Herkules SE 3000 - Générateur

SE 3000 - Générateur Herkules - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis SE 3000 Herkules á PDF sniði.

📄 204 síður Íslenska IS 💬 AI spurning
Notice Herkules SE 3000 - page 141

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Générateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína SE 3000 - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. SE 3000 vörumerkisins Herkules.

NOTENDAHANDBÓK SE 3000 Herkules

Hætta! Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða. Lesið því notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar vandlega. Geymið allar leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til þeirra ef þörf er á. Látið notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem ekki er nefnd í þessum notandaleiðbeiningum eða öryggisleiðbeiningar. Lýsingar leiðbeiningarskiltanna á tækinu (mynd 15)

1. Varúð! Lesið notandaleiðbeiningar.

2. Varúð! Heitir hlutir. Haldið fjarlægð.

3. Varúð! Slökkvið á mótor tækis á meðan að

fyllt er á eldsneyti.

4. Hætta! Útblástur ljósavélarinnar er með

eiturgufum. Köfnunarhætta.

5. Hætta! Notið tækið ekki í óumloftuðu rými.

Hætta! Lesið öryggisleiðbeiningar og aðrar leiðbei- ningar sem fylgja þessu tæki. Ef ekki er farið eftir öryggisleiðbeiningunum og öðrum leiðbei- ningum getur myndast hætta á rafl osti, bruna og/ eða alvarlegum slysum. Geymið öryggisleiðbei- ningarnar og notandaleiðbeiningarnar vel til notkunar í framtíðinni.

Það er bannað að framkvæma breytingar á rafstöðinni.

Varúð: Eiturhætta, útblástursgas, eldsneyti og smurefni eru heilsuskaðleg, ekki má anda að sér útblástursgasi.

Haldið börnum fjarri rafstöðinni

Varúð: Brunahætta, snertið alls ekki útblásturseiningu og drifeiningu tækisins.

Notið viðeigandi heyrnahlífar á meðan að verið er í nánd við tækið.

Varúð: Bensín og bensíngufur eru mjög eldfim efni og geta einnig valdið sprengingum.

Notið rafstöðina ekki í óumloftuðum rýmum eða þar sem að eldhætta er til staðar. Þegar að nota á rafstöðina í vel umloftuðum rýmum verður að leiða útblástur tækisins með þar til gerðri útblástursleiðslu beint út í ferskt loft. Varúð: Einnig þegar að rafstöðin er notuð í vel umloftuðum rýmum með útblástursleiðslu er samt hætta á að eitruð gös komist í öndunarloftið. Einnig þegar að rafstöðin er notuð í vel umloftuðum rýmum með útblástursleiðslu er samt hætta á að eitruð gös komist í öndunarloftið.

Sprengihætta: Notið rafstöðin aldrei í rýmum þar sem að eldhætta er til staðar.

Það er bannað að breyta snúningshraða sem innstilltur er af framleiðanda. Rafstöð eða tengd tæki geta orðið fyrir skemmdum.

Á meðan að rafstöðin er flutt verður að ganga úr skugga um að hún geti ekki runnið til eða oltið.

Haldið rafstöðinni í að minnstakosti 1m fjarlægð frá veggjum og viðtengdum tækjum.

Setjið rafstöðina upp á sléttan og harðann flöt. Það er bannað að snúa, halla eða flytja tækið til á meðan að það er í notkun.

Slökkvið ávallt á mótor tækisins áður en að fyllt er á eldsneyti.

Gangið úr skugga um að eldsneyti sullist ekki niður á mótor tækisins eða útblásturseiningu þess þegar að fyllt er á eldsneyti.

Setjið rafstöðina aldrei út í rigningu eða snjókommu.

Snertið aldrei rafstöðina með rökum eða blautum höndum.

Hlífið ykkur fyrir hættu vegna rafmagns.

Notið einungis framlengingarleiðslur utandyra sem ætlaðar eru til þess og ef að þær beri stimpil sem gefur það til kynna (H07RN..).

Þegar framlengingarleiðslur eða færanleg millistykki eru notuð, má viðnám ekki vera meira en 1,5 Ω. Reglan segir að samanlögð lengd leiðslnanna fyrir þverflatarmálið 1,5

megi leiðslan ekki vera lengri en 60 m, þegar þverflatarmálið er 2,5 mm

ætti leiðslan ekki að vera lengri en 100 m.

Það er bannað að breyta rafstöðinni á einhvern hátt.

Fyllið ekki á eldsneyti eða tæmið eldsneytisgeyminn á stað þar sem að opinn eldur er eða þar sem að neistamyndun á sér stað. Reykið ekki!

Snertið ekki hreyfanlega hluti tækisins né hluti sem eru heitir. Fjarlægið engar hlífar aftækinu.

Það má ekki opinbera tækinu fyrir raka né ryki. Leyfilegur umhverfishiti til notkunar þessa tækis er frá -10 til +40°, hæð: 1000m Anl_SE_3000_SPK7.indb 141Anl_SE_3000_SPK7.indb 141 11.06.2018 09:05:2411.06.2018 09:05:24IS

yfir sjávarmáli, umhverfisraki: 90 % (ekki þéttun)

Rafstöðin er knúin af brennslumótor sem myndar mikinn hita í kringum útblásturseininguna (á gagnstæðri hlið við innstunguna) og útblásturinn sjálfan. Forðist að snerta þessi svæði vegna hættu á húðbruna.

Eldsneyti er eldfimt og auðvelt að kveikja í. Fyllið ekki á meðan að notkun stendur.

Margir hlutar brennslumótorsins eru heitir og geta orsakað bruna. Fara verður eftir viðvörunum á ljósavélinni.

Ef henni er stillt upp innandyra verður að gera sérstakar ráðstafanir varðandi öryggi gagnvart eldi og sprengingum.

Fyrir notkun ætti að yfirfara ljósavélina og rafmagnhluta hennar (þar með töldum rafmagnsleiðslum og tengingum) og ganga úr skugga um að engin bilun sé til staðar.

Ljósavélina má ekki tengja við aðra straumrás eins og til dæmis straumrásir rafmagnsveitunnar. Í sérstökum tilvikum þegar að tækið er ætlað sem útsláttartenging við rafrás sem vanalega notuð er, verður sú tenging að vera framkvæmd af viðurkenndan rafvirkja sem þekkir mismuninn og tekur til greina mismuninn á tækjunum sem nota opinbera rafrás og rafrás ljósavélarinnar. Eftir þessum hluta ISO 8528 verður mismunurinn að vera sýndur í notandaleiðbeiningunum.

Vegna hás vélræns álags ætti einungis að nota sterkar gúmmíleiðslur (eftir IEC 60245-4) eða samsvarandi.

Viðvörun! Haldið ykkur við reglugerðir varðandi öryggi rafmagns sem gilda á þeim stað þar sem ljósavélin verður notuð.

Viðvörun! Farið eftir takmörkum og öryggisráðstöfunum ef ljósavélin er notuð til þess að tryggja spennu sem er háð annarrar rafrásar og farið eftir reglugerðum og gerið öryggisráðstafanir varðandi notkun þessa.

Ljósavélar ætti einungis að nota upp að og undir uppgefinni hámarks spennu. Ef að notkun ljósavélarinnar er undir þeim aðstæðum sem ekki uppfylla skilyrði ISO 8528-8 og þegar að kæling mótorsins er ekki nægileg, eins og til dæmis sem orsök þess að tækið er ekki notað við eðlilegar aðstæður, verður að minnka álag á tækið. Leggja ætti fram upplýsingar sem upplýsa notanda um viðkomandi minnkun getu tækis vegna breytingar hækkandi hita, notkunarhæð og loftraka frá staðalaðstæðum.

Í liðnum um tæknilegar upplýsingar undir hávaði (L

) og hljóðþrýstingur (L

) eru gefin upp viðmiðunargildi sem gefa ekki endilega til kynna gildi innan sérstakra hættumarka. Þó svo að það sé samhengi á milli uppgefna gilda og viðmiðunargilda, er ekki hægt að nota þessi gildi til ákvörðunar um það hvort nauðsynlegt sé að gera ráðstafanir varðandi aukalegar persónuhlífar. Þau gildi sem myndast í raun eru summa af þáttum sem einnig hafa áhrif á hávaðamyndun tækisins eins og til dæmis gerð rýmis og stærð, hávaði frá öðrum hlutum eins og til dæmis af öðrum tækjum, fjölda þeirra, fjarlægð þeirra og sá tími sem notandi er opinberaður fyrir hávaðanum. Auk þess geta hættumörk verið skráð mismunandi eftir löndum. Þrátt fyrir þessar upplýsingar ættu uppgefin gildi að aðstoða notanda tækisins við það að meta hættu sem staðar getur af tækinu.

Notið aldrei rafmagns-aukahluti (þar með talið framlengingarleiðslur og tengi), sem eru skemmdir.

Rafmagnsleiðslur og tæki sem tengd eru við þetta tæki verða að vera í fullkomnu ásigkomulagi.

Einungis má tengja tæki við þetta tæki sem nota sömu spennu og úttaksspenna rafstöðvarinnar.

Tengið rafstöðina aldrei við aðra rafrás (innstungu).

Skilið óhreinu viðhaldsefni og öðrum efnum sem notuð eru á tækið til endurnotkunar til þar til gerðar sorpmótökustöð

Skilið einnig umbúðum, málmi og gerviefnum til endurnotkunarstöðvar.

2. Tækislýsing og innihald

2.1 Tækislýsing (myndir 1-5)

Vinsamlegast yfi rfarið hlutinn og athugið hvort allir hlutir fylgi með sem taldir eru upp í notandaleið- beiningunum. Ef að hluti vantar, hafi ð þá tafar- laust, eða innan 5 vinnudaga eftir kaup á tæki, samband við þjónustuboð okkar eða þá verslun sem tækið var keypt í og hafi ð með innkaupanótu- na. Vinsamlegast athugið töfl u aftast í leiðbeinin- gunum varðandi hluti sem eru ábyrgðir.

Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr umbúðunum.

Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu.

Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort að flutningaskemmdir séu að finna.

Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til að ábyr- gðartímabil hefur runnið út. Hætta! Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleik- föng! Börn mega ekki leika sér með plastpo- ka, fi lmur og smáhluti! Hætta er á að hlutir geti fests í hálsi og einnig hætta á köfnun!

Þetta tæki er ætlað til þess að knýja öll tæki sem nota 230V~/ 400V 3~ spennu. Vinsamlegast kynnið ykkur þau takmörs sem skráð eru í öryggisleiðbeiningunum. Þessi rafstöð er ætluð til þess að knýja rafmagnsverkfæri og skaff a rafmagn til lýsingar. Kynnið ykkur upplýsingar framleiðanda heimilistækja ef að þau eiga að vera tengd við rafstöðina. Ef óvissa kemur upp, leitið þá upplýsinga hjá þjónustuaðila þessa tækis. Þetta tæki má einungis nota í þau verk sem það er framleitt fyrir. Öll önnur notkun sem fer út fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins. Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskini, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Við tökum enga ábyrgð á tækinu, sé það notað í iðnaði, í atvinnuskini eða í tilgangi sem á einhvern hátt jafnast á við slíka notkun.

Nota má þetta tæki undir samfl eyttu álagi með uppgefnu afl i. Notkun S2 (notkun í styttri tíma) Nota má þetta tæki í stuttan tíma með uppgefnu afl i (5 mínútur). Eftir það veður að leyfa tækinu að standa kyrrstæðu til þess að það ofhitni ekki (5 mínútur).

Setjið standfót, hjól og haldfang á tækið eins og lýst er á myndum 6-9.

Setjið tækið saman að fullu áður en að eldsneyti og olía er fyllt á það til þess að koma í veg fyrir að þessi efni sullist niður.

Til að setja hjólin á tækið verður að renna hjólaöxlinum (15) í gegnum festingarnar á neðri hlið rafstöðvarinnar of festið þvínæst hjólin (14) á öxulinn eins og lýst er á mynd 7. Athugið vel við áfestingu haldfangs (18) að bogna hliðin (mynd 9 / staða E) snúi út á við til þess að það sé hægt að brjóta haldfangið saman seinna.

Rafmagnsleiðslur og tæki sem tengdar eru við þetta tæki og verða að vera í fullkomnu ásigkomulagi.

Einungis má tengja tæki við þetta tæki sem nota sömu spennu og úttaksspenna rafstöðvarinnar.

Tengið aldrei rafstöðina við aðra rafrás (innstungu).

Skilið óhreinu viðhaldsefni og öðrum efnum sem notuð eru á tækið til endurnotkunar á þar til gerða sorpmótökustöð

Skilið einnig umbúðum, málmi og gerviefnum til endurnotkunarstöðvar.

Til þess að leiða burtu stöðuspennu er nauðsynlegt að jarðtengja tækishúsið. Til þess verður að tengja einn enda rafmagnsleiðslu á hlið rafalsins (mynd 3 / staða 4) og hinn endann við utanaðkomandi jörð (eins og til dæmis jarðtengingarstöng).

Varúð! Áður en að tækið er tekið til notkunar í fyrsta skipti verður að fylla á mótorolíu og eldsneyti.

Yfirfarið stöðu eldsneytis og fyllið á ef þörf er

Gangið úr skugga um að það sé nægilega vel loftað um tækið.

Gangið úr skugga um að kertaþráðurinn sé tengdur við kertið

Yfirfarið svæðið í kringum rafstöðina.

Aftengið tæki sem tengd eru við rafstöðina.

Opnið eldsneytiskrana (13); snúið honum niður til þess að opna hann

Setjið höfuðrofann (10) í stellinguna „ON“

Setjið innsogið (11) í stellinguna I Ø I

Gangsetið mótor með gangsetningarþræðinum (12); togið kröftuglega í þráðinn. Ef að mótorinn fer ekki í gang, ætti að toga aftur í gangsetningarþráðinn

Setjið innsogið (11) aftur til baka eftir að mótorinn er kominn í gang. Varúð! Við gangsetningu mótors með gangsetningarþræði getur myndast bakslag vegna mótors, þetta getur orsakað meiðsl á höndum. Notið hlífðarvettlinga við gangsetningu mótors.

Þegar að rofinn (mynd 1 / staða 25) er settur til vinstri er hægt að nota 230V~ innstunguna. Varúð: Nota má innstungurnar samfleytt (S1) með 1500W álagi og í stutta stund (S2) eða í að hámarki 5 mínútur með 1800W álagi.

Ef að rofinn (mynd 1 / staða 25) er settur til hægri er 400V 3~ innstungan virk. Varúð: Nota má innstungurnar samfleytt (S1) með 2600W álagi og í stutta stund (S2) eða í að hámarki 5 mínútur með 2800W álagi.

Rafstöðin er ætluð til 230 V~ og 400V 3~ riðspennu.

Tengið rafstöðina ekki við heimilisrafrás. Við það getur rafstöðin skemmst og önnur tæki sem tengd eru við rafrásina. Tilmæli: Sum rafmagnstæki (mótorsagir, borvélar og þessháttar) geta haft hærri straumþörf á Anl_SE_3000_SPK7.indb 144Anl_SE_3000_SPK7.indb 144 11.06.2018 09:05:2511.06.2018 09:05:25IS

meðan að unnið er undir mikli álagi.

Látið rafstöðina ganga í smá stund án álags áður en að slökkt er á henni þannig að rafallinn nái að kólna niður.

Setjið höfuðrofann (10) í stellinguna „OFF“

Lokið eldsneytiskrananum.

Þessi rafstöð búin álagsöryggi. Þetta öryggi rýfur strauminn við viðeigandi innstungu ef of mikið álag er á tækinu. Varúð! Ef svo er, minnkið þá álagið sem sett er á tækið eða aftengið biluð tæki. Varúð! Biluð álagsöryggi má einungis vera skipt út af samskonar öryggi. Leitið til viðurkennds þjónustuaðila. 230V~ innstungur: Við of mikið álag er straumurinn að 230V~ innstungunum (mynd 3 / staða 3) rofi nn. Með því að gera álagsöryggið (mynd 3 / staða 5) virkt aftur er hægt að taka 230V~ innstungurnar aftur til notkunar. 400V 3~ innstungur: Við of mikið álag er straumurinn að 400V 3~ innstungunni (mynd 3 / staða 24) rofi nn. Með því að gera álagsöryggið (mynd 3 / staða 26) virkt aftur er hægt að taka 400V 3~ innstungurnar aftur til notkunar.

7. Hreinsun, umhirða og pöntun

varahluta Slökkvið á mótor tækis og takið kertahettuna af kertinu áður en að hreinsun eða umhirða á tæki er hafi n. Varúð: Slökkvið tafarlaust á tækinu og leitið til þjónustuaðila:

Ef tækið byrjar að titra eða ef óeðlilegt hljóð kemur frá því

Ef að mótor virðist vera ofgert og ef að erfitt er að gangsetja hann

Haldið hlífum, loftrifum og mótorhúsi tækisins eins lausu við ryk og óhreinindi og hægt er. Þurrkið af tækinu með hreinum klút eða blásið af því með háþrýstilofti.

Við mælum með því að tækið sé hreinsað eftir hverja notkun.

Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og örlítilli sápu. Notið ekki hreinsilegi eða ætandi efni; þessi efni geta skemmt plastefni tæki- sins. Gangið úr skugga um að það komist ekki vatn inn í tækið. Ef vatn kemst inn í rafmagns- verkfæri, eykst hætta á raflosti.

Farið eftir leiðbeiningum varðandi umhirðu og þjónustu.

Hreinsið loftsíu reglulega of skiptið um hana ef þörf er á því

Opnið báðar klemmurnar (mynd 11/A) og fjarlægið loftsíulokið (mynd 11/B)

Fjarlægið síueininguna (mynd 12/C)

Til að hreinsa loftsíueininguna má ekki nota sterka hreinsivökva né bensín.

Hreinsið loftsíueininguna með því að slá henni við sléttan flöt. Ef að loftsían er mjög óhrein er hægt að hreinsa hana með sápuvatni og skola hana síðan með fersku vatni áður en að hún er lögð til þurrkunar í fersku lofti.

Yfi rfarið kertið í fyrsta skiptið eftir um það bil 20 vinnustundir og athugið hvort að það sé orðið óhreint og hreinsið það ef þörf er á með koparbursta. Eftir það ætti að yfi rfara kertið á 50 vinnustunda millibili.

Dragið kertahettuna (mynd 13) af kertinu á meðan að henni er snúið létt.

Fjarlægið kertið (mynd 14 / staða D) með meðfylgjandi kertalykli

Samsetning fer fram eins og sundurtekningin í öfugri röð

7.4 Skipt um olíu, olíustand yfi rfarið (fyrir

hverja notkun) Mótor tækis ætti að vera heitur þegar að skipt er um olíu á honum.

Notið einungis (15W40) mótorolíu

Setjið rafstöðina niður á góðan flöt og hallið henni örlítið á móti olíuaftöppunarskrúfunni.

Opnið olíuáfyllingarlokið

Opnið olíuaftöppunarlokið og látið heita olíu leka niður í viðeigandi ílát.

Fyllið nú á mótorolíu þar til að yfirborð hennar er á merkingunni á olíukvarðanum.

Varúð: Skrúfið olíukvarðann ekki inn til þess að athuga áfyllingarástand olíunnar heldur stingið honum einungis inn í gatið.

Farga verður gamalli olíu á réttan hátt.

Olíuöryggið verður gert virkt sjálfkrafa ef að of lítil olía er á mótor tækisins. Ef svo er, er ekki hægt að gangsetja mótorinn eða hann slekkur á sér sjálfkrafa eftir stutta stund. Einungis er hægt að gangsetja mótor á ný eftir að búið er að fylla á mótorolíu (sjá lið 7.4).

Inni í tækinu eru engir aðrir hlutir sem hirða þarf um.

Látið tækið kólna. (í um það bil 5 mínútur)

Hreinsið ytra hús tækisins.

Geymið tækið á köldum og þurrum stað fjarri eldi, neista og eldfimra efna.

7.8 Pöntun varahluta:

Þegar að varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind;

Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á Verð og upplýsingar eru að fi nna undir www.isc-gmbh.info

8. Förgun og endurnotkun

Þetta tæki er afhent í umbúðum sem hlífa tækinu fyrir skemmdum við fl utninga. Þessar pakkningar endurnýtanlegar eða hægt er að endurvinna þær. Þetta tæki og aukahlutir þess eru úr mismunandi efnum eins og til dæmis málmi og plastefnum. Skemmd tæki eiga ekki heima í venjulegu heimilissorpi. Til þess að tryggja rétta förgun á þessu tæki ætti að skila því til þar til gerðra sorpmóttökustöðvar. Ef að þér er ekki kunnugt um þessháttar sorpmóttökustöðvar ættir þú að leita til bæjarskrifstofur varðandi upplýsingar.

Notið ávalt haldfangið til þess að flytja ljósavélina og keyra hana.

Færið tækið einungis með flutningahaldfanginu.

Bilun Ástæða Lausn Ekki er hægt að gangsetja mótor Olíuöryggi er virkt Kertið er ryðgað eða tært Eldsneytisgeymir er tómur Yfi rfarið ástand olíu, fyllið á mótorolíu. Hreinsið kerti eða skiptið um það. Kertamillibil er 0,6 mm Fyllið á eldsneyti / látið yfi rfara eldsneytiskrana Rafall hefur enga eða of lága spennu Stýring eða þéttir er bilaður Útsláttaröryggi hefur slegið út loftsía er óhrein Hafi ð samband við þjónustuaðila Setjið öryggið inn aftur og minnkið álag á tækið Hreinsið síuna eða skiptið um hana Anl_SE_3000_SPK7.indb 147Anl_SE_3000_SPK7.indb 147 11.06.2018 09:05:2511.06.2018 09:05:25IS

Sérstök skilyrði fyrir lönd Evrópubandalagsins: Kastið ekki notuðum rafmagnstækjum í vanalega ruslatunnu. Samkvæmt reglugerð fyrir Evrópu 2012/19/EU um gömul rafmangstæki og samkvæmt breytingum í lagasetningu hverrar þjóðar sambandsins verður að safna raftækjum aðskilið og koma fleim í sérstaka endurvinnslu í flágu umhverfi sverndar. Í staðinn fyrir að senda tækin til baka er eigandi þeirra hvattur til að vinna að því að rétt endurvinnsla eigi sér stað þegar hann afsalar sér tækinu sem eigandi. það er mögulegt að afhenda tækið til sérstakrar söfnunarstofnunar, sem sér um endurvinnslu tækisins samkvæmt lögum hinna ýmsu þjóða um endur- vinnslu og sorp. þetta á samt ekki við um viðbótarhluti, sem innihalda ekki rafmagnshluta. Eftirprentun eða önnur fjölprentun fylgiskjala og leiðarvísa vörunnar, líka í úrdrætti, er ekki leyfi leg nema grerinilegt samflykki frá iSC GmbH komi til. Það er áskilið að tæknilegar breytingar séu leyfi legar Anl_SE_3000_SPK7.indb 148Anl_SE_3000_SPK7.indb 148 11.06.2018 09:05:2511.06.2018 09:05:25IS

Þjónustuupplýsingar Við höfum faglega þjónustuaðila í öllum þeim löndum sem að ábyrgðarskýrteini ef gefi ð út á og er hei- milisfang þeirra gefi ð upp í ábyrgðarskírteininu. Þessir þjónustuaðilar eru til staða fyrir þig varðandi við- gerðir, pantanir varahluta og íhluta. Athuga verður að sumir eftirtaldir hlutir tækisins eru hlutir sem notast upp við notkun eða á annan nát- túrulegan hátt og/eða eftirfarandi hlutir er eru nauðsynlegir vegna notkunar eða slits. Grein Dæmi Slithlutir* Kerti, Loftsía, Bensínsía Notkunarefni/hlutir sem notast upp* Hlutir sem vantar

  • verða ekki endilega að fylgja! Vegna galla eða bilana biðjum við þig um að hafa samband við skrá það á netinu undir www.isc-gmbh. info. Vinsamlegast athugið að lýsa biluninni nákvæmlega og svarið endilega eftirfarandi spurningum:

Virkaði tækið fyrst eða var það bilað strax frá upphafi?

Varð þér vart við eitthvað óvenjulegt áður en bilunin kom til (greining bilunar)?

Hvaða bilun lýsir sér í tækinu samkvæmt þinni skoðun (aðalbilun)? Lýsið biluninni. Anl_SE_3000_SPK7.indb 149Anl_SE_3000_SPK7.indb 149 11.06.2018 09:05:2511.06.2018 09:05:25IS

Ábyrgðarskírteni Kæri viðskiptavinur, vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef að tækið virkar þrátt fyrir það ekki fullkomlega, þykir okkur það mjög leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilis- fang er að fi nna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem að tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:

1. Ábyrgðarskýrteini þessa tækis gildir eingöngu fyrir einkanotendur, þ.e.a.s persónur sem nota þetta

tæki ekki til atvinnunota né í annarri sjálfstæðrar vinnu. Þetta ábyrgðarskírteini lýsir aukalegri ábyrgð sem að neðan nefndur framleiðandi ábyrgist viðskiptavinum sínum umfram þær ábyrgðir sem reglur og lög gefa kröfur um. Þín almenna lagaleg ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgðaliði. Ábyr- gðarþjónusta okkar eru þér að kostnaðarlausu.

2. Ábyrgðin nær eingöngu yfi r galla á nýju tæki sem þú hefur fest kaup á sem var framleitt af neðang-

reindum framleiðanda. Ábyrgðin nær einungis yfi r galla sem eru vegna efnisgalla eða framleiðslugal- la og takmarkast við okkar ákvörðun um að endurbæta gallan eða skipta út tækinu. Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskini, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef að tækið er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskini eða annan slíkan sambærilegan hátt.

3. Ábyrgð okkar gildir ekki yfi r:

- Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangrar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notandaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tækið hefur verið tengd við ranga rafspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækis varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tækið hefur verið no- tað undir óeðlilegum náttúruáhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu. - Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir íhlutir eða aukahlutir), ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tækið (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, fl utningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða uta- naðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tækið fellur niður). - Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra uta- naðkomandi eðlilegra uppnotkunar.

4. Ábyrgðartíminn eru 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaups á tæki. Tilkynna verður um

skemmdir eða galla á tæki áður en að ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemm- din er fundin. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi eftir að ábyrgðartímabilið er útrunnið. Ef að gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd til staðar.

5. Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafi ð þá samband við: www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast geymið

kaupkvittanir og önnur skjöl sem staðfesta kaupin á nýju tæki. Tæki sem send eru til viðgerðar sem ekki hafa tilskildar kvittanir eða tæki án tækismerkingar missa alla ábyrgð þar sem ekki er hægt að tilgreina þau tæki. Ef að skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess færð þú umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla. Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notandaleiðbeiningunum. Anl_SE_3000_SPK7.indb 150Anl_SE_3000_SPK7.indb 150 11.06.2018 09:05:2611.06.2018 09:05:26SE

Handbókaraðstoðarmaður
Knúið af ChatGPT
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Herkules

Líkan : SE 3000

Flokkur : Générateur