TRÅDFRI 303.648.00 - Prise murale IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis TRÅDFRI 303.648.00 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um TRÅDFRI 303.648.00 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Prise murale á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína TRÅDFRI 303.648.00 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. TRÅDFRI 303.648.00 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK TRÅDFRI 303.648.00 IKEA
Notkun á þráðlausum afrofa
Kveikja - hækka birtustig. Ýttu á hnappinn til að kveikja á IKEA Home smart vörunni. Ýttu og haltu niðri til að hækka birtustig.
Ýttu á hnappinn til að slökkva á IKEA Home smart vörunni. Ýttu og haltu niðri til að lækka birtustig.
Pörun: Bættu IKEA Home smart vöru við kerfið. Skoðaðu leiðbeiningar hér að neðan:
BÆTA VÖRUM VIÐ ÞRÁÐLAUSAN AFROFA
Þegar þráðlaus afrofi er seldur með IKEA Home smart vöru (sömu pakkningu) er þegar búið að para tækin saman.
Til að bæta við fleiri vörum þarf að framkvæma neðangreind skref:
Gakktu úr skugga um að kveikt sé á meginaflgjafa.
- Haltu rofanum nálægt IKEA Home smart vörunni sem þú vilt bæta við (ekki meira en 5 cm fjarlægð).
- Ýttu og haltu pörunarhnappinum inni a.m.k. 10 sekúndur, hnappurinn er undir lokinu að aftan.
- Rautt ljós lýsir stöðugt á afrofanum. Ljós á IKEA Home smart vörunni byrjar að blikka rólega einu sinni til að gefa til kynna að hún hafi verið pöruð.
Hægt er að para allt að 10 IKEA Home smart vörur við einn rofa.
Paraðu eina vöru í einu. Ef IKEA Home smart vörurnar eru nálægt hvor annarri skaltu taka vörurnar úr sambandi sem þegar hafa verið paraðar.
ENDURSTILLA
Fyrir þráðlausan rofa til að slökkva og kveikja:
Ýttu 4 sinnum á pörunarhnappinn innan 5 sekúnda.
SKIPT UM RAFHLÖDU
Þegar þráðlaus rofi til að slökkva og kveikja er reglulega notaður, eins og ætlast er til, duga rafhlöðurnar í um það bil 2 ár.
Þegar það er kominn tími á að skipta um rafhlöður blikkar rautt LED ljós þegar þú slekkur/kveikir á rofanum.
Opnaðu lokið ofan og skiptu um rafhlöðu með nýrri CR2032 rafhlöðu.
VARÚÐ!
Sprengihætta getur stafað af því að skipta út rafhlöðu fyrir aðra af rangri tegund. Fargaðu rafhlöðunni í samræmi við leiðbeiningar.
MIKILVÆGT!
- Þráðlaus rofi til að slökkva og kveikja er aðeins ætlaður til notkunar innanhúss og við hitastig frá 0° C til 40° C.
- Ekki skilja þráðlausa rofann eftir í beinu sólarljósi eða nálægt hitagjöfum, þar sem það gæti ofhitnað.
- Drægi á milli þráðlausa rofans og móttökutækisins er mælt á opnu svæði. Mismunandi byggingarefni og staðsetning tækjanna geta haft áhrif á drægi þráðlausu tengingarinnar.
UMHIRDULEIDBEININGAR
Til að þrífa þráðlausa rofann til að kveikja og slökkva ætti að strjúka af honum með rökum klút.
ATHUGADU!
Ekki nota sterk hreinsiefni eða kemísk efni, þar sem það getur skemmt vöruna.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Tegund: E1743 þráðlaus afrofi
Inntak: 3,0V, CR2032 Rafhlaða
Drægi: 10m í opnu rými
Aðeins til notkunar innanhúss
Vinnslutíðni: 2405-2480MHz
Útgangsafl: 3dBm
Framleiðandi: IKEA of Sweden AB
Heimilisfang:
Box 702, 34381 ALMHULT

Táknið með yfirstrikuðu ruslatunnunni þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni skal skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda svona vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr magni úrgangs sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfi. Þú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.
TRADL0S PÄ/AV-BRYTERFUNKSJONER
PÄ - Dimme opp
Trykk for a sla pKa IKEA Home smart-produktet ditt.