Toolson DWS225DC - Ponceuse

DWS225DC - Ponceuse Toolson - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis DWS225DC Toolson á PDF sniði.

📄 296 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Toolson DWS225DC - page 277
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um DWS225DC Toolson

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Tölvupósturinn er áfram einkamál: hann er aðeins notaður til að tilkynna þér ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Ponceuse á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína DWS225DC - Toolson og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. DWS225DC vörumerkisins Toolson.

NOTENDAHANDBÓK DWS225DC Toolson

Skýring tákna á vörunni

Táknin sem eru notuð í þessari handbók eru ætluð til að beina athygli þinni að mögulegum hættum. Nauðsynlegt er að skilja til fulls öryggistáknin og útskýringarnar sem fylgja þeim. Aðvaranirnar sjálfar draga ekki úr neinni hættu og geta ekki komið í stað fyrir réttar slysavarnir.

Toolson DWS225DC - Skýring tákna á vörunni - 1Viðvörun - Til að minnka slysahættu lesið notkunarleiðbeiningar.Toolson DWS225DC - Skýring tákna á vörunni - 2Alltaf vinna með tveimur höndum!
Toolson DWS225DC - Skýring tákna á vörunni - 3Notið heyrnarhlífar. Hávaði getur valdið heyrnarskaða.Toolson DWS225DC - Skýring tákna á vörunni - 4Verndarflokkur II
Toolson DWS225DC - Skýring tákna á vörunni - 5Notið alltaf rykgrímu. Þegar unnið er með við og önnur efni getur myndast ryk sem er hættulegt heilsu manna. Alls ekki má vinna með efnum sem innihalda asbest!Toolson DWS225DC - Skýring tákna á vörunni - 6Notið öryggisgleraugu. Við notkun vélarinnar geta myndast neistar of flísar, spænir og ryk sem þeytast út geta valdið augnskaða.
Toolson DWS225DC - Skýring tákna á vörunni - 7Notið öryggisgleraugu. Á meðan á vinnu stendur geta blossar eða flísar, spænir og ryk haft áhrif á sjóntap.Toolson DWS225DC - Skýring tákna á vörunni - 8Í þessum notkunarleiðbeiningum eru þeir staðir sem varða öryggi ykkar merktir með þessu tákni.
Toolson DWS225DC - Skýring tákna á vörunni - 9Varan er í samræmi við gildandi evrópskar reglugerðir.

Efnisyfirlit: Blaðsíða:

  1. Inngangur....277
  2. Vörulýsing 277
  3. Sendingin inniheldur 277
  4. Rétt notkun....278
  5. Öryggisleiðbeiningar....278
  6. Tæknilegar upplýsingar 282
  7. Tekið úr umbúðum 283
  8. Samsetning og pjónusta....283
  9. Raftengingar 284
  10. Prif, viðhald og geymsla 285
  11. Flutningur 285
  12. Förgun og endurvinnsla.... 286
  13. Aðstoð vegna bilana 286
  14. Samræmingaryfirlýsing 292

1. Inngangur

Framleiðandi:

Scheppach GmbH

Ágæti viðskiptavinur

Við óskum bess að pú njó tir ánægju og árangurs við störf með nýju vörunni pinni.

Vísbending:

Framleiðandi pessarar vöru bætir ekki skaða eftir gildandi vöruábyrgðarlögum sem verða á pessari vöru eða með pessari vöru við:

  • rangri notkun,
  • Ekki er farið að fyrirmælum notkunarleiðbeininganna
    • viðgerðum af hálfu priðju, ósamþykktra fagaðila,
  • Ísetningu og útskiptum á varahlutum sem ekki eru upprunalegir,
  • Notkun sem er ekki í samræmi við tilætlaðan tilgang,
  • Bilun í rafkerfi af völdum pess að ekki er farið eftir fyrimælum um rafmagn í VDE reglugerðum 0100, DIN 57113 / VDE 0113

Athugið:

Lesið allan texta notkunarleiðbeininganna fyrir samsetningu og fyrstu gangsetningu.

Pessar notkunarleiõbeiningar ættu að auõvelda ykkur að læra á vöruna og tilætlaða notkunarmöguleika pess.

Notkunarleiðbeiningarnar innihalda mikilvægar ráðleggingar hvernig er hægt að vinna með vöruna á öruggan, faglegan og hagkvæmastan hátt og hvernig er hægt að komast hjá hættu, spara viðgerðarkostnað, minnka notkunarleysi og bæta áreiðanleika og líftíma vörunnar.

Til viðbótar við öryggisráðstafanir pessara notkunar-leiðbeininga verðið pið nauðsynlega að taka mið af notkun vörunnar miðað við gildandi reglur í viðkomandi landi.

Passið að geyma notkunarleiðbeiningarnar í plastvasa varðar frá óhreinindum og raka á vörunni. Allir sem nota vélina Þurfa að lesa pær og hafa pær vandlega í huga áður en vinna er hafin.

Við vöruna mega einungis peir aðilar vinna sem hafa fengið leiðbeiningar um notkun vörunnar og fræðslu um hættur í tengslum við hana.

Fara skal eftir tilætluðum lágmarksaldri.

Til viðbótar við þær öryggisráðleggingar sem eru í pes- sum notkunarleiðbeiningum og sérstakar reglur land- sins þarf að athuga almennt viðurkenndar tæknilegar reglur fyrir notkun líkt uppbyggðra vara.

Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlýst af því að ekki er farið eftir þessum fyrirmælum og öryggisleiðbeiningum.

2. Vörulýsing, Mynd A

  1. Snúningstölustilling
  2. Ræsilæsing
  3. Handfang
  4. Viðbótarhandfang
  5. Sogstilling
  6. Aðalrofi
  7. Tengi fyrir ryksugu
  8. Sandpappírsplata
  9. Sandpappírsplata (Grófleiki: 80, 100, 120, 150, 180, 240)
  10. Sveigjanleg sogslanga
  11. Rykpoki
  12. Burðarbelti
  13. Varakolabursti
  14. Skrúfjárn
  15. Innri sexkantslykill
  16. Tengimillistykki

3. Sendingin inniheldur, Mynd A

Staða Fjöldi Heiti

1x Juðari
4 1x Viðbótarhandfang
9 6x Sandpappír
10 1x Sveigjanleg sogslanga
11 1x Rykpoki
12 1x Burðarbelti
14 1x Skrúfjárn
15 1x Innri sexkantslykill
16 1x Tengimillistykki
2x Varakolabursti
1x Notkunarleiðbeiningar

4. Rétt notkun

Tilætluð notkun pessarar vöru nær yfir stóran flöt pússningar Þurra veggja til undirbúnings fyrir málningu eða veggfóður með notkun tilætlaðs sandpappírs.

Fyrir vinnslu á litlum flötum líkt og hornum og köntum hentar pessi vara ekki. Það hentar ekki til að slípa niður veggfóður og má ekki nota til blautslípunar.

Vöruna má ekki nota sem aðskilnaðar- eða slípirokk, bónara eða með vírbursta. Efni með asbesti má ekki vinna með pessari vöru.

Vöruna má einungis nota eftir hennar skilgreiningu. Öll önnur notkun er ekki í samræmi við tilætlaða notkun.

Notandi ber ábyrgő á öllum slíkum skemmdum eða meiðslum af hvaða tagi en ekki framleiðandinn.

Hluti af ætlaðri notkun er líka að athuga öryggisleið-beiningarnar, líkt og samsetningarleiðbeiningarnar og notkunarráðleggingarnar í notkunarleiðbeiningunum.

Peir einstaklingar sem nota vöruna og viðhalda henni verða að kunna skil á þessu og fá leiðbeiningar um mögulegar hættur.

Par fyrir utan parf að halda sig nákvæmlega við gildandi slysavarnarreglur.

Virða skal aðrar almennar reglur á sviði vinnuvelferðar og öryggistækni.

Breytingar á vörunni útiloka ábyrgð framleiðandans og skaða sem hlýst af henni með öllu.

Aðeins má nota vöruna með upprunalegum búnaði og verkfærum frá framleiðanda hennar.

Fara skal nákvæmlega eftir fyrirmælum framleiðanda um öryggi, verklag og viðhald svo og peim málstærðum sem gefnar eru upp í tæknilegum upplýsingum.

Vinsamlegast athugið að vörur okkar eru ekki gerðar til ætlaðrar notkunar í atvinnuskyni, handverki eða iðnaði. Við tökum ekki ábyrgð á því sé varan notuð í atvinnuskyni, handverki eða iðnaði, sem og við sambærileg verkefni.

Framleiðandinn bætir ekki skaða sem hlýst af óleyfilegri notkun eða rangri beitingu.

5. Öryggisleiðbeiningar

VIDVÖRUN Lesið allar öryggisleiðbeiningar og leiðbeiningar, skýringarmyndir og tæknilegar upplýsingar sem fylgja með þessu rafmagnsverkfæri.

Ef ekki er farið eftir eftirfarandi leiðbeiningum getur slíkt andvaraleysi valdið raflosti, bruna og/eða alvarlegum meiðslum.

Geymið allar öryggisleiðbeiningar og fyrirmæli til upprifjunar síðar.

Hugtakið "rafmagnsverkfæri" sem notað er í öryggisleiðbeiningunum vísar til rafveituknúinna rafmagnsverkfæra (með rafmagnssnúru) og til rafhlöðuknúinna rafmagnsverkfæra (án rafmagnssnúru).

Öryggi á vinnusvæði

a) Haldið vinnusvæðinu hreinu og vel upplýstu. Óreiða á vinnusvæði eða óupplýst vinnusvæði getur valdið slysum.

b) Vinnið ekki með rafmagnsverkfæri á spren- gihættusvæði þar sem eldfima vökva, gös eða ryk er að finna. Rafmagnsverkfæri framkalla neis- ta sem geta kveikt í ryki eða gufu.

c) Haldið börnum og öðrum einstaklingum fjarri á meðan á notkun rafmagnsverkfærisins stendur. Truflun getur valdið því að notandinn missi stjórn á rafmagnsverkfærinu.

Rafmagnsöryggi

a) Rafmagnskló verkfærisins verður að passa í innstunguna. Ekki má breyta klónni á nokkurn hátt. Notið ekkert breytitengi með öryggisjarð-tengdum rafmagnsverkfærum. Óbreyttar klær og innstungur sem passa saman draga úr hættu á raflosti.

b) Komið í veg fyrir líkamssnertingu við jarð-tengd yfirborð eins og yfirborð röra, ofna, el-davéla og ísskápa. Aukin hætta er á raflosti pegar líkami notandans er jarðtengdur.

c) Haldið rafmagnsverkfærum fjarri rigningu eða bleytu. Hætta á raflosti eykst ef vatn kemst inn í rafmagnsverkfærið.

d) Notið rafmagnssnúruna ekki til að halda á rafmagnsverkfærinu, hengja pað upp eða til að taka klóna úr sambandi. Haldið rafmagnssnúrunni fjarri hita, olíu, skörpum brúnum eða verkfærishlutum á hreyfingu. Skaddaðar eða flæktar rafmagnssnúrur auka hættuna á raflosti.

e) Ef rafmagnsverkfæri er notað utandyra skal eingöngu notast við framlengingarsnúrur sem ætlaðar eru til notkunar utandyra. Notkun framlengingarsnúru sem ætluð er til notkunar utandyra dregur úr hættu á raflosti.

f) Ef ekki er hægt að komast hjá notkun rafmagnsverkfærisins í röku umhverfi skal notast við bilunarstraumsrofa. Notkun bilunarstraumsrofa dregur úr hættu á raflosti.

Öryggi einstaklinga

a) Sýnið aðgát, gefið gaum að því sem gert er og sýnið skynsemi við vinnu með rafmagnsverkfæri. Notandinn skal ekki nota rafmagnsverkfæri pegar hann ert þreyttur eða undir áhrifum eiturlyfja, áfengis eða lyfja. Gáleysi eitt augnablik við notkun á rafmagnsverkfærinu getur leitt til alvarlegra meiðsla.

b) Klæðist hlífðarbúnaði og notið ávallt hlífðargleraugu. Notkun á hlífðarbúnaði, eins og rykgrímum, gripgóðum öryggisskóm, öryggishjálmum eða heyrnarhlífum, sem er viðeigandi fyrir gerð og notkun rafmagnsverkfærisins dregur úr hættu á meiðslum.

c) Forðist óviljandi gangsetningu. Gangið úr skugga um að slökkt sé á rafmagnsverkfærinu áður en það er tengt við rafveituna og/eða rafhlöðu, það er tekið upp eða haldið er á því. Ef fingur notandans er á rafmagnsrofanum pegar haldið er á því eða kveikt er á rafmagnsverkfærinu pegar það er tengt við rafveituna getur það valdið slysum.

d) Fjarlægið alla stillilykla eða skrúfjárn áður en kveikt er á rafmagnsverkfærinu. Verkfæri eða lykill sem er á hluta rafmagnsverkfærisins sem snýst getur valdið meiðslum.

e) Forðist óeðlilega líkamsbeitingu. Gætið þess að vera í öruggri stöðu og haldið líkama-num alltaf í jafnvægi. Pannig er hægt að hafa betri stjórn á rafmagnsverkfærinu í óvæntum aðstæðum.

f) Klæðist viðeigandi fatnaði. Klæðist ekki víðum fötum eða skartgripum. Haldið hári og fatnaði frá hlutum sem eru á hreyfingu. Víð föt, skartg- ripir eða sít t hár geta festst í hlutum sem eru á hreyfingu.

g) Þegar mögulegt er að tengja ryksugu- og -saf-narabúnað skal tengja hann og nota á réttan hátt. Notkun ryksugu getur dregið úr hættu af völdum ryks.

h) Notandinn skal ekki trúa pví ranglega að hann sé öruggur og skal ekki virða öryggisleiðbeiningarnar fyrir rafmagnsverkfæri að vettugi jafnvel pó hann hafi notað rafmagnsverkfærið oft og þekkir vel til þess. Gálaus meðhöndlun getur leitt til alvarlegra meiðsla á nokkrum sekúndubrotum.

Notkun og meðhöndlun rafmagnsverkfærisins

a) Setjið ekki yfirálag á verkfærið. Notið viðeigandi verkfæri fyrir þá vinnu sem framkvæma parf. Með verkfæri sem er viðeigandi er unnið á betri og öruggari hátt í tilgreindu aflsviði.

b) Notið ekki rafmagnsverkfæri sem hefur gal- laðan rafmagnsrofa. Rafmagnsverkfæri sem ekki er lengur hægt að kveikja á eða slökkva á er hættulegt og gera verður við bað.

c) Takið klóna úr innstungunni og/eða fjarlægið aftengjanlega rafhlöðu áður en verkfærið er stillt, skipt er um verkfæraíhluti eða gengið er frá rafmagnsverkfærinu. Pessar varúðarráðstafanir koma í veg fyrir óviljandi gangsetningu rafmagnsverkfærisins.

d) Geymið rafmagnsverkfæri sem ekki er verið að nota þar sem börn ná ekki til. Leyfið engum aðila að nota rafmagnsverkfærið sem ekki þekkir til þess eða hefur ekki lesið þessar leið-beiningar. Rafmagnsverkfæri eru hættuleg þegar þau eru notuð af óreyndum einstaklingum.

e) Hirðið um rafmagnsverkfæri og ísetningar-verkfæri af kostgæfni. Athugið hvort íhlutir sem hreyfast starfi óhindrað og án þess að festast, hvort íhlutir séu brotnir eða skaddaðir á þann hátt að það hafi áhrif á virkni rafmagnsverkfærisins. Látið gera við skaddaða íhluti áður en rafmagnsverkfærið er notað. Mörg slys eiga rætur sínar að rekja til illa viðhaldinna rafmagnsverkfæra.

f) Haldið skurðarverkfærum beittum og hreinum. Vel viðhaldin skurðarverkfæri með beittum skurðköntum festast síður og eru auðveldari i meðhöndlun.

g) Notið rafmagnsverkfæri, verkefnisverkfæri og svo framvegis miðað við þessar leiðbeiningar. Takið mið af vinnuaðstöðu og því verki sem framkvæma á. Notkun rafmagnsverkfæra til annarrar notkunar en tilætlaðrar getur skapað hættulegar aðstæður.

h) Haldið handföngunum Þurrum og hreinum og prífið burt alla smurolíu og feiti. Sleip handföng og handfangsfiletir stuðla ekki að öruggri notkun og stjórn rafmagnsverkfærisins í ófyrirsjáanlegum aðstæðum.

Pjónusta

a) Látið eingöngu hæft fagfólk gera við rafmagnsverkfærið og eingöngu með upprunalegum aukahlutum. Pannig er tryggt að öryggi rafmagnsverkfærisins viðhelst.

Öryggisleiðbeiningar fyrir alla notkun - samei-ginlegar öryggisleiðbeiningar fyrir slípun, sand-pappírsslípun, vinnu með vírbursta, bónun og aðskilda slípun

a) Nota skal petta rafmagnsverkfæri sem sandpappírsslípara. Athugið allar öryggisleiðbeiningar, fyrirmæli, lýsingar og gögn sem komu með tækinu. Fylgirðu ekki eftirfarandi fyrirmælum getur komið til rafstraums, elds og/eða alvarlegra meiðsla.

b) Petta rafmagnsverkfæri hentar ekki til slípunar, vinnu með vírbursta, bónunar og aðskildrar slípunar. Notkun sem ekki var fyrirséð fyrir petta rafmagnsverkfæri getur orsakað hættu og meiðsli.

c) Notið ekki útbúnað sem er ekki ætlaður og meðmæltur af framleiðanda sérstaklega fyrir petta rafmagnsverkfæri. Pó þú getir fest útbúnað á rafmagnsverkfærinu tryggir það ekki öru-gga notkun.

d) Leyfileg snúningstala notkunarverkfærisins verður að lágmarki að vera svo há líkt og uppgefin hámarkssnúningstala á rafmagnsverkfærinu. Útbúnaður sem snýst hraðar en leyfilegt er getur brotnað og flogið um.

e) Ytra þvermál og þykkt notkunarverkfærisins verður að samsvara uppgefnu magni rafmagnsverkfærisins. Rangt mæld notkunarverkfæri er ekki hægt að verjast gegn eða athuga.

f) Slípunarskífur, flansar, slípunardiskar eða annar útbúnaður verður að passa nákvæmlega á slípunarsnældu rafmagnsverkfærisins. Notkunarverkfæri sem passa ekki nákvæmlega á slípunarsnældu rafmagnsverkfærisins snúast óreglulega, víbra mjög sterkt og geta leitt til að stýring tapist.

g) Notið ekki sködduð notkunarverkfæri. Athugið notkunarverkfæri fyrir hverja notkun líkt og hvort slípunarskífur séu klofnar eða sprungnar, sprungur, slit eða mikil notkun á slípu-nardiskum, hvort vírar í vírburstum séu lausir eða brotnir. Pegar rafmagnsverkfærið eða not-kunarverkfærið dettur niður prufið þið hvort það hafi skaðast eða notið óskaddað notku-narverkfæri. Pegar notkunarverkfæri hefur verið athugað og tekið í notkun ætti enginn og sérstaklega ekki viðkvæmir einstaklingar að vera nálægt verkfæri í gangi og látið tækið vera í gangi í eina mínútu á fullum snúningi. Sködduð notkunarverkfæri brotna oftast á pessum prófunartíma.

h) Verið í persónulegum hlífðarbúnaði. Notið eftir því sem við á andlitshlíf, augnhlíf eða hlífðargleraugu. Eftir því sem við á verið með rykgrímu, heyrnarhlífar, hlífðarhanska eða sérstaka svuntu, sem heldur litlu slípi- og efnisögnunum fjarri þér. Augun skal vernda fyrir fljúgandi hlutum sem verða til við mismunandi notkun. Ryk- eða öndunarverndargríma verður að sía ryk sem verður til við notkun. Ef þú ert lengi í hávaða geturðu orðið fyrir heyr-narskaða.

i) Passið að annað fólk sé í öruggri fjarlægð við vinnusvæðið. Hver sem kemur inn á vinnusvæðið verður að vera í persónulegum verndarbúnaði. Brothlutir verksins eða brotin notkunarverkfæri geta flogið af stað og orsakað meiðsli líka utan við beint vinnusvæði.

j) Haldið verkfærinu eingöngu á einangruðum gripflötum ñegar unnið er, ñegar notkunar-verkfærið getur rekist í vörðu rafmagnsleiðs-lurnar eða eigin netsnúru. Tengsl við spennuh-laðna snúru getur líka leitt til spennu málmhluta verkfærisins og orsakað raflost.

k) Haldið netsnúru fjarri snúandi notkunarverkfærum. Pegar þú tapar stjórn yfir verkfærinu getur netsnúran farið í sundur eða snert og höndin eða handleggurinn lent í snúandi notkunarverkfærinu.

I) Leggið rafmagnsverkfærið aldrei frá ykkur fyrr en notkunarverkfærið er algjörlega orðið kyrrt. Notkunarverkfærið sem snýst getur komist í snertingu við geymsluflöt, bannig að þú getur tapað stjórn á rafmagnsverkfærinu.

m) Látið rafmagnsverkfærið ekki vera í gangi á meðan pú heldur á pví. Fatnaður pinn getur vegna tilviljanakenndrar snertingar komist í snertingu við snúandi notkunarverkfærið og notkunarverkfærið borað sig í líkama pinn.
n) Hreinsið reglulega loftunarrifur rafmagnsverk-færisins. Vélarblásturinn togar ryk í hulstrið og safnist málmryk mikið saman getur það orsakað rafmagnshættu.
o) Notið rafmagnsverkfærið ekki nálægt brennanlegu efni. Neistar geta kveikt í pessum efnum.
p) Notið engin notkunarverkfæri sem ÿurfa fljó- tandi kæliefni. Notkun á vatni eða öðrum fljótandi kæliefnum getur leitt til raflosts.

Öryggisleiðbeiningar fyrir alla notkun – bakslag og viðeigandi öryggisleiðbeiningar

Bakslag er skyndilegt viðbragð í kjölfar einhvers heftandi eða stíflaðs snúandi notkunarverkfæris, líkt og slípiskífu, slípidisks, vírbursta o.s.frv. Hefting eða stífla leiðir til fyrirvaralausrar stöðvunar notkunarverkfæris sem snýst.

Pannig verður rafmagnsverkfæri sem er ekki athugað hraðað gegn snúningsátt notkunarverkfærisins í stíflustöðunni.

Pegar t.d. slípiskífa heftist eða stíflast í verkstykki getur kantur slípiskífunnar sem fer í verkstykkíð fest þar og brotið þannig slípiskífuna eða orsakað bakslag. Slípiskífan hreyfist pá í átt að notandanum eða í burtu frá honum, allt eftir snúningsátt skífunnar á stíflustöðunni. Við betta geta slípiskífur líka brotnað.

Bakslag er afleiðing rangrar eða slælegrar notkunar á rafmagnsverkfærinu.

Hægt er að koma í veg fyrir það með viðeigandi varúðarráðstöfunum eins og þeim sem hér á eftir fylgja.

a) Haldið rafmagnsverkfærinu örugglega föstu og setjið líkama ykkar og handleggi í stöðu sem geta tekið við bakslagskröftum. Notið alltaf viðbótargrip, sé það fyrir hendi, til að hafa sem mesta stjórn á bakslagskröftum eða viðbragðsstundum þegar tekið upp. Notandinn getur með viðeigandi varúðarráðstöfunum ráðið við bakslags- og viðbragðskraftana.

b) Setjið hendina ykkar aldrei nálægt snúandi notkunarverkfærum. Notkunarverkfærið getur við bakslagið fært sig yfir hendina.

c) Forðastu með líkamanum svæðið sem rafmagnsverkfærið færist um við bakslag. Bakslagið setur rafmagnsverkfærið í áttina á móti hreyfingu slípiskífunnar á stíflustaðnum.
d) Vinnið sérstaklega varúðlega á svæði þar sem eru horn, beittir kantar o.s.frv. Komið í veg fy-rir að notkunarverkfæri brotni og klemmist frá verkstykki. Notkunarverkfærið sem snýst á tilh-neigingu til að klemmast í hornum, á beittum kön-tum eða þegar það brotnar af. Petta orsakar tap á stýringu eða bakslag.
e) Notið ekki sögunarblað með keðjum eða tön- num. Slík notuð verkfæri valda oft bakslagi eða að stjórn tapast á rafmagnsverkfærinu.

Öryggisleiðbeiningar fyrir sandpappírspússun

a) Notið ekki of stór slípiblöð, heldur fylgið upplýsingum framleiðanda varðandi stærð slípiblaða. Slípiblöð sem ná út fyrir slípidiskinn geta orsakað meiðsli, sem og leitt til stíflu, rifs slípiblaðanna eða bakslags.

a) Læsið vegna vinnu ryksugu á millistykkið sem kemur með.
b) ATHUGID! Látið ekki slípiryk lenda nálægt opnum eldi, ryk getur verið sprengifimt.
c) Verið með verndargleraugu og rykvarnargrímu pegar slípivinnan er framkvæmd, sérstaklega pegar unnið er yfir höfuð og vegna vinnu við krítisk efni!

Við slípun ákveðinna efna (t.d. blýlita, viðar- og málmtequnda) verður til skaðlegt eða eitrað ryk.

Snerting eða innöndun pessa ryks getur valdið skaða fyrir notandann eða í nálægð viðkvæmra einstaklinga.

Leiðbeiningar um titring og hávaðapróun

Dragið eins mikið úr hávaðamyndun og titringi og hægt er!

  1. Notið aðeins rafmagnsverkfæri sem eru í lagi.
  2. Sinnið reglubundnu viðhaldi og prifum á rafmagnsverkfærinu.
  3. Aðlagið verklag ykkar að rafmagnsverkfærinu.
  4. Setjið ekki yfirálag á verkfærið.
  5. Látið fara yfir rafmagnsverkfærið ef með barf.
  6. Slökkvið á rafmagnsverkfærinu pegar pað er ekki í notkun.

Aðrar hættur

Viðvarandi hættur eru alltaf til staðar jafnvel pótt petta rafmagnsverkfæri sé notað samkvæmt fyrirmælum. Eftirfarandi hættur geta komið upp í tengslum við gerð og hönnun bessa rafmagnsverkfæris:

a) Hætta á heilsuskaða sem hlýst af handa- og handleggjatitringi ef tækið er notað yfir lengri tíma eða það er ekki notað og því viðhaldið samkvæmt fy-rirmælum.
b) Meiðsli og eignatjón geta orsakast af notkunar-verkfærum sem snúast um vegna skyndilegs skaða, slits eða rangrar notkunar óviðbúið úr/frá rafmagnsverkfærinu snúandi.
c) Brennsla og skurðmeiðsli sé komið við notkunar-verkfæri beint eftir notkun og/eða komið við þau með berri húðinni.

⚠ VIDVÖRUN! Rafmagnsverkfærið myndar rafsegulsvið á meðan það er í gangi. Rafsegulsviðið getur við ákveðin skilyrði truflað virkar eða óvirkar læknisfræðilegar ígræðslur. Til að draga úr alvarlegum eða bannvænum skaða mælum við með því að þeir sem eru með læknisfræðileg ígræði ráðfæri sig við lækninn og framleiðanda læknisfræðilega ígræðisins, áður en rafmagnsverkfærið er notað.

6. Tæknilegar upplýsingar

Málspenna 230 V\~

Máltiðni 50 Hz
Orkunotkun1200 W
Málsnúningstala slípiskífu1500–3200 lágm ^1
Þvermál slípidisks210 mm
Þvermál slípiskífu215 mm
Stærðarmál LxBxH380x260x260 mm
Lengd sogslöngu1500 mm
SnældustærðM14
VerndarflokkurII
Þyngd3,4 kg

Hljóða- og sveiflueinkenni

Hljóðprýstistig L_PA 94,2 dB
Hljóðaflsstig L_WA 102,2 dB
Óvissa K3 dB

Titringseinkenni

Aðalhandfang titrings a_h 2,409 m/s ^2
Viðbótarhandfang titrings a_h 4,303 m/s ^2
Óvissa K 1,5 m/s ^2

Tæknilegar breytingar áskildar!

Notið heyrnarhlífar!

Hávaði getur valdið heyrnarskaða.

Vísbending:

  • Uppgefið handa-handleggja-titringsgildi byggist á slípun með slípiblaði. Önnur notkun getur leitt til annarra gilda.
  • Hljóð- og titringsgildin eru ákveðin samkvæmt EN 62841-1.
  • Uppgefið gildi fyrir titring er mælt samkvæmt stöðluðum prófunaraðferðum og hægt er að nota pað í samanburði eins rafmagnsverkfæris við annað.
  • Tiltekið gildi titringsútstreymis er einnig hægt að nota fyrir upphafsmat á truflunum vegna notkunar.

Titringur:

Forõist sveifluáhættu, til dæmis hættuna á hvitfingurveiki (blóðflæðistruflanir), með því að taka oft vinnupásur, þar sem handaflötunum er nuddað saman.

Hvítfingursheilkenni er æðasjúkdómur par sem við lítið blóðstreymi geta fingur og tær fengið krampa. Til einkenna heyrir: tilfinningaleysi, tap á næmi, kláði, klór, verkur, máttleysi, breyting á lit eða ástandi húðarinnar. Fullnægjandi blóð berst ekki til viðkomandi svæða og hvítna þau því.

Tíð notkun titrandi verkfæra getur orsakað taugaskaða hjá fólki þar sem eitthvað hefur áhrif á blóðrásina (t.d. reykingafólk, sykursjúkir). Ef þú verður var við óeðlileg vandamál skaltu hætta vinnunni strax og leita til læknis. Við langtíma og reglulega notkun er því mælt með að fylgjast vel með ástandi handanna og fingranna. Hafið eftirfarandi leiðbeiningar í huga til að minnka hættuna:

  • Haldið líkama ykkar, sérstaklega höndunum, heitum í köldu veðri.
  • Taktu reglulega hlé og hreyfõu pá hendur til að auka blóðrennsli.
  • Takmarkið notkun verkfæra sem titra mikið á degi hverjum og dreifið á fleiri daga. Gerið vinnuáætlun sem takmarkar titringsálagið.

  • Leitist við sem minnstan titring vörunnar með reglulegu viðhaldi og festingu hluta á vörunni. Skiptið strax um úr sér gengna íhluti.

  • Skiptið reglulega um vinnustöðu.
  • Sé varan oft tekin með, nánar tiltekið notuð, ætti að setja sig í samband við fagaðila og útvega handföng til minnkunar á titringi.

7. Tekið úr umbúðum

  • Opnið pakkninguna og takið vöruna varlega úr.
  • Fjarlægið umbúðaefnið og umbúða-/ og flutningsfestingar (ef til staðar).
  • Athugið hvort eitthvað vanti í sendinguna.
  • Athugið hvort flutningsskaði hafi orðið á vörunni og fylgihlutum. Ef umkvörtunatatriði koma upp parf án tafar að hafa samband við flutningsaðilann. Ekki er hægt að taka tillit til kvartana sem berast síðar.
  • Geymið umbúðirnar þar til ábyrgðartíminn rennur út ef hægt er.
  • Notið notkunarleiðbeiningarnar til að kynna ykkur vandlega meðferð tækisins áður en það er tekið í notkun.
  • Notið eingöngu upprunalegan aukabúnað svo og upprunalega varahluti til að skipta út slitnum hlutum eða útskiptihlutum. Varahlutir fást hjá söluaðila ykkar.
  • Við allar pantanir parf að gefa upp hlutarnúmer okkar ásamt gerð og framleiðsluári tækisins.

⚠ VIDVÖRUN!

Vara og pökkunarefni eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur og smáhluti! Hætta á inntöku og köfnun!

8. Samsetning og bjónusta

⚠️ VARÚD!

Fyrir notkun vörunnar á nauðsynlega að setja alveg saman!

⚠ VIDVÖRUN!

Togið alltaf í tengið áður en stillingar eru gerðar á vörunni.

8.1 Setja saman viðbótarhandfang (4)

  1. Takið viðbótarhandfangið (4) og snúið því réttsælis í þar til gerðan skrúfgang þar til það situr fast.
  2. Til að taka í sundur snúið viðbótarhandfanginu (4) rangsælis úr skrúfgangnum.

8.2 Velja sandpappír

Grófleiki sandpappírsins er gefinn upp á bakhliðinni. Pví lægra sem número er, pví grófari er grófleikinn.

  1. Notið grófkorna sandpappír fyrir grófa slípivinnu og fínkorna sandpappír til lokameðhöndlunar. Mælt er með sandpappír með áloxiði, silisíumkarbíði eða öðrum gervislípimiðlum.

  2. Byrjið með grófum kornum og endið með fínustu kornum, pegar pið eruð með sandpappír með mismunandi kornum til notkunar, til að fá góða, nánar tiltekið slétta slípiniðurstöðu.

8.3 Setja sandpappír á (Mynd 3, 4)

  1. Leggið vöruna á jafnan grunn.
  2. Setjið sandpappírinn (9) með franska rennilásafyrirkomulaginu á slípiplötuna (8).
  3. Jafnið sandpappírinn (9) á slípiplötunni (8) og ýtið jafnt á hann.
  4. Passið að göt sandpappírsplötunnar (8) séu í flútti við göt sandpappírsins (9).

8.4 Tenging fyrir ryksugun

⚠ VIDVÖRUN!

Við vinnu á t.d. blýblandaðri málningu geta skaðleg/eitruð gös orðið til. Pau mynda hættu fyrir notanda, einnig fyrir þá aðila sem eru nálægt! Notið því þetta rafmagnsverkfæri einungis með ryksuguútbúnaði og verndið ykkur sjálf og aðra aðila á vinnusvæði til viðbótar með viðeigandi persónulegum varnarútbúnaði!

Við vinnu með þessari vöru verður til mikið ryk. Ryksugunin er mjög hagnýt til að halda vinnusvæði ykkar hreinu og til að minnka rykálag á hliðum þess sem notar.

8.5 Setja saman sogslöngu (Mynd 5.1 - 5.3)

  1. Setjið tengimillistykki (16) á ryksugutengið (7).
  2. Setjið sogslönguna (10) í tengimillistykkið (16).
  3. Snúið sogslöngunni (10) til hægri til að tengja báða hlutana fast við hvorn annan.
  4. Til að taka í sundur snúið sogslöngunni (10) til vinstri, togið sogslönguna (10) út og fjarlægið ten-gimillistykkið (16).

8.6 Setja saman rykpoka (Mynd 6.1 - 6.4)

  1. Setjið sogslönguna (10) í tengistykki rykpokans (11).
  2. Passið að hakið í tengistykki rykpokans (11) smellí í til að tengja sogslönguna (10) fasta við rykpokann (11).

  3. Hengið burðarbeltið (12) í lykkjuna á rykpokanum (11) og á vörunni.

  4. Til að taka í sundur rykpokann (11) ytið hliðarlæsta tengistykki sogslöngunnar (10) með aðstoð skrúf-járns (14) saman og togið sogslönguna (10) út.

8.7 Tenging við rafmagn

  1. Tryggið að slökkt sé á vörunni. Setjið aðalrofann (6) fyrir tengingu við rafmagnið því næst alltaf í stöðuna Slökkt.
  2. Setjið tengið í innstungu uppsetta samkvæmt reglum, sem samsvarar viðeigandi kröfum samkvæmt tæknilegum upplýsingum.
  3. Varan bín er nú tilbúin til notkunar.

8.8 Stilla snúningstölu (Mynd 2)

Stillið viðeigandi snúningstölu fyrir notkun áður en pið hefjið vinnu. Notið minni snúningstölu fyrir grófa slípivinnu, hækkið snúningstöluna fyrir fina vinnu.

Stillið snúningstölu slípiplötunnar með því að snúa stil- lihjólinu (1).

8.9 Kveikt / slökkt (Mynd 1)

Kveikja:

Ýtið á aðalrofa (6).

Samfelld notkun:

Setjið aðalrofa í gang (6) og tryggið hann með ræsilæ-singunni (2).

Slökkva:

Haldið stutt aðalrofa inni (6) og sleppið honum strax aftur.

Vísbending: Notaða verkfærið heldur áfram að snúast eftir að slökkt hefur verið. Bíðið eftir að notaða verkfærið stöðvist, áður en þið leggið vöruna frá ykkur.

8.10 Stilla soggetu (Mynd 7)

  1. Snúið sogstillingunni (5) svo lengi par til óskaðri soggetu er náð.

8.11 Slípun

  1. Notið viðeigandi sandpappír (9) og veljið passandi snúningstölu.
  2. Haldið vörunni örugglega á gripflötum (3, 4) og stil- lið hana eins og lýst hefur verið.
  3. Bíðið eftir að notaða verkfærið hefur náð fullum vinnuhraða sínum.
  4. Stillið eftir börfum soggetuna.

  5. Færið slípiplötuna (8) sem mest samhliða veggnum og setjið hana fyrst á flötinn sem á að vinna.

  6. Færið vöruna með jöfnum hreyfingum yfir flötinn.

Vísbending: Haldið vörunni ekki of lengi á sama stað til að komast hjá óreglulegum slípiniðurstöðum.

  1. Lyftið slípiplötunni (8) frá fletinum sem á að vinna áður en bið slökkvið á vörunni.
  2. Bíðið eftir að notaða verkfærið stöðvist, áður en bið leggið vöruna frá ykkur.

8.12. Eftir notkun

  1. Slökkvið á vörunni eins og lýst var, aðskiljið hana frá rafmagninu og levfið henni að kólna.
  2. Hreinsið og viðhaldið vörunni líkt og lýst er í 10. lið og geymið hana til viðbótar á viðeigandi hátt.

9. Raftengingar

Rafmótorinn er tengdur og tilbúinn til notkunar. Tenging er í samræmi við viðkomandi ákvæði VDE og DIN.

Tengingar við aðveitukerfi og framlengingarkapallinn sem notaður er Þurfa að vera í samræmi við bessi fy-rirmæli.

Bilaðar rafleiðslur

lõulega verõa skemmdir á einangrun á rafmagnssnúrum.

Orsakirnar eru:

  • Nuddstaðir þar sem rafmagnssnúrur eru leiddar gegnum rifur á gluggum eða hurðum.
  • Brotstaðir vegna ófullnægjandi festingar eða lagnar á rafmagnssnúrunni.
  • Tengingar skemmast vegna pess að ekið er yfir raf-magnssnúruna.
  • Skemmdir á einangrun vegna pess að klónni er kippt úr innstunqunni.
  • Sprungur vegna bess að einangrunin er orðin gömul.

Ekki skal nota bilaðar rafmagnssnúrur og eru pær jafnf-ramt lífshættulegar vegna skemmda á einangruninni.

Athugið ástandið á rafmagnssnúrum reglulega. Gaetið pess taka rafmagnssnúrurnar úr sambandi áður en athugun á peim fer fram.

Rafmagnstengingar verða að vera í samræmi við gildandi ákvæði VDE og DIN. Notið aðeins rafmagnssnúrur með auðkenninu H05VV-F.

Rafmagnssnúran parf að vera áprentuð með gerða-rauðkenninu.

Við mælum með að nota C 16A eða K 16A vör fyrir einfasa riðstraumsmótora á vélum með háa upphafspennu (frá 3000 W)!

Tengigerð Y

Ef rafmagnssnúra tækisins skemmist verður fram-leiðandinn, viðgerðabjónusta hans eða rafvirki meðálíka hæfni að skipta um hana til að koma í veg fyrir hættur.

Togið tengið úr innstungunni fyrir alla vinnu við vöruna sjálfa (t.d. flutning, samsetningu, umbreyti-, hreinsi- og viðhaldsvinnu)!

10.1 Prif

  • Haldið verndarbúnaði, loftunaropum og mótorhúsi eins ryk- og óhreinindafríu og mögulegt er.
  • Strjúkið af vörunni með hreinum klút eða blásið á hana með prýstilofti við lágan brýsting (hám. 3 bör).
  • Prífið vöruna beint eftir hverja notkun.
  • Notið ekki hreinsi- eða leysiefni, þar sem þau geta skaðað plasthluta tækisins. Gætið þess að vatn geti ekki komist inn í tækið.

10.2 Viðhald

Prufið fyrir og eftir hverja notkun vöruna og fylgihluti (t.d. notuð verkfæri) varðandi slit og skaða. Skiptið um slíkt fyrir nýtt líkt og lýst er í þessum notkunar-leiðbeiningum.

Við það skal fylgja öllum tæknilegum kröfum.

  1. Fjarlægið sandpappírinn (9).
  2. Setjið innri sexkantinn (15) í sexkantsgatið í miðju sandpappírsplötunnar (8) og snúið honum réttsælis til að fjarlægja sködduðu sandpappírsplötuna (8).
  3. Setjið nýju sandpappírsplötuna (8) í og festið hana aftur.

10.2.2 Útskipting kolaburstanna

Kolaburstarnir eru slithlutar sem notast við notkun. Pví ætti reglulega að prófa kolaburstana. Til að koma í veg fyrir skaða á rafrás verður að skipta báðum kolaburstum út samtímis.

⚠ VIDVÖRUN!

Útskipting kolaburstanna má einungis fara fram af leyfilegum bjónustuaðilum.

Tækið má eingöngu nota með báðum kolaburstum!

10.2.3 Útskipting sandpappírsins (Mynd 3)

⚠ VIDVÖRUN!

Takið tengilinn úr sambandi!

  1. Leggið vöruna á jafnan grunn.
  2. Togið sandpappírinn (9) frá slípiplötunni (8).
  3. Komið með nýjan/annan sandpappír (sjá 8.3).

10.2.4 Skipt um rafmagnstengileiðslu

Ef rafmagnssnúra pessa rafmagnsverkfæris er skem- md verður að skipta um hana af framleiðanda eða þjó- nustuaðila hans eða álíka hæfum aðila til að forðast hættur.

⚠ VIDVÖRUN!

Innan í vörunni eru engir hlutar sem notandi á að viðhalda! Opnið aldrei vöruna! Farið með það vegna áframhaldandi viðhaldsvinnu til hæfs fagaðila!

10.2.5 Bjónustuupplýsingar

Hafa skal í huga að í tækinu slitna eftirtaldar hlutir við notkun og með tímanum, eða þá að eftirtaldir hlutir teljast rekstarvara.

Hlutir sem slitna*: Kolaburstar, slípiplata, sandpappír * ekki endilega hluti af pöntuninni!

10.3Geymsla

Geymið tækið og fylgihluti pess á dimmum, Þurrum og frostfríum, sem og stað sem er óaðgengilegur börnum. Kjörið geymsluhitastig er á bilinu 5 til 30 °C.

Geymið vöruna í upprunalegum umbúðum. Breiðið yfir vöruna til að vernda hana fyrir ryki eða raka. Geymið notkunarleiðbeiningarnar hjá vörunni.

11. Flutningur

⚠ VIDVÖRUN!

Takið tengilinn úr sambandi!

  1. Berið vöruna á gripflötunum.
  2. Pakkið vörunni í upprunalegar umbúðir til að koma í veg fyrir flutningsskemmdir.
  3. Verndið vöruna fyrir titringi og hristingi, sérstaklega við flutning í farartækjum.

12. Förgun og endurvinnsla

Leiðbeiningar varðandi pökkun

Toolson DWS225DC - Leiðbeiningar varðandi pökkun - 1

Toolson DWS225DC - Leiðbeiningar varðandi pökkun - 2

Toolson DWS225DC - Leiðbeiningar varðandi pökkun - 3

Pökkunarefnið er endurvinnan- legt. Vinsamlega fargið umbúðum á umhverfisvænan hátt.

Leiðbeiningar varðandi rafmagns- og rafeindata- kislög (ElektroG)

Toolson DWS225DC - Leiðbeiningar varðandi rafmagns- og rafeindata- kislög (ElektroG) - 1

Gömul rafmagns- og rafeindataeki eiga ekki að koma í húsasorp, heldur á að aðskilja pau og farga peim!

  • Gömul batterí eða hleðslurafhlöður, sem eru ekki föst í gamla tækinu verður að taka úr fyrir afhendingu! Förguninni er stjórnað í gegnum rafhlöðulög.
  • Eigandi nánar tiltekið notandi rafmagns- og raftæk- ja er lagalega skyldugur eftir notkun peirra að skila peim inn.
  • Endanotandinn ber sjálfur ábyrgő á að eyða persónugreinanlegum gögnum fyrir gamla tækið sem á að farga!
  • Tákn ruslatunnu sem er strikað yfir þýðir að gömul raf-magns- og raftæki mega ekki fargast með húsasorpi.

• Gömul rafmagns- og raftæki er hægt að leggja inn gjaldfrjálst á eftirfarandi stöðum:

- Opinberum-lagalegum förgunar- nánar tiltekið safnstöðum (t.d. sameiginlegum byggingarstöðum).

- Sölustöðum raftækja (staðbundnum eða á vef), svo lengi sem söluaðili er skyldugur að skila eða bjóða það frjálst.

- Allt að brjú gömlum raftækjum á tækjategund, með kantlengd að hámarki 25 sentimetrar er hægt að skila inn gjaldfrjálst án pess að kaupa purfi nýtt tæki frá framleiðanda eða hjá leyfőri safnstöð í nágrenni við pig.

- Frekari viðbótarskilyrði skila framleiðandans og dreifingaraðilans fáíð þið upplýsingar um hjá viðkomandi viðskiptapjónustu.

- Komi til afhendingar nÿs raftækis frå framleiðanda til einkaheimilis getur hann leyft að gamla raftækið sé sótt gjaldfrjálst að beiðni notandans. Setjið ykkur í samband við viðskiptavinapjónustu framleiðandans.

- Pessar yfirlýsingar gilda eingöngu fyrir tæki sem eru uppsett í löndum Evrópusambandsins og seld eru samkvæmt evrópskri reglugerð 2012/19/ESB. Í löndum utan við Evrópusambandið geta aðrar ákvarðanir gilt fyrir förgun á gömlum rafmagns- og rafeindatækjum.

13. Aðstoð vegna bilana

Eftirfarandi tafla sýnir villumerki og lýsir hvernig er hægt að fá hjálp pegar vélin pín virkar ekki rétt. Pegar þú getur ekki staðsett vandamálið og komist framhjá því, snúið ykkur að þjónustuverkstæðinu.

Bilun Möguleg orsökÚrbætur
Vara fer ekki í gangRafmagnstenging er rofinAthugið rafmagnstenginguna með því að setja aðra vöru í samband
Rafmagnssnúra eða tengill bilaðurPrófun með rafvirkja
Annar rafmagnsgalli vörunnarPrófun með rafvirkja
Vara hefur ekki fulla virkniFramlengingarsnúra er of löng og/eða með ófullnægjandi þvermálNotið framlengingarsnúru af leyfilegri lengd og/eða þvermáli
Rafveita (t.d. rafall) er með of lága spennuTengja vöru við viðeigandi rafmagn
Vond vinnuniðurstaðaÍsetningarverkfæri slitiðLátið skipta um ísetningarverkfæri
Slípiplatan slitinLátið skipta um slípiplötuna
Mikil rykmyndunRyksog ekki tengt/kveikt áTengið / kveikið á ryksogi

Toolson DWS225DC - Aðstoð vegna bilana - 1

Augljósar skemmdir verður að tilkynna innan 8 daga frá viðtöku vörunnar. Annars er réttur kaupanda um bætur vegna slika skemmda ógildur. Við ábyrgjumst, í tilfelli réttrar meðhöndlunar yfir lögbundið ábyrgðartímabil frá afhendingu, að við skiptum um hvern vélarhlut án kostnaðar sem ónothæfur er vegna gallaðs efnis eða skemmda í framleiðslu innan ákveðins tímabils.

Af pví er tekur til hluti sem ekki eru framleiddir af okkur, ábyrgjumst við af pví leiti aðeins að við eigum rétt á ábyrgðarkröfum gagnvart birgðasölum. Kostnaður vegna uppsetningar á nýjum hlutum skal falla í skaut kaupanda. Ógilding sölu eða afsláttur á kaupverði sem og aðrar kröfur vegna skemmda eru undanskildar.

Efnisyfirlit Smelltu á titil til að fá aðgang að honum
Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Toolson

Líkan : DWS225DC

Flokkur : Ponceuse