Axkid Minikid 4 - Siège de voiture COSATTO - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis Axkid Minikid 4 COSATTO á PDF sniði.
Spurningar notenda um Axkid Minikid 4 COSATTO
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Siège de voiture á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Axkid Minikid 4 - COSATTO og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Axkid Minikid 4 vörumerkisins COSATTO.
NOTENDAHANDBÓK Axkid Minikid 4 COSATTO
Kærar þakkir fyrir að velja AXKID MINIKID 4
Lestu pessar leiðbeiningar áður en pú setur AXKID MINIKID 4 bílstólinn í bílinn.
Nánari upplýsingar og ísetningarmyndbönd er að finna á www.axkid.com.
AXKID MINIKID 4 er afturvisandi bílstóll sampykktur fyrir
börn með hæð á milli 61-125 cm, ≤36 kg
AXKID MINIKID 4 er hentugur til notkunar frá um það bil sex mánaða aldri, eða frá því að barnið þitt getur setið upp óstutt. Petta er heildstætt sértækt kerfi fyrir festingu barna í ökutæki (Specific vehicle Belted Enhanced Child Restraint System.) Pað er samþykkt í samræmi við reglugerð Sameinuðu þjóðanna nr. 129, til notkunar í samhæfanlegum sætum ökutækis eins og tilgreint er í ökutækjalistanum. Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við framleiðanda barnastólsins (www.axkid.com) eða söluaðilann.
Mikilvægar upplýsingar
Til að hámarka öryggi barnsins píns er mikilvægt að pú hafir eftirfarandi í huga:
- Fylgið ávallt leiðbeiningunum í þessari handbók. Röng uppsetning getur haft alvarleg áhrif á öryggi barnsins píns. Hafðu samband við söluaðilann ef vafaatriði koma upp. Hann getur leiðbeint pér varðandi rétta uppsetningu.
- Geymið pessa handbók til síðari nota. Ef handbók týnist geturðu fundið hana á netinu á www.axkid.com
- Notaðu ekki AXKID MINIKID 4 bílstól í sæti þar sem virkur loftpúði er fyrir framan það. Ef þú vilt samt sem áður setja upp AXKID MINIKID 4 bílstól í slika sætisstöðu verður að slökkva á loftpúðanum í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda ökutækisins.
- Ef slys hefur orðið, sama hversu lítið, skal ávallt skipta um bílstólinn. Hann gæti hafa orðið fyrir skemmdum sem eru ekki sjáanlegar og gætu haft alvarleg áhrif á öryggi barnsins píns. Af þessum ástæðum mælir Axkid ekki með því að kaupa notaða bílstóla.
- Ef AXKID MINIKID 4 bílstóll hefur verið í beinu sólarljósi skaltu ganga úr skugga um að bílstóllinn sé ekki of heitur áður en barnið er settí hann.
- Skildu barnið pitt aldrei eftir í bílnum án eftirlits.
Gakktu úr skugga um að allur farangur eða lausir hlutir séu tryggilega festir í ökutækinu þar sem þeir geta valdið meiðslum á farþegum ef árekstur verður.
Gakktu úr skugga um að AXKID MINIKID 4 bílstóllinn sé settur upp pannig að engir hlutar hans festist í hreyfanlegum sætum, bilhurðum o.s.frv.
• Ef pú notar neðri ólar festingar skaltu ganga úr skugga um að pær séu settar upp banniga að pær séu ekki fyrir hreyfingu ökutækissæta. - AXKID MINIKID 4 bílstól má aðeins setja upp bakvisandi.
• Gakktu úr skugga um að beltið sé stillt pannig að það passi rétt við likama barnsins. Beltið er stillt með því að hreyfa höfuðpúðann.
• Gakktu úr skugga um að bak barnsins sé pétt að bílstólnum pegar pú festir barnið pitt með beltinu.
• Gakktu úr skugga um að beltið sé pétt að barninu og að sylgjan sé alveg læst. Pú ættir ekki að geta klipið í ólarnar.
• Gakktu úr skugga um að beltið sé ekki snúið.
Gakktu ávallt úr skugga um að stuðningsfóturinn sé í réttri stöðu og nemi við gólf ökutækisins. Stuðningsfóturinn er mjög mikilvægur öryggisbúnaður sem er hannaður til að hámarka öryggi barnsins pins í slysi. - Reyndu ekki að taka í sundur eða breyta neinum hluta AXKID MINIKID 4 bílstólsins. Ábyrgð og öryggisframmistaða Axkid bílstóla gæti orðið fyrir áhrifum af því.
- Notaðu aldrei AXKID MINIKID 4 bílstól án áklæðisins. Stólsáklæðið er öryggisbúnaður og má aðeins skipta því út með upprunalegu. Axkid stólsáklæði.
- Lestu ökutækjahandbókina og ökutækjalistann á www.axkid.com til að finna hvaða sætisstöður henta pessum bílstól
- Axkid mælir með því að nota alltaf sætishlíf til að vernda bilsætin fyrir rispum og óhreinindum.
• Ef pú ert í vafa skaltu hafa samband við söluaðilann þar sem bílstóllinn var keyptur eða hafa samband við info@axkid.com
Efnisyfirlit
Íhlutir 154
Heimil og óheimil staðsetning AXKID MINIKID 4 bílstóls 156
Neðri ólarfestingar 156
Uppsetning neðri ólarfestinga 157
Að festa barnið þitt í AXKID MINIKID 4 bílstól 159
Stilling höfuõpúða 160
Úrtekning AXKID MINIKID 4 bílstóls úr ökutækinu 160
Umhirða og viðhald 161
Ábyrgð 161
Íhlutir

A HÖFUDPÜDI
B INNBYGGT BELTI
C LOSUNARHNAPPUR FYRIR SYLGJU
D BÍLBELTISRAUF
E BELTISLOSUNARHNAPPUR
F SPENNUÓL BELTIS
G HANDFANG FYRIR HALLASTILLINGU
H BREMSUHANDFANG FYRIR HÖ-FUĐPÚĐA
I ASIP-PÚDI
J HÆLL
K LÓDRÉTT STRIK

text_image
L M NOPQ R S T L ASIP-FESTING M NEDRI ÓL N BELTISKLEMMMA O BELTISKLEMMULOK P STUDNINGSFÓTUR Q STUDNINGSFÓTARHNAPPUR R AXLAÓL S NEDRI ÓLARFESTING X2 T HALLASTILLINGL ASIP-FESTING
M NEDRIÓL
N BELTISKLEMMA
O BELTISKLEMMULOK
P STUDNINGSFÓTUR
Q STUDNINGSFÓTARHNAPPUR
R AXLAÓL
S NEDRIÓLARFESTING X2
T HALLASTILLING
Heimil og óheimil staðsetning AXKID MINIKID 4 bílstóls
AXKID MINIKID 4 bilstól er aðeins hægt að setja upp bakvisandi. Pað passar í flestar, en ekki allar sætisstöður. Skoðaðu leiðbeiningarhandbók ökutækisins til að finna viðeigandi sætisstöðu og athugaðu ökutækjalistann á www.axkid.com
| Framsæti farbega (óvirkur loftpúði) JÁ/NEI* | |
| Framsæti farbega (virkur loftpúði) NEI | |
| Farbegasæti að aftan með 3ja punkta bilbelti JÁ | |
| Sæti með 2ja punkta bilbelti NEI | |
| Hliðar- og bakví Sandi sæti NEI |

MIKILVÆGT: Ef þú vilt setja upp AXKID MINIKID 4 bílstólinn á stað þar sem loftpúði er fyrir framan, verður að aftengja loftpúðann samkvæmt leiðbeiningum frá framleiðanda ökutækisins. Athugið að sum ökutæki þurfa viðurkennda þjónustumiðstöð til að aftengja loftpúðann.
* Almenn umferðarreglugerð á Spáni, í grein 117, kveður á um bann við akstri með börn sem eru 135 sentímetrar að hæð eða minna í framsætum ökutækis, án undantekninga.

Neðri ólarfestingar Mikilvægar upplýsingar
Neðri ólarafestingar (LTA) eru notaðar til að auka vernd barna í bílum með því að veita trausta og stöðuga uppsetningu fyrir framlengda afturvisandi, beltafesta bílstóla. Petta eykur öryggi barnsins í öllum tegundum árekstra, þar með talið veltum og aftanákeyrslum.
Neðri ólar eru vel þekkt aðferð sem hefur verið mikið notuð á Norðurlöndunum í yfir 40 ár. Árið 2020 var gefinn út nýr alþjóðlegur staðall fyrir LTA, ISO13216-4:2020. Pessi staðall lýsir kröfum um neðri ólar fyrir bílstóla en einnig fyrir bílaframleiðendur og festipunkta þeirra. Tilgangurinn er að bæta samhæfni og tryggja örugga og auðvelda uppsetningu til framtíðar.
AXKID MINIKID 4 neðri ólar eru í samræmi við ISO13216-4:2020, sem tryggir að stóllinn passi fullkomlega og auðveldar uppsetningu í ökutækjum með foruppsettum neðri ólarafestingum sem eru einnig í samræmi við pennan staðal. Ef ökutækið þitt er með festipunkta sem eru ekki í samræmi við staðalinn, er samt líklegt, en ekki öruggt, að neðri ólar AXKID MINIKID 4 passi.
Foruppsettar neðri ólarafestingar í ökutækjum eru oft á sætissleðunum sem festir eru við gólfíð, en aðrar stöður eru einnig notaðar. Skoðaðu handbók ökutækisins til að fá frekari upplýsingar um nothæfa festipunkta.
Ef ökutækið pitt hefur engar foruppsettar neðri ólarfestingar, þá fylgja AXKID MINIKID 4 viðbótar neðri ólarfestingar (S) sem hægt er að setja í ökutækið pitt. Sjá þessa handbók fyrir leiðbeiningar um uppsetningu. Pessar ólar eru einnig í samræmi við ISO13216-4:2020 og begar þær eru settar upp á réttan hátt bjóða þær upp á sama öryggi og foruppsettar festingar.
Sumir bílaframleiðendur bjóða einnig upp á möguleika á að setja neðri ólarfestingar í eftir á. Hafðu samband við framleiðanda ökutækisins eða söluaðila til að fá frekari upplýsingar. Axkid neðri ólarafestingar sem settar eru í eftir á og auka neðri ólarfestingar er hægt að kaupa sérstaklega.
Athugið: Notaðu aldrei AXKID MINIKID 4 án neðri ólanna. Pær eru mikilvægur öryggisbúnaður og skal ávallt nota pegar bílstóllinn er settur upp.
Uppsetning neðri ólarfestinga
Ef ökutækið þitt er ekki með viðeigandi foruppsettar neðri ólarfestingar, þá kemur AXKID MINIKID 4 með neðri ólarfestingum sem hægt er að setja í ökutækið þitt. Pað fer eftir ökutækinu þínu og sætisstöðunni þar sem þú velur að setja bílstólinn þinn upp. Pað eru ýmsir mögulegir festipunktar til að nota til við uppsetningu festiólanna. Sjá valkosti hér að neðan.
Til að setja neðri ólarfestingarnar (S), præddu einfaldlega ólina i kringum valinn festipunkt og præddu málmfestinguna i gegnum eina af raufunum á ólinni sjálfri. Festiólin er með nokkrar raufar til að nota. Gakktu úr skugga um að nota raufina eins nálægt málmfestingunni og hægt er og settu þannig málmfestinguna eins nálægt gólfí ökutækisins og mögulegt er. Pegar þessu er lokið skaltu toga í málmfestinguna til að herða ólina og endurtaka ferlið fyrir hina ólina. Notaðu alltaf tvo festipunkta þegar AXKID MINIKID 4 er sett upp og veldu festingar sem eru aðskildir þar sem það veitir stöðugri uppsetningu.
Valkostir til að leiða festiól
valk. a Leggõu ólina í kringum foruppsettu festinguna (notaõu bessa aõferõ aõeins ef foruppsettu festingarnar passa ekki beint viõ neõri Ólarnar)
valk. b Settu ólina utan um sætissleðann fyrir framan bilstólinn med þvi að præða ólina á milli sætissleðans og golfs ökutækisins eða í gegnum viðeigandi gat á sætissleðanum.
valk. C Settu ólina utan um löm ökutækissætisins fyrir framan bílstólinn með því að præða ólina á milli stólsbaks ökutækisins og stólpúðans.
valk. d Settu ólina utan um sætissleðann fyrir neðan bílstólinn með því að þræða ólina á milli sætissleðans og golfs ökutækisins eða í gegnum viðeigandi gat á sætissleðanum.
valk. e Pegar AXKID MINIKID 4 er komið fyrir í farþegasætinu að framan og enginn af ofangreindum valkostum er í boði, er hægt að festa neðri ólarfestingarnar við viðeigandi festipunkt aftan í ökutækinu og beina ólunum undir ökutækissætið fram í ökutækið. Gakktu úr skugga um að festiólnarnar komi út fyrir framan sætið en ekki út frá hliðunum.
Athugið: Gakktu ávallt úr skugga um að breyting á stöðu ökutækissæta truflí ekki eða skemmi uppsettu neðri ólarfestingarnar
Athugið: Notaðu aldrei beitta hluti til að aðstoða við að præða ólarnar þar sem það gæti skemmt ólina.
Uppsetning AXKID MINIKID 4 bílstóls í ökutækið
Áður en AXKID MINIKID 4 er sett upp skaltu ganga úr skugga um að bú hafir neðri ólarfestingar í ökutækinu þínu. Sjá kafla um neðri festingar í þessari handbók fyrir frekari upplýsingar og uppsetningarleiðbeiningar.
1
Opnaðu rennilásinn og opnaðu beltisklemmulokið (O)
2
Settu AXKID MINIKID 4 í sæti ökutækisins þannig að bakið á bílstólnum snúi fram í ökutækinu. Stilltu fótárymið fyrir barnið þitt með því einfaldlega að færa bílstólinn fram og til baka í sæti ökutækisins. AXKID MINIKID 4 er hægt að setja þétt upp við sætisbak ökutækisins en aldrei má setja það upp með hælinn (J) hangandi yfir kant ökutækissætisins. Gakktu úr skugga um að lóðrétta strikið (K) á hælnum (J) fari aldrei yfir kant ökutækissætisins.
Stilltu halla bílstólsins með því að ýta á hallastillingarhandfangið (G) og velja viðeigandi hallastöðu. Til að fá hámarksöryggi skaltu velja eins upprétta stöðu og mögulegt er á meðan þú tryggir að höfuð barnsins falli ekki fram pegar það sefur. Af þæginda- og öryggisástæðum ætti að stilla hallahornið í uppréttari stöðu pegar barnið þitt stækkar. Athugaðu að pegar neðri ólararnir (M) eru spenntar, hallast bílstóllinn aðeins meira pegar hann sekkur í setu ökutækissætisins. Pegar AXKID MINIKID 4 er komið fyrir í farþegasætinu að framan er mögulegt, en ekki nauðsynlegt, að bakið á bílstólnum snerti mælaborðið.
3
Opnaðu beltisklemmuna (N). Dragðu út handleggslengd öryggisbeltisins og præddu það í gegnum öryggisbeltaraufina (D) næst pér. Færðu beltið í gegnum beltisklemmuna (N) og præddu það í gegnum öryggisbeltaraufina (D) á gagnstæðri hlið. Tengdu öryggisbelti Ókutækisins við beltissylgjuna og togaðu fast í axlarhluta bilbeltisins til að fjarlægja allan slaka og til að festa bílstólinn, því fastar sem þú togar því traustari er uppsetningin. Pegar bílstóllinn er vel spenntur skaltu loka beltaklemmunni (N) og læsa bílbeltinu í stöðu. Gakktu úr skugga um að bæði axla- og mjaðmarbeltið sé læst saman í beltaklemmunni (N). Lokaðu beltaklemmulokinu (O) og lokaðu rennilásnum. Til að gefa enn traustari og stöðugri uppsetningu, þrýstu niður á bílstólinn á meðan þú togar í axlabeltið.
4
Dragõu neõri Ólarnar (M) út úr bilstólnum og tengdu pær við neõri Ólarfestingarnar i ökutækinu, sjá kafla um neõri Ólarfestingar i þessari handbók fyrir frekari upplýsingar. Yttu niður efst á bilstólinn og ruggaðu bilstólnum frá hlið til hliðar og sjálfspennandi neõri Ólar (M) AXKID MINIKID 4(M) spennast þá sjálfkrafa. Með því að spenna neõri Ólarnar (M) stillirõu einnig endanlegan halla á bilstólnum. Haltu áfram að ýta á bilstólinn þar til hann er vel festur og þú hefur náð hæfilegu halla. Athugaðu að hvita merkingin á neõri ólinni sé sýnileg. Ef ekki, eru neõri Ólarfestingarnar of nálægt bilstólnum og þarf að stilla pær. Ef það er ekki mögulegt, geturõu einnig lagt neõri Ólarnar þvert fyrir aftan stólinn til að fá meira bil.
5
Dragðu stuðningsfótinn (P) út úr bilstólnum. Ýttu á stuðningsfótarhnappinn (Q) og dragðu stuðningsfótinn (P) niður par til hann snertir gólf ökutækisins. Slepptu stuðningsfótarhnappnum (Q) og lyftu bilstólnum upp til að lengja stuðningsfótinn enn frekar (P) þar til smellur heyrist. Stuðningsfóturinn (P) ætti nú að vera læstur og þrýstast þétt að gólf i ökutækisins. Gakktu úr skugga um að stuðningsfóturinn (P) halli um 10° fram á við í ökutækinu. Athugaðu öryggisbelti ökutækisins aftur til að ganga úr skugga um að það sé enn vel spennt og að enginn slaki hafi orðið á mjaðmabeltinu begar spennt var á neðri ólunum og stuðningsfætinum. Ef belti ökutækisins hefur misst spennu skaltu einfaldlega spenna það aftur með því að endurtaka skref 2 í þessum leiðbeiningum án þess að aftengja neðri ólarnar.
6
Yttu ASIP-púðanum (I) inn í raufina á ASIP-festingunni (L) og renndu honum niður. ASIP-púðinn (I) smellur þá á sinn stað. Ef plasthlíf er á ASIP-festingunni (L), taktu hana af og settu hana á ASIP-festinguna (L) á hinni hlið stólsins áður en ASIP-púðinn (I) er settur á. Gakktu úr skugga um að ASIP-púðinn (I) sé festur á þá hlið AXKID MINIKID 4 stólsins sem er næst hurð ökutækisins.
Að festa barnið þitt í AXKID MINIKID 4 bílstól
Áður en pú festir barnið pitt í AXKID MINIKID 4 bilstólinn skaltu ganga úr skugga um að pú sért með rétta innleggið í sætinu. AXKID MINIKID 4 er hannað til að vaxa með barninu þinu og passa þægilega og örugglega fyrir börnin. Axkid mælir með því að nota innleggið þar til það er of þröngt fyrir barnið þitt, en í lágmarkslengd samkvæmt töflunni hér að neðan (athugið að aldurinn er aðeins visbending):
| Aldur Hæð | ||
| Smábarn0-3 ára | 61-105 cm | ![]() |
| Barn3-7 ára | 106-125 cm | ![]() |
AXKID MINIKID 4 er buinn själfvirkum höfuõpúða (A) sem lækkar sig írétta stöðu pegar verið er að herða beltið. Til að tryggja að bað passi sem best mælir Axkid með pví að nota pennan eiginleika íhvert skipti sem pú spennir barnið ístólinn. Áður en barnið er sett í bilstólinn skaltu ganga úr skugga um að själfvirki höfuõpúðinn (A) sé í ólæstri stöðu. Sjá kafla um höfuõpúða (A) fyrir frekari upplýsingar.

Gakktu úr skugga um að Bremsuhandfang höfuðpúða (H) sé stillt á ólæst. Ef það er læst skaltu ýta handfanginu yfir í ólæsta stöðu.

Losaðu beltið með því að ýta á beltislosunarhnappinn (E) og dragðu út báðar axlaólarnar (R) samtímis. Forðist að toga aðeins i eina ól i einu þar sem það getur valdið því að axlaólarnar (R) verði ójafnar. Gakktu úr skugga um að höfuðpúðanum (A) sé ýtt upp í efstu stöðu.

Opnaðu sylgjuna med því að ýta á losunarhnapp sylgjunnar (C) og settu ólarnar fyrir utan sætið.

Settu barnið þitt í sætið og settu axlaólarnar (R) yfir öxl barnsins. Læstu beltinu með því að staðsetja fyrst hluta sylgjunnar sem festir eru við axlaólarnar (R) saman og ýta þeim síðan inn í sylgjuna þar til þú heyrir smell.

Togaðu í axlaólarnar (R) til að spenna beltið yfir mjaðmir barnsins. Á meðan þú heldur spennunni á axlaólunum (R), dragðu beltisspenniólina (F) beint úr bílstólnum þar til beltið er nægilega spennt. Pú ættir ekki að geta komið meira en einum fingri á milli axlaólanna (R) og axla barnsins þíns. Pegar beltið er spennt mun höfuðpúðinn (A) sjálfkrafa færast niður í rétta stöðu fyrir barnið þitt.
Stilling höfuðpúða
AXKID MINIKID 4 er búinn sjálfvirkum höfuðpúða (A) sem tryggir að höfuðpúðinn (A) sé alltaf í bestu stöðu fyrir barnið. Pegar verið er að spenna beltið mun höfuðpúðinn (A) lækka sig í rétta hæð og læsast sjálfkrafa í stöðu. Pegar beltið er losað mun höfuðpúðinn (A) færast upp í efstu stöðu sina aftur og opnast. Til að tryggja að það passi sem best mælir Axkid með því að nota pennan eiginleika í hvert skipti sem þú spennir barnið í stólinn.
Höfuðpúðinn (A) opnast aðeins í efstu stöðu. Pað er því mikilvægt að tryggja að höfuðpúðinn (A) færist alla leið í efstu stöðu ßegar beltið er losað, annars helst höfuðpúðinn (A) læstur og færist ekki niður ßegar beltið er spennt.
Ef þú vilt slökkva á sjálfvirka stillingareiginleikanum og halda höfuðpúðanum (A) í fastri stöðu, settu höfuðpúðann (A) í þá stöðu sem þú vilt og færðu bremsuhandfang höfuðpúðans (H) í læsta stöðu. Höfuðpúðinn (A) er nú hæðarlæstur og mun ekki hreyfast fyrr en þú setur bremsuhandfang höfuðpúðans (H) aftur í ólæsta stöðu.
Pegar þú notar AXKID MINIKID 4 með höfuðpúðann (A) í fastri stöðu skaltu ganga úr skugga um að höfuðpúðinn (A) sé staðsettur í réttri hæð fyrir barnið. Athugaðu hvort axlaólarnar (R) fari í gegnum sætið beint út frá öxlum barnsins eða að hámarki 1 cm fyrir ofan. Ef ekki, stilltu höfuðpúðann (A) með því að færa bremsuhandfang höfuðpúðans (H) í ólæsta stöðu og ýttu höfuðpúðanum (A) í efstu stöðu til að opna hann og endurtaktu síðan ferlið.

Úrtekning AXKID MINIKID 4 bílstóls úr ökutækinu
• Opnaðu rennilásinn og opnaðu beltisklemmulokið (O). Losaðu belti ökutækisins með því að ýta á rauða hnappinn á beltissylgju stólsins. Opnaðu beltisklemmuna (N) og togaðu í bilbeltið og stýrðu því í gegnum öryggisbeltaraufarnar (D) til að taka það úr bilstólnum
• Opnaðu neðri ólarnar (M) með því að halda tengjunum með hendinni og ýta á rauða takkann með pumalfingri. Á meðan þú hefur tengið í hendinni skaltu færa það hægt aftur í bilstólinn. Gættu þess að sleppa ekki neðra ólartenginu, þar sem það mun dragast inn sjálfkrafa með miklum hraða.
• Ýttu á stuðningsfótarhnappinn (Q) og felldu stuðningsfótinn (P) saman í stystu stöðu.
• Ýttu á hallastillingarhandfangið (G) og ýttu hallastillingunni (T) inn í stystu stöðu sína. Lyftu AXKID MINIKID 4 út úr ökutækinu
Ábending: Læstu beltissylgjunni og spenntu beltið áður en þú tekur bílstólinn úr ökutækinu. Síðan er hægt að nota axlaólarnar (R) sem burðarhandfang, sem gerir það auðveldara að lyfta bílstólnum og taka hann úr ökutækinu.
Mikilvægt: Berðu aldrei stólinn með því að halda í höfuðpúðann (A)
Umhirða og viðhald
Stólsáklæðið má þvo í vél við 30°C á mildri stillingu. Setjið áklæðið ekki í þurrkara þar sem það getur skemmt áklæðið og fylliefnið getur losnað af því. Heimsækið www.axkid.com til að finna myndbönd sem útskýra hvernig á að taka af og setja áklæðið á.
Áklæðið tekið af:
• Fjarlægðu ASIP-púðann (I) ef hann er festur.
- Stilltu sjálfvirka bremsuhandfang höfuðpúðar (H) í ólæsta stöðu og losaðu beltið með því að ýta á losunarhnapp beltisins (E) og draga út báðar axlaólarnar (R) samtímis.
- Opnaðu rennilásana tvo neðan á höfuðpúðanum (A) og dragðu hlífina varlega af höfuðpúðanum (A).
- Lækkaðu höfuðpúðann (A) niður í lægstu stöðu og settu sjálfvirka bremsuhandfangið fyrir höfuðpúða (H) í læsta stöðu.
- Opnaðu beltissylgjuna með því að ýta á losunarhnapp sylgjunnar (C) og taktu af sylgjuhlífina.
- Opnaðu rennilásinn og opnaðu beltisklemmulokið (O) og taktu plastlokið (O) af áklæðinu.
- Opnaðu hnappana 4 á áklæðinu á bakhlið bílstólsins.
- Opnaðu rennilásana tvo á bakinu innan í bílstólnum og taktu áklæðið varlega af bílstólnum. Farðu varlega í kringum ASIP-púðann og aðrar plasthlífar til að skemma ekki áklæðið. Togaðu ekki of fast.
- Opnaðu axlapúðana og taktu pá varlega af riflásnum.
Áklæðið sett á
- Pegar áklæðið er sett aftur á bílstólinn er farið að öfugt við það pegar það er tekið af.
- Athugaðu að hægt er að setja axlapúðana á mismunandi staði. Settu þau upp í stöðu sem hentar barninu pínu, axlapúðarnir ættu að vera staðsettir ofan á axlirnar og á bringu barnsins. Gakktu úr skugga um að gúmmíhlíð axlapúðans snúi að bringu barnsins.
Ef skipta parf um áklæðið skal aðeins nota upprunalegar vörur frá Axkid. Ef aðrar vörur eru notaðar getur AXKID MINIKID 4 bílstóllinn verið í hættu og það getur leitt til alvarlegra meiðsla ef slys verður.
Hægt er að prífa alla plasthluti sem eru í AXKID MINIKID 4 bílstól með mildu þvottaefni og vatni. Notið ekki sterk efni sem innihalda leysiefni og pess háttar þar sem þetta getur valdið skemmdum á plastinu og haft neikvæð áhrif á öryggi bílstólsins.
Ábyrgð
AXKID MINIKID 4 bílstóll er með tveggja ára ábyrgð frá kaupdegi. Geymdu kvittunina tryggilega og hafðu hana með til söluaðila ef einhver ábyrgðarmál koma upp.
• Eðlilegt slit
- Tjón vegna rangrar notkunar, vanrækslu eða slyss
- Ef viðgerðir hafa verið framkvæmdar af þriðja aðila
- Öll efni sem notuð eru hafa mjög hátt viðnám gegn útfjólubláum geislum. Hins vegar eru útfjólubláir geislar mjög óvægnir og munu smám saman valda upplitun á áklæði stólsins. Ábyrgðin nær ekki yfir þetta þar sem að það er talið eðlilegt slit.
- Meðhöndlið stólinn varlega. Berðu aldrei stólinn með því að halda í höfuðpúðann (A).

