ITM200 - Non catégorisé Intertechno - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis ITM200 Intertechno á PDF sniði.
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Non catégorisé á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína ITM200 - Intertechno og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. ITM200 vörumerkisins Intertechno.
NOTENDAHANDBÓK ITM200 Intertechno
Istruzioni d’uso Þráðlausi segulsendirinn býr yfir föstum kóða með 67 milljónum möguleikum og stýrir öllum sjálflæranlegum intertechno þráðlausum móttökurum og líka þráðlausa GONGINU ITR - 7000 og rafhlöðugonginu IT-9000 (MLR-1105). Hægt að velja um KVEIKT/SLÖKKT - SLÖKKT/KVEIKT þegar opnað er eða lokað. Hægt er að velja sjálfvirkan slökkvitíma 0/1m/5m/10m. Einföld festing með meðfylgjandi skrúfum eða tvöföldu límbandi á glugga, dyr, rennihurðar, skúffur, sýningarskápa o.s.frv. með óteljandi notkunarmöguleikum. Notkunardæmi: Til að kveikja og slökkva á ljósi þegar dyr af öllum gerðum eru opnaðar Virkjun á gongi þegar dyr eru opnaðar. Kveikt á miðstöðvarofni þegar gluggi er opnaður. Öryggisvirkni t.d. við loftræstingu (Aðeins er hægt að kveikja á háfnum við opin eldstæði þegar gluggi er opin til að koma í veg fyrir CO-eitrun) o.s.frv. Með IT-MG MASTERGATE frá intertechno er boðið upp á þrýstitilkynnin- gu til snjallsíma um leið og gluggi eða dyr eru opnaðar. Á sama tíma er einnig hægt að kveikja á sírenu með þráðlausum mótta- kara sem viðvörunarbúnaður.
BÚNAÐUR TEKINN Í NOTKUN
Við uppsetningu skal fylgja eftirfarandi skrefum: Opnið sendinn með því að renna festiplötunni af (Mynd 1) Fjarlægið rafhlöðufestingu. Kóðun: Pörun við þráðlausan sendi (Mynd 2) Fylgið einnig notkunarleiðbeiningum þráðlausa móttakarans! Stilla verður sjálfvirka slökkvitímann á 0. Um leið og móttakarinn er í pörunarstillingu verður þráðlausi segulsen- dirinn að senda merkið KVEIKT. Annaðhvort með því að: 1.) Færa sleðann af OFF á ON r auða LED ljósið blikkar 1x og kóðinn er paraður. eða 2.) með því að færa segulinn frá sendinum á stillingunni ON. Notkunarleiðbeiningar ISL
ITM-200 ITM-200Að eyða kóðunum Til að eyða kóðunum skal fara að eins og að ofan en það verður þó að senda merkið SLÖKKT. Þ.e. sleðinn af ON á OFF rauða LED ljósið blikkar 2x! Eða með því að færa segulinn í stöðuna SLÖKKT! Stillingar Ræsing við opnun eða lokun Veljið nú á milli KVEIKJA/SLÖKKVA eða SLÖKKVA/KVEIKJA við opnun eða lokun (Mynd 3b) Ef senda á merkið KVEIKJA við opnun skal setja sleðann í stöðuna ON. Ef senda á merkið kveikja við lokun skal setja sleðann á OFF. Slökkt á með sjálfvirkum hætti (Mynd 3a) Í stöðunni 0 er kveikt eða slökkt um leið við opnun eða lokun. 3 tímar upp á 1m/5m/10m eru í boði fyrir sjálfvirka slökkvun! Þráðlausi segulsendirinn telur niður. Þ.e. á meðan opna er og lokað á stilla tímanum hefst niðurtalning fyrir slökkvun frá næsta merki um að kveikja. Uppsetning Athuga skal virkni þráðlausa móttakarans áður en sendirinn er settur upp með skrúfunum eða tvöfalda límbandinu sem fylgir með. Við uppsetningu með skrúfum skal taka festiplötuna af sendinum og seglunum áður af og festa hana á viðeigandi stað (Mynd 4) Til að sendirinn verði ekki fyrir óþarfa titringi eða hristingi ráðleggjum við að hann sé festur á ramma og seglarnir á hreyfanlega hluta (glugga). Fjarlægðin á milli seguls og sendis ætti ekki að vera meira en 5mm. Rennið sendi aftur á. Stingið seglum aftur á. Að skipta um rafhlöðu (Mynd 5) Rauða LED ljósið lýsir á 4 sek. fresti þegar rafhlaðan er að tæmast. Takið sendinn af og setjið nýja 3V CR 1632 rafhlöðu í! Ný rafhlaða endist í um 20 000 notkunarskipti eða 3 ár! Öryggisleiðbeiningar: RAFHLAÐA Gleypið ekki rafhlöðurnar, hætta á brunasárum af völdum hættulegra efna! Þessi vara inniheldur hnapparafhlöðu. Ef hnapparafhlaðan er gleypt geta alvarleg brunasár myndast innan 2 klukkustunda og leitt til dauða. Geymið nýjar og notaðar rafhlöður þar sem börn ná ekki til. Ef ekki er hægt að loka rafhlöðuhólfinu með öruggum hætti skal ekki nota vöruna lengur og geyma arri börnum. Ef grunur leikur á að rafhlöður hafi verið gleyptar eða þær séu að finna í einhverjum líkamshluta skal leita tafarlaust til læknis. Má ekki nota sem birtudeyfi. Setjið aðeins upp í þurrum rýmum Setjið ekki upp við segul- eða rafsegulsvið Forðast skal ásetningu á málm því drægið styttist. Samræmisyfirlýsingu (CE) er að finna áwww.intertechno.at/CE Notkunarleiðbeiningar Notkunarleiðbeiningar
Notice-Facile