H23MOBS4HI - Four à micro-ondes HISENSE - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis H23MOBS4HI HISENSE á PDF sniði.

HISENSE H23MOBS4HI - örbylgjuofn
📄 330 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice HISENSE H23MOBS4HI - page 154
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um H23MOBS4HI HISENSE

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Four à micro-ondes á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína H23MOBS4HI - HISENSE og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. H23MOBS4HI vörumerkisins HISENSE.

NOTENDAHANDBÓK H23MOBS4HI HISENSE

Við þökkum þér kærlega fyrir kaupin. Við trúum því að brátt komi skýrt í ljós að þú getir svo sannarlega reitt þig á vörurnar okkar. Til að auðvelda notkun þessa tækis létum við fylgja með þessar ítarlegu notendahandbók.

Leiðbeiningarnar ættu að hjálpa þér að læra á nýja tækið þitt. Vinsamlegast lestu þær vandlega áður en þú notar tækið í fyrsta sinn.

Best er að ganga alltaf úr skugga um að tækið hafi verið afhent óskemmt. Ef vart verður við skemmdir eftir flutninga skal hafa samband við sölufulltrúa eða vöruhúsið þaðan sem varan var send. Símanúmerið er að finna á kvittuninni eða afhendingarskýrslunni.

Við vonum að þú njótir nýja heimilistækisins.

HISENSE H23MOBS4HI - 1

Tækið sem er ætlað til heimilisnota, til að hita mat og drykk með rafsegulorku og er aðeins ætlað til notkunar innanhúss.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

Þessar leiðbeiningar eru ætlaðar notandanum.

Þær lýsa eldavélinni og hvernig á að nota hana. Þær eiga einnig við um mismunandi gerðir annarra tækja og því kann að vera að þar sé að finna einhverjar lýsingar á aðgerðunum sem eiga hugsanlega ekki við um tækið þitt.

VARÚÐARRÁÐSTAFANIR TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR HUGSANLEGA ÚTSETNINGU FYRIR ÓHÓFLEGA MIKLU MAGNI AF ÖRBYLGJUM

(a) Ekki reyna að nota þennan örbylgjuofn með hurðina opna þar sem það getur leitt til skaðlegrar útsetningar fyrir örbylgjum. Mikilvægt er að rjúfa hvorki né eiga við öryggislæsingar hurðar. (b) Ekki setja neitt á milli framhliðar ofnsins og hurðarinnar eða láta óhreinindi eða hreinsiefni safnast fyrir á yfirborði þéttinga. (c) AÐVÖRUN: Ef hurðin eða hurðarþéttingarnar eru skemmdar má ekki nota ofninn fyrr en hæfur aðili hefur gert við hann.

VIÐBÓT

Ef viðhald á tækinu er ófullnægjandi gæti það skaðað yfirborð tækisins og haft áhrif á endingartíma tækisins og leitt til hættulegra aðstæðna.

ADVÖRUN

Fylgdu eftirfarandi varúðarráðstöfunum til að draga úr eldhættu, raflosti, meiðslum á fólki eða óhóflegri örbylgjugeislun við notkun tækisins, þar með talið:

- Lesið og fylgið sérstaklega:

VARÚÐARRÁÐSTAFANIR TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR HUGSANLEGA ÚTSETNINGU FYRIR ÓHÓFLEGA MIKLU MAGNI AF ÖRBYLGJUM.

Börn, 8 ára og eldri, og fólk með minnkaða skyn- og hreyfigetu, með andlega fötlun eða skort á reynslu og þekkingu geta notað tækið ef þau hafa fengið tilsögn og leiðbeiningar um rétta notkun tækisins á öruggan hátt og skilja hætturnar sem felast í notkun þess. Börn ættu ekki að leika sér með tækið.

Börn skulu ekki sinna þrifum og viðhaldi eftirlitslaus.

Geymið tækið og snúruna þar sem börn yngri en 8 ára ná ekki til.

Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að skipta henni út af framleiðanda, þjónustuaðila eða álíka fagaðila til að koma í veg fyrir hættu.

AÐVÖRUN: Gakktu úr skugga um að slökkt sé á heimilistækinu áður en skipt er um ljósið til að forðast hættu á raflosti.

AÐVÖRUN: Það er hættulegt fyrir aðra en hæfa aðila að framkvæma viðhald eða viðgerðir sem fela í sér að fjarlægja hlíf sem veitir vörn gegn örbylgjum.

  • AÐVÖRUN: Vökva og önnur matvæli má ekki hita í lokuðum ílátum þar sem hætta er á að þau springi.
  • Þegar matur er hitaður í plast- eða pappírsílátum skal hafa auga með ofninum vegna hættu á eldsvoða.
  • Notið aðeins áhöld sem má nota í örbylgjuofnum.
  • Ef reykur kemur frá tækinu, skaltu slökkva á eða taka það úr sambandi og halda hurðinni lokaðri til að kæfa allan eld.
  • Ef drykkir eru hitaðir í örbylgjuofni getur það valdið seinkaðri sprengisuðu, því verður að gæta varúðar við meðhöndlun ílátsins.
  • Æskilegt er að hræra eða hrista innihaldið í pelum og barnamatskrukkum og kanna hitastigið áður en þeirra er neytt til að valda ekki brunasárum.
  • Egg í skel og heil harðsoðin egg ætti ekki að hita í örbylgjuofnum þar sem þau geta sprungið, jafnvel eftir að örbylgjuhitun er lokið.
  • Þrífa þarf ofninn reglulega og fjarlægja allar matarleifar.
  • Ef ofninum er ekki haldið í hreinum getur það leitt til skemmda á yfirborðsflötum sem gæti haft slæm áhrif á endingu heimilistækisins og hugsanlega leitt til hættulegra aðstæðna.
  • Ekki má setja heimilistækið á bak við skrauthurð til að koma í veg fyrir ofhitnun tækisins. (Þetta á ekki við um heimilistæki með skrauthurð).
  • Notaðu aðeins hitanemann sem mælt er með að notaður sé fyrir þennan ofn (fyrir ofna þar sem hægt er að nota hitaskynjunarnema).
  • Örbylgjuofninn má ekki setja í skáp nema hann hafi verið prófaður til notkunar í skáp.
  • Örbylgjuofninn verður að nota með skrauthurðina opna. (Fyrir ofna með skrauthurð.)
  • Þetta tæki er ætlað til notkunar á heimilum og í svipuðum aðstæðum, svo sem:
  • starfsmannaeldhúsum í verslunum, skrifstofum og öðru vinnuumhverfi;
  • hjá gestum á hótelum, vegahótelum og öðrum tegundum gististaða;
  • bóndabæjum;
  • gistiheimilum.
  • Örbylgjuofninn er ætlaður til að hita mat og drykk. Ef tækið er notað til að þurrka mat eða fatnað, hita hitapúða, inniskó, svampa, raka klúta og annað slíkt getur það leitt til hættu á meiðslum, íkveikju eða eldsvoða.
  • Ekki er heimilt að nota málmílát fyrir mat og drykk þegar verið er að hita mat í örbylgjuofni.
  • Ekki þrífa tækið með gufuhreinsi.
  • Tækið er ætlað til frístandandi notkunar.
  • Aftanverður flötur tækisins þarf að liggja við vegg.

LESTU VANDLEGA OG HAFÐU TIL HLIÐSJÓNAR Í FRAMTÍÐINNI

Ákveðnir innri íhlutir geta valdið alvarlegu líkamstjóni eða dauða. Ekki taka þetta tæki í sundur.

ADVÖRUN

Hætta á raflosti

Röng notkun jarðtengingarinnar getur valdið raflosti.

Ekki stinga í samband við innstungu fyrr en heimilistækið hefur verið rétt uppsett og jarðtengt.

Þetta heimilistæki þarf að vera jarðtengt. Ef um skammhlaup er að ræða dregur jarðtenging úr hættu á raflosti með því að leiða rafstrauminn frá.

Þetta tæki er útbúið snúru með jarðtengdum vír og jarðtengdri kló. Stinga þarf klónni í samband við innstungu sem er rétt uppsett og jarðtengd.

Ráðfærðu þig við löggildan rafvirkja eða þjónustuaðila ef þú skilur ekki leiðbeiningar um jarðtengingu til fulls eða ef vafi leikur á því hvort tækið sé rétt jarðtengt.

Ef það þarf á framlengingarsnúru að halda skal aðeins nota framlengingarsnúru með þrjá víra.

  1. Stutt rafmagnssnúra fylgir með til að draga úr hættu af því að flækjast í eða detta um lengri snúrur.
  2. Ef löng snúra eða framlengingarsnúra er notuð:

1) Málspenna snúrusettsins eða framlengingarsnúrunnar ætti að vera að minnsta kosti jafnt og málgildi tækisins.

2) Framlengingarsnúran verður að vera jarðtengd snúra með þremur vírum. 3) Löngu snúrunni skal komið þannig fyrir að hún hangi ekki yfir borðplötuna eða eldhúsborðið þar sem börn geta togað hana til sín eða hrasað yfir hana.

Taktu tækið úr sambandi við rafmagn.

  1. Hreinsaðu ofnhólfið með rökum klút eftir notkun.
  2. Þrífðu fylgihlutina eins og venjulega í sápuvatni.
  3. Rammi og innsigli hurðarinnar og aðliggjandi hluta þarf að þrífa vandlega með rökum klút þegar þeir verða óhreinir.
  4. Ekki nota hörð slípiefni eða beittar málmsköfur til að hreinsa glerið á ofnhurðinni þar sem það getur rispað yfirborðið og getur leitt til þess að glerið brotni.
  5. Ábending fyrir hreinsun - Til að auðvelda hreinsun á innra byrði ofnhólfsins sem eldaður matur getur komist í snertingu við má láta safa úr hálfri sítrónu í skál, bæta 300 ml (1/2 pint) af vatni við safann og hita við 100% örbylgjustyrk í 10 mínútur. Strjúktu af innan úr örbylgjuofninum með mjúkum, þurrum klút.

ADVÖRUN

Hætta á líkamstjóni

Það er hættulegt fyrir aðra en hæfa aðila að framkvæma viðhald eða viðgerðir sem fela í sér að fjarlægja hlíf sem veitir vörn gegn örbylgjum. Sjá leiðbeiningar um „Efni sem þú getur notað í örbylgjuofni eða á að forðast að láta í örbylgjuofn.“ Þetta gæti átt við ákveðin áhöld sem ekki eru úr málmi sem ekki er öruggt að nota í örbylgjuofni. Ef þú ert í vafa getur þú prófað áhaldið sem um ræðir í kjölfar aðgerðarinnar hér að neðan.

Áhaldsprófun:

  1. Fylltu ílát sem má fara í örbylgjuofn með einum bolla (250 ml) af köldu vatni ásamt áhaldinu sem um ræðir.
  2. Eldaðu við hámarksstyrk í 1 mínútu.
  3. Preifaðu gætilega á áhaldinu. Ef tóma áhaldið er heitt skaltu ekki nota það til að elda í örbylgjuofni.
  4. Ekki nota eldunartíma sem er lengri en 1 mínúta.

Efni sem mega fara í örbylgjuofn

ÁhöldAthugasemdir
OfnpotturFylgdu leiðbeiningum framleiðanda. Neðsti hluti ofnpottsins verður að vera að minnsta kosti 5 mm (3/16 tommu) fyrir ofan snúningsplötuna. Röng notkun getur valdið því að snúningsplatan brotni.
BorðbúnaðurEingöngu sem má fara í örbylgjuofn. Fylgdu leiðbeiningum framleiðanda. Ekki nota diska með sprungum eða sem kvarnast hefur upp úr.
GlerkrukkurTaktu alltaf lokið af. Má eingöngu nota til að hita mat þar til hann er orðinn volgur. Flestar glerkrukkur eru ekki hitaþolnar og geta brotnað.
GlervörurAðeins glervörur sem þola ofnhita. Gakktu úr skugga um að það séu engir málmkantar. Ekki nota diska með sprungum eða sem kvarnast hefur upp úr.
OfneldunarpokarFylgdu leiðbeiningum framleiðanda. Ekki loka með málmvír. Búðu til rifur svo að gufan sleppi út.
Pappadiskar og -glösNotist aðeins fyrir skammtímaeldun/-upphitun. Ekki skilja ofninn eftir eftirlitslausan á meðan þú eldar.
EldhúspappírNotaðu til að hylja mat til að hita upp mat og draga í sig fitu. Notist aðeins undir eftirliti við skammtímaeldun.
BökunarpappírNotist sem hlíf til að koma í veg fyrir að matur slettist eða sem lok fyrir gufueldun.
PlastEingöngu sem má fara í örbylgjuofn. Fylgdu leiðbeiningum framleiðanda. Þarf að vera merkt „Má fara í örbylgjuofn“. Sum plastílát mýkjast eftir því sem maturinn innan í ílátinu hitnar. Það skal rífa , gata eða opna „suðupoka“ og aðra þéttlokaða plastpoka samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
PlastfilmaEingöngu sem má fara í örbylgjuofn. Notist til að hylja mat meðan á eldun stendur og halda inni raka. Ekki leyfa plastumbúðum að komast í snertingu við matvæli.
HitamælarEingöngu sem mega fara í örbylgjuofn (kjöt- og sælgætishitamælar).
VaxpappírNotist sem hlíf til að koma í veg fyrir slettur og halda inni raka.

Efni sem forðast á að nota í örbylgjuofni

ÁhöldAthugasemdir
ÁlbakkiGetur valdið neistahlaupi. Færðu mat yfir á disk sem má fara í örbylgjuofn.
Mataraskja með málmhandfangiGetur valdið neistahlaupi. Færðu mat yfir á disk sem má fara í örbylgjuofn.
Málmáhöld eða áhöld með málmköntumMálmar varna því að örbylgjur nái að matnum.Málmkantar geta valdið neistahlaupi.
Mámvírar sem hægt er að snúa upp áValda eldhættu í ofninum.
PappírspokarValda eldhættu í ofninum.
FroðuplastFroðuplast getur bráðnað eða mengað vökvann sem það inniheldur pegar það verður fyrir miklum hita.
ViðurViður þornar þegar hann er notaður í örbylgjuofni og getur klofnað eða brotnað.

NÖFN OFNHLUTA OG FYLGIHLUTA

(Ef einhver munur er á tækinu og myndunum í þessari handbók skal varan gilda.)

Taktu ofninn og allt sem honum tilheyrir úr kassanum og ofnhólfinu. Ofninum þínum fylgja eftirfarandi fylgihlutir:

HISENSE H23MOBS4HI - NÖFN OFNHLUTA OG FYLGIHLUTA - 1

Samstæða fyrir hring snúningsplötu

NotendahandbókHISENSE H23MOBS4HI - NÖFN OFNHLUTA OG FYLGIHLUTA - 2

HISENSE H23MOBS4HI - NÖFN OFNHLUTA OG FYLGIHLUTA - 3

E) Samstæða fyrir hring snúningsplötu

F) Stjórnborð

Eldunarrými hreinsað og snúningsplötunni komið aftur fyrir.

Gakktu úr skugga um að allar umbúðir og límband hafi verið fjarlægð fyrir nýjar uppsetningar. Áður en þú notar tækið til að útbúa mat í fyrsta sinn muntu þurfa að koma snúningsplötunni rétt fyrir.

Þú verður að þrífa eldunarrýmið og aukahlutina.

HISENSE H23MOBS4HI - NÖFN OFNHLUTA OG FYLGIHLUTA - 4

2) Samstæða fyrir hring snúningsplötu

HISENSE H23MOBS4HI - NÖFN OFNHLUTA OG FYLGIHLUTA - 5

  1. Aldrei nota tækið án snúningsplötunnar. Gakktu úr skugga um að hún sitji rétt. Snúningsplatan getur snúist réttsælis eða rangsælis.
  2. Aldrei hvolfa glerbakkanum. Aldrei skorða af glerbakkann.
  3. Alltaf þarf að nota glerbakka og samstæðu fyrir hring snúningsplötu við eldun.
  4. Alltaf skal láta matvæli og ílát með mat á glerbakkann fyrir eldun.
  5. Aldrei skerða hreyfingar snúningsplötunnar.
  6. Ef glerbakki eða samstæða fyrir hring snúningsplötu brotnar eða springur skaltu hafa samband við næstu viðurkenndu þjónustumiðstöð.

Borðplötuuppsetning

Fjarlægðu allar umbúðir og fylgihluti.

Skoðaðu ofninn með tilliti til skemmda á borð við dældir eða brotna hurð.

Ekki setja upp ef ofninn er skemmdur.

Skápur: Fjarlægðu allar hlífðarfilmur sem finnast á yfirborði skáps örbylgjuofnsins.

Ekki fjarlægja bylgjuleiðarahlífina sem er fest við ofnhólfið til að verja magnetrónuna.

  1. Veldu sléttan yfirborðsflöt með nægilegu plássi fyrir inntaks- og/eða úttaksloftopin.

0 cm 30 cm 20 cm 20 cm Lágm. 85 cm 20 cm

(1) Lágmarkshæð uppsetningar er 85 cm. (2) Aftanverður flötur tækisins þarf að liggja upp að vegg.

Hafðu að lágmarki 30 cm fyrir ofan ofninn og að lágmarki 20 cm frá ofninum að aðliggjandi veggjum.

(3) Ekki fjarlægja fæturna af botni ofnsins. (4) Ef lokað er fyrir inntaks- og/eða úttaksop getur það valdið skemmdum á ofninum. (5) Hafðu ofninn eins langt frá útvarpi og sjónvarpi og hægt er. Notkun örbylgjuofns getur valdið truflunum á viðtökubúnaði fyrir útvarps- og sjónvarpsútsendingar.

  1. Stingdu ofninum í samband við hefðbundna heimilisinnstungu.

Gakktu úr skugga um að spenna og tíðni séu þær sömu og gefið er upp á málgildismiðanum.

AÐVÖRUN: Ekki setja örbylgjuofn upp yfir eldavél eða öðrum heimilistækjum sem mynda hita. Ef örbylgjuofninn er settur upp nálægt eða yfir hitagjafa gæti hann skemmst og slíkt ógildir ábyrgðina.

Aðgengilegir yfirborðsfletir kunna að hitna meðan á notkun stendur.

HISENSE H23MOBS4HI - Borðplötuuppsetning - 2

  1. Ýttu einu sinni á „Klukkustilling“ og þá birtist „00:00“.
  2. Ýttu á tölutakkana til að stilla tímann. Dæmi: Til að stilla klukkuna á 12:10 er slegið inn „1,2,1,0” í röð.
  3. Ýttu á „Klukkustilling“ til að staðfesta. Klukkan er stillt.

Athugasemdir:

1) Endurtaktu skref 1 til skref 3 til að endurstilla klukkuna. 2) Klukkan er sýnd í 12 klukkustundir. Ef klukkan er ekki stillt mun hún ekki virka þegar kveikt er á henni.

Stilling eldhústímastillis

  1. Ýttu á „Tímastillir fyrir eldhús“ einu sinni og þá birtist „00:00“.
  2. Ýttu á tölutakkana til að stilla þann tíma sem óskað er eftir. Hámarkstímagildið er „99:99“.
  3. Ýttu á „Byrja/+30SEK.“ til að staðfesta. Tímastillirinn byrjar að telja niður.

Athugasemdir:

1) Eldhústímastillirinn er frábrugðinn 12 klukkustunda kerfinu, eldhústímastillirinn er tímastillir. 2) Ekki er hægt að stilla annað prógram á meðan eldhústímastillirinn er í virkur.

Matreiðsla í örbylgjuofni

11 orkustig eru í boði.

Orka100%90%80%70%60%50%40%30%20%10%0%
SkjárPL10PL9PL8PL7PL6PL5PL4PL3PL2PL1PL0
  1. Ýttu einu sinni á „Eldunartími“ og þá birtist „00:00“.
  2. Ýttu á tölutakkana til að stilla eldunartímann. Hámarkstímagildið er „99:99“.
  3. Ýttu einu sinni á „Orkustig“ og þá birtist „PL10“.
  4. Ýttu á tölutakkana til að stilla orkustigið. 11 orkustig eru í boði.
  5. Ýttu á „START/+30SEK.“ til að byrja að elda.

Athugasemdir:

1) Í stillingarferlinu er stillingin ógild ef ytt er á „STÖDVA/Hætta við“ eða ef engin aðgerð er framkvæmd innan 1 mínútu. 2) Ef „PL0“ er valið mun ofninn virka með viftu án orku. Þú getur notað þetta stig til að losna við lykt úr ofninum.

Þíðing eftir þyngd

  1. Ýttu einu sinni á „þyngdarafþíðingu“ og þá birtist „dEF1“ á skjánum.
  2. Ýttu á tölutakkana til að stilla þyngd matarins. Þyngdarsviðið er 100~2000g.
  3. Ýttu á „START/+30SEK.“ til að byrja að þíða.

Athugaðu: Hljóðmerkið heyrist til að minna þig á að snúa matnum við meðan á þíðingu stendur. Ef ekkert er gert mun ofninn vinna áfram.

Þíðing eftir tíma

  1. Ýttu einu sinni á „tímaafþíðingu“ og þá birtist „dEF2“ á skjánum.
  2. Ýttu á tölutakkana til að stilla þann tíma sem óskað er eftir. Hámarkstímagildið er „99:99“.
  3. Ýttu á „START/+30SEK.“ til að byrja að þíða.

Athugaðu: Þíðingaraflið er PL3 og því er ekki hægt að breyta.

Fjölstiga matreiðsla

Athugasemdir:

1) Hægt er að stilla tvö stig í fjölþrepa matreiðslu. 2) Ef þú stillir á þíðingu mun hún vinna sjálfkrafa á fyrsta þrepi. 3) Sjálfvirka valmyndin er ekki hægt að stilla sem eitt af fjölþrepunum.

Dæmi: Ef þú vilt þíða matinn í 5 mínútur og elda hann við 80% styrk í 7 mínútur.

  1. Ýttu einu sinni á „tímaafþíðingu“ og þá birtist „dEF2“ á skjánum.
  2. Ýttu á „5“, „0“ og „0“ til að stilla þann þíðingartíma sem óskað er eftir á 5 mínútur.
  3. Ýttu einu sinni á „Eldunartími“ og ýttu svo á „7“, „0“ og „0“ til að stilla eldunartímann.
  4. Ýttu einu sinni á „Orkustig“ og þá birtist „PL10“.
  5. Ýttu á „8“ til að stilla orkustigið á PL8.
  6. Ýttu á „START/+30SEK.“ til að byrja að elda.

Hröð matreiðsla

  1. Með því að ýta á tölutakkana 1 til 6 í biðstöðu getur þú valið eldunartíma frá 1 til 6 mínútna með PL10. Hámarkstímagildið er „99:99“.
  2. Ýttu á „START/+30sek.“ í biðstöðu til að elda mat með orkustig 100% í 30 sekúndur. Í hvert sinn sem smellt er á sama takka er aukið um 30 sekúndur og hámarkstímagildið er „99:99“.

Athugasemd:

Í eldunarstöðu getur hver og einn ýtt á „START/+30sek.“ til að lengja eldunartímann. (Að undanskilinni þíðingu eftir þyngd og sjálfvirkri valmynd)

Hljóðlaus stilling

Til að virkja hljóðlausa stillingu:

Í biðstöðu, ýttu á og haltu inni „Klukkustilling“ í 3 sekúndur og þá birtist „SLÖKKT“.

Takkinn gefur ekki frá sér hljóð þegar ýtt er á hann.

Til að slökkva á hljóðlausri stillingu:

Í biðstöðu, ýttu á og haltu inni „Klukkustilling“ í 3 sekúndur og þá birtist „kveikt“.

Hljóðmerki mun heyrast.

Sjálfvirk valmynd

HISENSE H23MOBS4HI - Sjálfvirk valmynd - 1

  1. Ýttu ítrekað á valmyndartakka til að velja þyngdina sem þú hyggst elda.
  1. Ýttu á „START/+30sek.“ til að byrja að elda.

Tafla yfir sjálfvirka valmynd

ValmyndPyngdSkjár Orka
[2YCR]Poppkorn50 g50PL10
100 g100
HISENSE H23MOBS4HI - Sjálfvirk valmynd - 2Kartöflur1 (230 g)1
2 (460 g)2
3 (690 g)3
HISENSE H23MOBS4HI - Sjálfvirk valmynd - 3Pizza200 g200
400 g400
HISENSE H23MOBS4HI - Sjálfvirk valmynd - 4Grænmeti200 g200
400 g400
HISENSE H23MOBS4HI - Sjálfvirk valmynd - 5Drykkir1 bolli (120 ml)1
2 bollar (240 ml)2
3 bollar (360 ml)3
[3TST]Diskurinn minn250 g 250
350 g 350
500 g 500

Barnalæsing

Þú getur notað þessa aðgerð til að koma í veg fyrir að börn kveiki óvart á tækinu.

Til að virkja læsinguna:

Í biðstöðu, ýttu á og haltu inni „Stöðva/Hætta við” í þrjár sekúndur. Langt hljóðmerki heyrist og „ [__] birtist .

Til að taka af læsinguna:

Í læstri stöðu, ýttu á og haltu inni „Stöðva/Hætta við” í þrjár sekúndur. Hljóðmerki heyrist.

Minnisvirkni

Þú getur vistað stillingar fyrir rétt í minninu og kallað þær upp aftur.

  1. Ýttu endurtekið á „ 0" til að velja minnisaðgerð 1-3. Þá munu „1", „2" og „3" birtast í röð.
  2. Ef aðgerðin hefur verið stillt skaltu ýta á „BYRJA/+30sek.“ til að byrja. Annars skaltu halda áfram til að stilla.
  3. Að stillingu lokinni skaltu ýta á „START/+30sk.“ einu sinni til að vista aðgerðina.

Dæmi: Stilltu á minni 2 (elda mat með örbylgjuorku stillta á 80% í 3 mínútur).

  1. Ýttu tvisvar á „0“ í biðstöðu.
  2. Ýttu einu sinni á „Eldunartími“ og ýttu síðan á tölutakkana „3“, „0“ og „0“ í röð.
  3. Ýttu einu sinni á „Orkustig“ og ýttu svo á tölutakkann „8“.
  4. Ýttu á „START/+30sek.“ til að vista stillinguna og „2“ birtist.

Athugasemdir:

1) Ef ekki er slökkt á tækinu verður aðferðin vistuð allan tímann. 2) Ekki er hægt að stilla sjálfvirka valmynd í minnisaðgerð.

Vistvæn stilling

Til að fara í vistvæna stillingu:

Lokaðu hurðinni í biðstöðu og ýttu svo einu sinni á „STÖĐVA/Hætta við”. Það slokknar á skjánum.

Til að hætta við vistvæna stillingu:

Í vistvænni stillingu er hætt við ef ýtt er á hvaða takka sem er eða ef hurðin er opnuð og henni lokað.

Fyrirspurnaraðgerð

  1. Ef klukkan hefur verið stillt mun núverandi tími birtast í þrjár sekúndur með því að ýta á „Klukkustilling“ í eldunarstöðu.
  2. Ýttu á „Orkustig“ í örbylgjueldunarstöðu til að spyrjast fyrir um orkustigið. Það mun birtast í þrjár sekúndur.

TÆKNILÝSING

Gerð ......H23MOBS4HI

Málspenna 230V\~50 Hz

Vöruupplýsingar fyrir orkunotkun og hámarkstíma til að ná viðeigandi lágstyrksstillingu.

Slökkt stilling 0.5W

Hámarkstími sem örbylgjuofninn þarf til að ná sjálfkrafa viðeigandi lágstyrksstillingu 20 mínútur eða ástandi.

Venjuleg
Örbylgjuofn sem truflar móttöku á sjónvarpsútsendingumÞegar verið er að nota örbylgjuofninn getur það valdið truflunum á sjónvarps- og útvarpsviðtökum. það er svipað og truflanir lítilla rafmagnstækja, svo sem blandara, ryksuga og rafmagnsvifta.Þetta er eðlilegt.
Dauf lýsing frá ofnljósiVið eldun við lágan styrk í örbylgjuofni getur ofnlýsing dofnað. þetta er eðlilegt.
Gufa safnast á hurð, heitt loft úr loftopumÞegar verið er að elda getur verið að gufa komi frá matnum. Megnið af henni sleppur út um loftopin. En eitthvað kann að safnast fyrir á köldum svæðum eins og ofnhurðinni. þetta er eðlilegt.
Ofninn ræstist fyrir slysni án matar.Það er bannað að keyra eininguna án þess að það sé matur í henni. það er mjög hættulegt.
VandamálMöguleg orsökÚrræði
Ekki er hægt að ræsa ofn.(1) Rafmagnssnúran er ekki nægilega vel tengd.Taktu úr sambandi. Stingdu síðan aftur í samband eftir 10 sekúndur.
(2) Öryggi sló út eða var bræddi úr sér.Skiptu um varið eða endurstilltu öryggið (viðgerðir purfa að vera í höndum fagfólks á vegum fyrirtækisins)
(3) Vandamál með innstungu.Prófaðu innstungu með öðrum rafmagnstækjum.
Ofninn hitnar ekki.(4) Hurðin er ekki vel lokuð.Lokaðu hurðinni vandlega.

HISENSE H23MOBS4HI - Athugasemdir: - 1

Samkvæmt tilskipun um raf- og rafeindabúnaðarúrgang ætti að safna raf- og rafeindabúnaðarúrgangi sérstaklega og meðhöndla á viðeigandi hátt. Ef þú þarft að farga þessari vöru einhvern tíma í framtíðinni skaltu EKKI farga henni með heimilissorpi. Vinsamlegast farðu með vöruna á söfnunarstöð fyrir raf- og rafeindabúnaðarúrgang þar sem það er í boði.

HISENSE H23MOBS4HI - Athugasemdir: - 2

  1. Ef ofninn virkar alls ekki birtast upplýsingarnar á skjánum ekki eða skjámyndin hverfur:

a) Gakktu úr skugga um að ofninn sé vandlega stungið í samband. Ef það er ekki gert skaltu taka hann úr sambandi, bíða í 10 sekúndur og stinga aftur vandlega í samband. b) Athugaðu á staðnum hvort um sé að ræða brunnið var eða hvort slegið hefur út. Ef þetta virðist virka rétt skaltu prófa innstunguna með öðru tæki.

  1. Ef örbylgjustyrkur virkar ekki:

a) Athugaðu hvort tímastillirinn sé stilltur. b) Gakktu úr skugga um að dyrnar séu tryggilega lokaðar til að öryggislæsingin tengist. Annars munu örbylgjur ekki ná að flæða inn í ofninn. Ef ekkert af ofangreindu bætir úr ástandinu skaltu hafa samband við næsta viðurkennda þjónustufulltrúa.

Tækið sem er ætlað til heimilisnota, til að hita mat og drykk með rafsegulorku og er aðeins ætlað til notkunar innanhúss.

ÁBYRGÐ OG ÞJÓNUSTA

Ef þú þarft frekari upplýsingar eða átt í vandræðum skaltu hafa samband við þjónustumiðstöð Hisense í þínu landi (símanúmerið er að finna á fylgiseðlinum með ábyrgð um allan heim). Ef engin þjónustumiðstöð er í þínu landi skaltu fara til söluaðila Hisense næst þér eða hafa samband við þjónustudeild Hisense heimilistækja.

Aðeins til persónulegra nota!

Frekari ráðleggingar um eldun í örbylgjuofni og gagnlegar ráðleggingar má finna á vefsíðunni:

http://www.hisense.com

ÓSKAR ÞÉR ÓMÆLDRAR ÁNÆGJU VIÐ NOTKUN TÆKIS ÞÍNS

Hisense

life reimagined

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : HISENSE

Líkan : H23MOBS4HI

Flokkur : örbylgjuofn