NOTENDAHANDBÓK CKF5200V Elvita
Uppsetning á tækinu þínu ..... 97
Lýsing á vörunni 101
Stjórnborð 103
Að nota tækið 104
Gagnlegar ráðleggingar 105
Hreinsun og umhirða 106
Bilanagreining 107
Förgun tækisins 108

Til eigin öryggis og til að tryggja rétta notkun, skaltu lesa þessar leiðbeiningar, þar með talið ábendingar og varúðarupplýsingar, áður en þú setur upp og notar tækið í fyrsta skipti. Til að koma í veg fyrir ónauðsynleg mistök og slys, er mikilvægt að allir notendur tækisins þekki til hlítar hvernig það starfar og öryggisbúnað. Geymdu þessar notkunarleiðbeiningar og gakktu úr skugga um að þær fylgi tækinu ef það er fært til eða selt (þannig er hver sá sem notar tækið á endingartíma þess upplýstur um rétta notkun tækisins og hvaða varúðarráðstafanir eru nauðsynlegar). Vinsamlegast fylgdu öryggisleiðbeiningunum í notandahandbók þessari til að tryggja öryggi mannslífa og eigna. Framleiðandinn tekur enga ábyrgð vegna skemmda sem hljótast af vanrækslu.
Öryggi fyrir börn og aðra berskjaldaða hópa
Börn frá 8 ára aldri og fólk með skerta líkamlega getu, skerta heyrn/sjón, skerta andlega getu eða án reynslu mega eingöngu nota tækið undir eftirliti ábyrgs einstaklings eða sé þeim kennd örugg notkun tækisins og þau geri sér grein fyrir öllum þeim hættum sem fylgja notkuninni. Börn mega ekki leika sér með tækið. Börn mega ekki hreinsa eða viðhalda tækinu án eftirlits.
Geymdu allt umbúðaefni þar sem börn ná ekki til (köfnunarhætta).
Ef þú ætlar að farga tækinu, skaltu taka aftengja það frá vegginnstungunni, skera síðan á snúruna (eins nálægt tækinu og hægt er) og taka af því hurðina (þannig að börn að leik eigi ekki hættu á rafstuði eða verði innlyksa í tækinu).
Ef þetta tæki kemur í stað eldra tækis sem útbúið er krækjulás á hurð eða loki, vertu þá viss um að gera læsinguna ónothæfa (taka hana af) áður en þú fargar tækinu. Þetta kemur í veg fyrir að það verði að dauðagildru fyrir barn.
Almennt öryggi

VIDVÖRUN! Þetta tæki er hannað til notkunar í heimilishaldi og álíka notkun, til dæmis:
– starfsmannaeldhús í verslunum, skrifstofum og öðrum vinnustöðum – bændabýlum og af viðskiptavinum á hótelum, mótelum og öðrum álíka dvalarstöðum – á gistiheimilum, farfuglaheimilum og sambærilegum stöðum – í veitingastarfsemi og svipuðu umhverfi sem ekki er smásöluumhverfi.
VIDVÖRUN! Ekki geyma efni í tækinu sem geta skapað sprengihættu,
eins og úðabrúsa sem innihalda eldfiman aflgjafa. VIÐVÖRUN! Hafi rafmagnsleiðslan skemmst skal skipt um hana af framleiðanda, þjónustufulltrúa framleiðanda eða öðrum til þess bærum einstaklingum (skemmd rafmagnsleiðsla er hættuleg).
VIÐVÖRUN! Sjáðu til þess að engin fyrirstaða sé fyrir loftopum tækisins, hvort sem um er að ræða loftop inni í eða á utanverðu tækinu. VIÐVÖRUN! Ekki nota nein verkfæri eða aðrar leiðir til að flýta afþíðingu, annað en það sem framleiðandinn ráðleggur að nota.
VIÐVÖRUN! Ekki skemma kælirásina. VIÐVÖRUN! Ekki nota nein raftæki inni í matgeymsluhólfum tækisins, nema þau séu af gerð sem framleiðandi tækisins mælir með.
VIÐVÖRUN – Kælimiðillinn og drifefnið í einangrunarefninu er eldfimt. Þegar tækinu er fargað skal það eingöngu gert á viðurkenndri sorpstöð. Ekki staðsetja tækið nálægt eldi.
VIÐVÖRUN! Gættu þess að rekast ekki í rafmagnsleiðsluna eða að hún skemmist þegar tækinu er komið fyrir.
VIÐVÖRUN! Ekki setja fjöltengi né færanlegan orkugjafa upp í grennd við tækið.
Skipta um ljósaperur
VIÐVÖRUN! Notandinn getur ekki skipt um ljósaperur! Hafðu samband við þjónustudeild ef einhver peran er skemmd. Þessi viðvörun á aðeins við um kæliskápa með glóperum.
Kæliefni
Kæliefnið ísóbúten (R600a) er notað í kælikerfi tækisins (það er náttúrulegt gas sem er tiltölulega umhverfisvænt en engu að síður eldfimt). Vertu viss um að enginn hluti kælikerfisins verði fyrir skemmdum meðan á flutningi eða uppsetningu stendur.
Kæliefnið (R600a) er eldfimt.
VIÐVÖRUN! Kæliskápar innihalda kæliefni og einangrunarefni sem eru eldfim. Kæliefnum og einangrunarefnum skal fargað á faglegan hátt þar sem þau geta leitt til augnskaða eða bruna.
Gættu þess að kælikerfisrásin sé ekki skemmd áður en þú sendir tækið í endurvinnslu.
VIÐVÖRUN! Eldhætta/eldfimt efni

Ef kælikerfið er skaddað:
– Forðastu opinn eld og hita og neistagjafa.
– Loftræstu kyrfilega herbergið sem tækið er staðsett í.
Það er hættulegt að breyta tæknigögnum og að breyta þessari vöru á nokkurn hátt
(mögulegt tjón á rafmagnsleiðslu getur leitt til skammhlaups, eldsvoða og/eða rafhöggs).
Rafmagnsöryggi
- Ekki nota framlengingu með rafmagnssnúrunni.
- Gakktu úr skugga um að klóin sé ekki brotin eða skemmd. Brotin eða
skemmd kló getur ofhitnað og valdið eldi.
- Gakktu úr skugga um að aðgengi sé að rafmagnskló tækisins.
- Togið ekki í rafmagnssnúruna.
- Ef innstungan er laus í sér, skaltu ekki tengja tækið við hana (sé það gert er hætta á rafhöggi eða eldsvoða).
- Ekki nota tækið án innri ljósaperuhlífar.
- Tækið er hannað til að tengjast
220–240 V AC/50 Hz, 1-fasa. Ef staðbundnar spennusveiflur verða til þess að spennan getur sveiflast utan þessara marka, þá skal tengja sjálfvirkan spennustilli milli vegginnstungu og tækis (málafl 350 W). Ekki tengja önnur tæki við sömu innstungu og tækið er tengt við. Vegginnstungan og klóin skulu vera jarðtengd. Vegginnstunga og kló skulu vera jarðtengd.
Dagleg notkun
Ekki geyma eldfim gös eða vökva í tækinu (slíkt leiðir til hættu á sprengingu).
Ekki nota nein raftæki inni í tækinu (til dæmis rafknúin rjómaístæki, blandarar o.fl.).
Aftengdu tækið ætíð með því að taka í klóna (ekki með því að toga í snúruna).
Ekki setja heita hluti nálægt plast hlutum tækisins.
Ekki leggja matvæli að loftúttakinu í afturhlið.
Geymdu forpakkaðan frosinn mat í samræmi við leiðbeiningar framleiðandans.
Fara skal stranglega eftir geymsluráðleggingum framleiðanda tækisins. Skoðaðu viðkomandi geymsluleiðbeiningar.
Ekki setja drykki sem innihalda kolsýru í frystihólfíð (yfirprýstingur myndast í flöskunni sem getur sprungið og skemmt tækið).
Frosin matvæli geta valdið frostbruna ef peirra er neytt beint úr frystinum.
Ekki staðsetja tækið pannig að sólargeislar skíni á pað.
Haltu kertum, lömpum og öðrum óvörðum eldgjöfum fjarri tækinu (til að forðast eldhættu).
Tækið er ætlað til að geyma mat og drykki fyrir venjulegar heimilisþarfir eins og þær eru skilgreindar í þessari handbók. Tækið er þungt. Farðu varlega þegar það er flutt.
Ekki fjarlægja eða snerta hluti í frystihólfinu með rökum eða blautum höndum, það getur leitt til frostbruna.
Aldrei má nota undirstöðu, skúffur, hurðir og svo framvegis til að standa á eða til stuðnings.
Frosin matvæli má ekki frysta á ný eftir að þau hafa verið afþídd.
Ekki neyta íspinna eða ísmola beint úr frystinum þar sem slíkt getur valdið frostbruna á munni og vörum.
Ekki setja of mikið í hurðarhillurnar né of mikinn mat í grænmetisskúffurnar (slíkt gæti leitt til þess að hlutir detti og valdi líkamstjóni eða skemmdum á
tækinu).
Varúð! Hreinsun og umhirða
Áður en þú sinnir viðhaldi á tækinu, skaltu slökkva á tækinu og aftengja það frá vegginnstungunni.
Ekki hreinsa tækið með málmhlutum, gufutæki, ilmkjarnaolíu, lífrænum leysiefnum, eða hrjúfum hreinsiefnum.
Ekki nota hvassa hluti til að losa hrím frá tækinu. Notaðu plastsköfu.
Mikilvægt meðan á uppsetningu stendur!
Þegar þú tengir tækið skaltu fylgja vandlega leiðbeiningum í þessari notandahandbók.
Taktu umbúðirnar af tækinu og gakktu úr skugga um að engar skemmdir séu fyrir hendi. Ekki tengja tækið ef það er skemmt. Láttu smásöluaðilann vita strax um skemmdir. Geymdu umbúðirnar ef skemmdir eru á tækinu.
Við ráðleggjum að þú leyfir tækinu að standa í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en þú tengir það (svo olían geti runnið aftur inn í þjöppuna).
Vertu viss um að nóg loftflæði sé kringum tækið (það gæti ofhitnað við lélegt loftflæði). Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu tækisins (til að tryggja nægilegt loftflæði). Ekki skal staðsetja afturhlið tækisins of nálægt vegg (svo framarlega sem það er hægt) (til að koma í veg fyrir snertingu við heita hluti, þjöppu eða þétti). Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
tækisins (til að forðast hættu á eldsvoða).
Ekki staðsetja tækið nálægt ofni eða hitaveituofni.
Vertu viss um að þú hafir aðgang að kló tækisins.
Varúð!
Öll rafmagnsvinna sem fer fram meðan á þjónustu stendur skal unnin af viðurkenndum rafvirkja eða fagaðila. Þessa vöru má aðeins þjónusta af viðurkenndu þjónustuveri og eingöngu má nota upprunalega varahluti.
Ath! Börn á aldrinum 3 til 8 ára mega taka vörur út úr og setja vörur inn í kæli/frysti
Uppsetning á tækinu þínu

Lestu eftirfarandi ráðleggingar áður en tækið er tekið í notkun.
Loftræsting tækis
Mikilvægt er að viðhalda góðri loftræstingu í kringum tækið til að bæta virkni kælikerfisins og spara orku. Gakktu því úr skugga um að nægilegt rými sé umhverfis tækið.
Ráðlegging: Við mælum með því að það séu að lágmarki 50–70 mm óhindrað rými við afturhlið tækisins, að lágmarki 100 mm fyrir ofan tækið og á báðum hliðum þess og nóg rými fyrir framan til að hægt sé að opna hurðina í 115° horn (sjá teikningu neðar).

Ath!
Tækið er ætlað til notkunar í þeim loftslagsflokki sem tilgreindur er í töflunni neðar. Það getur verið að tækið virki ekki rétt ef það þarf að vera í gangi lengi við hærra eða lægra hitastig.
Settu tækið á þurran stað til að forðast mikla rakamyndun. Skýldu tækinu við beinu sólarljósi, rigningu og frosti.
| Loftslagsflokkur Umhverfishitastig |
| SN 10-32°C | |
| N 16-32°C | |
| ST 16-38°C | |
| T 16-43°C | |
Hafðu tækið hæfilega langt frá hitagjöfum á borð við ofna, eldavélar eða hitatæki.
Hallastilling vélarinnar
Það gæti þurft að stilla fætur tækisins til að ná því láréttu og tryggja að loft leiki óhindrað um botn þess. Þú getur stillt fæturna með höndum eða með viðeigandi skrúflykli.
Stilltu fæturna þannig að efsti hluti ísskápsins halli aftur um 10 mm til að tryggja að hurðin lokist sjálf.
Snúa hurðinni við
Hliðin frá hverri hurðin opnast er hægt að breyta úr hægri


ELVITA
hlið (eins og afhent) yfir í vinstri hlið ef þörf er á því þegar honum er komið fyrir.
Viðvörun! Aftengdu tækið rafmagni á meðan hurðinni er snúið við. Aftengdu tækið frá vegginnstungunni.
Verkfæri sem þú þarfnast

Ath!
Leggðu (eftir þörfum) tækið á bakið til að komast að botni þess. Leggðu tækið á bakið á froðuplast eða áþekkt efni (svo það verði ekki fyrir skemmdum). Gerðu eins og hér er lýst til að snúa við hurðinni. Myndirnar sýna ýmsar tegundir (sjá gerðarnúmer á myndum). Séu ekki sömu íhlutir í þínu tæki á lýsingin ekki við um það.
- Settu tækið lóðrétt upp. Opnaðu efra hólfið og fjarlægðu hurðarhillurnar (þannig forðastu að skemma þær síðar). Lokaðu hólfinu að því loknu.

- Fjarlægðu íhlut (1), lyftu upp íhlut (2) frá efri hægri hlið tækisins (gættu þess að draga ekki leiðslurnar út úr raftenginu (3)). Aftengdu að því búnu raftengið (3) og fjarlægðu íhlut (2).

- Losaðu skrúfurnar úr (1) og fjarlægðu lömina (2). Leiðdu svo raftengið (3) gegnum gatið á löminni (2). Haltu efri hurðinni uppi með hendinni við uppsetningu.

- Lyftu efri hurðinni varlega af miðlöminni (lyftu hurðinni beint upp). Leggðu efri hurðina á sléttan flöt svo þú komist að efri brún hennar.

- Taktu skrúfgatahlíf (hægri) úr plastpokanum og komdu henni fyrir hægra megin á kæliskápnum. Fjarlægðu að því búnu skrúfgatahlíf (vinstri) frá efri vinstri hluta tækisins og settu hana í plastpokann.

- Fjarlægðu íhlut (1) frá efri vinstri hluta hurðar og lyftu upp íhlut (2). Fjarlægðu að því búnu íhluti (3) og (4) frá efri hægri brún hurðarinnar. Festu íhlut (5) á efri hægri brún efri hurðar. Festu íhluti (3) og (4) á efri vinstri brún hurðar (sjá lýsingu að ofan). Festu íhlut (1) á efri hægri brún hurðar.

- Hornhlíf (vinstri)
- Raftenging (vinstri)
- Hornhlíf (hægri)
- Segulstál
- Raftenging (hægri)
- Losaðu skrúfurnar úr (3) og fjarlægðu íhlut (2) og (1). Settu upp hurðastopparann (1) (er í plastpokanum) og íhlut (2) (stoppara) vinstra megin á hurðina með skrúfunni (3). Geymdu íhlut (1) til notkunar síðar.

- Losaðu skrúfurnar sem halda miðlöminni fastri og fjarlægðu hana. Fjarlægðu að því búnu neðri hurðina.

- Færðu skrúfgatahlíf á miðjuhlífinni frá vinstri til hægri hliðar (sjá mynd undir).

- Hallaðu kæliskápnum aftur á bak, fjarlægðu íhlut (3) og losaðu að því búnu skrúfurnar (4).

- Fjarlægðu íhlut (5) frá neðri löminni. Losaðu að því búnu neðri lamarskrúfuna og færðu hana yfir í skrúfgatið hinum megin. Settu svo íhlut (5) á neðri lamarskrúfuna.
- Fjarlægðu íhlut (3) frá íhlut (2) og losaðu að því búnu skrúfurnar (4).
- Skiptu út þeim íhlutum sem þú losaðir í 11. skrefi. Færðu íhlut (1) til vinstri hliðar og íhlut (2) til hægri hliðar og festu þá með skrúfunum (4). Ljúktu verkinu með því að setja upp íhlut (3).

- Hengdu neðri hurðina á neðri lamarskrúfuna og haltu henni á sínum stað. Snúðu miðlöminni um 180°, færðu lamarsklífuna á neðri hlutann, stilltu miðlömina í rétta stöðu og festu hana að því búnu (gakktu úr skugga um að neðri hurðin sé nægilega fest).

- Færðu efri hurðina á réttan stað og festu að því búnu íhlut (2) með skrúfunum (1). Leiddu raftengið (3) gegnum lömina (2) (sjá 3. þrep) áður en þú skrúfar íhlut (2) fastan. Haltu uppi efri hurðinni með hendinni við uppsetningu.


- Tengdu raftengið (1) (sjá mynd) og festu það svo með skrúfu (3) (sjá 2. þrep).

- Opnaðu efra hólfið, komdu hurðarhillunum fyrir á ný og lokaðu því svo.
Ath!
Sé handfang á hurðinni þarf að snúa því (sjá leiðbeiningar að neðan).
Taktu efri hurðina af, leggðu hana á flatan flöt og láttu ytri hlið vísa upp. Fjarlægðu íhlut (1) og íhlut (4) og losaðu að því búnu skrúfurnar (2) (sjá mynd). Færðu handfangið (3) yfir til hægri og festu það með skrúfunum (2). Settu á íhlut (4).
Lýsing á vörunni
- Skápur
- LED-ljós og skjár
- Glerhilla
- Sveigjanleg vínhilla (valkvætt)
- 0°C Cooling Plus (kalt hólf)
- Grænmetislok
- Ávaxta- og grænmetisskúffa
- Efsta frystiskúffa
- Efri glerhilla í frysti
- Frystihilla í miðju
- Miðglerhilla í frysti
- Neðsta frystiskúffa
- Stillifætur
- Kæliskápshurð
- Hlíf fyrir efri hillu
- Efri hilla
- Miðhilla
- Péttilisti fyrir kæliskápshurð
- Neðri hilla
- Handfang (valkvætt)
- Péttilisti frysthurðar
- Frystihurð
Teikning af tækinu
Ath! Par sem við erum stöðugt að þróa vörur okkar getur verið að kæliskápurinn þinn líti aðeins öðruvísi út en á teikningum í þessari handbók notanda því hún fjallar um margar mismunandi gerðir. Þú getur aukið rýmið í frystinum með því að fjarlægja ísmolabakka og skúffur (nema neðri frystiskúffu).
| Umfang tækisins a b c d e f | | | | | | |
| CKF5200V, CKF5200X 2003 595 570 637 681,5 1191 | | | | | |

Mál
a Hæð b Breidd c Dýpt skáps d Dýpt (hurð lokuð – ekkert handfang) e Dýpt (hurð lokuð – handfang) f Dýpt (hurð opin)
Ath! Tilgreind mál í töflu eru teikningamál. Raunmál geta af ýmsum ástæðum verið önnur en teikningamál. Upplýsingar hér að neðan eru eingöngu til viðmiðunar.
Stýribúnaður
Skjár á hurð
Tæki þitt er búið eftirfarandi stýriaðgerðum (staðan er tilgreind á skjá í samræmi við myndir hér að neðan). Þegar tækið er sett í gang í fyrsta sinn kviknar baklýsing skjás. Hafi ekki verið þrýst á neinn takka og hurðir eru lokaðar slekkur baklýsingin á sér.

Stilling á hitastigi
Við mælum með að hitastig kæliskáps sé stillt á 5°C og frystir á -18°C þegar kæliskápurinn er fyrst settur í gang. Fylgdu leiðbeiningunum hér að neðan til að breyta hitastigi.
Varúð! Þegar þú stillir hitastigið þá ertu að stilla óskað meðalhitastig fyrir allan ísskápinn. Hitastigið í einstökum hólfum getur verið frábrugðið hitastiginu sem sýnt er á skjánum en það veltur á því magni matvæla sem sett er í þau og hvernig þeim er komið fyrir. Umhverfishitastigið getur líka haft áhrif á raunhitastigið inni í tækinu.
1. Kæliskápur

Brýstu á kæliskápstáknið til að stilla hitastig kæliskápsins (hægt er að stilla það á bilinu 2 til 8°C) (skjárinn sýnir gildin í eftirfarandi röð).

2. Frystiskápur

Brýstu á frystiskápstáknið til að stilla hitastig frystisins (hægt er að stilla það á bilinu -15 til -25°C) (skjárinn sýnir gildin í eftirfarandi röð).

3. Hamur

Hægt er að velja um þrjár stillingar með því að þrýsta á stöðuhnappinn á skjánum (viðkomandi táknmynd lýsir).
Super Freeze

Super Freeze lækkar hitastigið í frystinum hratt svo matvæli frystast fyrr. Þetta stuðlar að því að varðveita vítamín og næringarefni í ferskum matvælum og heldur þeim ferskum lengur.
- Þegar stillingin Super Freeze er valin kviknar ljósið og frystirinn stillist á -25°C.
- Það tekur um 24 klst. að frysta allt í fullum frysti.
- Super Freeze slekkur sjálfkrafa á sér eftir 26 klukkustundir (og frystirinn stillir sig á það hitastig sem áður var gilt).
Eco Energy

Þessi stilling setur frystinn í orkusparnaðarham (til að draga úr orkunotkun þegar þú ert að heiman).
- Ljósið kviknar þegar Eco Energy er ræst. Frystirinn viðheldur -17°C stigum og kæliskápurinn 6°C.
Holiday

Ef þú ert lengi að heiman í einu má ræsa þessa virkni.
- Ljósið kviknar þegar Holiday er ræst. Frystirinn viðheldur -18°C stigum og kæliskápurinn 15°C. Mikilvægt! Ekki geyma mat í kæliskápnum þegar slökkt er á honum.
4. ON/OFF

Ýttu á þennan hnapp til að kveikja á eða slökkva á tækinu.
- Ýttu á on/off-hnappinn í 3 sekúndur (þegar hljóðmerki hættir er slökkt á tækinu).
- Ýttu á on/off-hnappinn í 1 sekúndu (þegar hljóðmerki heyrist fer tækið í gang).
5. Viðvörun
- Ef hurð frystis eða kæliskáps er höfð opin í meira en 2 mínútur heyrist varúðarhljóð hurðar. Varúðarhljóð hurðar fer í gang 3 sinnum á mínútu (og slokknar af því eftir 8 mínútur).
Haltu hurðinni opinni eins stuttan tíma og mögulegt er (til að spara orku). Varúðarhljóð hurðar hættir þegar þú lokar hurðinni.
Að nota tækið
Í þessum kafla er fylgihlutum tækisins lýst.
Hurðarhillur
Hæfir til að geyma egg, niðursoðna vökva, flöskudrykki, innpökkuð matvæli, o.fl. Ekki geyma of marga þunga hluti í hillunum.

Í kæliskápnum eru þrjár hillur (sem fjarlægja má við þrif).

Notaðar til að geyma vínflöskur og aðra drykki (má fjarlægja við þrif).

Ath! Bæði umhverfishiti og hitastilling hefur áhrif á hitastig 0°C Cooling Plus (kalda hólfið)
(Þetta hitastig getur verið nokkuð breytilegt).
Hitinn getur farið niður fyrir frostmark sem þýðir að eðlilegt er að vökvi þar frjósi.
Grænmetislok
Það er notað til að stýra hitastigi í grænmetisskúffunni og koma í veg fyrir að grænmetið þorni upp.
Þessi skúffa hentar til að geyma ávexti og grænmeti.
Frystihólf
Það er notað til að geyma frosin matvæli (t.d. kjöt, fisk og ís).
Sambyggð ísmolavél (valkvætt)
- Hún er notuð til að frysta og geyma ísmola.
- Þennan viðbótarbúnað má fjarlægja til að auka rýmið. Lokið á ísvélinni er notað til að halda henni hreinni.

Ath! Sé ísmolavélin ný og ónotuð eða hefur ekki verið notuð í langan tíma, þarf að þrífa hana fyrir notkun.
• Að frysta ís
- Settu sambyggðu ísmolavélina á sléttan flöt og taktu svo af henni lokið.
- Fylltu ísmolabakkann með vatni (ekki meira en svo að það nái efri markalínu).
- Komdu ísmolavélinni fyrir á sínum stað í tækinu. Þegar ísmolarnir eru tilbúnir geturðu annað hvort notað þá strax eða geymt þá í hólfinu til notkunar síðar.
Hentugar ábendingar
Ráðleggingar til að spara orku
Við ráðleggjum þér að fylgja ábendingum hér að neðan til að spara orku.
- Skildu hurðina eftir opna í eins stuttan tíma og mögulegt er (til að spara orku).
- Gakktu úr skugga um að tækið sé ekki haft of nálægt hitagjöfum (til dæmis beinum geislum sólar, rafmagnsofni eða eldavél).
- Ekki stilla hitastigið lægra en nauðsynlegt er.
- Ekki geyma heitan mat eða rokgjarna vökva í skápnum.
- Staðsettu tækið í vel loftræstu svæði án raka. Sjá kafla um uppsetningu á nýju tæki.
- Sýni myndin rétta uppsetningu á skúffum, grænmetishólfi og hillum, breytir þú henni ekki (hún er skipulögð með sem besta orkunýtni fyrir augum).
Ábendingar varðandi kælingu á ferskum mat
- Ekki setja heit matvæli í kæliskápinn (sé það gert hækkar hitinn í honum og þjappan þarf að vinna meira og nýtir því meiri orku).
- Breiddu yfir mat eða settu umbúðir um hann, sérstaklega ef hann er bragðsterkur.
- Staðsettu öll matvæli þannig að loft geti leikið frjálst um þau.
Ábendingar varðandi kælingu
- Kjöt (allar tegundir): Pakkaðu því í plastfilmu og settu á glerhilluna fyrir ofan grænmetisskúffuna. Fylgdu viðmiðunarreglum framleiðanda um hámarksgeymslutíma á matvælum og best fyrir dagsetninguna.
- Eldaður matur, kaldir réttir, o.fl.:
Breiddu yfir og settu þá á hvaða hillu sem er.
- Ávextir og grænmeti: Það ætti að geyma í til þess ætlaðri skúffu.
- Smjör og ostur: Pakkaðu þessu í loftþétta plastpoka eða plastfilmu. • Mjólkurfernur: Lokaðu með loki og geymdu í hurðarhillunum.
Ábendingar vegna frystingar
- Láttu skápinn vera í gangi í að minnsta kosti 2 klst. á köldustu stillingu við upphaf notkunar eða ef tækið hefur staðið ónotað áður en matur er settur inn í hann.
- Tilreiddu matvæli í smáum skömmtum þannig að hægt sé að frysta þau hratt í gegn (aðeins skal afþíða það magn sem á að nota).
- Vefja skal matvælum í loftþéttan álpappír eða plastfilmu.
- Ekki leyfa ferskum, ófrosnum matvælum að komast í
snertingu við frosin matvæli (til að hækka ekki hitastig frosnu matvælanna).
- Ef þú neytir frystra matvæla strax og þau eru tekin úr frystinum getur það leitt til frostbruna.
- Merktu allar frystar matvælapakkningar með dagsetningu til að geta fylgst með geymslutímanum.
Ábendingar varðandi geymslu á frosnum mat
- Gakktu úr skugga um að fryst matvæli hafi fengið rétta meðferð í versluninni.
- Þegar frosin matvæli hafa þiðnað eyðileggjast þau fljótt og ekki má frysta þau á ný. Ekki fara fram yfir geymslutímann sem gefinn er af framleiðandanum.
Slökkva á tækinu
Ef slökkva þarf á tækinu í lengri tíma, gerðu þá eftirfarandi (til að koma í veg fyrir myglumyndun).
- Taktu út öll matvæli.
- Aftengdu tækið frá vegginnstungunni.
- Þrífðu og þurrkaðu tækið vel að innan.
- Sjáðu til þess að allar hurðir séu skildar eftir örlítið opnar þannig að loft geti leikið um.
Hreinsun og umhirða
Af hreinlætisástæðum skal þrífa tækið reglubundið (þar með talinn innri og ytri aukabúnaður) (að minnsta kosti annan hvern mánuð).
Varúð! Taktu tækið úr sambandi við rafmagn áður en uppsetning hefst. Hætta á rafhöggi! Áður en þú þrífur tækið skaltu slökkva á því og taka úr sambandi við vegginnstungu.
Ytri hreinsun
Þrífðu tækið reglubundið.
– Þurrkaðu af stjórnborðinu og skjánum með hreinum og mjúkum klút. – Úðaðu vatni á klútinn í stað þess að sprauta því beint á fleti tækisins. Þannig dreifist rakinn jafnt yfir flötinn. – Hreinsaðu hurðir, handföng og ytri fleti kæliskápsins með mildri uppþvottaefnislausn og þurrkaðu svo af með mjúkum klút.
Varúð!
- Ekki nota hvassa hluti, þeir gætu skemmt yfirborð tækisins. – Ekki nota þynnri, bílþvottaefni, hreingerningalög með klór, ilmolíur, hreingerningaefni/sápur með svarfefnum eða lífræn leysiefni á borð við bensen við þrif. Þau gætu skaðað yfirborð tækisins og valdið eldsvoða.
Innri hreinsun
- Prífa skal reglubundið innra byrði skápsins. Einfaldast er að prífa hann þegar lítið er af matvælum þar að finna. Þurrkaðu innan úr kæli-/frystiskápnum með þunnri natríumbíkarbónatlausn og skolaðu síðan með heitu vatni með mjúkum svampi eða klút. Þurrkaðu fullkomlega tækið að innan áður en þú setur hillurnar og skúffurnar aftur á sinn stað. Þurrkaðu alla fleti og færanlega hluti.
- Þrátt fyrir að tækið afþíði sig sjálfvirkt getur hrímlag myndast innan á veggjum þess ef hurðin er opnuð oft eða skilin eftir opin í langan tíma. Ef hrímlagið er of þykkt gerirðu eftirfarandi þegar lítið er af matvælum í kæliskápnum:
- Taktu út matvæli og hillur, taktu tækið úr sambandi og láttu það standa opið. Gættu þess að herbergið sé vel loftræst til að flýta afþíðingu.
- Þrifðu frystinn í samræmi við ofangreindar upplýsingar að afþíðingu lokinni. Varúð! Ekki nota hvassa hluti til að losa hrím frá tækinu. Bíddu með að setja skápinn í samband við rafmagn og setja hann í gang í ný uns innra byrði skápsins er alveg þurrt.
Hreinsa þéttilista á hurð
Hugaðu vel að því að halda þéttilistum á hurð hreinum. Klístrug matvæli og drykkir geta leitt til þess að þéttilistar límist við ísskápinn og skemmist þegar þú opnar hurðina. Hreinsaðu þéttilistana með mildum uppþvottalegi og heitu vatni. Skolaðu og þurrkaðu þá vandlega eftir hreinsun.
Varúð! Ekki setja tækið í gang aftur fyrr en þéttilistarnir eru
fullkomlega þurrir.
Viðvörun! Notandinn má ekki skipta um LED-perur! Hafðu samband við þjónustudeild ef einhver LED-peran er skemmd. Farðu eftir eftirfarandi leiðbeiningum til að skipta um LED-peru
- Taktu tækið úr sambandi við rafmagn.
- Fjarlægðu peruhlífina með því að ýta henni upp og út.
- Haltu peruhlífinni með annarri hendi og togaðu í hana með hinni um leið og þrýst er á lokuna.
- Taktu gömlu LED-peruna út og komdu þeirri nýju fyrir.
Bilanagreining
Ef þú átt í vandræðum með tækið eða hefur áhyggjur af því hvort það starfi rétt, þá geturðu kannað nokkra einfalda hluti áður en þú hringir á þjónustu. Sjá hér fyrir neðan.
Viðvörun! Ekki reyna að gera sjálf/ur við tækið. Ef vandamálið hverfur ekki eftir að þú hefur gert eins og ráðlagt er hér að neðan skaltu hafa samband við viðurkenndan rafvirkja, viðurkenndan þjónustuaðila eða búðina þar sem þú keyptir vöruna.
| Vandamál Möguleg | ∅rsök og lausn |
| Tækið virkar ekki rétt | Gakktu úr skugga um að rafmagnsklóin hafi verið sett rétt í vegginnstunguna. |
| Kannaðu hvort lekaliða straumrásarinnar hafi slegið út. Skiptu um öryggi ef nauðsynlegt. |
| Umhverfishitastigið er of lágt. Lækkaðu umhverfishitastigið til að leysa vandann. |
| Pað er eðlilegt að þjappan gangi ekki meðan á sjálfvirkri afpíðingu stendur og í stuttan tíma eftir að kveikt hefur verið á tækinu, það er til þess ætlað að vernda tækið. |
| Lykt úr skúffum | Ef til vill þarf að þrífa að innan. |
| Það getur verið lykt af sumum matvælum, ílátum og plastfilmum. |
| Hljóð úr tækinu | Hljóðin að neðan eru fullkomlega eðlileg:• Pjöppuhljóð.• Lofthljóð frá litlu viftunni inni í frystihólfinu eða öðrum hólfum.• Gutlandi hljóð svipað og sjóðandi vatn.• Brestir á meðan á sjálfvirkri afpíðingu stendur.• Smellur þegar þjappan fer í gang. |
| Önnur hljóð eru hugsanlega vegna eftirfarandi ástæðna (pá kann að vera nauðsynlegt að kanna málið og grípa til aðgerða).• Tækið stendur ekki lárétt.Bakhlið skápsins snertir vegg. Flöskur eða ílát hafa dottið eða veltast um. |
| Þjappan starfar látlaust | Það er eðlilegt að heyra þjöppuna starfa oftar (hún vinnur oftar undir eftirfarandi kringumstæðum):• Hitastigið er stillt lægra en nauðsynlegt er• Stór skammtur af heitum mat hefur verið settur inn í skápinn.• Umhverfishitastigið er of hátt.• Hurðirnar eru skildar eftir opnar of lengi eða of oft.• Eftir að þú hefur sett tækið upp eða eftir að það hefur staðið lengi ónotað. |
| Ís safnast upp inni í skápnum. | Kannaðu hvort matvæli standi fyrir loftopum og gættu þess að þeim sé komið þannig fyrir að loft geti flætt um skápinn. Gættu þess að hurðin sé vel lokuð. Kynntu þér kaflann um þrif og umönnun, þar eru upplýsingar um hvernig fjarlægja skal ís. |
| Hitastigið inni í tækinu er of hátt | Hurðin kann að hafa verið skilin eftir opin of lengi eða of oft, eitthvað kemur í veg fyrir að hurðin lokist alveg eða að ekki er nægilegt opið rými meðfram hliðum, bakhlið eða fyrir ofan tækið. |
| Hitastigið inni í tækinu er of lágt | Hækkaðu hitastigið með því að fylgja leiðbeiningunum í kaflanum um stjórnborð. |
| Hurðin lokast ekki alveg | Kannaðu hvort efsti hluti ísskápsins hallar aftur á bak um 10–15 mm þannig að hurðir lokist vegna eigin þyngdar, eða hvort eitthvað inni í skápnum komi í veg fyrir að hurðin lokist. |
| Vatn lekur á gólfíð | Vatnshólfíð (aftan á og neðst á skápnum) stendur ef til vill ekki lárétt, frárennslisslangan (undir efsta hluta þjöppuhólfisins) leiðir ef til vill ekki vatnið rétta leið inn í vatnshólfíð eða slangan gæti verið stífluð. Vera má að þú þurfir að draga skápinn frá veggnum til að athuga vatnshólfíð og slönguna. |
| Ljósið lýsir ekki | • LED-peran gæti verið skemmd. Kynntu þér kaflann um þrif og viðhald varðandi það að skipta um LED-peru.• Styribúnaðurinn hefur slökkt á ljósinu því skápurinn hefur verið opinn of lengi. Lokaðu skápnum og opnaðu hann á ný til að virkja ljósið. |
Förgun tækis
Tækið má ekki farga með heimilissorpi.
Umbúðir
Umbúðir með endurvinnslumerkinu má endurvinna. Losaðu umbúðirnar í viðeigandi söfnunargám til að endurvinna þær.
Fylgdu neðangreindum leiðbeiningum til að farga tækinu.
- Aftengdu tækið frá vegginnstungunni.
- Skerðu rafmagnssnúruna af og fargaðu henni með kló.
Viðvörun! Kæliskápar innihalda kæligas (og það er líka gas í einangruninni). Farga skal bæði kæligasi og öðrum gastegundum af fagfólki því það getur valdið augnskemmdum eða eldsvoða. Gættu þess að kælikerfisrásin sé ekki skemmd áður en þú sendir tækið í endurvinnslu.
| Rétt förgun á tækinu |
 | Petta tákn gefur til kynna að tækinu skuli ekki fargað með almennu heimilissorpi innan ESB. Til að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar í umhverfinu eða á heilsu manna sem hlýst af eftirlitslausri sorplosun, vinsamlegast endurvinnið pessa vöru á ábyrgan hátt til að efla sjálfbæra endurnotkun á hráefnum. Til að skila notuðu tæki vinsamlegast notaðu söfnunar- og skilakerfið eða hafðu samband við smásöluaðilann þar sem þú keyptir tækið. Smásöluaðilinn getur tryggt að tækinu sé fargað á umhverfisvænan hátt. |
Farðu eftir eftirfarandi leiðbeiningum til að forðast mengun matvæla:
- Opnaðu skápinn í eins stuttan tíma og mögulegt er (standi hann opinn um lengri tíma hækkar hitastigið inni í honum).
- Þrífðu reglubundið fleti sem geta snert matvæli og þá hluta frárennsliskerfisins sem þú kemst að. • Geymdu hrátt kjöt og hráan fisk í til þess gerðum ílátum í kæliskápnum svo þannig matvæli komist ekki í snertingu við önnur matvæli eða á þau leki dropar.
- Tveggja stjörnu frystihólf henta til geymslu á frosnum matvælum eða til að frysta/geyma ís og ísmola.
- Frystihólf með einni, tveimur eða þremur stjörnum henta ekki til að frysta niður fersk matvæli.
| Flokkur Tegundgeymslurýmis | Hitastig(°C) | Tegund matvæla |
| 1 Kæliskapur +2 ≤ +8 Hentar til að geyma egg, tilbúinn mat, innpökkuð matvæli,ávexti og grænmeti, mjólkurvörur, kökur/tertur, drykki og önnur matvæli sem ekki hentar að frysta. |
| 2 (***)*Frystir ≤ -18 Hentar til að geyma fisk og skeldýr ásamt kjötvörum (par sembæði bragð og næringarinnihald rýrnar með tímanum mælumvið með að hám. 3 mánaða geymslutíma). Hentar líka tilgeymslu á frystum ferskum matvælum. |
| 3 ***Frystir ≤ -18 Hentar til að geyma fisk og skeldýr ásamt kjötvörum (par sembæði bragð og næringarinnihald rýrnar með tímanum mælumvið með að hám. 3 mánaða geymslutíma). Hentar ekki tilgeymslu á frystum ferskum matvælum. |
| 4 **Frystir ≤ -12 Hentar til að geyma fisk og skeldýr ásamt kjötvörum (par sembæði bragð og næringarinnihald rýrnar með tímanum mælumvið með að hám. 2 mánaða geymslutíma). Hentar ekki tilgeymslu á frystum ferskum matvælum. |
| 5 *Frystir ≤ -6 Hentar til að geyma fisk og skeldýr ásamt kötvörum (par sembæði bragð og næringarinnihald rýrnar með tímanum mælumvið með að hám. 1 mánaðar geymslutíma). Hentar ekki tilgeymslu á frystum ferskum matvælum. |
| 6 | Án stjörnu | -6 ≤ 0 | Hentar til að geyma hrátt svína- og nautakjöt ásamt hráumfiski og kjúklingi og ákveðin innpökkuð unnin matvæli o.s.frv.(við mælum með pví að matvælanna sé neyttsama dag eða í síðasta lagi innan 3 daga). Matvæli sem eruað hluta til innpökkuð og unnin (ekki matvæli sem má frysta). |
| 7 | Lághitahólf | -2 ≤ +3 | Hrátt svína- og nautakjöt ásamt hráum frystum kjúklingi, fiskog skeldýr úr fersku vatni o.s.frv. má geyma í 7 daga viðlægra hitastig en 0°C (sé varan geymd við hærra hitastig en0°C mælum við með pví að hennar sé neytt sama dag eða ísíðasta lagi innan 2 daga). Hægt er að geyma fisk og skeldýrúr sjó allt að 15 daga við lægra hitastig en 0°C (við mælummoeð pví að fiskur og skeldýr séu aldrei geymd við hærrahitastig en 0°C). |
| 8 | Fersk matvæli | 0 ≤ +4 | Hentar til að geyma hrátt svína- og nautakjöt og hráan fiskog kjúkling og tilbúinn mat o.s.frv. (við mælum með pví aðþessara matvæla sé neytt sama dag eða í síðasta lagi innan3 daga). |
| 9 | Að geyma vín | +5 ≤ +20 | Hentar til að geyma rauðvín, hvítvín, freyðivín o.s.frv. |
Ath! Geymið matvæli í geymslurými sem ætlað er ráðlögðu geymsluhitastigi matvælanna.
- Slökktu á kæli/frystiskáp sem ekki á að nota um lengri hríð, affrystu hann, þrífðu, þurrkaðu vel og láttu standa opinn (til að koma í veg fyrir að mygla myndist). • Að hreinsa vatnsskammtara (á bara við um tæki með vatnsskammtara).
- Þrifðu vatnstankana, hafi þeir ekki verið í notkun síðustu 48 klukkustundirnar (skolaðu vatnskerfið, hafi það ekki verið tengt vatni síðustu 5 dagana).

Gæðaábyrgð gildir fyrir neytandann
