CKF2200V - Réfrigérateur Elvita - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis CKF2200V Elvita á PDF sniði.

Elvita CKF2200V - Kælir
📄 293 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Elvita CKF2200V - page 256
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um CKF2200V Elvita

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CKF2200V - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CKF2200V vörumerkisins Elvita.

NOTENDAHANDBÓK CKF2200V Elvita

Öryggi við uppsetningu.... 258

Öryggi við notkun.... 260

Öryggi við viðhald 262

Förgun 262

FLÝTIBYRJUN 264

HEFJAST HANDA 265

Lærðu um frystiskápinn.... 265

Aukahlutir og uppsetningarhlutar 265

Kæliskápshólf 265

Frystihólf 266

Finndu gerðarkóðann 266

Fyrir fyrstu notkun.... 266

NOTKUN FRYSTISKÁPSINS 268

Stillingar og aðferðir.... 268

Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt 268

Kveikt og slökkt á Super Freeze stillingu

Hurðarbjalla

Geymsla matvæla

Geymsla matvæla í kæliskápnum

Matvæli geymd í frystiskápnum

HREINSUN OG VIDHALD

Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn

Undirbúningur ef ekki á nota tækið í langan tíma

Tækið virkar ekki rétt

Lykt kemur úr hólfunum

Hávaði berst úr tækinu

Þjappan er samfellt í gangi

Þjappan er ekki í gangi

Hitastig í öðru hólfinu er of lágt á meðan hitastigið í hinu hólfinu er nægjanlegt...

Hitastigið að innan er of hátt

Ekki hægt að loka hurð auðveldlega 279

Ekki hægt að opna skúffu auðveldlega 279

Rakapétting á innra byrði tækisins 279

Rakapétting á ytra byrði tækisins 280

Fáanleiki varahluta.... 280

UPPSETNING 281

Uppsetningarsvæði 281

Taktu kæli- og frystiskápinn úr umbúðunum.... 283

Hurðir fjarlægðar og settar upp.... 285

Hurð snúið við 285

Kæli- og frystiskåpurinn færður.... 287

TÆKNILÝSINGAR 288

Tæknilýsing.... 288

Stærðir 289

Lesið þessar leiðbeiningar vandlega áður en tækið er sett upp og notað. Geymið leiðbeiningarnar nálægt tækinu til síðari nota. Margskonar ábyrgðir munu falla úr gildi ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt.

Viðvaranir

Elvita CKF2200V - Viðvaranir - 1

HÆTTA!

Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni eða dauða.

Elvita CKF2200V - Viðvaranir - 2

VIÐVÖRUN!

Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni.

Elvita CKF2200V - Viðvaranir - 3

VARÚÐ!

Notaðar þegar hætta er á því að varan verði fyrir tjóni.

Elvita CKF2200V - Viðvaranir - 4

ATHUGAÐU!

Almennar upplýsingar sem þú ættir að vita um.

Elvita CKF2200V - Viðvaranir - 5

Hjálpleg ráð sem þér kunna að þykja gagnleg.

Ætluð notkun

Tækið er einungis ætlað fyrir:

- Notkun innandyra á heimili eða svipuðu umhverfi eins og:

– eldhúsum starfsfólks í verslunum, á skrifstofum og öðrum starfsumhverfum; - bóndabýli; - af viðskiptavinum á hótelum, mótelum og öðrum íbúðaumhverfum; – gistiheimilisumhverfum; – veislþjónustu og svipaða notkun sem fellur ekki undir smásölu.

- Heimilisnotkun, eins og geymsla matvæla og drykkjarfanga.

Elvita CKF2200V - Tækið er einungis ætlað fyrir: - 1

VIDVÖRUN!

Þetta tæki er ekki ætlað fyrir:

  • Notkun í öðrum tilgangi en það er ætlað fyrir.
  • Notkun utandyra í opnum eða lokuðum umhverfum eins og:
  • skipum;
  • húsbílum;
  • svölum;
  • veröndum.
  • Notkun sem innbyggt tæki.
  • Notkun í atvinnuskyni.
  • Notkun fyrir geymslu hluta sem krefjast nákvæms hitastigs eins og lyfja, blóðvökva, rannsóknarstofuafurða eða svipaðs læknisfræðilegs efnis.
  • Notkun í hæð yfir 2000 metra eða hærra yfir sjávarmáli.

Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun

Elvita CKF2200V - Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun - 1

VIDVÖRUN!

Látið eftirfarandi hópa aðeins nota tækið undir umsjón eða ef þeim hafa verið veittar leiðbeiningar um örugga notkun þess. Þau verða að skilja hætturnar sem eru til staðar.

  • Börn 8 ára og eldri. (Börn undir 8 ára verða að vera undir stöðugu eftirliti, eða haldið fjarri vörunni.)
  • Börn á aldrinum 3 til 8 ára mega setja í og taka úr tækinu.
  • Fólk með minnkaða líkamlega, skynjunarlega eða andlega getu.
  • Fólk sem skortir reynslu og þekkingu.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Leyfið börnum eða gæludýrum ekki að leika sér með tækið.
  • Leyfið börnum ekki að þrífa tækið án eftirlits.
  • Leyfið ekki börnum eða gæludýrum að fara eða klifra inn í tækið, þau gætu kafnað eða dottið.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Haldið öllum umbúðum fjarri börnum þar sem hætta er á köfnun.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Ef tækið er með læsingar á hurðum eða lok skal geyma lyklana þar sem börn ná ekki til og ekki nálægt tækinu til að hindra að börn geti læst sig inni.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Haldið börnum og gæludýrum frá hólfinu þar sem þjappan og rafmagnssnúrurnar eru staðsettar.
  • Meðan uppsetning stendur yfir, haldið börnum frá uppsetningarsvæðinu.

Almennt öryggi

Elvita CKF2200V - Almennt öryggi - 1

VIDVÖRUN!

  • Takið tækið úr sambandi við rafmagn áður en það er fært.
  • Tveir eða fleiri einstaklingar skulu vera til staðar þegar tækið er flutt og sett upp til að forðast hættu á meiðslum. Tækið er þungt.
  • Hafið hurðirnar lokaðar og haldið ekki í hurðirnar þegar tækið er flutt.
  • Ekki láta tækið rekast í hindranir eða missa það við flutning.
  • Tryggið að engir hlutar kælimiðilsrásarinnar skemmist þegar tækið er flutt.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Ekki setja hendur, fætur eða málmhluti undir eða fyrir aftan tækið. Hætta er á að klemmast og beittar brúnir geta valdið meiðslum.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Standið ekki á neinum hluta tækisins né notið neinn hluta tækisins sem stuðning.
  • Ekki setja hluti ofan á tækið. Þeir gætu fallið þegar verið er að opna og loka hurðinni og valdið meiðslum.
  • Takið tækið úr sambandi við rafmagn ef ekki á að nota það í lengri tíma.
  • Sýnið aðgát við snertingu hliða tækisins. Hliðarnar eru búnar kælipípum til að gera kælikerfið betra. Háþrýstivökvi getur streymt í gegnum þessi yfirborð og orðið heitur. Þetta er eðlilegt og krefst ekki viðhalds.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

Ef slökkva skal á tækinu í langan tíma skal afþíða það, þrífa, þurrka og skilja hurðina eftir opna til að halda því í góðu ástandi og koma í veg fyrir myglu.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

Hætta á rafstuði!

  • Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila hans eða sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættu.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði og eldsvoða.
  • Togið ekki í rafmagnssnúruna þegar tækið er tekið úr sambandi. Grípið ákveðið í rafmagnstengilinn og togið hann út úr rafmagnsinnstungunni.
  • Snertið ekki rafmagnstengilinn með blautum höndum.
  • Notið þetta tæki aðeins með upprunalegu rafmagnssnúrunni.
  • Ekki skemma eða kremja rafmagnssnúruna, og notið hana ekki ef hún er skemmd, slitin eða skorin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.
  • Ekki fjarlægja hlífina af rafræna stjórnborðinu eða afturhlíf þjöppunnar. Hætta er á rafstuði og eldsvoða.
  • Gangið úr skugga um að rafmagnstengillinn sé þurr, hreinn og laus við ryk þegar honum er stungið í samband.
  • Gangið úr skugga um að rafmagnshlutar séu ekki aðgengilegir eftir uppsetningu.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

Hætta á eldsvoða!

Eftirfarandi tákn má finna á tækinu. Það er viðvörun og gefur til kynna að kælimiðillinn og einangrunarpanelið séu eldfim.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

  • Tryggið að engir íhlutir kælimiðilsrásarinnar skemmist við flutning og uppsetningu á tækinu. Kælimiðillinn, ísóbútan (R600a), sem kælimiðilsrásin inniheldur er eldfimur.
  • Ef kælimiðilsrásin er skemmd: Snertið ekki tækið eða rafmagnstengilinn, forðist opinn eld og kveikjugjafa og loftræstið svæðið í kringum tækið vandlega. Ekki nota viftur til að loftræsta. Hafið samband við viðurkennda þjónustumiðstöð.
  • Ef göt eru á gasrásum tækisins gæti kælimiðill lekið. Verið fjarri gasinu. Kælimiðill sem lekur veldur húðertingu, augnskaða og gæti valdið kali.
  • Breytið ekki tæknilýsingunum né gerið breytingar á tækinu á neinn hátt.
  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði eða eldsvoða.
  • Ekki skemma eða kremja rafmagnssnúruna, og notið hana ekki ef hún er skemmd, slitin eða skorin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.
  • Ekki fjarlægja hlífina af rafræna stjórnborðinu eða afturhlíf þjöppunnar. Hætta er á rafstuði og eldsvoða.

Öryggi við uppsetningu

Elvita CKF2200V - Öryggi við uppsetningu - 1

HÆTTA!

Haldið eldfimum efnum og gufum, eins og bensíni, fjarri tækinu til að forðast hættu á dauðsfalli, sprengingu eða eldsvoða.

Elvita CKF2200V - HÆTTA! - 1

HÆTTA!

Vertu viss um að tækið hafi verið tekið úr sambandi við rafmagn áður en uppsetning fer fram eða aukahlutir stilltir.

Elvita CKF2200V - HÆTTA! - 1

VIÐVÖRUN!

Sláið út á örygginu sem tækið er tengt við áður en hafist er handa við uppsetningu.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Haldið börnum frá uppsetningarsvæðinu.
  • Notið ávallt persónuhlífar (hanska o.s.frv.) við uppsetningu, viðhald og viðgerðir. Það er hætta á meiðslum. • Gætið þess að kælimiðilsrásin skemmist ekki.
  • Ekki setja tækið í samband ef það er skemmt.
  • Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé brengt að rafmagnssnúrunni og rafmagnstenglinum eða að þau verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Tryggið að rafmagnssnúran komist ekki í snertingu við neinn hitagjafa.
  • Ekki beygja snúruna. Það gæti valdið eldsvoða.
  • Ekki setja þunga hluti á snúruna.
  • Þegar verið er að staðsetja tækið skal tryggja að hægt sé að komast að rafmagnstenglinum. Ef það er ekki mögulegt þurfa raflagnirnar sem tækið er tengt við að innihalda búnað eða virkni sem er í samræmi við rafmagnsreglur og aftengir öll tengi frá rafveitu.
  • Þegar tækið er staðsett skal ganga úr skugga um að engar rafmagnssnúrur, málmrör fyrir gas eða vatn komist í snertingu við afturhlið tækisins eða gufupéttinn.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

- Ekki setja tækið upp eða skilja það eftir á stað þar sem er beint sólarljós eða á stöðum sem það gæti verið útsett fyrir háu umhverfishitastigi.

- Gangið úr skugga um að það sé nægt pláss og lofthringrás í kringum tækið. Setjið upp millistykki fyrir gufupétti til að viðhalda öruggri fjarlægð frá veggnum fyrir aftan.

- Þegar tækið er staðsett verður bilið fyrir ofan það að vera að lágmarki 50 mm, og setja verður tækið upp að vegg með fríbili sem er a.m.k. 50 mm svo lofthringrás sé möguleg og til að hindra ofhitnun og aukna orkunotkun.

- Ekki setja tækið upp nálægt hitagjöfum eins og eldavélum, helluborðum, ofnum eða miðstöðvarhiturum. Bilið á milli tækisins og slíkra hitagjafa verður að vera að lágmarki 300 mm. Ef setja verður tækið upp nálægt hitagjafa skal nota viðeigandi einangrunarplötu og tryggja að lágmarks ráðlagðri fjarlægð sé viðhaldið.

- Ekki setja tækið upp nálægt rafmagnsofnum. Bilið á milli tækisins og slíkra hitagjafa verður að vera að lágmarki 50 mm. Ef setja verður tækið upp nálægt hitagjafa skal nota viðeigandi einangrunarplötu og tryggja að lágmarks ráðlagðri fjarlægð sé viðhaldið.

- Ef setja verður tækið upp nálægt hitagjafa skal nota viðeigandi einangrunarplötu, auk þess að tryggja að lágmarksfjarlægð að hitagjafa sé eins og tilgreint er.

- Ekki setja tækið upp í umhverfi þar sem raki er til staðar eða á svæðum þar sem það getur orðið fyrir vatnsskvettum (til dæmis bílskúr, þvottahús o.s.frv.). Ef tækið blotnar vegna vatns skal taka það úr sambandi við rafmagn og hafa samband við viðurkennda þjónustu. Það getur valdið skammhlaupi ef raki eða vökvi kemst að spennuhafa hlutum eða rafmagnssnúrunni.

- Haldið loftræstiopum utan á tækinu lausum við hindranir. Annars eykst orkunotkun og tækið gæti skemmst.

- Setjið tækið ekki upp nema nægilegt pláss og loftræsting sé í kringum tækið. Pað myndi valda ofhitnun.

- Ekki setja tækið upp nálægt ofnum, eldavélum eða öðrum hitagjöfum.

- Ekki setja tækið upp á mottu, teppi eða svipuðu efni. Hætta er á eldsvoða ef loftræsting er ekki næg.

- Setja verður petta tæki á hreint, slétt yfirborð úr hörðu efni.

- Yfirborðið sem tækið er uppsett á verður að vera nægilega sterkt til að standa undir fullhlöðnu tæki.

- Stillið fæturna par til allir fæturnir snerta gölfið og tækið er lárétt. Pað kemur í veg fyrir að tækið hreyfist, velti og pað sé hætta á meiðslum.

- Pegar verið er að hallastilla tækið, gætið bess að klemma ekki hendur milli tækisins og undirlagsins eða milli tækisins og fótarins sem verið er að stilla.

- Gangið úr skugga um að uppsetningarherbergið sé nægilega stórt. Pví meiri kælimiðill sem tækið inniheldur, því staerra þarf uppsetningarherbergið að vera. Hver 8 grömm af kælimiðli krefjast a.m.k. eins rúmmetra af uppsetningarherbergi. Athugið merkingu tækisins varðandi magn kælimiðils sem það inniheldur. Ef tækið er uppsett í mjög litlu herbergi er hætta á eldfimri gasblöndu í tilfelli gasleka í kælimiðilskerfinu.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið sambandi við smásöluaðilann par sem tækið var keypt.
  • Ekki tengja tækið við rafmagnsinnstungu ef hún er laus, brotin, óhrein, fitug eða við innstungur þar sem hætta er á snertingu við vatn. Þessar gerðir tenginga geta ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Notið þetta tæki aðeins með upprunalegu rafmagnssnúrunni.
  • Ekki setja rafmagnssnúruna þannig að hætta sé á að detta um hana.
  • Notið sérúthlutaða rafmagnsinnstungu, sem þýðir að ekki skal deila rafmagnsinnstungunni með öðrum tækjum.
  • Ekki nota rafmagnsinnstungu sem hægt er að slökkva á með rofa eða öðrum rafmagnssparnaðarbúnaði.
  • Ekki tengja tækið við orkusparandi tæki. Það getur skemmt tækið.
  • Notið ekki ytri tímastilla eða aðskilinn fjarstýribúnað til að stjórna tækinu.
  • Ekki setja fjöltengi eða færanlega aflgjafa fyrir aftan eða í nágrenni við tækið. Þau geta ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Staðsetjið ekki fjöltengi eða færanlega aflgjafa fyrir aftan tækið.
  • Verið viss um að rafmagnstengillinn sé tengdur við jarðtengda þriggja skauta innstungu. Athugaðu vandlega að innstungan sé jarðtengd á réttan og áreiðanlegan hátt. Þetta tæki er í verndarflokki I.
  • Gangið úr skugga um að tengistærðir tækisins séu samsvarandi við rafveitu. Þessar upplýsingar (stærð öryggja, spenna og tíðni) má finna á merkingu tækisins. Ef vafi leikur á skal ráðfæra sig við viðurkenndan rafvirkja. Annars er hætta á raflosti, eldsvoða, meiðslum eða vandamálum með tækið.
  • Notið ekki fjöltengi, millistykki eða framlengingarsnúrur og lengið ekki rafmagnssnúruna.
  • Raftenging verður að vera með 10 til 16 ampera öryggi og jarðtengd.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

Ekki tengja tækið við rafveitukerfi eða aflgjafa sem geta valdið skyndilegum spennubreytingum (til dæmis færanlegan sólarorkuaflgjafa). Annars gæti tækið skemmst.

Elvita CKF2200V - VARÚÐ! - 1

VARÚÐ!

Færið tækið varlega til að forðast að skemma gólfið.

Elvita CKF2200V - VARÚÐ! - 1

ATHUGIÐ!

Hafið samband við þjónustudeild ef það eru einhverjar áhyggjur varðandi uppsetninguna. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.

Öryggi við notkun

Elvita CKF2200V - Öryggi við notkun - 1

VIÐVÖRUN!

  • Ekki gangsetja tækið ef það hefur skemmst. Takið tækið úr sambandi eða sláið út örygginu sem það er tengt við og hafið samband við viðurkenndan þjónustuaðila. Hætta er á rafstuði.
  • Ekki fikta við eða skemma kælimiðilsrásina. Það er hætta á sprengingu.
  • Ekki skemma pípur kælimiðilsrásarinnar með beittum og oddhvössum verkfærum. Ef gat kemur á gasrásir eimisins, framlengingarpípur eða yfirborðshúðun þá gæti kælimiðill lekið. Kælimiðill sem lekur veldur húðertingu og augnskaða.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Aðeins má nota upprunalega aukahluti.
  • Geymið ekki sprengifim efni í þessu tæki, eins og úðabrúsa sem innihalda eldfimt drifefni.
  • Geymið ekki eldfimt gas eða vökva í tækinu, hætta er á sprengingu.
  • Ekki nota eða geyma nálægt tækinu efni sem eru næm fyrir hitastigi eins og eldfiman úða eða hluti, þurrís eða önnur kemísk efni. Það er hætta á eldsvoða og sprengingu.
  • Ekki geyma ílát fyllt með vökva ofan á tækinu til að hindra að hann geti hellst niður. Þurrkið upp allan vökva sem hellist niður. Vökvi sem hellst hefur niður getur valdið raflosti, eldsvoða eða meiðslum.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Haldið logandi kertum, lömpum og öðrum hlutum með opnum eldi fjarri tækinu til að forðast eldhættu.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Ekki nota tækið berfætt eða þegar líkaminn er blautur.
  • Gætið þess að forðast að klemma fingur, hendur eða aðra líkamshluta þegar átt er við hreyfanlega hluta innan í tækinu eða milli hurðarinnar og hurðarkarmsins. Ef börn eru nálægt skal sýna aðgát þegar hurðin er opnuð eða henni lokað.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Ekki fjarlægja eða setja matvæli eða ílát í frystihólfið með blautum höndum þegar frystiskápurinn er í gangi, sérstaklega ekki málmílát, til að forðast skrámur á húð og kal.
  • Ekki snerta hliðar frystihólfsins að innan með blautum höndum, til að forðast skrámur á húð og kal.
  • Neytið ekki frosinna matvæla, eins og íspinna eða ísmola, beint úr frystiskápnum. Það gæti valdið frostbruna.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

Viðvaranir vegna matvælaöryggis!

Til að forðast mengun matvæla skal fylgja þessum leiðbeiningum:

  • Forðist langvarandi hurðaropnanir: Ef hurðin er höfð opin í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi innan í hólfunum.
  • Regluleg þrif: Hreinsið yfirborð sem komast í snertingu við matvæli og aðgengileg frárennsliskerfi reglulega.
  • Viðhald vatnsskammtara: Fyrir gerðir með vatnsskammtara: Ef vatnsskammtarinn hefur ekki verið notaður í 48 klukkustundir skal hreinsa hann fyrir notkun. Ef vatnskerfið er tengt við vatnsveitu og hefur ekki verið notað í 5 daga skal skola það fyrir neyslu.
  • Rétt geymsla á hráu kjöti og fiski: Geymið hrátt kjöt og fisk í viðeigandi ílátum í hólfunum til að koma í veg fyrir snertingu við eða leka á annan mat.
  • Stjörnuflokkuð hólf:

– Tveggja stjörnu hólf fyrir frosin matvæli henta fyrir geymslu forfrystra matvæla, til að geyma rjómaís og búa til klaka.

– Einnar stjörnu, tveggja stjörnu og þriggja stjörnu hólfin henta ekki til að frysta fersk matvæli.

  • Varúðarráðstafanir við langtímageymslu: Ef kælitækið er skilið eftir tómt í langan tíma skal slökkva á því, afþíða, þrífa, þurrka og skilja hurðina eftir opna til að koma í veg fyrir að mygla myndist inni.
  • Fara ætti nákvæmlega eftir ráðleggingum varðandi geymslu.
  • Geymið forpökkuð fryst matvæli í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda frystu matvælanna.
  • Ekki geyma matvæli nema í vandlega lokuðum umbúðum til að hindra beina snertingu við innri yfirborð.
  • Verið viss um að matvæli komist ekki í snertingu við hitastigsnemann í kæliskápshólfinu.
  • Eftir að fryst matvæli hafa verið þídd niður skal ekki frysta þau aftur. Þegar matvæli hafa þiðnað geta gæðin versnað smám saman eða þau skemmst.
  • Setjið ekki kolsýrða eða freyðandi drykki í frystihólfið þar sem það skapar þrýsting í ílátinu, sem getur valdið því að það springi og skemmi tækið.
  • Verið viss um að flöskur eða glerílát séu ekki skilin eftir í frystiskápnum lengur en þess er þörf. Flöskurnar og ílátin geta sprungið ef innihaldið frýs.
  • Ekki setja sýrðar drykkjarvörur í glerflöskum og könnum í frystiskápinn, þær gætu sprungið.
  • Ekki neyta frosinna matvæla ef umbúðirnar eru rakar og hafa þrútnað óeðlilega út. Líklegt er að matvælin hafi verið geymd á rangan hátt og hafi spillst.

Öryggi við viðhald

Elvita CKF2200V - Öryggi við viðhald - 1

VIDVÖRUN!

  • Öll vinna við rafmagn verður að vera framkvæmd af viðurkenndum rafvirkja eða einstaklingi með sambærilega hæfni.
  • Þjónusta fyrir þetta tæki má aðeins vera framkvæmd af viðurkenndri þjónustumiðstöð og aðeins má nota upprunalega varahluti.
  • Ekki gera við eða skipta um neina íhluti tækisins nema handbókin taki skýrt fram að það skuli gert.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Áður en þrif eða viðhald eru framkvæmd á tækinu skal taka það úr sambandi við rafmagnsinnstungu eða slá út örygginu sem það er tengt við.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Notið ekki verkfæri eða aðrar aðferðir til að flýta fyrir afþíðingarferlinu, nema framleiðandinn mæli með því.
  • Fjarlægið ísingu eða vatn sem gæti hafa fallið á gólfið til að hindra meiðsli.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

Skiptið ekki sjálf um ljósaperurnar í tækinu. Ef ljósaperurnar eru sprungnar skal hafa samband við þjónustu.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Ekki nota kemísk leysiefni á tækið. Það er hætta á sprengingu.
  • Ekki þvo tækið að innan eða utan með þrýstþvotti, gufu, vatni sem er úðað eða hellt. Hætta er á rafstuði og eldsvoða.
  • Ekki nota gufur eða uppgufað hreinsiefni við þrif eða afþíðingu. Ef það er gert getur gufan komist í snertingu við rafmagnshluta og valdið skammhlaupi eða raflosti.
  • Haldið vatni frá loftgötum, rafeindarásum eða lýsingu tækisins. Annars er hætta á eldsvoða eða raflosti.
  • Ekki draga tækið með hurðinni eða hurðarhandfanginu þegar það er fært. Hurðin getur valdið meiðslum ef togað er of fast í handfangið.
  • Ekki nota blautan eða rakan klút til að hreinsa tengilinn. Annars gæti verið hætta á eldsvoða eða raflosti.
  • Verið viss um að þrífa enda rafmagnstengilsins reglulega með þurrum klút til að forðast hættu á eldsvoða.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VARÚD!

  • Ekki nota beitt eða svarfandi verkfæri eða heimilishreinsiefni, þvottaefni, gas, bensín, þynni, alkóhól, bón, lakk og svipuð efni við að þrífa tækið. Með því er komið í veg fyrir aflögun plasthlutanna. Notið einungis hreinsi- og viðhaldsefni sem eru ekki skaðleg matvælum sem geymd eru í tækinu.
  • Ekki nota edik, spritt eða önnur hreinsiefni með alkóhóli á nein innri yfirborð.
  • Ekki nota vatn eða hreinsivörur með klóri á ytri yfirborð og krómhúðaða hluta tækisins. Klór veldur ryði á málmyfirborðum.
  • Ekki nota svampa, grófa hreinsiklúta eða aðrar harðar hreingerningarvörur. Þeir geta valdið rispum.

Elvita CKF2200V - VARÚD! - 1

VARÚD!

Hreinsaðu reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.

Förgun

Elvita CKF2200V - Förgun - 1

HÆTTA!

Það getur verið lífshættulegt ef olía þjöppunnar er gleypt eða ef hún kemst inn í öndunarveginn.

Elvita CKF2200V - HÆTTA! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Til að hindra að börn lokist inni skal fjarlægja hurðirnar áður en vörunni er fargað.
  • Til að hindra að börn klifri inn í tækið skal ekki fjarlægja hillur og skúffur.
  • Ef tækið er með læsingu á hurðinni skal gera hana óvirka áður en tækinu er fargað.
  • Til að hindra að börn geti orðið fyrir rafstuði skal taka rafmagnssnúruna úr sambandi og skera hana áður en tækinu er fargað.
  • Leyfið börnum ekki að leika sér með tækið. • Geymið tækið þannig að það geti ekki oltið.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Tryggið að rör kælimiðilsrásarinnar séu ekki skemmd áður en förgun á sér stað.
  • Ekki farga tækinu með því að kasta því á eld. Það er hætta á sprengingu.
  • Tækið inniheldur kælimiðil og gas í einangruninni. Fagaðilar verða að sjá um förgun kælimiðils og gass á viðurkenndri förgunarstöð í samræmi við staðbundnar reglur því þau geta valdið augnskaða eða íkveikju. Kælimiðillinn og einangrunarþanefnið eru eldfim. Útsetjið ekki fyrir eldslogum.
  • Sýklópentan er notað sem þanefni í frauðeinangruninni og er eldfimt efni. Útsetjið ekki fyrir eldslogum.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

Fargið umbúðum á umhverfisvænan hátt. Með því að setja umbúðir í endurvinnslu, samkvæmt reglum lands og staðar, er hægt að draga úr notkun hráefna og magni úrgangs í landfyllingum.

Þetta tæki er merkt í samræmi við Evróputilskipun 2012/19/ESB, rafmagns- og rafeindatækjaúrgangur (WEEE). Táknið á tækinu eða á umbúðum þess gefur til kynna að ekki skuli meðhöndla það sem heimilisúrgang. Í staðinn skal afhenda það til viðeigandi söfnunarstöðvar fyrir endurvinnslu rafmagns- og rafeindatækjaúrgangs.

Með því að tryggja rétta förgun tækisins hjálpar þú við að koma í veg fyrir mögulega neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfið og heilsu manna, sem að öðrum kosti gætu orðið vegna óviðeigandi meðhöndlunar úrgangs vegna þessa tækis. Til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu þessa tækis skaltu hafa samband við viðkomandi bæjaryfirvöld sem sjá um sorphirðu, heimilissorpþjónustu eða verslunina þar sem þú keyptir tækið.

FLÝTIBYRJUN

Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt

Elvita CKF2200V - FLÝTIBYRJUN - 1

Lærðu um frystiskápinn

Aukahlutir og uppsetningarhlutar

Elvita CKF2200V - Aukahlutir og uppsetningarhlutar - 1

A. ísmolabakki B. Hurðastopparar C. Tengishlif D. Eggjahaldari

ísmolabakki: Til að búa til ísmola í frystiskápnum.

Hurðastopparar

Til að stoppa hurðirnar þegar settir vinstra megin, kemur í veg fyrir að þær rekist í nálæga hluti.

Tengishlíf: Til að hylja tengisnúruna ofan á kæliskápshurðinni.

Eggjahaldari: Til að geyma egg í kæliskápnum.

Kæliskápshólf

Elvita CKF2200V - Kæliskápshólf - 1

Kæliskápshólfið hentar til að geyma margskonar ávexti, grænmeti, drykkjarföng og önnur matvæli sem neytt er innan skamms tíma.

Hólfið samanstendur af hurðagrindum, hillum og einni skúffu.

Elvita CKF2200V - Kæliskápshólf - 2

ATHUGADU!

Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum. Hins vegar er hægt að fjarlægja hillurnar til að þífa þær eða til að skapa meira pláss í kæliskápnum.

Frystihólf

Elvita CKF2200V - Frystihólf - 1

Frystihólfið getur haldið matvælum ferskum í langan tíma og hentar fyrir geymslu kjöts, fisks, rjómaíss og annarra matvæla sem ekki verður neytt innan skamms tíma.

Hólfið samanstendur af tveimur skúffum og einni hillu.

Elvita CKF2200V - Frystihólf - 2

ATHUGIÐ!

Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum.

Finndu gerðarkóðann

CKFXXXX

Gerðarkóðinn er prentaður á merkimiða á tækinu. Þú þarft kóðann til að finna allar og nýjustu upplýsingarnar, þjónustuna og aðstoðina fyrir þína gerð af tæki.

Elvita CKF2200V - Finndu gerðarkóðann - 2

ATHUGIÐ!

Þetta tæki og textamerking eru dæmi. Tækið þitt og texti gætu haft annað útlit og innihald.

Fyrir fyrstu notkun

Undirbúið kæli- og frystiskápinn fyrir fyrstu notkun áður en honum er stungið í samband og matvæli sett í geymslu.

Elvita CKF2200V - Fyrir fyrstu notkun - 1

VIÐVÖRUN!

Lestu öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild áður en þú setur upp eða notar þessa vöru.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið sambandi við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
  • Ekki tengja tækið við rafmagnsinnstungu ef hún er laus, brotin, óhrein, fitug eða við innstungur þar sem hætta er á snertingu við vatn. Þessar gerðir tenginga geta ofhitnað og valdið raflosti eða eldsvoða.
  • Gætið þess að skemma ekki rafmagnssnúruna og notið hana ekki ef hún er skemmd eða slitin. Allar skemmdir sem verða á snúrunni geta valdið skammhlaupi, eldsvoða og rafstuði.
  • Ekki setja rafmagnssnúruna þannig að hætta sé á að detta um hana.
  • Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

ATHUGIÐ!

Stillið báða fæturna þar til allir fæturnir snerta gólfið og tækið er lárétt. Það kemur í veg fyrir að tækið hreyfist, velti og það sé hætta á meiðslum. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 284.

Elvita CKF2200V - ATHUGIÐ! - 1

Elvita CKF2200V - ATHUGIÐ! - 2

  1. Gangið úr skugga um að allar umbúðir hafi verið fjarlægðar af kæli- og frystiskápnum og hann staðsettur á réttan hátt. ATHUGIÐ! Gangið úr skugga um að það sé nægt pláss og lofthringrás í kringum kæli- og frystiskápinn. Setjið upp millistykki fyrir gufupétti til að viðhalda öruggri fjarlægð frá veggnum fyrir aftan.
  2. Látið kæli- og frystiskápinn standa í að minnsta kosti 2 klukkustundir áður en honum er stungið í samband.
  3. Settu rafmagnssnúruna í samband. Eftir nokkra stund fer þjappan í gang og myndar hljóð. Innilokaður vökvi og gas geta einnig myndað hljóð, jafnvel þegar þjappan er ekki í gangi. Frambrúnir tækisins gætu verið heitar, sem hindrar rakapéttingu. Þetta er allt eðlilegt meðan tækið er í gangi.
  4. Látið kæli- og frystiskápinn vera tóman í gangi í 6 klukkustundir, án þess að opna hurðina. Kæli- og frystiskápurinn er nú tilbúinn til notkunar.

Elvita CKF2200V - ATHUGIÐ! - 3

ATHUGIÐ!

  • Ráðlögð stilling á valhnappi hitastigs er 2-3.
  • Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í kæli- og frystiskápnum.
  • Það getur haft neikvæð áhrif á afköst kæli- og frystiskápsins við frystingu ef of mikið af matvælum er sett í hann þegar kveikt er á honum í fyrsta sinn.

NOTKUN FRYSTISKÁPSINS

  • Ekki stinga rafmagnstenglinum í samband ef rafmagnsinnstungan er laus. Hætta er á rafstuði og eldsvoða.
  • Snertið ekki rafmagnstengilinn með blautum höndum.

Elvita CKF2200V - NOTKUN FRYSTISKÁPSINS - 1

ATHUGADU!

Ef það verður skyndileg rafmagnsbilun eða ef rafmagnssnúran er tekin úr sambandi og sett aftur í, þá kemst ójafnvægi á gasþrýstinginn í kælikerfinu eftir stuttan tíma. Þetta virkjar hitavörn þjöppunnar. Tækið endurræsist eftir um 6 mínútur. Ef það endurræsist ekki eftir þennan tíma skal hafa samband við Elvita þjónustu.

  1. Stingið rafmagnssnúrunni í samband til að kveikja á kæli- og frystiskápnum.
  2. Takið rafmagnssnúruna úr sambandi til að slökkva á kæli- og frystiskápnum.

VIÐVÖRUN! Togið ekki í rafmagnssnúruna þegar tækið er tekið úr sambandi. Grípið ákveðið í rafmagnstengilinn og togið hann út úr rafmagnsinnstungunni.

Stillingar og aðferðir

Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt

Stilltu ráðlagt hitastig fyrir öll hólf.

Elvita CKF2200V - Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt - 1

VARÚÐ!

  • Ef hitastigið er stillt hátt mun það auka matarsóun.
  • Ef hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er þá sóar það orku.
  • Miðlungs stilling hentar best til að ná sem bestri varðveislu matvæla.

Elvita CKF2200V - VARÚÐ! - 1

VARÚÐ!

Ekki geyma nein matvæli í kæli- og frystiskápnum þegar lágmarksstilling hitastigs [Holiday] er valin. Notið þessa hitastigsstillingu einungis til að draga úr orkunotkun yfir lengri tíma án notkunar.

  1. Opnið hurðina og snúið hitastigsveljaranum til að velja hitastig (* [Holiday], 1, 2, 3, 4 - því hærri sem talan er, því lægra er hitastigið).

ATHUGADU!

  • Ráðlögð stilling á valhnappi hitastigs er 2-3.
  • Ráðlagt hitastig er 4 °C í kæliskápnum og -18 °C í frystiskápnum.

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 1

  • Hitastig að innan getur verið breytilegt eftir því hversu mikið af matvælum er geymt í honum, umhverfishitastigi eða hvort hurðin hafi verið skilin eftir opin of lengi eða opnuð of oft sem veldur því að hitastigið hækkar. Ráðlagt er að loka hurðinni eins fljótt og mögulegt er eftir notkun.
  • Hitastig getur einnig verið breytilegt milli mismunandi hluta kæli- og frystiskápsins, kaldasti hlutinn í kæliskápshólfinu er fyrir ofan grænmetisskúffuna.

Kveikt og slökkt á Super Freeze stillingu

Notið Super Freeze stillingu til að lækka hitastigið hratt og frysta matinn hraðar en venjulega.

!

ATHUGADU!

  • Super Freeze stilling eykur orkunotkun þegar hitastig er lækkað hratt.
  • Til að frysta matvæli, kveikið á Super Freeze stillingu áður en matvæli eru sett inn til að tryggja rétta forfrystingu.
  • Þegar notuð er Super Freeze stilling til að frysta lítið magn matvæla, slökkvið á stillingunni eftir nokkurn tíma til að spara orku.

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 1

  1. Til að kveikja á Super Freeze stillingu, snúið stjórnhnappi hitastigs til [Super freeze]. ATHUGADU! Það slokknar sjálfkrafa á Super Freeze stillingu eftir 24 klukkustundir og stilling hitastigsins í frystiskápnum fer til baka í köldustu stillinguna (4).
  2. Til að slökkva á Super Freeze stillingu, snúið stjórnhnappi hitastigs til þeirrar stillingar hitastigs sem óskað er (1, 2, 3 eða 4).

Hurðarbjalla

Elvita CKF2200V - Hurðarbjalla - 1

ATHUGIÐ!

Forðastu að hafa hurðina opna í langan tíma til að spara orku.

Þegar kæli- eða frystiskápshurðin hefur verið opin í stutta stund heyrist hljóðviðvörun. Slökktu á viðvöruninni með því að loka hurðinni.

Geymsla matvæla

Geymsla matvæla í kæliskápnum

Elvita CKF2200V - Geymsla matvæla í kæliskápnum - 1

VIÐVÖRUN!

  • Til að koma í veg fyrir að hlutir falli og valdi meiðslum eða skemmdum á kæli- og frystiskápnum skal ekki hlaða of miklu í hillurnar og hurðagrindurnar eða setja of mikið í skúffurnar.
  • Ekki yfirhlaða tækið þannig að loftrás verði ekki næg.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Farðu alltaf eftir þeim geymslutíma og fyrningardagsetningum sem framleiðendur leggja til.
  • Ef hurðin er höfð opin í langan tíma getur það valdið verulegri hækkun á hitastigi í hólfunum.
  • Geymdu hrátt kjöt og fisk í hentugum ílátum í kæliskápnum þannig að þau komist ekki í snertingu við eða valdi leka á önnur matvæli.
  • Ekki setja fljótandi olíur eða máltíðir eldaðar í olíu í kæliskápinn í óþéttum ílátum. Það skemmir plastyfirborð tækisins. Hreinsið og skolið alla olíu sem hefur lekið með heitu vatni þegar í stað.

Elvita CKF2200V - VARÚÐ! - 1

VARÚD!

Ekki loka hurðinni meðan einhverjar hillur eru útdregnar eða skúffur opnar. Það gæti skemmt hillurnar, skúffurnar og hurðina.

Elvita CKF2200V - VARÚD! - 1

ATHUGADU!

Til að forðast óþarfa orkueyðslu:

  • Ekki geyma heitan mat eða vökva sem gufa kemur úr í kæli- og frystiskápnum. Ef heit matvæli eru sett beint í kæli- eða frystiskápinn veldur það hækkun á innra hitastigi sem leiðir til þess að þjappan þarf að vinna meira og nota meiri orku. Kæla verður heitan mat og drykki að stofuhita áður en þau eru geymd.
  • Ekki hafa hurðirnar opnar í lengri tíma.

Notaðu eftirfarandi ábendingar og ráðleggingar við geymslu matvæla í kæliskápnum.

  • Notið ráðlagðar stillingar hitastigs til að halda matnum ferskum í lengri tíma. Sjá hluti "Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt", síða 268. Ef lág stilling hitastigs er notuð geta ferskir ávextir og grænmeti verið fryst að hluta.
  • Geymið matvælin í lokuðum ílátum til að koma í veg fyrir breytingar á lykt og bragði.
  • Ekki geyma of mikið af matvælum í kæliskápnum. Settu matvælin þannig að loft geti leikið óhindrað um þau.
  • Gerið loftflæði mögulegt með því að skilja eftir bil á milli matvæla og innri hliða. Ef matvæli snerta afturhliðina gætu þau frosið.
  • Látið heitan mat kólna niður í stofuhita áður en hann er settur í kæliskápinn. Þegar þær hafa kólnað, setjið þær á neðri hillurnar. Haldið þeim frá matvælum sem spillast auðveldlega.
  • Setjið frosin matvæli sem verið er að afþíða í kæliskáp. Þetta sparar orku og varðveitir gæði matvæla.
  • Ekki geyma óþroskaða suðræna ávexti (eins og mangó, melónur, papæjualdin, banana eða ananas) í kæliskápnum. Það getur valdið því að þeir þroskist hraðar og stytt geymslutíma þeirra.
  • Ekki geyma lauk, hvítlauk og annað rótargrænmeti í kæliskápnum. Geymið það í dimmu, köldu herbergi.
  • Fjarlægja skal og henda mat sem hefur spillst og hreinsa yfirborðin sem komust í snertingu við hann.
  • Til að kæla hratt stóra potta af mat eins og súpum og kássum skal skipta þeim í grunn ílát áður en þau eru sett í kæliskápinn.
  • Ekki setja ópökkuð matvæli nálægt eggjum.
  • Hafið ávexti og grænmeti aðskilin og geymið sömu tegundir saman (til dæmis: epli með eplum, gulrætur með gulrótum).
  • Fjarlægið grænt grænmeti úr plastpokanum og setjið það í kæliskápinn eftir að það er vafið í pappírsþurrkur eða viskustykki. Gangið úr skugga um að þvegna grænmetið sé þurrt áður en það er sett í kæliskápinn.
  • Geymið ávexti og grænmeti sem skrælnar auðveldlega í götuðum eða opnum plastpokum. Það skapar rakt umhverfi og gerir loftflæði mögulegt.
  • Nema umhverfisaðstæður séu öfgafullar heldur stilling tækisins á ráðlagt hitastig matvælunum ferskum lengur í kæliskápnum.
  • Ekki setja mat upp við hitaskynjarann sem staðsettur er á miðri hægri hlið innanrýmis. Þetta gerir kæliskápnum kleift að halda kjörhitastigi sínu fyrir geymslu.
  • Mælt er með að nota skúffurnar fyrir geymslu. Þetta sparar orku og gefur matnum betri geymsluaðstæður.
  • Grænmetisskúffan heldur grænmetinu fersku með því að halda rakastiginu. Hringrás kalds lofts er meiri í grænmetisskúffunni. Geymið ávexti og grænmeti í þessari skúffu. Haldið grænu grænmeti og ávöxtum aðskildum til að þau endist lengur.

Aðrar ráðleggingar varðandi kæliskáp:

Matvæli Råðlegging
Kjöt (allar gerðir) Vefðu inn í pólýpen (plast) og settu á glerhilluna fyrir ofanskúffuna fyrir ávexti og grænmeti
Eldaður matur, kaldir réttir o.s.frv. Breiddu yfir og settu í einhverja hillu
Ávextir og grænmeti Geymdu í skúffunni fyrir ávexti og grænmeti
Smjör og ostur Vefðu inn í loftþétta filmu eða plastfilmu
Mjólkurflöskur, aðrir drykkir í flöskum og vökvar í dósum Gakktu úr skugga um að flöskur séu með loki og geymdulpær í hurðargrindunum
Egg og pökkuð matvæli Geymdu í hurðargrindunum, settu eggin í eggjahaldarana

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 1

ATHUGADU!

Orkunýtni tækisins er best þegar allar hillur eru í upphaflegum staðsetningum sínum. Hins vegar er hægt að fjarlægja hillurnar til að þrífa þær eða til að skapa meira pláss í kæliskápnum.

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 1

Ráðleggingar um geymslu fyrir mismunandi tegundir matvæla er að finna í hlutanum "Almennar ráðleggingar um geymslu", síða 292.

Matvæli geymd í frystiskápnum

Elvita CKF2200V - Matvæli geymd í frystiskápnum - 1

VIÐVÖRUN!

  • Ekki fjarlægja eða setja matvæli eða ílát í frystihólfið með blautum höndum þegar frystiskápurinn er í gangi, sérstaklega ekki málmílát, til að forðast skrámu á húð og kulda.
  • Neytið ekki frosinna matvæla, eins og íspinna eða ísmola, beint úr frystiskápnum. Það gæti valdið frostbruna.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

  • Farið alltaf eftir þeim geymslutíma og fyrningardagsetningum sem framleiðendur leggja til.
  • Eftir að fryst matvæli hafa verið þídd niður skal ekki frysta þau aftur. Þegar matvæli hafa þiðnað geta gæðin versnað smám saman eða þau skemmst.
  • Ekki setja kolsýrða eða freyðandi drykki í frystiskápinn þar sem það skapar þrýsting í ílátinu, sem getur valdið því að það springi og skemmi tækið.
  • Verið viss um að flöskur eða glerílát séu ekki skilin eftir í frystiskápnum lengur en þess er þörf. Flöskurnar og ílátin geta sprungið ef innihaldið frýs.
  • Ekki kaupa frosinn mat sem hefur verið geymdur við hlýrra hitastig en -18°C.
  • Ekki neyta frosinna matvæla ef umbúðirnar eru rakar og hafa þrútnað óeðlilega út. Líklegt er að matvælin hafi verið geymd á rangan hátt og hafi spillst.

Elvita CKF2200V - VARÚÐ! - 1

ATHUGIÐ!

Ekki frysta banana, tómata, salat, sellerí, soðin egg, kartöflur og álíka matvæli. Næringargildi, bragð og aðrir matareiginleikar verða fyrir neikvæðum áhrifum.

Notið eftirfarandi ábendingar og ráðleggingar við geymslu matvæla í frystiskápnum.

  • Notið ráðlagðar stillingar hitastigs til að halda matnum ferskum í lengri tíma. Sjá hluti "Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt", síða 268.
  • Undirbúðu matvælin í smáum skömmtum til að þau frjósi hratt og fullkomlega, sem gerir það aftur á móti mögulegt að þíða einungis niður það magn sem þarf í hvert skipti. Þegar matvæli hafa verið þídd niður þá spillast þau fljótt og ekki má frysta þau aftur.
  • Fjarlægja skal og henda mat sem hefur spillst og hreinsa yfirborðin sem komust í snertingu við hann.
  • Ekki geyma matvæli í frystinum án umbúða.
  • Geymið matvælin í lokuðum ílátum til að koma í veg fyrir beina snertingu við innra yfirborð og þar sem örverur úr matvælum sem geymd eru í ólokuðum ílátum geta valdið vondri lykt.
  • Notið umbúðir úr efnum sem henta fyrir frystingu, sem rifna ekki, eru loftþéttar og þola kulda, raka, lykt og sýrur. Annars gætu matvæli sem hafa harðnað við frystingu gert gat á umbúðaefnið. Lokið umbúðunum vel.

Eftirfarandi umbúðaefni henta til að frysta matvæli:

– Pólýetýlenpoki - Álpappír - Plastfilma - Lofttæmdir pokar – Kuldapolin geymsluílát með loki

Ekki er mælt með eftirfarandi umbúðaefni til að frysta matvæli:

  • Umbúðapappír – Smjörpappír – Sellófan (gelatínpappír)
  • Ruslapokar

- Notaðir pokar og innkaupapokar

  • Til að ná sem bestum árangri við frystingu ferskra matvæla skal kveikja á Super Freeze stillingunni. Sjá hluti "Kveikt og slökkt á Super Freeze stillingu", síða 269.
  • Þegar notuð er Super Freeze stilling til að frysta lítið magn matvæla, slökkvið á stillingunni eftir nokkurn tíma til að spara orku.
  • Merktu og dagsettu hverja pakkningu sem á að frysta til að geta fylgst með geymslutímanum. Taktu út eins marga hluti og þarf í einu.
  • Ekki láta fersk ófrosin matvæli komast í snertingu við matvæli sem eru þegar frosin til að forðast að hitastig þeirra síðarnefndu hækki.
  • Sjóðið grænmeti í stuttan tíma áður en það er fryst til að varðveita næringargildi þess, ilm og lit eins mikið og mögulegt er. Fjarlægið allt umframvatn og pakkið soðna grænmetinu rétt inn til að lengja geymslutímann enn frekar.

Elvita CKF2200V - ATHUGIÐ! - 1

ATHUGIÐ!

Sumt grænmeti er ekki nauðsynlegt að sjóða, eins og gúrku og steinselju.

  • Farið alltaf eftir þeim geymslutíma og fyrningardagsetningum sem framleiðendur leggja til.
  • Neyta ætti frosinna matvæla stuttu eftir afþíðingu og aldrei skal endurfrysta þau.
  • Gangið úr skugga við matarinnkaup að frosin matvæli séu frosin við viðeigandi hitastig og umbúðir þeirra séu ekki rofnar. Setjið matvælin í frystiskápinn eins fljótt og mögulegt er eftir að þau eru keypt.
  • Forðist að kaupa forpökkuð frosin matvæli ef umbúðirnar eru þaktar ís. Þetta þýðir að varan gæti hafa þiðnað niður að hluta og verið fryst aftur.
  • Til að afþíða frosin matvæli skal, eftir tegund matvælanna, gera eitt af eftirfarandi:

- Afþíðið við stofuhita.

Elvita CKF2200V - ATHUGIÐ! - 1

ATHUGIÐ!

Afþíðing matvæla við stofuhita yfir langan tíma hentar ekki mjög vel ef reyna á að viðhalda gæðum matvælanna.

– Afþíðið í kælihólfinu. Þetta sparar orku og varðveitir gæði matvæla. - Afþíðið í rafmagnsofni. – Afþíðið í örbylgjuofni.

Notið eftirfarandi ráð og ábendingar til að spara orku:

  • Ekki geyma heitan mat eða vökva sem gufa kemur úr í frystiskápnum. Ef heit matvæli eru sett beint í kæli- eða frystiskápinn veldur það hækkun á innra hitastigi sem leiðir til þess að þjappan þarf að vinna meira og nota meiri orku. Kæla verður heitan mat og drykki að stofuhita áður en þau eru geymd.
  • Ekki yfirfylla frystiskápinn. Ef loftflæði að innan er hindrað þá minnkar kæligetan.
  • Orkunýting tækisins er best þegar allar hillur og skúffur eru í upphaflegum staðsetningum sínum.
  • Ekki setja hillur þannig að loftúttökin á afturhliðinni séu hindruð og helst á þann hátt að loftúttökin séu fyrir neðan glerhilluna. Þetta getur aukið loftflæði og orkusparnað.
  • Ekki hafa hurðina opna í langan tíma. Það gæti valdið verulegri hækkun á hitastigi í hólfunum. Með hurðina lokaða eru afköst frystiskápsins og íhluta hans í hámarki og orkunotkunin í lágmarki og örugg geymsla matvælanna er tryggð.
  • Hámarksgeymslurými fyrir frosin matvæli næst með því að fjarlægja efri skúffurnar. Æskilegt er að setja matvælin á hillurnar.
  • Ekki setja matvæli þannig að þau séu í beinni snertingu við hitastigsnemann í rýminu.

Elvita CKF2200V - ATHUGIÐ! - 1

Ráðleggingar um geymslu fyrir mismunandi tegundir matvæla er að finna í hluti "Geymsluráð", síða 290 og hluti "Almennar ráðleggingar um geymslu", síða 292.

HREINSUN OG VIÐHALD

Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn

Þrifið kæli- og frystiskápinn á 15 daga fresti til að hindra myndun lyktar. Þrifið hurðarþéttingar reglulega til að fjarlægja leifar. Klístraður matur og drykkir geta valdið því að þéttingin festist við skápinn og rifni þegar hurðin er opnuð. Auðveldara er að þrífa þegar litlar matarbirgðir eru í tækinu. Óviðeigandi þrif á yfirborðum innanrýmis getur leitt til slæmrar lyktar.

Elvita CKF2200V - Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn - 1

VIÐVÖRUN!

Lesið öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild áður en þrif eða viðhald á þessari vöru eru framkvæmd.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

- Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn áður en hreinsað er. Hætta er á rafstuði.

- Notaðu ekki málmhluti, beitta hluti, gufuhreinsi, þynni, bílahreinsiefni, klór, léttolíu, svarfandi hreinsiefni eða lífræn leysiefni eins og bensen til að þrífa. Það gæti skemmt yfirborð tækisins og gæti valdið eldsvoða.

- Ekki setja hendur, fætur eða málmhluti undir eða fyrir aftan tækið. Hætta er á að klemmast og beittar brúnir geta valdið meiðslum.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

• Hreinsaðu reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við matvæli og aðgengilegan frárennslisbúnað.

- Ekki skola beint með vatni eða öðrum vökvum til að forðast skemmdir á tækinu, skammhlaup eða áhrif á rafmagnseinangrun.

- Ekki nota hreinsiefni (eins og sápu, þvottaefni, skrúbbduft, úðahreinsi o.s.frv.) til að hreinsa innanrýmið. Þau geta valdið lykt og mengað matvæli.

- Ekki nota edik, spritt eða önnur hreinsiefni með alkóhóli á nein innri yfirborð.

- Ekki nota vatn eða hreinsivörur með klóri á ytri yfirborð og krómhúðaða hluta tækisins. Klór veldur ryði á málmyfirborðum.

- Ekki nota beitt eða svarfandi verkfæri eða hreinsiefni heimilis, þvottaefni, gas, bensín, þynni, alkóhól, lakk og svipuð efni við að þrífa tækið. Með því er komið í veg fyrir aflögun plasthlutanna. Notið einungis hreinsi- og viðhaldsefni sem eru ekki skaðleg matvælum sem geymd eru í tækinu.

- Fjarlægið ryk fyrir aftan kæli- og frystiskápinn og þrífið svæðið í kring (án þess að opna) a.m.k. einu sinni á ári til að bæta kælingaráhrifin og spara orku. Þrífið tækið með þurrum klút.

- Fjarlægið olíu sem lekið hefur á plasthluta tafarlaust með heitu vatni, þar sem hún gæti skemmt yfirborðið.

Elvita CKF2200V - VARÚÐ! - 1

ATHUGIÐ!

- Afþíðing gerist sjálfvirkt. Vatn sem myndast við afþíðingarferlið rennur í dropabakka í gegnum frárennslisrör aftan á tækinu.

- Með afþíðingareiginleikanum geta vatnsdropar og ís sem ná allt að fingurbreidd að þykkt myndast á afturhlið kælihólfsins. Ekki hreinsa það, og aldrei nota olíur eða svipuð efni.

Elvita CKF2200V - ATHUGIÐ! - 1

Elvita CKF2200V - ATHUGIÐ! - 2

  1. Takið kæli- og frystiskápinn úr sambandi til að slökkva á honum.
  2. Fjarlægið matvæli, drykkjarvörur og hillur og skúffur innanrýmis. Hendið mat og drykkjarvörum sem hafa spillst.
  3. Þurrkið vandlega af innanrýminu og hurðarpéttum með heitu sápuvatni og mjúkum klút. Skolið af með mjúkum, rökum klút og þurrkið síðan alveg.

VARÚÐ! Haldið vatni fjarri ljóshlífinni og öðrum rafmagnsíhlutum.

  1. Þrífið skúffur og hillur í vaski með heitu sápuvatni. Skolið og þurrkið alveg.
  2. Þrífið hurðina og hurðarhandfangið með blöndu af mildum uppþvottalegi og vatni með því að nota örtrefjaklút. Skolið af með mjúkum, rökum klút og þurrkið alveg.

ATHUGIÐ!

  • Þurrkið ljósið og stjórnborðið einungis með mjúkum þurrum klút.
  • Svampar og aðrar tegundir hreinsiklúta geta rispað ytra byrðið.

Elvita CKF2200V - ATHUGIÐ! - 1

Úðið vatni á hreinsiklútinn frekar en að úða beint á yfirborð kæli- og frystiskápsins. Það hjálpar til við að tryggja jafna dreifingu raka á yfirborðinu.

  1. Settu hillur og skúffur innanrýmis aftur í kæli- og frystiskápinn.

ATHUGIÐ! Gangið úr skugga um að öll yfirborð séu alveg þurr, sérstaklega hurðarpéttin, áður en hillurnar og skúffurnar eru settar aftur í.

  1. Stingið kæli- og frystiskápnum í samband til að kveikja á honum.

VIÐVÖRUN!

  • Gangið úr skugga um að rafmagnssnúran sé ekki með sprungur eða skemmdir. Ef rafmagnssnúran er skemmd hafið þá samband við söluaðilann þar sem varan var keypt eða hafið samband við Elvita þjónustu.
  • Ekki setja kæli- og frystiskápinn aftur í samband við rafmagn nema hann sé alveg þurr að innan.

Gangið úr skugga um að kæli- og frystiskápurinn sé nægilega kaldur áður en matvælin og drykkjarvörurnar eru sett aftur í hann.

Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma

Nokkurs undirbúnings er þörf ef slökkva skal á frystiskápnum í langan tíma til að halda honum í góðu ástandi og koma í veg fyrir myglu.

1Elvita CKF2200V - Undirbúningur ef ekki á að nota tækið í langan tíma - 1

  1. Takið frystiskápinn úr sambandi til að slökkva á honum.
  2. Fjarlægið matvælin úr frystiskápnum, gangið úr skugga um að öll ísing hafi þiðnað og öllu vatni hafi verið tappað af, og þrifið hann síðan. Sjá hluti "Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn", síða 274.

Skiljið hurðirnar eftir opnar til að hindra að lykt myndist.

Þegar frystiskápurinn er ræstur eftir tímabil án notkunar skal láta hann vera í gangi í a.m.k. 6 klukkustundir á lágri stillingu hitastigs áður en matvæli eru sett í hólfið.

Ef skipta þarf um LED-ljós

Elvita CKF2200V - Ef skipta þarf um LED-ljós - 1

VIÐVÖRUN!

Notendur eiga ekki að skipta um LED-ljós sjálfir. Hafðu samband við þjónustu Elvita ef LED-ljósið er skemmt.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Öll rafmagnsþjónusta fyrir tækið skal vera framkvæmd af viðurkenndum rafvirkja eða hæfum einstaklingi.
  • Þjónusta fyrir þetta tæki skal vera framkvæmd af viðurkenndri þjónustumiðstöð og aðeins má nota upprunalega varahluti.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

ATHUGADU!

  • Perurnar sem notaðar eru í þessu tæki henta ekki til lýsingar í herbergjum heimilis.
  • Tilgangur ljóssins sem notað er í tækinu er að auðvelt sé að taka matvæli úr tækinu og setja þau í það.

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 1

Tækið virkar ekki rétt

Elvita CKF2200V - Tækið virkar ekki rétt - 1

VIDVÖRUN!

  • Aðeins viðurkenndir tæknimenn mega framkvæma viðgerðir.
  • Ef vandamál koma upp varðandi tækið athugaðu þá hvort notendaleiðbeiningar og bilanagreiningarupplýsingar geta hjálpað þér við að leysa þau. Ef vandamálið er viðvarandi skaltu hafa samband við viðurkenndan tæknimann, viðurkenndan rafvirkja eða smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Raftenging virkar ekki

  1. Athugaðu öryggi eða raftengingu.
  2. Ef þau eru ekki í nothæfu ástandi skaltu hafa samband við viðurkenndan rafvirkja.

Rafmagnskló hefur ekki verið sett í

Tengdu rafmagnskló við rafmagnsinnstungu.

Lykt kemur úr hólfunum

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Innra byrði er ekki hreint

Hreinsaðu innra byrði. Sjá hluti "Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn", síða 274.

Matvæli, umbúðir eða pakkningar valda lykt

Notaðu önnur ílát, pakkaðu matvælum á réttan hátt eða fjarlægðu ónýt matvæli úr tækinu.

Hávaði berst úr tækinu

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Hávaði er eðlilegur meðan tækið er í gangi

Eftirfarandi hávaði er eðlilegur meðan tækið er í gangi:

  • Hávaði frá þjöppunni meðan hún er í gangi.
  • Vinnsluhljóð aukast við breytilegt umhverfishitastig þegar tækið er í notkun.
  • Hljóð vegna hreyfingar lofts frá litla viftumótornum í tækishólfinu.
  • Vökvi streymir eða úðast af völdum lögmálanna sem stýra streymi vökva og gass í tækinu.

Skápurinn er ekki jafnvægisstilltur

Hallastillið tækið. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 284.

Elvita CKF2200V - Hávaði berst úr tækinu - 1

VIÐVÖRUN!

Setja verður þetta tæki á slétt og traust yfirborð úr hörðu efni. Hallastilltu framfæturna þegar þörf krefur.

Hlutir settir ofan á tækið

Fjarlægið alla hluti sem eru ofan á tækinu og gætu valdið hávaða.

Þjappan er samfellt í gangi

Eðlilegt er að heyra hljóðið í þjöppunni

Það er eðlilegt að heyra oft hljóð í þjöppunni. Þjappan þarf oftar að vera í gangi þegar:

  • hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er. Auktu hitastigið;
  • mikið magn af heitum matvælum var nýlega sett í skápinn. Ekki setja heitan mat í tækið;
  • hitastigið fyrir utan tækið er of hátt;
  • hurðirnar eru hafðar opnar of lengi eða of oft;
  • þetta tæki er stærra en áður uppsett tæki. Stærri kælitæki þurfa að vera í gangi í lengri tíma;
  • tækið var nýlega uppsett eða það hefur verið slökkt á því í langan tíma.

Hurðarþétti er ekki hreinn, slitinn, rofinn eða ekki rétt upp settur.

Þrýfið þéttilistann eða skiptið um hann. Hafið samband við Elvita þjónustu.

Þjappan er ekki í gangi

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Varmaöryggi þjöppunar hefur sprungið við skyndilega rafmagnsbilun eða þegar verið var að taka tækið úr sambandi og setja það í samband.

Ekki er enn komið jafnvægi á þrýsting kælimiðils í kælikerfi tækisins. Tækið mun fara í gang eftir u.þ.b. 6 mínútur. Hafið samband ef vandamálið er viðvarandi. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.

Tækið er í afþíðingarlotu.

Þetta er eðlilegt fyrir tæki sem er með sjálfvirka afþíðingu. Afþíðingarlota á sér stað með reglulegu millibili.

Tækið er ekki tengt við raftengingu.

Tengið rafmagnssnúruna við raftenginguna. Gangið úr skugga um að klóin sé rétt sett í innstunguna.

Stilling hitastigs er ekki rétt framkvæmd.

Hitastigi breytt. Sjá hluti "Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt", síða 268.

Það er rafmagnsbilun.

Tækið hefur venjulega virkni aftur þegar rafmagn kemst á.

Hitastig í öðru hólfinu er of lágt á meðan hitastigið í hinu hólfinu er nægjanlegt.

Hitastigið er stillt of lágt.

Auktu hitastigið. Sjá hluti "Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt", síða 268.

Hitastigið að innan er of hátt.

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Hurðirnar hafa verið skildar eftir opnar of lengi eða of oft.

Gakktu úr skugga um að hurðin sé alveg lokuð. Athugaðu að hurðunum sé ekki haldið opnum af einhverri hindrun.

Tækið er ekki með nægilegt pláss í kringum sig.

Færðu tækið þannig að það sé nægilegt pláss í kringum það. Sjá hluti "Uppsetningarsvæði", síða 281.

Stilling hitastigs er stillt á of mikinn hita.

Lækkaðu hitastigið. Sjá hluti "Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt", síða 268.

Tækið er sett í samband eða matvæli nýlega sett í það.

Hærra hitastig er eðlilegt. Þegar tækið er sett í samband eða matvæli hafa nýlega verið sett í það þá tekur lengri tíma að ná stilltu hitastigi.

Mikið magn af heitum matvælum nýlega sett í skápinn.

Ekki setja heitan mat inn í tækið.

Ytra byrði tækisins virðist heitt.

Það er eðlilegt að ytra byrði tækisins sé heitt þegar það er í notkun. Það gæti orðið vart við hátt hitastig að utan, eins og á hliðunum, frambrúnunum og svæði ristar að aftan, vegna kælileiðsla kælikerfisins. Þetta er eðlilegt og krefst ekki þjónustu. Farið varlega þegar þessi svæði eru snert.

Ekki hægt að loka hurð auðveldlega.

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Eitthvað innan í er að hindra lokun hurðarinnar

Fjarlægðu hlutinn sem hindrar að hurðin lokist.

Skápurinn er ekki jafnvægisstilltur

  • Gangið úr skugga um að yfirborðið henti fyrir tækið. Sjá hluti "Uppsetningarsvæði", síða 281.
  • Hallastillið tækið. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 284.

Ekki hægt að opna skúffu auðveldlega

Matvæli snerta þak skúffunnar

Endurraðið hlutunum sem hindra að skúffan lokist.

Rakapétting á innra byrði tækisins

Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.

Umhverfisrakastig er of hátt

Ekki setja tækið upp á stað þar sem mikill raki er. Þurrkið rakapéttinguna af með hreinni þurrku.

Elvita CKF2200V - Umhverfisrakastig er of hátt - 1

ATHUGAÐU!

Heitt og rakt veðurfar eykur rakapéttingu. Þetta er eðlilegt og ekki merki um bilun.

Hurðin hefur verið skilin eftir opin of lengi eða opnuð of oft

Gakktu úr skugga um að hurðin sé alveg lokuð. Athugaðu að hurðinni sé ekki haldið opinni af einhverri hindrun.

Vökvi í opnu íláti í tækinu

Ekki geyma vökva í opnu íláti í tækinu. Hyljið eða lokið ílátinu.

Hitastigið er stillt of lágt

Auktu hitastigið. Sjá hluti "Hitastigi í kæli- og frystiskáp breytt", síða 268.

Rakapétting á ytra byrði tækisins

Heitt og rakt veðurfar eykur rakapéttingu. Þetta er eðlilegt og ekki merki um bilun. Þegar rakastigið lækkar þá hverfur rakapéttingin.

Fáanleiki varahluta

Eftirfarandi varahlutir eru fáanlegir sjö árum eftir að síðasta tækið af viðkomandi gerð var sett á markað: Hitastillar, hitastigsnemar, prentrásaborð, ljósgjafar, hurðarhandföng, bakkar, körfur og hurðarlamir.

Eftirfarandi varahlutir eru fáanlegir tíu árum eftir að síðasta tækið af viðkomandi gerð var sett á markað: Hurðarþéttingar.

Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.

Elvita CKF2200V - Fáanleiki varahluta - 1

ATHUGADU!

  • Það tekur lágmark 15 vinnudaga að fá varahluti sem eru pantaðir.
  • Viðgerðarstarfsmenn geta útvegað hitastilla, hitastigsnema, prentrásaborð og ljósgjafa.
  • Viðgerðarstarfsfólk og endanlegir notendur geta útvegað hurðarhandföng, bakka, körfur, hurðarlamir og hurðarþéttingar.

UPPSETNING

Fylgdu leiðbeiningunum í þessum hluta til að setja upp tækið.

Elvita CKF2200V - UPPSETNING - 1

HÆTTA!

Vertu viss um að tækið hafi verið tekið úr sambandi við rafmagn áður en uppsetning fer fram eða aukahlutir stilltir.

Elvita CKF2200V - HÆTTA! - 1

VIÐVÖRUN!

Lestu öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild sinni áður en þú setur þetta tæki upp eða notar það.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Þessi vara er ekki ætluð til notkunar sem innbyggt tæki. • Gætið þess að kælimiðilsrásin skemmist ekki.
  • Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé þrengt að rafmagnssnúrunni eða hún verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Staðsetjið ekki fjöltengi eða færanlega aflgjafa fyrir aftan tækið.
  • Tengið ekki tækið við rafmagnsinnstungu ef tækið er skemmt. Hafið sambandi við smásöluaðilann þar sem tækið var keypt.
  • Notið sérúthlutaða rafmagnsinnstungu, sem þýðir að ekki skal deila rafmagnsinnstungunni með öðrum tækjum.
  • Stinga verður klónni í viðeigandi rafmagnsinnstungu sem er sett upp og jarðtengd samkvæmt öllum staðbundnum lögum og reglugerðum.
  • Ekki nota rafmagnsinnstungu sem hægt er að slökkva á með rofa eða öðrum rafmagnssparnaðarbúnaði.
  • Gangið úr skugga um að tengistærðir tækisins séu samsvarandi við rafveitu. Þessar upplýsingar (stærð öryggja, spenna og tíðni) má finna á merkingu tækisins. Ef vafi leikur á skal ráðfæra sig við viðurkenndan rafvirkja.
  • Notið ekki framlengingarsnúru og lengið ekki rafmagnssnúruna.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VARÚD!

Farðu varlega þegar tækið er meðhöndlað til að tryggja að það falli ekki og valdi meiðslum.

Elvita CKF2200V - VARÚD! - 1

ATHUGADU!

Hafið samband við þjónustudeild ef það eru einhver áhyggjuefni varðandi uppsetninguna. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.

Uppsetningarsvæði

Elvita CKF2200V - Uppsetningarsvæði - 1

HÆTTA!

Haldið eldfimum efnum og gufum, eins og bensíni, fjarri tækinu til að forðast hættu á dauðsfalli, sprengingu eða eldsvoða.

Elvita CKF2200V - HÆTTA! - 1

VIÐVÖRUN!

Lestu öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild sinni áður en þú setur þetta tæki upp eða notar það.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIÐVÖRUN!

  • Þegar tækið er staðsett skal tryggja að ekki sé brengt að rafmagnssnúrunni og rafmagnstenglinum eða að þau verði fyrir skemmdum. Skemmdur rafmagnstengill getur ofhitnað og valdið eldsvoða.
  • Þegar verið er að staðsetja tækið skal tryggja að hægt sé að komast að rafmagnstenglinum.
  • Haldið loftræstiopum utan á tækinu lausum við hindranir.
  • Setjið tækið ekki upp nema nægilegt pláss og loftræsting sé í kringum tækið. Það myndi valda ofhitnun.
  • Setjið bakhlið tækisins ekki of nálægt vegg. Hætta er á eldsvoða ef þjappan ofhitnar.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

VIDVÖRUN!

  • Ekki setja tækið upp nálægt hitagjöfum eins og eldavélum, helluborðum, ofnum eða miðstöðvarhiturum. Bilið á milli tækisins og slíkra hitagjafa verður að vera að lágmarki 300 mm.
  • Ekki setja tækið upp nálægt rafmagnsofnum. Bilið á milli tækisins og slíkra hitagjafa verður að vera að lágmarki 50 mm.
  • Þegar tækið er staðsett verður bilið fyrir ofan það að vera að lágmarki 50 mm, og setja verður tækið upp að vegg með fríbili sem er a.m.k. 50 mm svo lofthringrás sé möguleg og til að hindra ofhitnun og aukna orkunotkun.

Elvita CKF2200V - VIDVÖRUN! - 1

VARÚÐ!

Þessi vara virkar vel innan loftslagsflokksins frá SN til ST. Sjá hluti "Loftslagsflokkun", síða 289. Tækið gæti ekki virkað rétt ef það er útsett í langan tíma fyrir hitastigi sem er fyrir ofan eða neðan hitastigssviðið sem nær frá 10 °C til 38 °C.

Elvita CKF2200V - VARÚÐ! - 1

ATHUGADU!

Hafið samband við þjónustudeild ef það eru einhver áhyggjuefni varðandi uppsetninguna. Hafðu samband við Elvita þjónustu ef þú þarft hjálp með tækið þitt.

Hafðu eftirfarandi í huga þegar valinn er staður til að setja tækið upp á:

  • Forðastu beint sólarljós, rigningu eða frost.
  • Haltu frá hitagjöfum, eins og eldavélum, ofnum, eldum, hiturum eða ofnum.
  • Staðsettu á vel loftræstum stað innandyra. Haldið loftræstiopum utan á tækinu lausum við hindranir.
  • Ekki setja tækið upp á rökum eða blautum stað.
  • Ef dyraop er of þröngt til að tækið komist í gegn skal fjarlægja hurðina og snúa tækinu á hlið. Ef það dugir ekki skal hafa samband við þar til bæra þjónustu.
  • Ekki setja tækið upp á mottu, teppi eða svipuðu efni.
  • Yfirborðið á að vera hart, þurrt og lárétt.
  • Hafðu nægilegt pláss til að hurðirnar og skúffurnar geti auðveldlega opnast, í samræmi við mælivíddirnar.
  • Ekki setja tækið upp í umhverfi með hitastigi undir -5 °C.

Til að hallastilla tækið rétt og leyfa hringrás lofts að neðan aftan á tækinu gæti þurft að stilla fæturna. Sjá hluti "Jafnvægisstilling kæli- og frystiskáps", síða 284.

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 1

Hægt er að spara orku og gera kælikerfið skilvirkara með því að hafa nægilegt pláss í kringum tækið þar sem það er sett upp. Það tryggir góða loftræstingu.

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 2

Haldið öllum umbúðum fjarri börnum þar sem hætta er á köfnun.

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 3

ATHUGADU!

Geymið umbúðirnar fyrir hugsanlega flutninga á tækinu í framtíðinni.

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 1

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 2

  1. Athugaðu hvort einhverjar skemmdir eru á pakkningunum. Ef umbúðirnar eru skemmdar skal ekki taka kæli- og frystiskápinn úr þeim. Hafið samband við smásöluaðilann þar sem varan var keypt.
  2. Fjarlægið pappakassann, plastfilmuna og frauðpakkningarnar.
  3. Fjarlægið pappa og límbönd sem verja hillur og skúffur. Takið aukahlutina og uppsetningarhlutina innan úr kæli- og frystiskápnum.
  4. Athugið hvort einhverjar skemmdir eru á kæli- og frystiskápnum. Ef kæli- og frystiskápurinn er skemmdur skal ekki tengja hann við raftengingu. Geymið umbúðirnar og hafið samband við smásöluaðilann þar sem varan var keypt.

Stillið fæturna þar til allir fæturnir snerta gólfið og kæli- og frystiskápurinn er láréttur. Það kemur í veg fyrir að kæli- og frystiskápurinn hreyfist og hindrar titring.

Elvita CKF2200V - ATHUGADU! - 3

VIÐVÖRUN!

  • Gætið þess að klemma ekki hendurnar milli tækisins og undirlagsins eða milli tækisins og fótarins sem verið er að stilla. Hætta á meiðslum!
  • Yfirborðið sem tækið er uppsett á verður að vera nægilega sterkt til að standa undir fullhlöðnu tæki.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

  1. Athugið hvort einhver af fótunum snerti ekki gólfið, og ef þarf, stillið framfæturna með því að skrúfa fótinn út með hendi eða viðeigandi skrúflykli þar til hann snertir gólfið.
  • Snúðu fætinum réttsælis til að lækka kæli- og frystiskápinn.
  • Snúðu fætinum rangsælis til að hækka kæli- og frystiskápinn.

Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 2

Auðveldara er að stilla fæturna ef einhver heldur við kæli- og frystiskápinn.

  1. Notaðu hallamæli til að athuga hvort kæli- og frystiskápurinn sé alveg láréttur og stilltu fæturna aftur ef þarf.

Hurðir fjarlægðar og settar upp

Elvita CKF2200V - Hurðir fjarlægðar og settar upp - 1

VIÐVÖRUN!

Ekki hafa tækið tengt við rafmagn meðan verið er að fjarlægja og setja upp hurðir. Gakktu úr skugga um að rafmagnstengillinn hafi verið tekinn úr sambandi við rafmagnsinnstunguna.

1Elvita CKF2200V - VIÐVÖRUN! - 1

  1. Taktu kæli- og frystiskápinn úr sambandi við rafmagn.
  2. Fjarlægið skrúfuna á efri hjararhlífinni með skrúfjárni.
  3. Fjarlægið efri hjararhlífina og aftengið tengin.
  4. Fjarlægið skrúfurnar og jarðtengingarkapalinn á efri hjörinni með skrúfjárni.
  5. Lyftið efri hurðinni upp á við til að fjarlægja hana. Setjið hurðina á mjúkt yfirborð með framhliðina upp.
  6. Fjarlægið skrúfurnar og miðhjörina.
  7. Lyftið neðri hurðinni upp á við til að fjarlægja hana frá neðri hjörinni. Setjið hurðina á mjúkt yfirborð með framhliðina upp.
  8. Til að setja upp hurðirnar skal endurtaka skrefin í öfugri röð.

Hurð snúið við

Hægt er að breyta því hvaða hlið hurðarinnar opnast ef uppsetningin krefst þess.

1Elvita CKF2200V - Hurð snúið við - 1

  1. Fjarlægið hurðirnar af hjörunum. Sjá hluti "Hurðir fjarlægðar og settar upp", síða 285.
  2. Ofan á kæli- og frystiskápnum, fjarlægið skrúfugatshlífarnar með flötu skrúfjárni og tengishlífina með skrúfjárni, setjið þær síðan á gagnstæðu hliðina.
  3. Á gagnstæðu hlið kæliskápshurðarinnar, takið tengisnúruna út og setjið tengishlífina í.

ATHUGIÐ! Tengishlífin fyrir vinstri hliðina fylgir með tækinu. Sjá hluti "Aukahlutir og uppsetningarhlutar", síða 265.

  1. Fyrir báðar hurðir, fjarlægið skrúfuna og hurðarstoppara.

ATHUGIÐ! Geymið stopparann á öruggum stað, þú þarft hann ef þú vilt snúa hurðunum aftur.

  1. Fyrir báðar hurðir, setjið upp hinn hurðarstopparann, með því að nota sömu skrúfu, á gagnstæða hlið kæli- og frystiskápsins.

ATHUGADU! Hurðarstopparinn fyrir vinstri hliðina fylgir með tækinu. Sjá hluti "Aukahlutir og uppsetningarhlutar", síða 265.

  1. Á hlifðarplötunni í miðju, fjarlægið skrúfugatshlífarnar og setjið upp á gagnstæða hlið kæli- og frystiskápsins.
  2. Hallaðu kæli- og frystiskápnum örlitið aftur á bak til að fá aðgang að framfótunum og neðri hjörum.

ATHUGADU! Látu kæliskápinn hvila á mjúkum frauðpakkningum eða sambærilegu efni til að forðast að skemma bakhlutann.

  1. Losið skrúfurnar á neðri hjörinni með skrúfjárni.
  2. Skrúfið hjararpinnann úr og skrúfið hann aftur í gagnstæðu stöðuna með 13 mm skrúflykli.
  3. Setjið neðri hjörina á gagnstæða hlið kæliskápsins með skrúfum og skrúfjárni.
  4. Víxlið stöðu efri lamartappans og efra lamarhússins á neðri hurðinni.
  5. Setjið hurðirnar á gagnstæða hlið kæli- og frystiskápsins. Sjá hluti "Hurðir fjarlægðar og settar upp", síða 285.

Tveir eða fleiri einstaklingar skulu vera til staðar pegar tækið er flutt eða sett upp til að forðast hættu á meiðslum.

Elvita CKF2200V - Hurð snúið við - 2

VARÚD!

Ekki halda í hurðina, hurðarhandfangið eða lömina pegar tækið er fært.

  1. Fjarlægið matvæli og drykkjarföng úr kæli- og frystiskápnum og geymið þau á köldum stað.
  2. Taktu tækið úr sambandi við rafmagn.
  3. Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn. Sjá hluti "Hreinsaðu kæli- og frystiskápinn", síða 274.
  4. Festið hillurnar, skúffurnar og fjarlægjanlega hluta með límbandi til að hindra hreyfingar við flutning. Kæli- og frystiskápurinn er tilbúinn fyrir flutning.

ATHUGIÐ! Fara skal í einu og öllu eftir flutningsreglunum á umbúðunum.

TÆKNILÝSINGAR

Tæknilýsing

Gerðarkóði tækis Sjá hluti "Finndu gerðarkóðann", síða 266
Hæð 2035 mm
Breidd 603 mm
Dýpt 669 mm
Heildarrúmtak 355 l
Rúmtak kæliskáps 249 l
Rúmtak frystiskáps 106 l
Ráðlögð stilling hitastigs fyrir bestu geymslu á matvælum, fersk matvæli4 °C
Ráðlögð stilling hitastigs fyrir bestu geymslu á matvælum, 4 stjörnur-18 °C
Frystigeta 4,5 kg / 24 klst.
Tegund afþíðingar Sjálfvirkt
Lægsta umhverfishitastig, sem kælitækið hentar fyrir+10°C
Hæsta umhverfishitastig, sem kælitækið hentar fyrir+38 °C
Aflgjafi220~240 V, 50 Hz

Orkunýtni

Þú getur fundið upplýsingar um orkusparnað þessa tækis í EPREL, evrópsku vöruskránni fyrir orkumerkingar. Farðu á vefsíðu EPREL og notaðu gerðarauðkennið til að finna upplýsingarnar. Gerðarauðkennið má finna á orkumerkingunni sem fylgir tækinu.

EPREL vefsíða: https://eprel.ec.europa.eu/

Elvita CKF2200V - Orkunýtni - 1

ENERG

Elvita CKF2200V - Orkunýtni - 2

SUPPLIER'S NAME

MODEL IDENTIFIER

Stærðir

603 669 2035

50 50 50 50

(mm)

Þetta tæki uppfyllir viðeigandi ESB tilskipanir og reglugerðir og ber á sér CE-merkið. Ef það fylgir ekki tækinu er hægt að fá samræmisyfirlýsingu ESB samkvæmt beiðni.

Nothæfi tækisins hefur verið prófað í samræmi við staðal EN 60335 fyrir kælitæki.

Loftslagsflokkun

Flokkur Tákn Umhverfishitastigssvið
Aukið temprað SN +10 °C til +32 °C
Temprað N +16 °C til +32 °C
Heittemprað ST +16 °C til +38 °C
  • Aukið temprað: Kælitækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 10 °C til 32 °C.
  • Temprað: Kælitækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 32 °C.
  • Heittemprað: Kælitækið er ætlað til notkunar við umhverfishitastig á bilinu 16 °C til 38 °C.

Geymsluráð

Kjöt og fiskur Undirbúningur Lengstigeymslutími(mánuðir)
Kjötvörur Kálfakjöt Steik Skerið í 2 cm pykk stykki og setjið filmu á millupeirra eða vefjið þétt með plastfilmu6-8
Steikarstykki Pakkið kjötstykkjunum í kælipoka eða vefjiðpau þétt með plastfilmu
Teningar í litlum stykkjum 6-8
Snitsel Setjið filmu á milli skorinna sneiða eða vefjiðhverja fyrir sig í plastfilmu.
Kindakjöt Kótilettur Setjið filmu á milli kjötstykkja eða vefjið hvertfyrir sig í plastfilmu.
Steikarstykki Pakkið kjötstykkjunum í kælipoka eða vefjiðpau þétt með plastfilmu.
Teningar Pakkið rifna kjötinu í kælipoka eða vefjið þaðþétt með plastfilmu.
Nautakjöt Steikarstykki Pakkið kjötstykkjunum í kælipoka eða vefjiðpau þétt með plastfilmu.
Steik Skerið í 2 cm pykk stykki og setjið filmu á millupeirra eða vefjið þétt með plastfilmu.
Teningar í litlum stykkjum 8-12
Soðið kjöt
Hakk
Slátur (stykki)
Kæst pylsa - salami
Skinka
Fuglakjöt og villibráðKjúklingur og kalkúnnVefjið í filmu
GæsVefjið í filmu (skammtar eiga ekki að verastærri en 2,5 kg)
ÖndVefjið í filmu (skammtar eiga ekki að verastærri en 2,5 kg)
Dádýr, kanína, rádýrVefjið í filmu (skammtar eiga ekki að verastærri en 2,5 kg), og fjarlægið beinin.
Kjöt og fiskur Undirbúningur Lengstigeymslufími (mánuðir)
Fiskur og sjávarafurðirFerskvatnsfiskur (silungur, carp, steinbítur)Hreinsið innan úr og fjarlægið hreistrið. Pvoið og þurrkið sporðinn og skerið hausinn af ef parf.2
Magur fiskur (vartari, sandhverfa, flatfiskur)4-6
Feitur fiskur (bonito, makrill, vígablámi, rauðskeggur, ansjósa)2-4
Skelfiskur Hreinsaður og í pokum 4-6
KaviarÍ umbúðum sínum, í ál- eða plastíláti 2-3
Ávextir og grænmeti Undirbúningur Lengsti geymslutfími (mánuðir)
Strengjabaunir og stangarbaunir Hraðsjóða í 3 mínútur eftir að eruþvegnar og skornar í litla bita10-13
Grænar baunir Hraðsjóða í 2 mínútur eftir að eruafhýddar og þvegnar10-12
Hvítkál Hraðsjóða í 1-2 mínútur eftir hreinsun 6-8
GulræturHraðsjóða í 3-4 mínútur eftir að eruhreinsaðar og skornar í sneiðar12
Paprika Sjóða í 2-3 mínútur eftir að stilkur erskorinn af, skipt í tvennt og fræfjarlægð.8-10
SpínatHraðsjóða í 2 mínútur eftir að erþvegið og hreinsað6-9
BlaðlaukurHraðsjóða í 5 mínútur eftir að búið erað saxa6-8
BlómkálHraðsjóða í vatni með smá límónu í3-5 mínútur eftir að blöð eru fjarlægðog kjarninn skorinn í stykki10-12
EggaldinHraðsjóða í 4 mínútur eftir að erþvegið og skorið í 2 cm bita10-12
GraskerHraðsjóða í 2-3 mínútur eftir að erþvegið og skorið í 2 cm bita8-10
SveppirSnöggsteikja í lítilli fitu og kreistalímónusafa yfir þá2-3
KornHreinsa og pakka í kólfum eðakyrnaformi12
Epli og perurHraðsjóða í 2-3 mínútur eftir að eruflysjuð og skorin í sneiðar8-10
Apríkósur og ferskjurSkipta í tvennt og fjarlægja fræin4-6
Jarðaber og hindberÞvo og afhýða8-12
Ávextir og grænmeti Undirbúningur Lengsti geymslutími (mánuðir)
Bakaðir ávextir Bæta við 10% sykri við ílátið 12
Plómur, kirsuber, súrkirsuber Pvo og fjarlægja stilkana 8-12
Mjólkurvörur Undirbúningur Lengsti geymslutfímiGeymsluskilyrði
(mánuðir)
Ostur (nema fetaostur) Setjið filmu á milli sneiða 6-8 Hægt aðgeyma í stuttantíma í upphaflegum umbúðum. Fyrir geymslu í langan tíma skal vefja í álpappír eða plastfilmu.
Smjör, smjörlíkiGeyma í eigin umbúðum6Í eigin umbúðum eða í plastílátum

Geymdu hin mismunandi matvæli í þeim hólfum sem ráðlagt er og við markhitastigið fyrir geymslu matvælanna. Gerðu þetta til að tryggja bestu varðveisluna í sem lengstan tíma og til að koma í veg fyrir matarsóun.

Elvita CKF2200V - Loftslagsflokkun - 1

VARÚÐ!

  • Tveggja stjörnu (**) hólf fyrir frosin matvæli henta fyrir geymslu forfrystra matvæla, til að geyma eða búa til rjómaís og búa til klaka.
  • Einnar stjörnu (*), tveggja stjörnu (**) og þriggja stjörnu (***) hólfin henta ekki til að frysta fersk matvæli.

Elvita CKF2200V - VARÚÐ! - 1

ATHUGADU!

Sum tæki hafa ekki allar þær gerðir hólfa sem taldar eru upp í töflunni að neðan.

Gerð hólfsMarkhitastig fyrir geymslu (°C)Viðeigandi matvæli
Kæliskápur+2 ~ +8Egg, eldaður matur, innpakkaður matur, ávextir og grænmeti, mjólkurvörur, kökur, drykkir og önnur matvæli sem henta ekki til frystingar.
(***)*-Frystiskápur≤ -18Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur), ferskvatnsafurðir og kjötvara (ráðlagður geymslutími 3 mánuðir, bragð versnar og næringarinnihald minnkar eftir því sem geymslutíminn er lengri), hentar til að frysta fersk matvæli.
***-Frystiskápur≤ -18Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur), ferskvatnsafurðir og kjötvara (ráðlagður geymslutími 3 mánuðir, bragð versnar og næringarinnihald minnkar eftir því sem geymslutíminn er lengri), hentar ekki til að frysta fersk matvæli.
Gerð hólfs Markhitastig fyrir geymslu (°C) Viðeigandi matvæli
**-Frystiskápur ≤ -12 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 2 mánuðir,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar ekki til að frysta ferskmatvæli.
*-Frystiskápur ≤ -6 Sjávarafurðir (fiskur, rækja, skelfiskur),ferskvatnsafurðir og kjötvara(ráðlagður geymslutími 1 mánuður,bragð versnar og næringarinnihaldminnkar eftir því sem geymslutíminn erlengri), hentar ekki til að frysta ferskmatvæli.
0 stjörnur -6 ~ 0 Ferskt svínakjöt, nautakjöt, fiskur,kjúklingur, sum innpökkuð unninmatvæli o.s.frv. (Ráðlagt að borðainnan sama dags, helst ekki síðar eneftir 3 daga). Unnin matvæli hjúpuð aðhluta til (matvæli sem ekki má frysta).
Kæling -2 ~ +3Ferskt/frosið svínakjöt, nautakjöt,kjúklingur, ferskvatnsafurðir o.s.frv.(7 dagar undir 0 °C og yfir 0 °C erráðlagt til neyslu innan þess dags,helst ekki síðar en eftir 2 daga).Sjávarafurðir (undir 0 °C í 15 daga, ekkimælt með að geyma við yfir 0 °C)
Fersk matvæli0 ~ +4Ferskt svínakjöt, nautakjöt, fiskur,kjúklingur, eldaður matur o.s.frv.(Ráðlagt að borða innan sama dags,helst ekki síðar en eftir 3 daga)
Vín+5 ~ +20Rauðvín, hvítvín, freyðivín o.s.frv.
Efnisyfirlit Smelltu á titil til að fá aðgang að honum
Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Elvita

Líkan : CKF2200V

Flokkur : Kælir