AEG IKE96654FB - Cuisinière

IKE96654FB - Cuisinière AEG - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis IKE96654FB AEG á PDF sniði.

📄 404 síður PDF ⬇️ Íslenska IS 💬 AI spurning 🖨️ Prenta
Notice AEG IKE96654FB - page 203
Handbókaraðstoðarmaður
Knúið af ChatGPT
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : AEG

Líkan : IKE96654FB

Flokkur : Cuisinière

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Cuisinière á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína IKE96654FB - AEG og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. IKE96654FB vörumerkisins AEG.

NOTENDAHANDBÓK IKE96654FB AEG

Þakka þér fyrir að velja þessa AEG vöru. Við höfum framleitt þessa vöru til að starfa fullkomlega í mörg ár og við höfum notað nýstárlega tækni sem gerir lífið einfaldara með aðgerðum sem ekki er víst að séu til staðar á venjulegum heimilistækjum. Vinsamlegast lestu þér til í nokkrar mínútur til að geta nýtt tækið sem best. HEIMSÆKTU VEFSVÆÐI OKKAR TIL AÐ:Fá leiðbeiningar um notkun, bæklinga, bilanaleit, þjónustu- og viðgerðarupplýsingar.www.aeg.com/supportSkrá vöruna þína til að fá enn betri þjónustu:www.registeraeg.comKaupa aukahluti, rekstrarvörur og upprunalega varahluti fyrir heimilistæki þitt:www.aeg.com/shop

ÞJÓNUSTA VIÐ VIÐSKIPTAVINI

Notaðu alltaf upprunalega varahluti. Þegar þú hefur samband við viðurkennda þjónustumiðstöð skaltu tryggja að sért með eftirfarandi gögn tiltæk: Gerð, vörunúmer, raðnúmer. Upplýsingarnar má finna á merkiplötunni. Viðvörun / Aðvörun - Öryggisupplýsingar Almennar upplýsingar og ráð Umhverfisupplýsingar Með fyrirvara á breytingum. EFNISYFIRLIT

Fyrir uppsetningu og notkun heimilistækisins skal lesa meðfylgjandi leiðbeiningar vandlega. Framleiðandinn ber ekki ábyrgð á neinum meiðslum eða skemmdum sem leiða af 202 ÍSLENSKArangri uppsetningu eða notkun. Geymdu alltaf leiðbeiningarnar á öruggum stað þar sem auðvelt er að nálgast þær til síðari notkunar.

1.1 Öryggi barna og viðkvæmra einstaklinga

  • Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn- eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu, mega nota þetta tæki, ef þau eru undir eftirliti eða hafa verið veittar leiðbeiningar varðandi örugga notkun tækisins og ef þau skilja hættuna sem því fylgir. Halda skal börnum yngri en 8 ára gömlum og fólki með mjög miklar og flóknar fatlanir frá heimilistækinu, nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
  • Hafa ætti eftirlit með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með heimilistækið.
  • Haltu öllum umbúðum frá börnum og fargaðu þeim á viðeigandi hátt.
  • VIÐVÖRUN: Haltu börnum og gæludýrum fjarri heimilistækinu þegar það er í gangi eða þegar það kólnar. Aðgengilegir hlutir verða heitir meðan á notkun stendur.
  • Ef heimilistækið er með barnalæsingu ætti hún að vera virkjuð.
  • Börn eiga ekki að hreinsa eða framkvæma notandaviðhald á heimilistækinu án eftirlits.
  • VIÐVÖRUN: Búnaðurinn og aðgengilegir hlutar hans verða heitir meðan á notkun stendur. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta hitaelementin.
  • VIÐVÖRUN: Eldun án eftirlits með fitu eða olíu á eldunarhellu getur verið hættuleg og leitt til eldsvoða.
  • Reyndu ALDREI að slökkva eld með vatni, heldur skaltu slökkva á heimilistækinu og hylja logann t.d. með loki eða eldvarnarteppi.
  • VIÐVÖRUN: Ekki má veita rafmagni að heimilistækinu gegnum utanáliggjandi skiptibúnað, eins og tímastilli, eða tengja það við rafrás sem veita kveikir og slekkur reglulega

ÍSLENSKA 203• VARÚÐ: Eldunarferlið verður að vera undir eftirliti. Stutt eldunarferli verður stöðugt að vera undir eftirliti.

  • VIÐVÖRUN: Hætta á eldsvoða: Geymið ekki hluti á eldunaryfirborðinu.
  • Málmhluti eins og hnífa, gaffla, skeiðar og lok skal ekki leggja ofan á helluborðið því þeir geta orðið heitir.
  • Ekki má nota heimilistækið fyrr en innbyggða virkið hefur verið uppsett.
  • Notaðu ekki gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
  • Eftir notkun skal slökkva á helluborðselementinu með stýringunni og ekki treysta á pönnunemann.
  • Ef sprungur eru í keramíkglerfletinum / glerfletinum skal slökkva á heimilistækinu og taka það úr sambandi við rafmagn. Ef heimilistækið er tengt beint við stofnæð með tengidós skal fjarlægja öryggið til að aftengja heimilistækið frá aflgjafanum. Í báðum tilfellum skal hafa samband við viðurkennda þjónustumiðstöð.
  • Ef rafmagnssnúran er skemmd verður framleiðandi, viðurkennd þjónustumiðstöð eða álíka hæfur aðili að endurnýja hana til að forðast hættu.
  • VIÐVÖRUN: Notaðu aðeins helluborðshlífar sem hannaðar eru af framleiðanda eldunartækisins eða framleiðandi heimilistækisins bendir á í notkunarleiðbeiningunum sem hentugar, eða helluborðshlífar sem innfelldar eru íheimilistækið. Notkun óviðeigandi hlífa getur valdið slysum.

AÐVÖRUN! Einungis til þess hæfur aðili má setja upp þetta heimilistæki. AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum eða skemmdum á heimilistækinu.

  • Fjarlægðu allar umbúðir.
  • Ekki setja upp eða nota skemmt heimilistæki.
  • Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja með heimilistækinu.
  • Haltu lágmarksfjarlægð frá öðrum heimilistækjum og einingum.
  • Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið er fært vegna þess að það er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og lokaðan skóbúnað.
  • Innsigla skal skorna fleti með þéttiefni til að koma í veg fyrir að raki valdi þenslu.
  • Verndaðu botn heimilistækisins gegn gufu og raka. 204 ÍSLENSKA• Settu heimilistækið ekki upp við hliðina á hurð eða undir glugga. Það kemur í veg fyrir að heit eldunarílát falli af heimilistækinu þegar dyrnar eða glugginn eru opnuð.
  • Hvert heimilistæki er með kæliviftum neðst.
  • Ef heimilistækið er sett upp fyrir ofan skúffu: – Ekki geyma litla hluti eða pappírsblöð sem hægt væri að toga í þar sem slíkt getur skemmt kælivifturnar eða skert kælikerfið. – Hafðu að minnsta kosti 2 cm fjarlægð á milli botns heimilistækisins og hluta sem eru geymdir í skúffunni.
  • Fjarlægðu öll aðgreiningarspjöld sem eru sett upp í skápnum fyrir neðan heimilistækið.
  • Heimilistækið verður að vera jarðtengt.
  • Áður en einhver aðgerð er framkvæmd skal ganga úr skugga um að heimilistækið sé aftengt frá aflgjafanum.
  • Gakktu úr skugga um að færibreyturnar á merkiplötunni séu samhæfar við rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.
  • Gættu þess að heimilistækið sé rétt uppsett. Laus eða röng rafmagnssnúra eða kló (ef við á) getur valdið því að tengillinn verði of heitur.
  • Notaðu rétta rafmagnssnúru.
  • Ekki láta raflagnir flækjast hverja um aðra.
  • Gakktu úr skugga um að búið sé að setja upp vörn gegn raflosti.
  • Notaðu álagsminnkandi klemmu á snúruna.
  • Gakktu úr skugga um að rafmagnssnúran eða klóin (ef við á) snerti ekki heitt heimilistækið eða heit eldunaráhöld þegar þú tengir heimilistækið við innstungu.
  • Notaðu ekki fjöltengi eða framlengingarsnúrur.
  • Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin (ef við á) og snúran verði ekki fyrir skemmdum. Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að skipta um skemmda rafmagnssnúru.
  • Vörn lifandi og einangraðra hluta gegn raflosti verður að vera fest þannig að ekki sé hægt að fjarlægja hana án verkfæra.
  • Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við rafmagnsinnstunguna í lok uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir uppsetningu.
  • Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki tengja rafmagnsklóna.
  • Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr sambandi. Taktu alltaf um klóna.
  • Notaðu aðeins réttan einangrunarbúnað: Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni), lekaliða og spólurofa.
  • Rafmagnsuppsetningin verður að vera með einangrunarbúnað sem leyfir þér að aftengja tækið frá stofnæð á öllum pólum. Einangrunarbúnaðurinn verður að hafa að lágmarki 3 mm snertiopnunarvídd.

AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum, bruna og raflosti.

  • Fjarlægðu allar umbúðir, merkingar og verndarfilmu (ef við á) áður en notkun hefst.
  • Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til heimilisnota (innanhúss).
  • Breytið ekki forskrift tækisins.
  • Gangið úr skugga um að loftræstiop séu ekki stífluð.
  • Látið heimilistækið ekki vera án eftirlits á meðan það er í gangi.
  • Setjið eldavélina á „off“ eftir hverja notkun.
  • Ekki setja hnífapör eða pottlok á hellurnar. Þau geta orðið mjög heit.
  • Notið ekki heimilistækið með blautar hendur eða þegar það er í snertingu við vatn.
  • Notið ekki heimilistækið sem vinnusvæði eða geymslusvæði.
  • Ef yfirborð heimilistækisins er sprungið skal samstundis aftengja það frá aflgjafa. Þetta er til að koma í veg fyrir raflost.
  • Notendur sem eru með gangráð verða að vera í að lágmarki 30 cm fjarlægð frá spanhellum þegar heimilistækið er í gangi. ÍSLENSKA 205• Heit olía getur skvest þegar þú setur mat í hana. AÐVÖRUN! Hætta á eldsvoða og sprengingu
  • Fita og olíur geta losað eldfimar gufur þegar þær eru hitaðar. Haltu eldi eða hituðum hlutum fjarri fitu og olíu þegar þú notar þær við matreiðslu.
  • Gufur sem mjög heit olía losar geta valdið fyrirvaralausum bruna.
  • Notuð olía sem getur innihaldið matarleifar getur valdið eldsvoða við lægra hitastig en olía sem er notuð í fyrsta skipti.
  • Setjið ekki eldfim efni eða hluti bleytta með eldfimum efnum í, nálægt, eða á heimilistækið. AÐVÖRUN! Hætta á skemmdum á heimilistækinu.
  • Ekki geyma heit eldunarílát á stjórnborðinu.
  • Ekki setja heitt pönnulok á gleryfirborð helluborðsins.
  • Ekki láta eldunaráhöld sjóða þangað til að þau þorna.
  • Gættu þess að láta hluti eða eldunarílát ekki detta á heimilistækið. Það getur skemmt yfirborðið.
  • Ekki kveikja á eldavélinni ef á henni eru tóm eldunarílát eða engin eldunarílát.
  • Ekki setja álpappír á heimilistækið.
  • Eldhúsáhöld úr steypujárni, áli eða með skaddaðan botn geta valdið rispum á glerinu/glerkeramík. Lyftu alltaf þessum hlutum upp þegar þú þarft að hreyfa þá til á eldunaryfirborðinu.
  • Þetta heimilistæki er eingöngu ætlað til matreiðslu. Ekki má nota það í öðrum tilgangi, til dæmis til að hita herbergi.

2.4 Umhirða og hreinsun

  • Hreinsaðu heimilistækið reglulega til að yfirborðsefnin á því endist betur.
  • Slökktu á heimilistækinu og láttu það kólna fyrir hreinsun.
  • Notaðu ekki vatnsúða og gufu til að hreinsa heimilistækið.
  • Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notaðu aðeins hlutlaus þvottaefni. Notaðu ekki rispandi efni, stálull, leysiefni eða málmhluti.
  • Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð til að gera við heimilistækið. Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
  • Varðandi ljósin inn í þessari vöru og ljós sem varahluti sem seld eru sérstaklega: Þessi ljós eru ætluð að standast öfgakenndar aðstæður í heimilistækjum eins og hitastig, titring, raka eða til að senda upplýsingar um rekstrarstöðu tækisins. Þau eru ekki ætluð til að nota í öðrum tækjum og henta ekki sem lýsing í herbergjum heimila.

AÐVÖRUN! Hætta á meiðslum eða köfnun.

  • Hafðu samband við viðeigandi yfirvöld fyrir upplýsingar um hvernig farga skuli heimilistækinu.
  • Aftengdu tækið frá rafmagni.
  • Klipptu rafmagnssnúruna af upp við heimilistækið og fargaðu henni.

AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.

3.1 Fyrir uppsetninguna

Áður en þú setur upp helluborðið skaltu skrifa niður upplýsingarnar á merkiplötunni. Merkiplatan er neðan á heimilistækinu. Serial number (raðnúmer) ........................... 206 ÍSLENSKA3.2 Innbyggð helluborð Notaðu innbyggða helluborðið eingöngu eftir að þú hefur sett helluborðið upp með réttum hætti sem innbyggðan búnað og að yfirborð vinnusvæðisins uppfylli staðla.

  • Notaðu eftirfarandi snúrutegund þegar skipt er um skemmdar rafmagnssnúrur: H05V2V2-F sem þolir 90 °C hita eða hærra. Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð. Aðeins viðurkenndum rafvirkja er heimilt að skipta um rafmagnssnúruna.

Ef þú setur helluborðið upp undir gufugleypinum skaltu ráðfæra þig við leiðbeiningar fyrir uppsetningu á gufugleypinum er varðar lágmarksfjarlægð milli heimilistækjanna. min. 50mm min. 500mm 65 ± 1mm 490± 1mm 55± 1mm Ef heimilistækið er sett upp yfir skúffu kann að vera að útblástur helluborðsins muni hita upp hluti sem geymdir eru í skúffunni á meðan eldun stendur. Þú finnur kennslumyndbandið „Hvernig á að setja upp AEG spanhelluborð - uppsetning í innréttingu“ með því að slá inn fullt heiti sem tilgreint er á myndinni hér að neðan. www.youtube.com/electroluxwww.youtube.com/aegHow to install your AEG Induction Hob - Worktop installation

4.2 Útlit stjórnborðs

Notaðu skynjarareitina til að beita heimilistækinu. Skjáir, vísar og hljóð gefa til kynna hvaða aðgerðir eru í gangi. Skynjarareitur Athugasemd

Til að kveikja og slökkva á helluborðinu. Til að virkja og slökkva á Lás eða Öryggisbúnaður fyrir börn. Til að sýna virku helluna. CountUp Timer-vísir. Niðurteljari-vísir. - Skjár fyrir tímastilli: 00 - 99 mínútur. Til að virkja og slökkva á Bridge og skipta á milli stillinganna. Til að velja Tímastillir valmöguleikana.

Til að auka eða minnka tímann. 208 ÍSLENSKASkynjarareitur Athugasemd

Til að virkja og slökkva á Hob²Hood.

Til að virkja og slökkva á Hlé.

Til að virkja PowerBoost.

- Til að stilla hitastillinguna: 0 - 9.

Til að virkja og slökkva á PowerSlide.

AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.

5.1 Kveikt og slökkt

Snertu í 1 sekúndu til að kveikja eða slökkva á helluborðinu. Stjórnborðið kviknar eftir að þú kveikir á helluborðinu og það slokknar eftir að þú slekkur á helluborðinu.

5.2 Sjálfvirk slokknun

Aðgerðin slekkur sjálfkrafa á helluborðinu ef:

  • þú setur ekkert eldunarílát á helluborðið í 50 sekúndur,
  • þú stillir ekki hitastillinguna í 50 sekúndur eftir að þú kemur eldunarílátinu fyrir,
  • þú hellir einhverju niður eða setur eitthvað á stjórnborðið lengur en í 10 sekúndur (panna, klútur). Helluborðið slekkur á sér þegar þú heyrir hljóðmerkið. Fjarlægðu hlutinn af stjórnborðinu eða þrífðu það.
  • helluborðið verður of heitt (t.d. þegar pottur sýður þangað til ekkert er eftir). Leyfðu eldunarhellunni að kólna áður en þú notar helluborðið aftur.
  • þú slekkur ekki á eldunarhellunni eða breytir hitastillingunni. Það slokknar á helluborðinu eftir ákveðinn tíma. Tengslin á milli hitastillingar og tímans eftir að slokknar á helluborðinu: Hitastilling Það slokknar á hell‐ uborðinu eftir

VARÚÐ! Ekki leggja heit eldunarílát á stjórnborðið. Það er hætta á að rafbúnaðurinn skemmist. Setjið eldunarílátið í miðju þess svæðis sem er notað. ÍSLENSKA 209Spanhelluborð aðlaga sig sjálfkrafa að málum á botni eldunarílátanna. Þegar þú leggur eldunarílát á rétta stöðu ber helluborðið kennsl á það og viðeigandi stjórnstika birtist. Rauður vísir fyrir eldunarhellu birtist fyrir ofan stjórnstikuna og gefur stöðu pottsins til kynna. Hver ferningur á stjórnborðinu samsvarar einni eldunarhellu á yfirborði spanhelluborðsins. Vísar fyrir hellur sýna hvaða eldunarhella lýtur að stjórn viðeigandi stjórnstiku.

stjórnstikunni. Þú getur einnig fært fingurinn meðfram stjórnstikunni til að stilla eða breyta hitastillingunni fyrir eldunarhelluna.

2. Ýttu á 0 til að slökkva á eldunarhellu.

Þegar þú hefur sett pott á eldunarhelluna og stillt hitastillinguna er hún óbreytt í 2 mínútur eftir að þú tekur pottinn af. Stjórnstikan og vísir eldunarhellu blikka í 2 mínútur. Ef þú setur pott aftur á eldunarhelluna innan þessa tíma virkjast hitastillingin aftur. Ef ekki slokknar á eldunarhellunni.

Þessi aðgerð virkjar meira afl fyrir viðeigandi spanhellu, allt eftir stærð eldunarílátsins. Aðeins er hægt að kveikja á aðgerðinni í takmarkaðan tíma. Snertu til að slökkva á aðgerðinni fyrir eldunarhelluna. Táknið verður rautt. Aðgerðin slokknar sjálfkrafa. Sjá „Tæknigögn“ með gildum fyrir hámarkstímalengd.

5.6 OptiHeat Control (3 stiga

stöðuljós fyrir afgangshita) AÐVÖRUN! / / Hætta er á bruna frá hitaeftirstöðvum svo lengi sem kveikt er á vísi. Spansuðuhellur framleiða nauðsynlegan hita fyrir eldunarferlið beint í botninn á eldunaráhaldinu. Glerkeramíkið er hitað með hita eldunaráhaldsins. Vísirinn / / kviknar þegar eldunarhella er heit. Þeir sýna stig afgangshita fyrir eldunarhellurnar sem þú ert að nota í augnablikinu. Vísirinn kann einnig að kvikna:

  • fyrir nálægar eldunarhellur, jafnvel þótt þú sért ekki að nota þær,
  • þegar heitt eldunarílát er sett á kalda eldunarhellu,
  • þegar helluborð er afvirkjað en eldunarhella er enn heit. Vísirinn slokknar þegar eldunarhellan hefur kólnað.

Niðurteljari Notaðu þessa aðgerð til að tilgreina hve lengi eldunarhellan er í gangi í einni eldunarlotu. Fyrst skal stilla hitastillingu og síðan aðgerðina.

til að virkja aðgerðina eða breyta tímanum. Tölustafir tímastillis og vísarnir og birtast á skjánum. verður rauður og verður hvítur. 210 ÍSLENSKAAllir vísar hverfa eftir 4 sekúndur ef tímastillirinn er ekki stilltur.

2. Snertu eða til að stilla tímann (00 -

99 mínútur). Tímastillirinn fer að telja sjálfkrafa niður eftir 3 sekúndur. Vísarnir , og hverfa. er áfram rauður. Þegar tíminn líður undir lok hljómar hljóðmerki og leiftrar. Snertu til að stöðva merkið. Til að afvirkja aðgerðina: snertu . Vísarnir og kvikna. Notaðu eða til að stilla á skjánum. Einnig má stilla hitastillinguna við 0. Fyrir vikið heyrist hljóðmerki og hætt er við tímastillinn. CountUp Timer Þú getur notað þessa aðgerð til að fylgjast með hversu lengi eldunarhellan er í gangi. Til að virkja aðgerðina skaltu snerta tvisvar. vísirinn verður rauður, tíminn byrjar að telja upp sjálfkrafa. Til að afvirkja aðgerðina: snertu . Þegar vísarnir lýsast upp skaltu snerta . Mínútumælir Þú getur notað þessa aðgerð þegar helluborðið er kveikt og engar eldunarhellur eru í gangi. Settu pott á eldunarhellu til að sjá stjórnborðið.

1. Snertu , þar til vísirinn verður

rauður, til að virkja aðgerðina.

2. Snertu eða til að stilla tímann.

Aðgerðin hefst sjálfkrafa eftir 4 sekúndur. Vísarnir , og hverfa. er áfram rauður. Þú mátt taka pottinn af eftir að þú stillir aðgerðina. Þegar tíminn líður undir lok hljómar hljóðmerki og leiftrar. Snertu til að stöðva merkið. Til að afvirkja aðgerðina: snertu . Vísarnir og kvikna. Notaðu eða til að stilla á skjánum. Þessi aðgerð hefur engin áhrif á starfsemi eldunarhellanna.

Aðgerðin tengir tvær eldunarhellur og þær virka sem ein. Þú getur notað aðgerðina með stórum eldunarílátum.

1. Settu eldunarílátið á tvær eldunarhellur.

Eldunarílátið verður að ná yfir miðjuna á báðum hellum. verður hvítt.

2. Til að virkja aðgerðina skaltu snerta .

3. Stilltu hitastillinguna.

Eldunarílátið verður að vera yfir miðju beggja eldunarhellna en ekki fara yfir svæðismerkingarnar. Til að afvirkja aðgerðina, snertu . Eldunarhellurnar virka aðskilið.

Þessi aðgerð gerir þér kleift að aðlaga hitastigið með því að færa eldunaráhaldið í aðra stöðu á spansuðusvæðinu. Aðgerðin skiptir spansuðusvæðinu í þrjú svæði með mismunandi hitastillingum. ÍSLENSKA 211Helluborðið skynjar staðsetningu eldunaríláta og stillir hitastillingarnar í samræmi við það. Notaðu aðeins einn pott þegar þú notar aðgerðina. Ef þú vilt breyta hitastillingunni lyftirðu eldunaráhaldinu og setur það á aðra hellu. Rispur og upplitun getur myndast á yfirborðinu ef þú dregur eldunaráhaldið.

  • Vísir fyrir hellu sýnir báðar hellur í brú jafnvel þó að aðeins ein af hellunum sé notuð.
  • Þú getur aðeins stillt hitann handvirkt ef að minnsta kosti er kveikt á einum af hellunum sjálfkrafa.
  • Þú getur breytt hitastillingunum fyrir hverja stöðu sérstaklega. Þegar þú slekkur á helluborðinu man hún hitastillingar þínar og notar þær í næsta sinn sem þú virkjar aðgerðina.
  • Ef þú vilt breyta hitastillingunni lyftirðu eldunaráhaldinu og setur það á aðra hellu. Rispur og upplitun getur myndast á yfirborðinu ef þú dregur eldunaráhaldið. Til að virkja aðgerðina skaltu snerta . Táknið verður rautt og stjórnstikan sýnir sjálfgefna hitastillingu. Allar eldunarhellur eru í gangi í 9 mínútur. Eftir 9 mínútur hljómar hljóðmerki og slökkt er á auðum eldunarhellum. Snertu til að halda áfram með þessa aðgerð. Þú getur fært pottinn og sett hann í nýja stöðu. Snertu stjórnstikuna og veldu viðeigandi stig til að breyta sjálfgefinni hitastillingu handvirkt.
  • Þú getur aðeins breytt sjálfgefinni hitastillingu ef kveikt er á aðgerðinni.
  • Þú getur breytt sjálfgefnum hitastillingunum fyrir hverja stöðu sérstaklega. Þegar þú slekkur á helluborðinu man hún stillingar þínar og notar þær í næsta sinn sem þú virkjar aðgerðina. Til að slökkva á aðgerðinni skaltu snerta . Táknið verður hvítt.

Þegar aðgerðin er virk er hægt að nota táknin og . Aðgerðin stöðvar ekki tímastillisaðgerðirnar. Ýttu á til að virkja aðgerðina. Táknið verður rautt. Hitastillingin er lækkuð í

Til að slökkva á aðgerðinni: ýttu á . Táknið verður hvítt. Fyrri hitastilling kviknar.

Þú getur læst stjórnborðinu þegar helluborðið er í gangi. Það kemur í veg fyrir að hitastillingunni sé breytt fyrir slysni. Stilltu hitastillinguna fyrst. Til að virkja aðgerðina skaltu snerta . Táknið verður rautt og blikkar. Til að afvirkja aðgerðina skaltu snerta . Táknið verður hvítt. Þegar þú slekkur á helluborðinu slekkur þú einnig á aðgerðinni.

5.12 Öryggisbúnaður fyrir börn

Þessi aðgerð kemur í veg fyrir notkun helluborðsins fyrir slysni. Kveiktu fyrst á helluborðinu og stilltu síðan hitann. Snertu þar til hann verður rauður til að virkja aðgerðina. Stjórnstikurnar hverfa. Slökktu á helluborðinu. Aðgerðin er enn virk þegar þú slekkur á helluborðinu. Til að afvirkja aðgerðina í aðeins eitt eldunarskipti: Kveiktu á helluborðinu með . kviknar. Snertu þar til hann verður hvítur. Stjórnstikurnar birtast. Stilltu hitastillinguna á 50 sekúndum. Þú getur notað helluborðið. Aðgerðin er enn virk þegar þú slekkur á helluborðinu með . Til að afvirkja aðgerðina varanlega: Kveiktu á helluborðinu og stilltu síðan hitann. 212 ÍSLENSKASnertu þar til hann verður hvítur. Stjórnstikurnar birtast. Slökktu á helluborðinu.

5.13 OffSound Control (Að kveikja

og slökkva á hljóðmerkjum) Slökktu fyrst á helluborðinu.

í 3 sekúndur til að virkja aðgerðina. Skjárinn kviknar og slokknar.

2. Snertu í 3 sekúndur.

3. Snertu á tímastillinum til að velja eitt

  • - slökkt á hljóðmerkjum
  • - kveikt á hljóðmerkjum

4. Hinkraðu þangað til slokknar sjálfkrafa á

helluborðinu til að staðfesta val þitt. Þegar þessi aðgerð er stillt á heyrir þú hljóðið aðeins þegar:

  • Niðurteljari slokknar
  • Þú setur eitthvað á stjórnborðið.

Þetta er háþróuð, sjálfvirk aðgerð sem tengir helluborðið við sérstakan gufugleypi. Bæði helluborðið og gufugleypirinn eru með innrautt samskiptamerki. Hraði viftunnar er sjálfkrafa skilgreindur á grundvelli stillingar og hitastigs heitustu eldunarílátanna á helluborðinu. Einnig er hægt að stjórna viftunni frá helluborðinu handvirkt. Fyrir flesta gufugleypa er fjarskiptakerfið upphaflega óvirkt. Virkjaðu það áður en þú notar aðgerðina. Skoðaðu notandahandbók gufugleypisins til að nálgast frekari upplýsingar. Sjálfvirk notkun aðgerðarinnar Til að nota aðgerðina sjálfkrafa skal stilla sjálfvirka stillingu við H1 - H6. Helluborðið er upprunalega stillt við H5. Gufugleypirinn bregst við þegar þú notar helluborðið. Helluborðið skynjar hitastig eldunarílátsins sjálfkrafa og stillir hraða viftunnar. Virkjun ljóssins Þú getur stillt helluborðið þannig að það kveiki sjálfkrafa á ljósinu þegar þú virkjar helluborðið. Þá er sjálfvirk stilling stillt við H1 - H6. Ljósið á gufugleypinum slokknar 2 mínútum eftir að slökkt er á helluborðinu. Sjálfvirkar stillingar Sjálf‐ virkt ljós Suða

Kveikt Viftuhraði 1 Viftuhraði 1 Stilling H3 Kveikt Slökkt Viftuhraði 1 Stilling H4 Kveikt Viftuhraði 1 Viftuhraði 1 Stilling H5 Kveikt Viftuhraði 1 Viftuhraði 2 Stilling H6 Kveikt Viftuhraði 2 Viftuhraði 3

Helluborðið greinir suðuferlið og virkjar vift‐ uhraðann í samræmi við sjálfvirka stillingu.

Helluborðið greinir steikingarferlið og virkjar viftuhraðann í samræmi við sjálfvirka stillingu.

Þessi stilling virkjar viftuna og ljósið og treyst‐ ir ekki á hitastigið. Sjálfvirkri stillingu breytt

1. Afvirkjaðu heimilisttækið.

í 3 sekúndur. Skjárinn kviknar og slokknar.

3. Snertu í 3 sekúndur.

5. Snertu á tímastillinum til að velja

sjálfvirka stillingu. Þegar lokið hefur verið við eldun og slökkt er á helluborðinu kann vifta gufugleypis enn að vera í gangi í ákveðinn tíma. Eftir þann tíma slokknar sjálfkrafa á viftunni og komið er í veg fyrir virkjun viftunnar fyrir slysni næstu 30 sekúndurnar. ÍSLENSKA 213Til að nota gufugleypinn í stjórnborði þess skal afvirkja sjálfvirka stillingu aðgerðarinnar. Handvirk stýring á viftuhraða Einnig er hægt að stjórna viftunni frá helluborðinu handvirkt. Snertu þegar kveikt er á helluborðinu. Þetta slekkur á sjálfvirkri stjórnun aðgerðarinnar og greiðir fyrir að hægt sé að breyta viftuhraðanum handvirkt. Þegar þú ýtir á er viftuhraðinn aukinn um einn. Þegar þú nærð rækilegu stigi og ýtir aftur á stillirðu viftuhraðann við 0 sem slekkur á viftu gufugleypis. Til að ræsa viftuna aftur á viftuhraða 1 skal snerta . Slökktu á helluborðinu og virkjaðu það aftur til að virkja sjálfvirka stjórnun aðgerðarinnar.

Ef margar hellur eru í gangi og notuð orka fer yfir takmarkanir aflgjafa, skiptir þessi aðgerð tiltækri orku á milli eldunarhellanna. Helluborðið stjórnar hitastillingu til að vernda öryggin í húsinu.

  • Eldunarhellur eru flokkaðar í samræmi við staðsetningu og fjölda fasa í helluborðinu. Hver fasi er með 3680 W hámarks rafmagnshleðslu. Ef helluborðið nær hámarki fyrir tiltæka orku innan einstaks fasa, kemur orkan til eldunarhellanna að minnka sjálfkrafa.
  • Fyrir eldunarshellur sem eru með minnkað afl sýnir stjórnborðið hámarks mögulega hitastillingar.
  • Ef hærri hitastilling er ekki tiltæk, minnkaðu hana fyrst fyrir aðrar eldunarhellur.
  • Virkjun aðgerðarinnar ræðst af fjölda og stærð potta. Skoðaðu myndina fyrir mögulegar samsetningar þar sem orkunni er dreift á milli eldunarhellanna.

AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.

Á spanhelluborðum búa sterk rafsegulsvið til hitann mjög hratt í eldunarílátum. Notaðu spanhelluborð með viðeigandi eldunarílátum.

  • Botninn á eldunarílátinu verður að vera eins þykkur og flatur og mögulegt er.
  • Gakktu úr skugga um að botnar á pottum og pönnum séu hreinir og þurrir áður en þeir eru settir á yfirborð helluborðsins.
  • Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda pottum á keramikglerinu. Efni eldunaríláta
  • vatn sýður mjög fljótlega á hellu sem stillt er á hæstu hitastillingu.
  • segull togar í botninn á eldunarílátinu. Mál eldunaríláta
  • Spanhelluborð aðlaga sig sjálfkrafa að málum á botni eldunarílátanna.
  • Skilvirkni eldunarhellunnar er tengd málum eldunarílátanna. Eldunarílát með 214 ÍSLENSKAminna þvermál en uppgefið lágmark fær aðeins hluta af aflinu sem eldunarhellan framkallar.
  • Af öryggisástæðum og til að ná fram ákjósanlegri útkomu eldunar skaltu ekki nota eldunarílát sem eru stærri en gefið er upp í „Upplýsingar um eldunarhellur“. Forðastu að hafa eldunarílát nálægt stjórnborðinu á meðan eldun stendur. Þetta gæti haft áhrif á virkni stjórnborðsins eða virkja óvart aðgerðir í helluborðinu. Sjá „Tæknilegar upplýsingar“.

6.2 Hljóðin sem þú heyrir við

notkun Ef þú heyrir:

  • brakandi hljóð: eldunarílát er samsett úr mismunandi efnum (samlokusamsetning).
  • flautandi hljóð: þú ert að nota eldunarhellu með miklu afli og eldunarílátið er samsett úr mismunandi efnum (samlokusamsetning).
  • hvæsandi, suðandi: viftan er í gangi. Hljóðin eru eðlileg og gefa ekki til kynna neina bilun.

6.3 Öko Timer (Vistvænn tímastillir)

Til að spara orku slekkur hitari eldunarhellunnar á sér áður en hlóðmerki niðurteljarans heyrist. Mismunur á notkunartíma veltur á því hvaða hitastig er stillt á og tímalengd eldunar.

6.4 Dæmi um eldunaraðferðir

Það er ekki línuleg fylgni á milli hitastillingar á eldunarhellu og aflnotkunar hennar. Þegar þú eykur hitann er það ekki hlutfallslega jafn mikil aukning á aflnotkun. Þetta þýðir að eldunarhella með miðlungshita notar minna en helming afls hennar. Gögnin í töflunni eru aðeins til viðmiðunar. Hitastilling Nota til: Tími (mín) Ráðleggingar 1 Haltu elduðum mat heitum. eins og þörf er á Settu lok á eldunarílátin.

10 - 40 Eldaðu með lokið á.

2 - 3 Láttu hrísgrjón og rétti úr mjólk malla,

hitaðu upp tilbúnar máltíðir.

25 - 50 Bættu við að minnsta kosti tvöfalt meiri

vökva en hrísgrjón og hrærðu mjól‐ kurréttum saman við þegar aðgerðin er hálfnuð.

4 - 5 Gufusjóddu kartöflur. 20 - 60 Notaðu að hámarki ¼ L af vatni fyrir

4 - 5 Eldaðu meira magn af mat, kássum og

60 - 150 Allt að 3L af vökva ásamt hráefnum.

6 - 7 Hæg steiktu: lundir, ungnauta cordon

bleu, kótelettur, kjötbollur, pylsur, lifur, smjörbollur, egg, pönnukökur, kleinuhr‐ ingi. eins og þörf er á Snúðu þegar tíminn er hálfnaður. ÍSLENSKA 215Hitastilling Nota til: Tími (mín) Ráðleggingar

5 - 15 Snúðu þegar tíminn er hálfnaður.

9 Sjóddu vatn, eldaðu pasta, snöggbrenndu kjöt (gúllas, pottsteik), djúpsteiktu kartöfluflögur. Sjóddu mikið magn af vatni. PowerBoost er virkjað.

6.5 Ábendingar og ráð fyrir

Hob²Hood Þegar þú notar helluborðið með aðgerðinni:

  • Verndaðu stjórnborð gufugleypisins fyrir beinu sólarljósi.
  • Ekki beina halogen ljósi á stjórnborð gufugleypisins.
  • Ekki hylja stjórnborð helluborðsins.
  • Ekki trufla merkið á milli helluborðs og gufugleypis (t.d. með hendi, handfangi eldunaríláts eða háum potti). Sjá myndina. Gufugleypirinn á myndinni er aðeins sýndur í dæmaskyni. Önnur fjarstýrð heimilistæki kunna að trufla merkið. Ekki nota slík heimilistæki nærri helluborðinu á meðan kveikt er á Hob²Hood. Gufugleypar eldavéla með Hob²Hood aðgerðinni Til að sjá úrvalið af gufugleypum fyrir eldavélar sem virka með þessari aðgerð skaltu heimsækja vefsíðuna okkar fyrir neytendur. AEG gufugleyparnir fyrir eldavélar sem virka með þessari aðgerð verða að hafa táknið.

7. UMHIRÐA OG HREINSUN

AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.

7.1 Almennar upplýsingar

  • Hreinsið helluborð eftir hverja notkun.
  • Notaðu alltaf eldunarílát með hreinum botni.
  • Rispur eða dökkir blettir á yfirborði hafa engin áhrif á það hvernig helluborði rekur.
  • Notið sérstakt hreinsiefni sem hentar fyrir yfirborð helluborðsins.
  • Notið sérstaka rispur fyrir glerið. 216 ÍSLENSKA7.2 Helluborðið hreinsað
  • Fjarlægðu tafarlaust: bráðið plast, plastfilmu, sykur og mat með sykri því annars geta óhreinindin valdið skemmdum á helluborðinu. Farðu varlega til að forðast bruna. Notaðu sérstaka sköfu fyrir gleryfirborð helluborða með skörpu horni og hreyfðu blaðið á yfirborðinu.
  • Þegar helluborð hefur kólnað nægjanlega skaltu fjarlægja: kalksteinshringi, vatnshringi, fitubletti, skínandi upplitun málma. Hreinsaðu helluborðið með rökum klút og hreinsiefni sem ekki rispar. Eftir að hreinsun er lokið skaltu þurrka helluborðið með mjúkum klút.
  • Skínandi upplitun á málmum fjarlægð: notaðu vatn blandað með ediki og hreinsaðu glerið með klút.

AÐVÖRUN! Sjá kafla um Öryggismál.

8.1 Hvað skal gera ef…

Vandamál Mögulega ástæða Úrræði Ekki er hægt að virkja eða nota helluborðið. Helluborðið er ekki tengt við rafmagn eða það ekki rétt tengt. Gakktu úr skugga um að helluborðið sé rétt tengt við rafmagn. Rafmagnsörygginu hefur slegið út. Gakktu úr skugga um að öryggið sé ástæða bilunarinnar. Ef örygginu slær út ítrekað skal hafa samband við raf‐ virkjameistara. Þú snertir tvo eða fleiri skynjarafleti samtímis. Ekki snerta fleiri en einn skynjaraflöt. Hlé gengur. Sjá „Dagleg notkun“. Það eru vatns- eða fitublettir á stjórnborðinu. Þrífðu stjórnborðið. Þú getur ekki valið hámarkshit‐ astillingu fyrir eina af eldunarhell‐ unum. Hinar hellurnar nota tiltækt hámark‐ safl. Helluborðið þitt virkar rétt. Minnkaðu hitastillingu annarra eldunar‐ hellna sem eru tengdar við sama fasa. Kynntu þér hlutann „Orkustýring“. Hljóðmerki heyrist og helluborðið slekkur á sér. Hljóðmerki heyrist þegar hellub‐ orðið slekkur á sér. Þú settir eitthvað á einn eða fleiri skynjaraflöt. Fjarlægðu hlutinn af skynjarafletinum. Það slokknar á helluborðinu. Þú settir eitthvað á skynjaraflötinn Fjarlægðu hlutinn af skynjarafletinum. Vísirinn fyrir afgangshita kviknar ekki. Svæðið er ekki heitt þar sem það var aðeins í gangi í stutta stund eða skynjarinn er skemmdur. Ef svæðið var nægilega lengi í gangi til að hitna skaltu hafa samband við við‐ urkennda þjónustumiðstöð. Hob²Hood virkar ekki. Þú huldir stjórnborðið. Fjarlægðu hlutinn af stjórnborðinu. ÍSLENSKA 217Vandamál Mögulega ástæða Úrræði Þú notar mjög háan pott sem hindrar merkið. Notaðu minni pott, skiptu um eldunar‐ hellu eða stýrðu gufugleypinum hand‐ virkt. Það kemur ekkert hljóðmerki þegar skynjarafletir á borðinu eru snertir. Slökkt er á hljóðmerkjunum. Kveiktu á hljóðmerkjunum. Sjá „Dagleg notkun“. kviknar. Öryggisbúnaður fyrir börn eða Lás gengur. Sjá „Dagleg notkun“. Stjórnstikan blikkar. Það er ekkert eldunarílát á hellunni eða hellan er ekki hulin til fulls. Settu eldunarílát á helluna svo að það hylji eldunarhelluna til fulls. Eldunarílátið hentar ekki. Notaðu hentugt eldunarílát. Sjá kaflann „Ábendingar og ráð“. Þvermál botnsins á eldunarílátinu er of lítið fyrir svæðið. Notaðu eldunarílát með rétt þvermál. Sjá „Tæknilegar upplýsingar“. PowerSlide gengur. Tveir pottar eru settir á aðlaganlega spanhellusvæð‐ inu. Notaðu aðeins einn pott. Sjá „Sveigj‐ anlegt spansuðusvæði“. og númer birtist. Það er villa í helluborðinu. Slökktu á helluborðinu og virkjaðu það aftur eftir 30 sekúndur. Ef kviknar aftur skaltu aftengja helluborðið frá raf‐ magni. Tengdu helluborðið aftur eftir 30 sekúndur. Ef vandamálið heldur áfram skaltu hafa samband við viður‐ kennda þjónustumiðstöð. Þú heyrir sífellt píp-hljóð. Rafmagnið er ekki rétt tengt. Aftengdu helluborðið frá rafmagnsgjaf‐ anum. Hafðu samband við viðurkennd‐ an rafvirkja til að fara yfir uppsetning‐ una.

8.2 Ef þú finnur ekki lausn…

Ef þú getur ekki sjálf(ur) fundið lausn á vandamálinu skaltu hafa samband við söluaðila eða viðurkennda þjónustumiðstöð. Gefðu upp upplýsingar á merkiplötunni. Passaðu að nota helluborðið rétt. Ef ekki er þjónusta tæknimanns eða söluaðila ekki gjaldfrjáls, einnig á ábyrgðartímabilinu. Upplýsingar um ábyrgðartíma og viðurkenndar þjónustumistöðvar eru í ábyrgðarbæklingnum.

Gerð IKE96654FB PNC 949 597 619 00 Tegund 61 E6A 04 AA 400 V 3N 50 - 60 Hz Span 11.0 kW Framleitt í: Þýskaland Raðnr. ................. 11.0 kW AEG 218 ÍSLENSKA9.2 Lýsing á eldunarhellum Eldunarhella Málafl (hámarks hitastilling) [W] PowerBoost [W] PowerBoost há‐ markstímalengd [mín] Þvermál eldunar‐ íláts [mm] Vinstri framhlið 2300 3200 10 125 - 210 Vinstri afturhlið 2300 3200 10 125 - 210 Miðja framhlið 2300 3200 10 125 - 210 Miðja afturhlið 2300 3200 10 125 - 210 Hægri framhlið 2300 3200 10 125 - 210 Hægri afturhlið 2300 3200 10 125 - 210 Afl eldunarhellnanna getur verið frábrugðið gögnum í töflunni á litlum sviðum. Það breytist með efni og stærðum á eldhúsáhöldum. Notaðu eldunaráhöld sem eru ekki stærri en þvermálin í töflunni til að fá sem bestan matreiðsluárangur.

  • Fyrir Evrópusambandið í samræmi við ESB 66/2014. Fyrir Hvíta-Rússland í samræmi við STB 2477-2017, viðauka A. Fyrir Úkraínu í samræmi við 742/2019. EN 60350-2 - Rafmagnseldunartæki til heimilisnota - 2. hluti: Helluborð - Aðferðir til að mæla afköst. Orkumælingar sem vísa til eldunarsvæðisins eru auðkenndar með merkjunum á viðkomandi eldunarhellum. ÍSLENSKA 21910.2 Orkusparnaður Þú getur sparað orku við daglega eldamennsku ef þú fylgir neðangreindum ábendingum.
  • Þegar þú hitar vatn skaltu aðeins nota það magn sem þú þarfnast.
  • Notaðu afgangshitann til að halda matnum volgum eða til að bræða hann.

Endurvinna þarf öll efni merkt tákninu . Setjið umbúðirnar í viðeigandi sorpílát til endurvinnslu. Leggið ykkar að mörkum til verndar umhverfinu og heilsu manna og dýra og endurvinnið rusl sem fylgir raftækjum og raftrænum búnaði. Hendið ekki heimilistækjum sem merkt eru með tákninu í venjulegt heimilisrusl. Farið með vöruna í næstu endurvinnslustöð eða hafið samband við sveitarfélagið.