Toolson

DWS225BT - Ponceuse Toolson - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis DWS225BT Toolson á PDF sniði.

📄 252 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Toolson DWS225BT - page 225
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um DWS225BT Toolson

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Tölvupósturinn er áfram einkamál: hann er aðeins notaður til að tilkynna þér ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Ponceuse á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína DWS225BT - Toolson og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. DWS225BT vörumerkisins Toolson.

NOTENDAHANDBÓK DWS225BT Toolson

Skýring á táknum á tækinu

Toolson DWS225BT - Skýring á táknum á tækinu - 1Viðvörun! Ef ekki er farið eftir þessum leiðbeiningum gæti stafað af því lífshætta, slysahætta eða hætta á skemmdum á tækinu!
Toolson DWS225BT - Skýring á táknum á tækinu - 2Nauðsynlegt er að lesa notkunarleiðbeiningarnar og öryggisfyrirmæli og fara eftir þeim!
Toolson DWS225BT - Skýring á táknum á tækinu - 3Notið hlífðargleraugu!
Toolson DWS225BT - Skýring á táknum á tækinu - 4Notið heyrnarhlífar!
Toolson DWS225BT - Skýring á táknum á tækinu - 5Við rykmyndun þarf að nota öndunargrímu!
Toolson DWS225BT - Skýring á táknum á tækinu - 6Framkvæmið vinnu ávallt með báðum höndum!
Toolson DWS225BT - Skýring á táknum á tækinu - 7Verndarflokkur II
Toolson DWS225BT - Skýring á táknum á tækinu - 8Varan er í samræmi við gildandi evrópskar reglugerðir.
Toolson DWS225BT - Skýring á táknum á tækinu - 9Varan er í samræmi við gildandi serbneskar reglugerðir.

Efnisyfirlit: Blaðsíða:

  1. Inngangur....225
  2. Lýsing á tækinu og innihald sendingar 225
  3. Fyrir fyrstu notkun....225
  4. Tilætluð notkun 226
  5. Öryggisleiðbeiningar....226
  6. Tæknilegar upplýsingar 229
  7. Uppsetning....230
  8. Notkun....231
  9. Prif, viðhald og viðgerðir....231
  10. Raftengingar 232
  11. Geymsla og flutningur....233
  12. Förgun og endurvinnsla.... 233
  13. Bilanaleiðrétting 234
  14. Samræmingaryfirlýsing 250

1. Inngangur

Framleiðandi:

Scheppach GmbH

Kæri viðskiptavinur,

við óskum pér ánægju og árangurs við notkun á nýja tækinu pínu.

Ábending:

Samkvæmt gildandi ákvæðum laga um ábyrgð framleiðanda tekur framleiðandinn ekki ábyrgð á skaða sem eru af völdum pessa tækis og stafa af:

  • rangri notkun
  • hundsun fyrirmæla notkunarleiðbeininganna
  • viðgerðum af hálfu priðju, ósamþykktra fagaðila
  • ísetningu og útskiptum á varahlutum sem ekki eru upprunalegir
  • notkun sem er ekki í samræmi við tilætlaðan tilgang
  • Bilun í rafkerfi af völdum bess að ekki er farið eftir fyrimælum um rafmagn í VDE reglugerðum 0100, DIN 57113 / VDE 0113

Athugið:

Lesið allan texta notkunarleiðbeininganna fyrir samsetningu og fyrstu gangsetningu.

Pessar notkunarleiðbeiningar ættu að auðvelda ykkur að læra á tækið og tilætlaða notkunarmöguleika pess.

Notkunarleiðbeiningarnar innihalda mikilvægar leiðbeiningar um hvernig eigi að meðhöndla tækið á öruggan, réttan og fagmannlegan hátt og hvernig komast má hjá slysum, spara viðgerðarkostnað, minnka bilunartíma og auka öryggi og endingu tækisins.

Auk peirra öryggisleiðbeininga sem er að finna í pessum notendaleiðbeiningum parf skilyrðislaust að hafa í huga landsbundnar reglur um notkun tækisins.

Geymið notkunarleiðbeiningarnar hjá tækinu í plasthylki, varðar gegn óhreinindum og raka. Allir sem nota vélina purfa að lesa pær vandlega og hafa pær í huga áður en nokkurs konar vinna hefst.

Aðeins peir sem hafa fengið pjálfun í notkun pessa tækis og eru meðvitaðir um pær hættur sem pví fylgja mega vinna við tækið. Fara skal eftir tilætluðum lág-marksaldri.

Auk öryggisleiðbeininga og sértækra innlendra reglna, sem finna má í þessari notendahandbók, skal við not-kun fara eftir almennt viðurkenndum tæknireglum fyrir álíka vélar.

Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlýst af því að ekki er farið eftir þessum fyrirmælum og öryggisleiðbeiningum.

2. Lýsing á tækinu og innihald sendingar

Lýsing á tækinu (myndir 1-12)

Í lýsingunni á tækinu er vitnað í skýringarmyndirnar sem er að finna fremst í pessum notkunarleiðbein- ingum.

  1. Handföng
  2. Aðalhandfang
  3. Kveikjari/slökkvari
  4. Tengistykki með ró
  5. Rafmagnssnúra
  6. Stillihjól með vali á snúningshraða
  7. Loftop
  8. Sveigjanlegur slípihaus
  9. Sandpappírsplata
  10. Burstajaðar
  11. Sogslanga
  12. Millistykki fyrir slöngu
  13. Slípiblað
  14. LED-ljós
  15. Oki (15)

Innihald sendingar (myndir 1-12)

1 slípivél fyrir gifsvegg
1 sogslanga (11)
2 millistykki fyrir slöngu (12)
6 slípiblöð (13) (mismunandi grófleiki)
1 oki (15)

3. Fyrir fyrstu notkun

Tekið úr umbúðum

  1. Opnið pakkninguna og takið rafmagnstækið varlega úr.
  2. Fjarlægið umbúðaefnið og umbúða-/ og flutningsfestingar (ef til staðar).
  3. Athugið hvort eitthvað vanti í sendinguna og hvort rafmagnstækið og fylgihlutir hafi orðið fyrir skemmdum í flutningum.

Ábending: Takið rafmagnstækið ekki í notkun ef í ljós kemur að hluti vantar eða peir séu skemmdir. Í slíkum tilvikum biðjum við pig um að hafa samband við sölu-aðilann par sem rafmagnstækið var keypt.

  1. Geymið umbúðirnar þar til ábyrgðartíminn rennur út ef hægt er. Fargið síðan umbúðunum með umhverfisvænum hætti með því að fara með þær á endurvinnslustöð.

⚠ VIDVÖRUN

Rafmagnstækið og umbúðaefni eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur eða småhluti! Hætta á inntöku og köfnun!

4. Tilætluð notkun

Tilætluð notkun bessa rafmagnstækis er að pússa stóra gifsveggsfleti og undirbúa pá fyrir málningu eða veggfóður með notkun tilætlaðs sandpappírs. Petta rafmagnstæki er hentar ekki fyrir litla fleti líkt og horn og kanta. Pað hentar ekki til að slípa niður veggfóður og má ekki nota til blautslípunar.

Rafmagnsverkfærið má ekki nota sem aðskilnaðar-eða slípirokk, bónara eða með vírbursta. Ekki má ekki vinna efni með asbesti með þessu rafmagnsverkfæri. Petta rafmagnsverkfæri er aðeins ætlað til einkano-ta á heimilum og má aðeins nota það í samræmi við tilgang þess. Öll önnur notkun er ekki í samræmi við tilætlaða notkun. Notandinn ber ábyrgð á öllum slíkum skemmdum eða meiðslum af hvaða tagi en ekki fram-leiðandinn.

Vinsamlegast athugið að vélar okkar eru ekki gerðar samkvæmt reglugerðum til notkunar í atvinnuskyni, af fagmönnum eða í iðnaði. Við tökum ekki á okkur neins konar ábyrgð ef vélin er notuð í atvinnuskyni, af fagmönnum eða í iðaði né neinni sambærilegri not-kun við það.

5. Öryggisleiðbeiningar

⚠ VIDVÖRUN Lesið allar öryggisleiðbeiningar og leiðbeiningar, skýringarmyndir og tæknilegar upplýsingar sem fylgja með þessu rafmagnsverkfæri.

Ef ekki er farið eftir eftirfarandi leiðbeiningum getur slíkt andvaraleysi valdið raflosti, bruna og/eða alvarlegum meiðslum.

Geymið allar öryggisleiðbeiningar og fyrirmæli til upprifjunar síðar.

Hugtakið „rafmagnsverkfæri“ sem notað er í öryggisleiðbeiningunum visar til rafveituknúinna rafmagnsverkfæra (með rafmagnssnúru) og til rafhlöðuknúinna rafmagnsverkfæra (án rafmagnssnúru).

Öryggi á vinnusvæði

a) Haldið vinnusvæðinu hreinu og vel upplýstu. Óreiða á vinnusvæði eða óupplýst vinnusvæði get- ur valdið slysum.
b) Vinnið ekki með rafmagnsverkfæri á sprengihættusvæði þar sem eldfima vökva, gös eða ryk er að finna. Rafmagnsverkfæri framkalla neista sem geta kveikt í ryki eða gufu.
c) Haldið börnum og öðrum einstaklingum fjarri á meðan á notkun rafmagnsverkfærisins stendur. Truflun getur valdið því að notandinn missi stjórn á rafmagnsverkfærinu.

Rafmagnsöryggi

a) Rafmagnskló verkfærisins verður að passa í innstunguna. Ekki má breyta klónni á nokkurn hátt. Notið ekkert breytitengi með öryggisjarð-tengdum rafmagnsverkfærum. Óbreyttar klær og innstungur sem passa saman draga úr hættu á raflosti.
b) Komið í veg fyrir líkamssnertingu við jarð-tengd yfirborð eins og yfirborð röra, ofna, eldavéla og ísskápa. Aukin hætta er á raflosti pegar líkami notandans er jarðtengdur.
c) Haldið rafmagnsverkfærum fjarri rigningu eða bleytu. Hætta á raflosti eykst ef vatn kemst inn í rafmagnsverkfærið.
d) Notið rafmagnssnúruna ekki til að halda á rafmagnsverkfærinu, hengja það upp eða til að taka klóna úr sambandi. Haldið rafmagnssnúrunni fjarri hita, olíu, skörpum brúnum eða verkfærishlutum á hreyfingu. Skaddaðar eða flæktar rafmagnssnúrur auka hættuna á raflosti.
e) Ef rafmagnsverkfæri er notað utandyra skal eingöngu notast við framlengingarsnúrur sem ætlaðar eru til notkunar utandyra. Notkun framlengingarsnúru sem ætluð er til notkunar utandyra dregur úr hættu á raflosti.
f) Ef ekki er hægt að komast hjá notkun raf-magnsverkfærisins í röku umhverfi skal notast við bilunarstraumsrofa. Notkun bilunarstraums-rofa dregur úr hættu á raflosti.

Öryggi einstaklinga

a) Sýnið aðgát, gefið gaum að því sem gert er og sýnið skynsemi við vinnu með rafmagnsverkfæri. Notandinn skal ekki nota rafmagnsverkfæri þegar hann ert þreyttur eða undir áhrifum eiturlyfja, áfengis eða lyfja. Gáleysi eitt augnablik við notkun á rafmagnsverkfærinu getur leitt til alvarlegra meiðsla.

b) Klæðist hlífðarbúnaði og notið ávallt hlífðargleraugu. Notkun á hlífðarbúnaði, eins og rykgrímum, gripgóðum öryggisskóm, öryggishjálmum eða heyrnarhlífum, sem er viðeigandi fyrir gerð og notkun rafmagnsverkfærisins dregur úr hættu á meiðslum.

c) Forðist óviljandi gangsetningu. Gangið úr skugga um að slökkt sé á rafmagnsverkfærinu áður en það er tengt við rafveituna og/eða rafhlöðu, það er tekið upp eða haldið er á því. Ef fingur notandans er á rafmagnsrofanum pegar haldið er á því eða kveikt er á rafmagnsverkfærinu pegar það er tengt við rafveituna getur það valdið slysum.

d) Fjarlægið alla stillilykla eða skrúfjárn áður en kveikt er á rafmagnsverkfærinu. Verkfæri eða lykill sem er á hluta rafmagnsverkfærisins sem snýst getur valdið meiðslum.

e) Forðist óeðlilega líkamsbeitingu. Gætið þess að vera í öruggri stöðu og haldið líkama-num alltaf í jafnvægi. Pannig er hægt að hafa betri stjórn á rafmagnsverkfærinu í óvæntum aðstæðum.

f) Klæðist viðeigandi fatnaði. Klæðist ekki víðum fötum eða skartgripum. Haldið hári og fatnaði frá hlutum sem eru á hreyfingu. Við föt, skart-gripir eða sítí hár geta festst í hlutum sem eru á hreyfingu.

g) Þegar mögulegt er að tengja ryksugu- og -saf-narabúnað skal tengja hann og nota á réttan hátt. Notkun ryksugu getur dregið úr hættu af völdum ryks.

h) Notandinn skal ekki trúa pví ranglega að hann sé öruggur og skal ekki virða öryggisleiðbeiningarnar fyrir rafmagnsverkfæri að vettugi jafnvel pó hann hafi notað rafmagnsverkfærið oft og pekki vel til pess. Gálaus meðhöndlun getur leitt til alvarlegra meiðsla á nokkrum sekúndubrotum.

Notkun og meðhöndlun rafmagnsverkfærisins

a) Setjið ekki yfirálag á verkfærið. Notið viðeigandi verkfæri fyrir þá vinnu sem framkvæma parf. Ef viðeigandi verkfæri eru notuð er hægt að vinna á betri og öruggari hátt í tilgreindu aflsviði.

b) Notið ekki rafmagnsverkfæri sem hefur gal- laðan rafmagnsrofa. Rafmagnsverkfæri sem ekki er lengur hægt að kveikja á eða slökkva á er hættulegt og gera verður við það.

c) Takið klóna úr innstungunni og/eða fjarlægið aftengjanlega rafhlöðu áður en verkfærið er stillt, skipt er um verkfæraiíhluti eða gengið er

frá rafmagnsverkfærinu. Pessar varúðarráðsta- fanir koma í veg fyrir óviljandi gangsetningu raf- magnsverkfærisins.

d) Geymið rafmagnsverkfæri sem ekki er verið að nota þar sem börn ná ekki til. Leyfið engum aðila að nota rafmagnsverkfærið sem ekki þekkir til þess eða hefur ekki lesið þessar leiðbeiningar. Rafmagnsverkfæri eru hættuleg þegar þau eru notuð af óreyndum einstaklingum.

e) Hirðið um rafmagnsverkfæri og áföst verkfæri af kostgæfni. Athugið hvort íhlutir sem hreyfast starfi óhindrað og án þess að festast, hvort íhlutir séu brotnir eða skaddaðir á þann hátt að það hafi áhrif á virkni rafmagnsverkfærisins. Látið gera við skaddaða íhluti áður en rafmagnsverkfærið er notað. Mörg slys eiga rætur sínar að rekja til illa viðhaldinna rafmagnsverkfæra.

f) Haldið skurðarverkfærum beittum og hreinum. Vel viðhaldin skurðarverkfæri með beittum skurðköntum festast síður og eru auðveldari í meðhöndlun.

g) Notið rafmagnsverkfæri, áfest verkfæriog svo framvegis í samræmi við þessar leiðbeiningar. Takið mið af vinnuaðstöðu og því verki sem framkvæma á. Notkun rafmagnsverkfæra til annarrar notkunar en tilætlaðrar getur skapað hættulegar aðstæður.

h) Haldið handföngunum Þurrum og hreinum og prífið burt alla smurolíu og feiti. Sleip handföng og handfangsfletir stuðla ekki að öruggri notkun og stjórn rafmagnsverkfærisins í ófyrirsjáanlegum aðstæðum.

Pjónusta

a) Látið eingöngu hæft fagfólk gera við raf-magnsverkfærið og eingöngu með uppruna-legum aukahlutum. Pannig er tryggt að öryggi rafmagnsverkfærisins viðhelst.

Öryggisleiðbeiningar fyrir alla notkun - samei-ginlegar öryggisleiðbeiningar fyrir slípun, sand-pappírsslípun, vinnu með vírbursta, bónun og skurð

a) Nota skal petta rafmagnsverkfæri sem sandpappírsslípara. Athugið allar öryggisleiðbein- ingar, fyrirmæli, lýsingar og gögn sem komu með tækinu. Ef eftirfarandi fyrirmælum er ekki fylgt getur það leitt til rafstraums, elds og/eða al- varlegra meiðsla.

b) Petta rafmagnsverkfæri hentar ekki til slí-punar, vinnu með vírbursta, bónunar eða

skurðar. Önnur notkun á þessu rafmagnsverkfæri en tilætluð notkun getur orsakað hættu og meiðsli.

c) Notið ekki annan útbúnað en þann sem framleiðandinn hefur sérstaklega mælt með eða ætlað þessu rafmagnsverkfæri. Pó að hægt sé að festa útbúnað á rafmagnsverkfærið tryggir það ekki örugga notkun.

d) Leyfilegur snúningshraði áfasta verkfærisins verður að lágmarki að vera jafnhár og hámarkssnúningshraðinn sem gefinn er upp á rafmagnsverkfærinu. Útbúnaður sem snýst hraðar en leyfilegt er getur brotnað og flogið um.

e) Ytra pvermál og pykkt áfasta verkfærisins verður að samsvara uppgefnum gildum raf-magnsverkfærisins. Ekki hægt að verja rangle-ga mæld áföst verkfæri eða stjórna peim almen-nilega.

f) Slípunarskífur, flansar, slípunardiskar eða annar útbúnaður verður að passa nákvæmlega á slípunarsnældu rafmagnsverkfærisins. Áföst verkfæri sem passa ekki nákvæmlega á slípunarsnældu rafmagnsverkfærisins snúast óreglulega, titra mjög kröftuglega og geta leitt til pess að notandinn missi stjórn á verkfærinu.

g) Notið ekki skaddaðar áfestingar. Athugið áföst verkfæri fyrir hverja notkun s.s. hvort slípu-narskífur séu klofnar eða sprungnar, hvort sprungur, slit séu á slípunardiskum eða peir mikið notaðir, hvort vírar í vírburstum séu lausir eða brotnir. Pegar rafmagnsverkfærið eða áfasta verkfærið dettur niður skal athuga hvort pað hafi skaðast eða nota óskaddaða áfestingu í staðinn. Pegar áfasta verkfæri he-fur verið athugað og tekið í notkun skal halda öllum, sérstaklega viðkvæmum einstaklingum fjarri verkfærinu sem er í gangi og leyfið tæki-nu vera í gangi í eina mínútu á fullum snúningi. Skaddaðar áfestingar brotna oftast á pessum pró-funartíma.

h) Verið í persónulegum hlífðarbúnaði. Notið eftir því sem við á andlitshlíf, augnhlíf eða hlífðargleraugu. Eftir því sem við á verið með rykgrímu, heyrnarhlífar, hlífðarhanska eða sérstaka svuntu, sem heldur litlu slípi- og ef-nisögnunum fjarri notandanum. Verndið augun gegn fljúgandi hlutum sem verða til við mismunandi notkun. Nota verður ryk- eða öndunarverndargrimu sem siar ryk sem myndast við notkun. Ef notandinn er lengi í hávaða getur hann orðið fyrir heyrnarskaða.

i) Passið að annað fólk sé í öruggri fjarlægð við vinnusvæðið. Hver sem kemur inn á vinnusvæðið verður að vera í persónulegum verndarbúnaði. Brothlutir frá peim hlut sem unnið er með eða brotnar áfestingar geta flogið af stað og orsakað meiðsli bæði á vinnusvæðinu og utan við pað.
j) Haldið á verkfærinu eingöngu á einangruðu gripflötunum pegar vinna er framkvæmd bað sem hætta er á að áfestingin gæti óvart rekist í huldar rafmagnsleiðslur eða eigin rafmagnssnúru. Snerting við spennuhlaðna snúru getur líka leitt til spennu á málmhlutum verkfærisins og orsakað raflost.
k) Haldið rafmagnssnúru fjarri áfestingum sem snúast. Ef notandinn missir stjórn á verkfærinu getur rafmagnssnúran farið í sundur eða festst og höndin eða handleggurinn lent í áfestingunni sem snýst.
I) Aldrei skal leggja rafmagnsverkfærið frá sér fyrr en áfestingin hefur algjörlega stöðvast. Áfestingin sem snýst getur komist í snertingu við flötinn sem leggja á verkfærið á, pannig að notandinn missir stjórn á rafmagnsverkfærinu.
m) Látið rafmagnsverkfærið ekki vera í gangi á meðan haldið er á pví. Af slysni getur fatnaður notandans festst í áfestingunni sem snýst og hún skorist inn í líkama notandans.
n) Hreinsið reglulega loftunarrifur rafmagnsverkfærisins. Vélarblásarinn sogar ryk í hulstrið og safnist of mikið málmryk fyrir getur það orsakað rafmagnshættu.
o) Notið rafmagnsverkfærið ekki nálægt brennanlegu efni. Neistar geta kveikt í pessum efnum.
p) Notið engar áfestingar sem krefjast fljótandi kæliefnis. Notkun á vatni eða öðrum fljótandi kæliefnum getur leitt til raflosts.

Öryggisleiðbeiningar fyrir alla notkun – bakslag og viðeigandi öryggisleiðbeiningar

Bakslag er skyndilegt viðbragð í kjölfar heftandi eða fastrar áfestingar sem snýst, líkt og slípiskífu, slípidisks, vírbursta o.s.frv. Hefting eða festing leiðir til fyrirvaralausrar stöðvunar áfestingarinnar sem snýst.

Pannig er stjörnlausu rafmagnsverkfæri hraðað öfugt við snúningsátt áfestingarinnar á peim stað par sem pað hefur festst.

Pegar t.d. slípiskífa heftist eða stíflast í verkstykki getur kantur slípiskífunnar sem fer í verkstykkíð fest þar og brotið þannig slípiskífuna eða orsakað bakslag.

Slípiskífan hreyfist pá í átt að notandanum eða í burtu frá honum, allt eftir snúningsátt skífunnar á stíflustöðunni. Við þetta geta slípiskífur líka brotnað.

Bakslag er afleiðing rangrar eða slælegrar notkunar á rafmagnsverkfærinu.

Hægt er að koma í veg fyrir það með viðeigan- di varúðarráðstöfunum eins og þeim sem hér á eftir fylgja.

a) Haldið rafmagnsverkfærinu örugglega föstu og setjið líkama ykkar og handleggi í stöðu sem geta tekið við bakslagskröftum. Notið alltaf viðbótargrip, sé það fyrir hendi, til að hafa sem mesta stjórn á bakslagskröftum eða viðbragðsstundum þegar tekið upp. Notandinn getur með viðeigandi varúðarráðstöfunum ráðið við bakslags- og viðbragðskraftana.

b) Setjið hendina ykkar aldrei nálægt snúandi notkunarverkfærum. Notkunarverkfærið getur við bakslagið fært sig yfir hendina.

c) Forðastu með líkamanum svæðið sem rafmagnsverkfærið færist um við bakslag. Bakslagið setur rafmagnsverkfærið í áttina á móti hreyfingu slípiskífunnar á stíflustaðnum.

d) Vinnið sérstaklega varúðlega á svæði þar sem eru horn, beittir kantar o.s.frv. Komið í veg fyrir að notkunarverkfæri brotni og klem-mist frá verkstykki. Áfasti parturinn sem snýst á það til að standa á sér á beittum köntum eða þe-gar hann hrekkur af. Petta orsakar tap á stýringu eða bakslag.

e) Notið ekki sögunarblað með keðjum eða tön- num. Slík notuð verkfæri valda oft bakslagi eða að stjörn tapast á rafmagnsverkfærinu.

Öryggisleiðbeiningar fyrir sandpappírspússun

a) Notið ekki of stór slípiblöð, heldur fylgið upplýsingum framleiðanda varðandi stærð slípiblaða. Slípiblöð sem ná út fyrir slípidiskinn geta orsakað meiðsli, sem og leitt til stíflu, rifs slípiblaðanna eða bakslags.

a) Læsið vegna vinnu ryksugu á millistykkið sem kemur með.

b) ATHUGID! Látið ekki slípiryk lenda nálægt opnum eldi, ryk getur verið sprengifimt.

c) Verið með verndargleraugu og rykvarnargrímu pegar slípivinnan er framkvæmd, sérstaklega pegar unnið er yfir höfuð og vegna vinnu við krítísk efni!

Við slípun ákveðinna efna (t.d. blýlita, viðar- og málmtegunda) verður til skaðlegt eða eitrað ryk. Snerting eða innöndun þessa ryks getur valdið skaða fyrir notandann eða í nálægð viðkvæmra einstaklinga.

Leiðbeiningar um titring og hávaðapróun

Dragið eins mikið úr hávaðamyndun og titringi og hægt er!

  1. Notið aðeins rafmagnsverkfæri sem eru í lagi.
  2. Sinnið reglubundnu viðhaldi og Þrifum á raf-magnsverkfærinu.
  3. Aðlagið verklag ykkar að rafmagnsverkfærinu.
  4. Setjið ekki yfirálag á verkfærið.
  5. Látið fara yfir rafmagnsverkfærið ef með parf.
  6. Slökkvið á rafmagnsverkfærinu pegar það er ekki í notkun.

Aðrar hættur

Viðvarandi hættur eru alltaf til staðar jafnvel pótt petta rafmagnsverkfæri sé notað samkvæmt fyrirmælum. Ef-tirfarandi hættur geta komið upp í tengslum við gerð og hönnun pessa rafmagnsverkfæris:

a) Hætta á heilsuskaða sem hlýst af handa- og hand- leggjatitringi ef tækið er notað yfir lengri tíma eða pað er ekki notað og því viðhaldið samkvæmt fy- rirmælum.
b) Meiðsli og eignatjón geta orsakast af notkunar-verkfærum sem snúast um vegna skyndilegs skaða, slits eða rangrar notkunar óviðbúið úr/frá rafmagnsverkfærinu snúandi.
c) Brennsla og skurðmeiðsli sé komið við notkunar-verkfæri beint eftir notkun og/eða komið við þau með berri húðinni.

⚠ VIDVÖRUN! Rafmagnsverkfærið myndar rafsegulsvið á meðan það er í gangi. Rafsegulsviðið getur við ákveðin skilyrði truflað virkar eða óvirkar læknisfræðilegar ígræðslur. Til að draga úr alvarlegum eða bannvænum skaða mælum við með því að þeir sem eru með læknisfræðileg ígræði ráðfæri sig við lækninn og framleiðanda læknisfræðilega ígræðisins, áður en rafmagnsverkfærið er notað.

6. Tæknilegar upplýsingar

Málspenna 230-240 V\~

Máltíðni 50 Hz

Orkunotkun 710 W

Nafnsnúningshraði (sveiflutíðni) n 800 - 1800 1/mín
Snældustærð M14
Þvermál slípipappírs 215 mm
Verndarflokkur II
Þyngd3,8 kg
Hljóðgildi
Hljóðprýstistig L_PA 78 dB
Hljóðaflsstig L_WA 89 dB
Óvissa K3 dB
Titringur í höndum og örmum
við slípun með slípiblaði a_n 2,28 m/s ^2
Óvissa K1,5 m/s ^2

Uppgefið handa-handleggja-titringsgildi byggist á slí- pun með slípiblaði. Önnur notkun getur leitt til annar- ra gilda.

Hljóð- og titringsgildin eru ákveðin samkvæmt EN 62841-1 og EN 62841-2-3.

Uppgefið gildi fyrir titring er mælt samkvæmt stöðluðum prófunaraðferðum og hægt er að nota það í samanburði eins rafmagnsverkfæris við annað.

Tiltekið gildi titringsútstreymis er einnig hægt að nota fyrir upphafsmat á truflunum vegna notkunar.

⚠ Viðvörun!

Allt eftir pví hvernig pú notar rafmagnsverkfærið geta raunveruleg titringsgildi verið önnur en uppgefin!

Grípið til ráðstafana til að verja ßig gegn ti-tringsálagi!

Athugið við það allan vinnuganginn, líka tímapunktinn sem rafmagnsverkfærið vinnur án álags eða þegar slökkt er á því!

Tilætlaðar ráðstafanir ná m.a. til reglulegs viðhalds og umhirðu rafmagnsverkfærisins og viðhengja verkfærisins, hversu hlýtt höndunum er haldið, reglulegra pása, sem og góðrar áætlunargerðar vinnugangsins!

7. Uppsetning

- Leggið fram- og afturhlutann saman (mynd 2) og herðið róna. (mynd 3).

- Stingið viðbótarhandfanginu í enda tækisins, stillið lengdina og herðið róna aftast á tækinu. (Mynd 4)

Sandpappír

Úrval

  1. Grófleiki sandpappírsins er gefinn upp á bakhliðinni. Pví lægra sem númeroð er, pví grófari er pappírinn.
  2. Notið grófkorna sandpappír fyrir grófa slípivinnu og finkorna sandpappír til lokameðhöndlunar. Mælt er með sandpappír með áloxíði, silisíumkarbíði eða öðrum gervislípimiðlum.
  3. Byrjið með grófum kornum og endið með finustu kornum, pegar bið eruð með sandpappír með mismunandi kornum til notkunar, til að fá góða, nánar tiltekið slétta slípiniðurstöðu.

Setjið sandpappírinn (13) með franska rennilásnum á slípiplötuna (9).

  1. Jafnið sandpappírinn (13) á slípiplötunni (9) og ýtið jafnt á hann.
  2. Takið sandpappírinn (13) af slípiplötunni (9) til að skipta honum út fyrir nýjan/annan (mynd 5).

Rykhreinsun

⚠ Viðvörun!

Við vinnu á t.d. blýblandaðri málningu geta skaðleg/eitruð gös myndast. Bæði notandanum og einstaklingum sem nálægt eru stafar hætta af peim!

Notið því þetta rafmagnsverkfæri einungis með ryksuguútbúnaði og verndið ykkur sjálf og aðra aðila á vinnusvæði til viðbótar með viðeigandi persónulegum varnarútbúnaði!

Við vinnu með þessu rafmagnstæki myndast mikið ryk. Ryksugunin er mjög hagnýt til að halda vinnusvæði ykkar hreinu. Hægt er að tengja sogtæki eða ryksugu við sogslönguna (11) sem tengt er við tengið fyrir ryksugun.

  1. Stillið hólkinum á slönguendanum í rétta stöðu við millistykki sogslöngunnar (12) (mynd 3), stingið endanum inn og festið hann með því að snúa til hægri (mynd 7).
  2. Tengið ryksugumillistykkið við viðeigandi sogtæki eins og t.d. ryksugu (mynd 8).

Ábending: Gangið úr skugga um að ryksugan henti til notkunar með rafmagnsverkfæri.

Burstajaðar

Burstajaðar (10) er um slípihaus rafmagnstækisins. Hann býður upp á tvenns konar kosti:

a) Burstajaðarinn (10) skagar út fyrir slípiplötuna (9) og lendir fyrst á fletinum sem á að vinna. Pannig verður slípiplatan samhliða vinnslufletinum áður en verkfærið kemst í snertingu við flötinn sem á að vinna. Pannig er komið í veg fyrir hálfmánadældir af völdum brúnar slípidisksins.
b) Auk pess kemur burstajaðarinnar (10) í veg fyrir óhóflega rykmyndun. Af völdum burstanna berst ryk, sem myndast við slípunina, ekki út á við heldur verður því fargað í gegnum sogkerfið. Gangið úr skugga um fyrir alla vinnu með rafmagnstækið að burstajaðarinn (10) sé í lagi. Látið skipta um hann ef skemmdir eða slit kemur í ljós.

Tenging við rafmagn

  1. Tryggið að slökkt sé á rafmagnstækinu. Stillið kveikjarann/slökkvarann (3) fyrst alltaf í stöðuna slökkt áður en tækið er tengt við rafmagn.
  2. Setjið tengið í innstungu uppsetta samkvæmt reglum, sem samsvarar viðeigandi kröfum samkvæmt tæknilegum upplýsingum.
  3. Rafmagnstækið bitt er nú tilbúið til notkunar.

8. Notkun

⚠ VIDVÖRUN!

Fyrir notkun vörunnar á nauðsynlega að setja alveg saman!

Snúningshraði

Áður en vinna hefst skal stilla snúningshraðann í samræmi við notkun. Notið lágan snúningshraða fyrir grófa slípun, aukið snúningshraðann fyrir fíngerðari slípun.

  1. Stillið snúningshraðann með pví að snúa stillihjólinu (6). Snúið til hægri til að minnka snúningshraðann (mynd 9).
  2. Snúið til vinstri að auka snúningshraðann (mynd 10).

Kveikjari/slökkvari

Kveikja:

Ýtið á kveikjarann/slökkvarann (3)

Samfelld notkun: (Mynd 11)

Festið kveikjarann/slökkvarann (3) með par til gerðum takka (a).

Slökkva:

Ýtið snöggt á kveikjarann/slökkvarann (3).

Ábending: Notaða verkfærið heldur áfram að snúast eftir að slökkt hefur verið. Bíðið eftir að notaða verkfærið stöðvist, áður en pið leggið rafmagnsverkfærið frá ykkur.

Slípun

  1. Notið viðeigandi sandpappír (13) og veljið snú- ningshraða við hæfi.
  2. Haldið örugglega um handföng rafmagnstækisins (1, 2) og kveikið á því eins og mælt er fyrir um.
  3. Bíðið eftir að notaða verkfærið hefur náð fullum vinnubraða sínum.
  4. Færið slípiplötuna (9) sem mest samhliða veggnum og setjið hana með burstajaðrinum (10) fyrst á flötinn sem á að vinna.
  5. Setjið smá prýsting á slípihausinn (8) til að færa verkfærið á vinnsluflötinn.
  6. Færið rafmagnstækið með jöfnum hreyfingum yfir flötinn.

Ábending: Haldið rafmagnstækinu ekki of lengi á sama stað til að komast hjá óreglulegum slípiniðurstöðum.

  1. Lyftið slípiplötunni (9) frá fletinum sem á að vinna áður en bið slökkvið á rafmagnstækinu.
  2. Bíðið eftir að notaða verkfærið stöðvist, áður en bið leggið rafmagnsverkfærið frá ykkur.

Slípun á lofti (skýringarm. 12)

  1. Við vinnu á lofti ætti að festa slípihausinn með oka (15) (fylgir með) eins og sýnt er á skýring-armynd 12.

Eftir notkun

  1. Slökkvið á rafmagnstækinu eins og lýst var, ta- kið það úr sambandi við rafmagn og leyfið því að kólna.
  2. Hreinsið rafmagnstækið og framkvæmið viðeigandi viðhaldsvinnu á pví líkt og lýst er hér fyrir neðan og geymið bað svo á viðeigandi hátt.

9. Prif, viðhald og viðgerðir

⚠ Viðvörun!

Áður en nokkurs konar vinna á sjálfu rafmagnstækinu fer fram (t.d. flutningur, samsetning, breytingar, prif og viðhald) skal taka kló bess úr innstungunni!

Prif

a) Haldið verndarbúnaði, loftunaropum og mótorhúsi eins ryk- og óhreinindafríu og mögulegt er.
b) Strjúkið af rafmagnstækinu með hreinum klút eða blásið af því með þrýstilofti undir lágum þrýstingi (hám. 3 bör).
c) Prífið rafmagnstækið strax eftir hverja notkun.
d) Notið ekki hreinsi- eða leysiefni, par sem pau geta skaðað plasthluta tækisins. Gætið pess að vatn geti ekki komist inn í tækið.

Skipt um rafmagnstengileiðslu

Ef rafmagnssnúra tækisins skemmist verður fram-leiðandinn, viðgerðapjónusta á hans vegum eða raf-virki með álíka hæfni að skipta um hana til að koma í veg fyrir hættur.

Viðhald

Skoðið slit og skemmdir á rafmagnsverkfærinu og fyl- gihlutum pess (t.d. ísetningarverkfæri) fyrir og eftir hverja notkun. Skiptið um på fyrir nýja ef börf krefur eins og lýst er i pessari notkunarhandbók. Við pað skal fylgja öllum tæknilegum kröfum.

Slípiplata, burstajaðar

Látið hæfan fagaðila skipta slípiplötunni (9) og burstajaðrinum (10) út fyrir nýja/n af sömu gerð ef skemmdir eða mikið slit kemur í ljós.

Hafa skal í huga að í tækinu slitna eftirtaldar hlutir við notkun og með tímanum, eða þá að eftirtaldir hlutir teljast rekstarvara.

Slithlutir*: Kolaburstar, slípidiskur, burstahaus, slípi-pappír

* ekki endilega hluti af pöntuninni!

10. Raftengingar

Rafmótorinn er tengdur og tilbúinn til notkunar. Tengingar eru í samræmi við gildandi ákvæði VDE og DIN. Tengingar við aðveitukerfi og framlenging-arkapallinn sem notaður er Þurfa að vera í samræmi við bessi fyrirmæli.

Skemmd rafleiðsla

lôulega verða skemmdir á einangrun á rafmagns-snúrum.

Mögulegar orsakir geta verið:

  • Nuddstaðir par sem rafmagnssnúrur eru leiddar gegnum rifur á gluggum eða hurðum.
  • Brotstaðir vegna ófullnægjandi festingar eða lagnar á rafmagnssnúrunni.
  • Tengingar skemmast vegna pess að ekið er yfir raf-magnssnúruna.
  • Skemmdir á einangrun vegna pess að klónni er kippt úr innstungunni.
  • Sprungur vegna pess að einangrunin er orðin gömul.

Ekki skal nota bilaðar rafmagnssnúrur og eru þær jafnframt lífshættulegar vegna skemmda á einan-gruninni.

Athugið ástandið á rafmagnssnúrum reglulega. Gætið þess taka rafmagnssnúrurnar úr sambandi áður en skoðun á þeim fer fram.

Rafmagnstengingar verða að vera í samræmi við gildandi ákvæði VDE og DIN. Notið aðeins rafmagns-snúrur með auðkenninu H05VV-F.

Rafmagnssnúran parf að vera áprentuð með gerða-rauðkenninu.

Tengigerð Y

Ef rafmagnssnúra tækisins skemmist verður fram-leiðandinn, viðgerðapjónusta hans eða rafvirki meðálíka hæfni að skipta um hana til að koma í veg fyrir hættur.

Riðstraumsmótor

  • Rafspennan verður að vera 230 V\~.
  • Framlengingarsnúrur, sem eru allt að 25 m að lengd, purfa að vera með að minnsta kosti 1,5 fermillimetra pvermál.

Aðeins rafvirkjar mega framkvæma tengingar og viðgerðir á rafbúnaðinum.

Við fyrirspurnir parf að gefa upp eftirfarandi upplý- singar:

• Straumgerð mótorsins
• Gögn á merkispjaldi vélarinnar
• Gögn á tegundarskilti vélar

⚠ Viðvörun!

Innan í rafmagnstækinu eru engir hlutar sem no- tandi á að viðhalda! Opnið aldrei rafmagnstækið!

Farið með það vegna áframhaldandi viðhaldsvinnu til hæfs fagaðila!

  1. Geymið rafmagnsverkfærið pegar það er ekki í notkun á þurrum, vel loftræstum stað, þar sem börn ná ekki til, t.d. á háum skáp eða á lokuðum stað.

  2. Geymið rafmagnsverkfærið, notkunarleiðbeiningarnar og hugsanlega fylgihluti í upprunalegum umbúðum ef hægt er. Pannig eru allar upplýsingar og hlutar stöðugt við höndina.

  3. Haldið ávallt á rafmagnsverkfærinu á handföngunum.

  4. Pakkið rafmagnsverkfærinu í upprunalegar umbúðir til að koma í veg fyrir flutningsskemmdir.

  5. Verjið rafmagnsverkfærið gegn titringi og hristingi, einkum við flutning í ökutækjum.

12. Förgun og endurvinnsla

Leiðbeiningar varðandi pökkun

Toolson DWS225BT - Leiðbeiningar varðandi pökkun - 1

Toolson DWS225BT - Leiðbeiningar varðandi pökkun - 2

Pökkunarefnið er endurvinnan- legt. Vinsamlega fargið umbúðum á umhverfisvænan hátt.

Leiðbeiningar varðandi rafmagns- og rafeindatækislög (ElektroG)

Toolson DWS225BT - Leiðbeiningar varðandi rafmagns- og rafeindatækislög (ElektroG) - 1

Gömul rafmagns- og rafeindatæki eiga ekki að koma í húsasorp, heldur á að aðskilja bau og farga peim!

• Gömul batterí eða hleðslurafhlöður, sem eru ekki föst í gamla tækinu verður að taka heil úr fyrir afhendingu! Förguninni er stjórnað í gegnum rafhlöðulög.

- Eigandi nánar tiltekið notandi rafmagns- og raftækja er lagalega skyldugur eftir notkun peirra að skila peim inn.

- Endanotandinn ber sjálfur ábyrgő á að eyða persónugreinanlegum gögnum fyrir gamla tækið sem á að farga!

- Tákn ruslatunnu sem er strikað yfir þýðir að gömul rafmagns- og raftæki mega ekki fargast með húsasorpi.

• Gömul rafmagns- og raftæki er hægt að leggja inn gjaldfrjálst á eftirfarandi stöðum:

- Opinberum-lagalegum förgunar- nánar tiltekið safnstöðum (t.d. sameiginlegum byggingar-stöðum).

- Sölustöðum raftækja (staðbundnum eða á vef), svo lengi sem söluaðili er skyldugur að skila eða bjóða pað frjálst.

- Allt að þrjú gömlum raftækjum á tækjategund, með kantlengd að hámarki 25 sentimetrar er hægt að skila inn gjaldfrjálst án þess að kaupa purfi nýtt tæki frá framleiðanda eða hjá leyfőri safnstöð í nágrenni við big.

- Frekari viðbótarskilyrði skila framleiðandans og dreifingaraðilans fáid bið upplýsingar um hjá viðkomandi viðskiptabjónustu.

- Komi til afhendingar nýs raftækis frá framleiðanda til einkaheimilis getur hann leyft að gamla raftækið sé sótt gjaldfrjálst að beiðni notandans. Setjið ykkur í samband við viðskiptavinabjónustu framleiðandans.

- Pessar yfirlýsingar gilda eingöngu fyrir tæki sem eru uppsett í löndum Evrópusambandsins og seld eru samkvæmt evrópskri reglugerð 2012/19/ESB. Í löndum utan við Evrópusambandið geta aðrar ákvarðanir gilt fyrir förgun á gömlum rafmagns- og rafeindatækjum.

13. Bilanaleiðrétting

Oft getur notandinn sjálfur leiðrétt eða lagað meintar bilanir, ólag eða skemmdir á tækinu. Framkvæmið því skoðun á tækinu samkvæmt töflunni hér fyrir neðan áður en haft er samband við fagaðila. Í flestum tilfellum er hægt að laga bilanir fljótt.

Bilun Möguleg orsök Úrbætur
Rafmagnsverkfæri fer ekki í gangRafmagnstenging er rofin Athugið rafmagnstenginguna með því að setja annað rafmagnsverkfæri í samband
Rafmagnssnúra eða tengill bilaður Prófun með rafvirkja
Aðrar rafmagnsbilanir rafmagnsverkfærisins Prófun með rafvirkja
Rafmagnsverkfærið skilar ekki fullum afköstumFramlengingarsnúra er of löng og/eða með ófullnægjandi þvermálNotið framlengingarsnúru af leyfilegri lengd og/eða þvermáli
Rafveita (t.d. rafall) er með of lága spennu Tengið rafmagnsverkfærið við viðeigandi rafveitu
Vond vinnuniðurstaðaÍsetningarverkfæri slitið Látið skipta um ísetningarverkfæri
Slípiplatan slitin Látið skipta um slípiplötuna
Mikil rykmyndun Bursttajaðar slitinn Skiptið um burstajaðarinn
Ryksog ekki tengt/kveikt á Tengið / kveikið á ryksogi

Augljósar skemmdir verður að tilkynna innan 8 daga frá viötöku vörunnar. Annars er réttur kaupanda um bætur vegna slíka skemmda ógildur. Við ábyrgjumst, í tilfelli réttrar meðhöndlunar yfir lögbundió ábyrgðartímabil frá afhendingu, að við skiptum um hvern vélarhlut án kostnaðar sem ónothæfur er vegna gallaðs efnis eða skemmda í framleiðslu innan ákveðins tímabils. Af því er tekur til hluti sem ekki eru framleiddir af okkur, ábyrgjumst við af því leiti aðeins að við eigum rétt á ábyrgðarkröfum gagnvart birgðasölum. Kostnaður vegna uppsetningar á nýjum hlutum skal falla í skaut kaupanda. Ógilding sölu eða afsláttur á kaupverði sem og aðrar kröfur vegna skemmda eru undanskildar

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Toolson

Líkan : DWS225BT

Flokkur : Ponceuse