TRETAKT 005.565.13 - Prise murale IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis TRETAKT 005.565.13 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um TRETAKT 005.565.13 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Prise murale á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína TRETAKT 005.565.13 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. TRETAKT 005.565.13 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK TRETAKT 005.565.13 IKEA
Hægt er að nota DIRIGERA miðstöðina til að stjórna TRETAKT snjalltenginu í gegnum IKEA Home snjallappið.

IKEA Home snjallappið
Fyrir Apple tæki skaltu hlaða niður appinu með App Store. Fyrir Android tæki skaltu hlaða niður forritinu með Google Play Store.
Athugið: Ef þú ert með TRÅDFRI miðstöð vinsamlegast notaðu IKEA Home smart 1 appið.
Að byrja með DIRIGERA miðstöðina
Sæktu IKEA Home snjallappið og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að bæta dimmer/rofanum yfir í IKEA Home snjallkerfið þitt.
Pörun stýrisbúnaðar við snjalltengið þitt
Þegar snjalltengið er selt ásamt fjarstýringu (í sama pakka) eru þau þegar pöruð. Til að bæta við fleiri snjalltengjum skaltu bara endurtaka skrefin hér að neðan:
- Gakktu úr skugga um að snjalltengið þitt sé tengt og kveikt sé á aðalstraumnum.
- Haltu stýrisbúnaðinum nálægt snjalltenginu sem þú vilt bæta við (ekki í
- Haltu inni pörunarhnappnum í að minnsta kosti 10 sekúndur. Rautt LED-ljós mun lýsa stöðugt á stýrisbúnaðinum. Hvítt ljós byrjar að dofna og blikka einu sinni á snjalltenginu þínu til að gefa til kynna að það hafi verið parað með góðum árangri.
Hægt er að para allt að 10 snjalltengi við 1 stýrisbúnað. Gættu þess að para eitt í einu. Ef snjalltengin eru nálægt hvort öðru skaltu aftengja þau sem þegar hafa verið pöruð frá innstungunni.
Kveikt eða slökkt á tækinu þínu
Ýttu einu sinni á Kveikt/Slökkt hnappinn á snjalltenginu til að kveikja á því. Ýttu einu sinni í viðbót á hnappinn til að slökkva á tenginu.
Þegar fjarstýring er notuð: Ýttu á Kveikt hnappinn ( | ) til að kveikja á snjalltenginu. Ýttu á Slökkt hnappinn (o) til að slökkva á snjalltenginu.
Snjalltengið sett á verksmiðjustillingu
Ýttu á endurstillingarhnappinn ofan á snjalltenginu með oddhvössum hlut í
að minnsta kosti 5 sekúndur þar til LED byrjar að blikka.
MIKILVÆGT!
- Snjalltengið er eingöngu til notkunar innanhúss og er hægt að nota við hitastig frá 0°C til 35°C.
- Ekki skilja snjalltengið eftir í beinu sólarljósi eða nálægt neinum hitagjafa, þar sem það getur ofhitnað.
- Ekki hafa snjalltengið í blautu, röku eða of rykugu umhverfi þar sem það getur valdið skemmdum.
- Bilið milli stýrisbúnaðar og móttökutækis er mælt undir berum himni. Mismunandi byggingarefni og staðsetningar eininganna geta haft áhrif á þráðlaust tengisvið.
VIÐVÖRUN:
- Tengið ekki eftir hvoru öðru í röð.
- Ekki breiða yfir tækið þegar það er í notkun.
- Takið tækið úr sambandi með því að toga í tengilinn.
- Notist eingöngu innandyra á þurrum stað.
- Ekki ofhlaða tækið.
- Fargið tækinu ef það skemmist.
- Aðeins ætlað fullorðnum til notkunar. Þetta er ekki leikfang og ekki ætlað börnum til notkunar.
Leiðbeiningar um umhirðu
Þrífið snjalltengið með mjúkum og þurrum klút.
Athugið!
Notaðu aldrei slípiefni eða leysiefni þar sem slíkt getur skemmt vöruna.
Vöruþjónusta og viðhald
Ekki gera tilraun til að gera við þessa vöru upp á eigin spýtur, því ef þú opnar eða fjarlægir lokin gætir þú orðið fyrir rafstraumi eða öðrum hættum.
Geymdu þessar leiðbeiningar til síðari nota.
Tæknilýsing
Gerð: TRETÁKT snjalltengi
Tegund: E2209
Inntak: 230V, 50/60Hz
Svið: 10 m í opnu rými.
Aðeins til notkunar innanhúss
Vinnslutíðni: 2405-2480 MHz
Útgangsafl: 10 dBm
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.