TRIXIG 105.469.10 - Outil à main IKEA - Ókeypis notendahandbók

Finndu handbók tækisins ókeypis TRIXIG 105.469.10 IKEA á PDF sniði.

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Handverkfæri
📄 124 síður Íslenska IS Sækja 💬 AI spurning
Notice IKEA TRIXIG 105.469.10 - page 45
Pick your language and provide your email: we'll send you a specifically translated version.

Spurningar notenda um TRIXIG 105.469.10 IKEA

0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.

Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki

Netfangið þitt er áfram einkamál: það er aðeins notað til að láta þig vita ef einhver svarar spurningu þinni.

Engar spurningar enn. Vertu sá fyrsti til að spyrja.

Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Outil à main á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína TRIXIG 105.469.10 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. TRIXIG 105.469.10 vörumerkisins IKEA.

NOTENDAHANDBÓK TRIXIG 105.469.10 IKEA

Hljóð (samkvæmt EN 62841-1):

Hljóðþrýstistig LpA = 69 dB (A), óvissa KpA = 5 dB (A)

Endurhlaðanlegar litíumrafhlöður innan í.

(Þrjár INR19/66 litíum rafhlöður tengdar í röð)

ADEINS TIL NOTA INNANDYRA.

Ráðlögð hleðsluspenna:

5,0 V jafnstraumur / 1,0-3,0 A (gerð C), hleðsluhitastig 0-50°C

Vörueiginleikar

Númer hlutanna vísa til myndar af vélinni á myndasíðunni.

  1. Lyklalaus patróna
  2. Togstillir
  3. Gikkur með hraðastjórn
  4. Rofi, rangsælis/réttsælis
  5. LED vinnulýsing
  6. Rafhlöðupakki
  7. Fremri hringur
  8. Segulmagnaður skrúfbitahaldari

ATHUGADU!

USB-C snúru og USB hleðslutæki eru ekki innifalin. Í skrúf-/borvélarkassanum er aukahólf fyrir auka TRIXIG rafhlöðupakka.

NOTKUN

Þessa þráðlausu skrúf-/borvél má nota til að bora í við, málm, plast og mjúkan málm, og til að festa og losa skrúfur.

Þetta tæki ætti ekki að vera notað af einstaklingum (þar með töldum börnum) með skerta hreyfigetu eða skynjun, eða af þeim sem skortir reynslu eða þekkingu, nema þeim hafi verið kennt að nota það af ábyrgum aðila.

Gætið þess að hafa eftirlit með börnum og að þau leiki sér ekki með verkfærið.

ALMENNAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR

Almennar öryggisleiðbeiningar

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Almennar öryggisleiðbeiningar - 1

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Almennar öryggisleiðbeiningar - 2

VIÐVÖRUN! Lesið allar öryggisviðvaranir, leiðbeiningar, skýringarmyndir og forskriftir sem fylgja þessu rafmagnsverkfæri. Ef ekki er farið eftir öllum leiðbeiningunum hér að neðan getur það valdið raflosti, eldsvoða og/eða alvarlegum meiðslum.

Vistaðu allar viðvaranir og leiðbeiningar til síðari viðmiðunar

Hugtakið "rafmagnsverkfæri" í viðvörunum vísar til rafmagnstækis sem er knúið af rafmagni eða rafhlöðuknúnu (þráðlausu) rafmagnsverkfæri þínu.

Vinnusvæði

a. Hafið vinnusvæðið snyrtilegt og vel upplýst. Óreiða og slæm lýsing á vinnusvæði býður hættunni heim. b. Notið ekki verkfæri á stöðum þar sem getur skapast sprengihætta, til að mynda nálægt eldfimum vökva, gasi eða ryki. Verkfæri geta gefið frá sér neista sem getur kveikt í ryki og gufum. c. Haldið börnum og nærstöddum fjarri vinnusvæði á meðan verkfærið er í notkun. Ónæði getur orðið til þess að þú missir einbeitinguna.

Rafmagnsöryggi

a. Nota verður viðeigandi innstungu fyrir kló verkfærisins. Reynið aldrei að breyta klónni á nokkurn hátt. Notið ekki millistykki með jarðtengdum verkfærum. Notkun upprunalegra klóa og innstungna dregur úr hættu á raflosti. b. Forðist að snerta jarðtengda fleti, eins og leiðslur, ofna, eldavélar eða kæla. Það getur aukið hættu á raflosti ef notandinn er tengdur jörð. c. Notið ekki verkfæri í regni eða bleytu. Ef vatn kemst inn í verkfærið er hætta á raflosti. d. Farið vel með snúruna. Notið snúruna aldrei til að bera verkfærið, draga það áfram eða til að kippa úr sambandi. Haldið snúrunni fjarri hita, olíu, beittum hlutum og hlutum á hreyfingu. Skemmd eða flækt snúra eykur hættu á raflosti. e. Þegar verkfæri er notað utandyra, þarf að nota framlengingarsnúru sem til þess er ætluð. Það dregur úr hættu á raflosti. f. Ef ekki er komist hjá því að nota verkfærið við rök skilyrði ætti alltaf að nota útsláttaröryggi. Það dregur úr hættu á raflosti.

Öryggi þitt

a. Vertu vakandi, gættu að því sem þú gerir og notaðu almenna skynsemi við notkun verkfæra. Notaðu ekki verkfæri þegar þú ert þreytt/ur eða undir áhrifum eiturlyfja, áfengis eða lyfja. Augnabliks einbeitingarskortur getur valdið alvarlegu slysi. b. Notið öryggisbúnað. Notið alltaf öryggisgleraugu. Rétt notaður öryggisbúnaður eins og rykgríma, öryggisskór, öryggishjálmur og heyrnarhlíf dregur úr slysahættu. c. Gætið þess að ekki kvikni óvart á verkfærinu. Gætið þess að slökkt sé á verkfærinu áður en því er stungið í samband. Ef haldið er á verkfæri með fingurinn á gikknum eða stungið í samband á meðan kveikt er á því, eykst slysahætta. d. Fjarlægið smærri verkfæri sem hanga mögulega á verkfærinu, til að mynda skrúflykla og slíkt, áður en kveikt er á því. e. Teygðu þig ekki of langt. Hafðu alltaf góða fótfestu. Þá hefurðu betri stjórn á verkfærinu ef eitthvað óvænt gerist. f. Vertu í viðeigandi klæðnaði. Vertu ekki í of víðum fatnaði eða með hangandi skartgripi. Haltu hári, fötum og hönskum fjarri hlutum sem snúast. Víð föt, skartgripir eða sítt hár geta fests í hlutum verkfærisins sem snúast. g. Gætið þess að nota aukahluti eins og ryksafnara á réttan hátt. Notkun slíks búnaðar getur dregið úr slysahættu. h. Þó þú notir verkfæri oft máttu ekki gleyma eða hunsa öryggisatriði við notkun þeirra. Óvarfærni gæti leitt til slysa á augabragði.

Notkun og umhirða verkfærisins

a. Þvingið ekki verkfærið. Notið rétt verkfæri fyrir hvert verkefni. Rétt valið verkfæri vinnur verkefnið betur og á öruggari hátt.

b. Notið ekki verkfærið ef það fer ekki í gang þegar kveikt er á því. Verkfæri sem ekki er hægt að kveikja á eða slökkva á eðlilegan hátt er hættulegt og þarfnast viðgerðar.

c. Takið úr sambandi áður en átt er við verkfærið á nokkurn hátt, skipt um aukahluti eða það sett í geymslu. Slíkar varúðarráðstafanir draga úr líkum á að það fari óvænt í gang.

d. Geymið verkfæri sem ekki eru í notkun þar sem börn ná ekki til og leyfið ekki óvönum að nota verkfærið. Verkfæri eru hættuleg í höndum óþjálfaðra.

e. Haldið verkfærum vel við. Athugið reglulega hvort hlutar þess hafi skekkst eða skemmst, eða hvort það sé skemmt á nokkurn annan hátt sem gæti orðið til þess að það virki ekki sem skyldi. Ef það er skemmt þarf að láta gera við það áður en það er notað. Mörg slysa má rekja til slælegs viðhalds.

f. Haldið verkfærum sem notuð eru til skurðar beittum og hreinum. Hnífar og blöð sem haldið er beittum eru ólíklegri til að standa á sér og láta betur að stjórn.

g. Notið verkfærið, fylgihluti, skrúfbita og annað í samræmi við leiðbeiningar og á tilætlaðan hátt í hverju tilviki fyrir sig. Takið alltaf tillit til aðstæðna og verkefnis. Notkun verkfærisins í öðrum en tilætluðum tilgangi eykur slysahættu.

h. Hafið handföng og grip þurr, hrein og laus við olíu eða smurningu. Sleip handföng og grip koma í veg fyrir örugga notkun og stjórn á verkfærinu í óvæntum aðstæðum.

Notkun og umhirða rafhlöðu

a. Notið aðeins hleðslutæki sem samþykkt er af framleiðanda. Hleðslutæki sem hentar einni rafhlöðu gæti valdið eldhættu ef notað með annarri rafhlöðu.

b. Notið aðeins rafhlöður sem ætlaðar eru þessu verkfæri. Ef notaðar eru aðrar rafhlöður getur skapast slysa- og eldhætta.

c. Þegar rafhlöðurnar eru ekki í notkun ætti að geyma þær fjarri öðrum málmhlutum eins og bréfaklemmum, smámynt, lyklum, nöglum, skrúfum og öðrum smáhlutum úr málmi sem geta leitt straum. Skammhlaup í rafhlöðunum getur valdið brunasárum eða eldhættu.

d. Við slæma meðhöndlun gæti rafhlaðan lekið. Snertið ekki vökvann. Ef vökvinn kemst í snertingu við húð á að skola með vatni. Ef vökvinn berst í augu þarf að leita læknis. Vökvi sem lekur úr rafhlöðu getur valdið óþægindum eða bruna.

e. Ekki nota rafhlöðupakka eða verkfæri sem er skemmt eða breytt. Skemmdar eða breyttar rafhlöður geta sýnt ófyrirsjáanlega hegðun sem leiðir til elds, sprengingar eða hættu á meiðslum.

f. Ekki láta rafhlöðupakka eða tól verða fyrir eldi eða of miklum hita. Nálægð við eld eða hita yfir 130 °C getur valdið sprengingu.

g. Fylgdu öllum hleðsluleiðbeiningum og ekki hlaða rafhlöðupakkann eða verkfærið utan hitastigssviðsins sem tilgreint er í leiðbeiningunum. Hleðsla á rangan hátt eða við hitastig utan tilgreinds sviðs getur skemmt rafhlöðuna og aukið eldhættu.

Viðhaldsþjónusta

a. Nýtið ykkur aðstoð fagmanns sem notar upprunalega varahluti, til að gera við verkfærið.

Það tryggir viðvarandi öryggi verkfærisins.

b. Aldrei þjónusta skemmda rafhlöðupakka. Einungis framleiðandinn eða viðurkenndir þjónustuveitendur skulu annast rafhlöðupakka.

SÉRTÆKAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR

Öryggisviðvaranir fyrir bor- og skrúfvélar

  1. Öryggisleiðbeiningar fyrir alla notkun

a. Notaðu eyrnahlífar við höggborun. Útsetning fyrir hávaða getur valdið heyrnarskerðingu.

b. Haltu rafmagnsverkfærinu við einangraða gripflötinn þegar þú framkvæmir notkun þar sem skurðarbúnaðurinn eða festingarnar geta komist í snertingu við falda raflögn. Skurðarbúnaðurinn eða festingarnar sem komast í snertingu við virka raflögn geta gert óvarða málmhluta rafmagnsverkfærisins leiðandi og gætu valdið raflosti.

  1. Öryggisleiðbeiningar þegar langir borunarhlutar eru notaðir

a. Aldrei nota á meiri hraða en hámarkshraða borbitans. Þegar unnið er á meiri hraða er líklegt að bitinn beygist ef hann er látinn snúast frjálslega án þess að hafa samband við vinnustykkið, sem leiðir til líkamstjóns. b. Byrjaðu alltaf að bora á litlum hraða og með bitaoddinn í snertingu við vinnustykkið. Þegar unnið er á meiri hraða er líklegt að bitinn beygist ef hann er látinn snúast frjálslega án þess að hafa samband við vinnustykkið, sem leiðir til líkamstjóns. c. Notaðu þrýsting aðeins í beinni línu við bitann og ekki beita of miklum þrýstingi. Bitar geta beygst og valdið broti eða tapi á stjórn verkfærisins, sem leiðir til líkamstjóns.

Notið viðeigandi nema til að meta hvort faldir vírar eða pípur séu þar sem á að bora/skrúfa. Ef borað eða skrúfað er í rafmagnslínur getur það valdið eldsvoða og raflosti. Ef gaspípa er skemmd getur það valdið sprengihættu. Ef vatnspípa er skemmd getur það valdið meiri skemmdum eða raflosti.

Slökktu á rafmagnsverkfærinu um leið og verkfærið læsist eða festist. Vertu viðbúinn miklu viðbragðstogi sem getur valdið bakslagi. Verkfærið læsist þegar:

  • rafmagnsverkfærið verður fyrir of miklu álagi
  • eða það festist í hlutnum sem unnið er í.

Hafið verkfærið stöðugt. Verkfæri sem haldið er á sínum stað með þvingum eða í skrúfstykki er mun öruggara en það sem haldið er með handafli.

Haldið vinnusvæðinu hreinu. Það er sérstaklega varasamt ef mismunandi efni blandast saman. Ryk úr málmblöndum er eldfimt og getur sprungið.

Bíðið alltaf þar til borinn/skrúfbitinn hefur stöðvast að fullu áður en verkfærið er lagt niður. Annars er hætta á að hann festist og það leiði til þess að þú missir stjórn á verkfærinu.

Gætið þess að verkfærið fari ekki óvart í gang. Tryggið að gikkurinn sé stilltur á off áður en rafhlaðan er sett í. Það býður slysunum heim að halda á verkfærinu með fingurinn á gikknum eða setja rafhlöðuna í þegar aðalrofinn er stilltur á on.

Öryggisviðvaranir fyrir rafhlöðuhleðslutæki

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Öryggisviðvaranir fyrir bor- og skrúfvélar - 1

Haldið hleðslutækinu fjarri regni og raka. Ef raki kemst inn í tækið eykur það hættu á raflosti.

Hlaðið ekki aðrar rafhlöður í tækið. Hleðslutækið er aðeins ætlað rafhlöðunum sem fylgja með verkfærinu þínu. Annars getur myndast eld- og sprengihætta.

Haldið hleðslutækinu hreinu. Óhreinindi geta leitt til hættu á raflosti.

Fyrir hverja notkun ætti að fara yfir hleðslutækið, snúruna og klóna. Ef einhverjar skemmdir koma í ljós á alls ekki að nota tækið. Opnið aldrei hleðslutækið sjálft. Látið faglærðan aðila um viðgerðir. Skemmd hleðslutæki, snúrur eða klær auka hættuna á raflosti.

Látið hleðslutækið ekki standa á, eða nálægt, eldfimu efni þegar það er í notkun (eins og pappír, vefnaðarvöru o.fl.). Hitnun hleðslutækisins meðan á hleðslu stendur getur valdið eldhættu.

UPPLÝSINGAR UM TITRING OG HÁVAÐA

Titringur og hávaðastig

Stig titrings og hávaðamengunar sem fram kemur í notendahandbókinni hefur verið mælt í samræmi við staðlaða prófun í EN 62841. Heimilt er að bera verkfærið saman við annað og sem bráðabirgðamat á váhrifum af titringi og hávaða þegar verkfærið er notað til þeirra framkvæmda sem getið er um í þessari handbók. Notkun verkfærisins við mismunandi

framkvæmdir, eða með öðrum fylgihlutum eða fylgihlutum sem er illa viðhaldið, getur þó aukið váhrifastigið umtalsvert.

Við mat á því hversu mikil váhrif titrings og hávaða eru ætti einnig að taka tillit til þess hvenær slökkt er á tækinu eða þegar það er í gangi en ekki í notkun, þar sem það getur dregið verulega úr váhrifum á heildarvinnutímanum. Verndaðu þig gegn áhrifum titrings og hávaða með því að viðhalda tólinu og fylgihlutum þess, halda höndunum heitum og skipuleggja vinnu þína.

Önnur áhætta

Jafnvel þegar rafmagnsverkfærið er notað eins og mælt er fyrir um er ekki hægt að útrýma öllum öðrum áhættuþáttum. Eftirfarandi hættur geta skapast í tengslum við smíði og hönnun rafmagnsverkfærisins:

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Önnur áhætta - 1

Skemmdir á lungum ef ekki er notuð rykgríma.

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Önnur áhætta - 2

Heyrnarskerðing ef ekki er notuð öflug heyrnarvörn.

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Önnur áhætta - 3

Heilsutjón af völdum titrings ef orkutækið er notað í lengri tíma eða ekki meðhöndlað og viðhaldið á réttan hátt.

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Önnur áhætta - 4

VIÐVÖRUN! Þetta rafmagnsverkfæri framleiðir rafsegulsvið meðan á notkun stendur. Undir sumum kringumstæðum getur þetta svið haft áhrif á virk eða óvirk læknisfræðileg ígræði. Til að draga úr hættu á alvarlegum eða banvænum meiðslum mælum við með að einstaklingar með læknisfræðileg ígræði ráðfæri sig við lækninn sinn og framleiðanda ígræðisins áður en þessi vél er notuð.

SAMSETNING

Áður en átt er við vélina sjálfa (til dæmis vegna viðhalds eða skipti á skrúfbita o.s.frv.) og eins þegar hún er flutt á milli staða eða í geymslu, þarf að gæta þess að rofinn sem stýrir snúningsátt sé stilltur fyrir miðju. Ef það kviknar óvart á vélinni gæti það valdið slysi.

Hlaða skrúf-/borvél

Lestu fyrst öryggisleiðbeiningarnar og fylgdu svo notkunarleiðbeiningum.

Tengdu USB-C snúruna við USB-C tengið á rafhlöðupakkanum (Mynd: 2) (A). Tengdu hinn enda USB snúrunnar við USB hleðslutæki eða USB hleðslu sem gefur nægilega mikinn straum til að hlaða skrúf-/borvélina. Þegar rafhlöðupakkinn er tengdur við rafmagn kviknar á ljósum aftan á rafhlöðupakkanum til að sýna hleðslustöðu:

- Ljós blikkar - hleðsla í gangi

- Stöðugt ljós í tvær mínútur/ekkert ljós - hleðslu lokið

Gættu þess að ekki komi snúningur eða hnútur á snúruna. Þegar rafhlöðupakkinn er fullhlaðinn og enn tengdur við rafmagn halda ljósin áfram að lýsa í tvær mínútur og svo slokknar á þeim.

Taktu hleðslusnúruna úr sambandi þegar hleðslu er lokið og renndu rafhlöðupakkanum í haldarann á skrúf-/borvélinni. Skrúf-/borvélin er tilbúin til notkunar. Fjarlægðu rafhlöðupakkann af skrúf-/borvélinni þegar hún er ekki í notkun og geymdu hann á viðeigandi stað. Við venjulega notkun er hægt að hlaða vélina nokkur hundruð sinnum.

ATHUGADU! Rafhlaðan hitnar við hleðslu. Ekki er ráðlegt að hlaða rafhlöðuna við hitastig fyrir neðan frostmark. Hleðslan eyðist hægt og rólega, jafnvel þó vélin sé ekki notuð.

Athuga hleðslustöðu rafhlöðupakka

Þú getur athugað stöðu rafhlöðupakkans með því að ýta á hnappinn aftan á rafhlöðupakkanum. Ljósin lýsa til að sýna hleðslustöðu:

  • 3 ljós lýsa - fullhlaðið
  • 2 ljós lýsa - meðalhleðsla
  • 1 ljós lýsir – lítil hleðsla

Stuttu seinna slokknar á ljósunum.

Athugaðu: Rafhlaðan sem fylgir þessari vél hefur verið hlaðin til að hægt sé að prófa vélina. Því þarf að hlaða hana að fullu fyrir fyrstu notkun.

TRIXIG skrúf-/borvél og TRIXIG rafhlöðupakki eru hönnuð til að nota saman.

ALDREI nota rafhlöðupakkann með þráðlausum tækjum frá öðrum framleiðendum.

Lithium-Ion rafhlaðan er vernduð af ECP (Electronic Cell Protection) gegn því að rafhlaðan tæmist um of. Ef hún er að tæmast, slekkur verndarrás á henni: Verkfærið hættir þá að snúast.

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Athuga hleðslustöðu rafhlöðupakka - 1

VARÚD Ekki halda áfram að ýta á On/Off rofann eftir að vélin hefur stöðvast sjálfkrafa. Þá getur rafhlaðan skemmst.

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Athuga hleðslustöðu rafhlöðupakka - 2

VARÚD! Ekki endurhlaða rafhlöðuna á eldfimu yfirborði. Rafhlaðan má ekki vera lengur en átta tíma samfellt í hleðslu.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

Notkun verkfærisins

Athugið: Mögulega má sjá neistaflug í gegnum vélarhlífina þegar borvélin er í notkun. Neistaflugið er eðlilegt þegar vélin er í gangi og stafar af núningi mismunandi hluta hennar. Þetta hefur ekki áhrif á virkni verkfærisins. Við mælum þó ekki með að það sé notað nærri eldfimum vökvum, gasi eða ryki, sem neistarnir gætu kveikt í.

Lyklalaus patróna

Borvélin er með lyklalausa patrónu þannig að einfalt er að herða eða losa bor/skrúfbita. Haltu hulstrinu að framan og þrýstu gikknum inn til að opna/loka patrónuna.

Bor eða skrúfbiti settur á

Áður en átt er við vélina sjálfa (til dæmis vegna viðhalds eða skipti á skrúfbita o.s.frv.) og eins þegar hún er flutt á milli staða eða í geymslu, þarf að gæta þess að rofinn sem stýrir snúningsátt sé stilltur fyrir miðju. Ef það kviknar óvart á vélinni gæti það valdið slysi. Snúðu hulstrinu að framan til að stilla patrónuna þannig að opið sé örlítið stærra en endi borsins eða skrúfbitans sem á að nota. Settu borinn/skrúfbitann í patrónuna. Hertu patrónuna utan um borinn/skrúfbitann eins og lýst er hér að ofan (Lyklalaus patróna).

Stjórnun snúningshraða

Hægt er að stjórna snúningshraðastillingunum tveimur frá núlli upp í mesta hraða með því að þrýsta misfast á gikkinn. Þannig getur þú valið kjörhraða miðað við verkefnið sem unnið er að.

Snúningsátt breytt

Hægt er að breyta snúningsáttinni með því að nota rofann sem stjórnar snúningsátt (4). Til að læsa gikknum þarf að setja rofann í miðjustillingu.

Átakið stillt

Snúið togstillinum (2) í æskilega stöðu. Stillingar 1-19 eru til að losa og festa skrúfur (því hærri tala, því meira snúningsátak). Veljið borstillingu áður en vélin er notuð til að bora.

Segulmagnaður skrúfbitahaldari

Þú getur geymt skrúf- og borbita sem þú ert að nota á segulmagnaða skrúfbitahaldaranum (8.) ofan á skrúf-/borvélinni til að hafa þá innan handar á meðan þú vinnur.

LED vinnulýsing

Skrúfvélin er með innbyggðri LED vinnulýsingu sem lýsir upp vinnusvæðið. Það kviknar á LED vinnulýsingunni í hvert sinn sem gikknum er þrýst inn og það slokknar á lýsingunni þegar honum er sleppt.

VARÚÐ: SLYSAHÆTTA

Haldið ekki um fremri hringinn á patrónunni á sama tíma og hún er opnuð eða henni lokað með vélarafli.

Umhirða og þrif

Haltu skrúf-/borvélinni hreinni og þurri til að tryggja rétta og örugga virkni. Þurrkaðu af henni með mjúkum og rökum klút. Ekki nota hreinsiefni.

Alltaf ætti að halda verkfærinu og loftræstiraufunum hreinum svo að tryggja megi örugga og rétta notkun.

Varan er ætluð til heimilisafnota, ekki fyrir opinbera staði eða sem vottað tól fyrir fagfólk.

Geymið þessa handbók til síðari nota.

Rafhlöður og endurhlaðanlegar rafhlöður eru ekki heimilissorp! Sem neytandi ber þér samkvæmt lögum að farga öllum rafhlöðum og rafgeymum, hvort sem þau innihalda skaðleg efni* eða ekki, á söfnunarstað í þínu sveitarfélagi/hverfi eða í gegnum viðskiptaaðila sem býður rafhlöðuförgun svo hægt sé að farga þeim á umhverfisvænan hátt.

* merkt með: Cd = kadmíum, Hg = kvikasilfur, Pb = blý

IKEA TRIXIG 105.469.10 - Umhirða og þrif - 1

Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð nánari upplýsingar í IKEA versluninni.

TRIXIG skrúfjárn/borvél Li-ion 12 V

TÆKNIFORSKRIFTIR - SKRÚFJÁRN/BORVÉL

Gerð: TRIXIG

Tegund: P2202

Nafnspenna: 10.8 Vdc

Merkingarspenna: 12.0 Vdc

Handbókaraðstoðarmaður
Drifið af Anthropic
Bíð eftir skilaboðum þínum
Vöruupplýsingar

Vörumerki : IKEA

Líkan : TRIXIG 105.469.10

Flokkur : Handverkfæri