P420 E Tripod - Barbecue Outdoorchef - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis P420 E Tripod Outdoorchef á PDF sniði.

Outdoorchef P420 E Tripod - Grill
📄 76 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Outdoorchef P420 E Tripod - page 67
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um P420 E Tripod Outdoorchef

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Barbecue á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína P420 E Tripod - Outdoorchef og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. P420 E Tripod vörumerkisins Outdoorchef.

NOTENDAHANDBÓK P420 E Tripod Outdoorchef

1. Ábyrgð og tenging við önnur réttindi kaupanda

Með kaupum á þessari OUTDOORCHEF hjá viðurkenndum söluaðila færðu sem kaupandi (notandi) hennar afhenta ábyrgð framleiðandans DKB Household Switzerland AG („DKB“)

Ábyrgð framleiðanda gefur þér færi á að leggja fram kröfur á hendur ábyrgðarveitanda í samræmi við ákvæði þessa samnings. Ábyrgðarkröfur gilda, auk annarra samningsbundinna eða lagalegra réttinda þinna. Þessi ábyrgð útilokar ekki eða takmarkar önnur réttindi. Þar af leiðandi getur þú einnig lagt fram aðrar samningsbundnar eða lagalegar kröfur á hendur viðkomandi ábyrgðaraðilum hverju sinni. Þannig hefur þessi ábyrgð til dæmis ekki áhrif á kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð.

Sem kaupandi hefurðu einnig sérstakan möguleika á að leggja fram samningsbundnar ábyrgðarkröfur gagnvart seljandanum. Það er til dæmis hægt að rifta kaupsamningnum aðeins gagnvart seljandanum en ekki gagnvart DKB innan ramma þessarar ábyrgðar.

2. Samningsaðilar og ábyrgðarskilmálar

Ábyrgðarveitandi er DKB. Rétt á ábyrgð eiga allir kaupendur sem kaupa nýja vöru til einkanota hjá viðurkenndri verslun. Leggja skal fram sölukvittun til sönnunar á kaupum. Kaup til einkanota eru þegar varan er keypt af einstaklingi yfirleitt í þeim tilgangi að nota hana án þess að það sé í atvinnuskyni eða í tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur.

Ef nýta á ábyrgðina verður að leggja fram ábyrgðarkröfuna fyrir ábyrgðarveitanda innan tveggja mánaða frá því að galli kemur í ljós. Að öðrum kosti er ekki hægt að leggja fram ábyrgðarkröfur. Ef um augljósa galla er að ræða hefst fresturinn við móttöku vörunnar. DKB mælir með því að skoða vöruna vegna galla strax við móttöku.

3. Gildissvið

Ábyrgðin gildir frá kaupdegi og er veitt eftirfarandi tilvikum, að því tilskildu að engin útilokun sé til staðar samkvæmt 4. tölulið:

3 ár fyrir gegnryð á gljárennu kúlunni (neðri hluti og lok). 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á gljárennu grillgrindinni. 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á öllum hlutum úr ryðfríu stáli. Galli í emaleringu fyrir fyrstu notkun. 2 ár fyrir alla aðra framleiðslu-/efnisgalla.

Til galla teljast ekki smávægilegar ójöfnur, litamunur á emaleringu eða minniháttar útlitsgallar eins og á suðupunktum á neðri brún loksins eða festingum, sem hafa ekki áhrif á virkni vörunnar.

Ef um ábyrgðartilvik er að ræða mun DKB annaðhvort skipta um skemmda eða gallaða hluti eða skipta út vörunni heild sinni, að eigin vali. Að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að vörunni verði skipt út fyrir sambærilega vöru af nýrri gerð, t.d. fyrir aðra tegund. Svo framarlega sem virkni vörunnar er ekki skert vegna gallans og að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að þér verði boðnar fullnægjandi fébætur stað viðgerðar. Á meðan úrvinnsla ábyrgðarinnar fer fram (skoðun og hugsanlega skipti á vöru) er ekki hægt að leggja fram kröfu gegn DKB um nýja vöru eða frekari bætur. Úrbætur vegna galla lengja hvorki ábyrgðartímann

né endurnýja hann. Hlutir sem skipt hefur verið út verða eign DKB. Aðeins þegar skipt hefur verið um alla vöruna hefst ábyrgðartíminn að nýju. Allar frekari kröfur á hendur ábyrgðaraðila falla ekki undir þessa ábyrgð. Kröfur af öðrum lagalegum ástæðum eru þó ekki útilokaðar eða takmarkaðar (sjá einnig hér að framan í kafla 1).

Ábyrgðin gildir ekki í eftirfarandi tilvikum:

  • Eðlilegt slit við venjulega notkun, einkum almennum slitihlutum eins og trekt, neistapoka, brennara, hitamæli, kveikingu og rafhlöðu, rafskauti, kveikitaug, gasslöngu, gasprystijafnara, hitaelementi, endurkastara, hlífðarfilmu úr áli, grill- eða kolagrind og kolaskál, kveikigrind og kola-/fitusafnbakka. Bilun og/eða skemmdir vegna óviðeigandi eða rangrar notkunar, einkum vegna þess að ekki var farið eftir notkunar- og öryggisleiðbeiningum eða viðhaldsleiðbeiningum (t.d. notkun á útigrillum innandyra, skemmdir vegna rangrar samsetningar, rangra þrifa á glerbrunnum yfirborðum trektarinnar eða grillgrindarinnar, vegna þess að lekaprófun var ekki framkvæmd eins og ráðlagt er í notkunarleiðbeiningunum, vegna notkunar á skæligum fötum, vegna annarrar notkunar en fyrirhugaðrar o.s.frv.).
  • Bilun og/eða skemmdir sem stafa af inngripi eða viðgerðum framkvæmdum af aðilum sem DKB hefur ekki viðurkennt.
  • Bilun og/eða skemmdir vegna veðurs (t.d. hagl eða eldingar). Bilun og/eða skemmdir sem valdi er af ásetningi eða gáleysi, svo framarlega sem DKB ber ekki ábyrgð á þeim. Bilun og/eða skemmdir sem verða við flutning til kaupandans, svo framarlega sem ábyrgðaraðilinn ber ekki ábyrgð á þeim. Bilun og/eða skemmdir af völdum óviðráðanlegra orsaka.
  • Bilun og/eða slitskemmdir vegna notkunar í atvinnuskyni (t.d. hótel- eða veitingarekstri).
Efnisyfirlit Smelltu á titil til að fá aðgang að honum
Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Outdoorchef

Líkan : P420 E Tripod

Flokkur : Grill