LUMNÄS 305.728.56 - Réfrigérateur IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis LUMNÄS 305.728.56 IKEA á PDF sniði.

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Kælir
📄 328 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA LUMNÄS 305.728.56 - page 313
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um LUMNÄS 305.728.56 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Réfrigérateur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína LUMNÄS 305.728.56 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. LUMNÄS 305.728.56 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK LUMNÄS 305.728.56 IKEA

Ábendingar og ráð 318

Þrif og viðhald 318

Bilanaleit 319

Tæknileg gögn 320

Umhverfismálefni 321

IKEA ÁBYRGD

321

Öryggisupplýsingar

Áður en heimilistækið er sett upp skal lesa leiðbeiningarnar vandlega. Framleiðandi er ekki ábyrgur fyrir rangri uppsetningu eða ef notkun veldur áverkum eða skemmdum. Alltaf skal geyma leiðbeiningarnar með heimilistækinu ef leita þarf í þær síðar.

Öryggi barna og veikburða fólks

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Öryggi barna og veikburða fólks - 1

VIÐVÖRUN: Eldhætta/Eldfim efni

  • Börn 8 ára og eldri og fólk sem er hreyfihamlað, með skerta skynjun, skerta andlega getu eða skortir reynslu og þekkingu, mega nota ísskápinn ef það hefur fengið leiðsögn eða leiðbeiningar um örugga notkun og skilur hætturnar sem fylgja. Börn mega ekki leika sér að tækinu.
  • Hreinsun og viðhald sem notandi framkvæmir skulu ekki vera unnin af börnum án eftirlits. Gæta skal að því að börn leiki sér ekki með tækið. Börn á aldrinum 3 til 8 ára mega hlaða og afferma kælitækið.
  • Mjög ung börn (0-3 ára) skulu haldið frá tækinu.
  • Ung börn (3-8 ára) skulu haldið frá tækinu nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
  • Geymið allar umbúðir fjarri börnum og fargið þeim á viðeigandi hátt.

Almennt öryggi

  • Tækið er ætlað til notkunar á heimili og við svipaðar aðstæður, svo sem:
  • í starfsmannaeldhúsum í verslunum, skrifstofum og öðru vinnuumhverfi;
  • bændabýlum og hjá viðskiptavinum á hótelum, mótelum og í öðru íbúðarumhverfi;
  • á gistiheimilum og þess konar umhverfi.
  • Við veitingar og svipaðan heildsölurekstur.

- VIÐVÖRUN: Gættu þess að engar fyrirstöður séu í loftræstiopum, hvorki í umlykju heimilistækisins né innbyggðum hlutum þess.

- VIÐVÖRUN: Ekki nota vélknúin búnað eða annan búnað til að hraða affrystingartíma, annan en þann sem framleiðandi mælir með.

• VIÐVÖRUN: Ekki skemma kælirásina.

- VIÐVÖRUN: Ekki nota rafmagnstæki í matvælageymsluhólfi heimilistækisins nema framleiðandi mæli með slíkum gerðum.

- VIÐVÖRUN: Ekki nota vatnsúða og gufu til að hreinsa tækið.

- VIÐVÖRUN: Hreinsið tækið með mjúkum, rökum klút. Notið eingöngu hlutlaus hreinsiefni. Ekki má nota slípandi efni, slípandi hreinsunarpúða, leysa eða málmhluti.

- VIÐVÖRUN: Ekki geyma eldfim efni eins og loftúðabrúsa með eldfimu drifefni inni í þessu tæki.

- VIÐVÖRUN: Ef rafsnúran er skemmd þarf framleiðandi, þjónustufulltrúi eða einhverjir með hliðstæða löggildingu að skipta um hana til að forðast hættu.

- VIÐVÖRUN: Þegar tækið er staðsett skal ganga úr skugga um að snúran sé ekki föst eða skemmd.

  • VIÐVÖRUN: Ekki setja mörg fjöltengi eða spennubreyta fyrir aftan tækið.
  • Ef hurðin er opin í langan tíma getur það valdið verulegri hitastigshækkun í hólfum heimilistækisins.
  • Hreinsið reglulega yfirborð sem geta komist í snertingu við mat og aðgengilegt frárennsliskerfi.
  • Hreinsið vatnsgeymi ef þeir hafa ekki verið notaðir í 48 klukkustundir; skolið vatnskerfið sem er tengt vatnsveitu ef vatn hefur ekki verið losað í 5 daga.
  • Geymið hrátt kjöt og fisk í viðeigandi ílátum í kæli, svo að það komist ekki í snertingu við eða dreypi á annan mat.
  • Ef kæliskápurinn er tómur í langan tíma, slökktu þá á honum, affrystu, hreinsaðu, þurrkaðu og skildu hurðina eftir opna til að koma í veg fyrir að mygla myndist innan í tækinu.
  • Þetta kælitæki hentar ekki til að frysta matvæli.
  • Tveggja stjörnu hólf fyrir frosinn mat eru hentug til að geyma forfrystan mat, geyma eða búa til ís og búa til ísmola.
  • Einnar, tveggja og þriggja stjörnu hólf henta ekki til frystingar á ferskum mat.
  • VIÐVÖRUN: Til að forðast hættu vegna óstöðugleika tækisins verður að festa það í samræmi við leiðbeiningarnar.

Öryggisleiðbeiningar

Uppsetning

  • Tveir eða fleiri þarf til að handleika og setja upp heimilistækið.
  • Framleiðandi eða viðurkenndur tæknimaður skulu sjá um uppsetningu og viðhald, m.a. skipti á rafsnúru, í samræmi við fyrirmæli framleiðanda og gildandi reglugerðir um öryggismál. Til að forðast hættu skal ekki gera við eða skipta um varahlut í heimilistækinu, þ.m.t. rafsnúru, nema það komi sérstaklega fram í notendahandbók. • Fjarlægið allar umbúðir.
  • Ekki setja upp né nota skemmt heimilistæki.
  • Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu sem fylgja með heimilistækinu.
  • Alltaf skal sýna aðgát þegar heimilistækið er fært vegna þess að það er þungt. Notaðu alltaf hlífðarhanska og lokaðan skóbúnað.
  • Gætið þess að skemma ekki gólf (t.d. parket) þegar heimilistækið er flutt til.
  • Gætið þess að heimilistækið sé ekki nálægt hitagjafa.
  • Setjið upp heimilistækið og réttið af á gólfi sem er nógu sterkt til að bera það á stað sem hentar stærð og notkun.
  • Tryggið gott loftstreymi kringum heimilistækið.
  • Við fyrstu uppsetningu og eftir að búið er að snúa við hurðinni skal bíða í að minnsta kosti 4 klukkustundir áður en heimilistækið er tengt við rafmagn. Þetta er til að láta olíuna streyma til baka í þjöppuna.
  • Áður en þú framkvæmir einhverjar aðgerðir á heimilistækinu (t.d. að snúa við hurðinni) skaltu taka tækið úr sambandi.
  • Ekki má setja heimilistækið upp þar sem sól skín beint á það.
  • Ekki setja upp heimilistækið á of rökum eða köldum svæðum, svo sem í vínkjöllurum.
  • Setjið upp heimilistækið á stöðum þar sem umhverfishitastig samsvarar loftslagsflokki sem er gefinn til kynna á merkiplötu heimilistækisins. Það tryggir að heimilistækið vinni rétt. Loftslagsflokkar eru skýrðir þannig: „SN“ táknar að þessi kæliskápur sé ætlaður til notkunar við umhverfishitastig frá 10 °C til 32 °C. „N“ táknar að þetta kælitæki sé ætlað til notkunar við umhverfishitastig frá 16 °C til 32 °C. „ST“ táknar að þetta kælitæki sé ætlað til notkunar við umhverfishitastig frá 16 °C til 38 °C. „T“ táknar að þetta kælitæki sé ætlað til notkunar við umhverfishitastig frá 16 °C til 43 °C.

Rafmagnstenging

⚠ VIÐVÖRUN! Eldhætta og hætta á raflosti.

⚠ VIÐVÖRUN! Þegar tækið er staðsett skal ganga úr skugga um að snúran sé ekki föst eða skemmd.

⚠ VIÐVÖRUN! Ekki nota fjöltengi eða framlengingarsnúrur.

- Heimilistækið verður að vera jarðtengt.

- Gakktu úr skugga um að færibreyturnar á merkiplötunni séu samhæfar við rafmagnsflokkun aðalæðar aflgjafa.

- Notið ávallt rétt uppsetta innstungu sem slær ekki út.

- Gætið þess vel að skemma ekki rafmagnsíhluti (t.d. rafklóna, rafsnúruna eða bjöppuna). Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð eða rafvirkja til þess að skipta um rafmagnsíhluti.

- Rafmagnssnúran þarf að vera fyrir neðan rafmagnsklóna.

  • Setjið ekki rafmagnsklóna í samband fyrr en í lok uppsetningar. Tryggið að auðvelt sé að taka rafmagnsklóna úr sambandi eftir uppsetningu.
  • Ekki má toga í rafmagnssnúruna til að taka úr sambandi. Taktu alltaf um klóna.
  • Eingöngu Bretland og Írland: Tækið er gert fyrir 13 A öryggi. Ef skipta þarf um aðalöryggi skal aðeins nota 13 A ASTA (BS 1362) bræðivar.

Notkun

⚠ VIÐVÖRUN! Hætta á meiðslum, bruna, raflosti eða eldsvoða.

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Notkun - 1

Í kælivefjunum er svolítið af umhverfisvæna en eldfima kælimiðlinum R600a. Hann skaðar ekki ósonlagið og eykur ekki gróðurhúsaáhrifin. Ef kælimiðill lekur út getur hann skaðað augu eða kviknað í honum. Ekki skemma kælivefjurnar.

  • Yfirborð þjöppunnar getur hitnað við eðlilega notkun. Ekki snerta yfirborðið með berum höndum.
  • Ekki má breyta tæknilýsingu ísskápsins.
  • Ekki má láta raftæki (t.d. ísvélar) inn í heimilistækið nema framleiðandi segi þau henta til þess.
  • Ef skemmdir verða á kælihringrásinni skal tryggja að hvorki sé opinn eldur né nokkuð sem geti kveikt eld inni í herberginu. Loftræstið herbergið.
  • Ekki snerta plastihluti heimilistækisins með heitum hlutum.
  • Ekki geyma eldfimar lofttegundir í heimilistækinu.
  • Ekki lata eldfima framleiðslu eða blauta hluti með eldfimri framleiðslu í eða nálægt heimilistækinu.
  • Ekki má snerta bjöppuna eða péttinn. Þau eru heit.
  • Fylgdu geymslufyrirmælum á umbúðum matvæla.

Innri lýsing

⚠ VIÐVÖRUN! Hætta á raflosti.

- Ljósaperan í heimilistækinu er sérstaklega gerð fyrir heimilistæki og hentar ekki í almenna herbergislýsingu ((ESB) 2019/2020).

Umhirða og þrif

⚠ VIÐVÖRUN! Hætta á meiðslum eða skemmdum á heimilistækinu.

  • Áður en viðhald hefst skal slökkva á heimilistækinu og taka rafmagnssnúruna úr sambandi.
  • Þetta tæki inniheldur vetniskolefni í kælieiningunni. Aðeins hæfir aðilar mega sinna viðhaldi og endurhleðslu á einingunni.
  • Skoðið frárennsli tækisins reglulega og hreinsið það ef þörf krefur. Ef drenið er stíflað safnast afþítt vatn fyrir neðst í heimilistækinu.

Þjónusta

  • Ef gera þarf við tækið skal hafa samband við viðurkenndan þjónustuaðila sem skráður er aftast í handbókinni.
  • Notaðu aðeins upprunalega varahluti.

Förgun

⚠ VIÐVÖRUN! Hætta á meiðslum eða köfnun.

• Takið heimilistækið úr sambandi. - Skerið rafmagnssnúruna í burtu og fleygið henni. - Fjarlægið hurðar til að koma í veg fyrir að börn eða gæludýr lokist inni í heimilistækinu. - Kælirásin og einangrunarefnið í tækinu eru ósonvæn. - Einangrunarfroðan inniheldur eldfimt gas. Hafið samband við yfirvöld á staðnum varðandi upplýsingar um hvernig farga skuli heimilistækinu á réttan hátt. - Ekki skemma þann hluta kælieiningarinnar sem er nálægt varmaskiptinum.

Framleiðandinn hafnar öllum bótakröfum vegna áverka á fólki eða dýrum eða skemmda á eignum ef ofannefnd ráð og varúðarráðstafanir eru ekki virt.

Vörulýsing

VöruyfirlitIKEA LUMNÄS 305.728.56 - Vörulýsing - 1

Tengið heimilistækið við rafmagn. Kjörhitastillingar eru gerðar í verksmiðjunni (millistig).

Athugasemd: Eftir að kveikt hefur verið á heimilistækinu þurfa að líða 4-5 klst. til að náist rétt hitastig sem hægt er að geyma dæmigert magn af matvælum við.

Mikilvægt!

Ísskápurinn er seldur í Frakklandi.

Samkvæmt reglum sem gilda í landinu skal fylgja sérstakt tæki (sjá mynd) sem staðsett er í neðri hluta kæliskápsins til að sýna kaldasta svæðið.

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Mikilvægt! - 1

A Hitastillihnappur 1 - 4 Stillið hitamæla

Athugasemd: Ekki beita oddhvössum hlutum við aðgerðir á stjórnborði. Þeir geta rispað eða skaðað stjórnborðið.

Þegar kveikt er á

Þegar heimilistækið er sett í samband fer það í gang og byrjar að vinna.

Skjár

Þegar raftenging er komin á sést skjárinn allur í 3 sekúndur.

Þá gengur kælirinn á stillingu 3 sem er verksmiðjustilling.

Ef hitaskynjari bilar blikkar viðkomandi gaumljós.

Staða gaumljósa Bilun
Gaumljós 1 og 4 blikka.Bilaður umhverfishitaskynjari
Gaumljós 1 og 2 blikka.Bilaður hitaskynjari í kæli
Gaumljós 1 og 3 blikka.Bilaður hitaskynjari fyrir afpíðingu í ísskápnum

Athugasemd: Ef það eru blikkandi ljós skal hringja í þjónustuver.

Hitastilling

Ráðlögð hitastilling 3.

- Hægt er að stilla hitastigið á kælihólfinu í gegnum stjórnborðið.

- Þegar heimilistækið er sett í samband í fyrsta sinn stillir það á stillinguna 3.

Við stillingu á hitastigi skal ýta á hitastillihnappinn

A einu sinni eða oftar uns gaumljósið fyrir hitastillinguna kviknar. Heimilistækið kemur til með að vinna samkvæmt nýstilltu hitastigi eftir 15 sekúndur.

Hitastigið breytist í þessari röð:

(kalt) - • - • - **(kaldast)

Ráð:

  • Því lægra sem hitastigið er stillt þeim mun lengur er hægt að geyma matvælin og þeim mun meira rafmagn notar heimilistækið.
  • Því hærra sem hitastigið er stillt því hraðar skemmast matvælin og því minna rafmagn notar heimilistækið.

Hraðkælistilling

Athugasemd: Ofurkæliaðgerðin er sérstaklega gerð til að kæla hratt niður nýlega innsett matvæli í kælihólfinu. Ef þú ert með verulega mikið af heitum mat, t.d. eftir matarinnkaup, er mælt með að virkja ofurkæliaðgerðina. Með því að gera slíkt er tryggt að vörurnar kólna hratt og draga úr hitastigshækkun, sem þannig lengir geymsluþol allrar annarrar fæðu inni í ísskápnum.

  • Ef heimilistækið er sett á hraðkælingu skal ýta á og halda inni hitastillihnappnum A í 3 sekúndur. Bæði gaumljósin 1 og 2 kvikna þegar heimilistækið fer í hraðstillingu eftir 15 sekúndur.
  • Heimilistækið fer sjálfkrafa úr hraðkælistillingu eftir 6 klst. Til að losna úr þessari stillingu fyrr skal ýta á hitastillihnappinn A einu sinni.

Slökkva á

  • Þegar slökkt er á heimilistækinu skal ýta á og halda inni hitastillihnappnum A í 10 sekúndur. Öll gaumljós slokkna og heimilistækið hættir að vinna eftir 15 sekúndur.
  • Þegar kveikt er aftur á heimilistækinu skal ýta á hitastillihnappinn A. Heimilistækið byrjar þar sem frá var horfið.
  • Til þess að taka tækið úr sambandi skal taka rafmagnsklóna úr sambandi við rafmagnsinnstunguna.

Ábendingar og ráð

Ábendingar um kælingu á ferskum matvælum

  • Breiddu yfir eða pakkaðu inn matnum, sérstaklega ef hann er bragðsterkur.
  • Staðsettu matinn þannig að loft geti leikið óhindrað um hann.
  • Til að ná sem bestum árangri skaltu skilja nóg pláss eftir í kælihólfinu til að loft geti streymt um umbúðirnar. Einnig skal skilja eftir nægilegt rými framan við svo að hægt sé að loka dyrunum vel.
  • Ekki skal geyma heitan mat eða vökva sem uppgufun er af í kæliskápnum.
  • Kjöt (allar tegundir): setjið í hæfilegar pakkningar og látið á glerhilluna ofan við grænmetisskúffuna. Kjöt skal ekki geyma lengur en 1-2 daga.
  • Eldaður matur og kaldir réttir: hyljið og setjið á einhverja hillu.
  • Ávextir og grænmeti: hreinsið vel og látið í grænmetisskúffuna. Banana, kartöflur, lauk og hvítlauk má ekki geyma í kæliskápnum án umbúða.
  • Smjör og ostur: látið í sérstök loftþétt ílát eða pakkið í álpappír eða plastpoka til að útiloka sem mest loft.
  • Flöskur: lokið með loki og látið í hurðahillur.

Orkusparnaðarráð

  • Setjið upp heimilistækið í þurru, vel loftræstu herbergi langt frá hvers kyns hitagjöfum (t.d. ofnum, pottum o.s.frv.) og á stað sem sólin skín ekki beint á. Notið einangrunarplötu eftir þörfum.
  • Fylgið uppsetningarfyrirmælum til að tryggja næga loftræstingu.
  • Ónóg loftræsting bak við tækið eykur orkunotkun og dregur úr kælinýtni.
  • Umhverfishiti, opnunartíðni sem og staðsetning heimilistækisins geta haft áhrif á hitastig inni í heimilistækinu. Hitastillingin ætti að miðast við þessa þætti.
  • Látið heit matvæli og drykki kólna áður en þau eru sett í heimilistækið.
  • Þegar matvælin eru komin á sinn stað skal kanna hvort dyr á hólfunum lokast almennilega. • Lágmarkið opnun á hólfum.
  • Fyrirkomulag á hillum í kæliskáp hefur engin áhrif á orkunýtni. Matvæli skal setja þannig á hillur að það tryggi næga loftun (matvæli eiga ekki að snertast og halda skal fjarlægð á milli matvæla og bakhliðar).
  • Skipta skal sem fyrst um skemmdar þéttingar.

Þrif og viðhald

Almenn ráð

  • Þrífið heimilistækið reglulega með klút og volgri vatnslausn með hlutlausu hreinsiefni sem sérstaklega er ætlað innra borði kælisins. Forðist hreinsiefni og verkfæri sem rispa.
  • Til að tryggja að affrystivatnið renni vel frá skal nota drensíuna reglulega úr fittingspokanum til að þrífa drenúttakið fyrir affrystivatnið. Þetta úttak er staðsett aftan á ísskápnum (sjá mynd 1). Látið ávallt drensíuna vera í drenúttakinu til að koma í veg fyrir að það stíflist af óhreinindum.
  • Áður en heimilistækið er þjónustað eða þrifið skal taka það úr sambandi eða aftengja rafmagni.

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Almenn ráð - 1

Afþíðing í kælihólfi

Uppgufun af matnum inni í ísskápnum eða blöndun loftraka í kælihólfið við daglega notkun geta hvort tveggja leitt til ísmyndunar í kælihólfinu. Í slíkum tilfellum getur auðveldað sjálfvirka affrystingu að hækka hitastillingu ísskápsins handvirkt.

Ef það myndast vatnsdropar á bakvegg kælihólfsins er það til merkis um að sjálfvirk afþíðing sé að hefjast. Afþíðingarvatnið fer sjálfkrafa í drenopið og síðan í ílát þar sem það gufar upp.

VARÚD! Ekki má láta fylgihluti kælis í uppþvottavél.

Ef heimilistækið er ekki í notkun langtímum saman

  1. Slökkvið á heimilistækinu.
  2. Takið heimilistækið úr sambandi.
  3. Fjarlægið öll matvæli.
  4. Afpíðið og prífið heimilistækið.
  5. Skiljið hólfin eftir opin rétt nægilega mikið til að loft nái að hringrása í hólfunum. Þetta kemur í veg fyrir að myndist mygla og óþægileg lykt.

Ef rafmagnið fer af

  • Halda skal heimilistækinu lokuðu. Þannig haldast matvælin köld sem lengst.
  • Ekki reyna að endurkæla matvæli ef þau hafa náð herbergishita. Neytið þeirra innan sólarhrings.

Skipt um ljós

Heimilistækið er búið LED-innilýsingu. Einungis viðurkenndur tæknimaður má skipta um ljósgjafann. Hafið samband við viðurkennda þjónustumiðstöð. Til að flýta fyrir þjónustu skal ávallt skoða heildarlista yfir viðurkenndar þjónustumiðstöðvar sem finna má aftast í handbókinni og hringja í uppgefin símanúmer.

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Skipt um ljós - 1

Vandamál Mögulegar orsakir Lausnir
Slökkt er á stjórnborði og/eða heimilistækið er ekki í gangi.Vandamál getur verið með rafmagn að heimilistækinu.Gangið úr skugga um að:Rafmagni hafi ekki slegið út.Heimilistækið sé almennilega í sambandi og tvískautarofinn, ef hann er fyrir hendi, sé í réttri stöðu (kveikt).Varnartæki í heimilisrafmagni séu í góðu lagi.Rafmagnssnúran sé óskemmd.Kveikið á heimilistækinu með tímastillihnappi.
Ljósið inni virkar ekki.Ljósið er bilað.Ihlutur bilaðurSjá „Skipt um ljós“
Hitastig inni í hólfunum er ekki nógu lágt.Orsakirnar geta verið ýmsar (sjá lausnir í næsta dálki).Gangið úr skugga um að:Dyrnar eru almennilega lokaðar.Heimilistækið er ekki uppsett nálægt hitagjafa.Hitastigið er rétt stillt.Lofthringrás inni í heimilistækinu er ekki hindruð á nokkurn hátt (sjá uppsetningarleiðbeiningar).
Vatn safnast neðst í frystihólfi.Stífla í afpíðingardrenopi. Hreinsið úttak á affrystiafrennsli (sjá „Prif og viðhald“)
Frambrún kælis við péttingu er heit.Petta er ekki vandamál. Pað kemur í veg fyrir myndun péttivatns.Lausn er óþörf.
Hitastigið inni í kælihólfinu er of lágt.Hitastilling er of lág.Hitaskynjari í ísskápnum er bilaður.Ef engin matvæli í hólfinu eru frosin skal stillt á hærra hitastig.Ef hluti af eða öll matvælin í hólfinu eru orðin frosin skal hafa samband við þjónustuverkstæði.
Eitt eða fleiri ljós blikka stöðugt.Sjá „Skjár” í notkunarkaflanum. Hafiðsamband við viðurkennda þjónustumiðstöð.

Athugasemd:

Það er eðlilegt að kælikerfi gefi frá sér hljóð, svo sem gutl- og hvæshljóð.

SSSRRR! BRRRI CLICK! OK BLUBBI HIS SSI!

Áður en haft er samband við eftirsölupjónustu:

Endurræsið heimilistækið til að kanna hvort bilunin hefur verið lagað. Ef hún er viðvarandi skal slökkva aftur á heimilistækinu og endurtaka aðgerðina eftir klukkustund.

Ef heimilistækið virkar ekki rétt eftir athuganir samkvæmt bilanaleitarleiðbeiningunum og eftir gangsetningu aftur, skal hafa samband við þjónustuborð, skýra vandamálið og tilgreina:

• eðli vandamáls - kaupdagsetning • gerðar- og raðnúmer heimilistækis

Hlutanúmerið og raðnúmerið má sjá á merkiplötunni innan á vinstri hlið heimilistækisins.Vörunúmer (8-talna kóði) LUMNAS RAðnúmer (22 talna kóði) RELICIC D'AGROVI Mynd aðeins til viðmiðunar

Tæknileg gögn

Vöruflokkur
Vörutegund Kæliskápur
Gerð uppsetningar Innbyggð
Mál vöru
Hæð 1255 mm
Breidd 540 mm
Dýpt 550 mm
Nettó rúmmál
Kæliskápur 205,0 l
Afpíðingarkerfi
Kæliskápur Handvirkt
Aðrar tæknilýsingar
Orkunotkun 101 kWh/y
Hávaðastig 35 dB(A), Flokkur B
Orkuflokkur E
Spennuhlutfall 220 - 240 V~
Tíðnihlutfall50 Hz
Orkunýtniflokkur ljóssinsF

Athugasemd: Upplýsingar um vöruna í vörugagnagrunninum má nálgast með því að skanna QR-kóða á EPREL-miðanum.

Umhverfismálefni

1. Efni í umbúðum

Endurnýtanlegar umbúðir eru merktar með tákninu ⚙. Látið umbúðir í viðeigandi ílát til endurvinnslu. Látið börn ekki komast í umbúðir (plastpoka, pólýstýrenhluta o.s.frv.) því hætta getur stafað af.

2. Brotajárn/förgun

Heimilistækið er framleitt úr endurvinnanlegu efni. Heimilistækið er merkt í samræmi við Evrópsku tilskipunina 2002/96/EC um raf- og rafeindabúnaðarúrgang (WEEE). Með því að tryggja að heimilistæki þínu sé rétt fargað stuðlar þú að því að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar á umhverfið og heilsufar fólks.

Táknið á heimilistækinu eða í fylgigögnum

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Brotajárn/förgun - 1

gefur til kynna að þetta heimilistæki ætti ekki að meðhöndla sem heimilissorp, heldur fara með á sérstaka móttökustöð fyrir endurvinnslu raf- og rafeindaúrgangs. Þegar heimilistækinu er fargað skal gera það ónothæft með því að klippa af rafsnúruna og fjarlægja hurðar og hillur svo að börn geti ekki komist auðveldlega inn og fest sig.

Fargið heimilistækinu í samræmi við gildandi reglugerðir um förgun úrgangs og farið með það á sérstaka móttökustöð. Ekki skilja heimilistækið eftir eftirlitslaust í nokkra daga, því af því stafar hugsanlega hætta fyrir börn.

Hafið samband við til þess bæra skrifstofu, söfnunarstöð fyrir heimilisúrgang eða verslun þar sem heimilistækið var keypt varðandi frekari upplýsingar um meðferð, endurheimt og endurvinnslu þessa tækis.

Samræmisyfirlýsingin

Heimilistækið er gert til að varðveita matvæli og er framleitt samkvæmt reglugerð (EES) nr. 1935/2004.

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Samræmisyfirlýsingin - 1

Þetta heimilistæki var hannað, framleitt og markaðssett í samræmi við:

  • öryggisákvæði „Lágspennu“ tilskipunarinnar 2014/35/ESB (sem kemur í stað 2006/95/CE og meðfylgjandi viðauka);
  • verndarskilmála tilskipunarinnar „EMC“ 2014/30/ESB.

Þetta heimilistæki var hannað, framleitt og markaðssett í samræmi við:

  • Reglugerð um rafsegulsamhæfi 2016
  • Reglugerð um rafmagnsbúnað (öryggi) 2016

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Samræmisyfirlýsingin - 2

IKEA ÁBYRGD

Hversu lengi gildir IKEA ábyrgðin?

Þessi ábyrgð gildir í fimm (5) ár frá kaupdegi á heimilistækinu hjá IKEA, nema heimilistækið sé kallað LAGAN þar sem tveggja (2) ára ábyrgð á við. Krafist er upprunalegu sölukvittunarinnar sem sönnun fyrir kaupunum. Ef gert er við heimilistækið á meðan það er í ábyrgð framlengir það ekki ábyrgðartíma þess.

Hvaða heimilistæki falla ekki undir fimm (5) ára ábyrgð IKEA?

Heimilistækjalína sem kallast LAGAN og öll heimilistæki sem keypt eru hjá IKEA fyrir 1. ágúst 2007.

Þjónustuaðili IKEA veitir þjónustuna í gegnum eigin viðgerðarþjónustu eða samþykkta samstarfsviðgerðarþjónustu.

Hvað nær þessi ábyrgð yfir?

Ábyrgðin nær yfir bilanir á heimilistækinu, sem orsakast af göllum í smíði þess eða efnivið frá þeim degi sem það var keypt hjá IKEA. Þessi ábyrgð gildir aðeins til heimilisnota. Undantekningarnar eru taldar upp undir fyrirsögninni „Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?“ Innan ábyrgðartímans nær ábyrgðin yfir kostnað af viðgerð vegna bilunar, t.d. viðgerðir, varahlutir, vinna og ferðalög, að því tilskildu að heimilistækið sé aðgengilegt til að gera við án sérstakra útgjalda. Um þessa skilmála gilda viðmiðunarreglur ESB (Nr. 99/44/EG) og reglugerðir hlutaðeigandi lands. Varahlutirnir sem skipt er um verða eign IKEA.

Hvað gerir IKEA til að leysa vandamálið?

Þjónustuaðili, skipaður af IKEA, mun skoða vöruna og taka eina ákvörðun um það hvort þessi ábyrgð nái yfir hana. Ef ábyrgðin telst ná yfir heimilistækið mun þjónustuaðili IKEA eða samþykkt samstarfsfyrirtæki annað hvort gera við gölluðu vöruna eða skipta henni fyrir sömu eða sambærilega vöru, og er ákvörðun um það alfarið í þeirra höndum.

Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?

• Eðlilegt slit. - Vísvitandi eða vanrækslutjón, tjón af völdum þess að notkunarleiðbeiningum var ekki fylgt, röng uppsetning eða tenging við ranga spennu, tjón af völdum efna eða rafefnafræðilegra viðbragða, ryð, tæring eða vatnsskemmdir meðal en ekki takmarkað við tjón af völdum óhóflegs kalks í vatnsveitu, tjón af völdum óeðlilegra umhverfisaðstæðna.

- Einnota vörur eins og rafhlöður og perur.

- Óhagnýtir og skrauthlutir sem hafa ekki áhrif á eðlilega notkun á tækinu, þar á meðal alls konar rispur og mögulegur litamunur.

- Tilfallandi tjón af völdum aðskotahluta eða efna og þrifa eða hreinsun á síum, fráveitum eða sápuskúffum.

- Skemmdir á eftirfarandi hlutum: keramikgleri, fylgihlutir, leirtaus- og hnífaparakörfum, aðrennslis- og frárennslisrörum, þéttum, perum og peruhlífum, skjáum, hnöppum, hlífum og hluti af hlífum. Nema hægt sé að sanna að slíkt tjón sé tilkomið vegna framleiðslugalla.

- Tilfelli þegar tæknimaður skoðar heimilistækið og finnur engan galla.

- Viðgerðir sem ekki eru framkvæmdar af skipuðum þjónustuaðila okkar og/eða viðurkenndum þjónustuaðila sem er samningsbundinn samstarfsaðili eða upprunalegir varahlutir hafa ekki verið notaðir.

- Viðgerðir af völdum gallaðrar uppsetningar eða sem er ekki í samræmi við tæknilýsingu.

- Notkun heimilistækisins í umhverfi sem er ekki heimili, þ.e. í atvinnuskyni.

- Skemmdir vegna flutninga. Ef viðskiptavinur flytur vöruna heim til sín eða á annað heimilisfang, ber IKEA ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða í flutningum. Hins vegar, ef IKEA afhendir vöruna á heimilisfang viðskiptavinarins, þær skemmdir á vörunni sem á sér stað við þessa afhendingu fellur undir ábyrgðina.

- Kostnaður við að setja upp IKEA heimilistækið í fyrsta sinn. Hins vegar, ef þjónustuaðili skipaður af IKEA eða viðurkenndur þjónustuaðili gerir við eða skiptir um tæki samkvæmt skilmálum þessara ábyrgðar, munu þeir setja tæki upp sem er búið að gera við eða setja upp tæki sem er búið að skipta um, ef þörf krefur.

Þessar takmarkanir eiga ekki við um gallalausa vinnu sem viðurkenndur sérfræðingur framkvæmir með því að nota upprunavarahluti til að laga heimilistækið að tæknilegum öryggistæknilýsingum annars ESB-lands.

Hvernig lög landsins gilda

IKEA ábyrgðin veitir þér tiltekin réttindi, sem ná yfir eða fara fram úr öllum staðbundnum lagalegum kröfum. En þessir skilmálar takmarka á engan hátt réttindi neytandans sem lýst er í staðbundinni löggjöf.

Gildissvæði

Fyrir tæki sem eru keypt í einu ESB landi og síðan flutt til annars ESB lands, er þjónustan sem veitt verður innan ramma eðlilegra ábyrgðarskilmála í nýja landinu.

Skuldbinding til að framkvæma þjónustu í tengslum við ábyrgð er aðeins ef tækið uppfyllir og er sett upp í samræmi við:

  • tæknikröfur landsins þar sem ábyrgðarkrafa er gerð;
  • samsetningarleiðbeiningar og öryggisupplýsingar í notendahandbókinni.

Hið sérstaka ÞJÓNUSTUBORD heimilistækja frá IKEA

Ekki hika við að hafa samband við þjónustufulltrúa hjá IKEA til að:

  • leggja fram þjónustubeiðni samkvæmt þessari ábyrgð;
  • fá leiðbeiningar um hvernig á að setja IKEA-heimilistækið inn í til þess ætlaða IKEA-eldhúsinnréttingu.
  • biðja um skýringar á virkni IKEA tækisins.

Vinsamlegast lestu vandlega leiðbeiningum um samsetningu og/eða notendahandbókina áður en haft er samband við okkur til að tryggja að við bjóðum þér bestu aðstoð.

Hvernig á að ná í okkur ef þú þarft á þjónustu okkar að halda

IKEA LUMNÄS 305.728.56 - Hið sérstaka ÞJÓNUSTUBORD heimilistækja frá IKEA - 1

Aftast í handbókinni eru símanúmer yfir alla veitendur eftirsölupjónustu sem útnefndir hafa verið af IKEA.

Til að flýta fyrir þjónustu er mælt með að nota sérstök símanúmer sem eru skráð í handbókinni. Notaðu alltaf númerin sem gefin eru upp í notendahandbókinni fyrir það tiltekna heimilistæki sem þú þarft aðstoð með. Munið að láta fylgja 8 tölustafa hlutanúmer og 22 tölustafa raðnúmer sem koma fram á merkiplötu heimilistækisins.

GEYMIÐ SÖLUKVITTUNINA! Hún er sönnun fyrir kaupunum og hana þarf þegar krafist er um ábyrgð. Sölukvittunin sýnir einnig IKEA nafnið og númer hlutarins (8 stafa númer) fyrir hvert tæki sem þú hefur keypt.

Þarft þú meiri hjálp?

Vinsamlegast hafðu samband við þjónustuborð IKEA til að fá svör við spurningum sem tengjast ekki eftirsölu á tækinu þínu. Við mælum með að lesa bæklingana sem fylgja heimilistækinu áður en haft er samband við okkur.

Varahlutaupplýsingar

  • Eftirfarandi varahlutir verða tiltækir fyrir fagmenn í viðgerðum lágmark í sjö ár eftir að síðasta einingin af þessari gerð hefur verið markaðssett: hitastillar, hitaskynjarar, prentspjöld og ljósgjafar.
  • Varahlutirnir hurðahúnar, hurðalamir, bakkar og körfur verða tiltækir fyrir fagmenn í viðgerðum í lágmark sjö ár, en hurðapéttingar í lágmark 10 ár eftir að síðasta eining af þessari gerð var markaðssett.

Varahlutina má finna á: www.ikea.com

Country Phone Number Call Fee Opening Time (Mon-Fri)
Deutschland 08007242420 Kostenlos 8am - 5pm
France 0805543333 Gratuit8.30 am - 7.00 pm (lun-ven)8.30 am - 1.00 pm (sam)
United Kingdom08009175827 till 5pmfree 9am till 5pm
Ireland free 9am
Italia 800130373Gratuito 9am-6pm
España 900822398Gratis 9am-6pm
Ελλάδα0080044146128Χωρίς χρέωση9am-6pm
България0 700 10 218Безплатно9.00 - 18.00 ч. (пон. - пет)
Nederland0900 - 235 4532(0900-BEL IKEA)0031 - 50 316 8772(internationaal)Gratis Ma-Vr 8-20, Za 9-20
Sverige0775700500Kostnadsfrittmån-fre 8.30 - 20.00lör-sön 9.30 - 18.00
Schweiz0800110344Kostenlos 8am - 5pm
SuisseGratuit8am - 5pm
SvizzeraGratuito8am - 5pm
Österreich0800909626Kostenlos9am-5pm
België080080159Gratis 9am-5pm
BelgiqueGratuit9am-5pm
LuxembourgGratuit9am-5pm
Danmark70 15 09 09 Gratisman. - fre. 09.00 - 20.00lør. - søn. 09.00 - 18.00
Norge80031407Gratis9.00 am - 4.00 pm
Polska 800012088Bezplatne9am-5pm
Portugal 800210151Gratuita 9am-6pm
Česká republika800050717 Zdarma9am-5pm
Suomi0800302588Maksuton9.00 am - 4.00 pm
Magyarország0680984517Ingyenes9am-5pm
Türkiye4449774Ücretsiz8.00 am - 17.30 pm
Россия88005510448Бесплатно9am-6pm
Slovensko0800160812Bezplatne9.00 - 18.00 (pondelok - piatok)
Latvija80000037Bezmaksas9.00 - 18.00 (P - Pk)
Eesti8000044841Tasuta9.00 - 18.00 (E-R)
Lietuva880030167 Nemokamai 9.00 - 18.00 (Pr-Pn)
КúпроçIKEA.comЕлεύθερος
Country Phone Number Call Fee Opening Time (Mon-Fri)
Gran Canaria IKEA.com Gratis
Србија IKEA.com Besplatno
Ísland IKEA.com Ókeypis
România IKEA.com Gratuit
Hrvatska IKEA.comNe naplaćuje se
SlovKEA.com Brezplačno
Tenerife IKEA.com Gratis
Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : LUMNÄS 305.728.56

Flokkur : Kælir