CDI4601V - Lave-vaisselle Elvita - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis CDI4601V Elvita á PDF sniði.
Spurningar notenda um CDI4601V Elvita
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Lave-vaisselle á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína CDI4601V - Elvita og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. CDI4601V vörumerkisins Elvita.
NOTENDAHANDBÓK CDI4601V Elvita
Öryggi við uppsetningu.... 298
Öryggi við notkun.... 299
Öryggi við viðhald 300
Förgun 300
FLÝTIBYRJUN 301
HEFJAST HANDA 303
Lærðu að þekkja uppþvottavélina þína.... 303
Stýringar 303
Tákn á skjánum 303
Þvottaefnisskammtari og skammtari gljáa 303
Aukahlutir.... 304
Finndu gerðarkóðann 304
Fyrir fyrstu notkun.... 304
Vatnsmýkingarefnisstig stillt.... 305
Keyrðu vélina tóma. 305
PVOTTUR 306
Fyrir hvern þvott 306
Ræstu þvottinn 306
Leirtaui bætt við meðan þvottur er í gangi 306
Skipt um kerfi meðan þvottur stendur yfir 307
Tilgangur þvottaefnis 307
Fylltu þvottaefnisskammtarann.... 307
Tilgangur gljáa 308
Fyllt á skammtara gljáa 308
Notkun gljáa stillt 309
Tilgangur salts fyrir vatnsmýkingarefnið 309
Bættu salti við vatnsmýkingarefnið.... 309
Eftir hvern þvott 310
Hlutir sem henta til að setja í uppþvottavél 311
Körfur og grindur stilltar áður en hlaðið er 311
Stilltu hæð efri körfunnar.... 311
Bollagrind lögð upp og lögð niður 312
Diskagrindur lagaðar aftur 312
Fyllt í uppbvottavélina á hagkvæman hátt 312
Leiðbeiningar fyrir hleðslu efri körfunnar 313
Leiðbeiningar fyrir hleðslu neðri körfunnar 313
Leiðbeiningar fyrir að hlaða í hnífaparagrindina 314
Leiðbeiningar fyrir hleðslu hnífaparakörfunnar 315
Valkostir, stillingar og aðgerðir.... 316
Notaðu valkostinn fyrir aukapurrkun.... 316
Notið valkostinn fyrir hálfa hleðslu 317
Notið seinkunaraðgerðina 317
Kerfi 317
90 mín 317
Sparnaður 317
Gler 318
Öflugt 318
Hratt 319
Alhliða 319
HREINSUN 320
Hurð og hurðarpétti prifin 320
Prifõu Úðunararmana 321
Fjarlægðu og hreinsaðu síubúnaðinn.... 321
Undirbúningur ef ekki á nota vélina í langan tíma.... 322
BILANAGREINING 324
Vatn dælist ekki út úr uppbvottavélinni 324
Sápulöður í kerinu 324
Blettir innan í uppbvottavélinni 325
Hvít filma á innra yfirborði 325
Pvottaefni er eftir í skammtara.... 325
Hávaði 325
Bankhljóð í uppþvottavélinni.... 325
Skröthljóð í uppþvottavélinni 325
Bankhljóð í vatnslögnum 325
Óhreint leirtau 326
Leirtauið er ekki hreint 326
Glervara verður skýjuð 326
Það eru ryðblettir á hnífapörunum 326
Hvítir blettir koma fram á leirtaui og glösum 326
Svört eða grá för á leirtauinu 326
Leirtauið þurkast ekki 327
Villuskilaboð 327
Villukóðinn E1 er sýndur.... 327
Villukóðinn E3 er sýndur 327
Villukóðinn E4 er sýndur 328
Villukóðinn Ed er sýndur 328
UPPSETNING 330
Taktu vélina úr umbúðunum 330
Tengdu kaldavatnsslönguna við krana 331
Tengdu öryggisinntaksslönguna við krana 332
Tengdu við ytra frárennsli.... 332
Tengdu frárennslisslönguna við vask eða frárennslisrör 333
Settu frárennslisslönguna í vask.... 333
Tenging við rafmagn 333
Vélin staðsett 334
Uppsetning viðarhurðarpils.... 335
Settu rakapéttingarræmuna á.... 336
Skipt yfir í lengri fætur.... 336
Hallastilltu vélina 337
Festu vélina í stað - fyrir venjuleg vinnuborð 338
Festu vélina í stað - fyrir vinnuborð úr marmara eða graníti.... 338
TÆKNILÝSINGAR 340
Tæknilýsing.... 340
Stærðir 341
Notkunargildi.... 341
Lesið þessar leiðbeiningar vandlega áður en tækið er sett upp og notað. Geymið leiðbeiningarnar nálægt tækinu til síðari nota. Margskonar ábyrgðir munu falla úr gildi ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt.
Viðvaranir

HÆTTA!
Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni eða dauða.

VIÐVÖRUN!
Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni.

VARÚÐ!
Notaðar þegar hætta er á því að varan verði fyrir tjóni.

ATHUGADU!
Almennar upplýsingar sem þú ættir að vita um.

Hjálpleg ráð sem þér kunna að þykja gagnleg.
Ætluð notkun
Þetta tæki er aðeins ætlað til notkunar innandyra á heimili eða heimilisumhverfi eins og:
- eldhúsum starfsfólks í verslunum, á skrifstofum og öðrum starfsumhverfum;
- bóndabýli;
- af viðskiptavinum á hótelum, mótelum og öðrum íbúðaumhverfum; • gistiheimilisumhverfum.
Látið eftirfarandi hópa aðeins nota vöruna undir eftirliti eða ef þeim hafa verið veittar leiðbeiningar um örugga notkun hennar. Þau verða að skilja hætturnar sem eru til staðar.
- Börn 8 ára og eldri. (Börn undir 8 ára verða að vera undir stöðugu eftirliti, eða haldið fjarri vörunni.)
- Fólk með minnkaða líkamlega, skynjunarlega eða andlega getu.
- Fólk sem skortir reynslu og þekkingu.

VIÐVÖRUN!
- Leyfið börnum ekki að leika sér með tækið.
- Leyfið börnum ekki að þrífa tækið án eftirlits.

VIÐVÖRUN!
Fjarlægðu umbúðaefnið þar sem það gæti verið hættulegt fyrir börn.

VIDVÖRUN!
Hafðu uppþvottavélarefni þar sem börn ná ekki til. Uppþvottavélarefni er tærandi.
Almennt öryggi

VIDVÖRUN!
- Aðeins hæfur tæknimaður má setja upp og framkvæma viðgerð.
- Sum uppþvottavélarefni eru mjög basísk. Þau geta verið gífurlega hættuleg ef þau eru gleypt. Forðist snertingu við húð og augu og haldið börnum frá uppþvottavélinni meðan hurðin er opin.
- Ef yfirflæði verður skal skrúfa fyrir aðalvatnsinntakið áður en hringt er í þjónustu.
- Ef það er vatn í grunni uppþvottavélarinnar vegna yfirfyllingar eða smávegis leka skal fjarlægja vatnið áður en uppþvottavélin er endurræst.
- Ekki setja þunga hluti á hurðina þegar hún er opin eða standa á henni. Tækið gæti oltið fram fyrir sig.

VIDVÖRUN!
Ekki skilja hurðina eftir opna þar sem það gæti skapað hættu á því að fólk detti um hana.

VIDVÖRUN!
Hætta á rafstuði!
- Taktu úr sambandi frá rafmagni áður en uppþvottavélin er sett upp. Ef þetta er ekki gert gæti það leitt til dauða eða raflosts.
- Ekki setja eininguna, rafmagnssnúruna eða kló í vatn eða annan vökva.
- Þetta tæki verður að vera jarðtengt. Í tilfelli gangtruflana eða bilunar minnkar jarðtenging hættuna á raflosti með því að leiða rafstrauminn þangað sem viðnámið er minnst. Þetta tæki er búið kló með jarðleiðara.

VARÚÐ!
- Ekki þvo plasthluti nema þeir séu merktir með „má setja í uppþvottavél” eða sambærilegu. Athugaðu ráðleggingar framleiðandans varðandi plasthluti sem hafa ekki þessa merkingu.
- Notaðu aðeins þvottaefni og skolefni sem mælt er með til notkunar í uppþvottavél.
- Notaðu aldrei sápu, taupvottaefni eða handþvottaefni í uppþvottavélinni.
- Ekki misnota, sitja á eða standa á hurðinni eða diskagrind uppþvottavélarinnar.
- Ekki eiga við stýringarnar meðan verið er að hlaða hlutum í til að þvo.
Öryggi við uppsetningu

VIÐVÖRUN!
- Rafbúnaður verður að vera uppsettur af fagmönnum.
- Slöngur ættu að vera uppsettar af fagmönnum.

VIÐVÖRUN!
Hætta á rafstuði!
- Aftengdu rafmagn áður en tækið er sett upp. Ef þetta er ekki gert gæti það leitt til dauða eða raflosts.
- Stinga verður klónni í viðeigandi rafmagnsinnstungu sem er sett upp og jarðtengd samkvæmt öllum staðbundnum lögum og reglugerðum.
- Óviðeigandi tenging jarðleiðarans getur leitt til hættu á raflosti.
- Leitaðu til viðurkennds rafvirkja eða þjónustufulltrúa ef þú ert í vafa um hvort tækið sé rétt jarðtengt.
- Ekki breyta klónni sem fylgir tækinu ef hún passar ekki í rafmagnsinnstunguna.
- Láttu hæfan rafvirkja setja upp rétta rafmagnsinnstungu.
- Gakktu úr skugga um að uppþvottavélin sé rétt jarðtengd áður en hún er notuð.
- Notaðu ekki framlengingarsnúru eða millistykkiskló með þessari vöru.
- Ekki skal undir neinum kringumstæðum rjúfa eða fjarlægja jarðtenginguna úr rafmagnssnúrunni. • Gætið þess að beygla ekki eða kremja rafmagnssnúruna.

VARÚÐ!
- Ekki koma tækinu fyrir eða geyma það í umhverfi þar sem hitastigið fer niður fyrir 0°C.
- Vatnsinntaksþrýstingurinn verður að vera á milli 0,04 MPa og 1 MPa.
- Tækið verður að vera tengt við vatnsinntakið með nýjum slöngum. Ekki endurnota gamlar slöngur.
- Ef vatnslagnirnar hafa ekki verið notaðar í lengri tíma skal láta vatnið renna til að það verði örugglega tært. Þessi ráðstöfun er nauðsynleg til að forðast hættuna á að vatnsinntakið stíflist og skemmi tækið.
- Ef vaskurinn er með úðasprautu sem fær vatn í gegnum slöngu sem er tengd við sömu vatnsleiðslu og uppþvottavélin gæti öryggisinntaksslangan sprungið. Ef vaskurinn þinn hefur eina slíka er ráðlagt að aftengja öryggisinntaksslönguna og setja tappa í gatið.

VARÚÐ!
Tækið má ekki halla meira en 2°.
Öryggi við notkun

VIDVÖRUN!
Ekki nota uppþvottavélina nema öll umlykjandi plötur séu á sínum stað.

VIDVÖRUN!
- Ekki láta neinn hlut stingast niður úr botni körfunnar.
- Hnífar og önnur áhöld með beitta odda verður að hlaða í körfuna þannig að oddurinn snúi niður eða sett í lárétta stöðu.

VIDVÖRUN!
Hafðu uppþvottavélarefni þar sem börn ná ekki til. Uppþvottavélarefni er tærandi.

VIDVÖRUN!
- Hættulegt er að opna hurðina í miðju kerfi þar sem heit gufa getur brennt þig.
- Opnaðu hurðina mjög varlega ef uppþvottavélin er í gangi. Hætta er á að vatn sprautist út.
- Leirtauið er heitt ef það er tekið strax úr. Bíddu í 15 mínútur eftir að kerfinu lýkur áður en gler og hnífapör eru fjarlægð.

VARÚÐ!
Ef vatnslagnirnar hafa ekki verið notaðar í lengri tíma skal láta vatnið renna til að það verði örugglega tært. Þessi ráðstöfun er nauðsynleg til að forðast hættuna á að vatnsinntakið stíflist og skemmi tækið.

VARÚÐ!
- Athugaðu eftir hvern þvott hvort þvottaefnisskammtarinn sé tómur og þvottaefnið hafi leysts upp.
- Notaðu aðeins þvottaefni sem er sérstaklega ætlað fyrir notkun í uppþvottavélum. Haltu þvottaefninu fersku og þurru.
- Ekki setja duftþvottaefni í skammtarann þar til þú ert tilbúin(n) að hefja uppþvottinn.
- Notaðu aðeins vörumerki gljáa sem eru hönnuð fyrir uppþvottavélar. Fylltu aldrei á skammtara gljáa með öðrum efnum (t.d. hreinsiefni uppþvottavéla, fljótandi þvottaefni). Það myndi skemma tækið.
- Notaðu aðeins salt sem er sérstaklega hannað til notkunar í uppþvottavélum. Allar aðrar tegundir af salti sem eru ekki sérstaklega hannaðar fyrir notkun í uppþvottavélum, sérstaklega borðsalt, munu skemma vatnsmýkingarefnið. Ábyrgð framleiðanda nær ekki yfir neinar skemmdir sem verða vegna notkunar óviðeigandi salts.
- Fylltu aðeins á með salti áður en lota er sett í gang. Það hindrar að saltkorn eða saltvatn sem gætu hafa hellst niður séu eftir á botni vélarinnar í einhvern tíma, sem getur valdið tæringu.

VARÚD!
- Þegar síurnar eru hreinsaðar skal ekki ofherða þær. Settu síurnar aftur í vandlega og í réttri röð, annars gæti gróft rusl komist í kerfið og valdið stíflu.
- Notaðu aldrei uppþvottavélina án þess að síurnar séu í stað. Röng útskipting á síum getur minnkað afköst tækisins og skemmt leirtau og áhöld.

VARÚD!
Settu beitta hluti þannig að þeir séu ekki líklegir til að skemma hurðarpéttið.

Þvottur á leirtaui með þessari uppþvottavél eyðir minni orku og vatni en ef það væri gert í hendi, svo framarlega sem þú notar vélina í heimilistilgangi og fylgir leiðbeiningunum í þessari handbók.
Öryggi við viðhald

VIÐVÖRUN!
- Aðeins hæfur tæknimaður má setja upp og framkvæma viðgerð.
- Allar viðgerðir sem framkvæmdar eru af aðilum sem eru ekki viðurkenndir tæknimenn setja notendur tækisins í hættu á að verða fyrir líkamstjóni.
- Allar ábyrgðarkröfur sem til koma vegna viðgerða sem framkvæmdar eru af aðila sem er ekki viðurkenndur tæknimaður falla ekki undir ábyrgðina.
- Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila hans eða sambærilega hæfum einstaklingi til að forðast hættu.

VIDVÖRUN!
Aftengdu tækið frá rafveitu áður en framkvæmd er hreinsun og viðhald á tækinu.

VARÚD!
- Til að hindra að vatn komist inn í hurðarlæsinguna og rafmagnshluti skal ekki nota hreinsiefni í úðabrúsum af neinni gerð.
- Ekki nota leysiefni eða svarfandi hreinsiefni til að þrífa ytra byrði og gúmmíhluta uppbvottavélarinnar.
- Notaðu aldrei svarfandi hreinsiefni eða ræstipúða á ytri yfirborð þar sem það gæti rispað áferðina. Sumar pappírsþurrkur gætu einnig rispað eða skilið eftir sig för á yfirborðinu.

VARÚD!
- Þegar síurnar eru hreinsaðar skal ekki ofherða þær. Settu síurnar aftur í vandlega og í réttri röð, annars gæti gröft rusl komist í kerfið og valdið stíflu.
- Notaðu aldrei uppþvottavélina án þess að síurnar séu í stað. Röng útskipting á síum getur minnkað afköst tækisins og skemmt leirtau og áhöld.
Förgun

Áður en þú fargar tækinu skaltu skera rafmagnssnúruna af og tryggja að hurðarlæsingin sé óvirk.
Fargaðu umbúðum á umhverfisvænan hátt. Með því að setja umbúðir í endurvinnslu, samkvæmt reglum lands og staðar, er hægt að draga úr notkun hráefna og magni úrgangs í landfyllingum.
Petta tæki er merkt í samræmi við Evróputilskipun 2012/19/ESB, rafmagns- og rafeindataekjaúrgangur (WEEE). Táknið á tækinu eða á umbúðum pess gefur til kynna að ekki skuli meðhöndla það sem heimilisúrgang. Í staðinn skal afhenda það til viðeigandi söfnunarstöðvar fyrir endurvinnslu rafmagns- og rafeindataekjaúrgangs.
Með því að tryggja rétta förgun tækisins hjálpar þú við að koma í veg fyrir mögulega neikvæðar afleiðingar fyrir umhverfið og heilsu manna, sem að öðrum kosti gætu orðið vegna óviðeigandi meðhöndlunar úrgangs vegna þessa tækis. Til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu þessa tækis skaltu hafa samband við viðkomandi bæjaryfirvöld sem sjá um sorphirðu, heimilissorpbjónustu eða verslunina þar sem þú keyptir tækið.
FLÝTIBYRJUN
Fyrir þvott
Þvottur 1
Lærðu að þekkja uppþvottavélina þína
Stýringar

A. Gaumljós fyrir kerfi B. Viðvörunarljós C. Skjár D. Valkostir, stillingar og aðgerðir E. Kerfisval F. Kveikja/slökkva
Tákn á skjánum





Öflugt Alhliða Sparnaður Auka Þurrkun Gljái





Gler
90 mín Hratt
Hálf hleðsla
Salt
Þvottaefnisskammtari og skammtari gljáa

Notaðu ekki sápu, taupvottaefni eða handþvottaefni í uppþvottavélinni. Notaðu aðeins þvottaefni og gljáa sem eru sérstaklega ætluð til notkunar í uppþvottavél.
Aukahlutir

Öryggisinntaksslanga: Til að tengja uppþvottavélina við vatnsinntakið.
Frárennslisslönguhaldari: Til að festa slönguna og forðast brot, til dæmis þegar slangan er sett yfir brún vasks.
Salttrekt: Til að bæta salti við vatnsmýkingarefnið.
Lengri fætur: Til að auka hæð vélarinnar.
Finndu gerðarkóðann

Gerðarkóðinn er prentaður á merkimiða á tækinu. Þú þarft kóðann til að finna allar og nýlegustu upplýsingarnar, þjónustuna og aðstoðina fyrir þína gerð af tæki.

ATHUGADU!
Þetta tæki og textamerking eru dæmi. Tækið þitt og texti gætu haft annað útlit og innihald.
Fyrir fyrstu notkun

VARÚD!
Gakktu úr skugga um að uppþvottavélin sé rétt upp sett áður en þvegið er.
Þú þarft að bæta salti við vatnsmýkingarefnið til að fjarlægja steinefni og sölt úr vatninu sem gætu haft slæm áhrif á virkni uppþvottavélarinnar. Sjá hluti "Bættu salti við vatnsmýkingarefnið", síða 309.
Vatnsmýkingarefnisstig stillt
Stilltu vatnsmýkingarefnisstigið samkvæmt hörku vatnsins á þínu svæði. Sjá eftirfarandi töflu til að velja viðeigandi stig. Yfirvöld vatnsveitu á staðnum geta ráðlagt þér um hörku vatns staðarins.
| Vatnsharka VatnsmýkingarPýskt °dH Franskt °fH Breskt °Clarke mmól/l | efnisstig | Tilvik endurmynduna r* | Saltnotkun (grömm/lotu) | |||
| 0 - 5 0 - 9 0 - | 6 0 - 0,94 H1 er sýnt Engin | endurmyndun | 0 | |||
| 6 - 11 | 10 - 20 | 7 - 14 | 1,0 - 2,0 | H2 er sýnt | 10 | 9 |
| 12 - 17 | 21 - 30 | 15 - 21 | 2,1 - 3,0 | H3 er sýnt | 5 | 12 |
| 18 - 22 | 31 - 40 | 22 - 28 | 3,1 - 4,0 | H4 er sýnt | 3 | 20 |
| 23 - 34 | 41 - 60 | 29 - 42 | 4,1 - 6,0 | H5 er sýnt | 2 | 30 |
| 35 - 55 | 61 - 98 | 43 - 69 | 6,1 - 9,8 | H6 er sýnt | 1 | 60 |
*Endurmyndun gerist á X kerfislota fresti.

ATHUGADU!
Hver lota með endurmyndunaraðgerð eykur vatnsnotkunina um 2,0 litra af vatni, orkunotkunina um 0,02 kWh, og tímalengd kerfisins um 4 minútur.
- Opnaðu hurðina.
- Ýttu á ⏻ til að kveikja á vélinni.
- Innan 60 sekúndna, ýttu og haltu P í meira en 5 sekúndur til að fara í uppsetningu vatnsmýkingarefnis.
- Ýttu á P til að fara í gegnum tiltæk stig vatnsmýkingarefnis (H1, H2, H3 (sjálfgefið), H4, H5, H6).
- Ýttu á ⏻ til að staðfesta og fara úr uppsetningu vatnsmýkingarefnis.
Þú ferð út úr uppsetningu vatnsmýkingarefnis ef þú breytir engum stillingum í 5 sekúndur.
Keyrðu vélina tóma.
Gakktu úr skugga um að vélin sé sett upp á réttan hátt.
- Settu rafmagnssnúruna í samband.
- Skrúfaðu frá vatnskrananum.
- Ræstu þvottakerfi. ATHUGADU! Settu ekkert leirtau í vélina. Vélin er tilbúin til notkunar þegar kerfið hefur klárast.
PVOTTUR
Fyrir hvern þvott
1
- Athugaðu hvort hlutirnir megi fara í uppþvottavél. Sjá hluti "Hlutir sem henta til að setja í uppþvottavél", síða 311.
- Fjarlægðu matarleifar.
ATHUGADU! Ekki er ráðlagt að skola leirtauið undir rennandi vatni. Það leiðir til aukinnar vatns- og orkunotkunar.
- Mýkið leifar af brenndum mat á pönnum með því að skola þær með vatni.
Ræstu þvottinn

ATHUGADU!
Til að spara orku, í reiðuham, slekkur uppþvottavélin sjálfkrafa á sér ef hún hefur ekki verið notuð í 15 mínútur.
- Skrúfaðu frá vatnsinntakinu.
- Renndu út neðri og efri körfunum.
- Hladdu leirtauinu.
VIÐVÖRUN! Hnífar og önnur áhöld með beitta odda verður að hlaða í körfuna þannig að oddurinn snúi niður eða sett í lárétta stöðu.
- Ýttu neðri og efri körfunni til baka.
- Bættu þvottaefni í þvottaefnisskammtarann. Sjá hluti "Fylltu þvottaefnisskammtarann", síða 307.
ATHUGADU! Notaðu aðeins þvottaefni sem mælt er með til notkunar fyrir uppþvottavélar. Notaðu aldrei sápu, taupvottaefni eða handþvottaefni í uppþvottavélinni.
- Ýttu á til að kveikja á rafmagninu.
- Ýttu á hnapp þess kerfis sem óskað er eftir. Gaumljós valins kerfis lýsir.
- Veldu stillingar og valkosti eftir þörfum.
- Lokaðu hurðinni til að hefja þvottalotuna.
Þegar þvotti er lokið heyrist hljóðmerki og hurð uppþvottavélarinnar opnast.

VIÐVÖRUN!
Tæmdu ekki uppþvottavélina strax eftir þvott, hlutirnir eru heitir. Bíddu í 15 mínútur áður en uppþvottavélin er tæmd.
Leirtaui bætt við meðan þvottur er í gangi
Þú getur bætt við meira leirtaui til að þvo hvenær sem er áður en þvottaefnisskammtarinn opnast.

VIÐVÖRUN!
Það er hættulegt að opna hurðina í miðri lotu þar sem gufa getur brennt þig.
- Opnaðu hurðina smávegis til að gera hlé á þvottalotunni.
- Bíddu eftir að úðunararmarnir hætti að snúast og opnaðu síðan hurðina.
- Bættu leirtauinu við.
- Lokaðu hurðinni. Þvotturinn heldur áfram eftir 10 sekúndur.
Skipt um kerfi meðan þvottur stendur yfir
Hægt er að skipta um kerfi hvenær sem er með því að framkvæma endurstillingu.

VIÐVÖRUN!
Það er hættulegt að opna hurðina í miðri lotu þar sem gufa getur brennt þig.
- Opnaðu hurðina smávegis til að gera hlé á þvottalotunni. ATHUGIÐ! Þegar úðunararmarnir hætta að snúast er hægt að opna hurðina alveg.
- Ýttu og haltu í meira en 3 sekúndur til að hætta við kerfið.
- Athugaðu hvort þvottaefnisskammtarinn sé opinn. Ef hann er opinn, fylltu á þvottaefnisskammtarann með þvottaefni.
- Ýttu á F að velja kerfi.
- Lokaðu hurðinni til að hefja þvottalotuna.
Tilgangur þvottaefnis
Efnin sem þvottaefnið inniheldur eru nauðsynleg til að fjarlægja, leysa upp og skola burt öll óhreinindi út úr uppþvottavélinni. Flest þvottaefni fyrir uppþvottavélar sem eru af markaðsgæðum henta fyrir þennan tilgang.
Fylltu þvottaefnisskammtarann

VARÚÐ!
Notaðu aðeins þvottaefni sem er sérstaklega ætlað fyrir notkun í uppþvottavélum. Haltu þvottaefninu fersku og þurru. Ekki setja duftþvottaefni í skammtarann þar til þú ert tilbúin(n) að hefja uppþvottinn.
- Opnaðu hurðina.
- Renndu læsingunni til að opna þvottaefnisskammtarann.
- Lokið færist fram.
- Bættu þvottaefni við hólfið fyrir aðalþvottalotuna.

Til að ná betri árangri við þvott, sérstaklega ef þú ert með mjög óhreina hluti, helltu þá litlu magni af þvottaefni ofan á hurðina. Aukaþvottaefnið verður notað á forþvottastiginu.
- Renndu og ýttu svo niður til að loka lokinu.
Tilgangur gljáa
Gljái er losaður í lokaskoluninni til að hindra vatn í að mynda dropa á leirtauinu, sem geta skilið eftir sig bletti og rendur. Það bætir einnig þurkunina með því að láta vatnið renna af leirtauinu. Uppþvottavélin er hönnuð til að nota fljótandi gljáa.
Fyllt á skammtara gljáa
Gerðu þetta þegar aðvörunarljósið lýsir.

VARÚÐ!
- Notaðu aðeins skolefni sem ætlað er fyrir uppþvottavélar. Fylltu aldrei á skammtara gljáa með öðrum efnum (t.d. hreinsiefni uppþvottavéla, fljótandi þvottaefni). Það myndi skemma uppþvottavélina. - Gljái sem hellist niður og er skilinn eftir á botni vélarinnar getur valdið froðumyndun í næsta þvotti. Ef gljái hellist niður skal nota rakadrægan klút til að fjarlægja það sem helltist niður.
- Lyftu handfanginu til að opna lokið.
- Bættu við gljáa í skammtara gljáa. VARÚÐ! Ekki yfirfylla skammtara gljáa.
- Lokaðu lokinu.
Notkun gljáa stillt
Stilltu notkun gljáa samkvæmt hörku vatnsins á þínu svæði. Yfirvöld vatnsveitu á staðnum geta ráðlagt þér um hörku vatns staðarins. Sjá hluti "Vatnsmýkingarefnisstig stillt", síða 305.
- Opnaðu hurðina.
- Ýttu á til að kveikja á vélinni.
- Innan 60 sekúndna, ýttu og haltu P í meira en 5 sekúndur.
- Ýttu á C til að fara í uppsetningu fyrir gljáa. Hægt: umljósið blikkar einu sinni á sekúndu.
- Ýttu á P til að fara í gegnum tiltæk stig fyrir notkun gljáa (D1, D2, D3 (sjálfgefið), D4, D5 - því hærri sem talan er því meira af gljáa notar uppþvottavélin).
- Ýttu á til að staðfesta og fara út úr uppsetningu fyrir gljáa.
Þú getur skilið stillingarnar eftir óbreyttar í 5 sekúndur til að fara út úr uppsetningu fyrir gljáa.
Tilgangur salts fyrir vatnsmýkingarefnið
Vatnsmýkingarefnið er hannað til að fjarlægja steinefni og sölt úr vatninu sem gætu haft slæm áhrif á virkni uppþvottavélarinnar. Því meira af steinefnum sem eru í vatninu því harðara er vatnið. Harka vatns er mismunandi frá einum stað til annars. Ef hart vatn er notað í uppþvottavélinni myndast útfellingar á leirtaui og áhöldum. Tegund salts sem er notuð verður að vera sérstaklega hönnuð til að fjarlægja kalk og steinefni úr vatninu.
Bættu salti við vatnsmýkingarefnið
Gerðu þetta þegar saumljósið lýsir.

VARÚÐ!
- Notaðu aðeins salt sem er sérstaklega ætlað til notkunar í uppþvottavélum. Allar aðrar tegundir af salti, sérstaklega borðsalt, mun skaða vatnsmýkingarefnið.
- Einungis skal fylla á með salti rétt áður en lota er keyrð. Salt eða saltvatn sem hellist niður og er skilið eftir á botni vélarinnar í nokkurn tíma getur valdið tæringu. Ef salti er hellt niður skal keyra Hratt kerfið til að fjarlægja það sem helltist niður.
1
- Fjarlægðu neðri körfuna.
- Skrúfaðu lokið af.
- Settu enda trektarinnar í gatið.
- Bættu við um það bil 1,5 kg af uppþvottavélarsalti.
- Fjarlægðu trektina úr gatinu.
- Fylltu saltílátið að hámarki sínu með vatni. (það er eðlilegt að lítið magn vatns komi út úr saltílátinu). ATHUGIÐ! Fylltu saltílátið aðeins með vatni í fyrsta sinn sem bætt er salti við vatnsmýkingarefnið.
- Skrúfaðu lokið vandlega á aftur.
Þá gaumljósið lýsir ekki lengur.
ATHUGIÐ! Eftir því hversu vel saltið leysist upp gæti haumljósið enn lýst jafnvel þótt saltílátið hafi verið fyllt.
- Ræstu stutt þvottakerfi tafarlaust.
VARÚÐ! Þegar salti hefur verið bætt við vatnsmýkingarefnið ætti að ræsa þvottakerfi tafarlaust. Annars gæti saltvatn skaðað síubúnað, dælu eða aðrar mikilvæga hluta vélarinnar.
Eftir hvern þvott
1
- Athugaðu að þvottaefnisskammtarinn sé tómur.
- Skrúfaðu fyrir vatnsinntakið.
- Hafðu hurðina smávegis opna og bíddu í 15 mínútur áður en leirtauið er fjarlægt.
- Fjarlægðu leirtauið.

Tæmdu neðri körfuna fyrst og síðan efri körfuna, til að hindra vatnsdropar falli.
- Hafðu hurðina smávegis opna til að lofta út raka og lykt.
Hlutir sem henta til að setja í uppþvottavél
Gakktu úr skugga um að leirtauið megi setja í uppþvottavél áður en þú hleður í uppþvottavélina.
Eftirfarandi hluti má ekki setja í uppþvottavél:
- Hnífapör með handföngum úr við, horni, postulíni eða skelplötu;
- Plasthlutir sem eru ekki hitabolnir;

VARÚÐ!
Athugaðu alla plasthluti til að ganga úr skugga um að þeir séu merktir sem má setja í uppþvottavél.
- Eldri hnífapör með límda hluta sem eru ekki hitabolnir; • Límd hnífapör eða leirtau; • Blikk-, tin- eða koparhlutir;
- Kristalgler; • Stálhlutir sem eru ekki ryðfríir; • Viðarbakkar og skurðarbretti;
- Hlutir gerðir úr gervitrefjum.
Útlit sumra hluta getur hrakað þegar þeir eru notaðir í uppþvottavél:
- Sumar tegundir af gleri verða mattar eftir mikinn fjölda þvotta.
- Silfur- og álhlutir hafa tilhneigingu til að upplitast við þvott.
- Mynstur úr gljáhúð getur dofnað ef þvegið er oft í uppþvottavél.

- Íhugaðu að kaupa áhöld sem eru merkt sem má setja í uppþvottavél.
- Notaðu milt þvottaefni fyrir uppþvottavélar. • Veldu lághitakerfi fyrir viðkvæma hluti.
Körfur og grindur stilltar áður en hlaðið er
Stilltu hæð efri körfunnar
Þú getur stillt hæð efri körfunnar til að koma fyrir hærri diskum í annað hvort efri eða neðri körfunni.
- Togaðu út körfuna og lyftu körfunni af rúllubrautunum.
- Til að nota efstu stöðuna settu körfuna á efri rúllubrautina.
- Til að nota neðstu stöðuna settu körfuna á neðri rúllubrautina.
- Ýttu körfunni inn.
Bollagrind lögð upp og lögð niður
Hægt er að leggja saman bollagrindina í efri körfunni til að búa til pláss fyrir hærri hluti.
- Bollagrind lögð upp.
- Bollagrind lögð niður.

Pegar bollagrindin er í uppréttri stöðu er hægt að halla háum glösum upp að henni.
Diskagrindur lagaðar aftur
Hægt er að leggja saman diskagrindurnar í neðri körfunni til að búa til pláss fyrir stærri hluti.

- Diskagrindur lagaðar aftur.
Fyllt í uppbvottavélina á hagkvæman hátt
Notaðu þessar leiðbeiningar þegar hlaðið er í uppþvottavélina.

VIÐVÖRUN!
Hnífar með löngum blöðum geymdir í uppréttri stöðu skapa mögulega hættu.

VARÚÐ!
- Settu beitta hluti þannig að þeir séu ekki líklegir til að skemma hurðarpéttið.
- Ekki ætti að þvo mjög litla hluti í uppþvottavélinni þar sem þeir gætu auðveldlega fallið út úr körfunni.
- Hlutir eins og bollar, glös, pottar og pönnur ættu að snúa niður á við.
- Hlaða ætti bogalöguðum hlutum eða hlutum með innfellingum þannig að þeir snúi þannig að vatn geti runnið af þeim.
- Stafla skal öllum áhöldum örugglega þannig að þau geti ekki oltið um koll.
- Setja skal öll áhöld þannig að þau komi ekki í veg fyrir að úðunararmarnir snúist óhindrað við þvott.
- Hladdu holum hlutum eins og bollum, glösum, pönnum o.s.frv. á hvolfi þannig að vatn safnist ekki í ílátinu eða djúpum grunni.
- Leirtau og hnifaparahlutir mega ekki liggja innan í hverjum öðrum eða hylja hverjir aðra.

ATHUGADU!
- Hladdu í körfuna samkvæmt hefðbundnum hleðsluvalkostum. Reyndu að nota plássið fyrir alla 12 borðbúnaðina. Þetta er mikilvægt fyrir góðan árangur og fyrir hagkvæma nýtingu á orku og vatni.
- Ef þú hleður ekki körfuna samkvæmt stöðluðum hleðsluvalkostum og notar ekki plássið fyrir alla 12 borðbúnaðina, getur það leitt til lélegri afkasta og óhagkvæmrar orku- og vatnsnotkunar.
Leiðbeiningar fyrir hleðslu efri körfunnar
Notið þessar leiðbeiningar ásamt almennum leiðbeiningum þegar hlaðið er í efri körfuna.
- Hlaðið með viðkvæmu og léttu leirtaui eins og gleri, kaffibollum, tebollum og undirskálum, auk diska, lítilla skála og grunnra panna (ef þær eru ekki of óhreinar).
- Hægt er að leggja saman hnífaparagrindina til að búa til pláss fyrir hærri hluti. Sjá hluti "Bollagrind lögð upp og lögð niður", síða 312.
- Setjið hlutina þannig að þeir færist ekki þegar vatnið sprautast á þá.
- Til að forðast skemmdir ættu glervörur ekki að snertast innbyrðis.
- Hnífaparahlutir sem eru langir eða beittir, til dæmis skurðarhnífar, verður að leggja lárétt í efri körfuna.
Hlaðið í efri körfuna samkvæmt evrópskum staðli EN 60436

A. Bollar B. Undirskálar C. Glös D. Könnur E. Lítill pottur F. Ofnpottur
Leiðbeiningar fyrir hleðslu neðri körfunnar
Notið þessar leiðbeiningar ásamt almennum leiðbeiningum þegar hlaðið er í neðri körfuna.
- Hlaðið með stórum hlutum og þeim sem erfiðast er að hreinsa eins og pottum, pönnum, lokum, matarfötum og skálum.
- Hægt er að leggja saman diskagrindurnar til að búa til pláss fyrir stærri hluti. Sjá hluti "Diskagrindur lagaðar aftur", síða 312
- Setjið matarföt og lok við hlið grindanna til að hindra ekki snúning efri úðunararmsins.

ATHUGADU!
Hámarks ráðlagt þvermál diska fyrir framan þvottaefnisskammtarann er 19 cm svo hægt sé að opna hann auðveldlega.
Hlaðið í neðri körfuna samkvæmt evrópskum staðli EN 60436

Leiðbeiningar fyrir að hlaða í hnífaparagrindina
Notið þessar leiðbeiningar ásamt almennum leiðbeiningum þegar hlaðið er í hnífaparagrindina.

VIDVÖRUN!
- Ekki láta neinn hlut stingast niður úr botni körfunnar.
- Hlaðið alltaf beittum áhöldum með beitta oddinn niður á við.

VARÚÐ!
Setjið aðeins létt hnífapör í grindina. Heildarþyngd ætti að vera minni en 1,5 kg.
Hnífapör eiga að vera sett aðskilin frá hverjum öðrum og í réttar stöður, og tryggja skal að áhöldin hrúgist ekki saman, þar sem slíkt gæti haft slæm áhrif á árangur við hreinsun.
Hlaðið í hnífaparagrindina samkvæmt evrópskum staðli EN 60436


Leiðbeiningar fyrir hleðslu hnífaparakörfunnar
Notið þessar leiðbeiningar ásamt almennum leiðbeiningum þegar hlaðið er í hnífaparakörfuna.

VIDVÖRUN!
- Ekki láta neinn hlut stingast niður úr botni körfunnar.
- Hlaðið alltaf beittum áhöldum með beitta oddinn niður á við.
Hnífapör eiga að vera sett aðskilin frá hverjum öðrum og í réttar stöður, og tryggja skal að áhöldin hrúgist ekki saman, þar sem slíkt gæti haft slæm áhrif á árangur við hreinsun.
Hlaðið í hnífaparagrindina samkvæmt evrópskum staðli EN 60436

Valkostir, stillingar og aðgerðir

Sjálfvirk opnun
Opnar hurð uppþvottavélarinnar sjálfkrafa í lok kerfis. Þetta bætir árangur við þurrkun. Þessi aðgerð er alltaf virk og ekki hægt að slökkva á henni.

Seinkun
Seinkar byrjun þvottakerfisins um ákveðið langan tíma. Hámarks seinkunartími er 24 klukkustundir.

Auka þurrkun
Veitir leirtauinu aukalega vandlega þurrkun.

Hálf hleðsla
Sparar orku og vatn. Hægt að nota þegar helmingur eða minna en helmingur plássins í uppþvottavélinni er notað.
Notaðu valkostinn fyrir aukaþurrkun
Þessi valkostur er ekki tiltækur með kerfinu Hratt.
- Ýttu á P að velja kerfi.
- Ýttu á.
- Lokaðu hurðinni.
Notið valkostinn fyrir hálfa hleðslu
Þennan valkost er hægt að nota til að spara vatn og orku þegar helmingur eða minna en helmingur plássins í uppþvottavélinni er notaður. Þessi valkostur er ekki tiltækur með kerfunum 90 mín og Hratt.
- Ýttu á P að velja kerfi.
- Ýttu á ½
- Lokaðu hurðinni.
Notið seinkunaraðgerðina
- Ýttu á P að velja kerfi.
- Breyttu stillingum og veldu valkosti ef þarf.
- Ýttu á © að fara í gegnum alla mögulega seinkunartíma.
- Lokaðu hurðinni.
Þvottalotan hefst eftir að seinkunartíminn er liðinn.

Þú getur hætt við tímastillingu seinkunar með því að ýta á takkann og fara í gegnum mögulega seinkunartíma þar til skjárinn sýnir 00.
Kerfi

ATHUGADU!
- Hversu mikið magn af þvottaefni þarf fer eftir því hversu óhreint leirtauið er.
- Raunveruleg gildi fyrir kerfi geta verið frábrugðin þeim gildum sem sýnd eru hér. Gildin sem gefin eru upp fyrir kerfi önnur en sparnaðarkerfið eru aðeins til hliðsjónar.
90 mín

Fyrir venjulega óhreinar hleðslur sem þurfa hraðan þvott.
| Lotuskref • Pvottur 55 °C | SkolaSkola 50 °CPurrkun |
| Pvottaefni, forpvottur - | |
| Pvottaefni, aðalpvottur 20 g eða | 1 - 2 töflur |
| Sjálfgefinn tími 1:30 | |
| Gljái Já | |
| Sjálfvirk opnun Já, 10 mínútum áður en kerfiðendar |
Sparnaður

Ráðlagt kerfi fyrir venjulega óhreint leirtau, þar sem það minnkar orku- og vatnsnotkun.
| Lotuskref • Pvottur 50 °C | SkolaSkola 50 °CPurrkun |
| Pvottaefni, forpvottur 4 g | |
| Pvottaefni, aðalpvottur 20 g eða | 1 - 2 töflur |
| Sjálfgefinn tími 3:18 | |
| Gljái Já | |
| Sjálfvirk opnun Já, 40 mínútum | áður en kerfiðendar |
Gler

Fyrir lítið óhreint leirtau og gler.
| Lotuskref • Forþvottur 40 °C | • Pøttur 50 °C• Skola• Skola 50 °C• Purrkun |
| Pvottaefni, forþvottur 4 g | |
| Pvottaefni, aðalþvottur 16 g eða | 1 - 2 töflur |
| Sjálfgefinn tími 2:00 | |
| Gljái Já | |
| Sjálfvirk opnun Já, 15 mínútum áður en kerfið endar | |
Öflugt

Fyrir mikið óhreint leirtau og venjulega óhreina potta, pönnur, leirtau o.s.frv., með þornuðum matarleifum.
| Lotuskref • Forþvottur 50 °C | • Pøvtur 65 °C• Skola• Skola• Skola 60 °C• Purrkun |
| Pvottaefni, forþvottur 4 g | |
| Pvottaefni, aðalþvottur 16 g eða | 1 - 2 töflur |
| Sjálfgefinn tími 3:25 | |
| Gljái Já | |
| Sjálfvirk opnun Já, 10 mínútum áður en kerfið endar | |
Hratt

Fljótara kerfi fyrir lítið óhreinar hleðslur sem ekki þarf að þurrka.
| Lotuskref • Pvottur 40 °C | Skola 40 °CSkola 55 °C |
| Pvottaefni, forpvottur - | |
| Pvottaefni, aðalpvottur 12 g eða | 1 tafla |
| Själfgefinn tími 0:30 | |
| Gljái Nei | |
| Själfvirk opnun Nei |
Alhliða

Fyrir venjulega óhreinar hleðslur, eins og potta, diska, glös og litið óhreinar pönnur.
| Lotuskref • Forþvottur 45 °C | • Pøttur 55 °C• Skola• Skola• Skola 60 °C• Purrkun |
| Pvottaefni, forþvottur 4 g | |
| Pvottaefni, aðalþvottur 16 g eða | 1 - 2 töflur |
| Sjálfgefinn tími 2:55 | |
| Gljái Já | |
| Sjálfvirk opnun Já, 20 mínútum | áður en kerfið endar |
HREINSUN
Rétt viðhald tækis þíns getur lengt endingartíma þess.

VIÐVÖRUN!
Lesið öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild áður en hreinsun eða viðhald á þessari vöru eru framkvæmd.

VIÐVÖRUN!
Taktu vélin úr sambandi áður en hún er hreinsuð og viðhald framkvæmt á henni.

VARÚÐ!
- Ef hreinsunar er þörf skal einungis nota mjúkan rakan klút vættan í mildri sápu. Notaðu þurran klút til að þurrka bleytu af vélinni.
- Til að fjarlægja bletti af innra yfirborði skal nota klút vættan í vatni og smávegis ediki, eða hreinsiefni sérstaklega gerðu fyrir uppþvottavélar.

VARÚÐ!
- Til að hindra að vatn komist inn í hurðarlæsinguna og rafmagnshluti skal ekki nota hreinsiefni í úðabrúsum af neinni gerð.
- Notaðu aldrei svarfandi hreinsiefni eða ræstipúða á ytri yfirborð þar sem það gæti rispað áferðina. Sumar pappírsþurrkur gætu einnig rispað eða skilið eftir sig för á yfirborðinu.
Hurð og hurðarpétti þrifin
Gerðu þetta reglulega til að fjarlægja matarleifar.

VARÚÐ!
Ekki nota leysiefni eða svarfandi hreinsiefni til að þrífa ytra byrði og gúmmíhluta uppþvottavélarinnar. Notaðu klút vættan með heitu sápuvatni.

- Opnaðu hurðina.
- Þrifðu hurðarþéttinguna með mjúkum, rökum klút.
- Þrifðu hliðar hurðarinnar og þrifðu stjórnborðið með mjúkum, rökum klút. Þurrkaðu stjórnborðið vandlega.
- Lokaðu hurðinni.
- Framhlið hurðar þrifin.
Þrifðu úðunararmana
Gerðu þetta reglulega. Þetta hindrar að úðunararmarnir og legurnar stíflist.
1
- Fjarlægðu efri körfuna.
- Til að fjarlægja efri úðunararminn skal halda rónni kyrri og snúa úðunararminum.
- Fjarlægðu neðri körfuna.
- Til að fjarlægja neðri úðunararminn, togaðu úðunararminn upp á við.
- Þvoðu úðunararmana 2 í heitu sápuvatni.
- Hreinsaðu þrýstistútana með mjúkum bursta.
Settu upp í öfugri röð.
Fjarlægðu og hreinsaðu síubúnaðinn.
Athugaðu síurnar reglulega og hreinsaðu þær þegar rusl er farið að safnast upp. Þetta hindrar að síurnar stíflist.

VARÚÐ!
- Settu síurnar aftur í vandlega og í réttri röð, annars gæti gróft rusl komist í kerfið og valdið stíflu.
- Notaðu aldrei uppþvottavélina án þess að síurnar séu í stað. Röng ísetning á síum getur dregið úr afköstum uppþvottavélarinnar og skemmt leirtau og áhöld.
1
- Fjarlægðu neðri körfuna.
- Snúðu grófsíunni.
- Lyftu og fjarlægðu síusamstæðuna.
- Togaðu fínusíuna af síusamstæðunni: Klemmdu flipana varlega saman efst og togaðu grófsíuna úr síusamstæðunni.
- Fjarlægðu stærri matarleifar með því að skola síuna undir rennandi vatni.

Fyrir vandlegri hreinsun skal nota mjúkan hreinsibursta.
- Settu síuna aftur saman í öfugri röð.
- Settu síusamstæðuna í upphaflega stöðu sína.
- Snúðu grófsíunni.
VARÚÐ! Hertu síurnar ekki of mikið.
Undirbúningur ef ekki á að nota vélina í langan tíma
Gerðu þetta þegar ekki á að nota uppþvottavélina í langan tíma.
1
- Keyrðu þvottalotu með uppþvottavélina tóma.
- Taktu klónna úr sambandi frá rafmagnsinnstungunni.
- Skrúfaðu fyrir vatnsinntakið.
- Opnaðu hurðina smávegis.
ATHUGIÐ! Með því að skilja hurðina eftir smávegis opna geta hurðarþéttin enst lengur og komið er í veg fyrir að lykt myndist innan í uppþvottavélinni.
BILANAGREINING
Vélin ræsist ekki
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Öryggi hefur sprungið, eða útsláttarrofi hefur slegið út
- Skiptu um öryggi eða endurstilltu útsláttarrofann.
- Aftengdu öll önnur tæki tengd við sömu rafrás og uppþvottavélin.
Vélin er ekki tengd við raftengingu
Tengdu rafmagnssnúruna við rafmagnsinnstunguna.
Ekki er kveikt á vélinni
Kveiktu á vélinni.
Vatnsþrýstingur er lágur
- Athugaðu að vatnsinntakið sé rétt tengt.
- Athugaðu að skrúfað sé frá vatninu.
Hurð uppþvottavélarinnar ekki almennilega lokuð
Lokaðu hurðinni alveg og læstu henni.
Vatn dælist ekki út úr uppþvottavélinni
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Frárennslisslanga er undin, klemmd eða stífluð
Athugaðu frárennslisslönguna.
Sía stífluð
Athugaðu grófsíuna.
Eldhúsvaskur stíflaður
Athugaðu að frárennsli úr eldhúsvaski sé gott. Ef vandamálið er vegna stíflaðs eldhúsvasks gætir þú þurft að hringja í pípulagningamann frekar en tæknimann fyrir uppþvottavélar.
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Rangt þvottaefni
- Keyrðu Hratt kerfið án neins leirtaus.
- Athugaðu með sápulöður og endurtaktu ef þarf.
Gljái hefur hellst niður
Þurrkaðu alltaf strax upp skolefni sem hellist niður.
Blettir innan í uppþvottavélinni
Þvottaefni með litarefni gæti hafa verið notað
Gakktu úr skugga um að þvottaefnið innihaldi ekki neitt litarefni.
Hvít filma á innra yfirborði
Útfellingar úr hörðu vatni
- Þrífðu innra byrðið.
- Notaðu rakan svamp með þvottaefni fyrir uppþvottavélar og vertu í gúmmíhönskum.
Þvottaefni er eftir í skammtara
Leirtauið er að hindra þvottaefnisskammtarann
Bankhljóð í uppþvottavélinni
Úðunararmur slæst utan í hlut í körfu
- Gerðu hlé á kerfinu.
- Endurraðaðu hlutunum sem eru að hindra úðunararminn.
Skrölthljóð í uppþvottavélinni
Leirtaushlutir eru lausir í uppþvottavélinni
Gerðu hlé á kerfinu og endurraðaðu leirtaushlutunum.
Bankhljóð í vatnslögnum
Þetta gæti verið vegna uppsetningar á staðnum eða þversniðs vatnslagnanna.
Þetta hefur engin áhrif á virkni uppþvottavélarinnar. Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við viðurkenndan pípulagningamann.
Óhreint leirtau
Leirtauið er ekki hreint
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Leirtauinu var ekki rétt hlaðið í
Sjá hluti "Fyllt í uppþvottavélina á hagkvæman hátt", síða 312.
Kerfið var ekki nógu öflugt
Veldur öflugara kerfi.
Rangt þvottaefni var notað
Notaðu meira þvottaefni, eða skiptu um þvottaefni.
Hlutir hindra hreyfingar úðunararmanna
Endurraðaðu hlutunum þannig að úðunararmarnir geti snúist óhindrað.
Síusamstæðan er ekki hrein eða er ekki rétt sett í grunn uppþvottavélarrýmisins
Þetta getur leitt til stíflunar á þrýstistútum úðunararmsins.
- Hreinsaðu síuna og komdu henni rétt fyrir. Sjá hluti "Fjarlægðu og hreinsaðu síubúnaðinn.", síða 321.
- Hreinsaðu prýstistúta úðunararmsins. Sjá hluti "Prífðu úðunararmana", síða 321.
Glervara verður skýjuð
Samsetning af of mjúku vatni og of miklu þvottaefni
Notaðu minna þvottaefni ef þú ert með mjúkt vatn og veldu styttri lotu til að þvo glervöru og til að ná henni hreinni.
Það eru ryðblettir á hnífapörunum
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Viðkomandi hlutir eru ekki tæringarþolnir
Forðastu að þvo hluti sem eru ekki tæringarþolnir í uppþvottavélinni.
Kerfi var ekki keyrt eftir að uppþvottavélarsalti var bætt við. Vottur af salti hefur borist inn í þvottalotuna
Keyrðu alltaf þvottakerfi án neins leirtaus eftir að salti hefur verið bætt við.
Lok vatnsmýkingarefnisins er laust
Athugaðu að lokið sé fast.
Hvítir blettir koma fram á leirtaui og glösum
Hart vatn getur valdið kalkútfellingum
- Stilltu vatnsmýkingarefnisstigið. Sjá hluti "Vatnsmýkingarefnisstig stillt", síða 305.
- Bættu salti við vatnsmýkingarefnið. Sjá hluti "Bættu salti við vatnsmýkingarefnið", síða 309.
Svört eða grá för á leirtauinu
Áhöld úr áli hafa nuddast við leirtauið
Notaðu milt svarfandi hreinsiefni til að fjarlægja förin.
Leirtauið þornar ekki
Það geta verið aðrar orsakir fyrir vandamálinu. Fylgdu leiðbeiningunum fyrir orsakirnar sem stungið er upp á til að leysa vandamálið.
Ekki rétt hlaðið
Sjá hluti "Fyllt í uppþvottavélina á hagkvæman hátt", síða 312.
Leirtauið er fjarlægt of fljótt
- Ekki tæma uppþvottavélina strax eftir þvott.
- Opnaðu hurðina smávegis þannig að gufan sleppi út.
- Taktu fyrst úr neðri körfunni til að hindra að vatn dropi niður úr efri körfunni.
Rangt kerfi hefur verið valið
Veldu kerfi með löngum þvottatíma. Fyrir stutt kerfi er hitastig við þvott lægra, sem minnkar afköst við þvott.
Pvottur á eldhúsáhöldum með rakadræga húðun eða sem gæði yfirborðs hafa rýrnað
Frárennsli vatns er erfiðara með slíkum hlutum. Hnífapör og leirtau af þessari gerð henta ekki fyrir þvott í uppþvottavél.
Villuskilaboð
Villukóðinn E1 er sýndur
Lengi að fyllast með vatni
- Ekki er skrúfað frá krana.
- Hindrun er á vatnsinntaki.
- Vatnsþrýstingur er of lágur.
Villukóðinn E3 er sýndur
Nauðsynlegt hitastig næst ekki
Bilun í hitastilli.

VIÐVÖRUN!
- Aðeins viðurkenndir tæknimenn mega framkvæma viðgerðir.
- Ef vandamál koma upp varðandi tækið, athugaðu þá hvort notendaleiðbeiningar og bilanagreiningarupplýsingar í notendahandbók geti hjálpað þér við að leysa þau. Ef vandamálið er viðvarandi:
- Slökktu á tækinu,
- taktu tækið úr sambandi við rafmagn, og
- hafðu samband við þjónustu.

VIÐVÖRUN!
- Allar viðgerðir sem framkvæmdar eru af aðilum sem eru ekki viðurkenndir tæknimenn setja notendur tækisins í hættu á að verða fyrir líkamstjóni.
- Allar ábyrgðarkröfur sem til koma vegna viðgerða sem framkvæmdar eru af aðila sem er ekki viðurkenndur tæknimaður falla ekki undir ábyrgðina.

ATHUGADU!
Íhugaðu að láta gera við tækið ef það er bilað. Að láta gera við í stað þess að kaupa nýtt er gott fyrir umhverfið.
Varahlutirnir sem taldir eru upp í ESB reglugerð 2019/2022 eru fáanlegir fyrir viðgerðarstarfsmenn í a.m.k. 10 ár eftir að þessi vara var sett á markaðinn.
Villukóðinn E4 er sýndur
Yfirflæði
- Aðeins viðurkenndir tæknimenn mega framkvæma viðgerðir.
- Ef vandamál koma upp varðandi tækið athugaðu þá hvort notendaleiðbeiningar og bilanagreiningarupplýsingar í notendahandbók geta hjálpað þér við að leysa þau. Ef vandamálið er viðvarandi:
- slökktu á tækinu,
- taktu tækið úr sambandi við rafmagn, og
- hafðu samband við þjónustu.

VIDVÖRUN!
- Allar viðgerðir sem framkvæmdar eru af aðilum sem eru ekki viðurkenndir tæknimenn setja notendur tækisins í hættu á að verða fyrir líkamstjóni.
- Allar ábyrgðarkröfur sem til koma vegna viðgerða sem framkvæmdar eru af aðila sem er ekki viðurkenndur tæknimaður falla ekki undir ábyrgðina.

ATHUGADU!
Íhugaðu að láta gera við tækið ef það er bilað. Að láta gera við í stað þess að kaupa nýtt er gott fyrir umhverfið.
Varahlutirnir sem taldir eru upp í ESB reglugerð 2019/2022 eru fáanlegir fyrir viðgerðarstarfsmenn í a.m.k. 10 ár eftir að þessi vara var sett á markaðinn.
Villukóðinn Ed er sýndur
Bilun í samskiptum milli aðal PCB og skjá PCB
Opin rafrás eða rof í raflögnum fyrir samskipti.

VIDVÖRUN!
- Aðeins viðurkenndir tæknimenn mega framkvæma viðgerðir.
- Ef vandamál koma upp varðandi tækið athugaðu þá hvort notendaleiðbeiningar og bilanagreiningarupplýsingar í notendahandbók geta hjálpað þér við að leysa þau. Ef vandamálið er viðvarandi:
- slökktu á tækinu,
- taktu tækið úr sambandi við rafmagn, og
- hafðu samband við þjónustu.

VIDVÖRUN!
- Allar viðgerðir sem framkvæmdar eru af aðilum sem eru ekki viðurkenndir tæknimenn setja notendur tækisins í hættu á að verða fyrir líkamstjóni.
- Allar ábyrgðarkröfur sem til koma vegna viðgerða sem framkvæmdar eru af aðila sem er ekki viðurkenndur tæknimaður falla ekki undir ábyrgðina.

ATHUGADU!
Íhugaðu að láta gera við tækið ef það er bilað. Að láta gera við í stað þess að kaupa nýtt er gott fyrir umhverfið.
Varahlutirnir sem taldir eru upp í ESB reglugerð 2019/2022 eru fáanlegir fyrir viðgerðarstarfsmenn í a.m.k. 10 ár eftir að þessi vara var sett á markaðinn.
UPPSETNING
Fylgdu leiðbeiningunum í þessum hluta til að setja upp vélina.

VIDVÖRUN!
Hætta á því að fá rafstuð! Taktu úr sambandi frá rafmagni áður en upppvottavélin er sett upp. Ef þetta er ekki gert gæti það leitt til dauða eða raflosts.

VIDVÖRUN!
Lestu öryggisupplýsingarnar og leiðbeiningarnar í heild sinni áður en þú setur þetta tæki upp eða notar það.

VIDVÖRUN!
- Uppsetning og viðgerð má aðeins vera framkvæmd af viðurkenndum tæknimanni.
- Rafbúnaður verður að vera uppsettur af fagmönnum.
- Slöngur ættu að vera uppsettar af fagmönnum.
- Allar viðgerðir sem framkvæmdar eru af aðilum sem eru ekki viðurkenndir tæknimenn setja notendur tækisins í hættu á að verða fyrir líkamstjóni.
- Allar ábyrgðarkröfur sem til koma vegna viðgerða sem framkvæmdar eru af aðila sem er ekki viðurkenndur tæknimaður falla ekki undir ábyrgðina.

VIDVÖRUN!
Notaðu nýju slöngusettin sem fylgja vélinni. Ekki endurnota gömul slöngusett.

VARÚÐ!
Ekki koma tækinu fyrir eða geyma það í umhverfi þar sem hitastigið fer niður fyrir 0 °C
Taktu vélina úr umbúðunum

VIDVÖRUN!
Fjarlægðu allt umbúðaefni áður en vélin er notuð. Annars gætu orðið alvarlegar skemmdir á því.
1
- Fjarlægðu pappakassa og pappaumbúðir.
- Fjarlægðu plastumbúðirnar.
- Fjarlægðu bútana úr frauðplasti úr botninum.
- Lyftu tækinu og fjarlægðu grunnumbúðirnar.
- Fjarlægðu limbandið sem heldur hurðinni lokaðri.
- Fjarlægðu aukahlutina úr efri körfunni.
- Fjarlægðu frauðplastsumbúðirnar úr körfunum.
- Fjarlægðu stálvírinn sem heldur úðunarörmunum í stað.
- Fjarlægðu kapalbindinguna sem heldur rafmagnssnúrunni, frárennslisslöngunni og vatnsslöngunni.
- Sannreyndu að úðunararmarnir og körfurnar hreyfist óhindrað.

VIDVÖRUN!
Haldið öllu umbúðaefni vel fjarri börnum. Það er hætta á köfnun!
Tengdu kaldavatnsslönguna við krana

VARÚÐ!
- Ef vatnslagnirnar hafa ekki verið notaðar í lengri tíma skal láta vatnið renna til að það verði örugglega tært. Þessi varúðarráðstöfun er nauðsynleg til að koma í veg fyrir hættuna á að vatnsinntakið stíflist og skemmi uppþvottavélina.
- Ef vaskurinn er með þrýstistút sem fær vatn úr slöngu sem er tengd við sömu vatnsleiðslu og uppþvottavélin þá gæti slangan sprungið. Ef vaskurinn er með einn slíkan er ráðlagt að slangan sé aftengd og tappi settur í gatið.
1
- Lyftu slöngunni að krananum.
- Skrúfaðu tengið á skrúfgang kranans.
Tengdu öryggisinntaksslönguna við krana
Notaðu öryggisinntaksslönguna til að tryggja að vatnsflæði stöðvist ef slangan er skemmd. Slangan er gerð úr tvöföldu lagi og loftrýmið á milli innri og ytri riffluðu slöngunnar fyllist með vatni ef slangan skemmist.

VARÚD!
- Ef vatnslagnirnar hafa ekki verið notaðar í lengri tíma skal láta vatnið renna til að það verði örugglega tært. Pessi varúðarráðstöfun er nauðsynleg til að koma í veg fyrir hættuna á að vatnsinntakið stíflist og skemmi uppbvottavélina.
- Ef vaskurinn pinn er með brýstistút sem fær vatn úr slöngu sem er tengd við sömu vatnsleiðslu og uppbvottavélin på gæti slangan sprungið. Ef vaskurinn er með einn síkan er ráðlagt að slangan sé aftengd og tappi settur í gatið.
1
- Lyftu slöngunni að krananum.
- Skrúfaðu tengið á skrúfgang kranans.
Tengdu við ytra frárennsli

VARÚD!
- Forðastu að frárennslisslangan bogni, beyglist eða kremjist.
- Dýfðu ekki enda frárennslisslöngunnar í frárennslisvatnið. Ef slangan dýfist í vatn gæti það hamlað frárennslinu og valdið því að frárennslisvatnið renni tilbaka inn í uppbvottavélina.
- Ekki nota framlengingu á frárennslisslöngu sem er lengri en 4 metrar. Annars gæti það haft slæm áhrif á afköst uppbvottavélarinnar.
- Tenging við frárennslisrör verður að vera í minna en 100 cm hæð frá grunni uppbvottavélarinnar. Annars verður að tæma umfram vatn í viðeigandi ílát sem situr neðar en vaskurinn.
Settu frárennslisslönguna í gólfraesi

Tengdu frárennslisslönguna við vask eða frárennslisrör.

Settu frárennslisslönguna í vaskinn.
Notaðu frárennslisslönguhaldarann til að halda slöngunni þannig að hún beinist niður í vaskinn án þess að brot komi á hana.

Rafbúnaður verður að vera uppsettur af fagmönnum.

VIÐVÖRUN!
Fyrir þitt eigið öryggi:
- Notaðu ekki framlengingarsnúru eða millistykki með þessari vöru.
- Ekki skal undir neinum kringumstæðum rjúfa eða fjarlægja jarðtenginguna úr rafmagnssnúrunni.
Rafmagnskröfur
- Skoðaðu merkiplötuna til að athuga málspennuna og tengdu uppþvottavélina við viðeigandi rafmagnsinntak.
- Notaðu öryggi af þeim styrk sem ráðlagt er (10A/13A/16A), öryggi með tímaseinkun eða útsláttarrofa.
- Tengdu við sérstaka rafrás sem er einungis notuð fyrir þetta tæki.
Raftenging
- Tryggðu að spenna og tíðni raftengingarinnar samsvari því sem stendur á merkiplötunni.
- Settu aðeins kló sem er rétt og áreiðanlega jarðtengd í rafmagnsinnstungu.
- Leitaðu til viðurkennds rafvirkja eða þjónustufulltrúa ef þú ert í vafa um hvort tækið sé rétt jarðtengt.
- Ef rafmagnsinnstungan sem tengja þarf tækið við hentar ekki fyrir klóna skal skipta um innstungu með aðstoð viðurkennds rafvirkja.

VIDVÖRUN!
Ekki nota millistykki eða því um líkt þar sem það gæti valdið ofhitnun og eldsvoða.
- Tryggðu að rafmagnstengillinn sé alltaf aðgengilegur eða að rofi sé innbyggður í föstum raflögnum í samræmi við raflagnareglur, þannig að hægt sé að aftengja tækið frá rafveitu.

VIDVÖRUN!
Gakktu úr skugga um að uppþvottavélin sé rétt jarðtengd áður en hún er notuð.
Vélin staðsett

VIDVÖRUN!
• Gætið þess að beygla ekki eða kremja rafmagnssnúruna. - Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila framleiðandans eða sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættu.

VARÚD!
- Tækið er einungis ætlað fyrir: Notkun innandyra.
- Setja verður tækið upp á hreinu sléttu og traustu undirlagi og hallastilla það með stillanlegum fótum.

ATHUGADU!
- Uppþvottavélin er búin vatnsinntaki og frárennslisslöngu sem hægt er að staðsetja annað hvort á hægri eða vinstri hlið til auðvelda rétta uppsetningu.
- Eftir því hvar rafmagnsinnstungan er gæti þurft að gera gat á hlið skápsins sem er næstur.
- Ef færa þarf uppþvottavélina skal reyna að hafa hana í lóðréttri stöðu. Ef það er alveg nauðsynlegt má leggja hana á bakið.

- Setjið uppþvottavélina upp í skáp í uppgefnum mælivíddum. ATHUGIÐ! Bilið á milli efsta hluta uppþvottavélarinnar og skápsins, og milli brúnar ytri hurðar og brúnar skápsins má ekki vera minna en 5 mm.
- Ef uppþvottavélin er sett upp í hornskáp skal tryggja að það sé nægilegt pláss í kringum hurð uppþvottavélar þegar hún er að fullu opin.

Uppsetning viðarhurðarpils

ATHUGIÐ!
Mögulegar stærðir fyrir viðarhurðarpil: Hæð: 65,5-72 cm, breidd: 59 cm, þykkt 2 cm og hámarksþyngd 7 kg.


- Festu handfangið við viðarhurðarpilið með hurðarfestingunum 2 og skrúfunum 2.
- Festu uppsetningarfestingarnar 2 á viðarhurðarpilið með skrúfunum 8.
- Settu festingar handfangsins og uppsetningarfestingarnar í raufarnar á hurð uppþvottavélarinnar. Ýttu pilinu varlega niður á við og gakktu úr skugga um að festingar handfangsins og uppsetningarfestingarnar séu í stað.
- Fjarlægðu stuttu skrúfurnar 4.
- Festu viðarhurðarpilið við hurð uppþvottavélarinnar með löngu skrúfunum 4.
Settu rakapéttingarræmuna á
ATHUGADU! Vertu viss um að rakapéttingarræman flútti við brún vinnuborðsins.
Skipt yfir í lengri fætur
Hægt er að skipta út foruppsettum 90 mm löngum fótum með 110 mm löngu fótunum ef þarf.
- Leggðu uppþvottavélina varlega á bakið.
- Skrúfaðu 90 mm löngu fæturna tvo af.
- Skrúfaðu 90 mm langa afturfótinn af með því að snúa skrúfunni með stjörnuskrúfjárni.
- Skrúfaðu 110 mm löngu framfæturna tvo á uppþvottavélina.
- Skrúfaðu 110 mm langa afturfótinn á uppþvottavélina með því að snúa skrúfunni með stjörnuskrúfjárni. VARÚD! Fæturnir mega ekki skaga lengra fram en 100 mm.
- Lyftu uppþvottavélinni í upprétta stöðu.
Hallastilltu vélina
Hallastilltu uppþvottavélina með því að stilla hæð framfótanna og afturfótanna hvora fyrir sig.
Athugaðu hvort einhver fótur snertir ekki gólfið. Ef einhver fótur snertir ekki gólfið: Skrúfaðu fótinn út þar til hann kemst í snertingu við gólfið.
- Til að stilla afturfótinn, snúðu skrúfunni með stjörnuskrúfjárni.
- Til að stilla framfæturna, snúðu skrúfunni með skrúfjárni með flötum haus.

Þú getur líka snúið framfótunum með höndunum.
ATHUGIÐ! Hámarksstillingarhæð fótanna er 60 mm með lengri fótunum.
- Notaðu hallamæli til að athuga hvort uppþvottavélin sé fullkomlega lárétt og stilltu fæturna aftur ef þarf. VARÚÐ! Uppþvottavélin má ekki halla um meira en 2°.
Hurðargormarnir eru stilltir í verksmiðjunni að réttri spennu fyrir ytri hurðina. Ef viðarhurðarþil er áfest þarf að stilla spennu hurðargormanna.

- Snúðu stilliskrúfunni til að herða eða losa gormspennuna.
ATHUGIÐ! Gormspenna hurðar er rétt þegar hurðin helst lárétt í fullopinni stöðu og hurðin lokast ef litlu afli er beitt með fingri.
Festu vélina í stað - fyrir venjuleg vinnuborð

VARÚÐ!
Ekki gera þetta ef þú ert með vinnuborð úr marmara eða graníti.

- Settu stuðningsfestingarnar 2 í raufarnar 2.
- Ýttu uppþvottavélinni í ráðlagða stöðu í skápnum.
- Notaðu 2 viðarskrúfur til að festa uppþvottavélina við vinnuborðið.
Festu vélina í stað - fyrir vinnuborð úr marmara eða graníti
- Fjarlægðu skrúfuhlífarnar 2.
- Notaðu tréskrúfurnar 2 til að festa uppþvottavélina við aðlæga skápa.
- Settu skrúfuhlífarnar 2 aftur í.
TÆKNILÝSINGAR
Tæknilýsing
| Gerðarkóði Sjá hluti "Finndu gerðarkóðann", síða 304 | |
| Hæð 815-875 mm | |
| Breidd 598 mm | |
| Dýpt (hurð lokuð) 550 mm | |
| Dýpt (hurð opnuð 90 °) 1150 mm | |
| Pyngd 35,0 kg | |
| Magn 12 borðbúnaðir | |
| Raftenging 220-240 V, 50 Hz | |
| Hámarksstraumur 10 A | |
| Málafí 1760-2100 W | |
| Venjulegur vatnsþrýstingur | 0,04 MPa ~ 1 MPa |
Orkusparnaður
Þú getur fundið upplýsingar um orkusparnað þessa tækis í EPREL, evrópsku vöruskránni fyrir orkumerkingar. Farðu á vefsíðu EPREL og notaðu gerðarauðkennið til að finna upplýsingarnar. Gerðarauðkennið má finna á orkumerkingunni sem fylgir tækinu.
EPREL vefsíða: https://eprel.ec.europa.eu/

ENERG

SUPPLIER'S NAME
MODEL IDENTIFIER
Stærðir (mm)
Notkunargildi
Raunveruleg gildi fyrir kerfi geta verið frábrugðin þeim gildum sem sýnd eru hér. Gildin sem gefin eru upp fyrir kerfi önnur en sparnaðarkerfið eru aðeins til hliðsjónar.
| Kerfi Timalengd kerfis (klukkustundir:mínútur) | Orkunotkun (kWh) Vatnsnotkun (l) | ||
| 90 mín 1:30 0,839 11,5 | |||
| Sparnaður 3:18 0,824 11,0 | |||
| Gler 2:00 0,902 15,2 | |||
| Öflugt 3:25 1,549 18,7 | |||
| Hratt 0:30 0,652 11,0 | |||
| Alhliða 2:55 1,239 18,7 | |||
Þetta tæki uppfyllir viðeigandi ESB tilskipanir og reglugerðir og ber á sér CE-merkið. Ef hún fylgir ekki tækinu er hægt að fá samræmisyfirlýsingu ESB samkvæmt beiðni.
- Nothæfi tækisins hefur verið prófað í samræmi við staðal EN 50242 fyrir uppþvottavélar.
- Varðandi ESB reglugerð 2019/2022, áætlun notuð fyrir sambærileikaprófanir samkvæmt EN 50242: Sparnaður; aðrar stillingar:
- Staðsetning efri körfu: Neðri staða;
- Stilling gljáa: 6;
- Stilling mýkingarefnis: H3.