FlexiBridge IKE95771FB - Cuisinière AEG - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis FlexiBridge IKE95771FB AEG á PDF sniði.
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Cuisinière á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína FlexiBridge IKE95771FB - AEG og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. FlexiBridge IKE95771FB vörumerkisins AEG.
NOTENDAHANDBÓK FlexiBridge IKE95771FB AEG
Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum sem leiða af rangri uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf leiðbeiningarnar á öruggum stað þar sem auðvelt er að nálgast þær til síðari notkunar.
1.1 Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga
- Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn- eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu, mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef þau skilja hættuna sem því fylgir. Halda skal börnum yngri en 8 ára gömlum og fólki með mjög miklar og flóknar fatlanir frá heimilistækinu, nema þau séu undir stöðugu eftirliti. ÍSLENSKA 177• Hafa ætti eftirlit með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með.
- Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á viðeigandi hátt.
- VIÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna meðan á notkun stendur. Haltu börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar það er í notkun og þegar það kólnar.
- Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera virkjuð.
- Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á heimilistækinu án eftirlits.
- Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til matreiðslu.
- Þetta heimilistæki er hannað til notkunar innanhúss á heimilum.
- Þetta heimilistæki má nota á skrifstofum, í herbergjum hótela, herbergjum gestahúsa, bændagistingum og öðrum sambærilegum gistirýmum þar sem notkun er ekki meiri en almenn heimilisnotkun.
- VIÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna meðan á notkun stendur. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta hitaelementin.
- VIÐVÖRUN: Eldun án eftirlits með fitu eða olíu á eldunarhellu getur verið hættuleg og leitt til eldsvoða.
- Reykur er ummerki um ofhitnun. Aldrei skal nota vatn til að slökkva eld sem kemur upp við eldun. Slökktu á tækinu og breiddu yfir logana, til dæmis með eldteppi eða loki.
- VIÐVÖRUN: Ekki má veita rafmagni að heimilistækinu gegnum utanáliggjandi skiptibúnað, eins og tímastilli, eða tengja það við rafrás sem veita kveikir og slekkur reglulega
- VARÚÐ: Eldunarferlið verður að vera undir eftirliti. Stutt eldunarferli verður stöðugt að vera undir eftirliti.
- VIÐVÖRUN: Hætta á eldsvoða: Geymið ekki hluti á eldunaryfirborðinu. 178 ÍSLENSKA• Málmhluti eins og hnífa, gaffla, skeiðar og lok skal ekki leggja ofan á helluborðið því þeir geta orðið heitir.
- Ekki má nota heimilistækið fyrr en innbyggða virkið hefur verið uppsett.
- Notaðu ekki gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
- Eftir notkun skal slökkva á helluborðselementinu með stýringunni og ekki treysta á pönnunemann.
- Ef sprungur eru í keramíkglerfletinum / glerfletinum skal slökkva á heimilistækinu og taka það úr sambandi við rafmagn. Ef heimilistækið er tengt beint við stofnæð með tengidós skal fjarlægja öryggið til að aftengja heimilistækið frá aflgjafanum. Í báðum tilfellum skal hafa samband við viðurkennda þjónustumiðstöð.
- Ef rafmagnssnúran er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd þjónustumiðstöð eða álíka hæfur aðili að endurnýja hana til að forðast hættu.
- VIÐVÖRUN: Notaðu aðeins helluborðshlífar sem hannaðar eru af framleiðanda eldunartækisins eða framleiðandi heimilistækisins bendir á í notkunarleiðbeiningunum sem hentugar, eða helluborðshlífar sem innfelldar eru íheimilistækið. Notkun óviðeigandi hlífa getur valdið slysum.
AÐVÖRUN! Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki. AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum eða skemmdum á heimilistækinu.
- Fjarlægðu allar umbúðir.
- Ekki setja upp eða nota skemmt heimilistæki.
- Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja með heimilistækinu.
- Haltu lágmarksfjarlægð frá öðrum heimilistækjum og einingum.
- Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið er fært vegna þess að það er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og lokaðan skóbúnað.
- Þétta skal skorna fleti á skápnum með þéttiefni til að koma í veg fyrir að raki valdi þenslu.
- Verndaðu botn heimilistækisins gegn gufu og raka.
- Settu heimilistækið ekki upp við hliðina á hurð eða undir glugga. Það kemur í veg fyrir að heit eldunarílát falli af heimilistækinu þegar dyrnar eða glugginn eru opnuð.
- Hvert heimilistæki er búið kæliviftum að neðan.
- Ef heimilistækið er sett upp fyrir ofan skúffu: ÍSLENSKA 179– Ekki geyma litla hluti eða pappírsblöð sem hægt væri að toga í þar sem slíkt getur skemmt kælivifturnar eða skert kælikerfið. – Hafðu að minnsta kosti 2 cm fjarlægð á milli botns heimilistækisins og hluta sem eru geymdir í skúffunni.
- Fjarlægðu öll aðgreiningarspjöld sem eru sett upp í skápnum fyrir neðan heimilistækið.
- Heimilistækið verður að vera með jarðtengingu.
- Áður en einhver aðgerð er framkvæmd skal ganga úr skugga um að heimilistækið sé aftengt frá aflgjafanum.
- Gakktu úr skugga um að færibreyturnar á merkiplötunni séu samhæfar við rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
- Gættu þess að heimilistækið sé rétt uppsett. Laus eða röng rafmagnssnúra eða kló (ef við á) getur valdið því að tengillinn verði of heitur.
- Notaðu rétta rafmagnssnúru.
- Ekki láta raflagnir flækjast hverja um aðra.
- Gakktu úr skugga um að búið sé að setja upp vörn gegn raflosti.
- Notaðu álagsminnkandi klemmu á snúruna.
- Gakktu úr skugga um að rafmagnssnúran eða klóin (ef við á) snerti ekki heitt heimilistækið eða heit eldunaráhöld þegar þú tengir heimilistækið við innstungu.
- Notaðu ekki fjöltengi eða framlengingarsnúrur.
- Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin (ef við á) og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að skipta um skemmda rafmagnssnúru.
- Vörn lifandi og einangraðra hluta gegn raflosti verður að vera fest þannig að ekki sé hægt að fjarlægja hana án verkfæra.
- Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við rafmagnsinnstunguna í lok uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir uppsetningu.
- Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki tengja rafmagnsklóna.
- Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr sambandi. Taktu alltaf um klóna.
- Notaðu aðeins réttan einangrunarbúnað: Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni), lekaliða og spólurofa.
- Rafmagnsuppsetningin verður að vera með einangrunarbúnað sem leyfir þér að aftengja tækið frá stofnæð á öllum pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður að hafa að lágmarki 3 mm snertiopnunarvídd.
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum, bruna og raflosti.
- Breytið ekki eiginleikum heimilistækisins.
- Fjarlægðu allar umbúðir, merkingar og verndarfilmu (ef við á) áður en notkun hefst.
- Gangið úr skugga um að loftræstiop séu ekki stífluð.
- Látið heimilistækið ekki vera án eftirlits á meðan það er í gangi.
- Setjið eldavélina á „off“ eftir hverja notkun.
- Ekki setja hnífapör eða pottlok á hellurnar. Þau geta orðið mjög heit.
- Notið ekki heimilistækið með blautar hendur eða þegar það er í snertingu við vatn.
- Notið ekki heimilistækið sem vinnusvæði eða geymslusvæði.
- Ef yfirborð heimilistækisins er sprungið skal samstundis aftengja það frá aflgjafa. Þetta er til að koma í veg fyrir raflost.
- Notendur sem eru með gangráð verða að vera í að lágmarki 30 cm fjarlægð frá spanhellum þegar heimilistækið er í gangi.
- Heit olía getur skvest þegar þú setur mat í hana.
- Ekki nota álpappír eða önnur efni á milli eldunarhellunnar og eldunarílátsins, nema framleiðandi þessa heimilistækis tilgreini annað.
- Notaðu aðeins aukahluti sem framleiðandi þessa heimilistækis mælir með. 180 ÍSLENSKAAÐVÖRUN! Hætta á eldi og sprengingu.
- Fita og olíur geta losað eldfimar gufur þegar þær eru hitaðar. Haltu eldi eða hituðum hlutum fjarri fitu og olíu þegar þú notar þær við matreiðslu.
- Gufur sem mjög heit olía losar geta valdið fyrirvaralausum bruna.
- Notuð olía sem getur innihaldið matarleifar getur valdið eldsvoða við lægra hitastig en olía sem er notuð í fyrsta skipti.
- Setjið ekki eldfim efni eða hluti bleytta með eldfimum efnum í, nálægt, eða á heimilistækið. AÐVÖRUN! Hætta á eldi og skemmdum á heimilistækinu.
- Ekki geyma heit eldunarílát á stjórnborðinu.
- Ekki setja heitt pönnulok á gleryfirborð helluborðsins.
- Ekki láta eldunaráhöld sjóða þangað til að þau þorna.
- Gættu þess að láta hluti eða eldunarílát ekki detta á heimilistækið. Það getur skemmt yfirborðið.
- Ekki kveikja á helluborðinu ef á því eru tóm eldunarílát eða engin eldunarílát.
- Eldhúsáhöld úr steypujárni eða með skaddaðan botn geta valdið rispum á glerinu/glerkeramík. Lyftu alltaf þessum hlutum upp þegar þú þarft að hreyfa þá til á eldunaryfirborðinu.
2.4 Umhirða og hreinsun
- Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að yfirborðsefnin á því endist betur.
- Slökktu á heimilistækinu og láttu það kólna fyrir hreinsun.
- Notaðu ekki vatnsúða og gufu til að hreinsa heimilistækið.
- Hreinsaðu heimilistækið með mjúkum rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus þvottaefni. Ekki nota vörur með svarfefnum, stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.
- Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð til að gera við heimilistækið. Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
- Varðandi ljósin inn í þessari vöru og ljós sem varahluti sem seld eru sérstaklega: Þessi ljós eru ætluð að standast öfgakenndar aðstæður í heimilistækjum eins og hitastig, titring, raka eða til að senda upplýsingar um rekstrarstöðu tækisins. Þau eru ekki ætluð til að nota í öðrum tækjum og henta ekki sem lýsing í herbergjum heimila.
AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum eða köfnun.
- Hafðu samband við staðbundin yfirvöld fyrir upplýsingar um hvernig farga skuli heimilistækinu.
- Aftengdu tækið frá rafmagni.
- Klipptu rafmagnssnúruna af upp við heimilistækið og fargaðu henni.
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
3.1 Fyrir uppsetninguna
Áður en þú setur upp helluborðið skaltu skrifa niður upplýsingarnar á merkiplötunni. Merkiplatan er neðan á heimilistækinu. Serial number (raðnúmer) ........................... ÍSLENSKA 1813.2 Innbyggð helluborð Notaðu innbyggða helluborðið eingöngu eftir að þú hefur sett helluborðið upp með réttum hætti sem innbyggðan búnað og að yfirborð vinnusvæðisins uppfylli staðla.
- Notaðu eftirfarandi snúrutegund þegar skipt er um skemmdar rafmagnssnúrur: H05V2V2-F sem þolir 90 °C hita eða meira. Stakur vír verður að hafa lágmarksþvermál í samræmi við töfluna hér að neðan. Hafðu samband við staðbundna þjónustumiðstöð. Aðeins viðurkenndum rafvirkja er heimilt að skipta um rafmagnssnúruna. AÐVÖRUN! Allar rafmagnstengingar skulu framkvæmdar af viðurkenndum rafvirkja. VARÚÐ! Tenging í gegnum raftengiklær eru bannaðar. VARÚÐ! Ekki bora í eða lóða enda víranna. Það er bannað. VARÚÐ! Ekki tengja snúrur án þess að notast við vírendahulsu. Eins-fasa tenging
3. Settu nýja endahlíf á sitt hvorn enda
Ef þú setur helluborðið upp undir gufugleypinum skaltu ráðfæra þig við leiðbeiningar fyrir uppsetningu á gufugleypinum er varðar lágmarksfjarlægð milli heimilistækjanna. 182 ÍSLENSKAmin. 50mm min. 500mm Ef heimilistækið er sett upp yfir skúffu kann að vera að útblástur helluborðsins muni hita upp hluti sem geymdir eru í skúffunni á meðan eldun stendur.
Þú finnur kennslumyndbandið „Hvernig á að setja upp AEG spanhelluborð - uppsetning í innréttingu“ með því að slá inn fullt heiti sem tilgreint er á myndinni hér að neðan. www.youtube.com/electroluxwww.youtube.com/aeg How to install your AEG Induction Hob - Worktop installation
4.2 Uppsetning stjórnborðs
Notaðu skynjarareitina til að beita heimilistækinu. Skjáir, vísar og hljóð gefa til kynna hvaða aðgerðir eru í gangi. Skyn‐ jarareit‐
Kveikt / Slökkt Til að kveikja og slökkva á heimilistækinu. Tímastillir Til að stilla aðgerðina.
- Til að auka eða minnka tímann. 184 ÍSLENSKASkyn‐ jarareit‐
- Tímastillisskjár Til að sýna tímann í mínútum.
PowerSlide Til að kveikja og slökkva á aðgerðinni.
FlexiBridge (Flexible Bridge) Til að skipta á milli þriggja stillinga aðgerðarinnar.
Hlé Til að kveikja og slökkva á aðgerðinni.
Lás / Öryggisbúnaður fyrir börn Til að læsa / aflæsa stjórnborðinu.
Bridge Til að kveikja og slökkva á aðgerðinni.
Hob²Hood Til að kveikja og slökkva á handvirkri stillingu aðgerðar‐ innar.
PowerBoost Til að kveikja á aðgerðinni.
- Stjórnstika Til að stilla hitastillinguna.
Vísir Lýsing + tala Það er bilun.
OptiHeat Control (3 þrepa vísir fyrir afgangshita): halda áfram að elda / halda heitu / af‐ gangshiti.
5. FYRIR FYRSTU NOTKUN
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Orkutakmarkanir skilgreininir hversu mikið afl helluborðið notar í heild, innan þeirra marka sem öryggi í rafmagnsinntaki hússins setja. Helluborðið er sjálfgefið stillt á hæstu mögulegu aflstillingu. Til að auka eða minnka aflstillingarnar:
1. Farið í valmynd > notendastillingar.
Sjá „Uppbygging valmyndar“.
2. Ýtið á á fremri tímastilli þangað til
3. Ýttu á / á fremri tímastillinum til að
stilla aflstigið. Aflstig Sjá kaflann „Tæknigögn“. VARÚÐ! Verið viss um að það afl sem valið er sé í samræmi við öryggi á heimilinu.
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
6.1 Kveikt og slökkt
Ýttu og haltu inni til að kveikja eða slökkva á helluborðinu.
Þessi eiginleiki gefur til kynna að eldunaráhöld séu til staðar á helluborðinu og slekkur á eldunarhellunni ef engin eldunaráhöld greinast meðan á eldun stendur. Ef þú setur eldunaráhöld á eldunarhellu áður en þú velur hitastillingu, birtist vísirinn fyrir ofan 0 á stjórnstikunni. Ef þú fjarlægir eldunaráhöld af virku eldunarhellunni og setur það tímabundið til hliðar, munu vísarnir fyrir ofan samsvarandi stjórnstiku byrja að blikka. Ef þú setur ekki eldunaráhöldin aftur á virkjuðu eldunarhelluna innan 60 sekúndna mun eldunarhellan sjálfkrafa slökkva á sér. Til að halda áfram að elda, vertu viss um að setja pottinn aftur á eldunarhelluna innan tilgreindra tímamarka.
6.3 Eldunarhellurnar notaðar
Setjið eldunarílátið í miðju þess svæðis sem er notað. Spanhelluborð aðlaga sig sjálfkrafa að málum á botni eldunarílátanna. Þú getur eldað með stóru eldunaríláti á tveimur eldunarhellum samtímis. Eldunarílátið verður að ná yfir miðju beggja hellnanna en ekki ná út fyrir merkta svæðið. Ef eldunarílátið er staðsett á milli tveggja miðja mun Bridge aðgerðin ekki virkjast.
stjórnstikunni. Vísarnir fyrir ofan stjórnstikuna birtast að völdu stigi hitastillingar.
2. Ýttu á 0 til að slökkva á eldunarhellu.
Þessi aðgerð færir viðbótarafl til spanhellanna. Aðeins er hægt að kveikja á aðgerðinni fyrir spanhellurnar í takmarkaðan tíma. Eftir þann tíma fara spanhellurnar sjálfkrafa aftur í hæstu hitastillingu. Sjá kaflann „Tæknigögn“. 186 ÍSLENSKATil að virkja aðgerðina fyrir eldunarhellu: snertu . Til að óvirkja aðgerðina: breyttu hitastillingunni.
6.6 OptiHeat Control (3 stiga
stöðuljós fyrir afgangshita) AÐVÖRUN! / / Hætta er á bruna frá hitaeftirstöðvum svo lengi sem kveikt er á vísi. Spansuðuhellur framleiða nauðsynlegan hita fyrir eldunarferlið beint í botninn á eldunaráhaldinu. Glerkeramíkið er hitað með hita eldunaráhaldsins. Vísarnir / / kvikna þegar eldunarhella er heit. Þeir sýna stig afgangshita fyrir eldunarhellurnar sem þú ert að nota í augnablikinu. Vísirinn kann einnig að kvikna:
- fyrir nálægar eldunarhellur, jafnvel þótt þú sért ekki að nota þær,
- þegar heitt eldunarílát er sett á kalda eldunarhellu,
- þegar helluborðið er afvirkjað en eldunarhella er enn heit. Vísirinn slokknar þegar eldunarhellan hefur kólnað.
Niðurteljari Notaðu þessa aðgerð til að tilgreina hve lengi eldunarhellan er í gangi í einni eldunarlotu. Stilltu hitastillingu eldunarhellunnar og síðan aðgerðina. Þú getur ekki virkjað aðgerðina á meðan Hob²Hood aðgerðin er í gangi.
1. Ýttu á . 00 birtist á tímastilliskjánum.
2. Ýttu á eða til að stilla tímann
Ýttu á til að ræsa tímastillinn eða bíddu í 3 sekúndur. Tímastillirinn fer að telja niður. Til að breyta tímastillingu: veldu eldunarhelluna með og ýttu á eða . Til að slökkva á aðgerðinni: veldu eldunarhelluna með og ýttu á . Tíminn sem eftir er er talinn aftur niður í 00. Tímastillirinn lýkur niðurtalningu, hljóðmerki hljómar og 00 blikkar. Eldunarhellurnar afvirkjast. Ýttu á hvaða tákn sem er til að stöðva merkið og blikkið. Mínútumælir Þú getur einnig notað þessa aðgerð þegar helluborðið er kveikt og eldunarhellurnar eru ekki í gangi. Hitastillingin sýnir 00. Þú getur ekki virkjað aðgerðina á meðan Hob²Hood aðgerðin er í gangi.
2. Ýttu á eða til að stilla tímalengd.
Tímastillirinn lýkur niðurtalningu, hljóðmerki hljómar og 00 blikkar. Ýttu á hvaða tákn sem er til að stöðva merkið og blikkið. Til að slökkva á aðgerðinni: ýttu á og . Tíminn sem eftir er er talinn aftur niður í
Ef margar hellur eru í gangi og notuð orka fer yfir takmarkanir aflgjafa, skiptir þessi aðgerð tiltækri orku á milli eldunarhellanna (tengdar við sama fasa). Helluborðið stjórnar hitastillingu til að vernda öryggin í húsinu.
- Eldunarhellur eru flokkaðar í samræmi við staðsetningu og fjölda fasa í helluborðinu. Hver fasi er með hámarks rafmagnshleðslu upp á. Ef helluborðið nær hámarki fyrir tiltæka orku innan einstaks fasa, kemur orkan til eldunarhellanna að minnka sjálfkrafa.
- Hitastilling þeirrar eldunarhellu sem valin er fyrst er alltaf í forgangi. Það sem eftir er af orkunni skiptist á milli hinna ÍSLENSKA 187eldunarhellnanna til samræmis við þá röð sem þær voru valdar í.
- Á eldunarhellum þar sem dregið er úr aflinu munu strik á stjórnborði blikka og sýna hámarkshitastillingu sem í boði er.
- Bíddu þangað til skjárinn hættir að blikka eða minnkaðu hitastillingunna á eldunarhellunni sem síðast var völd. Eldunarhellurnar halda áfram að virka með minnkaðri hitastillingu. Breyttu hitastillingunni handvirkt fyrir eldunarhellurnar ef þörf krefur. Skoðaðu myndina fyrir mögulegar samsetningar þar sem orkunni er dreift á milli eldunarhellanna.
E Viðvörunar-/villufer‐ ill Listi yfir nýlegar við‐ varanir / villur. Til að færa inn stillingar notanda: Þrýstu á og haltu í 3 sekúndur. Þrýstu síðan á og haltu inni . Stillingarnar birtast á tímastillinum fyrir vinstri eldunarhellurnar. Yfirlit yfir valmyndina: valmyndin samanstendur af stillitákninu og gildinu. Táknið birtist á aftari tímastilli og gildið á fremri tímastilli. Til að skipta á milli stillinga skal ýta á á fremri tímastilli. Til að skipta á milli stilligilda skal ýta á eða á fremri tímastilli. Til að hætta í valmyndinni: ýttu á . OffSound Control Þú getur kveikt/slökkt á hljóði í Valmynd > Notandastillingar. Sjá „Netuppbygging“. Þegar slökkt er á hljóðinu geturðu enn heyrt þegar:
- slokknar á tímastillinum,
- þú ýtir á óvirkt tákn.
Aðgerðin slekkur sjálfkrafa á helluborðinu ef:
- allar eldunarhellur eru afvirkjaðar,
- þú ert ekki með neina hitastillingu eða stillingu á viftuhraða eftir virkjun helluborðsins,
- þú hellir einhverju niður eða setur eitthvað á stjórnborðið lengur en í 10 sekúndur (panna, klútur o.s.frv.). Hljóðmerki heyrist og helluborðið slekkur á sér. Fjarlægðu hlutinn af stjórnborðinu eða þrífðu það.
- heimilistækið verður of heitt (t.d. þegar pottur sýður þangað til ekkert er eftir). Leyfðu eldunarhellunni að kólna áður en þú notar helluborðið aftur.
- þú slekkur ekki á eldunarhellunni eða breytir hitastillingunni. Það slokknar á helluborðinu eftir ákveðinn tíma. Tengslin á milli hitastillingar eftir að slokknar á heimilistækinu: 188 ÍSLENSKAHitastilling Það slokknar á hell‐ uborðinu eftir
Aðgerðin setur allar eldunarhellur sem eru í gangi á lægstu orkustillingu. Þegar aðgerðin er í gangi er hægt að nota og . Öll önnur tákn á stjórnborðinu eru læst. Aðgerðin stöðvar ekki tímastillisaðgerðirnar.
1. Til að virkja aðgerðina: ýttu á .
Hitastillingin er lækkuð í 1.
2. Til að afvirkja aðgerðina: ýttu á
Þú getur læst stjórnborðinu þegar helluborðið er í gangi. Það kemur í veg fyrir að hitastillingunni. Stilltu fyrst hitastillinguna. Til að virkja aðgerðina: ýttu á
Til að afvirkja aðgerðina: ýttu aftur á . Aðgerðin afvirkjast þegar þú slekkur á helluborðinu.
7.4 Öryggisbúnaður fyrir börn
Þessi aðgerð kemur í veg fyrir notkun helluborðsins. Til að virkja aðgerðina: ýttu á . Ekki framkvæma neina hitastillingu. Ýttu og haltu inni í 3 sekúndur þar til vísirinn fyrir ofan táknið birtist. Slökktu á helluborðinu með . Aðgerðin er virk þegar þú slekkur á helluborðinu. Kveikt er á vísinum fyrir ofan . Til að afvirkja aðgerðina: ýttu á . Ekki framkvæma neina hitastillingu. Ýttu og haltu inni í 3 sekúndur þar til vísirinn fyrir ofan táknið hverfur. Slökktu á helluborðinu með
Eldun þegar aðgerðin er virk: ýttu á , ýttu síðan á í 3 sekúndur þar til vísirinn fyrir ofan táknið hverfur. Þú getur notað helluborðið. Þegar þú afvirkjar helluborðið með virkar aðgerðin aftur.
Aðgerðin vinnur þegar potturinn nær yfir miðju tveggja hellna. Sjá „Eldunarhellurnar notaðar“ fyrir frekari upplýsingar um rétta staðsetningu eldunaríláta. Aðgerðin tengir tvær eldunarhellur hægra megin og þær virka sem ein. Stilltu fyrst hitastillinguna fyrir aðra eldunarhelluna hægra megin. Til að virkja aðgerðina: snertu . Til að stilla eða breyta hitastillingunni skaltu snerta einn af stjórnskynjurunum. Til að afvirkja aðgerðina: snertu . Eldunarhellurnar virka aðskilið.
7.6 Sveigjanlegt spansuðusvæði
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál. FlexiBridge aðgerð Sveigjanlega spansuðusvæðið samanstendur af fjórum hlutum. Hægt er að sameina hlutana í tvær eldunarhellur af mismunandi stærð eða í eitt stórt eldunarsvæði. Þú velur ÍSLENSKA 189blöndu hlutanna með því að velja viðeigandi stillingu fyrir stærð eldunaráhaldsins sem þú vilt nota. Það eru þrjár stillingar: Staðall, stór brú, hámarks brú. Til að stilla hitastillinguna skaltu nota tvo stjórnhnúðana vinstra megin. Skipt á milli stillinganna Til að skipta á milli stillinga skal ýta á . Stig hitastillingar verða vistuð. Í sumum gerðum eru tvö sveigjanleg eldunarsvæði, vinstri og hægri. Til að nota sveigjanlega eldunarsvæðið hægra megin skal nota táknin og stjórnstikurnar hægra megin á helluborðinu. Þvermál og staða eldunaráhaldanna Veldu stillinguna sem á við stærð og lögun eldunaráhaldsins. Eldunaráhaldið ætti að þekja valda svæðið eins vel og mögulegt er. Settu eldunaráhald með þvermál botns minna en 160 mm í miðjuna á einum hluta. Þú getur notað steikarpönnu fyrir stillingar varðandi stóra brú og hámarks brú. 100-160mm Settu eldunaráhald með þvermál botns meira en 160 mm í miðjuna á milli tveggja hluta. > 160 mm FlexiBridge Stöðluð stilling Þessi stilling virkjast sjálfkrafa þegar þú kveikir á aðgerðinni. Hún tengir hlutana í tvö aðskilin eldunarsvæði. Þú getur stillt hitastillinguna fyrir hvert svæði sérstaklega. Notaðu stjórnstikurnar tvær vinstra megin. Rétt staða eldunaríláts: Röng staða eldunaríláts: 190 ÍSLENSKAFlexiBridge Big Bridge-stilling Til að kveikja á stillingunni skaltu ýta á þar til þú sérð réttan stillingarvísi . Þessi stilling tengir þrjá aftari hluta í eitt eldunarsvæði. Fremri hlutinn er ekki tengdur og virkar sem aðskilin eldunarhella. Þú getur stillt hitastillinguna fyrir hvert svæði sérstaklega. Notaðu stjórnstikurnar tvær vinstra megin. Rétt staða eldunaráhalds: Gakktu úr skugga um að setja eldunaráhöldin á þrjá tengdu hlutana. Ef þú notar eldunaráhald sem er minna en tveir hlutar blikkar stjórnstikan og eftir 2 mínútur slokknar á hellunni. Röng staða eldunaríláts: FlexiBridge Max Bridge stilling Til að kveikja á stillingunni skaltu ýta á þar til þú sérð réttan stillingarvísi . Þessi stilling tengir alla hlutana í eina eldunarhellu. Til að stilla hitastillinguna skaltu nota annan af tveimur stjórnhnúðunum vinstra megin. Rétt staða eldunaráhalds: Gakktu úr skugga um að setja eldunaráhöldin á fjóra tengdu hlutana. Ef þú notar eldunarílát sem er minna en þrír hlutar blikkar stjórnstikan og eftir 2 mínútur slokknar á hellunni. Röng staða eldunaríláts: ÍSLENSKA 191PowerSlide Þessi aðgerð gerir þér kleift að aðlaga hitastigið með því að færa eldunaráhaldið í aðra stöðu á spansuðusvæðinu.
- Aðgerðin skiptir spansuðusvæðinu í þrjú svæði með mismunandi hitastillingum. Helluborðið skynjar stöðu eldunaráhalda og stillir hitastillingarnar í samræmi við stöðuna.
- Þú getur sett eldunaráhald í fremri, miðju- eða aftari stöðu. Ef þú setur eldunarílátið fremst færð þú hæstu hitastillingu. Til að minnka hana færirðu eldunarílátið í miðja eða aftari stöðu.
- Þegar þú virkjar aðgerðina í fyrsta skipti færðu eftirfarandi, sjálfgefna hitastillingu, 9 fyrir framstöðuna, 6 fyrir miðstöðuna og 3 fyrir afturstöðuna.
- Þú getur breytt hitastillingunum fyrir hverja stöðu sérstaklega. Helluborðið man hitastillinguna næst þegar þú kveikir á aðgerðinni.
- Skjár hitastillingar á vinstri, fremri stjórnstiku sýnir hitastillinguna fyrir þessa aðgerð. Notaðu vinstri, fremri stjórnstiku aðeins til að breyta hitastillingunni. Vinstri, aftari stjórnstika er afvirkjuð á meðan aðgerðin er í gangi. Í sumum gerðum eru tvö sveigjanleg eldunarsvæði, vinstri og hægri. Notaðu hægri, fremri stjórnstiku til að stýra PowerSlide hægra megin. Notaðu aðeins einn pott með að lágmarki þvermál botns sem nemur 160 mm þegar þú notar aðgerðina.
1. Settu rétt eldunaráhald vinstra megin að
framan á eldunarsvæðinu.
2. Ýttu og haltu inni til að kveikja á
helluborðinu. Hljóðmerki hljómar og vísar fyrir ofan og birtast.
3. Ýttu á til að virkja aðgerðina.
Hljóðmerki heyrist og vísir fyrir ofan táknið birtist.
4. Færðu eldunaráhaldið fram og aftur á
eldunarsvæðinu eins og þörf krefur. Stig hitastillingar á stjórnstikunni breytist sjálfkrafa.
5. Færðu eldunaráhaldið á það svæði sem
þú vilt breyta fyrst til að breyta sjálfgefnu stigi hitastillingar.
6. Ýttu á tiltæk stig hitastillingar vinstra
megin á stjórnstikunni að framan. Uppfærða stig hitastillingar verður vistað næst þegar þú notar aðgerðina.
7. Endurtaktu verklagið fyrir eftirstandandi
eldunarsvæði, ef þörf krefur.
til að afvirkja aðgerðina. Þú getur einnig ýtt á 0 á vinstri, fremri stjórnstikunni. Hljóðmerki heyrist og vísirinn fyrir ofan táknið hverfur. Stig hitastillingar breytist í 0. Þú getur stillt tímastillirinn á meðan PowerSlide er í gangi. Í þessu tilviki slekkur tímastillirinn ekki á eldunarhellunum þegar innstillt tímagildi klárast. Tímastillirinn hefur áhrif á öll þrjú eldunarsvæði sem virkjuð eru af aðgerðinni á sama tíma. 192 ÍSLENSKA7.7 Hob²Hood Þetta er háþróuð, sjálfvirk aðgerð sem tengir helluborðið við sérstakan gufugleypi. Bæði helluborðið og gufugleypirinn eru með innrautt samskiptamerki. Hraði viftunnar er sjálfkrafa skilgreindur á grundvelli stillingar og hitastigs heitustu eldunarílátanna á helluborðinu. Einnig er hægt að stjórna viftunni frá helluborðinu handvirkt. Fyrir flesta gufugleypa er fjarskiptakerfið upphaflega óvirkt. Virkjaðu það áður en þú notar aðgerðina. Skoðaðu notandahandbók gufugleypisins fyrir frekari upplýsingar. Sjálfvirk notkun aðgerðarinnar Til að nota aðgerðina sjálfkrafa skal stilla sjálfvirku stillinguna við H1 – H6. Helluborðið er í upphafi stillt á H5. Gufugleypirinn bregst við þegar þú notar helluborðið. Helluborðið skynjar hitastig eldunarílátsins sjálfkrafa og stillir hraða viftunnar. Sjálfvirkar stillingar Sjálfvirkt ljós Suða
Kveikt Viftuhraði 1 Viftuhraði 1 Stilling H3 Kveikt Slökkt Viftuhraði 1 Stilling H4 Kveikt Viftuhraði 1 Viftuhraði 1 Stilling H5 Kveikt Viftuhraði 1 Viftuhraði 2 Stilling H5 Kveikt Viftuhraði 2 Viftuhraði 3
Helluborðið greinir suðuferlið og virkjar viftuhraðann í samræmi við sjálfvirka stillingu.
Helluborðið greinir steikingarferlið og virkjar viftuhr‐ aðann í samræmi við sjálfvirka stillingu.
Þessi stilling virkjar viftuna og ljósið og treystir ekki á hitastigið. Sjálfvirkri stillingu breytt
1. Slökktu á helluborðinu.
2. Ýtið á í 3 sekúndur. Skjárinn kviknar
3. Ýtið á í 3 sekúndur.
4. Ýttu á nokkrum sinnum þar til h
5. Ýttu á á tímastillinum til að velja
sjálfvirka stillingu. Til að nota gufugleypinn í stjórnborði þess skal afvirkja sjálfvirka stillingu aðgerðarinnar. Þegar lokið hefur verið við eldun og slökkt er á helluborðinu kann vifta gufugleypis enn að vera í gangi í ákveðinn tíma. Eftir þann tíma slokknar sjálfkrafa á viftunni og komið er í veg fyrir virkjun viftunnar fyrir slysni næstu 30 sekúndurnar. Handvirk stýring á viftuhraða Einnig er hægt að stýra aðgerðinni handvirkt. Ýttu á þegar helluborðið er virkt til að gera það. Þetta slekkur á sjálfvirkri stjórnun aðgerðarinnar og greiðir fyrir að hægt sé að breyta viftuhraðanum handvirkt. Þegar þú ýtir á er viftuhraðinn aukinn um einn. Þegar þú nærð áköfu stigi og ýtir aftur á stillist viftuhraðinn á 0 sem slekkur á viftu gufugleypis. Til að ræsa viftuna aftur á viftuhraða 1 skal ýta á . Afvirkjaðu helluborðið og virkjaðu það aftur til að virkja sjálfvirka stjórnun aðgerðarinnar. Virkjun ljóssins Þú getur stillt helluborðið þannig að það kveiki sjálfkrafa á ljósinu þegar þú virkjar helluborðið. Þá er sjálfvirk stilling stillt við H1 – H6. Ljósið á gufugleypinum slokknar 2 mínútum eftir að slökkt er á helluborðinu.
ÍSLENSKA 1938. GÓÐ RÁÐ
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
Á spanhelluborðum búa sterk rafsegulsvið til hitann mjög hratt í eldunarílátum. Notaðu spanhelluborð með viðeigandi eldunarílátum.
- Botninn á eldunarílátinu verður að vera eins þykkur og flatur og mögulegt er.
- Gakktu úr skugga um að botnar á pottum og pönnum séu hreinir og þurrir áður en þeir eru settir á yfirborð helluborðsins.
- Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda pottum á keramikglerinu. Efni eldunaríláta
- vatn sýður mjög fljótlega á hellu sem stillt er á hæstu hitastillingu.
- segull togar í botninn á eldunarílátinu. Mál eldunaríláta
- Spanhelluborð aðlaga sig sjálfkrafa að málum á botni eldunarílátanna.
- Skilvirkni eldunarhellunnar er tengd málum eldunarílátanna. Eldunarílát með minna þvermál en uppgefið lágmark fær aðeins hluta af aflinu sem eldunarhellan framkallar.
- Af öryggisástæðum og til að ná fram ákjósanlegri útkomu eldunar skaltu ekki nota eldunarílát sem eru stærri en gefið er upp í „Upplýsingar um eldunarhellur“. Forðastu að hafa eldunarílát nálægt stjórnborðinu á meðan eldun stendur. Þetta gæti haft áhrif á virkni stjórnborðsins eða virkja óvart aðgerðir í helluborðinu. Sjá „Tæknilegar upplýsingar“.
8.2 Hljóðin sem þú heyrir við notkun
- flautandi hljóð: þú ert að nota eldunarhellu með miklu afli og eldunarílátið er samsett úr mismunandi efnum (samlokusamsetning).
- hvæsandi, suðandi: viftan er í gangi. Hljóðin eru eðlileg og gefa ekki til kynna neina bilun.
8.3 Öko Timer (Vistvænn tímastillir)
Til að spara orku slekkur hitari eldunarhellunnar á sér áður en hlóðmerki niðurteljarans heyrist. Mismunur á notkunartíma veltur á því hvaða hitastig er stillt á og tímalengd eldunar.
8.4 Dæmi um eldunaraðferðir
Það er ekki línuleg fylgni á milli hitastillingar á eldunarhellu og aflnotkunar hennar. Þegar þú eykur hitann er það ekki hlutfallslega jafn mikil aukning á aflnotkun. Þetta þýðir að eldunarhella með miðlungshita notar minna en helming afls hennar. Gögnin í töflunni eru aðeins til viðmiðunar. 194 ÍSLENSKAHitastilling Nota til: Tími (mín) Ráðleggingar 1 Haltu elduðum mat heitum. eins og þörf er á Settu lok á eldunarílátin.
10 - 40 Eldaðu með lokið á.
2 - 3 Láttu hrísgrjón og rétti úr mjólk malla,
hitaðu upp tilbúnar máltíðir.
25 - 50 Bættu við að minnsta kosti tvöfalt meiri
vökva en hrísgrjón og hrærðu mjól‐ kurréttum saman við þegar aðgerðin er hálfnuð.
4 - 5 Gufusjóddu kartöflur. 20 - 60 Notaðu að hámarki ¼ L af vatni fyrir
4 - 5 Eldaðu meira magn af mat, kássum og
60 - 150 Allt að 3L af vökva ásamt hráefnum.
6 - 7 Hæg steiktu: lundir, ungnauta cordon
bleu, kótelettur, kjötbollur, pylsur, lifur, smjörbollur, egg, pönnukökur, kleinuhr‐ ingi. eins og þörf er á Snúðu þegar tíminn er hálfnaður.
5 - 15 Snúðu þegar tíminn er hálfnaður.
9 Sjóddu vatn, eldaðu pasta, snöggbrenndu kjöt (gúllas, pottsteik), djúpsteiktu kartöfluflögur. Sjóddu mikið magn af vatni. PowerBoost er virkjað.
8.5 Ábendingar og ráð fyrir
Hob²Hood Þegar þú notar helluborðið með aðgerðinni:
- Verndið stjórnborð gufugleypisins fyrir beinu sólarljósi.
- Ekki beina halogen ljósi á stjórnborð gufugleypisins.
- Ekki hylja stjórnborð helluborðsins.
- Ekki trufla merkið á milli helluborðsins og gufugleypisins (t.d. með hendi, handfangi eldunaríláts eða háum potti). Sjá myndina. Gufugleypirinn sem sýndur er fyrir neðan er aðeins skýringarmynd. ÍSLENSKA 195Önnur fjarstýrð heimilistæki kunna að trufla merkið. Ekki nota slík heimilistæki nærri helluborðinu á meðan kveikt er á Hob²Hood. Gufugleypar fyrir eldavélar með Hob²Hood aðgerðinni Til að sjá úrval gufugleypa fyrir eldavélar sem virka með þessari aðgerð skaltu skoða vefsíðuna okkar. AEG gufugleyparnir fyrir eldavélar sem virka með þessari aðgerð verða að hafa táknið.
9. UMHIRÐA OG HREINSUN
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
9.1 Almennar upplýsingar
- Hreinsið helluborð eftir hverja notkun.
- Notaðu alltaf eldunarílát með hreinum botni.
- Rispur eða dökkir blettir á yfirborði hafa engin áhrif á það hvernig helluborði rekur.
- Notið sérstakt hreinsiefni sem hentar fyrir yfirborð helluborðsins.
- Notið sérstaka rispur fyrir glerið. Letur á breytilega eldunarsvæðinu kann að verða óhreint eða breyta um lit af völdum eldunaríláta sem rennt er yfir það. Þú getur hreinsað svæðið með hefðbundnum hætti.
9.2 Þrif á helluborðinu
- Fjarlægðu strax: bráðið plast, plasthimnu, salt, sykur og sykraðan mat, því óhreinindi geta valdið skemmdum á helluborðinu. Gættu þess að forðast að brenna þig. Notaðu sérstaka sköfu fyrir helluborð á ská yfir glerflötinn og hreyfðu sköfuna yfir hann.
- Fjarlægðu þegar helluborðið er nægilega kalt: kalkhringi, vatnshringi, fitubletti, gljáa frá upplitun málma. Hreinsaðu helluborðið með rökum klút og hreinsiefni sem ekki er svarfefni. Eftir að hreinsun er lokið skaltu þurrka helluborðið með mjúkum klút.
- Skínandi upplitun á málmum fjarlægð: notaðu vatn blandað með ediki og hreinsaðu glerið með klút.
AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.
10.1 Hvað skal gera ef…
Vandamál Mögulega ástæða Úrræði Ekki er hægt að virkja eða nota helluborðið. Helluborðið er ekki tengt við rafmagn eða það ekki rétt tengt. Gakktu úr skugga um að helluborðið sé rétt tengt við rafmagn. Rafmagnsörygginu hefur slegið út. Gakktu úr skugga um að öryggið sé ástæða bilunarinnar. Ef örygginu slær út ítrekað skal hafa samband við raf‐ virkjameistara. 196 ÍSLENSKAVandamál Mögulega ástæða Úrræði Þú stillir ekki hitastillinguna í 60 sek‐ úndur. Kveiktu aftur á helluborðinu og stilltu hitann á innan við 60 sekúndum. Þú snertir tvo eða fleiri skynjarafleti samtímis. Ekki snerta fleiri en einn skynjaraflöt. Hlé gengur. Sjá „Dagleg notkun“. Það eru vatns- eða fitublettir á stjórnborðinu. Þrífðu stjórnborðið. Þú heyrir sífellt píp-hljóð. Rafmagnið er ekki rétt tengt. Aftengdu helluborðið frá rafmagnsgjaf‐ anum. Hafðu samband við viðurkennd‐ an rafvirkja til að fara yfir uppsetning‐ una. Þú getur ekki valið hámarkshit‐ astillingu fyrir eina af eldunarhell‐ unum. Hinar hellurnar nota tiltækt hámark‐ safl. Helluborðið þitt virkar rétt. Minnkaðu hitastillingu annarra eldunar‐ hellna sem eru tengdar við sama fasa. Kynntu þér hlutann „Orkustýring“. Hljóðmerki heyrist og helluborðið slekkur á sér. Hljóðmerki heyrist þegar hellub‐ orðið slekkur á sér. Þú settir eitthvað á einn eða fleiri skynjaraflöt. Fjarlægðu hlutinn af skynjarafletinum. Það slokknar á helluborðinu. Þú settir eitthvað á skynjaraflötinn Fjarlægðu hlutinn af skynjarafletinum. Vísirinn fyrir afgangshita kviknar ekki. Svæðið er ekki heitt þar sem það var aðeins í gangi í stutta stund eða skynjarinn er skemmdur. Ef svæðið var nægilega lengi í gangi til að hitna skaltu hafa samband við við‐ urkennda þjónustumiðstöð. Hob²Hood virkar ekki. Þú huldir stjórnborðið. Fjarlægðu hlutinn af stjórnborðinu. Þú notar mjög háan pott sem hindrar merkið. Notaðu minni pott, skiptu um eldunar‐ hellu eða stýrðu gufugleypinum hand‐ virkt. Stjórnborðið verður heitt við‐ komu. Eldunarílát eru of stór eða þú settir þau of nærri stjórnborðinu. Settu stór eldunarílát á aftari hellurnar ef hægt er. Það kemur ekkert hljóðmerki þegar skynjarafletir á borðinu eru snertir. Slökkt er á hljóðmerkjunum. Kveiktu á hljóðmerkjunum. Sjá „Dagleg notkun“. Sveigjanlega spanhellusvæðið hitar ekki eldunarílátin. Eldunarílát eru staðsett á röngum stað á aðlaganlega spanhellusvæð‐ inu. Staðsettu eldunarílátin rétt á aðlagan‐ lega spanhellusvæðinu. Staðsetning eldunaríláta ræðst af þeirri aðgerð eða aðgerðarstillingu sem er virk. Sjá „Sveigjanlegt spansuðusvæði“. Þvermál botnsins á eldunarílátunum er ekki rétt fyrir þá aðgerð eða að‐ gerðarstillingu sem er virk. Notaðu eldunarílát með þvermál sem á við þá aðgerð eða aðgerðarstillingu sem er virk. Sjá „Sveigjanlegt span‐ suðusvæði“. Vísirinn fyrir ofan táknið kviknar. Öryggisbúnaður fyrir börn eða Lás gengur. Sjá „Dagleg notkun“. Stjórnstikan blikkar. Það er ekkert eldunarílát á hellunni eða hellan er ekki hulin til fulls. Settu eldunarílát á helluna svo að það hylji eldunarhelluna til fulls. ÍSLENSKA 197Vandamál Mögulega ástæða Úrræði Eldunarílátið hentar ekki. Aðeins skal nota eldunarílát sem henta fyrir spanhelluborð. Sjá kaflann „Ábendingar og ráð“. Þvermál botnsins á eldunarílátinu er of lítið fyrir svæðið. Notaðu eldunarílát með rétt þvermál. Sjá „Tæknilegar upplýsingar“. FlexiBridge (Flexible Bridge) gengur. Eldunarílátið nær ekki yfir einn eða fleiri hluta aðgerðarstillingarinnar sem er í gangi. Leggðu eldunarílátið á réttan hlut‐ afjölda í aðgerðastillingunni sem er í gangi eða breyttu um aðgerðastillingu. Sjá „Sveigjanlegt spansuðusvæði“. Stjórnstikan blikkar tvisvar og slokknar. PowerSlide gengur. Tveir pottar eru settir á sveigjanlega spansuðusvæð‐ ið eða eldunarílátið nær yfir fleiri en eitt eldunarsvæði sem virkjað er með aðgerðinni. Notaðu aðeins einn pott. Sjá „Sveigj‐ anlegt spansuðusvæði“. og númer birtist. Það er villa í helluborðinu. Slökktu á helluborðinu og virkjaðu það aftur eftir 30 sekúndur. Ef kviknar aftur skaltu aftengja helluborðið frá raf‐ magni. Tengdu helluborðið aftur eftir 30 sekúndur. Ef vandamálið heldur áfram skaltu hafa samband við viður‐ kennda þjónustumiðstöð.
10.2 Ef þú finnur ekki lausn…
Ef þú getur ekki sjálf(ur) fundið lausn á vandamálinu skaltu hafa samband við söluaðila eða viðurkennda þjónustumiðstöð. Gefðu upp upplýsingar á merkiplötunni. Passaðu að nota helluborðið rétt. Ef ekki er þjónusta tæknimanns eða söluaðila ekki gjaldfrjáls, einnig á ábyrgðartímabilinu. Upplýsingar um ábyrgðartíma og viðurkenndar þjónustumistöðvar eru í ábyrgðarbæklingnum.
Eldunarhella Málafl (hámarks hitastilling) [W] PowerBoost [W] PowerBoost há‐ markstímalengd [mín] Þvermál eldunar‐ íláts [mm] Miðja afturhlið 1800 / 3500 2800 / 3700 10 / 10 145 - 245 / 245 - 280 198 ÍSLENSKAEldunarhella Málafl (hámarks hitastilling) [W] PowerBoost [W] PowerBoost há‐ markstímalengd [mín] Þvermál eldunar‐ íláts [mm] Hægri framhlið 2300 3200 10 125 - 210 Hægri afturhlið 2300 3200 10 125 - 210 Sveigjanlegt span‐ suðusvæði 2300 3200 10 lágmark 105 Afl eldunarhellnanna getur verið frábrugðið gögnum í töflunni á litlum sviðum. Það breytist með efni og stærðum á eldhúsáhöldum. Notaðu eldunaráhöld sem eru ekki stærri en þvermálin í töflunni til að fá sem bestan matreiðsluárangur.
Auðkenni tegundar IKE95771FB Gerð helluborðs Innbyggt helluborð Fjöldi eldunarhella 3 Fjöldi eldunarsvæða 1 Hitunartækni Span Þvermál hringlaga eldunarhella (Ø) Miðja afturhlið 28,0 cm Lengd (L) og breidd (B) eldunarhella sem ekki eru hringlaga Hægri framhlið L 22,3 cm B 22,0 cm Lengd (L) og breidd (B) eldunarhella sem ekki eru hringlaga Hægri afturhlið L 22,3 cm B 22.0 cm Lengd (L) og breidd (B) eldunarsvæðisins Vinstri L 45,9 cm B 21,4 cm Orkunotkun á hverja eldunarhellu (EC electric cook‐ ing) Miðja afturhlið Hægri framhlið Hægri afturhlið 196,6 Wh / kg 189,1 Wh / kg 189,1 Wh / kg Orkunotkun eldunarsvæðisins (EC electric cooking) Vinstri 191,1 Wh / kg Orkunotkun helluborðsins (EC electric hob) 191,3 Wh / kg
- Fyrir Evrópusambandið í samræmi við ESB 66/2014. Fyrir Hvíta-Rússland í samræmi við STB 2477-2017, viðauka A. Fyrir Úkraínu í samræmi við 742/2019. IEC / EN 60350-2 - Rafmagnseldunartæki til heimilisnota - 2. hluti: Helluborð - Aðferðir til að mæla afköst. Orkumælingar sem vísa til eldunarsvæðisins eru auðkenndar með merkjunum á viðkomandi eldunarhellum.
Þú getur sparað orku við daglega matreiðslu ef þú fylgir leiðbeiningunum hér að neðan. ÍSLENSKA 199• Þegar þú hitar upp vatn skal aðeins nota það magn sem þörf er á.
- Láttu alltaf lok á eldunarílát ef það er hægt.
- Láttu eldunarílátin beint á miðju hellunnar.
- Notaðu afgangshita til að halda matnum heitum eða bræða hann.
Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu . Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til endurvinnslu. Leggið ykkar að mörkum til verndar umhverfinu og heilsu manna og dýra og endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum og raftrænum búnaði. Hendið ekki heimilistækjum sem merkt eru með tákninu í venjulegt heimilisrusl. Farið með vöruna í næstu endurvinnslustöð eða hafið samband við sveitarfélagið. 200 ÍSLENSKABenvenuto in AEG! Grazie per aver scelto di acquistare questo prodotto. Ricevere consigli, scaricare i nostri opuscoli, eliminare eventuali anomalie, ottenereinformazioni sull'assistenza e la riparazione:www.aeg.com/supportCon riserva di modifiche. INDICE
Notice-Facile