UPPLEVA 48 - Téléviseur IKEA - Ókeypis notendahandbók
Finndu handbók tækisins ókeypis UPPLEVA 48 IKEA á PDF sniði.
Spurningar notenda um UPPLEVA 48 IKEA
0 spurning um þetta tæki. Svaraðu þeim sem þú þekkir eða spurðu þína.
Spyrja nýrrar spurningar um þetta tæki
Sæktu leiðbeiningar fyrir þitt Téléviseur á PDF sniði ókeypis! Finndu handbókina þína UPPLEVA 48 - IKEA og taktu rafræna tækið þitt aftur í hendurnar. Á þessari síðu eru birtar allar skjöl sem eru nauðsynleg til að nota tækið þitt. UPPLEVA 48 vörumerkisins IKEA.
NOTENDAHANDBÓK UPPLEVA 48 IKEA
Sjónvarpinu komið fyrir....91
Umhirða....91
Leiðarvísir 91
Förgun á gömlu vörunni pinni og rafhlöðum 92
Tilkynning um höfundarrétt 93
Tilkynning um skrásett vörumerki....93
2 Yfirlit....94
a. Innihald kassans....94
b. Sjónvarp 96
c. Fjarstýring 98
3 Undirbúningur.... 100
a. Fjarstýringin undirbúin 100
4 Tenging....101
a. Tenging á loftneti / gervihnattadiski / myndlykli / CI+/CAM-korti ...... 101
b. Tenging á hljóðkerfi 105
I. UPPLEVA hljóðkerfi....105
II. Önnur hljóðkerfi 105
c. Tenging á leikjatölvu eða DVD spilara 105
d. Tenging á tölvu 106
e. Tenging á myndavél.... 106
f. Tenging á USB 107
g. Tenging á heyrnartólum 107
6 Notkun á sjónvarpi.... 111
a. Kveikt og slökkt á sjónvarpinu....111
b. Valmyndir....111
c. Aðalvalmynd 111
I. Notkun á snjallsjónvarpinu 111
II. Notkun á smáforritum í snjallsjónvarpinu 112
III. Horfa og hlusta á efni....112
IV. Deila og skoða (Share&see).... 113
V. Velja tengi 113
d. Smáforrit (app) fyrir snjallsímann eða spjaldtölvuna.... 113
e. Time shift 113
f. Upptaka (PVR) 114
g. Skrá áminningar og upptökur 115
h. Skipulagning dagskrár (EPG).... 115
i. HbbTV....116
j. Horft á sjónvarp í prívídd.... 116
k. Upplýsingar um stafrænar sjónvarpsstöðvar 117
7 Valmöguleikar og stillingar 117
a. Stöðvaleit....117 b. Uppsetning á uppáhaldsstöðvum.... 118 c. Tenging við netkerfi heimilisins og internetið 118 d. Nefna tengingar 120 e. Velja land 120 f. Velja tungumál valmyndar....120 g. Tungumál textavarps 120 h. Textun 120 i. Hljóðlýsing 121 j. Stilla tímann 121 k. T-link 121 I. Hljóðstillingar fyrir tæki sem tengd eru SPDIF tenginu 121 m. DivX myndskrár....122 n. Orkusparnaður 122 o. Uppfæra sjónvarpsstöðvar 122 p. Lykilorð 122 q. Barnalæsing....122 r. Stilla á Store eða Home 123 s. Uppfærsla á hugbúnaði 123 t. Common interface (CI) pjónusta 123 u. Núllstilla á upphaflegar stillingar 123
8 Tæknilegar upplýsingar.... 123
9 Vandamál.... 124
10 Hafðu samband við IKEA.... 125
11 SAMRÆMISYFIRLYSING ÞÝÐINGAR 126
1 Öryggi og mikilvægar upplýsingar

VARÚD!
Einungis fagmanneskja má opna sjónvarpið.
Notkun
Þetta sjónvarp er aðeins ætlað til heimilisnota og það ætti ekki að nota í öðrum tilgangi, eins og í atvinnu- eða auglýsingaskyni.
Ef snúran á vörunni skemmist þarf framleiðandi að annast skipti á henni eða þjónustuaðili sem samþykktur er af framleiðanda eða annar viðeigandi fagaðili, til að forðast hættu.
Tengið heyrnartól með hljóðið lágt stillt og hækkið svo að vild. Ef heyrnartólin eru notuð í langan tíma með hljóðið hátt stillt getur það haft skaðleg áhrif á heyrnina.
Sjónvarpsskjárinn er úr gleri. Hann getur því brotnað ef sjónvarpið dettur í gólfið eða fær á sig högg.
Sjónvarpsskjárinn er hátæknivara sem veitir mikil myndgæði. Stundum geta nokkrir óvirkir pixlar birst á skjánum sem blár, grænn eða rauður punktur. Þetta hefur ekki áhrif á afköst sjónvarpsins þíns.
Tenging
Gangið úr skugga um að rafspennan á heimilinu sé sú sama og gefin er upp á miða aftan á sjónvarpinu. Ef notað er millistykki svo hægt sé að rjúfa samband sjónvarpsins við straum, þarf að vera gott aðgengi að því.
Taka þarf sjónvarpið úr sambandi við rafmagn til að slökkva alveg á því.
Ef ekki á að horfa á sjónvarpið í lengri tíma þarf að taka það úr sambandi.
Takið loftnet og sjónvarp úr sambandi ef úti eru þrumur og eldingar.
Takið sjónvarpið strax úr sambandi ef það gefur frá sér brunalykt eða reyk. Það má aldrei opna sjónvarpið því það skapar hættu á raflosti.
Umhverfi
Íhlutir sjónvarpsins eru viðkvæmir fyrir hita. Umhverfishiti ætti ekki að fara yfir 35°C. Gætið þess að hylja ekki loftristarnar á hliðum og baki sjónvarpsins. Tryggið góða loftræstingu með því að láta ekkert liggja þétt upp að sjónvarpinu. Staðsetjið sjónvarpið fjarri öllum hitagjöfum (eldi, eldstæði, beinu sólarljósi o.s.frv.) og heimilistækjum sem gefa frá sér segul- eða rafbylgjur. Geymið aldrei fjarstýringuna eða rafhlöðurnar nærri opnum eldi eða öðrum hitagjöfum, þ.m.t. beinu sólarljósi. Notið sjónvarpið aldrei utandyra.
Haldið alltaf kertum og öðrum opnum loga fjarri þessari vöru til að koma í veg fyrir eldsvoða.
Rakastig í herbergjum þar sem sjónvarpið stendur ætti ekki að vera meira en 80%. Ef sjónvarpið er fært af köldum stað yfir í heitara umhverfi, getur raki þéttst á skjánum (og á hlutum innan í sjónvarpinu). Leyfið rakanum að gufa upp áður en kveikt er aftur á sjónvarpinu.
Skiljið eftir a.m.k. 10 cm rými í kringum sjónvarpið til að tryggja næga loftræstingu. Ekki má hindra loftræstingu með því að hylja loftræstiop með dagblöðum, dúkum, gluggatjöldum o.þ.h.
Gætið þess að vökvi hellist hvorki né slettist á sjónvarpið. Ílát sem innihalda vökva, t.d. blómavasar, eiga ekki að standa nærri sjónvarpinu.
Ef smáhlutur eða vökvi kemst inn í sjónvarpið þarf að taka það strax úr sambandi og láta fagmann skoða það. Opnið aldrei sjónvarpið því það getur skapað hættu og skemmt það.
Sjónvarpinu komið fyrir
Til að koma í veg fyrir slys, þarf að festa sjónvarpið tryggilega á sjónvarpsbekkinn/húsgagn/vegginn í samræmi við samsetningarleiðbeiningar.
Sjónvarpið fest á vegg
Athugið: Tvær manneskjur þurfa að annast uppsetningu.
Til að tryggja örugga uppsetningu þarf að fylgja eftirfarandi öryggisleiðbeiningum.
— Gangið úr skugga um að veggurinn þoli þyngd sjónvarpstækisins og veggfestingarinnar. — Fylgið uppsetningarleiðbeiningunum sem fylgja veggfestingunni. — Gætið þess að nota aðeins skrúfur sem henta í vegginn. — Gangið frá öllum snúrum þannig að ekki sé hætta á að einhver flækist í þeim eða detti um þær.
Sjónvarpinu komið fyrir á borði eða annarri undirstöðu
Áður en sjónvarpið er sett upp þarf að tryggja að undirstaðan þoli þyngdina af því. Setjið sjónvarpið ekki á óstöðuga undirstöðu eða nærri brúnum á húsgögnum og gætið þess að sjónvarpsskjárinn nái ekki fram fyrir brún þess sem sjónvarpið stendur á. Stillið sjónvarpinu upp nærri vegg svo það geti ekki dottið aftur á bak.
Umhirða
Notið raka tusku til að þrífa skjáinn og mjúka tusku og milt hreinsiefni til að þrífa aðra hluti sjónvarpsins.
Notkun á sterkum eða hrjúfum hreinsiefnum eða efnum sem innihalda alkóhól getur skemmt skjáinn.
Rykhreinsið loftristarnar aftan á sjónvarpinu reglulega. Leysiefni, hrjúf hreinsiefni eða efni sem innihalda alkóhól geta skemmt sjónvarpið.
Leiðarvísir
Eiginleikarnir sem lýst er í þessum leiðarvísi eru flestum útgáfum sjónvarpsins sameiginlegir. Sumir þeirra gætu þó ekki átt við um þitt sjónvarp og/eða sjónvarpið þitt getur verið með eiginleika sem ekki eru teknir fram í þessum leiðarvísi. Teikningarnar í leiðarvísinum gætu verið frábrugðnar sjálfri vörunni. Styðjist alltaf við vöruna sjálfa. Hönnun og eiginleikum getur verið breytt án fyrirvara.
Förgun á gömlu vörunni pinni og rafhlöðum

Sorptunnutáknið sem búið er að krossa yfir táknar að varan eigi ekki heima með almennu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila á endurvinnslustöð og farga í samræmi við gildandi reglur á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda ekki vörum með þessu merki með almennu heimilissorpi, aðstoðar þú við að draga úr magni úrgangs sem sendur er í brennslu eða notaður í landfyllingu og lágmarka hættuna á hugsanlegum neikvæðum áhrifum á heilsu fólks og umhverfið. Nánari upplýsingar má nálgast í IKEA versluninni.

Pessi vara er búin fjölföldunarvörn sem varin er með bandarískum sérleyfum, auk annarra hugverka Rovi Corporation. Óheimilt er að gera eftirlíkingar af vörunni eða taka hana í sundur.
Tilkynning um skrásett vörumerki

HIGH-DEFINITION MULTIMEDIA INTERFACE
HDMI og HDMI High-Definition Multimedia Interface, auk HDMI vörumerkisins eru vörumerki eða skrásett vörumerki HDMI Licensing LLC í Bandaríkjunum og öðrum löndum.

DOLBY. DIGITAL
Framleitt samkvæmt leyfi frá Dolby Laboratories. Dolby og double-D táknið eru skrásett vörumerki Dolby Laboratories.

Bluetooth®
Bluetooth orðmerkið og vörumerkið eru skrásett vörumerki og eign Bluetooth SIG, Inc. og öll notkun IKEA á þessum merkjum er samningsbundin. Önnur skrásett vörumerki og vöruheiti eru eign hvers fyrirtækis fyrir sig.
DIVX+ HD
DivX®, DivX Certified®, DivX Plus® HD og tengd vörumerki eru skrásett vörumerki Rovi Corporation eða dótturfélaga og eru notuð samkvæmt leyfi.
SRS TruSurround HD
er skrásett vörumerki SRS Labs, Inc. TruSurround HD tækni er notuð samkvæmt leyfi frá SRS Labs, Inc. SRS TruSurround HD™ skapar djúpa og áhrifamikla hljóðupplifun með surround hljóði úr tveimur hátölurum, með hljómmiklum bassa, nákvæmni og skýrleika.
2 Yfirlit
Innihald kassans
| Nr. Hlutur Magn | |
| 1 Sjónvarp 1x | |
| 2 Fjarstýring 1x | |
| 3 AAA rafhlöður 2x | |
| 4 Rafmagnssnúra, 1,8m | 1x |
| 5 CMP millistykki, (YPbPr) | 1x |
| 6 SCART millistykki 1x | |
| 7 Upplýsingar um orkunotkun | 1x |
| Nr. | Hlutur Magn | |
| 8 M5x | 15 skrúfur með skinnum | 4x |
| 9 M6x | 20 skrúfur 4x | |
| 10 Leiðarvísír með sjónvarpi | 1x | |
| 11 Leiðarvísír 1x | ||
| 12 Audio millistykki 1x | ||
| 13 Prívíddargleraugu 2x | ||
| 14 Leiðarvísír með gleraugum | 1x | |

Sjónvarp
| Nr. | Tegund Tilgangur | |
| 1 | SCART Til að tengja | tækimeð SCART tengi. |
| 2 | SCARTmillistykki | Til að tengjataeki með SCARTtengi með SCARTmillistykkinu. |
| 3 | HDMI 1 Til að tengja | mestnotaða HDMI tækið, til dæmis myndlykil. |
| 4 | HDMI 2 Til að tengja | leikjatölvu,stafræna myndavél eða annað HDMI tæki. |
| 5 | HDMI 3 (ARC) Til | að tengja HDMI tæki. Við mælum með að pú tengir UPPLEVA hljóðkerfið hér, eða annað hljóðkerfi. |
| 6 | USB 1, 2 og 3 Til að | tengjaUSB tæki. Til dæmis mús eðalyklaborð til að nota með vafra í snjallsjónvarpinu eða USB minnislykil. |
| 7 | CI rauf Til að stinga | CI+/CAM kortinu í. |
| No. | Tegund Tilgangur | |
| 8 | Loftnets-/kapaltengi | Til að tengja loftnet eða kapal. |
| 9 | Gervihnatta-tengi | Til að tengja gervihnött. |
| 10 | Til að tengja | heyrnartólin pín. |
| 11 | LAN tengi Til að tengja | netkerfið pitt (ethernet). |
| 12 | Component input (CMP) tengi | Til að tengja tæki sem bjóða upp á slíkt. |
| 13 | SPDIF út Til að tengja | heimabiókerfi eða hljóðkerfi. |
| 14 | CMP(YPbPr) millistykki | Til að tengja tæki með Component video adapter. |
| 15 | AUDIO in millistykki | Til að tengja tæki með Audio millistykki. |
| 16 | Stjórnhappar fyrir sjónvarp | Kveikja og slökkva á sjónvarpi |
Fjarstýring
Flestar aðgerðir sjónvarpsins þíns er að finna í valmyndum sem birtast á skjánum. Með fjarstýringunni sem fylgir sjónvarpinu er hægt að fletta í valmyndunum.

| Nr. Hnappur Aðgerð | ||
| 1 Til aðlkveikja á | sjónvarpinu / setjaí biðham. | |
| 2 | Litahnappar | Til að veljaaðgerð eða síður íTextavarpi. Rauðahnappinn má líkanaota fyrir HbbTVaðgerðir. |
| 3 Til að sýna | upphafsvalmynd. | |
| 4 | MENU | Til að fara inn íaðalvalmynd ogstillingar.Til að fara til bakaí fyrri valmynd. |
| 5 | OPTION Flýtiaðgangur aðaðalvalmyndinni.Til að sýna síðurTextavarpsins ámismunandi formi. | |
| 6 | OK | Til að staðfesta. |
| 7 | < / > | Til að fletta ívalmyndum, stillaaðgerðir og breyta.Til að skipta ínæstu mynd, lageða myndband ígegnum USB. |
| 8 | ^ / ∨ | Til að fletta ívalmyndum ogvelja aðgerðir. |
| 9 | BACK | Til að fara til bakaí fyrri valmynd. |
| 10 INFO Til að sýna | upplýsingar umdagskrá, pegarþær eru í boði. | |
| 11 | + VOL - | Til að stillahljóðstyrkinn. |
| 12 | + CH - | Til að skipta umstöð. |
| Nr. | Hnappur Aðgerð | |
| 13 | Til að taka hljóðið | af og setja á aftur. |
| 14 | Hra spóla aftur á | bak. |
| 15 | Hra spóla áfram. | |
| 16 | Til að kveikja. | |
| 17 | REC | Til að taka upp. |
| 18 | Til að setja á pásu. | |
| 19 | Til að stoppa. | |
| 20 | 0-9 Til að slá inn | stöðvar eða tölur. |
| 21 | EXIT Til að fara út úr | snjallsjónvarpi. |
| 22 | FORMAT Til að velja | myndsnið.Athugið: Viðmælum með aðnotað sé full screen sniðið. Notið ekki snið með svörtum kanti til hliðar við myndina (eins og 4:3) í langan tíma í einu þar sem það getur valdið varanlegum skemmdum á sjónvarpsskjánum. |
| 23 | SMART Til að sýna | heimasíðusnjallsjónvarpsins. |
| 24 | LIST Til að sjá lista | yfirsjónvarpsstöðvar. |
| 25 | TEXT Til að kveikja | og slökkva á Textavarpinu. |
| 26 | GUIDE Til | að kveikja og slökkva á EPG (aðeins í boði fyrir stafrænar útsendingar). |
Ef rafhlöðurnar í fjarstýringunni tæmast getur þú notað stjórntakkana aftan á sjónvarpinu. Virkni þeirra er eftirfarandi:
Fyrir 40" sjónvörp:
| Aðgerð Tákn | ||
| ^ | CH+ | ^ |
| √ | CH- | √ |
| > | VOL + | > |
| < | VOL - | < |
| ∅ | ∅ | ∅ |

Settu tvær LR03 (AAA) rafhlöður í fjarstýringuna og snúðu pólunum (+/-) í samræmi við merkingar.

— Ef ekki á að nota fjarstýringuna í einhvern tíma ætti að taka úr henni rafhlöðurnar. — Blandið ekki saman nýjum og gömlum rafhlöðum. — Haldið rafhlöðum fjarri hita, sólarljósi og eldi.
4 Tenging
Tenging á loftneti / gervihnattadiski / myndlykli / CI+/CAM korti
Fylgdu viðeigandi leiðbeiningum eftir því hvers konar sjónvarpsmóttaka er notuð (loftnet/gervihnattadiskur/myndlykill/CI+/CAM kort).
Athugið: Staðsetning tengja getur verið mismunandi milli sjónvarpa.
Loftnet
Læstar stafrænar sjónvarpsstöðvar er hægt að opna með CI korti sem þjónustuaðili útvegar.
Með kortinu er hægt að nýta sér þjónustu áskriftarstöðva, en misjafnt er eftir löndum hvaða þjónusta er í boði. Hafðu samband við þjónustuaðila til að fá nánari upplýsingar um þjónustu og skilmála.
CI+/CAM kort

VARÚD: Slökkvið á sjónvarpinu áður en kortinu er stungið í. Gætið þess að fylgja leiðbeiningunum hér að neðan. Ef kortið er sett í á rangan hátt getur það skaðað bæði kortið og sjónvarpið þitt.
- Fylgdu leiðbeiningum með CI kortinu og settu það varlega í CI raufina á sjónvarpinu.
- Ýttu því varlega inn, eins langt og það kemst.
- Þegar kveikt er á sjónvarpinu, virkjast kortið. Það gæti tekið nokkrar mínútur.
Athugið: Fjarlægið kortið ekki úr raufinni. Ef kortið er fjarlægt, slokknar á stafrænum stöðvum sem því tengjast.

Tenging á hljóðkerfi
UPPLEVA hljóðkerfi
Tengdu UPPLEVA hljóðkerfi við sjónvarpið með HDMI snúru og HDMI ARC innstungunni á sjónvarpinu.

Önnur hljóðkerfi
Ef þú vilt tengja annað hljóðkerfi við sjónvarpið, mælum við með að notaðar séu HDMI eða SPDIF innstungur.
— ARC (Audio Return Channel) virkni fæst aðeins í gegnum HDMI 3 (ARC) tengið. Mælt er með að tengja hljóðkerfið við HDMI ARC tengið til að senda hljóð frá sjónvarpinu í hljóðkerfið í gegnum HDMI snúru.
Tenging á leikjatölvu eða
DVD spilara
Þú getur tengt leikjatölvuna þína eða DVD spilarann með annað hvort HDMI snúru eða SCART tengi. Notið SCART millistykkið til að tengja 48/55" sjónvörpin með SCART tengi.

Ef það er HDMI tengi á tölvunni þinni getur þú tengt hana við sjónvarpið og notað sjónvarpsskjáinn sem aukaskjá fyrir tölvuna.
Athugið:
— Gangið úr skugga um að tölvan sé með réttar skjástillingar. — Til að koma í veg fyrir mögulegar truflanir ætti að nota hágæða HDMI snúru sem er eins stutt og mögulegt er.
Tenging á myndavél
Þú getur tengt stafrænu myndavélina þína með HDMI eða USB snúru til að skoða myndir og myndbönd úr myndavélinni.
Athugið:
— USB tengi eru til að flytja gögn úr USB minnislykli eða öðru með minni. Aðeins er stuðningur við útbúnað með USB 2.0. — Við mælum sterklega með því að öll USB tæki séu tengd beint við sjónvarpið án framlengingarsnúra. Ef framlenging er nauðsynleg, þarf hún að vera eins stutt og mögulegt er og útbúin ferrítkjarna (truflanasíu). — Til að koma í veg fyrir mögulegar truflanir ætti að nota hágæða HDMI snúru sem er eins stutt og mögulegt er.


Þú getur tengt USB tæki við sjónvarpið til að skoða myndir og myndbönd eða hlusta á tónlist.
Athugið:
— USB tengi eru til að flytja gögn úr USB minnislykli eða öðru með minni. Aðeins er stuðningur við útbúnað með USB 2.0. — Við mælum sterklega með því að öll USB tæki séu tengd beint við sjónvarpið án framlengingarsnúra. Ef framlenging er nauðsynleg, þarf hún að vera eins stutt og mögulegt er og útbúin ferrítkjarna (truflanasíu).
Tenging á heyrnartólum
Þú getur tengt heyrnartól við sjónvarpið ef þú vilt nota þau í staðinn fyrir sjónvarpið eða hljóðkerfið til að hlusta á hljóðið.
Athugið:
— Það getur haft skaðleg áhrif á heyrnina að hlusta á tónlist á miklum styrk í heyrnartólum.

Það eru tvær leiðir til að tengja sjónvarpið við netkerfið heima hjá þér og internetið – þráðlaust eða með netkapli. Ef þú kýst frekar að tengja það með netkapli þarf að stinga honum í innstunguna eins og sýnt er á myndinni hér að neðan. Frekari upplýsingar um bæði þráðlausa tengingu og tengingu með kapli er að finna í Kafla 7 - Valmöguleikar og stillingar - Tenging við netkerfi heimilisins og internetið.

5 Uppsetningarhjálpin
Uppsetningarhjálpin fer sjálfkrafa í gang í fyrsta skiptið sem þú kveikir á sjónvarpinu (Sjá mynd 1). Hún leiðir þig í gegnum nauðsynlegar stillingar til að þú getir byrjað að nota sjónvarpið þitt. Ef þú vilt breyta einhverjum stillingum síðar getur þú auðveldlega gert það í gegnum Options eða Setup valmyndirnar. Notaðu ∧ og OK hnappana til að fara á milli og staðfesta stillingar. Fylgdu skrefunum á skjánum með aðstoð vísbendinganna neðst á skjánum. Þú getur alltaf farið til baka í fyrri skref með því að ýta á < Ýttu á EXIT til að fara út úr uppsetningarhjálpinni. Leitaðu upplýsinga í þessum leiðarvísi ef þú þarfnast frekari útskýringa.
Athugið: Ef stöðvaleitin finnur aðeins hliðrænar (analog) stöðvar getur verið að útsendingunni sé um að kenna og þá fellur það ekki undir ábyrgð framleiðanda. Framleiðendur geta ekki verið ábyrgir fyrir skorti á eða slakri útsendingu á sumum svæðum.
- Veldu tungumál með því að nota ∧/∨ Ýttu á OK til að staðfesta og fara í næsta skref.
- Veldu land með því að nota ∧ Ýttu á OK til að staðfesta og fara í næsta skref.
- Veldu Home ef þú vilt horfa á sjónvarpið heima eða veldu Store ef verið er að setja sjónvarpið upp í verslun. Farðu áfram í næsta skref.
- Veldu hvort þú vilt setja upp nettengingu eða ekki með því að nota ✗. Ýttu á OK til að staðfesta og fara í næsta skref.
Fylgdu skrefum 5-7 ef þú velur að setja upp nettengingu. Annars getur þú sleppt þessum skrefum og farið í skref 8.
Athugið: Ef þú velur France eða
Italy, þú þarft að setja upp lykilorð fyrir nettenginguna. Þú ferð þá sjálfkrafa í valmynd til að setja upp lykilorð. Notaðu tölurnar á fjarstýringunni til að velja fjögurra stafa tölu sem lykilorð. (0000 er of einfalt til að nota sem lykilorð.) Stimplaðu það aftur inn til að staðfesta lykilorðið. Þegar þessu er lokið ferðu sjálfkrafa í næsta skref.
- Notaðu ⚠ til að velja á milli þráðlausrar uppsetningar (skref 6), eða tengingar með netkapli (skref 7). Ýttu á OK til að staðfesta og fara í næsta skref.
- Til að setja upp þráðlausa tengingu. Það eru þrjár leiðir til að setja upp þráðlausa tengingu:
a) Scan. Ef þú vilt sjá og velja á milli allra tiltækra tenginga. - Veldu Scan og ýttu á OK til að hefja leit. Sjónvarpið leitar þá að og sýnir öll tiltæk netkerfi. - Flettu á það netkerfi sem þú ætlar að tengjast og smelltu á OK til að tengja sjónvarpið. Ef þú velur læst netkerfi, þarftu að slá inn lykilorð. Ýttu á OK á fjarstýringunni til að fá upp lyklaborð til að geta slegið inn lykilorðið. Veldu OK til að fara út úr lyklaborðinu og staðfestu lykilorðið með því að ýta á >Next. Ef tenging tekst, ýttu þá á >Next aftur til að halda uppsetningunni áfram. Ef tenging tekst ekki þarf að endurtaka þetta skref.
Athugið:
– Sjónvarpið getur vistað netkerfi sem það tengist þannig að það tengist aftur þótt slökkt hafi verið á því.
b) Manual. Ef þú vilt leita að sérstöku netkerfi. - Veldu Manual og ýttu á OK. Þá verður þú beðin/n að setja inn nafn (SSID) beinisins (router) sem þú vilt tengjast. Ef þú velur læst netkerfi, þarftu að slá inn lykilorð. Ýttu á OK á fjarstýringunni til að fá upp lyklaborð til að geta slegið inn lykilorðið með því að nota ✗ ✗ / ◇OK. Veldu OK til að fara út úr lyklaborðinu og staðfestu lykilorðið með því að ýta á >Next. Ef tenging tekst, ýttu þá á >Next aftur til að halda uppsetningunni áfram. Ef tenging tekst ekki þarf að endurtaka þetta skref. c) Auto. Ef netkerfið þitt styður WPS (Wi-Fi Protected Setup). - Þú getur tengst netkerfinu í gegnum PBC (Push Button Configuration) ef
það er PBC takki eða PIN (Personal Identification Number) á beininum þínum. Aðeins ætti að velja PIN ef þú ert með PIN númer fyrir beininn þinn. WPS stillir sjálfkrafa SSID og WPA lykilinn hvort sem er valið.
- Veldu Auto og ýttu á OK.
- PBC: Veldu PBC og ýttu á OK til að opna. Ýttu á PBC takkann á beininum þínum innan tveggja mínútna. Ýttu aftur á OK á fjarstýringunni. Sjónvarpið nær þá í öll nauðsynleg gildi til að stilla inn netkerfið og tengist sjálfkrafa.
- PIN: Veldu PIN og ýttu á OK til að opna. Sláðu inn PIN númer beinisins. Vertu viss um að númerið sé sett upp í netkerfinu. (Leitaðu upplýsinga í leiðbeiningum fyrir beininn.) Ýttu aftur á OK á fjarstýringunni til að koma tengingunni á.
- Til að setja upp tengingu í gegnum netkapal (wired).
Þú getur stillt Address type á Auto ef þú vilt að sjónvarpið finni sjálfkrafa og setji inn nauðsynlega IP tölu, eða Manual ef þú vilt setja hana inn handvirkt. Notaðu ∧ til að fara á milli reita og setja inn IP address, Subnet mask, Default gateway, Primary DNS og Secondary DNS. Notaðu √> til að fara í hverja röð svo þú getir sett inn réttar tölur. Ýttu á OK til að fara aftur í töfluna og nota ∧ til að velja aðra röð. Notaðu tölurnar á fjarstýringunni til að stimpla tölurnar inn. Þegar búið er að stimpla allt inn þarf að ýta á OK til að halda áfram. Ef tenging tekst, ýttu þá á >Next aftur til að halda uppsetningunni áfram. Ef tenging tekst ekki þarf að endurtaka þetta skref.
Nú er kominn tími til að stilla inn sjónvarpsstöðvarnar. Ef þú vilt gera það síðar getur þú valið Skip scan í stað Scan. Þá getur þú stillt sjónvarpsstöðvarnar inn síðar í gegnum valmyndina (Sjá Kafla 7 - Valmöguleikar og stillingar - Stöðvaleit).
- Ýttu á ⚠ til að velja hvernig þú vilt taka á móti útsendingu (Tuner mode).
Antenna eða Cable eða Satellite.
(Athugið: Satellite valmöguleikinn er ekki fáanlegur í öllum sjónvörpunum.) Fylgdu a), b) eða c) hér fyrir neðan, í samræmi við hvernig tekið er á móti sjónvarpsútsendingu.
a) Ef þú valdir Antenna.
Ýttu á OK til að opna.
Ýttu á 🔊 til að velja Digital & Analogue eða Digital eða Analogue, ýttu svo á OK.
Ýttu á ✗ til að velja Scan, ýttu svo á OK til að hefja sjálfvirka leit að öllum stafrænum (DVB-T) og/eða hliðrænum (analog) stöðvum.
Ýttu á OK til að opna.
Ýttu á ✗ til að velja Digital & Analogue eða Digital eða Analogue, ýttu svo á OK. Þar næst:
Ýttu á ✘ til að velja Scan, ýttu svo á OK.
Ýttu á </> til að velja tegund leitar (scan mode), ef sá möguleiki er fyrir hendi (Full eða Advanced).
Ef þú velur Full, ýttu þá á OK til að hefja sjálfvirka leit að öllum stafrænum (DVB-C) og/eða hliðrænum (analog) stöðvum.
Ef þú velur Advanced, þarftu að nota tölurnar á fjarstýringunni til að stilla gildi fyrir Frequency, Symbol rate og Network ID, og nota ◄ ► til að velja Modulation stillingu; ýttu svo á OK til að hefja leit að öllum stafrænum (DVB-C) og/eða hliðrænum stöðvum.
Ef þú velur Digital, ýttu þá á OK til að opna og fylgdu svo sömu skrefum og fyrir Digital & Analogue hér að ofan, til að leita að öllum stafrænum (DVB-C) stöðvum.
Ef þú velur Analogue, ýttu þá á OK til að opna, ýttu á 🔊 til að velja Scan, ýttu svo á OK til að hefja leit að öllum hliðrænum (analog) stöðvum.
c) Ef þú valdir Satellite.
Ýttu á OK til að opna.
Ýttu á ▲ til að velja þjónustuaðila og ýttu á OK.
Ýttu á ✗ til að velja gervihnött, ýttu svo á OK til að stilla upplýsingar fyrir gervihnöttinn. Ýttu á OK til að fara til baka þegar búið er að setja inn stillingar.
Ýttu á > til að hefja leit.
Athugið: Til að koma í veg fyrir að ferlið við innstillingu sjónvarpsstöðva sé ekki truflað þarf að bíða eftir skilaboðum um að uppsetningu sé lokið.
6 Notkun á sjónvarpinu
Kveikt og slökkt á sjónvarpinu
- Þegar stungið er í samband kviknar sjálfkrafa á sjónvarpinu eða það fer í biðham (standby). Rautt gaumljós framan á sjónvarpinu gefur til kynna að tækið sé í biðham. Ef sjónvarpið er í biðham þarf að ýta á ⏻ hnappinn á fjarstýringunni til að kveikja á því.
- Til að setja sjónvarpið í biðham þarf að ýta á ⏻ hnappinn á fjarstýringunni. Þá er enn kveikt á sjónvarpinu en það notar litla orku.
- Til að slökkva alveg á sjónvarpinu þarf að taka það úr sambandi.

Valmyndir
- Ýttu á MENU til að fá upp aðalvalmyndina. (Samanber mynd 3.)
- Ýttu á 〈 til að velja og ýttu svo á OK til að opna undirvalmynd.
- Í undirvalmyndum þarf að nota ∧ til að velja á milli valmöguleika og nota </> til að stilla aðgerðir eða breyta. Notaðu OK til að virkja stillingu eða til að opna viðeigandi undirvalmynd.
- Ýttu á MENU til að fara til baka í fyrri valmynd.
- Ýttu á MENU til að loka valmyndinni. Athugið: Sum útsendingarkerfi (signal sources) bjóða ekki upp á alla valmöguleika.
Aðalvalmynd
Aðalvalmyndin er lykillinn að sjónvarpinu þínu. Hér getur þú valið á milli þess að horfa á sjónvarp, nota snjallsjónvarpið eða fengið aðgang að öðru efni og tengdum viðtækjum. Þú kemst alltaf aftur á Aðalvalmyndina með því að ýta á á fjarstýringunni, nema ef þú ert að nota snjallsjónvarpið. Þá þarft þú að ýta á EXIT til að fara út úr snjallsjónvarpinu og aftur á aðalvalmynd. Notaðu í>til að fara á milli valmöguleika og ýttu svo á OK til að velja.
Notkun á snjallsjónvarpinu
SMART TV gerir þér kleift að tengjast internetinu og fá aðgang að ýmissi gagnvirkri þjónustu, horfa á kvikmyndir og hlusta á tónlist á netinu í sjónvarpinu þínu. Það krefst internettengingar, annað hvort þráðlausrar eða í gegnum netkapal.
Athugið:
— Það þarf að tengjast netinu áður en hægt er að nota snjallsjónvarpið. — Hæg svörun og/eða truflanir geta átt sér stað, styrkur internettengingarinnar stjórnar því. — Ef upp koma vandamál tengd forriti eða netinnihaldi þarf að leita aðstoðar hjá þeim sem hefur yfir innihaldinu að ráða (efnisveitum). — Aðstæður efnisveitanna geta orðið til þess að uppfærslur á forritum, eða forritin sjálf, hætta. — Reglugerðir í sumum löndum gera það að verkum að þjónusta sumra forritanna er takmörkuð eða ekki fáanleg.
Notkun á smáforritum í snjallsjónvarpinu
- Ýttu á til að fara á Aðalvalmynd, veldu SMART TV og Ýttu á OK til að opna snjallsjónvarpsgáttina.
- Notaðu örvatakkana til að velja forritið sem þú vilt nota og ýttu á OK til að opna það.
- Ýttu á SMART á fjarstýringunni til að opna snjallsjónvarpsgáttina aftur.
- Ýttu á EXIT á fjarstýringunni til að loka snjallsjónvarpsgáttinni. Flýtiaðgangur að snjallsjónvarpinu er í gegnum SMART hnappinn á fjarstýringunni. Þá ferðu beint inn í snjallsjónvarpsgáttina þar sem þú notar örvahnappana og OK til að opna forrit.
Internetvafri
Þú getur vafrað á netinu í gegnum Internetforritið í snjallsjónvarpsgáttinni. Þú getur líka opnað vafrann með því að ýta á græna takkann á meðan þú ert inni í snjallsjónvarpsgáttinni. Besta leiðin að efni á netinu er að nota smáforrit (apps) þar sem þau eru ætluð til notkunar með sjónvarpsfjarstýringu í stað tölvumúsar. (Það er þó mögulegt að tengja mús og lyklaborð við USB tengi sjónvarpsins til að auðvelda netvöfrun). Athugið!
- Flestar vefsíður eru hannaðar til að vera skoðaðar á tölvuskjá, og eru því á sniði sem styður ekki við notkun á sjónvarpsskjá.
- Líkt og flestir snjallsjónvarpsvafrar, styður UPPLEVA vafrinn ekki Flash, tímaflakksstöðvar (catch-up TV channels) eða Netflix.
Athugið: Þar sem það tekur nokkra stund að tengjast internetinu, er mælt með að bíða í nokkrar mínútur með að nota snjallsjónvarpið eftir að kveikt hefur verið á sjónvarpinu.
Horfa og hlusta á efni
Á sjónvarpinu þínu eru USB tengi sem gera þér kleift að skoða myndir, hlusta á tónlist eða horfa á myndbönd sem geymd eru á USB drifi. Það getur líka sýnt efni af netkerfi heimilisins. Til að fá aðgang að efni á USB drifi og netkerfi þarf að fylgja eftirfarandi skrefum.
- Deila efni á DLNA netkerfinu þínu (Sjá Kafla 6 Notkun á sjónvarpinu - Deila og skoða) eða tengja USB drif við
sjónvarpið (Sjá Kafla 4 Tengingar - Tenging á USB drifi).
- Ýttu á fjarstýringunni til að sjá Aðalvalmynd.
- Notaðu ◀ til að velja Media og ýttu á OK til að opna.
- Ýttu á </> til að velja Photo, Music eða Video.
- Ýttu á √ til að fara á lista af tengdum USB drifum og DLNA vefþjónum.
- Ýttu á 〈 til að velja tæki/drif og Ýttu á OK til að opna.
- Ýttu á ʌ/√ til að velja skjal eða möppu. Ef þú velur möppu, ýttu þá á OK til að opna hana og velja skjal í henni.
- Til að flokka, breyta eða skoða öll skjöl (Parser) í möppu þarf að ýta á OPTION á fjarstýringunni.
- Ýttu á fjarstýringunni til að sjá Aðalvalmynd.
- Notaðu < til að velja Media og ýttu á OK til að opna.
- Ýttu á </> til að velja Photo, Music eða Video.
- Ýttu á < til að fara á lista af tengdum USB drifum og DLNA vefþjónum.
- Ýttu á < til að velja tæki/drif og ýttu á OK til að opna.
- Ýttu á /√ < til að velja skjal eða möppu. Ef þú velur möppu, ýttu þá á OK til að opna hana og velja skjal í henni.
- Til að flokka, breyta eða skoða öll skjöl (Parser) í möppu þarf að ýta á OPTION á fjarstýringunni.
- Sorted by: Flokkaðu skjölin þín og möppurnar eftir Date, Name, Genre, Artist, Album og Type (veltur á hvort þú ert í Photo, Music eða Video möppunni).
- Edit: Copy, paste eða delete valið skjal.
- Parser: Veldu Recursive til að sýna öll skjöl í möppu, þar með talin skjöl í undirmöppum. Veldu OPTION til að sýna möppurnar og undirmöppurnar.
- Veldu mynd, lag, eða myndband og ýttu á OK til að spila. Ýttu á OPTION á fjarstýringunni til að breyta stillingum í spilaranum.
- Þegar þú skoðar slide show af myndunum þínum getur þú, til dæmis, kveikt á normal/repeat/shuffle mode, valið hversu lengi þú vilt sýna hverja mynd, valið effect þegar skipt er á milli mynda og stjórnað hvort upplýsingar eru sýndar á skjánum.
- Þegar þú spilar tónlist getur þú, til dæmis, kveikt á normal/repeat one/repeat all/shuffle mode, sýnt upplýsingar, sýnt texta ef sá valmöguleiki er fyrir hendi, slökkt á skjánum og spilað bara hljóðið og valið hljóðstillingu.
- Þegar þú ert að horfa á myndband getur þú, til dæmis, kveikt á normal/repeat one/repeat all mode, sýnt upplýsingar, valið skjástillingu og valið hljóðstillingu.
- Notaðu ▶/□/ ▶ á fjarstýringunni til að stjórna spilaranum. Ýttu á INFO takkann til að sýna eða fjarlægja upplýsingar um það sem þú ert að spila.
Snið sem studd eru:
| Myndir JPEG |
| Tónlist MP3 |
| Myndb. AVI, MPG, MPEG, TS, DIVX, MKV... |
Athugið: Sumir USB lyklar og USB tæki eins og stafrænar myndavélar eða farsímar eru ekki alveg samrýmanleg USB 2.0, og gætu því mögulega ekki virkað með spilaranum. Ekki allir USB minnislyklar eða önnur USB smátæki virka með USB tenginu. Tegund kóðunar (encoding format) ræður hvort hægt er að spila efnið.
Með því að tengja sjónvarpið þitt við netkerfi heimilisins og virkja svo
Share&see aðgerðina, getur þú fengið aðgang að efni eins og myndum, tónlist og myndböndum sem deilt er úr öðrum tækjum sem einnig eru tengd netkerfinu, eins og tölvu, network server (NAS) eða snjallsíma og spjaldtölvu.
- Vertu viss um að sjónvarpið sé tengt beini, annað hvort þráðlaust eða með netkapli. Leiðbeiningar má finna í Kafla 4 Tengingar – Tenging á netkapli, og Kafla 7 Valmöguleikar og stillingar – Tenging við netkerfi heimilisins og internetið.
- Til að virkja Share & see aðgerðina þarf að ýta á MENU á fjarstýringunni, velja Options>Share&see og stilla á On. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
Deila efni úr tölvunni
Til að geta skoðað efni úr tölvunni í gegnum sjónvarpið þarftu að deila því úr tölvunni og til þess þarftu að setja upp Share&see media server í tölvunni, til dæmis Microsoft Windows Media Player 11 eða nýrri eða annað Share&see media server forrit. Til að geta skoðað efni í sjónvarpinu þarftu að vera viss um að gefa leyfi fyrir að því sé deilt í stillingunum í Share&see media server. Efni sem búið er að deila er svo hægt að nálgast í MEDIA í upphafsvalmynd sjónvarpsins.
Deila efni af netþjóni (NAS)
Fáðu aðstoð í leiðbeiningum sem fylgdu með netkerfi, um hvernig eigi að deila efni þaðan.
Deila efni úr snjallsíma eða spjaldtölvu Þú gætir þurft að ná í smáforrit sem breytir símanum eða spjaldtölvunni í DLNA netþjón, til að geta deilt efni þaðan.
- Ýttu á Ⓐ fjarstýringunni til að sýna Aðalvalmynd.
- Notaðu < til að velja Source.
- Ýttu á OK til að fara inn í lista yfir tengi.
- Notaðu ◀ til að velja tengi og ýttu á OK.
Smáforrit (app) fyrir snjallsímann eða spjaldtölvuna
Þessi aðgerð gerir þér kleift að breyta snjallsímanum þínum eða spjaldtölvunni í háþróaða fjarstýringu sem gefur möguleika á fleiri aðgerðum en hefðbundin fjarstýring. Þú getur til dæmis fengið aðgang að myndum, myndböndum og tónlist úr snjallsímanum eða spjaldtölvunni og notið þeirra á sjónvarpsskjánum. Þú getur líka notað lyklaborð snjallsímans eða spjaldtölvunnar til að skrifa texta í sjónvarpinu, og margt fleira.
- Þú finnur upplýsingar um TV remote smáforritið, til dæmis um hvernig eigi að ná í það, í valmynd fyrir fjarstýringu. Til að komast í valmyndina þarf að ýta á MENU á fjarstýringunni, velja Options>TV remote og ýta á OK.
Til að byrja að nota TV remote forritið þarf að fylgja eftirfarandi skrefum.
- Náðu í TV remote smáforritið í símann eða spjaldtölvuna þína.
- Gakktu úr skugga um að snjallsíminn eða spjaldtölvan og sjónvarpið séu tengd sama netkerfi (LAN) eða sama hluta netkerfisins.
- Opnaðu TV remote forritið í símanum eða spjaldtölvunni. Forritið leitar sjálfkrafa að og tengist sjónvarpinu til að það virki sem fjarstýring.
- Þegar síminn eða spjaldtölvan hefur tengst sjónvarpinu getur þú notað aukaaðgerðirnar sem TV remote forritið býður upp á.
Time shift
Þessi aðgerð gerir þér kleift að taka upp sjónvarpsefni. Gakktu úr skugga um að USB drifið/minnislykillinn sé tengdur og
að nóg pláss sé á honum áður en upptaka hefst. Áður en Time shift er notað í fyrsta skipti þarf að fara í gegnum uppsetningu á USB drifinu/minnislyklinum. Til þess þarf að fylgja eftirfarandi skrefum.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Setup > Time shift.
- Ýttu á ✉ til að velja On til að kveikja á Time shift aðgerðinni og ýttu svo á EXIT til að loka valmyndinni.
- Ýttu á OPTION á fjarstýringunni og veldu Time shift. Ýttu á OK til að staðfesta.
- Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að klára uppsetninguna.
Fylgdu þessum skrefum til að nota Time shift.
- Ýttu á OPTION á fjarstýringunni og veldu Time shift.
- Ýttu á OK til að opna Time shift valmyndina og notaðu ▶/■ ▶▶ til að stjórna.
— Ýttu á til að hefja upptöku. Myndin fer á pásu.
— Ýttu á 📋 til að spila það sem tekið var upp.
— Þegar Time shift valmyndin hverfur og aðeins upptökutíminn sést á skjánum getur þú ýtt á ▶ eða OK til að opna Time shift valmyndina.
— Ýttu á 🔒 til að spóla aftur á bak eða 🔒 til að spóla áfram.
— Ýttu á ■ til að loka Time shift.
Athugið:
— Áður en þú tengir USB drifið við sjónvarpið þarftu að vera viss um að hafa tekið afrit af gögnunum sem þar eru geymd, ef ske kynni að eitthvað bili og gögnin glatist.
— Við mælum með notkun á USB drifi með a.m.k. 1GB lausu plássi og hraða yfir 5.0MB/sec.
— Því meira laust pláss sem er á drifinu, því meira er hægt að taka upp.
— Ef þú skiptir um stöð meðan upptaka er í gangi koma upp skilaboð þar sem þú ert beðin/n að velja Yes eða No. Þú getur valið Yes til að loka Time shift og skipta um stöð.
— Þessi aðgerð er aðeins möguleg í sumum sjónvörpum og, vegna sérstakra takmarkana í netkerfi eða tæknikrafna í hverju landi fyrir sig, er hún mögulega ekki í boði í þínu sjónvarpi eða á svæðinu þar sem sjónvarpið er sett upp. Einnig geta
sjónvarpsstöðvar lokað á þessa aðgerð til að vernda höfundarrétt (HD innihald, fjölföldunarvörn). Notaðu vinsamlega OPTION á fjarstýringunni til að athuga hvort þessi aðgerð sé í boði í þínu sjónvarpi.
Upptaka (PVR)
Gerir þér kleift að taka upp eftirlætissjónvarpsþættina þína. Áður en þú notar þessa aðgerð þarf að stinga USB drifi í samband við sjónvarpið.
Athugið: Þessi aðgerð er aðeins möguleg í sumum sjónvörpum og, vegna sérstakra takmarkana í netkerfi eða tæknikrafna í hverju landi fyrir sig, er hún mögulega ekki í boði í þínu sjónvarpi eða á svæðinu þar sem sjónvarpið er sett upp. Einnig geta sjónvarpsstöðvar lokað á þessa aðgerð til að vernda höfundarrétt (HD innihald, fjölföldunarvörn). Vinsamlega notaðu
OPTION á fjarstýringunni til að athuga hvort þessi aðgerð sé í boði í þínu sjónvarpi.
- Ýttu á OPTION á fjarstýringunni og veldu Quick access > PVR.
- Ýttu á OK til að opna. Eða Ýttu á REC á fjarstýringunni til að fara beint inn í PVR valmyndina.
- Fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum til að nota PVR.
— Ýttu á REC á fjarstýringunni til að hefja upptöku. Upptakan er vistuð í möppu sem merkt er númeri stöðvarinnar í PVR möppunni í Media > Video.
- Notaðu ∧/∨/⟨⟩ til að stilla lengd upptökunnar.
— Ýttu 📁 til að stöðva upptökuna handvirkt; alla jafna stöðvast upptakan þegar upptökutíminn er liðinn.
- Meðan á upptöku stendur, sést lítill PVR-gluggi á skjánum þar sem sjá má upplýsingar um upptökuna.
- Til að horfa á upptekið efni þarf að fara út úr PVR og fara í Media > Video. Veldu PVR möppu og veldu svo upptöku. Ýttu á OK til að spila.
Athugið:
— Þessi aðgerð er aðeins í boði fyrir stafrænar útsendingar sem ekki eru læstar. Jafnvel þótt CICAM (CI eða CI+) sé til staðar er þessi aðgerð ekki í boði fyrir læstar stöðvar.
— Áður en þú tengir USB drifið við sjónvarpið þarftu að vera viss um að hafa tekið afrit af gögnunum sem þar
eru geymd, ef ske kynni að eitthvað bili og gögnin glatist.
— Því meira laust pláss sem er á drifinu, því meira er hægt að taka upp.
— Ef þú vilt skipta um stöð eða viðtæki (source) meðan á upptöku stendur þarf að vista upptökuna áður en skipt er um stöð eða viðtæki.
— Sjónvarpið getur ekki spilað efni ef skráarstærðin er umfram takmarkanir sem kerfið setur, ekki er stuðningur við skráarsniðið, skráin er skemmd eða ef ekki er hægt að aflæsa skránni.
— Ekki taka USB drifið úr sambandi á meðan kerfið er að lesa skrá eða senda gögn því það getur valdið skemmdum á kerfinu eða drifinu.
Skrá áminningar og upptökur
Þú getur stillt áminningu eða upptöku fram í tímann með því að nota Schedule list aðgerðina.
Valmöguleikar:
— Skráðu áminningu þannig að sjónvarpið minni þig á ákveðna dagskrárliði. Ef þú hefur ekki brugðist við þegar viðkomandi dagskrárliður hefst, slokknar á áminningunni og sjónvarpið heldur eðlilega áfram.
— Skráðu upptöku ef þú vilt að sjónvarpið taki sjálfkrafa upp ákveðinn dagskrárlið á ákveðnum tíma og dagsetningu.
- Ýttu á OPTION á fjarstýringunni og veldu Quick access > Schedule list.
- Ýttu á OK til að sjá lista af skráðum áminningum og upptökum.
- Til að bæta við nýrri upptöku þarf að ýta á rauða takkann til að setja inn nauðsynlegar upplýsingar.
- Notaðu < til að velja númer stöðvar.
- Stilltu dagsetningu, upphafstíma og lokatíma upptökunnar með því að nota númeratakkana.
- Veldu hvort þú vilt stilla áminningu eða upptöku.
- Veldu hvort og hvernig þú vilt endurtaka áminninguna eða upptökuna.
- Veldu Add með því að nota örvatakkana á fjarstýringunni og ýttu á OK til að bæta áminningunni eða upptökunni á listann.
- Ef þú vilt skrá aðra áminningu eða upptöku þarftu að ýta á rauða takkann og endurtaka skref 4-8.
- Ef þú vilt breyta eða eyða skráðri áminningu eða upptöku þarftu að nota örvatakkana til að velja hana og ýta svo á OK.
- Ýttu á EXIT á fjarstýringunni til að loka valmyndinni.
Skipulagning dagskrár (EPG)
Electronic Program Guide (EPG) er skjáleiðarvísir sem sýnir sjónvarpsdagskrána. Fylgdu þessum skrefum til að skoða, velja, horfa á og taka upp dagskrárliði í EPG.
- Ýttu á GUIDE á fjarstýringunni. Þá birtist Now and Next EPG valmyndin sem veitir upplýsingar um núverandi og næsta dagskrárlið á hverri stöð fyrir sig. Notaðu örvatakkana á fjarstýringunni til að skoða mismunandi dagskrárliði.
- Notaðu litatakkana til að skoða 8 Days EPG.
— Fyrri dagur (rautt): Skoða dagskrá (EPG) dagsins áður.
— Skoða upplýsingar (gult): Sýna lýsingu á núverandi dagskrárlið, ef það er í boði.
- Tegundasía (blátt): Sía fyrir dagskrárliði stafrænna stöðva.
- Ýttu á bláa takkann til að sýna tegund dagskrárliða og undirtegundir.
- Notaðu örvatakkana á fjarstýringunni til að fara á milli mismunandi flokka og undirflokka dagskrárliða.
- Þú getur merkt við einn eða fleiri flokk úr tegundalistanum með því að ýta á OK til að velja (eða taka úr vali). Merki birtist til vinstri við þá flokka sem eru valdir. Þegar þú velur flokk, velur þú sjálfkrafa einnig alla undirflokka viðkomandi flokks.
- Þú getur líka valið undirflokka án þess að velja fyrst flokk.
- Ýttu á bláa takkann og lista yfir undirflokka.
- Eftir síun sérðu alla uppáhaldsdagskrárliðina þína.
- Þú getur skráð upptöku á dagskrárlið fyrirfram. Ýttu á OPTION á fjarstýringunni til að fara inn í dagskrárlistavalmyndina. Fylgdu sömu skrefum og í kaflanum hér að framan, Schedule reminders and recordings, til að skrá upptöku á dagskrárlið.
- Ýttu á GUIDE eða EXIT til að fara út úr EPG og stilla á valda stöð.
HbbTV
HbbTV (Hybrid broadcast broadband TV) er þjónusta sem ákveðnar stöðvar bjóða upp á og er aðeins í boði á sumum stafrænum sjónvarpsstöðvum. HbbTV býður upp á gagnvirkt sjónvarp í gegnum bæði útsendingar og internetið. Gagnvirka þjónustan er viðbót, og hún gerir hefðbundnu stafrænu dagskrána enn betri. Þjónustan felur m.a. í sér stafrænt textavarp, dagskráryfirlit (electronic programme guide), leiki, kosningar, nánari upplýsingar tengdar núverandi dagskrárlið, gagnvirkar auglýsingar, upplýsingatímarit o.fl.
Það eru tvær leiðir:
— Ef notuð er útsending, þá þarf sjónvarpið ekki að vera tengt internetinu. Þú getur þá tekið á móti HbbTV þjónustunni á sama tíma og dagskrárliðnum sem verið er að horfa á, eins og sérstökum eða aukaupplýsingum tengdum dagskrárliðnum. Merki á skjánum (til dæmis rauður punktur) gefur til kynna að þú eigir að ýta á rauða takkann á fjarstýringunni til að nota þjónustuna. — Þegar þjónustan er notuð í gegnum internetið, þarf sjónvarpið að vera nettengt. Auk þess að horfa á dagskrána, færðu aðgang að sömu þjónustu og í gegnum útsendingu, auk annarrar gagnvirkrar þjónustu á netinu, eins og Video On Demand (VOD) og tímaflakks.
Til að njóta HbbTV til fulls þarftu að tengja sjónvarpið við internetið (Sjá Kafla 7 Valmöguleikar og stillingar - Tenging við netkerfi heimilisins og internetið). Athugið:
— Ekki er hægt að hlaða niður gögnum í sjónvarpið í gegnum HbbTV þjónustuna. — Þjónustan á HbbTV getur dottið út tímabundið, ef upp koma vandamál í útsendingu eða hjá þjónustuaðilum. — Aðeins er hægt að nota smáforrit í HbbTV þegar sjónvarpskerfið er tengt utanaðkomandi kerfi (external network). Virkni smáforritsins veltur á styrk nettengingar.
HbbTV
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni, veldu Options>HbbTV mode og notaðu </> til að stilla á On og virkja HbbTV.
- Þegar þú stillir á stafræna sjónvarpsstöð sem býður upp á HbbTV, færðu merki um það á skjánum (oftast er það rauður punktur, en aðrir litir eru líka notaðir). Ýttu á takka í sama lit (colour button) og kemur upp til að opna gagnvirku síðurnar.
- Notaðu ∧/√ og litatakkana til að fletta síðunum í HbbTV og ýttu á OK til að staðfesta.
Aftengja HbbTV
Til að forðast truflanir sem HbbTV útsendingin getur valdið, getur þú slökkt á HbbTV:
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni, veldu svo Options > HbbTV mode.
- Ýttu á ◀ til að velja Off.
Horft á sjónvarp í þrívídd
(*ekki í boði í öllum sjónvörpum)
Öryggi:
- Ófrískar konur og fólk sem veikt er fyrir hjarta ættu ekki að nota þrívíddargleraugun.
- Ekki er mælt með því að börn horfi á sjónvarp í þrívídd.
- Notið ekki þrívíddargleraugun í öðrum en tilætluðum tilgangi.
- Ef horft er á efni í þrívídd í langan tíma getur það valdið höfuðverk eða álagi á augu. Ef þú finnur fyrir einhvers konar óþægindum ættir þú að hætta að horfa á þrívíddarsjónvarpið og hvílast um stund.
- Hver sem hefur fengið flogakast, misst meðvitund eða fengið önnur einkenni flogaveiki, eða ef saga er um flogaveiki í fjölskyldunni, ætti að ráðfæra sig við lækni áður en viðkomandi horfir á þrívíddarsjónvarp.
Þrívíddarstillingin gerir þér kleift að horfa á efni í þrívídd í sjónvarpinu þínu. Fylgdu eftirfarandi skrefum til að horfa í þrívídd.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Picture > 3D navigation, notaðu svo < /> til að stilla 3D navigation á Manual.
- Ýttu á ∧ til að velja 3D í Picture valmyndinni og ýttu á OK til að fara inn í 3D valmyndina. (Mynd 4.)
- Settu á þig þrívíddargleraugun, veldu svo 3D mode og ýttu á < > til að velja það þrívíddarsnið sem óskað er.
- Ýttu á 🔊 til að velja aðra möguleika í valmyndinni:
- Þrívídd: Ýttu á / til að velja á milli 3D-to-2D, 2D-to-3D og Off. 3D-to-2D sýnir þrívíddarmynd í tvívídd (engin þrívíddarvirkni). Með 2D-to-3D aðgerðinni er hægt að breyta tvívíddarmyndum í þrívíddarmyndir. Þú þarft að nota UPPLEVA þrívíddargleraugun til að horfa á þrívíddarmyndir.
- Depth of field, Protrude, Distance to TV: Ýttu á < > til að stilla þrívíddina í myndinni.
- Image safety: Ýttu á < > til að velja á milli eftirfarandi valmöguleika: Low, Middle, High og Off.
- L-R switch: Veldu On eða Off til að stilla þrívíddina milli hægra og vinstra auga til að fá betri þrívíddarupplifun.
- Ýttu á EXIT til að loka valmyndinni. Athugið:
— Þrívíddargleraugu frá öðrum framleiðendum eru mögulega ekki nothæf. — Ekki er hægt að skoða myndir þegar stillt er á þrívíddarsjónvarp. — Ef skipt er um viðtæki (signal source) eða stillt á snjallsjónvarp, aftengist þrívíddarvirknin sjálfkrafa. — Mögulega er hluti þrívíddarvirkninnar óvirkur, það veltur á sniði þrívíddarmyndgagnanna (3D video source). — Stuð þrívíddarform: Analogue TV, SCART, Component: 2D-to-3D Digital TV, HDMI, USB, myndbönd á internetinu: Top and Bottom, Side-by-Side, 2D-to-3D, Line interleave, Frame sequential. — Þrívídd með USB: Meðan kveikt er á myndbandi á USB, ýtir þú á OPTION til að sjá valmynd í vafra og þar velur þú 3D Mode.
Upplýsingar um stafrænar sjónvarpsstöðvar
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Setup > Diagnostics.
- Ýttu á OK til að sýna upplýsingar um útsendingu núverandi stafrænnar stöðvar, eins og styrk útsendingarmerkis, tíðni o.fl.
7 Valmöguleikar og stillingar
Stöðvaleit
Þessi hluti lýsir því hvernig sjálfvirk stöðvaleit virkar. Leiðbeiningarnar eiga við um bæði hliðrænar (analog) og stafrænar stöðvar. Fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum ef eitthvað af þessu á við:
— þú ert búin/n að velja Skip scan við upphaflega uppsetningu — Þú sérð "Please scan channels!" þegar stillt er á sjónvarpið — þú vilt uppfæra stöðvarnar þínar.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Setup > Language. Ýttu á OK til að opna og notaðu < > til að velja tungumál valmyndar. Því miður er ekki boðið upp á íslenska valmynd.
- Ýttu á MENU til að fara til baka í Setup, ýttu á ʌ til að velja Country, ýttu svo á 〈〉 til að velja landið. Sjónvarpið finnur og raðar niður stöðvum byggt á því hvaða land er valið. Í þessu skrefi verður þú beðin/n um lykilorðið þitt.
- Ýttu á ⚠ til að velja Tuner mode (hvernig þú tekur á móti útsendingarmerkinu), ýttu svo á </ > til að velja Antenna eða Cable eða Satellite. (Athugið: Ekki er öruggt að Satellite valmöguleikinn sé í boði í öllum sjónvörpum.) Fylgdu a) eða b) eða c) hér að neðan. Valið veltur á tegund útsendingarmerkisins.
a) Ef þú valdir Antenna.
- Ýttu á ⚠ til að velja Channel install, og ýttu á OK til að opna.
- Veldu Automatic search (Sjá mynd 2.), ýttu svo á OK til að opna Automatic search.
- Ýttu á OK til að sleppa vali á landi og fara í næsta skref. Þú getur líka notað 〈〉 til að endurvelja land, ýttu svo á OK til að opna. • Veldu Digital & Analogue eða Digital eða Analogue, ýttu svo á
OK til að hefja sjálfvirka leit sem nær til allra stafrænna (DVB-T) og/eða hliðrænna (analog) stöðva.
- Ýttu á ʌ til að velja Channel install, og ýttu á OK til að opna.
- Veldu Automatic search, ýttu svo á OK til að opna Automatic search.
- Ýttu á OK til að sleppa vali á landi og fara í næsta skref. Þú getur líka notað </> til að endurvelja land, ýttu svo á OK til að opna.
- Ef þú valdir Digital & Analogue, ýttu á OK til að opna. Veldu Scan mode aðgerðina ef hún er í boði (Full eða Advanced). Ef þú velur Full, veldu Scan og ýttu á OK til að hefja sjálfvirka leit sem nær til allra stafrænna (DVB-C) og hliðrænna (analog) stöðva. Ef þú velur Advanced, notaðu þá tölurnar á fjarstýringunni til að setja inn Frequency, Symbol rate og Network ID gildi, og notaðu 〈〉 til að velja tegund Modulation. Ýttu á × til að velja Scan og ýttu á OK til að hefja sjálfvirka leit sem nær til allra stafrænna (DVB-C) og hliðrænna (analog) stöðva.
— Ef þú velur Digital, fylgir þú sömu skrefum og hér að ofan til að hefja sjálfvirka leit sem nær til allra stafrænna (DVB-C) stöðva.
— Ef þú velur Analogue, ýtir þú á OK til að hefja sjálfvirka leit sem nær til allra hliðrænna (analog) stöðva.
c) Ef þú valdir Satellite.
- Ýttu á ✗ til að velja Channel install, og ýttu á OK til að opna.
- Veldu Automatic search, ýttu svo á OK til að opna. Þú getur valið operator og ýttu svo á OK til að opna.
- Áður en þú hefur leitina getur þú valið Satellite Setup og ýtt á OK til að velja gervihnött og valið OK aftur til að breyta stillingum fyrir valinn gervihnött. Ýttu á MENU þegar því er lokið til að fara til baka. Stilltu Scan mode og Channels með því að nota </> veldu Scan og ýttu á OK til að hefja leit.
- Leitin gæti tekið nokkrar mínútur. Þú getur ýtt á MENU til að stöðva leitina.
- Þegar sjálfvirkri leit er lokið ýtir þú á
MENU til að fara til baka í fyrra skref eða OK til að endurræsa stöðvaleit.
- Eftir sjálfvirka leit er stöðvunum raðað í fyrirfram ákveðna röð. Ef þú vilt sleppa vissum stöðvum, breyta röðinni eða nefna stöðvarnar upp á nýtt velur þú Setup > Organiser og ýtir á OK til að opna.
Uppsetning á uppáhaldsstöðvum
Þú getur búið til lista af uppáhaldsstöðvum.
- Ýttu á LIST.
- Ýttu á gula takkann til að opna Channel list selection. Ýttu á ✗ til að velja listann og ýttu á OK til að opna.
- Ýttu á bláa takkann til að breyta listanum. Ýttu á 🔊 til að fletta á milli stöðva og ýttu á OK til að velja eða taka úr vali.
- Ýttu á LIST eða EXIT til að loka.
Tenging við netkerfi heimilisins og internetið
Þráðlaus tenging
Sjónvarpið þitt getur tengst netinu þráðlaust. Til að gera það þarftu þráðlausan beini (router) eða mótald. Fylgdu eftirfarandi skrefum til að setja upp þráðlausa nettengingu. Notaðu ✗ ✕ </> til að fletta í valmyndinni eða fara á milli valmöguleika og ýttu á OK til að fara inn í undirvalmyndir.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni til að fara inn í valmyndina. Farðu í gegnum Options > Network settings > Internet connection og veldu On.
- Finndu Interface og veldu Wireless.
- Finndu Wireless setting og ýttu á OK til að opna.
- Það eru þrjár leiðir til að setja upp þráðlausa nettengingu:
- Finndu Interface og veldu Wireless.
- Finndu Wireless setting og ýttu á OK til að opna.
- Það eru þrjár leiðir til að setja upp þráðlausa nettengingu:
- Veldu Scan og ýttu á OK til að hefja leit. Sjónvarpið leitar þá að og sýnir allar nettengingar sem í boði eru.
- Finndu rétta tengingu og ýttu á OK til að tengja sjónvarpið.
- Ef þú velur læst kerfi þarftu að stimpla inn viðeigandi lykilorð. Ýttu á OK á fjarstýringunni til að fá fram lyklaborð til að stimpla inn lykilorðið. Veldu OK til að fara út úr lyklaborðinu og staðfestu lykilorðið með því að
ýta á > Next. Ýttu aftur á > Next ef tenging tekst, til að halda áfram. Ef hún tekst ekki þarf að endurtaka þetta skref.
Athugið:
- Sjónvarpið man eftir netkerfum þannig að hægt er að tengjast þótt slökkt sé á sjónvarpinu.
b) Manual. Ef þú vilt leita að ákveðnu netkerfi.
- Veldu Manual og ýttu á OK. Þú verður beðin/n um nafn (SSID) þráðlausa beinisins sem þú vilt tengjast. Ef þú velur læst kerfi þarftu að stimpla inn viðeigandi lykilorð. Ýttu á OK á fjarstýringunni til að fá fram lyklaborð til að stimpla inn lykilorð með því að nota ✗ ✗
/ ♦ ♀ OK. Veldu OK til að loka lyklaborðinu og staðfestu lykilorðið með því að ýta á > Next. Ýttu aftur á > Next ef tenging tekst, til að halda áfram. Ef hún tekst ekki þarf að endurtaka þetta skref.
c) Auto. Ef netkerfið þitt styður WPS (Wi-Fi Protected Setup). Þú getur tengst netkerfinu í gegnum PBC (Push Button Configuration) ef það er PBC takki á beininum þínum, eða með PIN (Personal Identification Number) númeri. Veldu aðeins PIN ef þú ert með PIN númer fyrir beininn. WPS breytir SSID og WPA lyklunum sjálfkrafa, hvort sem notað er.
- Veldu Auto og ýttu á OK.
- PBC: Veldu PBC og ýttu á OK til að opna. Ýttu á PBC takkann á beininum innan tveggja mínútna. Ýttu aftur á OK á fjarstýringunni. Sjónvarpið þitt fær þá öll stillingargildi sem það þarfnast og tengist netkerfinu sjálfkrafa.
- Þegar tenging er komin á þarf að ýta á MENU á fjarstýringunni til að fara til baka í valmynd fyrir netkerfisstillingar (Network settings).
- PIN: Veldu PIN og ýttu á OK til að opna. Sláðu inn PIN númer beinisins (router). Vertu viss um að númer sé sett upp í kerfinu (fáðu upplýsingar í leiðbeiningum sem fylgdu beininum). Ýttu aftur á OK á fjarstýringunni til að setja upp tenginguna.
Þegar tenging er komin á þarf að ýta á MENU á fjarstýringunni
til að fara til baka í valmynd fyrir netkerfisstillingar (Network settings).
- Veldu Connection test og ýttu á OK til að sjá styrk nettengingar. Ef það virkar ekki þarftu að gera eftirfarandi.
- Veldu Options > Network settings > IP setting og ýttu á OK til að opna IP setting valmyndina. Þú getur stillt Address type á Auto ef þú vilt að sjónvarpið finni og setji inn IP töluna sjálfkrafa, eða Manual ef þú vilt slá IP töluna inn handvirkt. Notaðu ✗ til að fara á milli reita og notaðu tölurnar á fjarstýringunni til að stimpla inn IP address, Subnet mask, Default gateway, Primary DNS og Secondary DNS gildin.
- Ef þú vilt sjá upplýsingar um núverandi tengingu, eins og Interface, Address type, IP address, o.s.frv., veldu Options > Network settings > Information og ýttu á OK.
Tenging með netkapli
Ef þú kýst það heldur, getur þú líka tengt netkapal í LAN tengið á sjónvarpinu. Það eru þrjár leiðir til að tengja sjónvarpið við netkerfi heimilisins með netkapli:
— Þú getur tengt sjónvarpið þitt við netkerfi heimilisins með því að tengja LAN tengið á sjónvarpinu við utanáliggjandi mótald (modem) með netkapli (Cat 5). — Þú getur tengt sjónvarpið þitt við netkerfi heimilisins með því að tengja LAN tengið á sjónvarpinu við IP Sharer sem er tengdur við utanáliggjandi mótald. Notið netkapal til að tengja. — Ef stillingar netkerfisins eru þannig, gætir þú mögulega tengt sjónvarpið við netkerfi heimilisins með því að tengja LAN tengið á sjónvarpinu beint við vegginnstungu með netkapli. Athugaðu að vegginnstungan þarf að vera tengd mótaldi eða beini (router) annars staðar á heimilinu.
Fylgdu þessum skrefum til að koma á tengingu. Notaðu ✗ √ / < til að fletta í valmyndinni eða fara á milli valmöguleika og ýttu á OK til að fara inn í undirvalmyndir.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni til að opna valmyndina. Farðu í Options > Network settings > Internet connection og veldu On.
- Farðu í Interface og veldu Ethernet.
- Veldu Connection test og ýttu á OK til að athuga styrk internettengingarinnar. Ef það virkar ekki þarf að fylgja næsta skrefi.
- Veldu Options > Network settings > IP setting og ýttu á OK til að opna IP setting valmyndina. Þú getur stillt Address type á Auto ef þú vilt að sjónvarpið nái sjálfkrafa í og setji inn nauðsynlega IP tölu, eða Manual ef þú vilt setja IP töluna inn handvirkt. Notaðu ^/√ til að fara á milli reita og notaðu tölurnar á fjarstýringunni til að setja inn IP address, Subnet mask, Default gateway, Primary DNS og Secondary DNS gildi.
- Til að fá upplýsingar um tenginguna þína eins og Interface, Address type, IP address, o.s.frv., þarftu að velja Options > Network settings > Information og ýta á OK.
Nefna tengingar
Þú getur nefnt upp á nýtt tengd viðtæki í samræmi við tegund tækis í stað tegund tengis. Til að gera það fylgir þú eftirfarandi skrefum.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Setup > Input settings.
- Ýttu á OK til að setja inn Input settings.
- Notaðu ∧ til að velja tengið sem tækið þitt er tengt.
- Notaðu ✕ til að velja tegund tækis sem tengt er tenginu.
- Ýttu á MENU til að fara aftur í Setup valmyndina.
Velja land
Til að velja land þarf að fylgja eftirfarandi skrefum.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og notaðu </> og OK til að velja og opna Setup.
- Notaðu ∧ til að fara inn í Country. Ýttu á > til að velja land. Hérna verður þú beðin/n um að slá inn lykilorðið. Lykilorðið er 1234, nema þú hafir breytt því (Sjá Lykilorð, síðar í þessum kafla). Þegar lykilorðið hefur verið slegið inn getur þú skipt um land með því að nota </>. Ýttu á MENU á fjarstýringunni til að fara aftur í Setup valmyndina. 3.
Velja tungumál valmyndar
Þú getur valið tungumál valmyndar með því að fylgja eftirfarandi skrefum. Því miður er ekki boðið upp á íslenska valmynd.
- Ýttu á MENU til að sýna aðalvalmynd.
- Ýttu á ◀ til að velja Setup og Ýttu á OK til að opna.
- Veldu Language og ýttu á OK til að opna.
- Notaðu < til að velja tungumál.
- Ýttu á EXIT til að loka valmyndinni.
Tungumál textavarps
Ef tungumálið þitt er ekki rétt í textavarpinu þarftu að ýta á MENU á fjarstýringunni og velja Options > Teletext > Default language. Notaðu </> til að velja tungumál og tungumálaflokk.
Þú getur breytt aðaltungumáli ef útsending býður upp á að tungumál sé valið. Til að velja annað tungumál þarf að ýta á MENU á fjarstýringunni og velja Options > Teletext > Digital teletext language og nota </> til að velja tungumál. Ýttu á MENU til að fara til baka í aðalvalmyndina eða EXIT til að loka valmyndinni.
Ýttu á MENU til að fara til baka í aðalvalmyndina eða EXIT til að loka valmynd fyrir textavarp.
Textun
Þú getur kveikt á texta fyrir hverja sjónvarpsstöð. Textinn er sendur út í gegnum textavarpið eða DVB-T/DVB-C stafrænar útsendingar. Á stafrænum stöðvum hefur þú einnig möguleika á að velja textatungumál.
Kveikt/slökkt á texta
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Options > Subtitle.
- Ýttu á OK til að opna. (Sjá mynd 5.)
- Veldu Subtitle valmöguleikann og
notaðu ◀ til að velja On/Off til að kveikja eða slökkva á texta.
- Ýttu á MENU til að fara til baka í aðalvalmynd eða EXIT til að loka valmyndinni.
Tungumál texta á stafrænum stöðvum
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Options > Subtitle > Digital subtitle language.
- Notaðu ✕ ✗ til að velja aðaltextatungumál.
- Notaðu ∧ tǐ til að velja Digital subtitle language 2nd.
- Notaðu < > til að velja aukatextatungumál.
- Ýttu á EXIT til að loka aðalvalmyndinni.
Texti fyrir heyrnarskerta
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Options > Subtitle > Subtitle type.
- Notaðu < til að velja tegund texta. Þú getur valið Hearing impaired til að sýna texta fyrir heyrnarskerta á því tungumáli sem valið var.
Hljóðlýsing
Hljóðlýsing (Audio Description) vísar til aukahljóðrásar fyrir blinda og sjónskerta notendur sjónrænna miðla, þ.m.t. sjónvarpsþátta og kvikmynda. Hljóð„sögumaður“ lýsir því sem gerist á skjánum þegar hlé er á tali/hljóði í útsendingunni (og á meðan talað er, ef þörf krefur). Þú getur nýtt þér þessa aðgerð ef útsendingin býður upp á hljóðlýsingu.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni. Veldu Sound > Audio Description, og ýttu á OK til að opna.
- Þú getur kveikt og slökkt á hljóðlýsingu í Audio Description valmyndinni.
- Til að stilla hljóðstyrk lýsingarinnar, notar þú 🔊 til að fara í næstu línu í valmyndinni og notar svo ◀ til að stilla hljóðstyrkinn.
Stilla tímann
Stilltu tímann með því að samræma hann tíma stafrænu stöðvanna. Til að gera það þarf að fylgja eftirfarandi skrefum:
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Options > Timer > Clock > Auto synchronization.
- Notaðu ✕ til að velja On.
T-Link
Notaðu þessa aðgerð til að leita að CEC tækjum sem tengd eru HDMI tengjum á sjónvarpinu þínu. Þegar kveikt er á T-Link getur þú spilað/sett á pásu (one-touch play) og slökkt/kveikt (system standby) á CEC tækjunum þínum með einni fjarstýringu. CEC er HDMI aðgerð sem gerir þér kleift að stjórna mörgum tækjum sem tengd eru með HDMI (til dæmis DVD spilara eða myndlykil) með aðeins einni fjarstýringu.
Til að tengja eða aftengja T-Link, þarf að fylgja eftirfarandi skrefum.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni, veldu svo Options > T-Link.
- Ýttu á 〈 til að velja On eða Off.
Með one-touch play getur þú ýtt á play takkann á til dæmis DVD fjarstýringunni til að kveikja á spilaranum og þá skiptir sjónvarpið sjálfkrafa yfir á það sem verið er að spila.
Notkun á system standby
A system standby nægir að ýta á Ⓓ takkann á (til dæmis) sjónvarpsfjarstýringunni og þá fer sjónvarpið, og öll tengd HDMI tæki, í biðham (standby).
Athugið: CEC virknin veltur á tækjunum sem tengd eru og það er mögulegt að CEC virkni sumra tækja sé takmörkuð með þessu sjónvarpi. Nánari upplýsingar er að finna hjá framleiðanda eða í leiðbeiningum með tækjunum.
Hljóðstillingar fyrir tæki sem tengd eru SPDIF
Þegar þú hefur tengt hljómtæki við SPDIF tengið getur þú valið tegund hljóðs. Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Options > SPDIF type. Hérna getur þú valið milli PCM, Dolby D og Off.
— Ef hljómtækið þitt er með Dolby digital ættir þú að velja Dolby D. Ef þú velur Dolby D, er SPDIF sniðið
- Dolby digital þegar útsendingin er í Dolby Digital eða Dolby Digital Plus eða HE-AAC.
- PCM þegar útsendingin er á MPEG sniði.
— Ef hljómtækið þitt er ekki með Dolby D ættir þú að nota PCM.
— Ef þú velur Off, slokknar á hljóði hljómtækisins sem tengt er SPDIF tengið.
Athugið: Valmöguleikarnir sem þú velur fara eftir útsendingunni sem horft er á. Ef þú velur PCM og hljóðið er á undan myndinni, getur þú valið SPDIF delay í Options valmyndinni og notað til að stilla töf til að samræma hljóð og mynd.
DivX myndskrár
(*ekki í boði í öllum sjónvörpum) DivX® er stafrænt myndsnið skapað af DivX, LLC, dótturfélagi Rovi Corporation. Þetta er vottað DivX Certified® tæki sem spilar DivX myndbönd. Skoðaðu divx.com til að nálgast frekari upplýsingar og hugbúnað til að breyta gögnum í DivX myndskrár. Þetta vottaða DivX Certified® tæki þarf að skrá til að geta spilað keyptar DivX Video-on-Demand (VOD) kvikmyndir.
Til að fá skráningarlykil þarf að fylgja eftirfarandi skrefum
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni. • Veldu Options > DivX(R) registration.
- Ýttu á OK og þá birtist skráningarlykillinn á skjánum.
Farðu á vod.divx.com til að fá nánari upplýsingar um hvernig eigi að ljúka skráningunni.
Til að afskrá sjónvarpið þarf að fylgja eftirfarandi skrefum
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni.
- Veldu Options > DivX(R) deregistration.
- Ýttu á OK og þá birtast skilaboð sem gefa þér leiðbeiningar um framhaldið.
Orkusparnaður
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Setup > ECO Settings > Energy Saving.
- Notaðu ✕ til að velja orkusparnaðarsnið.
- Ýttu á EXIT til að loka valmyndinni.
Uppfæra sjónvarpsstöðvar
Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Options > Network update. Veldu On/Off til að kveikja eða slökkva á Network update aðgerðinni.
— Þegar kveikt er á þessari aðgerð, uppfærir sjónvarpið stöðvarnar sjálfkrafa ef þjónustuaðili stafrænnar sjónvarpsútsendingar uppfærir kerfið hjá sér. — Þegar slökkt er á þessari virkni þarftu að kveikja aftur á stöðvaleitinni til að fá nýjar stöðvar eða fjarlægja óvirkar stöðvar ef þjónustuaðilinn hefur bætt við eða fjarlægt stöðvar í kerfinu sínu.
Lykilorð
Sjálfgefið lykilorð sjónvarpsins er 1234. Þú getur breytt þessu lykilorði með því að fylgja eftirfarandi skrefum.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Options > Lock.
- Sláðu inn lykilorðið og veldu Change password.
- Sláðu inn nýja lykilorðið þitt tvisvar til að staðfesta það. Upp koma skilaboð um að lykilorði hafi verið breytt.
- Ýttu á EXIT til að loka valmyndinni.
Barnalæsing
Þú getur stillt lásinn þannig að lokað sé fyrir ákveðið efni eða aðgerðir nema slegið sé inn lykilorð (sjá kafla 7 Valmöguleikar og stillingar - Lykilorð). Þú getur stillt eftirfarandi:
— Parental rating (til að farið sé fram á lykilorð til að horfa á efni sem leyft er til sýningar frá ákveðnum aldri), — Input lock (til að farið sé fram á lykilorð til að fá aðgang að ákveðnum tengjum), — Front panel lock (til að farið sé fram á lykilorð til að nota aðalhnappana), — Installation lock (til að farið sé fram á lykilorð til að fara inn í uppsetningarvalmyndina) og — Max volume (til að farið sé fram á lykilorð til að auka hljóðstyrkinn umfram ákveðið stig).
Fylgdu eftirfarandi skrefum til að stilla barnalæsinguna.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni til að velja Options. Farðu í Lock og sláðu inn lykilorðið.
- Stilltu barnalæsinguna og lokaðu valmyndinni með því að ýta á EXIT.
Stilla á Store eða Home
Ef þú horfir á sjónvarpið heima ættir þú að nota Home stillinguna. Það þýðir að sjónvarpið fer í biðham ef það er ekki notað í fjórar klukkustundir. Það er í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins 2009/125/EC. Fyrir verslanir: til að breyta yfir í Store stillingu þarf að fylgja eftirfarandi skrefum:
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Options > Location.
- Ýttu á < til að velja Store.
- Ýttu á EXIT til að loka.
Ef sjónvarpið er notað í verslun ætti að velja Store stillinguna.
Uppfærsla á hugbúnaði
Athugið: Ekki slökkva á eða taka sjónvarpið úr sambandi fyrr en uppfærslu er lokið.
Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu
Options > Software update. Ýttu á OK til að opna.
— By network: Hér getur þú hlaðið niður og sett upp nýjasta hugbúnaðinn af internetinu. Gættu þess fyrst að sjónvarpið sé nettengt, þráðlaust eða með netkapli, og veldu svo By network og ýttu á OK til að opna. Þegar ný hugbúnaðarútgáfa er í boði, birtist stika. Þegar niðurhali er lokið verður skjárinn svartur og sjónvarpið endurnýjar hugbúnaðinn.
Athugið: Vertu viss um að nettenging sé til staðar áður en hugbúnaður er uppfærður.
By channel: Í sjaldgæfum tilfellum er hægt að uppfæra hugbúnað í gegnum útsendingu. Sjónvarpið hleður niður nýjum hugbúnaði sjálfkrafa þegar hann býðst. Þá kemur upp tilkynning á skjáinn þar sem þér er boðið að uppfæra hugbúnaðinn strax eða síðar. Ef þú vilt ekki ná sjálfkrafa í hugbúnaðinn og vilt frekar leita að hugbúnaðaruppfærslum, getur þú slökkt á þessari aðgerð. Til að kveikja/slökkva og leita að hugbúnaðaruppfærslum þarftu að fylgja eftirfarandi skrefum. Notaðu √>til að velja Yes undir Auto download til að hlaða sjálfkrafa niður nýjasta hugbúnaðinum, ef slíkt er í boði. Eftir að búið er að hlaða hugbúnaðinum niður verður þú spurð/ur hvort þú viljir uppfæra strax. Ef svarið er já þarftu að fylgja leiðbeiningum á skjánum til að klára uppsetningu. Þú getur líka valið hér að bíða með uppsetningu.
- Notaðu < >til að velja No undir Auto download til að hafna sjálfvirku niðurhali.
- Notaðu ∧ til að velja Manual Download og ýttu á OK ef þú vilt leita handvirkt að nýjasta hugbúnaðinum. Fylgdu leiðbeiningum á skjánum til að klára. Meðan á leitinni stendur getur þú ýtt á OK/EXIT til að hætta við eða loka aðgerð.
CI þjónusta
Smáforrit (öpp) og efni í gegnum CI kortið koma frá þeim aðila sem þú kaupir af sjónvarpsþjónustuna. Til að stjórna þessari þjónustu þarf að ýta á MENU á fjarstýringunni og velja Options > Common interface.
Athugið: Þessi valmöguleiki er aðeins í boði ef CI kortið er rétt sett upp og virkt. Sjá Kafla 4 Tengingar – CI+/CAM kort.
Núllstilla á upphafsstillingar
Til að núllstilla sjónvarpið á sjálfgefnar upphafsstillingar þarf að fylgja eftirfarandi skrefum.
- Ýttu á MENU á fjarstýringunni og veldu Setup > Reset shop.
- Ýttu á OK til að opna.
- Notaðu tölurnar á fjarstýringunni til að slá inn lykilorðið. Lykilorðið er 1234, nema þú hafir breytt því (Kafli 7 Valmöguleikar og stillingar - Lykilorð).
- Ýttu á </> til að velja OK og Ýttu á OK til að staðfesta.
- Uppsetningarhjálpin birtist. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum og fáðu nánari upplýsingar í Kafla 5 Uppsetningarhjálpin.
8 Tæknilegar upplýsingar
| Sjónvarpsútsending | PAL/SECAM BG/DK/I/LL' |
| Móttökurásir VHF/UHF/Cable | |
| Tónjafnari Frequency synthesized | |
Kjörumhverfisaðstæður við notkun
Hitastig 5°C - 35°C (41°F - 95°F)
Rakastig 20 - 80%
Kjöraðstæður við geymslu
Hitastig -15°C - 45°C (5°F - 113°F)
Rakastig 10 - 90%
Skjáupplausn
- 1920x1080
OSS Tilkynning
Þessi vara notar hugbúnað sem dreift er undir merkjum
— Independent JPEG group. — Freetype Project. — OpenSSL Project. — zlib leyfi. — GPL/LGPL. GPL hugbúnaðar: Linux Kernel, Busybox, SquashFS, mtd-utils, e2fsprogs, BlueZ, Dbus, Glib, NTFS-3G Read/Write Driver, samba, iconv, Linux File System FTA. LGPL hugbúnaðar: DFB, SAWMAN, ALSA.
Þessi vara notar
— UNICODE hugbúnað sem dreift er samkvæmt IBM Open source leyfi. — libpng hugbúnað sem dreift er samkvæmt OSI Certified Open source leyfum. — Expat, Libcurl, c-ares hugbúnað sem dreift er samkvæmt MIT leyfi.
Vegna mjög fjölbreytts tilgangs og virkni þjónustu sem snjallsjónvarpið býður upp á, auk takmarkanna á framboði á efni, ýmissi þjónustu og smáforritum, er ekki víst að öll þjónusta sé í boði fyrir öll tæki eða á öllum mörkuðum. Sumar aðgerðir snjallsjónvarpsins krefjast auk þess aukabúnaðar eða áskriftar að þjónustu sem seld er sér. Nánari upplýsingar um framboð efnis er að finna á www.TCL.eu. Þjónusta og efnisframboð í snjallsjónvarpinu getur breyst endrum og eins án fyrirvara.
Allt efni og þjónusta sem aðgengileg er í gegnum þetta tæki tilheyra þriðja aðila og er verndað af höfundarrétti, einkaleyfi, skrásettu vörumerki og/eða öðrum lögum um hugverkarétt. Slíkt efni og þjónusta er aðeins ætlað til þinna persónulegu nota, ekki í viðskiptalegum tilgangi. Ekki er heimilt að nota efni eða innihald í öðrum tilgangi en eigandi eða þjónustuaðili hefur gefið leyfi fyrir. Án þess að takmarka fyrrnefnt, nema með sérstaklega tilkynntu leyfi viðeigandi eiganda eða þjónustuaðila, má ekki á nokkurn hátt breyta, fjölfalda, endurútgefa, hlaða upp, birta á netinu, senda út, þýða, selja, nota sem fyrirmynd að öðrum vörum, hagnýta eða dreifa efni eða þjónustu sem nálgast má í gegnum þennan tækjabúnað.
Þjónusta frá þriðja aðila getur breyst, hætt, verið fjarlægð eða trufluð, eða lokað getur verið fyrir aðgang hvenær sem er án fyrirvara, og IKEA getur ekki ábyrgst að nokkuð efni eða þjónusta verði aðgengileg í ákveðinn tíma. Efni og þjónusta er á vegum þriðja aðila í gegnum kerfi og útsendingarbúnað sem IKEA hefur enga stjórn á. Án þess að rýra gildi almenns innihalds þessa fyrirvara, afsalar IKEA sér allri ábyrgð eða bótaskyldu vegna nokkurs konar breytinga, truflana, lokunar, fjarlægingar eða tímabundinnar lokunar á efni eða þjónustu sem boðið er upp á í gegnum þetta tæki. IKEA gæti sett takmarkanir á notkun eða aðgang að vissri þjónustu eða efni án fyrirvara og bótaskyldu. IKEA ber ekki lagalega ábyrgð á þjónustu tengdri þessu efni og þjónustu. Hvers kyns spurningum og beiðnum vegna efnis og þjónustu þarf að beina beint til þjónustuaðila efnis og þjónustu.
IKEA lýsir því yfir að sjónvarp þetta stenst allar nauðsynlegar kröfur og önnur ákvæði Tilskipunar 1999/5/EC (ef það er með WiFi aðgang, innbyggðan eða í gegnum netþung).
9 Vandamál
Ef þú upplifir einhver eftirfarandi vandamála við notkun sjónvarpsins, ættir þú að byrja á að athuga hvort þú finnir lausn á eftirfarandi lista. Ef vandamálið er enn til staðar ertu beðin/n að hafa samband við þjónustuver IKEA í síma 520 2500 eða á www.IKEA.is.
Það kemur hvorki upp mynd né hljóð.
- Vertu viss um að sjónvarpinu sé rétt stungið í samband.
- Vertu viss um að tegund viðtækis sé rétt stillt.
- Vertu viss um að loftnet sé rétt tengt.
- Athugaðu hvort hljóðstyrkurinn sé á lægstu stillingu eða hvort slökkt hafi verið á hljóðinu.
- Athugaðu hvort heyrnartól séu tengd við tækið.
- Sjónvarpið nemur mögulega ekki útsendingarmerkið.
Myndin er óskýr.
- Vertu viss um að loftnetssnúran sé rétt tengd.
- Athugaðu hvort vandamál séu við móttöku á útsendingarmerkinu.
- Slæm myndgæði geta komið upp ef annað tæki, eins og myndbandsupptökuvél eða myndavél, er tengt við sjónvarpið. Prófaðu að slökkva á þeim.
- Það getur komið 'draugur' í myndina ef aðgengi að loftnetinu er hindrað af háum byggingum eða hæðóttu landslagi. Þetta gæti batnað ef notað er mjög stefnuháð loftnet.
- Lóðréttar punktalínur í myndinni geta orsakast af raftruflunum vegna t.d. hárþurrku, neonljósa o.þ.h. Slökktu á þeim eða fjarlægðu.
Myndin er of dökk, of ljós eða undarleg á litinn.
- Farðu yfir litblöndunina (colour adjustment).
- Farðu yfir birtustillingar (brightness setting).
- Farðu yfir skerpustillingar (sharpness function).
Fjarstýringin virkar ekki.
- Gættu þess að beina fjarstýringunni að sjónvarpinu.
- Athugaðu hvort rafhlöðurnar séu rétt settar í fjarstýringuna.
- Athugaðu hvort rafhlöðurnar séu tómar og þarfnist skiptingar.
- Gættu þess að ekki skíni skært flúrljós á innrauða gluggann framan á sjónvarpinu.
- Prófaðu að þrífa innrauða gluggann framan á sjónvarpinu með mjúkri tusku.
Ef vandamál er enn til staðar í tengslum við UPPLEVA sjónvarpið þitt ertu beðin/n að
hafa samband við þjónustuver IKEA í síma 520 2500 eða á www.IKEA.is.
10 Hafðu samband við IKEA
Ef þú hefur einhverjar spurningar um nýja UPPLEVA sjónvarpið eða hljóðkerfið, eða þarfnast þjónustu eða stuðnings, skaltu hafa samband við þjónustuver IKEA í síma 520 2500 eða á www.IKEA.is.
Til að tryggja að við getum veitt þér sem besta þjónustu, biðjum við þig að lesa leiðarvísinn vandlega yfir áður en þú hefur samband. Hafðu svo vörunúmer vörunnar við höndina þegar þú hringir. Það er 8 stafa tala sem finna má á sölukvittuninni og aftan á sjónvarpinu eða hljóðkerfinu.
11 SAMRÆMISYFIRLÝSING ÞÝÐINGAR
Þessi vara uppfyllir ákvæði CE merkinga fyrir sjónvarpstæki í samræmi við eftirfarandi tilskipanir:
- Tilskipun um rafföng innan ákveðinna spennumarka 2006/95/EC
- Tilskipun um rafsegulsamhæfi 2004/108/EC
- Tilskipun um takmörkun tiltekinna efna í raftækjum 2011/65/EU
- Tilskipun um visthönnun 2009/125/EC
- Tilskipun um þráðlausan búnað og endabúnað til fjarskipta 1999/5/EC
Tegund raftækis: 40" CTV móttökutæki með LCD skjá + Textavarp + Stereo hljóð Vörumerki: IKEA
Auðkennisflokkur: L40U5014FS, L40U5004FS, L40U5015FS, L40U5005FS
Eftirfarandi samræmdum Evrópustöðlum eða tækniforskrift, sem eru í samræmi við góðar verkfræðilegar starfsvenjur í öryggismálum innan EES, hefur verið beitt.
Öryggi
EN 60065:2002+A1:2006+A11:2008+A2:2010+A12:2011
Rafsegulsamhæfi (EMC)
EN 55013: 2001+A1:2003+A2:2006 EN 55022:2010+AC:2011 Class B EN 61000-3-2:2006+A1:2009+A2:2009 Class D EN 61000-3-3:2008 EN 55020:2007+A11:2011 EN 55024:2010
Þráðlaus búnaður og endabúnaður til fjarskipta (R&TTE)
EN 301 489-1 V1.9.2 (2011-09)
EN 301 489-17 V2.2.1 (2012-09)
EN 300 328-1 V1.7.1 (2006-10)
Visthönnun (ERP)
Reglugerð 642/2009
Viðbótarupplýsingar
Varan er CE merkt 2014.
Vöruprófanir eru í samræmi við vörulýsingu frá IKEA.
Sem viðurkenndir fulltrúar framleiðanda innan EES, lýsum við yfir ábyrgð okkar á að tækið uppfylli ákvæði þeirra tilskipana sem nefndar eru hér að ofan.
Dagsetning 18.08.14
SAMRÆMISYFIRLÝSING ÞÝÐINGAR
Þessi vara uppfyllir ákvæði CE merkinga fyrir sjónvarpstæki í samræmi við eftirfarandi tilskipanir:
- Tilskipun um rafföng innan ákveðinna spennumarka 2006/95/EC
- Tilskipun um rafsegulsamhæfi 2004/108/EC
- Tilskipun um takmörkun tiltekinna efna í raftækjum 2011/65/EU
- Tilskipun um visthönnun 2009/125/EC
- Tilskipun um þráðlausan búnað og endabúnað til fjarskipta 1999/5/EC
Tegund raftækis: 48" CTV móttökutæki með LCD skjá + Textavarp + Stereo hljóð Vörumerki: IKEA
Auðkennisflokkur: L48U5014DS, L48U5004DS, L48U5015DS, L48U5005DS
Eftirfarandi samræmdum Evrópustöðlum eða tækniforskrift, sem eru í samræmi við góðar verkfræðilegar starfsvenjur í öryggismálum innan EES, hefur verið beitt.
Öryggi
EN 60065:2002+A1:2006+A11:2008+A2:2010+A12:2011
Rafsegulsamhæfi (EMC)
EN 55013: 2001+A1:2003+A2:2006 EN 55022:2010+AC:2011 Class B EN 61000-3-2:2006+A1:2009+A2:2009 Class D EN 61000-3-3:2008 EN 55020:2007+A11:2011 EN 55024:2010
Þráðlaus búnaður og endabúnaður til fjarskipta (R&TTE)
EN 301 489-1 V1.9.2 (2011-09)
EN 301 489-17 V2.2.1 (2012-09)
EN 300 328-1 V1.7.1 (2006-10)
Visthönnun (ERP)
Reglugerð 642/2009
Viðbótarupplýsingar
Varan er CE merkt 2014.
Vöruprófanir eru í samræmi við vörulýsingu frá IKEA.
Sem viðurkenndur/ir fulltrúar framleiðanda innan EES, lýsum við yfir ábyrgð okkar á að tækið uppfylli ákvæði þeirra tilskipana sem nefndar eru hér að ofan.
Dagsetning 18.08.14
SAMRÆMISYFIRLÝSING ÞÝÐINGAR
Þessi vara uppfyllir ákvæði CE-merkinga fyrir sjónvarpstæki í samræmi við eftirfarandi tilskipanir:
- Tilskipun um rafföng innan ákveðinna spennumarka 2006/95/EB
- Tilskipun um rafsegulsamhæfi 2004/108/EB
- Tilskipun um takmörkun tiltekinna efna í raftækjum 2011/65/ESB
- Tilskipun um visthönnun 2009/125/EB
- Tilskipun um þráðlausan búnað og endabúnað til fjarskipta 1999/5/EB
Tegund raftækis: 55" CTV móttökutæki með LCD skjá + Textavarp + Stereo hljóð Vörumerki: IKEA
Auðkennisflokkur: L55U5015DS, L55U5005DS, L55U5014DS, L55U5004DS
Eftirfarandi samræmdum Evrópustöðlum eða tækniforskrift, sem eru í samræmi við góðar verkfræðilegar starfsvenjur í öryggismálum innan EES, hefur verið beitt.
Öryggi
EN 60065:2002+A1:2006+A11:2008+A2:2010+A12:2011
Rafsegulsamhæfi (EMC)
EN 55013: 2001+A1:2003+A2:2006 EN 55022:2010+AC:2011 Class B EN 61000-3-2:2006+A1:2009+A2:2009 Class D EN 61000-3-3:2008 EN 55020:2007+A11:2011 EN 55024:2010
Práðlaus búnaður og endabúnaður til fjarskipta (R&TTE)
EN 301 489-1 V1.9.2 (2011-09)
EN 301 489-17 V2.2.1 (2012-09)
EN 300 328-1 V1.7.1 (2006-10)
Visthönnun (ERP)
Reglugerð 642/2009
Viðbótarupplýsingar
Varan er CE merkt 2014.
Vöruprófanir eru í samræmi við vörulýsingu frá IKEA.
Sem viðurkenndur/ir fulltrúar framleiðanda innan EES, lýsum við yfir ábyrgð okkar á að tækið uppfylli ákvæði peirra tilskipana sem nefndar eru hér að ofan.
Dagsetning 18.08.14