TILLREDA 405.901.57 - Cuisinière IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis TILLREDA 405.901.57 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um TILLREDA 405.901.57 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Cuisinière á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína TILLREDA 405.901.57 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. TILLREDA 405.901.57 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK TILLREDA 405.901.57 IKEA
| Öryggisupplýsingar | 89 | Leiðbeiningar um potta og pönnur | 98 |
| Öryggisleiðbeiningar | 92 | Umhirða og Þrif | 100 |
| Vörulýsing | 94 | Bilanaleit | 101 |
| Gaumljós | 95 | Tæknileg gögn | 102 |
| Dagleg notkun | 95 | Umhverfismálefni | 102 |
| Eldvél | 97 | IKEA-ábyrgð | 103 |
Öryggisupplýsingar
① Til að tryggja öryggi og rétta notkun tækisins, lesið vandlega þessa handbók fyrir uppsetningu og notkun. Haldið alltaf þessum leiðbeiningum með tækinu, jafnvel ef þú flytur það eða selur. Notendur verða að vita alveg starfrækslu og öryggisatriði tækisins.
Rétt notkun
- Ekki láta tækið eftirlitslaust þegar það er í notkun.
- Þetta tæki er eingöngu hannað til heimilisnota.
- Þetta tæki er eingöngu hannað til notkunar innanhúss.
- Ekki má nota tækið sem vinnusvæði eða sem geymsluflöt.
- Ekki setja eða geyma eldfima vökva, mjög eldfim efni eða sambræðanlega hluti (t.d. plastfilmu, plast, ál) í eða nálægt tækinu.
- Gætið að þegar rafmagnstækinu er stungið í innstungu rétt hjá. Ekki leyfa snúrunni að koma við eða festast undir tækinu eða heitum pottum.
- Ekki gera sjálf(ur) við til þess að koma í veg fyrir meiðsli og skemmdir á tækinu. Hafið ávallt samband við næstu IKEA-verslun.
- Börn 8 ára og eldri og fólk sem er hreyfihamlað, með skerta skynjun, skert andlega eða skortir reynslu og þekkingu ef það hefur fengið leiðsögn eða leiðbeiningar um örugga notkun ísskápsins og áttar sig á hættunum sem fylgja mega nota ísskápinn.
- Haldið öllum umbúðum frá börnum. Vegna hættu á köfnun.
- Halda börnum frá tækinu á meðan það er í gangi og einnig þegar það er ekki í notkun.
- Börnum undir 8 ára aldri skal haldið frá nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
- Börn mega ekki leika sér að helluborðinu. Hreinsun og viðhald notanda skulu ekki framkvæmd af börnum án tilsjónar.
⚠ Viðvörun! Setjið barnalæsingu á til að hindra að ung börn og gæludýr kveiki óvart á helluborðinu.
Almennar öryggiskröfur
- Ekki setja neitt fyrir loftræstinguna á grind tækisins eða innbyggðu gerðina.
- Ekki snerta flötinn þegar hitavísirinn sýnir leifar af hita til að koma í veg fyrir meiðsli.
- Ekki setja neina hluti í spanhelluborð meðan á aðgerð stendur til að koma í veg fyrir raflost.
- Ekki vefja snúrunni um hálsinn til að koma í veg fyrir kyrkingarhættu.
- Ekki má nota gufuhreinsi til að hreinsa helluborðið.
- Ekki skal láta málmhluti svo sem hnífa, gaffla, skeiðar eða lok ofan á helluborðið, því að þeir geta orðið heitir.
- Eftir notkun skal slökkva á helluborðinu og ekki treysta á pottaskynjarann.
- Ekki er ætlast til að helluborðið sé notað með aukatímastilli eða sérstakri fjarstýringu.
- Forðast skal að snerta hitafleti.
- Ef rafsnúran er skemmd þarf framleiðandi, viðurkennt þjónustuverkstæði eða einhverjir með hliðstæða löggildingu að skipta um hana til að forðast hættu. Vinsamlegast hafið samband við verslun IKEA.
- Tækið er ætlað til notkunar á heimili og við svipaðar aðstæður, svo sem:
- eldhús starfsfólks á verkstæðum;
- bændabýli;
- hjá viðskiptavinum á hótelum, mótelum og öðru heimahúsaumhverfi;
- gisting með morgunverði.
Varúð: heitt yfirborð. Yfirborðið getur orðið heitt við notkun.
⚠ VIÐVÖRUN: Ef sprungur eru í yfirborðinu, skal slökkva á helluborðinu til að komast hjá hugsanlegu raflosti. Vinsamlegast hafið samband við verslun IKEA.
⚠ VIÐVÖRUN: Helluborðið og fletir þess verða heit við notkun.
⚠ VIÐVÖRUN: Hættulegt getur verið að elda á helluborðinu með feiti eða olíu og getur valdið eldsvoða. ALDREI skal reyna að slökkva slíkan eld með vatni, heldur slökkva á helluborðinu og kæfa logann, t.d. með loki eða eldvarnarteppi.
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
- Framleiðandi ber ekki ábyrgð á meiðslum á fólki, gæludýrum eða skemmdum á eignum vegna þess að ekki var farið eftir eftirfarandi kröfum.

Varúð! Til að halda áfram með uppsetningu er vísað til öryggisupplýsinganna.

Viðvörun! Uppsetningin verður að fylgja lögum, reglugerðum, tilskipunum og stöðlum (rafmagnsöryggisreglum og reglugerðum, réttri endurvinnslu í samræmi við reglur, o.s.frv.) sem eru í gildi í viðkomandi landi!
- Forðist að setja tækið upp við hliðina á hurðum eða undir gluggum þar sem heitur pottur getur fallið af helluborðinu þegar hurðirnar og gluggarnir eru opnaðir.
- Tryggið að tækið sé ekki skemmt vegna flutninga. Ekki tengja skemmt tæki.
- Ekki setja tækið upp ef það hefur skemmst við flutninginn.
- Ekki tengja helluborðið með framlengingarsnúru og ekki leggja snúruna yfir vinnusvæðið.
- Ekki breyta tæknistaðlinum eða breyta þessari vöru. Hætta á meiðslum og skemmdum á tækinu.

Viðvörun! Farið vandlega eftir leiðbeiningum um rafmagnstengingar.
Raftenging
- Áður en tengt er skal athuga hvort nafnspenna tækisins sem tilgreind er á kennispjaldinu samsvari fyrirliggjandi fæðispennu. Athugið einnig afköst helluborðsins og tryggið að rafkerfi heimilisins sé nægilega öflugt til að knýja helluborðið (sjá kafla um Tæknileg gögn).
- Matsplatan er staðsett á neðri hlið helluborðsins.

Viðvörun! Hætta á meiðslum af völdum rafstraums.
- Innstungur og klár geta ofhitnað vegna lausra eða óviðeigandi tenginga.
Fyrir notkun:
Vinsamlegast gefið gaum að eftirfarandi leiðbeiningum fyrir notkun.
- Vinsamlegast notið staðlaðar innstungur fyrir aðal aflgjafann og athugið þær reglulega til að koma í veg fyrir skemmdir.
- Ekki opna helluborðið sjálf eða láta nokkurn annan opna það án tilskilinna réttinda. Einungis þjónustufulltrúi eða viðurkenndur tæknimaður hefur leyfi til að framkvæma viðgerðir á helluborðinu.
- Vinsamlegast athugið rafmagnsleiðsluna og klónna. Ekki nota helluborðið ef rafsnúran eða klóin eru skemmd. Ekki draga klónna út með blautum höndum.
- Ekki nota framlengingarsnúru og notið aðeins innstungu fyrir aðal aflgjafann.
- Ef helluborðið hefur ekki verið í notkun lengi skal byrja á að kveikja á því í 10 mínútur til að gera rafeindaíhlutinn stöðugan. Síðan er hægt að fara að nota helluborðið.
- Ekki nota helluborðið nærri vatni, eldi eða á röku svæði. Helluborðið er EINGÖNGU ætlað til notkunar innanhúss.
- Fjarlægja skal allar umbúðir, límmiða og plastfilmu utan af helluborði fyrir notkun.
- Slökkvið á plötunni eftir hverja notkun og ekki treysta á pönnunemanum.
- Hætta á bruna! Ekki má setja hluti úr málmi, eins og hnífa, gaffla, skeiðar eða pottlok á eldunaryfirborðið, þar sem þeir geta orðið heitir.

Viðvörun! Eldhætta! Kviknað getur fljótt í ofhitaðri fitu eða olíu.

Viðvörun! Notendur með ígræddan gangráð ættu að halda efri hluta líkamans minnst 30 sm fyrir ofan plötuna sem kveikt er á.

Viðvörun! Ekki nota tækið þegar hendurnar eru blautar og hafið yfirborð stjórnborðsins þurrt. Ef of mikið vatn er á stjórnborðstökkunum þá er ekki lengur hægt að nota það.
Viðvörun! Ef yfirborðið er sprungið á að slökkva á tækinu til að koma í veg fyrir möguleika á raflosti.
Við og eftir notkun:
Vinsamlegast gefið gaum að eftirfarandi leiðbeiningum til að koma í veg fyrir íkveikju og slys.
- Látið helluborðið ÁVALLT sitja á sléttu og traustu yfirborði.
- Eftirlit á að vera með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með tækið.
- Ekki láta eftirfarandi hluti á helluborðið þegar það er í gangi.
- Ekki færa eða hreyfa helluborðið úr stað með pottum eða pönnum ofan á því á meðan hitun á sér stað.
- Vinsamlegast hafið góða loftræstingu þegar verið er að elda.
- Ekki má láta víra eða málmhluti inn í loftinntak eða loftunarop á helluborðinu.
- Umhirða plötunnar
a) Ekki láta þunga hluti falla á plötuna. b) Ekki hella vatni, sýru eða vökva á plötuna. c) Ekki nota opinn eld á helluborðinu. d) Ekki láta neina potta eða pönnur á helluborðið þegar ekki er verið að nota það. e) Ef yfirborðið (helluborðið) er sprungið skal slökkva strax á helluborðinu til að forðast raflost og skila því í næstu IKEA-verslun. f) Sumir pottar hafa hátt þegar þeir eru notaðir. Færið pottana aðeins og hljóðið hverfur eða minnkar. Ef ekki, skiptið þá um potta.
- Ekki láta helluborðið á teppi, dúk eða pappír þegar það er í gangi.
- Ekki snerta plötuna á meðan hún er heit. Platan er enn heit þar til hitavísirinn hverfur, jafnvel þegar búið er að slökkva á henni.
- Ekki taka helluborðið úr sambandi með því að toga í rafsnúruna.
- Slökkva skal á helluborðinu og láta kólna áður en tekið er úr sambandi. Vinsamlegast takið rafsnúruna úr sambandi ef helluborðið verður ekki í notkun í lengri tíma.
- Haldið pottum og pönnum frá helluborði eftir notkun.
Hvernig á að forðast skemmdir á tækinu
- Keramikið getur skemmst ef hlutir detta á það eða pottarnir rekast í það.
- Pottar úr steypujárni, steypuáli eða með skemmdan botn geta rispað keramikið ef þeim er rennt yfir yfirborðið.
- Keramikið getur skemmst ef það dettur á gólfið.
- Ekki láta potta eða steikarpönnur sjóða þurrar til að koma í veg fyrir skemmdir á pottum og keramik.
- Ekki setja tóma potta á plötuna eða hafa hana án potta.
- Setjið aldrei álpappír á hluti á tækið. Setjið aldrei plast eða önnur efni sem geta bráðnað í eða á tækið.
Viðvörun! Hafið tækið í sambandi þar til slokknar á viftunni og hitavísinum.
Upplýsingar um akrýlamíð
Mikilvægt! Samkvæmt nýjustu vísindalegri þekkingu, að steikja matinn mikið, sérstaklega mat sem inniheldur mikla sterkju, getur talist hættulegt heilsunni vegna akrýlamíðs. Þess vegna mælum við með að elda á lægsta mögulega hitanum og ekki steikja matinn of mikið.
Vörulýsing

1 Hitunarsvæði Loftúttak Eldunarsvæði 17 mm, 2000 W0 2 Stjórnborð Snagi 3 Sílikon-fætur
4 5 Loftinntak 6

Fyrirkomulag stjórnborðs
1 Kveikja/Slökkva 2 Stilliskjár 3 Læsing/barnalæsing 4 Hitastilling - / +
Nemasvæði snertistýringar og skjáir
Eldavélin er stýrð með því að snerta nemasvæðin. Skjár og hljóðmerki (stutt píp) staðfestir val á aðgerð.
| Orkustig | 1 2 3 4 5 6 | 7 8 9 | |||||||
| Orka | 150W | 250W | 300W | 450W | 600W | 800W | 1100W | 1500W | 2000W |
Gaumljós
Pottur rangt staðsettur eða vantar
Táknið birtist ef potturinn hentar ekki til spaneldunar, er rangt staðsettur eða er ekki af réttri stærð fyrir valið eldunarsvæði. Ef enginn pottur er skynjaður innan 30 sekúndna, eftir að valið hefur verið, slokknar á eldunarsvæðinu.
H Eftirhiti
Ef skjárinn sýnir "H" er eldunarsvæðið enn heitt. Þegar eldunarsvæðið kólnar, slokknar á skjánum.
Viðvörun! Hætta á bruna vegna afgangshita! Eftir að slökkt er á tækinu þarf eldunarsvæðið tíma til að kólna. Horfið á afgangshitavísirinn
Notið afgangshitavísirinn til að bræða mat eða halda honum heitum.
Ekki taka tækið úr sambandi án þess að bíða að H fari af skjánum.
Dagleg notkun

Tengja við innstunguna
- Eftir að klónni er stungið í samband verður barnalæsingin virk. Ýtið á og haldið barnalæsingartakkanum inni í 3 sekúndur til að slökkva.
KVEIKJA/SLÖKKVA
- Ýtið á KVEIKJA/SLÖKKVA takkann, skjárinn sýnir „0“ eins og í biðstöðu og kviknar á orkuvisinum. Ef ekki er valin hitastilling innan 30 sekúndna, slokknar sjálfkrafa á hellunni án þess að ýtt sé á SLÖKKVA/KVEIKJA-hnappinn.
- Ýtið á KVEIKJA/SLÖKKVA takkann meðan eldað er og platan slekkur á sér.
ÍSLENSKA

Hitastilling
- Ýtið á — eða til að stjórna hitanum við eldamennskuna.
- Ýtið á — orkustigið mun fara beint í „9“. Ýtið á _ til að minnka orkustigið úr „9“ í „1“.
- Ýtið á +, hitastillingin hækkar úr "1". Ýtið á + til að hækka orkustigið úr „1" í „9".

Læsiaðgerð
Þegar eldunarsvæðið er í gangi er hægt að læsa stjórnborðinu, til dæmis til að hreinsa helluna. Það kemur í veg fyrir að hitastillingin breytist óvart. Hægt er að slökkva á plötunni með KVEIKJA/SLÖKKVA takkanum.
Virkja læsingu
- Stillið á æskilegan hita.
- Ýtið á Læsingu-hnappinn í 3 sekúndur. Aðgerðin er virk þegar Læsingu-hnappljósið logar og hljóðmerki heyrist.
Afvirkja læsingu
- Ýtið á Læsingu-hnappinn í 3 sekúndur. Aðgerðin er óvirk þegar Læsingu-hnappljósið slokknar og hljóðmerki heyrist.
- Hitastillingin fer á fyrri stillingu.
Barnalæsing
Einnig er hægt að læsa stjórnborðinu þegar það er ekki í platan er ekki í notkun. Þessi aðgerð kemur í veg fyrir að kveikt sé á tækinu af slysni.
Virkja barnalæsingu
- Kveikið á tækinu með KVEIKJA/SLÖKKVA takkanum. Ekki stilla á neinn hita.
- Ýtið á Læsingu-hnappinn í 3 sekúndur. Aðgerðin er virk þegar Læsingu-hnappljósið logar og hljóðmerki heyrist.
- Slökkva á tæki með VEIKJA/SLÖKKVA takkanum.
- Ýtið á Læsingu-hnappinn í 3 sekúndur. Aðgerðin er óvirk þegar Læsingu-hnappljósið slokknar og hljóðmerki heyrist.
Sjálfvirkt straumrof
Aðgerðin slekkur sjálfkrafa á hellunni ef:
- slökkt er á öllum plötum.
- EKKI er stillt á hita innan 30 sekúndna eftir að kveikt er á hellunni.
- EKKI var slökkt á eldunarsvæði eða ekki var breytt stillingu eftir 2 klst. eða ef yfirhitun verður (t.d. þegar allt sýður upp úr pönnu).
Eldvél
| Hitastilling Notkun við: Tími (mín) Ráð | ||
| 1 • Haltu elduðum mat heitum. eftir Þörfum Látu lok á eldunarílátið. | ||
| 1 - 2 • Hollandaise-sósa, bræða:smjör, súkkulaði, gelatín. | 5 - 25 Hræra öðru hverju. | |
| 2 - 3 • Látu malla hrísgrjón ogmjólkurblandaða rétti, hitaupp foreldaðar máltíðir. | 25 - 50 Nota a.m.k. tvöfalt meirivökva en hrísgrjón og hræraí mjólkurréttum hálfa leið ígegnum ferlið. | |
| 4 - 5 • Gufusjóða grænmeti, fisk,kjöt, kartöflur. | 20 - 45 Nota lítið magn af vatni. | |
| • Sjóða mikið magn af mat ogkássum. | 60 - 150 Nota lítið magn af vatni. | |
| 5 - 6 • Mjúksteiking: kálfakjötí cordon bleu, kótelettur,kjöt- eða fiskkökur, bjúgu,sósugrunnur, egg. | eftir Þörfum Snúa eftir helming tímans. | |
| 7 - 8 • Kartöfluklattar, steikur. 5 - 15 Snúa eftir | helming tímans. | |
| 9 • Sjóða vatn, elda pasta, brunasteikja kjöt (gúllas, ofnsteik). djúpsteikjakartöflur. | ||
Leiðbeiningar um potta og pönnur
Hvaða potta skal nota
Eingöngu skal nota potta og pönnur gerðar úr járnsegulefni sem hentar til eldunar á spanhellum:
- Steypujárn • glerungshúðað stál
- kolstál
- ryðfrítt stál (þó ekki allar gerðir)
- ál með járnsegulhúð eða járnsegulþynnu
Leitið að tákninu (venjulega stimplað á botninn) til að ákvarða hvort pannan hentar. Einnig má bera segul að botninum. Ef hann tollir við botninn virkar potturinn eða pannan á spanhellum.
Notið ávallt potta og pönnur með sléttum botni, sem dreifir hitanum jafnt, til að tryggja hámarksafköst. Ef botninn er ósléttur hefur það áhrif á hita- og varmaleiðni.
Notkunarleiðbeiningar
Lágmarks þvermál pott-/pönnubotns fyrir mismunandi eldunarsvæði
Potturinn verður að þekja einn eða fleiri af viðmiðunarpunktunum sem sýndir eru á helluyfirborðinu og verður að ná lágmarkspvermáli til að tryggja að hellan starfi rétt.
Ávallt skal nota eldunarsvæði sem best passar við þvermál pönnubotnsins.
| Eldunarsvæði | Ráðlagt þvermál potta- eða pönnubotns [mm] |
| Eldunarsvæði fyrir miðju aftast | 120-180 |
Tómir eða punnbotna pottar/pönnur
Ekki má nota tóma eða punnbotna potta eða pönnur á hellunni því hún getur ekki fylgst með hitastiginu eða slökkt sjálfkrafa ef hitastigið er of hátt og þannig getur pannan eða helluyfirborðið skemmst. Ef þetta gerist má ekki snerta neitt en bíða skal og láta alla íhluti kólna.
Ef villuskilaboð birtast skal leita undir „Bilanaleit”.
Tillögur/ráð
Hávaði á meðan eldað er
Þegar eldunarsvæðið er í gangi getur verið að það suði smástund. Þetta einkennir öll eldunarsvæði úr keramik-gleri og skerðir ekki virkni eða líftíma helluborðsins. Hávaðinn fer eftir hvernig pottar og pönnur eru notaðar. Ef mikil truflun er af þessu getur hjálpað að skipta um potta og pönnur.
Eðlileg hljóð frá spanhelluborðinu
Spantækni er byggð á rafsegulmögnuðum svæðum sem varpa hita beint í botninn á eldunarílátinu. Pottar og pönnur geta valdið ýmsum hljóðum eða titring sem fer eftir tegundum. Þessum hljóðum er lýst svona:
Lágt suð (eins og í straumbreyti)
Þetta hljóð myndast þegar eldað er á háum hita. Það orsakast af orkunni sem flutt er frá hellunni í eldunarílátið. Hljóðið hættir eða minnkar þegar hitinn er lækkaður.
Lágt flaut
Þetta hljóð myndast þegar eldunarílátið er tómt. Það hættir um leið og vökvi eða matvæli eru sett í eldunarílátið.
Snark
Þetta hljóð myndast þegar eldunarílátið er lagskipt úr mismunandi efniviðum. Það orsakast af titringi sem myndast þegar ólík efni mætast. Hljóðið kemur frá eldunarílátinu og getur verið mismunandi eftir magni af matvælum eða vökva og eldunaraðferðinni (þ.e. eftir því hvort þú ert að sjóða, malla eða steikja).
Hátt flaut
Hljóðið myndast þegar eldunarílátið er lagskipt úr mismunandi efniviðum og stillt er á hámarkshita og einnig ef notaðar eru tvær hellur. Hljóðið hættir eða minnkar þegar hitinn er lækkaður.
Þessi hljóð eru eðlileg Viftuhljóð
Til að rafkerfið virki rétt er nauðsynlegt að hafa stjórn á hitastigi helluborðsins. Þess vegna er kælivifta í helluborðinu sem fer af stað til að draga úr og stýra hitanum á rafkerfinu. Viftan getur haldið áfram að ganga eftir að slökkt er á helluborðinu ef hitinn er enn of mikill.
Taktfast hljóð, eins og í klukku.
Þetta hljóð myndast aðeins ef minnst þrjár hellur eru í gangi og hættir eða minnkar þegar slökkt er á einhverjum þeirra. Hljóðinu er lýst sem eðlilegur þáttur spantækninnar og telst ekki sem galli.
Umhirða og þrif
Viðvörun! Slökkvið á tækinu og látið það kólna áður en það er tekið úr sambandi. Viðvörun! Slökkvið á tækinu og látið það kólna áður en það er þrifið. Viðvörun! Ekki er mælst til að tækið sé hreinsað með gufuþrýstibúnaði eða háþrýstiefnum. Viðvörun! Oddhvassir hlutir og fægilögur munu skemma tækið. Hreinsið tækið og fjarlægið leifar með vatni og uppþvottaefni eftir hverja notkun. Fjarlægið einnig leifar af hreinsiefnum! Rispur eða dökkir blettir á keramikinu sem ekki er hægt að fjarlægja hafa ekki áhrif á starfsemi tækisins.
Blettir og erfiðir blettir fjarlægðir:
- Fjarlægja ætti strax matvæli sem innihalda sykur, plast, leifar af álpappír. Besta tækið til að hreinsa gleryfirborð er skafa (fylgir ekki tækinu). Setjið sköfuna á yfirborð keramiksins í halla og fjarlægið leifar með því að renna blaðinu yfir yfirborðið. Þurrkið tækið með rökum klút með smá uppþvottalegi. Nuddið tækið með hreinum þurrum klút að lokum.
- Fjarlægja ætti kalk-, vatns- og fitubletti, svo og glansandi málmupplitun, eftir að tækið hefur kólnað niður, með hreinsiefni fyrir keramik eða ryðfríu stáli.
Bilanaleit
| Vandamál Möguleg orsök Lausn | ||
| Tækið virkar ekki. | Pað vantar orku eða skammhlaup á heimilinu pínu. | |
| Innstungan er ekki rétt tengd. | Athugið hvort aflgjafi er rétt tengdur við eldavélina. | |
| Meira en 10 sekúndur eru liðnar frá pví að kveikt var á tækinu. | Kveikið aftur á tækinu. | |
| Barnalæsing er á. | Afvirkja barnalæsingu.(Sjá kaflann um „Barnaöryggistækið“). | |
| Nokkrir skynjarar voru snertir á sama tíma. | Snertið aðeins einn skynjara. | |
| Helluborðið starfar ekki.Villuboð: [IMAGE] | Pottur eða panna henta ekki á spanhellur. | Skiptið yfir í potta fyrir spanhellur. |
| Enginn pottur eða panna á eldunarsvæði eða botnpvermál undir 120 mm. | Setjið potta á eldunarsvæðið. | |
| Helluborðið starfar ekki.Villuboð: [IMAGE] | Potturinn er tómur (þurrsuða) eða eldunarhitinn er of hár. | Slökkvið á helluborðinu og endurræsið eftir 5 minútur.Ef E2 er viðvarandi skal hafa samband við næstu IKEA-verslun. |
| Loftinntak og úttak er lokað. | ||
| Lofthiti er of hár. | ||
| Helluborðið starfar ekki.Villuboð: [IMAGE] | Helsti aflgjafinn er yfir AC 275V. | Skiptið yfir í tæki sem passar við viðeigandi aflgjafa. |
| Helluborðið starfar ekki.Villuboð: [IMAGE] | Helsti aflgjafinn er undir AC 100V. | Skiptið yfir í tæki sem passar við viðeigandi aflgjafa. |
| Helluborðið starfar ekki.Villuboð: [IMAGE] | Hitaskynjari helluborðsins virkar ekki. | Vinsamlegast hafið samband við verslun IKEA. |
| Helluborðið starfar ekki.Villuboð: [IMAGE] | Innri undantekning | Slökkvið á helluborðinu og endurræsið eftir 5 minútur.Ef E0 er viðvarandi skal hafa samband við næstu IKEA-verslun. |
Villukóði birtist þegar kveikt er á hellu og villa er skynjuð. E og tölur birtast með vissu millibili (1 sekúnda) og skiptast á.
Ef bilun verður skal reyna að laga hana með því að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum. Ef ekki er hægt að laga bilunina skal hafa samband við næstu IKEA-verslun.
Ef þú notar tækið rangt getur söluaðili ekki tekið það án endurgjalds, jafnvel á ábyrgðartímanum.
Tæknileg gögn
| Gerð | 14CP12301 |
| Gerð helluborðs | Frístandandi spanhelluborð |
| Fjöldi eldunarstaða og/eða -svæða | 1 |
| Orkuhlutfall 2000 W | |
| Spennuhlutfall | 220 - 240 V~ |
| Tíðnihlutfall | 50 - 60 Hz |
| Dýpt 305 mm | |
| Breidd 270 mm | |
| Hæð 62 mm | |
| Nettó þyngd 2,33 kg |
Umhverfismálefni
Förgun heimilistækja
Táknið á vörunni eða umbúðum hennar gefur til kynna að það megi ekki meðhöndla hana sem heimilissorp. Þess í stað ætti að fara með vöruna á réttan afhendingarstað til endurvinnslu fyrir rafmagns- og rafeindabúnað. Með því að tryggja að þessi vara sé rétt fargað ertu að koma í veg fyrir hugsanlegar neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfi og heilsu manna, sem annars gæti hlotist við ranga förgun vörunnar. Vinsamlegast hafðu samband við bæjarstjórn, endurvinnslustöð eða verslunina þar sem þú keyptir vöruna til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu á þessari vöru.

Viðvörun! Fylgdu þessum skrefum til að farga tækinu:
- Dragið klóna úr innstungunni.
- Skerið rafmagnssnúruna í burtu og fleygið henni.
Förgun umbúða
Hægt er að vinna efnin með tákninu 📋. Fargið umbúðum á viðeigandi söfnunarstað til að endurvinna þær.
Orkusparnaður
- Setjið lokið á pottinn ef það er hægt.
- Setjið pottinn á eldunarsvæðið áður en kveikt er á plötunni.
- Botn pottsins ætti að vera eins þykkur og flatur og mögulegt er.
IKEA-ábyrgð
Hve lengi gildir IKEA-ábyrgðin?
Þessi ábyrgð gildir í 2 ár frá deginum sem þú keyptir upprunalega heimilistækið hjá IKEA, nema annað sé tekið fram í landslögum. Farðu endilega á IKEA.com til að sjá hvað á við um þitt land. Framvísa þarf upprunalegu sölukvittuninni til sönnunar á kaupunum. Ef tækið er þjónustað á ábyrgðartímanum lengir það ekki ábyrgðartímann fyrir tækið.
Sem mun sinna þjónustunni?
Hafið samband við verslun IKEA.
Hvað nær þessi ábyrgð yfir?
Ábyrgðin nær yfir galla á tækinu, sem hafa verið af völdum gallaðra byggingar eða galla í efni frá kaupdegi hjá IKEA. Þessi ábyrgð gildir aðeins til heimilisnota. Undantekningarnar eru tilgreindar undir fyrirsögninni „Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?“ Kostnaður innan ábyrgðartímans til að bæta bilun, t.d. viðgerðir, varahlutir, vinna og ferðalög verður bættur, að því tilskildu að tækið er aðgengilegt fyrir viðgerð án sérstakra útgjalda. Varahlutirnir sem skipt er um verða eign IKEA.
Hvað gerir IKEA til að leiðrétta þetta vandamál?
IKEA mun skoða vöruna og ákveða, að eigin vild, ef hún fellur undir þessa ábyrgð. Ef það er talið falla undir þá mun IKEA, að eigin vild, annaðhvort gera við gallaða vöru eða skipta um hana með sömu eða sambærilegri vöru.
Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?
- Eðlilegt slit.
- Vísvitandi eða vanrækslutjón, tjón af völdum þess að notkunarleiðbeiningum var ekki fylgt, röng uppsetning eða tenging við ranga spennu, tjón af völdum efna eða rafefnafræðilegra viðbragða, ryð, tæring eða vatnsskemmdir, þar með talið en ekki takmarkað við tjón af völdum óhóflegs kalks í vatnsveitu, tjón af völdum óeðlilegra umhverfisaðstæðna.
- Einnota vörur ásamt rafhlöðum og perum.
- Óhagnýtir og skrauthlutir sem hafa ekki áhrif á eðlilega notkun á tækinu, þar á meðal alls konar rispur og mögulegur litamunur.
- Tilfallandi tjón af völdum aðskotahluta eða efna og þrif eða hreinsun á síum, fráveitum eða sápuskúffum.
- Skemmdir á eftirfarandi hlutum: keramik, fylgihlutir, leirvörur og hnífaparakörfur, mötun og frárennsli, þétti, lampar og lampaskermar, skjár, húnar, hlífar og hluti af hlífum. Nema hægt sé að sanna að slík tjón hafi verið af völdum framleiðslugalla.
- Viðgerðir sem ekki eru gerðar af skipuðum þjónustuaðila okkar og/eða viðurkenndum þjónustuaðila sem er samningsbundinn samstarfsaðili eða óupprunalegir varahlutir hafa verið notaðir.
- Viðgerðir af völdum gallaðrar uppsetningar eða sem er ekki í samræmi við forskrift.
- Notkun tækisins í umhverfi sem er ekki heimili, þ.e. notkun í atvinnuskyni.
- Skemmdir vegna flutnings. Ef viðskiptavinur flytur vöruna heim til sín eða á annað heimilisfang, ber IKEA ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða í flutningi. Hins vegar, ef IKEA afhendir vöruna á heimilisfang viðskiptavinarins, þær skemmdir á vörunni sem eiga sér stað við þessa afhendingu falla undir ábyrgðina.
- Kostnaður fyrir framkvæmd á upphaflegri uppsetningu á IKEA tækinu. Hins vegar, ef þjónustuaðili skipaður af IKEA eða viðurkenndur þjónustuaðili gerir við eða skiptir um tæki samkvæmt skilmálum þessarar ábyrgðar, munu þeir setja upp tæki sem er búið að gera við eða setja upp tæki sem er búið að skipta um, ef þörf krefur.
Hvernig lög landsins gilda
IKEA ábyrgðin veitir þér tiltekin réttindi, sem ná yfir eða fara fram úr öllum staðbundnum lagalegum kröfum. En þessi skilyrði takmarka á engan hátt réttindi neytandans sem lýst er í staðbundinni löggjöf.
ÍSLENSKA
Svæði gildistímans
Fyrir tæki sem eru keypt í einu ESB landi og tekin til annars ESB lands, er þjónustan sem veitt verður innan ramma eðlilegra tryggingaskilyrða í nýja landinu. Skylda til að framkvæma þjónustu í tengslum við ábyrgð er aðeins ef tækið uppfyllir og er sett upp í samræmi við:
- tækniforskriftir landsins þar sem ábyrgðarkrafa er gerð; • leiðbeiningar um samsetningu og notendahandbók öryggisupplýsingar;
ENDURSALA á IKEA tækjum
Hikið ekki við að hafa samband við IKEA á: - leggja fram þjónustubeiðni samkvæmt þessari ábyrgð; - að biðja um skýringar á virkni IKEA tækisins.
Vinsamlegast lestu vandlega leiðbeiningar um samsetningu og/eða notendahandbókina áður en haft er samband við okkur til að tryggja að við bjóðum þér bestu aðstoð.
Hvernig á að ná í okkur ef þú þarft á þjónustu okkar að halda

Þjónustuborð IKEA mun aðstoða þig í síma með grunnbilanaleit á tækinu þínu þegar hringt er með fyrirspurn. Skoðið bækling IKEA eða farið á www.ikea.com til að finna símanúmer á versluninni nálægt þér og opnunartíma.
Vinsamlegast hafið einnig ávallt vörunúmer IKEA (8 stafa númer) sem er staðsett á matsplötunni á tækinu í því skyni að veita þér fljótari þjónustu.
GEYMID SÖLUKVITTUNINA!
Hún er sönnun fyrir kaupunum og hana þarf þegar krafist er um ábyrgð. Sölukvittunin sýnir einnig IKEA nafnið og númer hlutarins (8 stafa númer) fyrir hvert tæki sem þú hefur keypt.
Þarft þú meiri hjálp?
Vinsamlegast hafðu samband við þjónustuborð IKEA til að fá svör við spurningum sem tengjast ekki eftirsölu á tækinu þínu. Við mælum með að þú lesir skjöl tækisins vandlega áður en haft er samband við okkur.
Innihald