CHAR BROIL Digital Smoker 725 - Plaque de grill

Digital Smoker 725 - Plaque de grill CHAR BROIL - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis Digital Smoker 725 CHAR BROIL á PDF sniði.

📄 144 síður Íslenska IS 💬 AI spurning
Notice CHAR BROIL Digital Smoker 725 - page 68

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Plaque de grill á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Digital Smoker 725 - CHAR BROIL og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Digital Smoker 725 vörumerkisins CHAR BROIL.

NOTENDAHANDBÓK Digital Smoker 725 CHAR BROIL

Notið ekki innandyra eða til matreiðslu á vinnustöðum. Notið tækið eingöngu á vel loftræstu svæði. NOTANDI: Geyma skal handbókina til að geta leitað í hana síðar. UPPSETNINGARAÐILI/ SAMSETNINGARAÐILI: Látið neytandann hafa handbókina. Uppsetningarðili/eigandi ber ábyrgð á samsetningu, uppsetningu og viðhaldi grillsins. Notkun og öryggi framlengingarsnúru

  • Til að afköst grillsins séu sem best er ekki mælt með notkun framlengingarsnúru. Ef nauðsynlegt er að nota framlengingarsnúru vegna eigin öryggis:
  • Notið aðeins framlengingarsnúru fyrir notkun utandyra og sem eru skráðar fyrir 10 amperum.
  • Notið eins stutta framlengingarsnúru og hægt er. Tengið ekki 2 framlengingarsnúrur eða fleiri saman.
  • Haldið raftengingum þurrum og látið þær ekki hvíla á jörðinni.
  • Látið snúruna ekki hanga fram yfir borðsbrún eða öðrum hlutum þar sem börn geta togað í hana eða dottið um hana. Börn eldri en 8 ára og aðilar með skerta líkamlega eða andlega hæfni eða sem vantar reynslu og þekkingu mega nota tækið undir umsjón eða ef þeir hafa fengið leiðbeiningar um notkun tækisins á öruggan hátt og skilja hvaða hættur fylgja því. Börn mega ekki leika sér með tækið. Ekki skal leyfa börnum að sjá um hreinsun og viðhald tækisins án umsjónar nema þau séu eldri en 8 ára. Geymdu heimilistækið og snúru þess þar sem börn yngri en 8 ára ná ekki til. Vörunni má ekki farga með heimilisrusli. Þessari vöru verður að farga á vottaðri endurvinnslustöð fyrir raftæki og rafeindatæki. Með því að safna saman og endurvinna úrgang hjálparðu til við að vernda náttúruauðlindir og tryggir að tækinu sé fargað á umhverfisvænan og heilbrigðan hátt.
  • Þetta tæki er skráð fyrir: 220-240 volt - 50-60 Hz, afl 800 W Flokkur I, IPX4
  • Tengið tækið eingöngu við jarðtengda rafmagnsinnstungu sem er vernduð með útsláttarrofa og hefur skráðan notkunarstraum sem nemur í mesta lagi 30 mA.
  • Skoðið rafmagnssnúruna reglulega í leit að skemmdum eða sliti. Ekki nota ef snúran er skemmd.
  • Ef rafmagnssnúran er skemmd verður framleiðandinn, þjónustufulltrúi hans eða álíka hæfir aðilar að skipta um hana til að koma í veg fyrir hættu.
  • Skiptið skemmdum hlutum eingöngu út fyrir Char- Broil varahluti. Reynið ekki að gera við skemmda hluti.
  • Ef eldsvoði kemur upp skal setja stjórnhnappinn í stöðuna OFF (SLÖKKT), taka grillið úr sambandi og leyfa eldinum að brenna út. Notið ekki vatn til að slökkva eld í þessu tæki eða öðrum raftækjum.
  • Til að forðast brunasár skal tryggja að grillið hafi kólnað áður en rafræni stjórnhnappurinn og hitunarbúnaðurinn er tekinn úr og/eða hreinsaður. Breytið ekki þessari vöru.
  • Breytið ekki þessari vöru.
  • Notið tækið eingöngu eins og greint er frá í þessari handbók.
  • Notið tækið ekki á svæði þar sem fólk gengur um og þar sem hætta er á að það flækist í snúrunni.
  • Ekki nota þetta tæki með utanaðkomandi tímastilli eða aðskildu fjarstýringarkerfi. Í þessari leiðbeiningahandbók er að finna mikilvægar upplýsingar um örugga notkun tækisins. Lesið og fylgið öllum öryggisyfirlýsingum, samsetningarleiðbeiningum og notkunar- og umhirðuleiðbeiningum áður en reynt er að setja tækið saman og nota til matreiðslu. Vanræksla á eftirfylgni leiðbeininga framleiðandans gæti leitt til alvarlegra meiðsla og/eða eignaskemmda. Þetta tæki er í samræmi við tæknilega staðla og öryggiskröfur fyrir raftæki.
  • Notkun áfengis eða lyfseðilsskyldra eða lyfseðilslausra lyfja getur skert hæfni notandans til þess að setja tækið rétt saman og nota það á réttan hátt.
  • Til að forðast raflost skal taka rafmagnssnúruna úr sambandi og fjarlægja rafstjórnbúnaðinn áður en hitunarbúnaðurinn er tekinn úr grillinu og það hreinsað. Dýfið aldrei rafstjórnbúnaðinum eða hitunarbúnaðinum í vökva.
  • Notið tækið ekki á sömu rafrás og önnur hástraumstæki.

1. Snertið ekki heitt yfirborð með óvörðum höndum.

Notaðu handfang á bakhlið sem er ætlað til flutninga. ATHUGASEMND: Handfang á bakhlið er ekki ætlað til að lyfta heimilistækinu.

2. Skiljið tækið aldrei eftir án eftirlits þegar KVEIKT er á því

3. Haltu börnum frá grillinu bæði þegar það er heitt og kalt.

4. Notaðu löng grilláhöld til að elda.

5. Leyfðu grillinu að kólna áður en það er flutt til, hreinsað eða

6. Eldið ekki undir þaki.

7. Haltu grillinu í 92 cm fjarlægð

frá veggjum og slám.

8. AÐEINS TIL NOTKUNAR

UTANDYRA Notið ekki innandyra eða til matreiðslu á vinnustöðum.

9. Notið hvorki né geymið dísel, kerósen eða aðra eldfima

vökva í innan við 6 metra fjarlægð frá grillinu þegar það er í notkun.

10. Geymið grillið á svæði sem er verndað frá veðri eða undir

hlíf fyrir grill þegar það er ekki í notkun.

11. Notið eingöngu fylgihluti sem framleiðandi mælir með.

12. Uppsetningarðili/eigandi ber ábyrgð á samsetningu,

uppsetningu og viðhaldi grillsins.

13. Ekki hylja eldunargrind með álpappír. Þetta gæti leitt til

ofhitunar og skemmda á heimilistækinu.

14. Notaðu aðeins dreypisbakkann samkvæmt leiðbeiningum.

Ekki setja hann á eldunargrindurnar meðan á notkun stendur.

15. Reykingarkassa VERÐUR að nota í hvert skipti.

16. EKKI skilja eftir gamla viðarösku í reykingarkassanum.

Tæmið reykingarkassa eftir hverja notkun.

17. Fargið kaldri ösku með því að setja hana í álfilmuumbúðir,

bleyta í vatni yfir nótt og farga í óbrennanlegu íláti. Áður en grillið er notað í fyrsta sinn:

  • Fjarlægið allar umbúðir og sölumerkingar af grillinu. Notið ekki beitt verkfæri til að fjarlægja límmiðana.
  • Þvoið eldunargrindur með heitu sápuvatni, skolið og þurrkið rækilega. Fyrir hverja notkun grillsins:
  • Notið grillið aðeins á hörðu og jafnsléttu svæði til að forðast að það velti. EKKI færa heimilistækið yfir ójafnt yfirborð.
  • Til að koma í veg fyrir að útsláttarrofar heimilisins taki rafmagnið af skal halda rafstjórnbúnaðinum þurrum og ekki nota önnur raftæki á sömu rás.
  • Athugið fitubakkann til að tryggja að hann sé tómur og að hann sé festur rétt undir aftöppunaropinu.
  • Til að matvælin festist ekki við grillið skal bera gott lag af jurtaolíu eða jurtaolíugrunnaðan úða á eldunargrind.

Þegar raftæki eru notuð skal ávallt fylgja almennum öryggisráðstöfunum eftir, þar með talið:

LESIÐ ALLAR LEIÐBEININGAR

  • Snertið ekki heitt yfirborð með óvörðum höndum. Notið þar til gerð handföng og hnappa.
  • Til að vernda gegn raflosti skal ekki dýfa rafmagnssnúrunni, rafmagnsklóm eða hitunarbúnaði í vatn eða aðra vökva.
  • Skiljið tækið ekki eftir án eftirlits.
  • Nauðsynlegt er að fylgjast náið með tækjum þegar þau eru notuð af eða nálægt börnum. Haldið börnum og gæludýrum ávallt fjarri tækinu.
  • Þetta tæki er ekki leikfang.
  • Skiljið tækið aldrei eftir án eftirlits þegar KVEIKT er á því (ON).
  • Takið tækið úr sambandi þegar það er ekki í notkun og áður en það er fært til eða hreinsað. Leyfið tækinu að kólna áður en hlutir eru settir á það eða teknir af.
  • Notið aldrei tæki sem eru með skemmda snúru eða kló eða ef það virkar ekki sem skyldi eða hefur skemmst á einhvern hátt.
  • Notkun viðtengds búnaðar sem framleiðandi hefur ekki mælt með getur valdið meiðslum. Notið eingöngu fylgihluti sem framleiðandi mælir með.
  • Látið snúruna ekki hanga fram yfir borðsbrún eða brún á innréttingu, eða komast í snertingu við heita fleti.
  • Ekki nota heimilistækið til annars en ætlað er. Tækið er ekki ætlað sem kynding og skal aldrei nota sem slíka.
  • Til að koma í veg fyrir að vatn skvettist á tækið eða að það detti í vatn skal ekki nota það í innan við 3 metra fjarlægð frá sundlaug, polli eða öðru vatni.
  • Haldið grillinu og rafræna stjórnbúnaðinum þurrum og fjarri regni.
  • Látið raftengi ekki hvíla á jörðinni og haldið þeim þurrum.
  • Notið ekki vatn eða annan vökvaúða til að hreinsa tækið án þess að taka það fyrst úr sambandi við rafstjórnbúnaðinn og fjarlægja hitunarbúnaðinn.
  • NOTIÐ EKKI KOL. Kvikna mun í kolunum og grillið er ekki hannað fyrir kol. Eldurinn mun skapa óöruggar aðstæður og skemma grillið.
  • Eldsneyti, svo sem kolamolar eða hvaða vökvi sem er, má ekki nota með tækinu.
  • Þetta tæki verður heitt við notkun og eftir að notkun lýkur. Notaðu einangraða ofnvettlinga eða hanska og grilláhöld með löngum handföngum til varnar gegn heitum fleti eða skvettum frá eldunarvökva.
  • Notið hvorki né geymið dísel, kerósen eða aðra eldfima vökva í innan við 7 metra fjarlægð frá grillinu þegar það er í notkun. Haldið svæðinu í kringum tækið hreinu og lausu við brennanleg efni.
  • Færið ekki tækið þegar það er í notkun.
  • Þegar verið er að elda skal hafa tækið á jöfnu, stöðugu yfirborði og á svæði þar sem engin brennanleg efni eru til staðar.
  • Ekki nota gufuhreinsi til að hreinsa grillið þitt.

GEYMIÐ LEIÐBEININGARNAR

Notkun og umhirða grillsins 92 cm 92 cm 69• Hreinsaðu grillið með hreinsiefni sem ekki er slípiefni.• Hreinsið eldunargrindurnar reglulega með heitusápuvatni eða matarsóda og vatnslausn. Hreinsaðueldunargrindur, vatnspönnu, kjöthitamæli ogdreypisbakkann reglulega með volgu sápuvatni eðamatarsóda og vatnslausn. Ef broddabursti er notaðurtil að hreinsa matreiðslufleti grillsins skal tryggja aðengir lausir broddar séu eftir á eldunarflötum áðuren grillið er notað. Ekki er mælt með að hreinsaeldunaryfirborð þegar grillið er heitt.• Hreinsaðu yfirborð hitastillana eftir hverja notkun.Það eru tveir hitastillir staðsettir að aftan, á innanvegggrillsins.• Ef grillið þitt er með glugga, skaltu ekki nota slípiefniá gluggann. Notaðu hreinsiefni sem er viðurkennttil notkunar á keramikhellur. Gluggi er perlugler ogbrotnar ekki við venjulega notkun.• Fyrir reykingarkassa, hreinsið oft til að fjarlægjaöskusöfnun, leifar og ryk.• Fargið kaldri ösku með því að setja hana íálfilmuumbúðir, bleyta í vatni yfir nótt og farga íóbrennanlegu íláti.• Þéttingu hurðar VERÐUR að þrífa með rökum klút eftirhverja notkun til að halda þeim við rétt vinnuskilyrði.Ábendingar um öryggi• Ef þú átt í vandræðum með heimilistækið, skoðaðu þá„Úrræðaleit kaflann“.• Hreinsið grillið oft, helst eftir hverja notkun. Ef broddaburstier notaður til að hreinsa eldunarfleti grillsins skal tryggjaað engir lausir broddar séu eftir á eldunarflötunumáður en grillið er notað. Ekki er mælt með að hreinsaeldunaryfirborð þegar grillið er heitt.• EKKI opna hurðina á grillinu á meðan verið er að nota það,nema að nauðsyn sé. Með því að opna hurðina getur hitisloppið út og hægt á eldunartímanum.• NOTIÐ EKKI KOL. Kvikna mun í kolunum og grillið er ekkihannað fyrir kol. Eldurinn mun skapa óöruggar aðstæðurog skemma grillið.• Tréflísar verður að nota til að framkalla reykt bragð.

  • Vanræksla á eftirfylgni leiðbeininga framleiðandans gæti leitt til alvarlegra meiðsla og/eða eignaskemmda.
  • Vertu varkár þegar þú notar grillið þitt.
  • Lestu og fylgdu öllum upplýsingum og öryggisráðstöfunum í þessari vöruhandbók áður en þú reynir að setja saman eða nota þetta grill. Til að nota grillið á öruggan hátt og koma í veg fyrir alvarleg meiðsli:
  • Notkun áfengis eða lyfseðilsskyldra eða lyfseðilslausra lyfja getur skert hæfni notandans til þess að setja tækið rétt saman og nota það á réttan hátt.
  • Þegar verið er að elda skal hafa tækið á jöfnu, stöðugu yfirborði og á svæði þar sem engin brennanleg efni eru til staðar.
  • Skiljið tækið ekki eftir án eftirlits. Haldið börnum og gæludýrum ávallt fjarri tækinu.
  • Færið ekki tækið þegar það er í notkun.
  • Tækið er ekki ætlað sem kynding og skal aldrei nota sem slíka.
  • Þetta tæki verður heitt við notkun og eftir að notkun lýkur. Notaðu einangraða ofnvettlinga eða hanska og grilláhöld með löngum handföngum til varnar gegn heitum flötum eða skvettum frá eldunarvökva.
  • Haldið svæðinu í kringum tækið hreinu og lausu við brennanleg efni.
  • Haltu heimilistækinu hreinu og lausu við brennanleg efni, bensín og aðra eldfima gufu og vökva.
  • Notið tækið eingöngu á vel loftræstu svæði. Ef eldsvoði kemur upp skal setja stjórnhnappinn í stöðuna OFF (SLÖKKT), taka grillið úr sambandi og leyfa eldinum að brenna út. Notið ekki vatn til að slökkva eld í þessu tæki eða öðrum raftækjum. Til að koma í veg fyrir rafstuð skaltu aftengja rafmagnssnúruna áður en þú þrífur grillið. Dýfið aldrei rafstjórnbúnaðinum eða hitunarbúnaðinum í vökva.

HÆTTA Notið ekki beitt eða oddmjó verkfæri til að hreinsa grillið. Notið ekki hrjúf ofnhreinsiefni, stálull eða málmbursta til að hreinsa postulínsgrindur eða grillskrokkinn. Það skemmir áferðina. Skiptið skemmdum hlutum eingöngu út fyrir Char-Broil varahluti. Reynið ekki að gera við skemmda hluti.

VARÚÐ 70Íbúðarhúsnæði: Spyrjið hússtjórn til að fá upplýsingar um kröfur og eldvarnarkóða fyrir gasgrill innan íbúðarbyggingarinnar Notaðu aðeins eins og leyfilegt er. Matvælaöryggi Matvælaöryggi er mjög mikilvægur þáttur í því að njóta matreiðslu utandyra. Til að forða matvælum frá skaðlegum bakteríum skaltu fylgja þessum fjórum grunnskrefum: Þrifnaður: Þvoðu hendur, áhöld og yfirborð með heitu sápuvatni fyrir og eftir meðhöndlun á hráu kjöti og alifuglum. Aðskiljið: Aðgreindu hrátt kjöt og alifugla frá tilbúnum matvælum til að koma í veg fyrir krossmengun. Notaðu hreint fat og áhöld þegar þú fjarlægir eldaðan mat. Eldun: Eldið kjöt og alifugla vandlega til að drepa bakteríur. Notaðu hitamæli til að tryggja rétt hitastig innan matvæla. Kæling: Kælið tilbúinn mat og afganga strax í kæli. Hvernig á að vita hvort kjöt er eldað vandlega

  • Kjöt og alifuglar sem eldaðir eru í heimilistækinu brúnast oft mjög hratt að utan. Notaðu aðeins þítt kjöt og kjöthitamæli til að vera viss um að matur hafi náð öruggum innri hita og skera í mat til að athuga sjónræn merki um hvort hann sé tilbúinn.
  • Við mælum með að matur sé að minnsta kosti 4,4 °C áður en hann er eldaður í heimilistækinu.
  • Heilir alifuglar ættu að ná 74°C. Safi ætti að renna út glær og holdið ætti ekki að vera bleikt.
  • Nautakjöt, kálfakjöt og lambasteikur, steikur og svínakótilettur er hægt að elda á 71°C.
  • EKKI elda kjöt eða alifugla að hluta og ljúka eldun seinna. Eldið mat alveg til að eyða skaðlegum bakteríum.
  • Notaðu hitamæli til að tryggja rétt hitastig innan matvæla. Að hreinsa grillið: Mikil uppsöfnun brenndrar fitu og matarleifa minnkar eldunargetu grillsins. Til að afköstin séu sem mest:
  • Hreinsaðu að innan og utan að minnsta kosti einu sinni á tímabili, oftar með mikilli notkun.
  • Bestur árangur næst með því að bursta burt agnir sem safnast fyrir í botni grillsins.
  • Notaðu milt þvottaefni eða heitt sápuvatn og skrúbbaðu innra yfirborð grillsins í meðallagi með plast- eða broddabursta. HEIT YFIRBORÐ EKKI snerta handfang reykingarkassans meðan á notkun stendur. Handfangið getur orðið heitt og getur valdið meiðslum. Ef þú verður að snerta handfangið meðan á notkun stendur vertu þá viss um að vera með nógu góða öryggishanska til að koma í veg fyrir meiðsli.

VARÚÐ 71Notkunarleiðbeiningar stjórnborðs Notkunarleiðbeiningar stjórnborðs (framhald) f) Þegar 2 tímar eru liðnir skaltu slökkva á grillinu og láta það kólna. g) Eftir að kryddferlinu er lokið er grillið þitt nú tilbúið til notkunar. VARÚÐ: Grillið er HEITT meðan á notkun stendur. Notið hlífðarhanska þegar mjög heitir hlutir eru meðhöndlaðir. Að nota reykingarkassann: Reykingarkassinn er það sem gerir þér kleift að bæta reyktu bragði við matinn þinn. Fylltu einfaldlega reykingarkassann með tréflísum upp að viðkomandi stigi og renndu honum á sinn stað áður en grillið er hitað upp. Reykingarkassann er hægt að fylla upp að mismunandi stigi til að standast stutta og langa eldun. Það eru margar tegundir tréflísa sem skila sér í mismunandi bragði. Fyrir töflu með áætlað magn tréflísa og tímahlutfall eldunar og upplýsingar um reykbragð, skaltu vinsamlegast skoða handbók um grillun. ATHUGASEMD:

  • Reykingarkassinn er hannaður eingöngu fyrir tréflísar eða köggla, ekki nota viðarbita.
  • Notaðu grillið alltaf með reykingarkassa á sínum stað óháð því hvort þú notir tréflísar eða ekki. Þú skalt aldrei fjarlægja né fylla reykingarkassann á meðan þú eldar Notkun vatnspönnunnar: Tækið þitt er útbúið vatnspönnu. Hægt er að nota vatnspönnuna til að halda kjötinu röku við matreiðslu. Til að nota; fylltu vatnspönnuna af volgu vatni (kalt vatn getur lækkað hitastig eldunartækis) upp að merkingu um hámarksvatnsmagn og renna pönnunni á sinn stað. Ekki fylla vatnspönnuna of mikið. ATHUGASEMD:
  • Notkun vatns er ekki nauðsynleg til að reykja.
  • Notaðu grillið alltaf (þ.m.t. við forhitun) með vatnspönnu á sínum stað óháð því hvort þú notar vatn eða ekki. Fjarlægðu aldrei vatnspönnuna meðan á eldun stendur.
  • Ef fylla þarf á vatnspönnu við eldun skaltu alltaf fylla í gegnum gatið á dreypisbakkanum. Gæta skal varúðar við áfyllingu vatnspönnu til að forðast að vökvi komist í snertingu við hitaldið. Alvarlegt tjón á hitaldi gæti valdið, þar með talið blossa og rafmagnsbilunar. Að elda með grillinu þínu - ATHUGASEMD: Hitaðu alltaf grillið með reykingarkassa á sínum stað, með tréflísum ef þær eru notaðar. 1)Stilla forhitunarlotuna a) Ýttu á hitastillingarhnappinn. b) Haltu inni „UPP“ eða „NIÐUR“ takkanum til að hækka eða lækka þar til stafirnir „PH“ birtast. Slepptu hnappinum. „PH“ blikkar. c) Ýttu aftur á hitastillingarhnappinn. Skjárinn blikkar ekki lengur sem gefur til kynna að „PH“ sé stillt. d) Skjárinn sýnir „PH“, ekkert hitastig verður sýnt meðan á forhitun stendur. e) Tækið mun sjálfkrafa hefja forhitunarferlið. f) Forhitunarlotan mun keyra í 40 mínútur. g) Eftir að 40 mínútna forhitunarlotu lýkur:
  • Tækið lækkar sjálfkrafa innra hitastig.
  • Skjárinn blikkar «00:00» (engin hitastilling mun birtast)
  • Það heyrist hljóðmerki - 3 hljóðmerki í byrjun og síðan 3 hljóðmerki einu sinni á 30 sekúndna fresti eftir það.
  • Hitastigslestur stjórnborðsins getur sveiflast á milli plús eða mínus 5-8°C þegar búnaðurinn vinnur til að viðhalda réttri hitastillingu eldunar.
  • Ýttu einu sinni á rofann og heimilistækið er nú tilbúið til að taka á móti innsláttarstillingum frá hitastigshnappnum, tímastillihnappnum og/eða kjöthitamælahnappnum.
  • Ef kveikt er á heimilistækinu og það látið vera eftirlitslaust í 19 klukkustundir slokknar á tækinu sjálfkrafa.
  • Stýrieiningin les og birtir innri hitastillingu eldunar í °C, tíma í 00:00 (klukkustundir:mínútur) og kjöthitastig í °F. Hægt er að breyta hitamælingalestri úr °C í °F með því að ýta á “UPP” og “NIÐUR” hnappana samtímis í 3 sekúndur. Hægt er að breyta hitastigslestrinum aftur í °C úr °F með sömu aðferð.
  • Hitald byrjar ekki að hitna fyrr en þú slærð inn stillingarnar fyrir hitastig og tíma eða kjöthitamæli og hitastig. ATHUGASEMD: Þú verður að velja að elda annaðhvort eftir tíma eða hitastigi kjöthitamælis. Þessar aðgerðir munu ekki virka samtímis.
  • Ef kjöthitamælirinn er ekki tengdur við grillið er slökkt á aðgerðinni fyrir hann.

1) Kryddaðu grillið þitt

ATHUGASEMD: Kryddaðu grillið þitt fyrir fyrstu eldun. a) Gakktu úr skugga um að vatnspanna sé á sínum stað með ENGU VATNI og reykingarkassi sé á sínum stað án tréflísa. b) Settu tækið í samband. Skjárinn mun strax fá afl. Píp heyrist þegar einingin er tengd. c) Ýttu á Afltakkann einu sinni, stjórnbúnaðurinn er nú tilbúinn. d) Ýttu á Hitastigshnappinn stilltu hitastigið á 135°C, hámarksstilling, með því að nota “UPP” eða “NIÐUR” hnappana. e) Ýttu á Tímasetningarhnappinn og stilltu tímann á 2 klukkustundir með því að nota “UPP” eða “NIÐUR” hnappana, (Framhald á næstu blaðsíðu) Aflhnappur - Slekkur og kveikir á grillinu Upp hnappur - bæta við tíma/hitastigsgildi Niður hnappur - draga frá tíma/hitastigsgildi Hitastigshnappur - skiptir um inntak til að stilla eldunartíma Tímastillingarhnappur - skiptir um inntak til að stilla eldunartíma Kjöthitamælihnappur - skiptir inntakinu til að stilla tilætlað hitastig kjöthitamælis Ljós í hólfinu - Kveikt/Slökkt 72• Það heyrist hljóðmerki 3 hljóðmerki og síðan 3 hljóðmerki einu sinni á 30 sekúndna fresti eftir það þangað til ýtt er á Afltakkann eða náð hefur 19 tíma hámarki fyrir sjálfvirkri stöðvun.

4) Kjöthitamælihnappur

Skjásvið: 10°C til 107°C ATHUGASEMD: Timastillir aðgerð verður gerð óvirk. a) Ýttu á kjöthitamælihnappinn og sjálfgefin hitastigsstilling kjöthitamælisins, 63°C, birtist og blikkar. b) Ýttu á „UPP“ eða „NIÐUR“ hnappinn til að hækka eða lækka tilætlað hitastig kjöthitamælis. a) Ýttu aftur á kjöthitamælihnappinn eftir að viðkomandi kjöthitastig hefur verið slegið inn. d) Eftir að ýtt hefur verið á kjöthitamælihnappinn ætti skjárinn ekki að blikka lengur sem gefur til kynna að hann sé stilltur. h) Þegar kjöthitamæliaðgerðin er notuð ætti skjárinn að sýna hitastig hólfsins og raunverulegt hitastig kjöthitamælisins. Skjárinn mun skiptast í gegnum lengd eldunarferilsins. f) Þegar tilætluðu hitastigi kjöthitamælisins hefur verið náð:

  • Stjórntæki lækkar sjálfkrafa hitastig innan þess í 49°C.
  • Skjárinn skiptist á milli raunverulegs hitastigs kjöthitamælis og 49°C.
  • Það heyrist hljóðmerki 3 hljóðmerki og síðan 3 hljóðmerki einu sinni á 30 sekúndna fresti eftir það þangað til ýtt er á afltakkann eða náð hefur 19 tíma hámarki fyrir sjálfvirkri stöðvun.

5) Það er hægt að taka kjöthitamælirinn úr matnum hvenær

sem er. Ef kjöthitamælirinn er ekki tengdur eða nær ekki tilætlaðri hitastillingu, heldur rafmagn til hitaldsins áfram þar til ýtt er á Afltakkann eða 19 tíma hámarksnotkun hefur verið náð til þess að sjálfvirk stöðvun fer fram.

6) Valfrjáls LED ljósahnappur: Þessi hnappur kveikir og

slekkur á ljósi hólfsins, sé hann til þess hæfur. Að hreinsa festingu hitaldsins:

  • Festinguna má hreinsa með rökum klút og mildu hreinsiefni eða heitu sápuvatni.
  • Þurrkið rafstjórnbúnaðinn og hitaldbúnaðinn fyrir notkun. Að geyma grillið:
  • Hreinsið eldunargrindina.
  • Geymið grillið á svæði sem er verndað frá veðri eða undir hlíf fyrir grill þegar það er ekki í notkun. Framhald h) Þú getur þá notað hitastillingarhnappinn, kjöthitamælihnappinn eða tímastillingarhnappinn til að byrja að nota grillið. ATHUGASEMD: Tækið slokknar sjálfkrafa á sér ef 60 mínútur eru liðnar frá upphaflegu 40 mínútna forhitunarlotunni (40 mínútna forhitun + 1 klukkustund = 100 mínútur í heild) MIKILVÆGT: Eldaðu alltaf bæði með vatnspönnuna og reykingarkassann á sínum stað, hvort sem þeir eru fylltir eða ekki.

2) Notkun hitastigshnappsins

Skjásvið: 38°C - 135°C a) Ýttu á hitastillingarhnappinn. Sjálfgefin hitastigsstilling er sýnd, sem er 93°C. b) Haltu inni „UPP“ eða „NIÐUR“ takkanum til að hækka eða lækka tilætlaðan eldunarhita. (Skjárinn ætti að hækka eða lækka sjálfkrafa þegar ýtt er á hnappinn og stöðva þegar hnappnum er sleppt.) c) Ýttu aftur á hitastillingarhnappinn eftir að tilætluð hitastigsstilling er stillt. Eftir að ýtt hefur verið á hitastigshnappinn mun skjárinn ekki blikka lengur, sem gefur til kynna að það sé stillt.

3) Notkun tímastillingarhnappsins

Skjásvið: 00:00 – 19:00 hours. ATHUGASEMD:: Kjöthitamælir aðgerð verður óvirk. a) Ýttu á Tímastillingarhnappinn, og blikkandi „00:00“ er sýnt. b) Haltu inni „UPP“ eða „NIÐUR“ takkanum til að hækka eða lækka klukkutímann („00:00“) í 1 klukkustunda þrepum. (Skjárinn ætti samt að blikka.) (Skjárinn ætti að hækka eða lækka sjálfkrafa þegar ýtt er á hnappinn og stöðva þegar hnappnum er sleppt.) c) Ýttu aftur á Tímastillingarhnappinn eftir að klukkustundarhluti eldunartímastillingar hefur verið sleginn inn. Eftir að ýtt er á Tímastillingarhnappinn og klukkustundarhlutinn valinn (“00:00”) ætti hann ekki lengur að blikka sem gefur til kynna að hann sé stilltur. d) Mínútuhlutinn (“00:00”) mun enn blikka á þessum tímapunkti þar sem hann hefur ekki enn verið stilltur. b) Haltu inni „UPP“ eða „NIÐUR“ takkanum til að hækka eða lækka mínútuhlutann (“00:00”). Skjárinn ætti samt enn að blikka. c) Ýttu aftur á Tímastillingarhnappinn eftir að tilætlaður mínútuhluti (“00:00”) eldunartímastillingarinnar hefur verið sleginn inn. Eftir að ýtt er Tímastillingarhnappinn ætti mínútuhlutinn (“00:00”) ekki lengur að blikka sem gefur til kynna að hann sé stilltur. g) Eftir að ýtt er á Tímastillingarhnappinn í fyrra skrefi ætti tíminn að byrja að telja niður. h) Þegar notað er Tíma aðgerð, ætti skjárinn að sýna stillt eldunarhitastig og raunverulegan mælitíma (niðurtalning). Þeir ættu að skiptast á meðan á eldunarferlinu stendur.

i) Þegar tilsettur tími er liðinn:

  • Stjórntæki lækkar sjálfkrafa hitastig innan þess í 49°C.
  • Skjárinn sveiflast milli klukkan 00:00 og 49°C og sýnir að stilltur tími er liðinn.
Handbókaraðstoðarmaður
Knúið af ChatGPT
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : CHAR BROIL

Líkan : Digital Smoker 725

Flokkur : Plaque de grill