iZi Modular A RF X1 iSize - Siège de voiture BESAFE - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis iZi Modular A RF X1 iSize BESAFE á PDF sniði.
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Siège de voiture á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína iZi Modular A RF X1 iSize - BESAFE og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. iZi Modular A RF X1 iSize vörumerkisins BESAFE.
NOTENDAHANDBÓK iZi Modular A RF X1 iSize BESAFE
- Það er EKKI LEYFILEGT að setja stólinn í framsæti MEÐ VIRKUM ÖRYGGISPÚÐA.
- Aðeins er hægt að festa iZi Modular í iZi Modular i-Size stólastöð.
- iZi Modular má nota bakvísandi fyrir börn frá 61 til 105 cm hæð að hámarksþyngd 18 kg og framvísandi fyrir börn frá 88 til 105 cm hæð einnig að hámarksþyngd 18 kg.
- iZi Modular RF skal nota bakvísandi fyrir börn frá 61 til 105 cm hæð að hámarksþyngd 18 kg.
- Mikilvægt: Notið ekki framvísandi fyrr en barnið hefur náð 15 mánaða aldri. (Á ekki við iZi Modular RF gerðirnar)
- BeSafe mælir með notkun bakvísandi barnabílstóla eins lengi og mögulegt er.
- Öryggisbeltin verða alltaf að vera læst þegar barnið er í stólnum.
- Strekkja verður á öryggisbeltunum til að taka af slaka og gæta þess að þau séu ekki snúin.
- Þetta sæti er með beltastrekkjara. Gangið ávallt úr skugga um að beislið sé þétt að með því að fara að axlabeltunum inni í axlarpúðunum og toga axlabeltin upp á við.
- Axlarpúðarnir eru með seglum sem geta haft áhrif á rafeindabúnað eins og gangráð.
- Verjið barnið fyrir sól.
- Klæðið barnið ávallt í þunnt lag af fötum til að forðast beina snertingu á milli beislisins og húðar. Forðist þykkan fatnað því það kemur í veg fyrir að hægt sé að strekkja beltin að fullu.
- Við mælum með að þessi stóll sé einungis notaður fyrir börn sem geta setið, ekki yngri en 6 mánaða.
- Fjarlægið auka sessu þegar barnið hefur náð 2ja ára aldri.
- Fjarlægið auka hliðarstuðning þegar barnið hefur náð 2ja ára aldri eða fyrr ef barnið virðist orðið of stórt fyrir hann.
- Þegar barnið er orðið 18 kg eða axlir þess ber yfir hæstu stöðu axlabeltanna þarf að skipta og nota stól sem hæfir börnum þyngri en 18 kg.
- Skiptið um bílstólinn ef hann hefur verið í árekstri þar sem ökuhraði var meiri en 10 km/klst eða ef grunur leikur á að stólinn Þakka þér fyrir að velja BeSafe iZi Modular A (RF) ! Það er mikilvægt að þú lesir þessa notendahandbók ÁÐUR en þú festir stólinn. Röng uppsetning getur stofnað barni þínu í hættu. gæti verið skemmdur, sama af hvaða ástæðu. Þó svo að stóllinn virðist vera óskemmdur, gæti hann mögulega ekki veitt barninu þá vernd sem hann var hannaður fyrir ef þú lendir í öðrum árekstri.
- Gætið þess að setja ekki farangur ofan á stólinn, skella hurðum á hann eða gera nokkuð annað sem getur skemmt hann.
- Gættu þess að strekkja mjög vel á beislinu, þannig að ekki sé lengur hægt að mynda brot í beltunum. Þegar strekkt er á beislinu skal ganga úr skugga um að barnið liggi vel upp að bakinu.
- EKKI reyna að taka stólinn í sundur, breyta eða bæta hlutum við hann. Ábyrgðin gildir ekki ef annað en upprunalegir hlutir eru notaðir eða einhver aukabúnaður.
- Aldrei skilja barnið eftir eftirlitslaust í stólnum.
- Gangið úr skugga um að farþegar viti hvernig losa á barnið úr stólnum í neyðartilfellum.
- Festið töskur og aðra lausamuni vel því laus farangur getur slasað bæði börn og fullorðna illa.
- Aldrei nota bílstól án áklæðis. Það er til öryggis og má aðeins endurnýja með upprunalegu BeSafe áklæði.
- Ekki nota sterkar hreinsivörur; þær geta dregið úr styrk stólsins.
- Þegar áklæðið er þvegið skal fylgja þvottaleiðbeiningum innan á áklæðinu.
- BeSafe mælir með að notaðir barnabílstólar séu hvorki keyptir né seldir.
- GEYMDU þessa handbók til síðari nota.
- EKKI nota stólinn lengur en 7 ár því efnið í honum breytist með aldrinum.
- EKKI nota stólinn heimafyrir. Hann er ekki hannaður til heimabrúks heldur aðeins til nota í bíl.
- Þegar stólinn er settur í bílinn skal gæta vel að öllum stöðum þar sem hann gæti snert innréttingu bílsins. Við mælum með að (BeSafe) hlífðarklæði sé notað á þessum stöðum til að koma í veg fyrir skemmdir af núningi. Þetta á sérstaklega við um leður- og viðarklædda fleti.
- Ef þú ert í vafa, hafðu þá samband við starfsmenn barnabílstóla hjá VÍS.150 151
- Stillanlegur höfuðpúði
- Handfang til að losa höfuðpúða
- Framstoð Undirbúningur Að setja stól í i-Size stólastöð
1. Athugaðu hvort vísirinn fyrir ISOfix og framstoðina á stólastöðinni
2. Gangið úr skugga um að framstoðin sé vel fest við stólastöðina.
Leiðbeiningar fyrir notkun á framstoðinni er að finna í bæklingi um stólastöðina. (2)
3. Tryggðu að stóllinn sé í losunarstöðu þegar hann er settur í
stólastöðina eða tekinn úr henni. Gulu örvarnar tvær á sætinu og örvarnar á stólastöðinni eiga að vísa hver á aðra. (3) Notaðu handfangið framan á stólastöðinni til að stilla stöðuna á stólnum, sjá skref 6.
4. Gætið þess að stóllinn sitji rétt í stólastöðinni. Það heyrist smellur
og vísirinn að framan sýnir grænt. (3)
5. Þegar bakvísandi stóll er fyrir aftan bílstjórasætið skal, ef unnt er,
ýta því aftur þannig að það snerti bílstólinn. Ef þetta er ómögulegt skal stilla bak bílstjórasætisins eins mikið fram á við og aðstæður leyfa.
6. Hægt er að losa stólinn og snúa honum með því með því að toga í
handfangið framan á stólastöðinni. (5, 6) Til að taka stólinn af þurfa gulu örvarnar tvær á sætinu og stólastöðinni að standast á.
7. Ekki ætti að snúa stólnum fram fyrr en hæð barnsins er í það
minnsta 88 cm ogbarnið 15 mánaða gamalt. BeSafe mælir með notkun bakvísandi stóls eins lengi og mögulegt er.
8. Framstoðin verður að vera í stöðu nr. 1 þegar stóllinn vísar fram. (7)
9. Ekki er hægt að snúa BeSafe iZi Modular A RF stólnum við. Hann er
10. Hægt er að halla stólnum með þar til gerðu handfangi að framan. (8)
11. Bakvísandi stól á að nota í tveimur mestu hallastillingunum. (9)
Barnið fest Stóllinn tekinn úr i-Size stöðinni
1. Raufar axlaóla eiga að nema við axlir barnsins. (12)
2. Opnið beltissylgjuna. (13)
3. Setjið klofstöngina í „opna stöðu“. Hægt er að toga beltin út í þessari
4. Togið axlaólarnar frá sætinu á meðan klofstöngin er í „opinni stöðu“.
Togaðu aðeins í beltisólarnar, en ekki í axlapúðana. (15)
5. Hægt er að stilla hæð axlaólanna og höfuðpúðans með handfangi
bak við höfuðpúðann. (16)
6. Til að halda beltinu opnu þegar barnið er sett í stólinn skal setja
axlaólarnar á merkið á hliðum sætisins. Þá grípa seglarnir þær. (17)
7. Setjið axlabeltin yfir axlir barnsins þegar það er komið í stólinn og
látið sylgjurnar tvær koma saman. Setjið síðan klofstöngina upp í „lokaða stöðu“. Í þessari stöðu er ekki lengur hægt að toga beltin út. Smellið sylgjuhlutunum í festinguna. (18)
8. Þegar beislið er strekkt skal láta barnið hallast aftur að stólbakinu.
9. Strekkið beltahlutana yfir mjaðmir með því að toga þau upp í
gegnum sylgjuna. Farið síðan í axlabeltin innan í axlapúðum og togið þau upp til að strekkja betur. (19)
10. Togið aftur upp beltin innan í axlapúðunum uns ekki er hægt að
brjóta saman beltin lengur.
- Hægt er að losa stólinn með því að toga í handfangið framan á stólastöðinni. Gulu örvarnar þurfa að standast á til að hægt sé að fjarlægja stólinn.
12. Hægt er að stækka fótarými bakvísandi stólsins með því að toga
framstoðsspjaldið út frá stólastöðinni. Framstoðsspjaldið má stilla á þrjá vegu. Það þarf að taka sætið af stólastöðinni og losa ISOfix festingar stólastöðvarinnar til að stilla framstoðsstöðuna. (10)
13. Sætið kemur með fjarlægjanlegri hliðarhöggvörn SIP+ (side impact
protection +). Þessa auka hliðarhöggvörn ætti að nota dyramegin í bílnum. Fylgdu teikningunum á hliðarhöggvörninni sem fylgir með stólnum þínum til að tengja hana. Stóllinn býður þegar upp á mikla innbyggða hliðarhöggvörn. Þessi aukavörn eykur enn frekar á öryggi í hliðarárekstri. (Ekki á öllum gerðum) (11)
14. Ekki nota auka hliðarhöggvernd (SIP+) á stólinn ef bilið á milli stóls
og bílhurðar er of lítið. Ástæðan fyrir of litlu bili getur verið að stóllinn sé rangt festur í bílinn. Skoðið festingar því vel.
- Allar BeSafe vörur eru hannaðar, framleiddar og prófaðar af kostgæfni bæði af framleiðanda og óháðum eftirlitsaðilum. Ef stóllinn uppfyllir ekki kröfur vinsamlegast skilið honum til VÍS.
- Ef lagfæra þarf stólinn sem þú leigir, hafðu þá samband við barnabílstóla VÍS í síma 560-5365 eða komdu við á næstu þjónustuskrifstofu VÍS. Ekki reyna að lagfæra stólinn upp á eigin spýtur.
- Stól sem lent hefur í umferðarslysi skal skila strax til VÍS og fá annan í staðinn.
- EKKI MÁ setja stólinn í framsæti MEÐ VIRKUM ÖRYGGISPÚÐA.
- Alltaf skal nota gólfstuðninginn og ganga tryggilega frá honum þannig að hann sé eins mikið út dreginn og hægt er.
- Framstoðin verður að vera fest á stólastöðina þegar hún er notuð með iZi Modular.
- Gakktu úr skugga um að merkin séu græn á ISO-fix festingunum áður en ekið er af stað. ! Aðvörun: Möguleg mistök
- Leggið á minnið hvernig áklæðið er tekið af til að geta sett það aftur eins á.
- Hægt er að taka áklæði höfuðpúðans af eitt og sér með því að losa smellurnar aftan á og toga áklæðið af. Skipt um áklæði
Notice-Facile