ge90s - Four Petromax - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis ge90s Petromax á PDF sniði.

📄 96 síður Íslenska IS 💬 AI spurning
Notice Petromax ge90s - page 92
Handbókaraðstoðarmaður
Knúið af ChatGPT
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Petromax

Líkan : ge90s

Flokkur : Four

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Four á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína ge90s - Petromax og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. ge90s vörumerkisins Petromax.

NOTENDAHANDBÓK ge90s Petromax

Leiðarvísir fyrir Petromax-gashelluborðið Kærar þakkir fyrir að velja Petromax-gashelluborðið. Við erum sannfærð um að þú munir eiga margar ánægjustundir við helluborðið og njóta þeirrar miklu fjölbreytni sem fylgir því að elda úti. Notið tæki aðeins úti. Lesið leiðarvísinn vandlega áður en tækið er tekið í notkun. Öryggisábendingar Við gaslykt:

1. Alls ekki taka gashelluborðið í notkun.

2. Lokið fyrir gasstreymi til tækisins.

3. Slökkvið logandi eld ef einhver er.

4. Ef lyktin finnst áfram, haldið þá fjarlægð frá gashelluborðinu og látið slökkviliðið og

seljanda gaskútanna strax vita. Annars getur eldsvoði eða sprenging hlotist af með tilheyrandi munatjóni eða alvarlegum meiðslum, jafnvel dauða. ge45-s ge90-s Efnisyfirlit Inngangur og mikilvægar ábendingar 89 Vörulýsing 89 Öryggisábendingar og viðvaranir 90 Viðeigandi lönd, tengiskilyrði og afltölur 91 Innihald pakkans og tæknilýsing 91-92 Samsetning og fyrsta notkun 92 Leiðbeiningar fyrir gastengið - LP-gas 92-93 Athugun fyrir fyrstu notkun og endurteknar athuganir 93 Áður en gashelluborðið er notað 93-94 Hreinsun og umhirða 94 Viðhald og geymsla 94 Ábyrgð og þjónusta 95 Bilanagreining 95 Inngangur og mikilvægar ábendingar Í þessum leiðarvísi eru mikilvægar upplýsingar um samsetningu, fyrstu notkun og örugga notkun Petromax-gashelluborðsins. Lesið þennan leiðarvísi vandlega áður en gashelluborðið er sett saman og notað. Athugið öryggisábendingarnar sérstaklega. Varðveitið leiðarvísinn vel þannig að hann sé ávallt tiltækur þegar Petromax gashelluborðið er notað. Þegar gas- helluborðið er falið öðrum á ávallt að láta leiðarvísinn fylgja. Vörulýsing Petromax gashelluborðið er ákjósanleg eldunaraðstaða utandyra. Gasbrennarinn hefur nóg afl til að elda og steikja jafnvel í stórum eldföstum pottum og -pönnum við opinn loga. Stórt vindskjól ver gaslogann og skermar eldunarsvæðið af. Það gefur möguleika á orkusparandi eldamennsku úti undir berum himni. Vegna þess hversu einfalt er að nota LP-gas verður matreiðslan hreinleg og skipuleg og laus við reyk eða neistaflug eða rykugar, brenndar leifar. Vegna þess að gasbrennarinn er falinn er helluborðið þægilega hljóðlátt meðan það er í notkun. Gashelluborðið hefur 80 kg burðarþol með einum brennara og 100 kg með tveim og því eru eldþolnir pottar og pönnur úr steypujárni ávallt stöðugir á helluborðinu og í þægilegri vinnuhæð (87 cm). Petromax gashelluborðið er færanlegt og má því stilla því upp og taka í notkun á fljótlegan hátt í garðinum, á svölunum eða í útilegu. Hugtök og tákn sem notuð eru Fylgið skilyrðislaust eftirfarandi öryggisábendingum við notkun Petromax gashelluborðsins. Sé það ekki gert getur alvarlegt munatjón og meiðsli hlotist af. Öryggisábendingarnar skiptast í nokkra flokka. Sú flokkun segir ekkert til um mikilvægi ábendinganna. Flokkarnir eru allir jafnmikilvægir og ber að fara eftir öllum ábendingunum. Þetta tákn þýðir ástand sem getur leitt til heilsutjóns eða skemmda á tækinu.

Börn mega ekki nota Petromax gashelluborðið. Allir hlutar helluborðsins verða mjög heitir þegar það er notað. Því skal börnum og dýrum ávallt haldið frá gashelluborðinu, alveg sérstaklega þegar það er í notkun! q Hafið ávallt gætur á gashelluborðinu meðan það er í notkun! q Gashelluborðið er ekki ofn og má ekki nota það til almennrar hitunar! q Þetta gashelluborð er ekki ætlað í atvinnuskyni! q Ekki nota gashelluborðið fyrr en allir hlutar þess hafa verið settir saman og tengdir!

Meðhöndlið Petromax gashelluborðið ávallt af gætni. Gashelluborðið verður heitt við notkun. Látið það aldrei úr augsýn meðan það er í notkun og reynið aldrei að hreyfa það meðan það er í notkun eða heitt! q Ef notandinn neytir áfengis og/eða ávísunarskyldra eða óávísunarskyldra lyfja getur það haft áhrif á getu hans til að setja gashelluborðið saman og nota á öruggan hátt. Þar af leiðandi ætti fólk, sem er undir áhrifum áfengis eða ávísunarskyldra eða óávísunarskyldra lyfja, ekki að nota gashelluborðið! q Hafið viðeigandi slökkvibúnað ávallt í seilingarfjarlægð frá gashelluborðinu!

Ekki nota gashelluborðið ef það er skemmt eða ef slöngur, íhlutir o.s.frv. eru skemmdir. Ekki gera sjálf(ur) við skemmdir, heldur hafið samband við söluaðila grillsins eða framleiðanda! q Ekki nota gashelluborðið í rigningu eða roki! Öryggisábendingar og viðvaranir um staðsetningu og notkun

Notið Petromax gashelluborðið aðeins utandyra þar sem loftar vel um. Það má aldrei nota í lokuðu rými. Ekki nota gashelluborðið í bílskúr, kofa, skýli eða yfirleitt inni í einhvers konar mannvirki! q Gashelluborðið er ekki hugsað til að vera innbyggt. Ekki hafa gasgrillið í einhvers konar skúffu né heldur inni í skáp. Röng notkun getur valdið eldsvoða eða sprengingu með tilheyrandi munatjóni og/eða alvarlegum meiðslum, jafnvel dauða! q Notið Petromax gashelluborðið aldrei í skottinu á bíl eða skutbíl, fjölnotabíl, rúgbrauði, jeppa eða húsbíl! q Ekki nota gasgrillið í báti eða annars konar farartæki! q Þegar gashelluborðið er notað þarf það að standa á láréttri, stöðugri undirstöðu og engin brennanleg efni mega vera nálægt. Á mjúkri undirstöðu geta fæturnir sokkið niður þannig að grillið standi ekki lengur lárétt! q Gætið þess að setja grillið saman og nota það í fyrsta sinn samkvæmt forskrift. Fylgið því skrefunum sem lýst er í þessum leiðarvísi. Lesið í því skyni kaflann Samsetning og fyrsta notkun svo og Leiðarvísi fyrir gastengið - LP-gas. Aldrei reyna að breyta gashellu- borðinu með einhvers konar smíðavinnu. Það getur haft slys í för með sér. Auk þess fellur þá öll ábyrgð úr gildi. Röng notkun getur valdið eldsvoða eða sprengingu með tilheyrandi munatjóni og/eða alvarlegum meiðslum á fólki eða dýrum, jafnvel dauða.

Aldrei beygja þig yfir gashelluborðið við eldamennsku. Klæðist ávallt viðeigandi klæðnaði. Löngum, víðum ermum er hætt við íkveikju. q Hætta á meiðslum! Notið aðeins eitt sett af eldunaráhöldum á hvern gasbrennara. q Gashelluborðið og allir íhlutar þess verða mjög heitir við notkun. Notið hitaþolna hanska við notkun gashelluborðsins. Við mælum með Petromax Aramid Pro 300 hönskunum. q Þegar matarolía eða feiti er notuð skal viðeigandi slökkvibúnaður (duftslökkvitæki, elds- lökkviteppi) vera til reiðu innan seilingar.

Ef eldur kviknar, farðu þá sjálf(ur) og láttu alla aðra fara í örugga fjarlægð frá gashelluborðinu og hringdu strax á slökkviliðið!

Reynið aldrei að slökkva eld í olíu eða feiti með vatni. Annars getur orðið eldsvoði, sprenging eða eldlogi með tilheyrandi munatjóni eða alvarlegum meiðslum, jafnvel dauða. q Eldunaráhöldin sem þú notar við gashelluborðið skulu vera á bilinu 15-35 cm í þvermál. q Gashelluborð með einum brennara þolir mest 80 kg álag, eldið með tveim brennurum mest 100 kg. q Ef byrjar að rigna meðan gashelluborðið er í notkun skal strax slökkva alveg á því. Reynið alls ekki að hreyfa það. Öryggisábendingar og viðvaranir um umgengni við gas og hreinsun gashelluborðsins q Notið aðeins staðlaða gaskúta fyrir Petromax-gashelluborðið.

Ekki geyma varagaskúta eða ótengda gaskúta undir gashelluborðinu eða nálægt því, þ.e. ekki nær en 3 m. q Geymið og/eða notið hvorki bensín né aðra eldfima vökva eða efni í minna en 8 m fjarlægð frá gashelluborðinu. q Ekki setja eldfima hluti á gashelluborðið eða nálægt því. q Eldfim efni (þurrar jurtir, viður, pappír, gras o.fl.) mega ekki vera í minna en 60 cm fjarlægð fyrir ofan, undir, fyrir aftan eða við hliðina á gashelluborðinu. q Ekki má nota jarðgas til að knýja gashelluborðið. Hættulegt er að breyta gashellu- borðinu þannig að það geti notað jarðgas eða reyna að nota það með jarðgasi, ef það er gert ógildist ábyrgðin.

Ef það slokknar á brennaranum meðan grillið er í notkun, lokið þá fyrir alla gasventla. Bíðið í fimm mínútur áður en kveikt er aftur á brennaranum. Sjá kaflann Áður en gashelluborðið er notað í þessum leiðarvísi.

Ef það kviknar í feiti, stillið þá alla brennara á „OFF“ [•] og skrúfið fyrir gaskútinn. Hafið duftslökkvitæki og/eða slökkviteppi við höndina til notkunar í neyð.

Eftir að Petromax gashelluborðið hefur verið í geymslu eða ekki notað lengi, aðgætið þá að það leki ekki gas eða brennarinn sé stíflaður. Leiðbeiningar þar að lútandi má finna í kaflanum Athugun fyrir fyrstu notkun og endurteknar athuganir. q Aldrei leita að gasleka með opnum loga. q Aldrei nota Petromax gashelluborðið ef gastengi er óþétt. q Þegar gashelluborðið er ekki í notkun, lokið þá fyrir ventilinn á gaskútnum og aften- gið hann. Geymið gaskútinn á stað sem loftar vel um utandyra eða í hálfopnu skýli. q Þegar þú skiptir um gaskúta, gangið þá úr skugga um að ekki séu neinir eldgjafar nálægt. q Verjið gasslönguna ávallt gegn hita. Haldið henni fjarri öllum hitagjöfum. q Aðeins má skipta um eða tengja gaskút utandyra og fjarri eldkveikjum.

Dældaður og/eða ryðgaður gaskútur getur valdið hættu. Aldrei nota gaskút með skemmdum ventli.

Jafnvel í gaskúti sem er næstum tómur er ávallt eitthvert gas. Því skyldi flytja og geyma tóman gaskút með sömu varúð og fullan kút. Flytjið gaskút aðeins með ventilinn lokaðan og ventillokið skrúfað á eða með ásettri ventilhlíf í tilviki kúta án varnarkraga. Hafið gaskút ekki lengur í bíl en flutningurinn tekur og tryggið að lofti um hann á meðan.

Reynið aldrei að taka gasstillinn eða aðra íhluti gasleiðslunnar í sundur meðan gashelluborðið er í notkun. q Ekki hreyfa gaskútinn meðan gashelluborðið er í notkun. q Notið eingöngu leyfða gasslöngu og þrýstingsminnkara. q Gasslangan má ekki vera lengri en 1,5 m. q Hreinsið Petromax gashelluborðið reglulega. Sjá kaflann Hreinsun og umhirða.

Þegar ventlar eða brennarar eru hreinsaðir, þá ekki stinga neinu inn í túður eða tengi. Þau geta skemmst.9191

P (50), 110 Própan, 50 mbar, 5 kW, 371,0 g/h, ge45-s Própan, 50 mbar, 10 kW, 742,0 g/h, ge90-s Gastegund, tengiþrýstingur, afl, notkun, tilvísunarnúmer Innihald pakkans og tæknilýsing Innihald pakkans Aðgættu þegar þú tekur upp úr pakkanum að ekkert vanti. Eftirgreindir hlutir eru í pakkanum: Petromax gashelluborðið með einum brennara:

2. 1 undirstaða fyrir eldunaráhöld (má fjarlægja)

6. 4 festingar fyrir fætur

7. 1 breytistykki fyrir tengisett (þrýstingsjafnara og slöngu)

8. Leiðarvísir (ekki á mynd)

Petromax gashelluborðið með tveim brennurum:

2. 2 undirstaða fyrir eldunaráhöld (má fjarlægja)

6. 4 festingar fyrir fætur

7. 1 breytistykki fyrir tengisett (þrýstingsjafnara og slöngu)

8. Leiðarvísir (ekki á mynd)

Tæknilýsing Gerð ge45-s, ge45-s-30, ge45-s-37 ge90-s, ge90-s-30, ge90-s-37 H x B x D 115,6 x 57,7 x 67,7 cm 115,6 x 102,7 x 67,7 cm Efni Stál, duftlakkað Stál, duftlakkað Efni undirlags fyrir eldunaráhöld Ryðfrítt stál Ryðfrítt stál Þyngd 13,3 kg 20,5 kg Fjöldi gasbrennara 1 2 Mál eldunarsvæðis u.þ.b. 45 x 45 cm u.þ.b. 45 x 45 cm Burðarþol (hám.) 80 kg 100 kg Hæð vindskjóls (að aftan) 28 cm 28 cm Efnisþykkt skjólplötu 2 mm 2 mm Lengd fóta 77,2 cm 77,2 cm Þvermál fóta 3,2 cm 3,2 cm Tækjaflokkur og gastegund sjá töflu „Viðeigandi lönd, tengiskilyrði og afltölur“ sjá töflu „Viðeigandi lönd, tengiskilyrði og afltölur“ Tengiþrýstingur sjá töflu „Viðeigandi lönd, tengiskilyrði og afltölur“ sjá töflu „Viðeigandi lönd, tengiskilyrði og afltölur“ Samsetning og fyrsta notkun Ekki taka Petromax gashelluborðið í notkun ef íhlutir eru gallaðir eða þá vantar. Fylgið öllum ábendingum kaflans Öryggisábendingar og viðvaranir í þessum leiðarvísi.

Stingið fótunum í þar til gerð göt, herðið festingarnar og reisið gashelluborðið upp (athugið: hafa má mismunandi breidd á milli fótanna). Veljið flata, stöðuga og eldþolna undirstöðu. Annars geta fæturnir sokkið ofan í jörðina þannig að gashelluborðið halli. Það er líka hægt að nota gashelluborðið án fóta.

2. Ef þú vilt nota vindskjólið, komdu því þá fyrir svo lamirnar vísi út og skrúfaðu það fast

með vængskrúfunum. Ábending: Það má setja gasgrillið saman og taka það aftur í sundur eins oft og þarf fyrir flutning eða geymslu.

Tengið gaskútinn eins og útskýrt er í næsta kafla, Gaskútur tengdur, í þessum leiðarvísi. Eftir það er hægt að elda og steikja úti í eldþolnum pottum, pönnum o.þ.h. á Petromax gashelluborðinu. Leiðbeiningar fyrir gastengið - LP-gas Petromax-gashelluborðið má aðeins nota með leyfðu gasi. Mikilvægar upplýsingar um gaskút Kúturinn skal ávallt hafður uppréttur í helluborðinu, í flutningi og geymslu. Hann má aldrei falla niður né meðhöndla hann af kæruleysi. Aldrei má geyma gaskútinn þar sem sól skín á hann eða þar sem hiti getur farið yfir 51°C (óþægilega heitur við snertingu). Skiljið gaskút t.d. ekki eftir í bíl á heitum dögum. Sjá kaflann Ábendingar um örugga umgengni um LP-gas. Sé ekki farið eftir öryggisábendingum getur hlotist af eldsvoði með tilheyrandi munatjóni eða alvarlegum meiðslum, jafnvel dauða. ALDREI geyma varagaskúta eða ótengda gaskúta undir gashelluborðinu eða nálægt því. Sé ekki farið eftir þessari reglu getur það valdið munatjóni, eldsvoða og/eða alvarlegum meiðslum, jafnvel dauða. Ábendingar um örugga umgengni um LP-gas

LP-gas er efnaolíuafurð eins og eldsneyti og jarðgas. Það er loftkennt við venjulegt hitastig og þrýsting. Við háan þrýsting eins og í gaskút er það fljótandi. Ef þrýstingurinn minnkar gufar gasið strax upp og verður loftkennt.

LP-gas lyktar svipað og jarðgas vegna lyktarefnis sem blandað er í það. Verið á varðbergi gagnvart þessari lykt svo gasleki greinist strax.

LP-gas er þyngra en loft. Gas sem streymir út safnast saman í lægðum og dreifist þá ekki.

  • Gaskúturinn skal ávallt hafður uppréttur í gashelluborðinu, í flutningi og geymslu.
  • Ekki má láta gaskúta falla og ber ávallt að meðhöndla þá af varúð.
  • Aldrei geyma gaskútinn þar sem sól skín á hann eða þar sem hiti getur farið yfir 51°C (óþægilega heitur við snertingu). Skiljið gaskút t.d. ekki eftir í bíl á heitum dögum eða þar sem sól skín á hann.
  • Meðhöndlið tóma gaskúta af sömu varúð og fulla. Jafnvel þó lítið sé eftir í gaskútnum er samt gas undir þrýstingi í honum. Lokið ávallt fyrst fyrir ventilinn á gaskútnum áður en kúturinn er fjarlægður úr gashelluborðinu.

Ekki nota skemmda gaskúta. Gaskútar sem eru dældaðir, ryðgaðir eða eru með skemm- dan ventil eru hættulegir og ber tafarlaust að skipta þeim út fyrir nýja kúta.

  • Gáið að leka í tenginu milli slöngunnar og gaskútsins í hvert sinn sem gaskúturinn er (ný-)tengdur við gashelluborðið. Framkvæmið slíka athugun í hvert sinn sem skipt er um gaskút. Mikilvægar öryggisráðstafanir sem ber að gera áður en gashelluborðið er tengt Fylgið eftirfarandi skrefum áður en gaskútur er tengdur við Petromax gashelluborðið.

Gangið úr skugga um að engar eldkveikjur og/eða opinn eldur séu nálæg áður en gaskúturinn er tengdur.

2. Gangið úr skugga um að um sé að ræða rétta gerð af gaskút með réttri gerð af ventli.

3. Gangið úr skugga um að lokað sé fyrir ventilinn (lokað er fyrir hann með því að snúa

4. Gangið úr skugga um að gasslangan sé ekki lengri en 1,5 m og að á henni sé réttur

Gangið úr skugga um að allir íhlutir séu gallalausir og að á gasslöngunni séu engar sprungur, brot eða sviðablettir.

6. Gangið úr skugga um að það sé alveg slökkt á gashelluborðinu og að lokað sé fyrir

Gaskúturinn tengdur Notið aðeins staðlaða gaskúta með Petromax-gashelluborðinu. ALDREI geyma varagaskúta eða ótengda gaskúta undir Petromax gas- helluborðinu eða nálægt því. Gangið úr skugga um að lokað sé fyrir ventilinn áður en gaskúturinn er tengdur. Gangið úr skugga um að þrýstingsjafnarinn sé af réttri gerð fyrir grillið samkvæmt reglu- gerðum. Fylgið eftirfarandi skrefum til að tengja gaskútinn við gashelluborðið.

1. Skrúfið meðfylgjandi breytistykki við gastengið á gashelluborðinu.

2. Festið tengisettið sem þú fékkst sérstaklega. Fylgið leiðarvísinum og sérstaklega öryg-

Gangið úr skugga um að hvorki séu brot á gasslöngunni né gallar svo sem götóttir staðir eða sviðablettir.

4. Ekki tengja gashelluborðið strax, heldur athugið hvort gastengið leki. Fylgið í því sam-

bandi eftir kaflanum Þéttleikaathugun. Fyllt á gaskútinn Við mælum með því að þú látir fylla á gaskút gashelluborðsins eða skiptir honum út áður en hann er orðinn alveg tómur. Skilið gaskútnum til söluaðilans til að hann fylli á hann eða skipti honum út. Gaskúturinn fjarlægður: A) Lokið fyrst fyrir gasstreymið með því að skrúfa fyrir gaskútsventilinn. Lokið síðan fyrir gasstreymið með stjórnhnappinum á gashelluborðinu til að fyrirbyggja eldsprengingu. B) Aftengið síðan alla ventla og slönguna með þrýstingsjafnaranum frá gaskútnum. C) Skiptið tóma gaskútnum út fyrir nýjan hjá söluaðila. Athugun fyrir fyrstu notkun og endurteknar athuganir Framkvæmið sjónræna athugun og þéttleikaathugun áður en byrjað er að nota gashelluborðið hverju sinni. Við mælum með athugun á virkni brennara áður en gashelluborðið er notað í fyrsta sinn og alltaf eftir að hann hefur verið hreinsaður, best er ef fagfólk framkvæmir hana og a.m.k. á tveggja ára fresti.

Við sjónræna athugun skal sérstaklega aðgæta að gaskútnum sé komið rétt fyrir. Það þýðir að farið sé eftir öryggisábendingum og að hann sé rétt tengdur (sjá kaflann Leiðbeinin- gar um tengingu gaskúts – gas og síðari kafla). Einnig skal athuga að gasslangan og þrýstingsjafnarinn uppfylli nýjustu öryggis- og skoðunarkröfur og séu ekki eldri en 10 ára.

Gangið úr skugga um að það sé alveg slökkt á gashelluborðinu. Gáið ávallt að gasleka þegar þú hefur tekið gasleiðandi íhluti svo sem gasslöngu, þrýstingsjafnara eða gaskút í sundur og sett saman aftur. Framkvæmið slíkt lekapróf einnig ef söluaðili setti gashelluborðið þitt saman. Aldrei kveikja á gasbrennurunum meðan þú framkvæmir lekapróf. Aldrei leita að gasleka með opnum loga. Gangið úr skugga um hvorki geti kviknað neistar né sé opinn eldur nálægt áður en þú gáir að leka. Neistar eða opinn eldur geta valdið sprengingu með tilheyrandi munatjóni og/eða alvarlegum meiðslum, jafnvel dauða. Fagfólk skal athuga nothæfi og öryggi gashelluborðsins á tveggja ára fresti þar eð gasleiðin getur orðið óþétt með tímanum. Fylgið eftirfarandi skrefum til að kanna hvort tengin leki gasi: Þú þarft gaskút, sápulausn og klút til að bera hana á. Þú getur líka notað froðumyndandi lekaleitarefni frá söluaðila. A) Blandið sápu eða uppþvottavökva í vatn eða hafið viðeigandi lekaleitunarefni. B) Opnaðu gaskútventilinn með því að snúa handhjólinu rangsælis. C) Athugaðu nú hvort leki sé með því að væta tengingarnar við sápulausnina eða leka uppgötvunarúða. Ef loftbólur myndast, eða ef kúla verður stærri, þá er leki. Gerið eftirfarandi ef leki er á einum eða fleiri stöðum Fylgið eftirfarandi skrefum ef leki er á einum eða fleiri stöðum:

1. Ef þú finnur að tengi lekur, herðið það þá með hendinni (ráðlagt) og gáið aftur að leka

með sápulausn eða lekaleitarúða.

2. Ef það lekur ennþá eftir að þú hefur hert tengið, skrúfið þá fyrir gasið. EKKI HALDA

ÁFRAM AÐ NOTA GRILLIÐ!

3. Fjarlægið sápulausnina eða lekaleitarúðann af tengjunum með rökum klúti.

4. Þurrkið svo viðkomandi íhluti með þurrum klúti.

Snúið þér til söluaðila. Tengiliðaupplýsingar um söluaðila eru á vefsíðu okkar undir www.petromax.de Gerið eftirfarandi ef hvergi lekur

1. Skrúfið fyrir gasstreymið við gaskútinn eftir að lekaathugun er lokið.

2. Fjarlægið sápulausnina eða lekaleitarúðann af tengjunum með rökum klúti.

3. Þurrkið svo viðkomandi íhluti með þurrum klúti.

4. Notið gashelluborðið samkvæmt ábendingunum í þessum leiðarvísi.

3. Athugun á virkni brennara

Við mælum með að láta fagfólk athuga virkni brennara áður en grillið er notað í fyrsta sinn og alltaf eftir að hann hefur verið hreinsaður. Þegar virkni brennara er athuguð skal fylgst með loganum. Hann má aðeins loga á þar til gerðu svæði á gasbrennaranum. Ef eldur kemur upp annars staðar, slökkvið þá strax á gashelluborðinu og skrúfið fyrir gaskútinn. Eftirfarandi logamyndanir gætu bent til galla:

  • Loginn er of lítill eða sótar. Ef loginn er ekki eins og hann á að vera skal stilla hann þegar athugun á virkni brennara fer fram. Þú getur ekki framkvæmt þá stillingu sjálf(ur), af öryggisástæðum er það á verksviði fagfólks. Rétt logamyndun:
  • Úr öllum opum brennarans koma jafnir logar.
  • Þeir skjótast ekki upp og skreppa heldur ekki saman.
  • Þeir eru bláleitir með gulum oddi. Áður en gashelluborðið er notað Athugið í hvert sinn áður en þú notar gashelluborðið hvort það séu brot, sprungur, götótt svæði, slitför eða skurðarför á slöngunni. Ef þú finnur skemmdir á slöngunni, þó smáar séu, má ekki nota gashelluborðið. Skiptið slöngunni út fyrir leyfða nýja slöngu með réttum þrýstingsminnkara. Ef spurningar vakna, skal leita til söluaðila. Tengiliðaupplýsingar um söluaðila eru á vefsíðu okkar undir www.petromax.de9494

Slökkt á gasbrennaranum og gaskúturinn aftengdur Fylgið eftirfarandi skrefum ef slökkva skal á gashelluborðinu:

  • Skrúfið fyrir gasstreymið við gaskrana gaskútsins með því að loka fyrir gasventilinn. Strax og loginn á gasbrennaranum slokknar, snúið þá stjórnhnappi brennarans yfir í stöðuna „OFF [•] og látið gashelluborðið kólna alveg. Við mælum með að láta það kólna í a.m.k. hálftíma. Aftengdu gaskútinn frá gashelluborðinu. Aðalloftstilling gasbrennarans er forstillt með skrúfu. Þú mátt alls ekki breyta laðaloftstillingunum. Ef galli kemur upp má aðeins fagfólk framkvæma lagfæringu. Gastúðan er mikilvægur íhlutur kveikjukerfisins. Hana má hvorki fjarlægja né breyta sjálf(ur). Ef galli kemur upp má aðeins fagfólk skipta um hana. Hreinsun og umhirða Ekki hreinsa gashelluborðið ef það er í notkun eða tengt við gaskút. Hreinsaðu gashelluborðið aðeins ef það hefur kólnað alveg. Ekki hreinsa gashelluborðið með ofnahreinsi, slípiefnum (eldhúshreinsi), hreinsiefni með sítrónu eða öðrum sterkum eða eldfimum hreinsiefnum. Ekki nota slípisvamp við hreinsun. Einkum eru húðaðir yfirborðsfletir gashelluborðsins mjög viðkvæmir. Ekki dýfa gashelluborðinu í vatn. Þú mátt þrífa matarleifar og óhreinindi af öllum hlutum Petromax gashelluborðsins með algengum hreinsiefnum (t.d. uppþvottalegi, allsherjar-/hlutlausum hreinsi o.þ.h.). Ávallt ber að hreinsa húðaða yfirborðsfleti gashelluborðsins af varúð. Fylgið eftirfarandi skrefum til að hreinsa gashelluborðið. Slökkvið alveg á gashelluborðinu og bíðið þar til það hefur kólnað alveg.

1. Aftengið gashelluborðið frá gaskútnum.

Fjarlægið varlega fitu og aðrar leifar af yfirborði gashelluborðsins og vindskjólinu með volgu sápuvatni og lófríum klúti og strjúkið síðan yfir með hreinu vatni.

3. Þurrkið síðan með þurrum klúti.

Við mælum með því að þú þrífir gasbrennarana a.m.k. einu sinni á ári með pípuhreinsara. Viðhald og geymsla Geymið gasgrillið ávallt þar sem börn eða dýr komast ekki að því. Ekki geyma gashelluborðið með tengdan gaskút. Gashelluborðið skal ávallt geyma þurrt þar sem börn eða dýr komast ekki að því. Hrein- sið matarleifar og óhreinindi af gashelluborðinu áður en þú setur það í geymslu. Fylgið eftirfarandi skrefum til að setja gashelluborðið í geymslu eftir notkun.

Gangið úr skugga um að gashelluborðið hafi kólnað alveg og sé laust við veruleg óhreinindi.

2. Gangið úr skugga um að allir stjórnhnappar séu í stöðunni „OFF“ [•].

3. Gangið úr skugga um að gashelluborðið sé aftengt frá gaskútnum og að skrúfað sé

Geymið gashelluborðið á þurrum stað sem er varinn fyrir veðri og vindum. T.d. í garðhýsi, bílskúr eða álíka.

5. Hyljið gashelluborðið til að verja það gegn ryki.

6. Geymið eldunaráhöldin fyrir gashelluborðið helst aðskilið og/eða pakkaðu þeim vel

inn til að verja þau gegn ryðmyndun.

7. Geymið gaskútinn á svölum, frostfríum, þurrum stað. Geymið hann á stað sem loftar

vel um, ekki í kjallara eða nálægt lægðum, niðurföllum eða stokkum.Abläufen oder Schächten. Notkun gashelluborðs með innbyggðri þrýstirafkveikju Áður en þú notar hellur gashelluborðsins skaltu fylgja skrefum kaflanna Samsetning og fyrsta notkun og Leiðbeiningar fyrir gastengið – LP-gas og lesa og skilja öryggisáben- dingarnar. Fylgið eftirfarandi skrefum til að kveikja á einum brennara gashelluborðsins og nota til eldunar. Kveikið ávallt á einu eldunarsvæði á eftir öðru (aldrei á báðum samtímis!)

  • Bíðið með að setja potta, pönnur eða önnur áhöld á eldunarsvæði.
  • Skrúfið frá gasventlinum á gaskútnum.

Þrýstið stjórnhnappinum inn í "OFF" [•]-stöðu og snúið honum til vinstri á "kveiking" [ ]. Þá er opið fyrir gasstreymið og gas streymir í brennarann. Haldið hnappinum áfram inni og snúið honum lengra til vinstri á "MAX" [ ]. Þá heyrist smellur og kveikilogi kviknar. Haldið stjórnhnappinum áfram inni í u.þ.b. 5 sekúndur því annars rýfur logavar gasstrey- mið og þá kviknar ekki upp. Þegar þú síðan sleppir hnappinum ætti loginn að brenna.

  • Ef ekki tókst að kveikja upp, endurtakið þá ferlið.

Ef loginn slokknar (t.d. vegna vinds) lokast sjálfkrafa fyrir ventilinn og gasstreymið. Þetta svokallaða logavar er öryggisþáttur á Petromax gashelluborðinu.

  • Snúið stjórnhnappi eldunarsvæðisins, sem þú vilt nota, yfir á stöðuna „MIN“ [ ] til að athuga aflið.

Í stöðunni „MAX“ [ ] ætti loginn að vera stór. Í stöðunni „MIN“ [ ] ætti loginn að vera smár. Hann á að brenna rólega í öllum stöðum. Ef loginn fer að brenna órólega, fylgið þá ábendingum kaflans Bilanagreining eða hafið samband við söluaðila eða notendaþjónustu okkar.

  • Setjið eldfasta potta eða pönnur á helluna til að hefja eldun.

Eldunaráhöld mega vera minnst 15 cm og mest 35 cm í þvermál. Ekki nota eldunaráhöld með minna eða meira þvermáli. Stýrið stærð logans með stjórnhnappinum og þar með varmaafli eldunarsvæðisins. Ef ekki tekst að kveikja á gasbrennaranum með stjórnhnappinum eftir ítrekaðar tilraunir, hafið þá samband við söluaðila eða notendaþjónustu. Ekki beygja þig yfir gashelluborðið meðan það er í notkun. Þegar þú kveikir á gashelluborðinu, hafðu þá andlit, líkama og föt í a.m.k. 30 cm fjarlægð frá kveikjuopunum. Ef gashelluborðið dettur um koll meðan það er í notkun eða ef nálægir hlutir lenda í eldinum skal gasstreymið STRAX rofið. Skrúfið þá fyrir gaskútsventilinn og gasstreymið til tækisins með stjórnhnappinum. Kveikt á gasbrennaranum handvirkt

  • Gangið úr skugga um að stjórnhnappurinn sé í stöðunni „OFF“ [•].
  • Opnið ventil gaskútsins eins og lýst er í leiðbeiningunum um gaskút og stjórnhnapp.
  • Ef þú vilt nota eldspýtu mælum við með því að hafa hana sérstaklega langa. Kveikið á henni og haldið henni upp við kveikiop gasbrennarans.
  • Skrúfið frá gasstreymi til eldunarsvæðisins.
  • Aðgætið að kviknað hafi jafnt á brennaranum og að loginn brenni jafnt. Klæðist viðeigandi fötum þegar gashelluborðið er notað. Löngum, víðum ermum er hætt við íkveikju. Ekki beygja þig yfir gashelluborðið meðan það er í notkun. Þegar þú kveikir á gashelluborðinu, hafðu þá andlit, líkama og föt í a.m.k. 30 cm fjarlægð frá kveikjuopunum. Ef hvorki tekst að kveikja á gasbrennaranum handvirkt né með stjór- nhnappinum eftir ítrekaðar tilraunir, hafið þá samband við söluaðila eða notendaþjónustu.9595

Ábyrgð og þjónusta Vöruábyrgð Að gefinni eðlilegri notkun fylgir Petromax gashelluborðinu tveggja ára vöruábyrgð frá kaupdegi. Hún gildir ekki um slithluti. Ef varan virkar ekki á eðlilegan hátt vegna galla í efni eða smíði hefurðu rétt á að bætt sé úr. Hafið þá samband við söluaðila. Þjónusta Við hjálpum þér með ánægju ef þú hefur spurningar eða vandamál. Nálgast má notendaþjó- nustu okkar með tölvupósti: service@petromax.de Finna má Petromax-vörur sem passa við Petromax-gashelluborðið á netinu undir www.petromax.de Bilanagreining Vandamál Möguleg lausn Gashelluborðið ruggar eða hallar Festa má fæturna við gashelluborðsrammann undir misstóru horni. Þannig má jafna út ruggið / hallann. Gætið að því að undirstaðan sé stöðug, flöt og eldföst. Ekki er hægt að tengja gaskútinn Gáið hvort gaskúturinn og/eða þrýstingsminnkarinn uppfyllir kröfur reglugerða. Það kviknar ekki á einum eða fleiri brennurum Lokið fyrir gasstreymið og bíðið í nokkrar mínútur þar til gasið sem streymdi út er á burt. Reynið aftur að kveikja á brennaranum. Reynið að kveikja á brennaranum handvirkt með eldspýtu eða álíka. Mögulega er rafskaut í þrýstirafkveikjunni rangt stillt. Gáið hvort opið er fyrir gaskútsventilinn. Gáið hvort lekur. Gáið hvort opið er fyrir gasventilinn við gashelluborðið. Hafið samband við söluaðila eða notendaþjónustu okkar til að fá gert við grillið. Gaskútur er (næstum því) tómur Gáið hvort gaskúturinn er (næstum því) tómur. Skiptið honum út fyrir nýjan. Gaslykt finnst Lokið fyrir gasstreymið við gaskútinn og tækið kólna. Gáið hvort öll tengi séu þétt (lekaskoðun). Brennarinn brennur með mjög litlum loga Gáið hvort þrýstingsminnkarinn er réttur. Gáið hvort gaskúturinn er nógu fullur. Gáið hvort gas lekur út annars staðar (lekaskoðun). Gáið hvort hindrun er á gasleiðinni (t.d. er brennari skítugur eða slanga klemmd). Brennari brennur með mjög stórum loga Gáið hvort þrýstingsminnkarinn er réttur. Hafið samband við söluaðila, notendaþjónustu okkar eða gasfagmann. Ef vandamál kemur upp sem þú getur ekki leyst með aðferð sem lýst er hér, hafið þá samband við söluaðila þinn eða notendaþjónustu okkar. Almennar tengiliðaupplýsingar eru á vefsíðu okkar undir www.petromax.de 1015Petromax GmbH Sudenburger Wuhne 61 39116 Magdeburg Deutschland