Australia 415 - Barbecue Outdoorchef - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis Australia 415 Outdoorchef á PDF sniði.

Outdoorchef Australia 415 - Grill
📄 84 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice Outdoorchef Australia 415 - page 76
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um Australia 415 Outdoorchef

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Barbecue á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína Australia 415 - Outdoorchef og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. Australia 415 vörumerkisins Outdoorchef.

NOTENDAHANDBÓK Australia 415 Outdoorchef

ATHUGID: Ekki þarf að nota alla brennarana í einu. Þetta fer eftir matreiðslunni og magni hverju sinni.

KVEIKT Á ADALBRENNARA

VARÚÐ: Ekki má nota innrauða brennarann ef lokið er á.

  1. Gangið úr skugga um að allar tengingar milli gasslöngunnar, gasþrýstijafnarans og gaskútsins séu tryggilega festar. (Fylgi leiðbeiningum í kaflanum LEKAPRÓFUN).
  2. Opnið lokið á grillið. VARÚÐ: Kveikið aldrei upp í grillið eða setjið grillpönnuna yfir innrauða brennarann með lokið á. Það gæti valdið upplitun á grilllokinu og aflögun á grillpönnunni.
  3. Skrúfið frágasinn á gaskútnum.
  4. Ýtið á gasstilli hnappinn sem merktur er „POWER BURNER" og snúið honum rangsælis á stillinguna. Ýtið á kveikihnappinn og haldið honum inni þar til neisti kviknar og gasið logar.
  5. Ef ekki kviknar á gasinu innan þriggja sekúndna skal stilla gasstillihnappinn á slökkt í tvær mínútur meðan gasið sem tókst ekki að brenna gufar upp. Endurtakið svo skref 2 til 4.
  6. Ef ekki er hægt að kveikja á innrauða brennaranum eftir þrjár tilraunir skal athuga orsakir þess (eins og lýst er í kaflanum GERT VID BILUN).

ÁSTRALSKA GRILLKERFID FRÁ OUTDOORCHEF

Ástralía er þekkt fyrir mikla grillmenningu. A-LÍNAN frá OUTDOORCHEF er enginn eftirbátur þegar kemur að því að grilla. Hún býður upp á mikil gæði og traustar vörur. Vinnusvæðið er stórt og stendur á stórum hjólum sem auðvelt er að stýra. Harðgerir brennarar úr steypujárni halda hitanum vel og dreifa honum jafnt yfir grillflötinn. Innbyggður hitamælir sér um að mæla hitann jafnt og þétt og sérhönnuð neistapoka vernda grillmatinn fyrir bruna vegna fitutauma.

BEINN HITI OBEINN HITI Fyrir beina grillun og matreiðslu: Setjið matinn yfir brennaram sem kveikt er á.Outdoorchef Australia 415 - ÁSTRALSKA GRILLKERFID FRÁ OUTDOORCHEF - 1

Fyrir óbeina grillun, matreiðslu og bakstur: Setjið matinn fyrir miðju, setjið lokið niður og kveikið aðeins á báðum ytri brennurunum.Outdoorchef Australia 415 - ÁSTRALSKA GRILLKERFID FRÁ OUTDOORCHEF - 2

NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR ÁSTRALSKT GASGRILL

  1. Setjið matinn á grillgrindina eða -plötuna og stillið hitann eftir þörfum

Outdoorchef Australia 415 - NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR ÁSTRALSKT GASGRILL - 1

  1. RÁÐLEGGING: Notið aðeins einn brennara þegar um litinn grillmat er að ræða. Þegar grillað er með lokuðu loki styttist grilltíminn og dregur úr gasnotkun.
  2. Stillið gasstillið alltaf á eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gasið á gaskútnum. Skrúfa verður fyrir gaskútinn jafnvel þótt hann sé tómur.

GRILLAÐ MEÐ INNRAUDUM BRENNARA

  1. Forhitið grillið upp í 5 mínútur á stillingu með LOKI.
  2. Setjið matinn á grillgrindina. Innraudi brennari er hentugur fyrir hrað- eða létta steikingu.
  3. VARÚÐ: Ekki má nota innrauða brennara eða setja grillpönnu yfir hann ef lokið er á. Það gæti valdið plitun á grilllokinu og aflögun á grillpönnunni.
  4. Stillið gasstillið alltaf á eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gasið á gaskútnum. Skrúfa verður fyrir gaskútinn jafnvel þótt hann sé tómur.

OUTDOORCHEF-grillið er enn betra með réttum aukabúnaði. Fáðu þér tilraunastarfsemi og sköpunargleði.

Finna má alla fylgihluti fyrir grillið á OUTDOORCHEF.COM

ÞEGAR BÚIÐ ER AÐ GRILLA

  1. Stillið gasstillihnappinn fyrir hvern brennara á

Outdoorchef Australia 415 - ÞEGAR BÚIÐ ER AÐ GRILLA - 1

  1. Skrúfið fyrir gasið á gaskútnum.
  2. Leyfið grilinu að kólna alveg og þrýfið það svo.
  3. Hyljið grillið með vefibreislu.

ÞRIF

Aðeins ber að hreinsa grillið vandlega eftir hverja notkun þar sem mesta fitan gufar upp eða endar í safnbakkanum. Notið grillbursta með messinghárum til að hreinsa grillgrindina og -plötuna (ekki stálbursta).

Þegar þrífa á betur skal nota BARBECUE-CLEANER frá OUTDOORCHEF. Einnig er hægt að nota nælonsvamp og sápuvatn til að losna við dauðar matarleifar. Takið grillgrindina og -plötuna af og þrífið steypujárnsbrennarana. Ekki þarf að þrífa innrauða brennarann þar sem hann brennir upp fituna á meðan grillað er. Að auki er hægt að taka safnbakkann út, tæma hann og hreinsa með BARBECUE-CLEANER frá OUTDOORCHEF. MIKILVÆGT: Ef hreinsiefni eru notuð við þrif verður að láta grillið þorna vel á eftir. Til að flýta fyrir þurrkun má kveikja á grillinu og láta það bræða í nokkrar mínútur með opnu loki á stillingunni.

NOTKUN BARBECUE-CLEANER FRÁ OUTDOORCHEF

MIKILVÆGT: Ekki má vera kveikt á grillinu meðan það er þrifið með BARBECUE-CLEANER frá OUTDOORCHEF. Notið helst hanska og hlífðargleraugu ef mögulegt er. Úðið vel á grillið eða útbúnaðinn meðan það er enn lítillega heitt og látið standa 15-30 mínútur. Úðið aftur á óhreina fleti, skolið svo vandlega af með vatni og látið þorna.

ATHUGIÐ: Ekki má nota Barbecue-Cleaner frá OUTDOORCHEF á pólýhúðaða fleti.

VIÐHALD

Reglubundið viðhald grillsins tryggir rétta virkni. Athugið alla hluta sem leið að minnsta kosti tvisvar á ári og hvert sinn eftir langan tíma í geymslu. Köngulær og önnur skordýr geta valdið stíflum sem verður að lagfæra fyrir notkun.

Það kviknar ekki á brennarann:

  • Athugið hvort opið sé fyrir gasstreymið á kútnum. Gangið úr skugga um að nóg gas sé á kútnum.
  • Athugið hvort neistar frá rafskautinu hlaupa yfir í brennarann.

Enginn neisti:

Gangið úr skugga um að rafhlaðan hafi verið sett rétt í (á grillum með rafkveikingu). Fjarlægðin milli brennara og rafskauts má ekki vera meiri en 5-8 mm. - Athugið hvort snúrur rafkveikingu og rafskauti eru vel festar. - Setjið nýja rafhlöðu (gerð AA, LR02, 1,5 volt) í rafkveikinguna (á grillum með rafkveikingu).

Ef ekki tekst að koma grillinu í gang með framangreindum úrræðum skal hafa samband við söluaðila.

NOTENDAÁBYRGD

1. Ábyrgð og tenging við önnur réttindi kaupanda

Með kaupum á þessari OUTDOORCHEF vöru hjá viðurkenndum söluaðila færðu sem kaupandi (notandi) hennar afhenta ábyrgð framleiðandans Outdoorchef AG (OC).

Ábyrgð framleiðanda gefur þér færi á að leggja fram kröfur á hendur ábyrgðarveitanda í samræmi við ákvæði þessa samnings. Ábyrgðarkröfur gilda, auk annarra samningsbundinna eða lagalegra réttinda þinna. Þessi ábyrgð útilokar ekki eða takmarkar önnur réttindi. Þar af leiðandi getur þú einnig lagt fram aðrar samningsbundnar eða lagalegar kröfur á hendur viðkomandi ábyrgðaraðilum hverju sinni. Þannig hefur þessi ábyrgð til dæmis ekki áhrif á kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð.

Sem kaupandi hefurðu einnig sérstakan möguleika á að leggja fram samningsbundnar ábyrgðarkröfur gagnvart seljandanum. Þá er til dæmis hægt að rifta kaupsamningnum aðeins gagnvart seljandanum en ekki gagnvart OC innan ramma þessarar ábyrgðar.

2. Samningsaðilar og ábyrgðarskilmálar

Ábyrgðarveitandi er OC. Rétt til ábyrgðar eiga allir kaupendur sem kaupa nýja vöru til einkanota í viðurkenndri verslun. Leggja skal fram sölukvittun til sönnunar á kaupum. Kaup til einkanota eru þegar varan er keypt af einstaklingi yfirleitt í þeim tilgangi að nota hana án þess að það sé í atvinnuskyni eða í tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur.

Ef nýta á ábyrgðina verður að leggja fram ábyrgðarkröfuna fyrir ábyrgðarveitanda innan tveggja mánaða frá því að galli kemur í ljós. Að öðrum kosti er ekki hægt að leggja fram ábyrgðarkröfur. Ef um augljósa galla er að ræða hefst fresturinn við móttöku vörunnar. OC mælir með því að skoða vöruna vegna galla strax við móttöku.

3. Gildissvið

Ábyrgðin gildir frá kaupdegi og er veitt fyrir eftirfarandi tilvikum, að því tilskildu að engin útilokun sé til staðar samkvæmt 4. tölulið:

  • 3 ár fyrir tegnum á gljábrenndu kúlunni (neðri hluti og lok). 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á gljárenndu grillgrindinni.
  • 3 ár fyrir ryð eða bruna í gegn á öllum hlutum úr ryðfríu stáli. Galli í emaleringu fyrir fyrstu notkun. 2 ár fyrir alla aðra framleiðslu-/efnisgalla.

Til galla teljast ekki smávægilegar ójöfnur, litamunur á emaleringu eða minniháttar útlitsgallar eins og á suðupunktum á brennaralokinu eða festingum, sem hafa ekki áhrif á virkni vörunnar.

Ef um ábyrgðartilvik er að ræða mun OC annaðhvort skipta um skemmda eða gallaða hluti eða skipta út vörunni í heild sinni, að eigin vali. Að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að vörunni verði skipt út fyrir sambærilega vöru af nýrri gerð, t.d. fyrir aðra tegund. Svo framarlega sem virkni vörunnar er ekki skert vegna gallans og að því marki sem telst sanngjarnt fyrir þig sem viðskiptavin getur einnig hugsast að þér verði boðin fullnægjandi fjárbætur í stað viðgerðar.

Á meðan úrvinnsla ábyrgðarinnar fer fram (skoðun og hugsanlega skipti á vöru) er ekki hægt að leggja fram kröfu gegn OC um nýja vöru eða frekari bætur. Úrbætur vegna galla lengja hvorki ábyrgðartímann né endurnýja hann. Hlutir sem skipt hefur verið út verða eign OC. Aðeins þegar skipt hefur verið um alla vöruna hefst ábyrgðartíminn að nýju.

Allar frekari kröfur hendur ábyrgðarveitanda falla ekki undir þessa ábyrgð. Kröfur af öðrum lagalegum ástæðum eru þó ekki útilokaðar eða takmarkaðar (sjá einnig hér að framan í kafla 1).

Ábyrgðin gildir ekki í eftirfarandi tilvikum:

Eðlilegt slit við fyrirhugaða notkun, einkum á almennum slithlutum eins og trekt, neistapokum, brennara, hitamæli, kveikingu og rafliða, rafskauti, kveikitaug, gasslöngu, gasprystijafnara, hitaelementi, endurkastara, hlífðarfilmu úr áli, grill- eða kolagrind og kolaskál, kveikigrind og kola-/fitusafnbakka. - Skemmdir á málningu á notuðum vörum ef ekki er hægt að sanna að skemmdin var til staðar fyrir fyrstu notkun. Bilun og/eða skemmdir vegna óviðeigandi eða rangrar notkunar, einkum vegna þess að ekki var farið eftir notkunar- og öryggisleiðbeiningum eða viðhaldsleiðbeiningum (t.d. notkun á útigrillum innandyra, skemmdir vegna rangrar samsetningar, rangra þrifa á gljábræddum yfirborðsfleti trekarinnar eða grillgrindinni, vegna þess að lekaprófun var ekki framkvæmd eins og ráðlagt er í notkunarleiðbeiningunum, vegna notkunar á skaðlegum efnum, vegna annarrar notkunar en fyrirhugaðrar o.s.frv.). Bilun og/eða skemmdir sem stafa af inngripi eða viðgerðum framkvæmdum af aðilum sem OC hefur ekki viðurkennt. Bilun og/eða skemmdir vegna veðurs (t.d. haglel eða óveðurs). Bilun og/eða skemmdir sem valdi er af ásetningi eða gáleysi, svo framarlega sem OC ber ekki ábyrgð á þeim. Bilun og/eða skemmdir sem verða við flutning til kaupandans, svo framarlega sem ábyrgðarveitandinn ber ekki ábyrgð á þeim. Bilun og/eða skemmdir af völdum óviðráðanlegra orsaka. Bilun og/eða slitskemmdir vegna notkunar í atvinnuskyni (t.d. hótel- eða veitingarekstri).

5. Úrvinnsla ábyrgðar

Ef um ábyrgðartilvik er að ræða skaltu hafa samband eins fljótt og auðið er við okkur eða viðurkenndan söluaðila (lista yfir söluaðila er að finna á www.outdoorchef.com) og tilgreina eftir því sem hægt er vöruna/hluta vörunnar, sölukvittun, raðnúmer og vörunúmer (koma bæði fram á upplýsingalímimiða á grillið; sjá fyrsta kaflann í notkunarleiðbeiningunum), ásamt heimilisfangi þínu. Þú mátt gjarnan láta mynd fylgja með lýsingunni á gallanum. Skilaðu vörunni til söluaðilans eða okkar svo við getum prófað vöruna og athugað hvort ábyrgðin gildi. Í réttmætum ábyrgðartilvikum munum við endurgreiða nauðsynlegan flutnings- og sendingarkostnað, annars munum við senda vöruna til baka á þinn kostnað.

Eftirfarandi fyrirtæki er fulltrúi fyrir skráð vörumerkið OUTDOORCHEF

Outdoorchef AG | Eggbühlstrasse 28 | Postfach | 8050 Zürich-Schweiz | www.outdoorchef.com

TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR

AUSTRALIA 315 G/AUSTRALIA 325 G

CE 0063

Gas Própan/bútan 30/31

Heildarafi 11.7 kW

Própan 546 g/klst. / 826 g/klst.

Stútur (28-30/37 mbar) 0,78 mm / merking: BD

Stútur (50 mbar) 0,68 mm / merking: AD

Gasprystingur Butan 28 mbar

Propan 37 mbar

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : Outdoorchef

Líkan : Australia 415

Flokkur : Grill