um gömul rafmagnstæki og samkvæmt breytingum í lagasetningu hverrar þjóðar sambandsins verður að safna raftækjum aðskilið og koma þeim í sérstaka endurvinnslu í þágu umhverfisverndar.
Í staðinn fyrir að senda tækin til baka er eigandi þeirra hvattur til að vinna að því að rétt endurvinnsla eigi sér stað þegar hann afsalar sér tækinu sem eigandi. Það er mögulegt að afhenda tækið til sérstakrar söfnunarstofnunar, sem sér um endurvinnslu tækisins samkvæmt lögum hinna ýmsu þjóða um endurvinnslu og sorp. Þetta á samt ekki við um viðbótarhluti, sem innihalda ekki rafmagnshluta.
Eftirprentun eða önnur fjölprentun fylgiskjala og leiðarvísa vörunnar, líka í úrdrætti, er ekki leyfileg nema skriflegt samþykki frá iSC GmbH komi til.
Það er áskilið að tæknilegar breytingar séu leyfðar.
Þjónustuupplýsingar
Við höfum faglega þjónustuaðila í öllum þeim löndum sem ábyrgðarskírteini er gefið út í og er heimilisfang þeirra gefið upp í ábyrgðarskírteininu. Þessir þjónustuaðilar eru til staðar fyrir þig varðandi viðgerðir, pantanir varahluta og íhluta.
Athuga verður að sumir eftirtaldir hlutir tækisins eru hlutir sem notast upp við notkun eða á annan náttúrulegan hátt og/eða eftirfarandi hlutir eru nauðsynlegir vegna notkunar eða slits.
| Grein Dæmi | |
| Slithlutir* Kerti, Loftsía, Bensínsía, Rafhlaða | |
| Notkunarefni/hlutir sem notast upp* | |
| Hlutir sem vantar | |
* verða ekki endilega að fylgja!
Vegna galla eða bilana biðjum við þig um að hafa samband við okkur og skrá það á netinu undir www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast athugið að lýsa biluninni nákvæmlega og svarið endilega eftirfarandi spurningum:
Virkaði tækið fyrst eða var það bilað strax frá upphafi? - Varð þér vart við eitthvað óvenjulegt áður en bilunin kom til (greining bilunar)? • Hvaða bilun lýsir sér í tækinu samkvæmt þinni skoðun (aðalbilun)? Lýsið biluninni.
Ábyrgðarskírteini
Kæri viðskiptavinur,
Vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef að tækið virkar þrátt fyrir það ekki fullkomlega, þykir okkur það mjög leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilisfang er að finna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem að tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:
- Ábyrgðarskírteini þessa tækis gildir eingöngu fyrir einkanotendur, þ.e.a.s. persónur sem nota þetta tæki ekki til atvinnunota né í annarri sjálfstæðri vinnu. Þetta ábyrgðarskírteini lýsir aukalegri ábyrgð sem að neðan nefndur framleiðandi ábyrgist viðskiptavinum sínum umfram þær ábyrgðir sem reglur og lög gefa kröfur um. Þín almenna lagaleg ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgðaliði. Ábyrgðarþjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu.
- Ábyrgðin nær eingöngu yfir galla á nýju tæki sem þú hefur fest kaup á sem var framleitt af neðangreindum framleiðanda. Ábyrgðin nær einungis yfir galla sem eru vegna efnisgalla eða framleiðslugalla og takmarkast við okkar ákvörðun um að endurbæta gallann eða skipta út tækinu.
Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef að tækið er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskyni eða annan sambærilegan hátt.
- Ábyrgð okkar gildir ekki yfir:
- Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangrar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notandaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tækið hefur verið tengt við ranga rafspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækis varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tækið hefur verið notað undir óeðlilegum náttúruáhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu.
- Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir íhlutir eða aukahlutir), ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tækið (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, flutningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða utanaðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tækið fellur niður).
- Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra utanaðkomandi eðlilegra uppnotkunar.
- Ábyrgðartíminn er 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaups á tæki. Tilkynna verður um skemmdir eða galla á tæki áður en að ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemmdin er fundin. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi eftir að ábyrgðartímabilið er útrunnið. Ef að gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd til staðar.
- Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafið þá samband við: www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast geymið kaupkvittanir og önnur skjöl sem staðfesta kaupin á nýju tæki. Tæki sem send eru til viðgerðar sem ekki hafa tilskildar kvittanir eða tæki án tækismerkingar missa alla ábyrgð þar sem ekki er hægt að tilgreina þau tæki. Ef að skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess færð þú umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla.
Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notandaleiðbeiningunum.
SE
Fara!