SHZ 250 - Treuil électrique Herkules - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis SHZ 250 Herkules á PDF sniði.
Spurningar notenda um SHZ 250 Herkules
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Treuil électrique á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína SHZ 250 - Herkules og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. SHZ 250 vörumerkisins Herkules.
NOTENDAHANDBÓK SHZ 250 Herkules
Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða. Lesið því notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar vandlega. Geymið allar leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til þeirra ef þörf er á. Látið notandaleiðbeiningarnar / öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem ekki er nefnd í þessum notandaleiðbeiningum eða öryggisleiðbeiningum.
1. Öryggisleiðbeiningar
Hætta!
Lesið öryggisleiðbeiningar og aðrar leiðbeiningar sem fylgja þessu tæki. Ef ekki er farið eftir öryggisleiðbeiningunum og öðrum leiðbeiningum getur myndast hætta á raflosti, bruna og/eða alvarlegum slysum. Geymið öryggisleiðbeiningarnar og notandaleiðbeiningarnar vel til notkunar í framtíðinni.
- Gangið úr skugga um að rafspennan sem tengd er við tækið samsvari þeirri spennu sem gefin er upp á tækisskiltinu. Ef spennan sem notuð er er ekki rétt getur það leitt til þess að tækið vinni óeðlilega og getur það einnig valdið slysum á fólki.
- Rafrásin sem tengd er við tækið verður að vera útbúin útsláttaröryggi og jarðtengingu.
- Það er bannað að lyfta meiri þunga en uppgefinn hámarksþunga tækisins.
- Notið tækið einungis í þau verk sem það er framleitt fyrir. Lyftið aldrei fólki með rafmagnstalíunni.
- Togið alls ekki í rafmagnsleiðsluna til þess að taka tækið úr sambandi við straum. Haldið rafmagnsleiðslunni fjarri hita, olíu og hvössum brúnum.
- Reynið aldrei að lyfta upp hlutum sem eru fastir eða spenntir.
- Takið rafmagnstalíuna úr sambandi við straum á meðan hún er ekki í notkun.
- Haldið börnum og öðru utanaðkomandi fólki fjarri þessu tæki.
- Það er stranglega bannað að lyfta hlutum upp til hliðar eða að lyfta hlutum upp á einni hliðinni. Forðist að hlassið sveiflist til.
- Gangið úr skugga um að krókurinn hreyfist í sömu átt og sýnt er á fjarstýringunni.
- Yfirfarið rafmagnstaliúna reglulega og athugið hvort að hún hafi skemmst. Fjarstýringin verður einnig að vera í góðu ásigkomulagi.
- Látið einungis viðurkenndan fagaðila sjá um að gera við þetta tæki og hirða um það. Viðgerðir mega eingöngu vera framkvæmdar af fagaðila, annars myndast slysahætta fyrir notanda tækisins.
- Forðist að slökkva og kveikja snöggt á þessu tæki (að tippa á höfuðrofann) til skiptis.
- Verið ávallt vökul við notkun á þessari rafmagnstalíu.
- Standið ekki né vinnið undir hlassi sem lyft hefur verið upp.
- Festibogi
- Festigat fyrir krók
- Kefli
- Rofi fyrir hámarks útdrátt á vír
- Rofi fyrir sjálfvirkan stöðvara
- Stálvír
- Útsláttarlóð
- Krókur
- Neyðarstopprofi
- Prýstirofi
- Fjarstýring
- Rafmagnsleiðsla
- Stýrileiðsla
- Mótor
- Umvinda
- Aukakrókur
- Leiðsla fjarstýringar
2.2 Innihald
Vinsamlegast yfirfarið hlutinn og athugið hvort allir hlutir fylgi með sem taldir eru upp í notandaleiðbeiningunum. Ef að hluti vantar, hafið þá tafarlaust, eða innan 5 vinnudaga eftir kaup á tæki, samband við þjónustuborð okkar eða þá verslun sem tækið var keypt í og hafið með innkaupanótuna. Vinsamlegast athugið töflu aftast í leiðbeiningunum varðandi hluti sem eru ábyrgðir.
- Opnið umbúðirnar og takið tækið varlega út úr umbúðunum. Fjarlægið umbúðirnar og læsingar umbúða / tækis (ef slíkt er til staðar).
- Athugið hvort að allir hlutir fylgi með tækinu.
- Yfirfarið tækið og aukahluti þess og athugið hvort að flutningsskemmdir séu að finna. Geymið umbúðirnar ef hægt er þar til að ábyrgðartímabil hefur runnið út.
gōartímabil hefur runnið út.
Hætta!
Tækið og umbúðir þess eru ekki barnaleikföng! Börn mega ekki leika sér með plastpoka, filmur og smáhluti! Hætta er á að hlutir geti fests í hálsi og einnig hætta á köfnun!
• Notandaleiðbeiningar
3. Tilætluð notkun
Rafmagnstalían er ætluð til þess að lyfta og slaka hlassi í lokuðum rýmum innan þeirra takmarka sem gefin eru upp.
Þetta tæki má einungis nota í þau verk sem það er framleitt fyrir. Öll önnur notkun sem fer út fyrir tilætlaða notkun er ekki tilætluð notkun. Fyrir skaða og slys sem til kunna að verða af þeim sökum, er eigandinn / notandinn ábyrgur og ekki framleiðandi tækisins.
Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskini, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Við tökum enga ábyrgð á tækinu, sé það notað í iðnaði, í atvinnuskini eða í tilgangi sem á einhvern hátt jafnast á við slíka notkun.
4. Tæknilegar upplýsingar
SHZ 250
Spenna (V) 230 V ~ 50 Hz
Straumur (A) 1,8
Afl (W) 450
Lyftihraði (m/mín) 8 / 4
Þvermál vírs (mm) 3,18
Styrkur vírs (N/mm²)....1870
Einangrunarflokkur......B
Öryggisflokkur....IP54
Notkunargerð....A1
Nettó þyngd (kg) 10,5
Notkunarflokkur ED - 20% - 10mín: ED = niðurtími án áhrifa hitunar. Þetta þýðir að hámarks notkunartími tækisins í einu sé 20% af 10 mínútum (2 mínútur).
SHZ 250-18
Spenna (V) 230 V ~ 50 Hz
Straumur (A) 2,18
Afl (W) 500
Lyftihraði (m/mín) 8/4
Þvermál vírs (mm) 3,18
Styrkur vírs (N/mm²)....1870
Einangrunarflokkur......B
Öryggisflokkur IP54
Notkunargerð....A1
Nettó þyngd (kg) 10,5
Notkunarflokkur ED - 20% - 10mín: ED = niðurtími án áhrifa hitunar. Þetta þýðir að hámarks notkunartími tækisins í einu sé 20% af 10 mínútum (2 mínútur).
SHZ 500-18
Spenna (V) 230 V ~ 50 Hz
Straumur (A) 4,4
Afl (W)....1000
Lyftihraði (m/mín) 8 / 4
Þvermál vírs (mm) 4
Styrkur vírs (N/mm²)....1870
Einangrunarflokkur......B
Öryggisflokkur....IP54
Notkunargerð....A1
Nettó þyngd (kg) 16,2
Notkunarflokkur ED - 20% - 10mín: ED = niðurtími án áhrifa hitunar. Þetta þýðir að hámarks notkunartími tækisins í einu sé 20% af 10 mínútum (2 mínútur).
SHZ 600-1
Spenna (V) 220-240 V \~ 50 Hz
Straumur (A) 4,6
Afl (W).... 1050
Lyftihraði (m/mín) 8 / 4
Þvermál vírs (mm) 4,5
Styrkur virs (N/mm²) ...... 1870
Einangrunarflokkur ...... B
Öryggisflokkur IP54
Notkunargerð .... A1
Nettó þyngd (kg) 16,8
Notkunarflokkur ED - 20% - 10 mín: ED = niðurtími án áhrifa hitunar. Þetta þýðir að hámarks notkunartími tækisins í einu sé 20% af 10 mínútum (2 mínútur).
Takmarkið hávaðamyndun og titring eins og hægt er!
- Notið einungis tæki sem eru í fullkomnu ásigkomulagi.
- Hirðið um tækið og hreinsið það reglulega. • Lagið vinnu að tækinu. • Ofgerið ekki tækinu. • Látið yfirfara tækið ef þörf er á. Slökkvið á tækinu á meðan að það er ekki í notkun.
- Notið hlífðarvettlinga
5. Fyrir notkun
Gangið úr skugga um að rafrásin sem notuð er passi við þær upplýsingar sem gefnar eru upp á upplýsingarskilti tækisins.
Viðvörun!
Takið tækið úr sambandi við straum áður en að það er stillt.
- Þessi rafmagnstalía er ekki ætluð til þess að flytja eða lyfta heitum og/eða bráðnuðum efnum. Auk þess er rafmagnstalían heldur ekki til þess ætluð að nota í miklum kulda eða erfiðu umhverfi. • Drifflokkur þessa tækis er A1.
- Liftími þessarar rafmagnstölu er um það bil 8000 snúningar (án slithluta). Þegar búið er að nota rafmagnstöluna til þess að lyfta 8000 sinnum verður að yfirfara alla hluti hennar og
skipta um þá hluti sem þörf er á.
- Lesið og skiljið notendaleiðbeiningarnar áður en rafmagnstalan er tekin til notkunar. Gangið úr skugga um að notandi þessa tækis viti hvernig það virkar og hvernig eigi að nota það.
- Notandi þessa tækis á ávallt að vinna eftir notendaleiðbeiningum þess.
- Þessi rafmagnstalía er ekki framleidd né hönnuð til samfelldrar notkunar. Notkun þessa tækis er: lotunotkun án tillits til gangsetningar.
- Afl þessa tækis breytist ekki með staðsetningu álagsins.
5.1 Tækið tekið úr umbúðunum
Eftir að búið er að opna umbúðirnar, yfirfarið þá rammann, stálvírinn, krókinn og rafmagnshluti tækisins og gangið úr skugga um að hlutirnir hafi ekki orðið fyrir flutningsskemmdum.
5.2 Samsetning (mynd 5)
Rafmagnstalían kemur með tveimur festingarbogum (1) sem festa verður við ferkantaða bitann. Millibil gatanna verður að vera það sama og festibogarnir (1) og verður að geta haldið tvöfaldri hámarkslyftigetu tækisins. Við mælum með því að hafa samráð við fagaðila.
Herða verður alla bolta vel. Áður en tækið er tekið til notkunar ætti að láta fagaðila yfirfara uppsetninguna.
5.3 Notkun umvindu (myndir 6-9)
Rafmagnstalían er útbúin umvindu (15) og aukakróki (16). Með réttri notkun getur rafmagnstalían lyft tvöföldum þunga.
Setjið upp umvinduna (15) og aukakrókinn (16) eins og sýnt er á myndum 6-8. Föstu krókunum (8) verður að vera hengt upp í festigatið fyrir krókinn (2) (mynd 9). Hlassinu verður nú lyft með tveimur stálþráðum, þannig getur rafmagnstalían lyft tvöfaldri þyngd.
6. Notkun
Hætta!
6.1 Tilmæli varðandi notkun
- Fjarlægið límbandið af keflinu (3) áður en tækið er tekið til notkunar í fyrsta skiptið.
- A-hávaðagildi þessa tækis er undir 75 dB.
- Rafspenna: 230V ± 10%, 50Hz ± 1%.
- Þessi rafmagnstalía er gerð fyrir notkun í hitastigi á milli 5°C og 40°C og rakastig undir 50%. Hæð yfir sjávarmáli: Hámark 1000 m.
- Við geymslu á tækinu má hitastigið vera á milli
-25°C og 55°C. Hámarks hitastig má aldrei fara yfir 70°C.
- Notandi tækisins ætti að lyfta hlassinu frá gólfinu með lágmarkshraða. Stálvírinn ætti að vera strekktur áður en hlassinu er lyft.
- Mótor (14) rafmagnstaliunnar er útbúinn hitaútsláttaröryggi. Þess vegna getur verið að mótor (14) tækisins stöðvist á meðan verið er að nota rafmagnstalíuna. Hann fer svo sjálfkrafa aftur í gang eftir að mótorinn hefur náð að kólna.
- Þessi rafmagnstalía er ekki útbúin öryggi sem slær út við of mikinn þunga. Þess vegna ætti ekki að nota tækið áfram þegar hitaöryggið hefur slegið út. Ef svo er, er vanalega of mikill þungi á talíunni.
- Látið hlass ekki hanga án eftirlits án þess að tryggja það vel áður.
- Tryggið tækið með 10A útsláttaröryggi eða 10mA lekarofa til þess að hlífa rafrásinni.
- Notið rofana (4/5) ekki til þess að slökkva á tækinu. Þessir rofar eru eingöngu til þess gerðir að stöðva tækið í neyðartilvikum.
- Áður en notkun er hafin skaltu ganga úr skugga um að stálvírinn (6) sé rétt bræddur upp á keflið (3) og að millibilið á milli hankanna sé minna en breidd stálvírsins (mynd 3).
- Gakktu einnig úr skugga um að hlassið hangi rétt í króknum (8) eða ef umvinda er notuð að það hangi rétt í aukakróknum (16) og haltu ávallt öruggu millibili á milli hlassa og stálvírs (6).
6.2 Notkun (mynd 11)
- Athugaðu hvort neyðarstopprofinn (9) sé inni. Snúðu rauða hnappinum réttsælis til þess að hann smellist út.
- Þrýstu inn þrýstirofanum ▲ (10) til þess að lyfta upp hlassinu.
- Þrýstu inn þrýstirofanum ▼ (10) til þess að slaka hlassinu.
- Rofi fyrir sjálfvirkan stöðvara (5): Þegar hámarks lyftihæð hefur verið náð þrýstir útsláttarlóðið (7) rofanum fyrir sjálfvirka stöðvun (5) upp. Við það verður rofinn gerður virkur og ekki er hægt að lyfta hlassinu hærra.
- Rofi fyrir hámarks útdrátt á vír (4): Þegar hlassið er komið niður í lægstu mögulegu stöðu verður rofi gerður virkur sem kemur í veg fyrir að hægt sé að slaka hlassinu lengra niður. Þessi endarofi myndi einnig stöðva talíuna ef hún snýst í ranga átt (krókur hreyfist á öfuga átt við þá átt sem gefin er upp á fjarstýringunni). • Þegar þrýst er á neyðarstopprofann (9)
stöðvast rafmagnstalían.
- Ef neyðarástand kemur upp skaltu þrýsta tafarlaust á neyðarrofann (9) til þess að stöðva rafmagnstaliúna. Ekki er hægt að stýra rafmagnstalíunni á meðan neyðarstopprofinn er virkur.
Ef rafmagnsleiðsla þessa tækis er skemmd verður að láta framleiðanda, viðurkenndan þjónustuaðila eða annan fagaðila skipta um hana til þess að koma í veg fyrir tjón.
8. Hreinsun, umhirða og pöntun varahluta
Hætta!
Taktu tækið úr sambandi við straum áður en það er þrifið.
8.1 Hreinsun
- Haldið hlífum, loftrifum og mótorhúsi tækisins eins lausu við ryk og óhreinindi og hægt er. Þurrkið af tækinu með hreinum klút eða blásið af því með háþrýstilofti.
- Við mælum með því að tækið sé hreinsað eftir hverja notkun.
- Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og örlítilli sápu. Notið ekki hreinsiefni eða ætandi efni; þessi efni geta skemmt plastefni tækisins. Gangið úr skugga um að það komist ekki vatn inn í tækið. Ef vatn kemst inn í rafmagnsverkfæri, eykst hætta á raflosti.
8.2 Umhirða
Hætta! Gangið úr skugga um að tækið sé ekki í sambandi við straum á meðan það er hirt.
- Einn snúningur tækis samsvarar því að lyfta hlassi og slaka því einu sinni. Með reglulegri athugun á tæki er átt við athugun eftir hverja 100 snúninga.
- Yfirfarið reglulega hvort að endaútsláttarrofarnir virki rétt. Yfirfarið eins og hér er lýst: Þegar að stálvírinn hefur náð hámarkslyftihæð verður endaútsláttarrofinn (5) gerður virkur sjálfkrafa. Mótor (14) tækisins verður að stöðvast. (Athugið tækið án þunga).
Þegar að stálþráðurinn (6) er kominn eins langt út og hægt er stöðvar endaútsláttarrofinn (4) tækið. Mótor (14) tækisins verður að stöðvast.
finn (4) tækið. Mótor (14) tækisins verður að stöðvast.
Yfirfarið reglulega rafmagnsleiðslu (12) og stýrileiðslu (13) tækisins. - Smyrja verður stálvírinn (6) og umvinduna (15) á 200 snúninga millibili. - Athuga verður á 30 snúninga millibili hvort að stálþráðurinn (6) sé í góðu ásigkomulagi eins og sýnt er á mynd 4. Ef að stálþráðurinn er skemmdur verður að skipta um hann samkvæmt þeim upplýsingum sem gefnar eru upp. - Á 1000 snúninga millibili verður að athuga hvort að festingarboltar bita (1) og umvindu (15) séu vel hertir. - Á 1000 snúninga millibili verður einnig að athuga hvort að krókarnir (8/16) og umvindan (15) séu í góðu ásigkomulagi. - Smyrjið taugina, keðjuna, drifið, legur og króka. - Yfirfarið hluti sem uppnotast á 1000 lyftinga millibili, eins og: Taug, keðju, króka, bönd bremsuklossa. - Athugið fyrir hverja notkun á talíunni hvort að neyðarstopprofinn (9) og þrýstirofinn (10) séu í góðu ásigkomulagi. - Yfirfarið bremsukerfi á 1000 snúninga millibili. Ef að mótor tækisins (14) fer að gefa frá sér óvenjuleg hljóð eða ef að tækið getur ekki lyft upp klassi innan þungamarka getur verið að yfirfara verði bremsukerfið: - Skiptið um skemmda eða uppnotaða hluti og geymið bókhald yfir það. - Látið fagaðila vinsamlegast sjá um að gera við tækið að öðru leyti. - Látið einungis viðurkenndan fagaðila um að gera við rafmagnstækið.
8.3 Pöntun varahluta:
Þegar að varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði að vera tilgreind;
Gerð tækis • Gerðarnúmer tækis • Númer tækis - Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á. Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-gmbh.info
Þetta tæki er afhent í umbúðum sem hlífa tækinu fyrir skemmdum við flutninga. Þessar pakkningar eru endurnýtanlegar eða hægt er að endurvinna þær. Þetta tæki og aukahlutir þess eru úr mismunandi efnum eins og til dæmis málmi og plastefnum. Skemmd tæki eiga ekki heima í venjulegu heimilissorpi. Til þess að tryggja rétta förgun á þessu tæki ætti að skila því til þar til gerðra sorpmóttökustöðva. Ef þér er ekki kunnugt um þessháttar sorpmóttökustöðvar ættir þú að leita til bæjarskrifstofu varðandi upplýsingar.
10. Geymsla
Geymið tækið og aukahluti þess á dimmum, þurrum og frostlausum stað þar sem börn ná ekki til. Kjörhitastig geymslu er á milli 5 og 30 °C. Geymið rafmagnsverkfæri í upprunalegum umbúðum.

Sérstök skilyrði fyrir lönd Evrópubandalagsins:
Kastið ekki notuðum rafmagnstækjum í venjulega ruslatunnu.
Samkvæmt reglugerð fyrir Evrópu 2012/19/EU um gömul rafmagnstæki og samkvæmt breytingum í lagasetningu hverrar þjóðar sambandsins verður að safna raftækjum aðskilið og koma þeim í sérstaka endurvinnslu í þágu umhverfisverndar.
Í staðinn fyrir að senda tækin til baka er eigandi þeirra hvattur til að vinna að því að rétt endurvinnsla eigi sér stað þegar hann afsalar sér tækinu sem eigandi. Það er mögulegt að afhenda tækið til sérstakrar söfnunarstofnunar, sem sér um endurvinnslu tækisins samkvæmt lögum hinna ýmsu þjóða um endurvinnslu og sorp. Þetta á samt ekki við um viðbótarhluti, sem innihalda ekki rafmagnshluta.
Eftirprentun eða önnur fjölprentun fylgiskjala og leiðarvísa vörunnar, líka í úrdrætti, er ekki leyfileg nema skriflegt samþykki frá iSC GmbH komi til.
Það er áskilið að tæknilegar breytingar séu leyfilegar.
Þjónustuupplýsingar
Við höfum faglega þjónustuaðila í öllum þeim löndum sem ábyrgðarskírteini er gefið út í og er heimilisfang þeirra gefið upp í ábyrgðarskírteininu. Þessir þjónustuaðilar eru til staðar fyrir þig varðandi viðgerðir, pantanir varahluta og íhluta.
Athuga verður að sumir eftirtaldir hlutir tækisins eru hlutir sem notast upp við notkun eða á annan náttúrulegan hátt og/eða eftirfarandi hlutir eru nauðsynlegir vegna notkunar eða slits.
| Grein Dæmi | |
| Slithlutir* Stálvír, Krókur, Umvinda, Aukakrókur | |
| Notkunarefni/hlutir sem notast upp* | |
| Hlutir sem vantar |
* verða ekki endilega að fylgja!
Vegna galla eða bilana biðjum við þig um að hafa samband við okkur og skrá það á netinu undir www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast athugið að lýsa biluninni nákvæmlega og svarið endilega eftirfarandi spurningum:
Virkaði tækið fyrst eða var það bilað strax frá upphafi? - Varð þér vart við eitthvað óvenjulegt áður en bilunin kom til (greining bilunar)? • Hvaða bilun lýsir sér í tækinu samkvæmt þinni skoðun (aðalbilun)? Lýsið biluninni.
Ábyrgðarskírteini
Kæri viðskiptavinur,
Vörur okkar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti. Ef að tækið virkar þrátt fyrir það ekki fullkomlega, þykir okkur það mjög leitt og biðjum þig endilega um að hafa samband við þjónustuaðila okkar. Heimilisfang er að finna neðar á þessu ábyrgðarskjali. Þú getur einnig haft samband við verslunina þar sem að tækið var keypt. Varðandi gildi ábyrgðarskírteinisins gildir eftirfarandi:
- Ábyrgðarskírteini þessa tækis gildir eingöngu fyrir einkanotendur, þ.e.a.s. persónur sem nota þetta tæki ekki til atvinnunota né í annarri sjálfstæðri vinnu. Þetta ábyrgðarskírteini lýsir aukalegri ábyrgð sem að neðan nefndur framleiðandi ábyrgist viðskiptavinum sínum umfram þær ábyrgðir sem reglur og lög gefa kröfur um. Þín almenna lagalega ábyrgð helst ósnert þrátt fyrir þessa ábyrgðaliði. Ábyrgðarþjónusta okkar er þér að kostnaðarlausu.
- Ábyrgðin nær eingöngu yfir galla á nýju tæki sem þú hefur fest kaup á sem var framleitt af neðangreindum framleiðanda. Ábyrgðin nær einungis yfir galla sem eru vegna efnisgalla eða framleiðslugalla og takmarkast við okkar ákvörðun um að endurbæta gallan eða skipta út tækinu.
Vinsamlegast athugið að tækin okkar eru hvorki framleidd né hönnuð fyrir notkun í atvinnuskyni, í iðnaði eða notkun sem bera má saman við slíka notkun. Ábyrgðarsamningurinn fellur úr gildi ef að tækið er notað innan ábyrgðartímans í atvinnuskyni eða annan slíkan sambærilegan hátt.
- Ábyrgð okkar gildir ekki yfir:
- Skemmdir á tæki sem til verða vegna þess að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum varðandi samsetningu þess, rangrar uppsetningar, ef að ekki hefur verið farið eftir notandaleiðbeiningunum (til dæmis ef að tækið hefur verið tengt við ranga rafspennu eða rafstraum) eða ef að ekki hefur verið farið eftir leiðbeiningum tækis varðandi umhirðu og öryggi þess eða ef að tækið hefur verið notað undir óeðlilegum náttúruáhrifum eða vegna of lítillar umhirðu og þjónustu.
- Skemmdir á tæki, sem til verða vegna misnotkunar eða óviðeigandi notkunar (til dæmis of mikið álag á tæki eða ef að notaðir eru rangir íhlutir eða aukahlutir), ef að utanaðkomandi hlutir komast inn í tækið (eins og til dæmis sandur, steinar eða ryk, flutningaskemmdir), vegna rangnotkunar eða utanaðkomandi álags (eins og til dæmis skemmdir við það að tækið fellur niður).
- Skemmdir á tæki eða hlutum tækisins, sem til verða vegna notkunar þess eða vegna annarra utanaðkomandi eðlilegra uppnotkunar.
- Ábyrgðartíminn er 60 mánuðir sem byrjar við dagsetningu kaups á tæki. Tilkynna verður um skemmdir eða galla á tæki áður en að ábyrgðin fellur úr gildi og innan tveggja vikna eftir að skemmdin er fundin. Ábyrgð tækisins fellur úr gildi eftir að ábyrgðartímabilið er útrunnið. Ef að gert er við tæki eða því skipt út vegna ábyrgðar, leiðir það ekki til þess að ábyrgðartímabilið lengist og ekki gildir ný ábyrgð á nýja tækinu eða varahlutunum sem settir hafa verið í það. Þetta gildir einnig um þjónustu sem hefur verið framkvæmd til staðar.
- Til þess að fá ábyrgðarþjónustu, hafið þá samband við: www.isc-gmbh.info. Vinsamlegast geymið kaupkvittanir og önnur skjöl sem staðfesta kaupin á nýju tæki. Tæki sem send eru til viðgerðar sem ekki hafa tilskildar kvittanir eða tæki án tækismerkingar missa alla ábyrgð þar sem ekki er hægt að tilgreina þau tæki. Ef að skemmdin á tækinu er innan ábyrgðarramma þess færð þú umsvifalaust viðgert eða nýtt tæki í stað þess gamla.
Varðandi hluti sem notast upp og hluti sem vantar bendum við á takmarkanir ábyrgðar þessa tækis sem eru í notandaleiðbeiningunum.